Hillary Clinton og Donald Triumph

Hellary eftir kosningarnarSamkvæmt heimildum RÚV er heimurinn í einu allsherjar taugaáfalli eftir að sú sorgarfregn barst út að spilltasta stjórnmálakvendi norðan Suðurpóls hefði ekki náð forsetakjöri í Bandaríkjunum.

 

Vinstrimenn í öllum flokkum Íslands hafa tilkynnt að þeir séu "í sjokki" og "harmi slegnir" og í taumlausu táraflóði og með óstöðvandi ekka eftir sigur Donalds nokkurs Trump og segja grátbólgnir með titrandi neðrivör að "þröngsýni," "kvenhatur," "fordómar," og "hatur" útí allt og alla hafi haft sigur í kosningunum.

 

Clinton and Huma AbedinMér finnst nú ansi fordómafullt að fullyrða að helmingur Bandaríkjamanna séu fordómafullir þröngsýnir kvenfyrirlítandi hatursspúandi illfygli. Hillary þurfti sjálf að biðjast afsökunar á ámóta ummælum sem hún viðhafði um stuðningsmenn Donalds Trump fyrir um mánuði síðan. Þetta er yfirlæti og hálfgerður dónaskapur. Þetta er svona svipað og ef ég, prúðmennið sjálft, myndi segja að maðurinn sé það sem hann éti og að Hillary sé þar af leiðandi kunta.

 

Það er einkennilegt að tala um kvenhatur þegar það voru hvorki meira né minna en 42% kvenna sem studdu þennan hræðilega Donald Strump. Varla hata þær sjálfa sig?

 

Þögli meirihlutinn fékk málið

Trump 2 dögum eftir kosningarSigur Trump þessa var í raun ein stór og feit og löngu tímabær langatöng framan í stjórnmálaelítuna, fjármálaöflin, banksterana, Bush/Clinton mafíuna, lobbýistana, sérhagsmunahópana, öfgafemínismann, Open bordersruglið, fjölmenningarnonsensið, fjölmiðlaelítuna, herskáa stríðshauka-alheimslögreglu-utanríkispólitíkina, status quo, pólitíska rétttrúnaðinn - semsé allt það sem forréttindakvendið og spillingardrottningin Hillary Clinton stóð og stendur fyrir.

Skoðanakannannaframleiðendum var sömuleiðis gefið langt nef og snýtt hressilega. Þeir höfðu ekki árangur sem erfiði í skítkokkamennsku sinni.

 

Hellary for prisonHinn venjulegi þögli Jón og hin venjulega þögla Gunna voru einfaldlega búin að fá uppí kok af yfirgangi rétttrúnaðarsinna. Þeim fannst þau hafa verið sniðgengin og ekki hlustað á þau um árabil og sögðu einfaldlega Stopp! Þetta er orðið gott!

 

Þetta er einnig ástæðan fyrir uppgangi svokallaðra "hægri öfgaflokka" í Evrópu. Það eru vinstrifasistarnir sem ómeðvitað skapa þá með heiftúðugri frekju sinni, ofstæki, þöggunartilburðum, skoðanakúgun, upphrópunum, þindarlausum yfirgangi og pólitískum rétttrúnaðaröfgum.

 

Þögli meirihlutinn í Bandaríkjunum fékk málið í gegnum Trump.

Því meira andlegu ofbeldi sem vinstrifasistarnir beita því fleiri Trumpa fá þeir yfir sig.

 

Öllu tjaldað til - en tjaldið féll

Hellary for saleHillary fékk ómældan stuðning úr öllum heimshornum enda gat hún varla gengið óstudd. The Clinton Foundation verður að teljast einhver stórkostlegasta þvottastöð seinni tíma ef árangurinn er mældur í umfangi pólitískrar spillingar.

 

Þó að Hillary Rotten Clinton hafi verið studd af Bush fjölskyldunni, öllu poppara- og leikaraslektinu einsog það leggur sig, öllum þeim elítum sem nöfnum tjáir að nefna, Wall Street, George Soros, öllum meginstraumsfjölmiðlum heimsins, meiraðsegja RÚV, sjálfum Obama-forsetahjónunum og ekki má gleyma Qatar og Saudi Arabiu - sömu öflunum þar á bæjum sem styðja ISIS (ekki nema von að Obama og Hillary hafi gengið svona erfiðlega að ráða niðurlögum þeirra samtaka. Vantar kannski áhugann?) þá dugði það ekki til.

 

Hellary ákallar HellAllt kom fyrir ekki. Fólkið stoppaði hana af. Svo ég leyfi mér nú að skerpa línurnar örlítið á kurteislegan hátt þá vildi millistéttin frekar óheflaðan óháðan ómútanlegan hugsjónaríkan tæpitungulausan skrítinn utangarðsbissnisskall með steindauða gullhúðaða fljótarottu á hausnum en valdagíruga peningasjúgandi gegnumspillta hugmyndalausa hraðlygna gleiðbrosandi rammfalska stagbætta blóðþyrsta eiturnöðru með klofna tungu.   

 

Tap Hillaryar – sigur heimsins

Hellary er bombaÞegar allir hinir fjölmörgu þumalputtar Hillaryar hafa nú blessunarlega verið fjarlægðir af valdataflborði heimsins má gera ráð fyrir að skárra ástand skapist í Mið-Austurlöndum, (sem hún er reyndar búin að fokka upp eins og öllu öðru sem hún hefur komið nálægt), og einhver þíða myndist á milli Bandaríkjanna og Rússlands, nokkuð sem hún var alfarið á móti að myndi nokkurntíma henda. Í kosningabaráttunni lét hún ekkert tækifæri ónotað til að ráðast á Putin, enda hafa frammámenn í Rússlandi sagt að hefði hún náð kjöri hefðu líkurnar á Þriðju heimsstyrjöldinni aukist verulega.

Eru vinstrimenn að gráta það glataða tækifæri?

Þeir geta huggað sig við að einhver úr Clinton/Bush mafíunni hlýtur að bjóða sig fram eftir 4 ár.

 

Karl eða kona. Who gives a f...?

Hellary dílítariMeðan hinn samningalipri Trump boðaði bætt samskipti við erlend ríki á nokkuð nýstárlegan hátt þá boðaði Hillary sömu gömlu úr sér gengnu bandarísku herskáu inngripa-utanríkispólitíkina sem hefur leitt af sér ómældar hörmungar 37 ríkja frá lokum Seinni heimsstyrjaldar. Íran hefði verið næst á dagskrá hjá henni og fengið sömu meðferð og Líbýa og fleiri lönd sem hún hefur tekið virkan þátt í að rústa.

 

Er það þetta sem vinstrisinnissjúku vitringarnir eru að háskæla yfir eftir sigur Donalds Trump? Eða finnst þeim engu máli skipta hvað valdamesta manneskja heims hefur á milli eyrnanna heldur eingöngu hvað hún hefur á milli fótanna? Héldu þeir að breytingar á heimsmálunum og sjálfu forsetaembættinu fælust í að skipta um kyn þeirrar mannveru sem gegndi því?

 

Trumpurinn á réttri leiðÞó að Trumpurinn eigi það til að taka sterkt til orða og sé ekki fullkominn líkt og góðhjörtuðu grátgjörnu rétttrúnaðarsafnaðarmeðlimirnir þá má undrun sæta að þeir skulu umturnast af taugaæsingi og geðshræringu loksins þegar sjálfstæður óháður einstaklingur sest á forsetastól sem ekki er strengjabrúða banksteranna og valdaelítunnar.

Loksins loksins.

 

 

 

(Skrifaði þessa grein 10. nóvember, daginn eftir forsetakosningarnar, og sendi hana vini mínum honum Davíð uppá Mogga til birtingar, en hún hefur þar ekki ennþá litið dagsins ljós. En það er nú bara árið 2016 svo að það er ennþá von).


mbl.is Biður fólk að gefa Trump tækifæri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Það er ákkurat málið. Búin að vera að sópa í 27 ár og ekkert nema

vandræði, hvar sem hún hefur sett sinn fingur. Sama hér á landi þegar

nokkrir þreyttir samfó-sópar duttu út af þingi í seinustu kosningum og skilja

ekkert í því efir öll þessi ár á þingi af hverju fólk vill ekki hafa

þá þar áfram. Snilldar pistill Sverri, að vemju..laughing

Sigurður Kristján Hjaltested, 15.11.2016 kl. 13:43

2 Smámynd: Sigurður Andrés Jónsson

Las pistilinn yfir 3 sinnum og fann enga villu hja ter, allt rett og satt hehe. Og by eg nu i USA. Vel gert vinur.

Sigurður Andrés Jónsson, 16.11.2016 kl. 02:36

3 Smámynd: Samstaða þjóðar

Þú ert með þetta allt saman á hreinu, Sverrir - beztu þakkir fyrir hreinskilnina.

Ég er líka á biðlistanum hjá Davíð, en minn pistill nær ekki nærri sömu hæðum og þinn.  :D 

Loftur Altice Þorsteinsson.

Samstaða þjóðar, 16.11.2016 kl. 23:37

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Vill líklega velja rétta tímann.

Helga Kristjánsdóttir, 17.11.2016 kl. 02:34

5 Smámynd: Jónatan Karlsson

Sæll Sverrir.

Það er ánægjulegt að njóta ritsnildar og beinskeyttra athugasemda þinna í þessu litríka bloggi.

Það sorglega er að þú hittir líka naglann beint á höfuðið.

Jónatan Karlsson, 20.11.2016 kl. 15:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband