Kálfar og naut

 

thingmadur.jpgÉg er stjórnmálamenni og stíg

ekki í vitið, þið vitið,

aðeins feilspor, aldrei heil-spor,

aldrei skrefið til fulls.

 

Ég skil mig ekki, þið skiljið,

ég veitekki hvað þið viljið

að ég skilji til fulls.

 

Ég er stjórnmálamiðlunarmaður

og marka spor í sandinn.

Gleymin þýlynd þjóðin

á við vanda að etja,

- ég er vandinn.

 

En fólkið á ekki að kvarta

og kalla mig vitleysing.

Það eru bara kálfar

sem kjósa naut á þing.

 

 

(Úr ljóðabók minni "Með ósk um bjarta framtíð," sem kom út 1997) 

 

 

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

 

communist-party-poster.jpgSem minnir mig á það: Vinstri grænir eru víst orðnir stærsti flokkur landsins samkvæmt könnunum. Íslendingar ætla aldrei að fá leið á flokkum. Þeir vilja enn einn flokkinn. Vilja sama horið, bara í annarri nös. Enginn kærir sig um persónubundnar kosningar. Undarlegt. Allir vilja sömu gömlu (g)óðu flokkana sem sváfu svefni hinna skinheilögu meðan útrásarhlandaularnir tróðu okkur í svaðið. Fólk vill kjósa á stundinni svo það geti fengið yfir sig enn einn flokkinn, enn eina græningjana í einum grænum og í þetta skiptið algjörða græningja í orðsins fyllstu merkingu. Ég fæ grænar. Einmitt það sem þjóðina vantar á þessum síðustu og allra verstu: Ennþá meiri forsjárhyggju og afturhald og víðáttuleiðindi.

 

 

hugsar_um_kleinuhringi_og_eftirlaunin.jpgFlestir hafa skiljanlega ógeð á hinu óréttláta eftirlaunafrumvarpi en fólk er búið að gleyma því að formaður Vinstri grænna skrifaði upp á það á sínum tíma slefandi af græðgi einsog Hómer Simpson hugsandi um kleinuhringi, og hljóp svo uppá fjöll með kúkinn í buxunum þegar fjölmiðlar reyndu að ná í hann til að krefja hann svara. Vinstri galnir hafa ekki lyft upp litla putta til að afnema frumvarpið frekar en aðrir gírugir hræsnarar Alþingis nema með einhverju innantómu meiningarlausu mjálmi. Breytingartillögur stjórnarflokkanna á frumvarpinu eru yfirmáta sérgæðingslegar og sjálfhverfar og í raun ekkert annað en Fuck-merki framan í þjóðina.

Það vantar boð og bönn.jpgEn ef fólk trúir því og treystir að Steingrímur Joð, Kolbrún Halldórsdóttir og Sóley Tómasdóttir, græningjar og öfgafemínistar, séu akkúrat rétta fólkið til að stjórna landinu og bjarga heiminum, getur þá ekki hugsanlega verið að þjóðin eigi skilið þær hörmungar sem hún horfist nú í augu við? Þjóðin virðist ekki geta lært nokkurn skapaðan hlut og síst af öllu af reynslunni. Ég fer bráðum að trúa því sem stendur í erlendum blöðum; að Íslendingar séu samansafn af fullkomnum fábjánum og froðuhausum. Burt með allt þetta handónýta lið úr Alþingishúsinu og alla þessa úr sér bræddu gerspilltu amatöra og örlagaasna og förum að kjósa almennilegar persónur, ekki ónýta flokka.

 

Eiríkur StefánssonUm þetta og margt fleira ætlum við að ræða á Útvarpi Sögu fm 99.4 í þætti mínum Miðjan í dag, miðvikudag, kl. 16:00 til 18:00. Gestir mínir verða þeir Eiríkur Stefánsson sægreifabani sem fær ekki að tjá sig í Vinstri-grænum-mótmælum Harðar Torfasonar vegna þess að hann tengist Frjálslynda flokknum, og Ástþór Magnússon friðarhöfðingi og "þorpsfífl" sem fær ekki heldur að tjá sig í Vinstri-grænum-mótmælum Harðar Torfasonar vegna þess að hann tengist engum flokki en er hinsvegar "of frægur" einsog Hörður orðaði það. Það er nefnilega það! Báðir þessir menn hefðu flogið uppá pallinn og fengið að tala einsog þeim lysti ef þeir hefðu tengst Vinstri grænum einsog 70% þeirra sem þarna hafa astthor_og_clinton.jpghaldið ræður fram að þessu. Hörður sér um að handvelja fólk sem má tala á þessum mótmælafundum á sama tíma og hann og aðrir fínir kommúnistar berjast fyrir "lýðræði."

Ég er að skrifa grein um stórkostlegt og stórkostulegt fyrirkomulag þessara mótmælafunda þar sem ég mun skýra mál mitt nánar og hún mun vonandi birtast fljótlega í Morgunblaðinu.

 

 

jetblackjoe3_742346.jpgNú, í seinni hluta þáttar míns á Útvarpi Sögu í dag, svona milli hálf 6 og 6, koma svo þeir félagar Páll Rósinkrans og Gunnar Bjarni úr hljómsveitinni þrælgóðu Jet Black Joe. Að mínu mati er Palli Rós einn besti söngvari landsins, ef ekki sá besti, og Gunnar Bjarni tvímælalaust einn af okkar albestu lagahöfundum.

Við ætlum t.d. að ræða tónleikana sem við verðum með á Steak and Play næstkomandi laugardag. Það er nefnilega ekki alveg á hverjum degi sem Stormskerið og Jet Black Joe spila saman og það í lögum hvors annars.

 

Fyrri þætti má finna á: www.stormsker.net

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Mér finnst þetta vera ágætur vettvangur til að rifja upp að Steingrímur J Sigfússon greiddi atkvæði með illræmdu framsali á aflaheimildum sem brjóta í bága við mannréttindi.

Árið 1996 kom út bók eftir Steingrím J Sigfússon, Róið á ný mið, sem var óður til kvótakerfisins sem var þá var farið að rústa byggð í kjördæminu hans.

Árið 1998 var Steingrímur J Sigfússon mættur í fjölmiðla til sem andstæðingur Valdimars Jóhannessonar og snéri út úr dómi Hæstaréttar í svokölluðu Valdimarsmáli.

Nú eftir að álit Mannréttindanefndar SÞ birtist fyrir ári síðan hefur lítið heyrst af því að formaður VG legði áherslu á að farið yrði að álitinu.

Hér er ræða Steingríms J á Alþingi fyrir 10 árum síðan þar sem að hann flækir meistaralega einfalt mál um að það skuli gæta jafnræðis við úthlutun aflaheimilda:

Hitt atriðið sem er mikilvægt, en er flóknara og erfiðara að átta sig á, eru þær breytingar sem þessi dómur kann að kalla á hvað varðar sjálfan grundvöll laganna um stjórn fiskveiða, eða a.m.k. 5. grein þeirra. Það er stórt og afdrifaríkt mál hvort Hæstiréttur er í raun og veru að segja að það sé ekki réttlætanlegt að takmarka veiðiréttinn við þau skip með veiðileyfi sem gert er í kerfinu eða hvort Hæstiréttur er að segja að það verði beinlínis að gefa upp á nýtt, að úthlutunin sem slík hafi verið réttlætanleg sem tímabundin og takmörkuð aðgerð en hún sé það ekki til frambúðar. Þá stendur Alþingi og framkvæmdarvaldið frammi fyrir því sameiginlega að leysa það verkefni hvað á að koma í staðinn.

Sigurjón Þórðarson, 3.12.2008 kl. 10:16

2 Smámynd: Sindri Guðjónsson

Skemmtilegt ljóðið þitt Sverrir. Takk Sigurjón fyrir þessa ábendingu. Að lokum, það væri óskandi að aðalvandamáli við VG væri að það væri "flokkur". Aðalvandamálið er hugmyndafræðin.

Sindri Guðjónsson, 3.12.2008 kl. 10:56

3 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Þetta þarf að endurskoða, annars hættir fólk að mæta.

Anna Ragna Alexandersdóttir, 3.12.2008 kl. 12:02

4 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Íslendingum hefur sjaldan gefist kostur á öðru en kjósa "flokkinn" þess vegna búum við fasískt lýðræði. 

Ef einhver þingmaður hefur ekki fylgt línu flokksins á Alþingi hafa hópsálirnar gefið honum nafnið "kjördæmapotari".

Ekki einu sinni skoðanakannanir bjóða upp á annað en að velja "flokkinn", skila auðu eða að vera óákveðin.

Magnús Sigurðsson, 3.12.2008 kl. 12:07

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Dj..... er ég sammála kjósa FÓLK,og Páll Rósinkrans, ég held bestur ætla að hlusta. 
 
ER þetta nokkuð óskalagaþáttur? Fyrir utan allt íslenskt,fer hann svo vel með lagið hans Steve Wander,"For ones in my life I have someone who needs me", (:

Helga Kristjánsdóttir, 3.12.2008 kl. 14:48

6 Smámynd: Frosti Heimisson

Jú bíddu... t.a.m. er Kolbrún búin að vera á fullu (að reyna), að afnema blá og bleik föt á kornabörn - skipta út fyrir gul og græn, koma á útvarpsútsendingum af Alþingi (sem er vissulega hernaður út af fyrir sig) og svona mætti lengi upp telja.  Það er ekki að furða að þau hafi ekki tíma til að afnema eftirfríðindafrumvarpið.

Frosti Heimisson, 3.12.2008 kl. 15:07

7 Smámynd: Ómar Ingi

Ómar Ingi, 3.12.2008 kl. 20:53

8 Smámynd: Sævar Einarsson

Ég hef ekki mætt á þessi mótmæli nákvæmlega út af þessu ! frábær pistill hjá þér og ég krefst þess að Hörður Torfa svari fyrir það hvers vegna sumir fá að tala og aðrir ekki, lýðræði smíðræði og ég hef sagt það áður og segi það enn, ég fer af landi brott ef Vinstri Grænar komast til valda !

Sævar Einarsson, 4.12.2008 kl. 02:36

9 Smámynd: Heimir Tómasson

Munið einnig að hún Ísfeld þarna óskaði eftir að settar yrðu upp grænar konur á gangbrautarljósum. Það atriði Merkilegt þegar góðærið er svo mikið að hægt er að eyða tíma í svoleiðis.

Bilað lið. Engu minna bilað heldur en þeir sem sitja hinu megin stjórnarborðsins.

Heimir Tómasson, 5.12.2008 kl. 15:27

10 Smámynd: Sverrir Einarsson

Ég vil fá að kjósa menn/konur en ekki flokka. Ég myndi t.d. kjóa Sverrir Stormsker sem Landbúnaðarráðherra. Hef heyrt hvernig hann ættlar að reka landbúnað á Íslandi hjá honum sjálfum fyrir nokkrum árum.

Sverrir Einarsson, 6.12.2008 kl. 02:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband