Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2016

Hillary Clinton og Donald Triumph

Hellary eftir kosningarnarSamkvæmt heimildum RÚV er heimurinn í einu allsherjar taugaáfalli eftir að sú sorgarfregn barst út að spilltasta stjórnmálakvendi norðan Suðurpóls hefði ekki náð forsetakjöri í Bandaríkjunum.

 

Vinstrimenn í öllum flokkum Íslands hafa tilkynnt að þeir séu "í sjokki" og "harmi slegnir" og í taumlausu táraflóði og með óstöðvandi ekka eftir sigur Donalds nokkurs Trump og segja grátbólgnir með titrandi neðrivör að "þröngsýni," "kvenhatur," "fordómar," og "hatur" útí allt og alla hafi haft sigur í kosningunum.

 

Clinton and Huma AbedinMér finnst nú ansi fordómafullt að fullyrða að helmingur Bandaríkjamanna séu fordómafullir þröngsýnir kvenfyrirlítandi hatursspúandi illfygli. Hillary þurfti sjálf að biðjast afsökunar á ámóta ummælum sem hún viðhafði um stuðningsmenn Donalds Trump fyrir um mánuði síðan. Þetta er yfirlæti og hálfgerður dónaskapur. Þetta er svona svipað og ef ég, prúðmennið sjálft, myndi segja að maðurinn sé það sem hann éti og að Hillary sé þar af leiðandi kunta.

 

Það er einkennilegt að tala um kvenhatur þegar það voru hvorki meira né minna en 42% kvenna sem studdu þennan hræðilega Donald Strump. Varla hata þær sjálfa sig?

 

Þögli meirihlutinn fékk málið

Trump 2 dögum eftir kosningarSigur Trump þessa var í raun ein stór og feit og löngu tímabær langatöng framan í stjórnmálaelítuna, fjármálaöflin, banksterana, Bush/Clinton mafíuna, lobbýistana, sérhagsmunahópana, öfgafemínismann, Open bordersruglið, fjölmenningarnonsensið, fjölmiðlaelítuna, herskáa stríðshauka-alheimslögreglu-utanríkispólitíkina, status quo, pólitíska rétttrúnaðinn - semsé allt það sem forréttindakvendið og spillingardrottningin Hillary Clinton stóð og stendur fyrir.

Skoðanakannannaframleiðendum var sömuleiðis gefið langt nef og snýtt hressilega. Þeir höfðu ekki árangur sem erfiði í skítkokkamennsku sinni.

 

Hellary for prisonHinn venjulegi þögli Jón og hin venjulega þögla Gunna voru einfaldlega búin að fá uppí kok af yfirgangi rétttrúnaðarsinna. Þeim fannst þau hafa verið sniðgengin og ekki hlustað á þau um árabil og sögðu einfaldlega Stopp! Þetta er orðið gott!

 

Þetta er einnig ástæðan fyrir uppgangi svokallaðra "hægri öfgaflokka" í Evrópu. Það eru vinstrifasistarnir sem ómeðvitað skapa þá með heiftúðugri frekju sinni, ofstæki, þöggunartilburðum, skoðanakúgun, upphrópunum, þindarlausum yfirgangi og pólitískum rétttrúnaðaröfgum.

 

Þögli meirihlutinn í Bandaríkjunum fékk málið í gegnum Trump.

Því meira andlegu ofbeldi sem vinstrifasistarnir beita því fleiri Trumpa fá þeir yfir sig.

 

Öllu tjaldað til - en tjaldið féll

Hellary for saleHillary fékk ómældan stuðning úr öllum heimshornum enda gat hún varla gengið óstudd. The Clinton Foundation verður að teljast einhver stórkostlegasta þvottastöð seinni tíma ef árangurinn er mældur í umfangi pólitískrar spillingar.

 

Þó að Hillary Rotten Clinton hafi verið studd af Bush fjölskyldunni, öllu poppara- og leikaraslektinu einsog það leggur sig, öllum þeim elítum sem nöfnum tjáir að nefna, Wall Street, George Soros, öllum meginstraumsfjölmiðlum heimsins, meiraðsegja RÚV, sjálfum Obama-forsetahjónunum og ekki má gleyma Qatar og Saudi Arabiu - sömu öflunum þar á bæjum sem styðja ISIS (ekki nema von að Obama og Hillary hafi gengið svona erfiðlega að ráða niðurlögum þeirra samtaka. Vantar kannski áhugann?) þá dugði það ekki til.

 

Hellary ákallar HellAllt kom fyrir ekki. Fólkið stoppaði hana af. Svo ég leyfi mér nú að skerpa línurnar örlítið á kurteislegan hátt þá vildi millistéttin frekar óheflaðan óháðan ómútanlegan hugsjónaríkan tæpitungulausan skrítinn utangarðsbissnisskall með steindauða gullhúðaða fljótarottu á hausnum en valdagíruga peningasjúgandi gegnumspillta hugmyndalausa hraðlygna gleiðbrosandi rammfalska stagbætta blóðþyrsta eiturnöðru með klofna tungu.   

 

Tap Hillaryar – sigur heimsins

Hellary er bombaÞegar allir hinir fjölmörgu þumalputtar Hillaryar hafa nú blessunarlega verið fjarlægðir af valdataflborði heimsins má gera ráð fyrir að skárra ástand skapist í Mið-Austurlöndum, (sem hún er reyndar búin að fokka upp eins og öllu öðru sem hún hefur komið nálægt), og einhver þíða myndist á milli Bandaríkjanna og Rússlands, nokkuð sem hún var alfarið á móti að myndi nokkurntíma henda. Í kosningabaráttunni lét hún ekkert tækifæri ónotað til að ráðast á Putin, enda hafa frammámenn í Rússlandi sagt að hefði hún náð kjöri hefðu líkurnar á Þriðju heimsstyrjöldinni aukist verulega.

Eru vinstrimenn að gráta það glataða tækifæri?

Þeir geta huggað sig við að einhver úr Clinton/Bush mafíunni hlýtur að bjóða sig fram eftir 4 ár.

 

Karl eða kona. Who gives a f...?

Hellary dílítariMeðan hinn samningalipri Trump boðaði bætt samskipti við erlend ríki á nokkuð nýstárlegan hátt þá boðaði Hillary sömu gömlu úr sér gengnu bandarísku herskáu inngripa-utanríkispólitíkina sem hefur leitt af sér ómældar hörmungar 37 ríkja frá lokum Seinni heimsstyrjaldar. Íran hefði verið næst á dagskrá hjá henni og fengið sömu meðferð og Líbýa og fleiri lönd sem hún hefur tekið virkan þátt í að rústa.

 

Er það þetta sem vinstrisinnissjúku vitringarnir eru að háskæla yfir eftir sigur Donalds Trump? Eða finnst þeim engu máli skipta hvað valdamesta manneskja heims hefur á milli eyrnanna heldur eingöngu hvað hún hefur á milli fótanna? Héldu þeir að breytingar á heimsmálunum og sjálfu forsetaembættinu fælust í að skipta um kyn þeirrar mannveru sem gegndi því?

 

Trumpurinn á réttri leiðÞó að Trumpurinn eigi það til að taka sterkt til orða og sé ekki fullkominn líkt og góðhjörtuðu grátgjörnu rétttrúnaðarsafnaðarmeðlimirnir þá má undrun sæta að þeir skulu umturnast af taugaæsingi og geðshræringu loksins þegar sjálfstæður óháður einstaklingur sest á forsetastól sem ekki er strengjabrúða banksteranna og valdaelítunnar.

Loksins loksins.

 

 

 

(Skrifaði þessa grein 10. nóvember, daginn eftir forsetakosningarnar, og sendi hana vini mínum honum Davíð uppá Mogga til birtingar, en hún hefur þar ekki ennþá litið dagsins ljós. En það er nú bara árið 2016 svo að það er ennþá von).


mbl.is Biður fólk að gefa Trump tækifæri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óttinn við vinstrióstjórn skapaði sigur Sjálfstæðisflokksins

Forsetinn og BjarniÞegar fólk áttaði sig á því að veruleg hætta væri á því að önnur hrein og tær vinstri „norræn velferðarstjórn“ væri í burðarliðnum með ófyrirsjáanlegum hroðalegum afleiðingum fyrir land og þjóð þá hryllti það sig og saup hveljur og flykktist yfir til aðal móteitursins, Sjálfstæðisflokksins, og veitti honum brautargengi.

 

Fólk vill nefnilega frekar hæfa og góða og gegna grímulausa mafíósa sem eru með spillinguna uppá borðum heldur en óhæfa vinstrisinnissjúka undirförula svikula baktjaldamakkandi pukrara með allt sitt öfgafemínistakommalufsurétttrúnaðarruglumbull.

 

Fátt um fína drætti

Það fór því sem ég spáði að Sjálfstæðiflokkurinn myndi verða sigurvegari kosninganna og fá stjórnarmyndunarumboðið. Sem er gott, því fjölmargt giftusamlegt hefur hann gert á þessu kjörtímabili.

 

Bjarna Ben hlýtur að takast að baka og skreyta þokkalega stjórn. Ólíklegt að hann bíði í ofvæni eftir því að hefja viðræður við Vinstri græningja og gera Steingrím J. að fjármálaráðherra. Hann hlýtur að horfa í aðrar áttir þegar kemur að því að finna heppilega samstarfsfélaga.

 

Bensi frændi, formaður Viðrekstrar, hlýtur að koma til álita svo og þau í Bjartri framtíð þó svo að enginn viti fyrir hvað þau standa og síst þau sjálf, nema hvað þau segjast vilja iðka „öðruvísi stjórnmál,“ sem þau gera ekki, og stilla einhverjar klukkur, sem þau gera ekki heldur. Virðast vera soldið á eftir tímanum. Jú og svo vilja þau að „Íslendingar“ verði orðnir 800 þúsund árið 2050. Semsé no borders-stefnan. Nema að þau séu sjálf svona afkastamikil.

 

simbi_1294705.jpgEfast um að Bjarni kippi Framsókn inná völlinn því flokkurinn var eiginlega baulaður útaf í kosningunum. En aldrei að vita. Ég veit um fjölmarga sem hættu við að kjósa Framsókn eftir að Sigmundi Davíð var dúndrað úr formannsstólnum með svindli og svínaríi. Ekkert smáræðis magn af hnífasettum og kjötsöxum sem sá góði drengur hefur í bakinu. Það er slæmt að Simbi skuli vera úti í kuldanum því hann stofnaði ekki bara Wintris heldur gerði hann marga aðra góða hluti fyrir land og lýð sem ber að þakka.

 

pukurstjornmalamenn_rotta_sig_saman.jpgPí-ratar og litla svarta Samfó

Vinstri fjórflokkurinn, sem var farinn að mynda ríkisstjórn fyrir kosningar með Pírata í broddi fylkingar, rétt slefaði yfir 40% og hefði þurft allmarga kommúnistasmáflokka í viðbót til að geta klastrað saman nógu ógæfulegri vinstristjórn.

 

Það var þessu lítt ígrundaða útspili Prímata að þakka að við fáum ekki yfir okkur borgarstjórnarmeirihlutaflokkana á landsvísu. Pýramídar komu nefnilega þarna endanlega útúr skápnum sem vinstrihreyfing og múlbatt sig við Vinstri grama, Bjarta framtíð og litlu svörtu Samfó - góðafólksflokkana sem vilja galopin landamæri o.s.fr. einsog þeir.

 

Fólki varð skiljanlega flökurt og gerði allt til að koma í veg fyrir myndun slíkrar hreinnar og tærrar vinstrióstjórnar og hugsaði til þess með hryllingi að fá yfir sig sömu flokkana og vinna við það baki brotnu á hverjum Degi að eyðileggja höfuðborgina og götur hennar.

 

Sjálfstæðisflokkurinn græddi mest á þessari óbærilegu tilhugsun fólks. Þetta er faktískt ástæðan fyrir uppgangi Sjálfstæðisflokksins á lokametrunum og niðurgangi Pírata.

 

Það er því ekki rétt sem Birgitta sagði í viðtali eftir kosningar að Píratar hafi „fengið á sig vinstristimpilinn.“ Þeir stimpluðu sig sjálfir sem slíka í bak og fyrir og stimpluðu sig einfaldlega inn sem anarkistulögð vinstrihreyfing. Það var varla að ástæðulausu að Össur Skarpi sagði að það væri akkúrat „enginn munur á Pírötum og Samfylkingu.“ Semsé enginn munur á krötum og rötum.

Hverfandi líkur eru á að Píratar fari í stjórn. Þeir verða því áfram stjórnleysingjar í tvennum skilningi.

 

Ekki sama hvaðan spillingin kemur

Það var sérkennilegt af Birgittu að segjast neita að vinna með „spillingarflokkunum“ og reyra sig síðan fasta við flokk, sem gengur undir nafninu Samspillingin, og kommúnistaflokk Kötu Jak og Steingríms Joð sem mér skilst að eigi Íslandsmet í svikum, baktjaldamakki og raðlygum.

Pírötum finnst þeir eiga mesta samleið með þessum flokkum, af einhverjum ástæðum, enda studdu þeir (Hreyfingin) af heilum hug Nor-rænulausu helferðarstjórnina sem lá maríneruð í óþverra og spillingu eftir því sem kemur fram í skýrslu meirihluta fjárlaganefndar um einkavæðingu bankanna hina síðari.

 

Það virðist semsé skipta Pírata höfuðmáli að spillingin komi úr réttri átt, allsekki af hægri vængnum heldur eingöngu þeim vinstri. Þá sé allt í orden.

 

Hvað um það. Fjölmargir kjósendur kveiktu á perunni og því fóru kosningarnar á þennan veg. Sjálfstæðisflokkurinn er langstærsti flokkurinn.

 

litla svarta SamfóEinu vonbrigðin eru að Íslenska þjófylkingin skyldi hafa slátrað sjálfri sér og að Flokkur fólsins skyldi ekki hafa náð í gegn og að litla svarta Samfó skyldi ekki hafa þurrkast út, enda hefur hún það helst á stefnuskránni að ganga um borð í Titanic (ESB). Það er hennar eini blauti draumur. Fattar ekki að Titanic er á hafsbotni. Mjög blautur draumur það. Ég hélt að þessi flokkur væri nógu djúpt sokkinn fyrir.

Að öðru leyti er niðurstaða kosninganna fín. Landið mun allavega haldast á floti fram að næsta hruni.

 

Sverrir Stormsker

Höfundur er geimvísindamaður og mígrenisjúklingur og stærðfræðiprófessor við McCarthy-deildina í Oxford.

 

 

(Grein þessi birtist í Morgunblaðinu í morgun).


mbl.is Bjarni Benediktsson fær umboðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband