Færsluflokkur: Sveitarstjórnarkosningar

Stjórnmálahórerí

Viðreisn að störfumViðreisn er í lykilstöðu, sem vitað var. Heimsins mestu glópar gátu séð það fyrir.
Forkona flokksins, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir eðalkrati, sagði orðrétt í viðtali fyrir kosningar:

"Við munum selja okkur dýrt."


Þetta slagorð flokksins hefur hún margendurtekið síðan. Viðreisn er semsé til sölu einsog hver önnur klamedíugötumella og mun selja sig hæstbjóðanda, ef eitthvað er að marka orð hórumömmunnar.

 

Þó að borgarmeirihlutinn sé blessunarlega kolfallinn þá er hann það í rauninni ekki, ef maður lítur á þetta með rúllandi augum Dags B, og það er einfaldlega vegna þess að Viðreisn er til sölu, og Viðreisn er alveg nákvæmlega sama kláðamaursdræsan og Björt framtíð og Samfó.

 

Viðreisn boðaði breytingar. Ef að breytingarnar eiga að felast í því að viðhalda gamla kæsta meirihlutanum þá er nokkuð ljóst að þessi flokkur þarf að fara í endurmenntun.

 

Það er ekki beint hægt að segja að það sé mikil reisn yfir Viðreisn. Það verður hinsvegar að vera mikil reisn á þeim sem kaupir hana, því nú er það bara spurningin hvor kúnninn sé graðari og bjóði betur, Sjálfsæðisflokkurinn eða Samfylkingin - systurflokkur Viðreisnar.

 

Niðurstaðan verður því annaðhvort:

Sjálfstæðisflokkurinn, Miðflokkurinn, Flokkur fólksins og Viðreisn

eða áframhaldandi helvíti:

Samfylkingin, Píratar, Vinstri græningjar og Viðreisn, kannski með Sósíalistaflokkinn sem hjálpartæki ástarlífsins.

 

Og hvor niðurstaðan skyldi nú vera líklegri? Að mínu mati sú síðari og síðri og það er nú bara vegna þess að Viðreisn og Samfó er sami ruslflokkurinn - sama horið í sitthvorri nösinni.

  

Þó að "stjórnmálafræðingar" segi að Viðreisn sé hægriflokkur og partur af Sjálfstæðisflokknum þá er einsog þeir átti sig ekki ennþá á að þessir seinfæru pólitísku flóttamenn yfirgáfu Sjálfstæðisflokkinn vegna þess að þeir voru hreinræktaðir júrókratar og pjúra ratar og áttu í raun aldrei að vera í Sjálfstæðisflokknum.

 

Ef að Sjálfsæðisflokkurinn ætlar að kaupa þessa Viðreisnarviðreynslumellu þá þarf hann að bjóða henni stól forseta borgarstjórnar eða borgarráðs eða eitthvað álíka. Hann þarf að troða milljónum í brjóstaskoruna og fylla vel uppí öll göt því að þetta er jú ofurmella sem ætlar sko að selja sig dýrt einsog yfirpimpinn orðar það.

 

Inga Sæland, formóðir Flokks fólksins, gaf það út í sjónvarpinu strax eftir kosningar að hún væri ekki síðri pimp en forkvendi Viðrekstrar og að hún styðji bæði Dag B. og Eyþór Arnalds og henni sé í raun sama hvort að hennar netadræsur liggi vinstra eða hægra megin í bælinu. Þessvegna er þriðji möguleikinn í sjónmáli þó ólíklegur sé:

Samfylkingin, Píratar, Vinstri græningjar, Sósíalistaflokkurinn og Flokkur fólksins.

 

Þessi möguleiki gefur Degi B. skárri stöðu gagnvart Viðreisn því nú getur hann sljákkað í heimtufrekju hennar með vísun í aðra þurfandi skotgrafamellu bíðandi í ofvæni við rúmgaflinn. 

 

En þetta er reyndar afar ólíkleg lending því Sósíalistar virðast gera sér grein fyrir því að niðurstaða kosninganna var ákall um breytingar og uppstokkun. Flokkur fólksins hlýtur sömuleiðis að fatta að ef hann fer í þetta grálúsuga góðafólksrassriddarahópsex þá fær hann aids og er búinn að vera. Það er hinsvegar ekki víst að Viðreisn skilji þetta.

 

Samfó tapaði 6% atkvæða og VG helmingi atkvæða. Þetta hroðalega leiðinlega gallsúra partý sem hófst fyrir 8 árum ætti því að vera búið en ég er alveg handviss um að Dagur átti sig ekki á því og reyni allt til að halda því gangandi.

 

Sósíalistaforinginn Gunnar Smári vill meina að Sjallar og Samfó muni fari í eina sæng saman en ég hef ekki trú á því. Borgarbúar myndu drulla og æla hver um annan þveran þannig að borgin yrði í ennþá dýpri skít en hún er nú þegar.

 

Miðað við niðurstöðu kosninganna þá ætti spurningin einfaldlega að snúast um það hversu mikið Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að gefa eftir og hversu miklu hann þurfi að punga út til að fröken Viðreisn ofurmella geti talist happy hooker. Kannski að hann þurfi að taka kúlulán hjá Þorgerði.

 


mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn stærstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjórflokkurinn bjó til Besta flokkinn

 

sofandi nautSlagorð Samfylkingarinnar í borgarstjórnarkosningunum er: Vekjum Reykjavík! Broslegt að flokkur sem svaf á verðinum í aðdraganda hrunsins skuli velja sér þetta slagorð. Samfó er stærsta svefnherbergi landsins. Þeir mættu nú alveg byrja á því að rumska sjálfir. Svo eru þeir með svæfingalækni í forsvari. Sá gæi er svo fær í sínu fagi að hann gæti talað naut í svefn og jafnvel svæft það svefninum langa. Þetta eru svefnpillurnar sem ætla að "vekja Reykjavík." Einmitt. Þeir tala einsog flokkur þeirra sé ekki í ríkisstjórn. Þetta lið er ennþá allt steinsofandi á sínu vinstra græna eyra. Þeir skilja ekki að Reykjavík er vöknuð. Hroturnar í Fjórflokknum hafa vakið okkur. Stór hluti borgarbúa hefur opnað augun og er búinn að fá uppí kok af svefndrukknum Fjórflokknum og öllum hans innantómu svæfandi froðufrösum og er tilbúinn að sýna það í verki í dag. Þeir sem þurfa virkilega að vakna og rífa sig upp á rassgatinu eru atvinnustjórnmálamennirnir.

 

Glens er ekkert grín

Íslenskt dýralíf.Þegar ég heyrði fyrst um framboð Jóns Gnarrs og hans ísbjarnarblús hugsaði ég: "Enn ein þvælan. Ekki meiri dellu takkfyrir. Ætlar þetta rugl í Íslendingum engan endi að taka? Það ætti að læsa alla þjóðina inní búri í húsdýragarðinum með hinum svínunum."

En svo fór ég að skoða dæmið galopnum huga. Á heimasíðu Besta flokksins er að finna fjölmargt skynsamlegt og skemmtilegt, einsog t.d. hugmynd Hrafns Gunnlaugssonar um að flytja húsin í Árbæjarsafni í Hljómskólagarðinn og lífga hann við, gera listir að grunnþætti í skólastarfi, o.s.fr., og svo er alvaran krydduð með dágóðu spaugi, t.d. skotum á femínistajafnrétti: "Við erum eini flokkurinn á Íslandi sem er með þá kröfu að næsti forseti Íslands verði einhver þroskaheft kelling."

Margt gott fólk er á lista Besta flokksins, t.d. Einar Örn Benediktsson og ég veit að þar fer ljónklár og hugmyndaríkur framkvæmdamaður, þó hann sé tónlistarmaður. Enginn þarf að efast um að þetta fólk muni ekki gera sitt besta til að koma mynd á borgarómyndina. Eitt er víst að ljótari og leiðinlegri getur hún varla orðið. Ég vil mun frekar sjá spaugsamar ráðdeildarsamar húsmæður og húskarla í borgarstjórn með brjóstvitið í lagi en háalvarlega bannaglaða félagsvísindamenntaða talíbana og hélaðar skýrslukynjagreinandi femínistabullur. Og hver segir að greindur skapandi grínisti þurfi endilega að verða verri borgarstjóri en t.d. svæfingalæknir eða geimréttarhagfræðingur?

 

Fjórflokkurinn er kominn til að fara

deaf_blind_dumbFólk er búið að horfa uppá VG og Samfó í landsmálunum svíkja kosningaloforðin á færibandi og klúðra öllu sem hægt er að klúðra eftir hrun með fádæma klunnaskap, óheiðarleika, heimsku, vanhæfni og landráðatilburðum og fólk er búið að horfa uppá bakhnífasirkus og óheilindi Fjórflokksins í borginni og er skiljanlega búið að fá æluna út um báðar nasir. Hroki atvinnupólitíkusanna bætir ekki úr skák: "Við erum ábyrgir fagmenn. Látið okkur alvöru  proffana um að losa ykkur úr ógöngunum sem við komum ykkur í."

Fjórflokkurinn er í fílabeinsturni og hlustar ekki á fólk. Hann er blindur og heyrnarlaus. Fjölfatlaður. Neitar að breyta vinnubrögðum sínum og reita arfann í eiginn garði. Hann vinnur á móti fólkinu og hefur gert sig að óvini þess númer 1. Þessvegna varð Besti flokkurinn til. Besti flokkurinn er í raun alfarið í boði Fjórflokksins. Þetta er faktískt eini valkostur þeirra sem vilja gefa Fjórflokknum langt frí og ennþá lengra nef. Fólk kýs tvíhöfðagæa til að snýta fjórhöfða.

 

Lifi leiðindin!

formadurinnEf alvarlega þenkjandi fólk gæti reynt að gleyma því eitt augnablik að Jón Gnarr hafi húmor, sem virðist stórhættulegt að hafa í dag, og myndi lesa aðgerðaráætlun Besta flokksins fordómalaust, þá sæi það bestu og skemmtilegustu stefnuskrána sem boðið er uppá fyrir þessar kosningar. Þó að stefnuskrár stjórnmálaflokka séu þau plögg í þessum heimi sem minnst er farið eftir þá gefa þær engu að síður vísbendingu um það hvernig landið liggur í viðkomandi flokki og á hvaða nótum hann hugsar.

Jón Gnarr er frumlegur og frjór og vonandi kjarkaður og kann að hugsa út fyrir pappakassann, og því fyrirtaks borgarstjóraefni í alla staði, þrátt fyrir að hafa þann hræðilega galla að vera fyndinn. Georg Bjarnfreðarson er nú orðinn George Best. Það er alveg ástæðulaust fyrir fólk að vera hrætt við nýtt blóð og nýja vendi í borgarstjórn. Fjórflokkurinn þarf ráðningu. Nýir vendir sópa ekki bara best. Þeir flengja líka best.

 

 (Þessi grein birtist í Morgunblaðinu í morgun)


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband