2.5.2011 | 09:02
Gleðihúsið við Austurvöll
Mér hefur alltaf þótt svolítið skrítið að sá stjórnmálaflokkur sem harðast hefur barist gegn vændi, semsé VG, skuli stunda það mest allra flokka á alþingi. Til að komast í ráðherrastóla seldu þeir sig Samfylkingunni fyrir slikk. Stefnuskráin, kosningaloforðin og "hugsjónirnar" fylgdu með í kaupbæti, enda var það dótarí fyrst og fremst hugsað sem augnskuggi og varalitur og því ekki mikils virði.
En það eru fleiri stjórnmálamellur á alþingi en bara Vinstri graðir. Hver flokkur uppistendur af pólitískum gleðikonum og gleðimönnum - semsé vændiskörlum. Alþingi er ekki aðeins stærsta gleðihús landsins heldur eina gleðihúsið sem vitað er um sem veldur ógleði. Þetta er því einskonar ógleðihús sem gerir út á pólitískt vændi og animalisma, þ.e. hrossakaup.
Notaðir þingmenn til sölu, með engri ábyrgð
Í afar greindarlegum sænskum lögum, sem samþykkt voru á alþingi Íslendinga í fyrra, stendur að vændiskonum sé leyfilegt að bjóða sig til kaups en það sé stranglega bannað að kaupa þær.
Í pólitíska vændinu er hinsvegar allt leyfilegt. Vinstri graðir mega selja sig Samfylkingunni og Samfylkingin má selja sig Baugi og bankamafíum, og útrásarglæpamenn og bankamafíur mega kaupa sér alþingishórur úr öllum flokkum. Sjálfstæðisflokkurinn má selja sig kvótagreifamafíunni og útrásarþjófum og Framsóknarflokkurinn má liggja útglenntur undir bændamafíunni og bankaræningjum og hverjum sem er, enda galopinn í báða enda. Þetta er í rauninni eitt allsherjar hóruhópsex. Allir mega selja sig hverjum sem er á hinu "háa" alþingi. Allt gengur þar kaupum og sölum. Allt er falt á alþingi fyrir rétt verð.
Ekki nema von að þessar gjörspilltu margkeyptu alþingismellur vilji láta loka á skjöl um eigin óþverramál í heil 110 ár, hvorki meira né minna. Svo alvarlegum augum líta þær sjálfar á óhæfuverk sín og leynimakk. Það mega heita býsna skuggaleg myrkraverk sem þola ekki dagsljósið í rúma öld. Þyrnirós sannleikans skal haldið sofandi langt fram á næstu öld svo lygin geti haldið áfram að blómstra á hinu "nýja Íslandi." Þetta er víst í dag kallað "gegnsæi."
Sem ég segi: Allt gengur kaupum og sölum í sölum alþingis, sérílagi þingmenn sjálfir. Það grátlegasta er að kjósendur skulu jafnframt kaupa alla þeirra lygi og blekkingar. Þeir kjósa yfir sig þessar handónýtu yfirstéttarhórur aftur og aftur. Væri kannski skiljanlegt ef þær veittu góða þjónustu en það er ekki beint hægt að segja að þær gefi hann góðan. Eina sem þær hafa uppá að bjóða er fjárhagsleg eyðni.
"Ástandinu" á alþingi lýst í skopmynd
Svo þegar drátthagur teiknari á Mogganum dregur upp skopmynd af þessu hóreríi þá tryllast alþingismellurnar líkt og frumstæðir villimenn sem sjá sjálfa sig í spegli. Þær tryllast ekki yfir vændisstarfseminni sem viðgengst á alþingi heldur yfir lítilli djókteiknimynd sem lýsir "ástandinu." Sendiboðinn skal skotinn. Þær heimta afsökunarbeiðni frá höfundinum og ritstjóranum í stað þess að heimta að alþingi biðji þjóðina afsökunar á melluskapnum undanfarin ár. Þær ríghalda í gagnrýnilausan 2007-hugsunarháttinn. Þjóðin gerir það líka og nýtur hvers höggs í masókískri meðvirkni með þessum svipulemjandi sadómellum.
Nýlega settu hórumömmurnar í ráðríkisstjórninni ritskoðunarlög á fjölmiðla til að þrengja enn frekar að tjáningarfrelsinu í landinu og kæfa niður alla óæskilega opna hvassa umræðu. Allt á að vera á settlegum siðprúðum svæfandi nótum að hætti sannra pukurkommúnista. Ritskoðunarráð ríkisins hefur samkvæmt þessum lögum fullt umboð til að drepa hvaða fjölmiðil sem er, sem hinu háæruverðuga leyndarhyggjuyfirvaldi er ekki þóknanlegur. Kynnið ykkur málið á www.fjolmidlalog.is.
Skopmyndaeftirlit ríkisins
Það gleymdist af einhverjum ástæðum að setja í ritskoðunarlögin að skopmyndateiknurum væri stranglega bannað að hafa ádeilumyndir sínar þannig gerðar að í þeim fælist broddur og kaldhæðni. Þær mættu allsekki særa neinn og koma við kaunin á neinum. Þær mættu ekki innihalda skot á veika minnihlutahópa eins og t.d. öryrkja, krypplinga, homma, múslima, negra, femínista og alþingishórur - og allsekki á konur yfir höfuð því þær eru jú svo gasalega kúgaðar af karlpungunum. Skopmyndir eigi að vera pólitískt réttar og sléttar og felldar og flatar og bitlausar og máttlausar og háttprúðar og gagnrýnilausar og geldar eins og alþingi og ríkisstjórnin. Semsé óendanlega leiðinlegar. Úr þessu verður örugglega bætt í viðbótarlögum.
"Stóra teiknimyndarmálið" er líklega hámark móðursýkinnar og húmorsleysisins eftir hrun og sönnun þess að landinn er endanlega farinn yfirum. Maður getur reynt að skilja öfgamúslima sem tryllast þegar teiknaðar eru skopmyndir af heilögum spámanni þeirra, en að tryllast yfir ádeilumynd í anda Spaugstofunnar og Sigmunds af Framfylkingarkonu með ESB-brókarsótt er ekkert annað en einn allsherjar brandari.
Félag íslenskra framsóknarlúða, sk.st: FÍFL
Vændismyndlíkingar í skopmyndum eru augljóslega grafalvarlegt mál þegar konur eiga í hlut. Það virðist hinsvegar í lagi að spauga með karlinn Sigmund Davíð Gunnlaugsson í teiknimynd í Gulu pressunni á DV og segja að hann vilji fá það í afturendann, án þess að framkvæmdastjórn Landssambands framsóknarfemínista geri nokkra athugasemd við það. Okkur vantar sárlega fleiri tilskipanir frá Félagi íslenskra framsóknarlúða, skammstafað FÍFL, svo við fáum það alveg á hreint hverju má gera grín að og hverju ekki. Viðbrögð íslenskra púrítana og teprulegra blævængjafrúa finnst mér satt að segja margfalt fyndnari en teikning Moggans.
Skopmyndateiknari á ekki að biðjast afsökunar ef hann hittir í mark. Ef að skopmyndir og ádeilulistaverk hreyfa við engum og reita engan til reiði og vekja hvorki grátur né hlátur þá er það merki þess að skotin hafi geigað.
Pólitískar sadóvændiskonur eru að nauðga þjóðinni (ekki taka þetta bókstaflega) en svo brjálast þjóðin þegar skopast er að nauðgurunum. Á máli geðlæknisfræðinnar kallast þetta Stokkhólmssyndromið.
Það má vel vera að Ísland sé stórasta land í heimi en Íslendingar sjálfir hljóta að vera litlustu lítilmenni og smáborgarar í heimi. Get ekki annað en tekið undir með Hrafni Gunnlaugs: "Þeir sem halda að Íslendingar séu leiðinlegir drukknir hafa ekki kynnst þeim edrú."
(Þessi grein birtist í DV, 29. apríl 2011)
![]() |
Biðst ekki afsökunar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)