Dyraverðir slegnir

Guðni með dyravörðumForseti Íslands hleypti inn dyravörðum í Bessastaði í síðustu viku. Tilefnið var að einn úr þeirra röðum var barinn fólskulega fyrir skemmstu á skemmtistaðnum Suckers i Austurstræti. Nafni þess staðar hlýtur fljótlega að verða breytt í Barinn.

 

Dyraverðirnir voru slegnir eftir árásina, þó ekki jafn rækilega og starfsfélagi þeirra, en þeir voru skiljanlega miður sín og þáðu því þetta boð forsetans þó erfitt sé að sjá hvað Guðni kallinn hafi að gera með einhver dyravörslumál önnur en kannski þau sem snúa að vínkjallaranum á Bessastöðum. En þetta fundarboð hans undirstrikaði náttúrulega hvað hann er nú obboslega góð manneskja og svo gasalega mikið svona “maður fólksins” og allt það, og þá er nú tilganginum náð.

 

Grín er ekkert gamanmál

Áður en lengra er haldið vil ég láta þess getið að ég er alfarið á móti því að gantast sé með alvarlega og viðurstyggilega hluti, svosem atburð sem þennan sem hér um ræðir, pyntingar, morð, hungursneyð, stórslys, femínisma, styrjaldir, vinstrifasisma, drepsóttir, kynjafræði, náttúruhamfarir, pólitískan réttrúnað, engisprettufaraldur, gróðurhúsa- og góðafólksáhrifin, RÚV, hryðjuverk, ESB, íslensku lífeyrissjóðina, islamsvæðingu Evrópu, umhverfismengun, glóbalisma o.s.fr.

Grín getur nefnilega verið dýrt spaug og spaug er ekkert grín.

 

Unnið baki brotnu

Ekki veit ég hvert var tilefni þessarar skelfilegu árásar á skemmtistaðnum Slaughters í Austurstræti en maður hlýtur að mega koma með tilgátur án þess að fólk snappi og fari að skalla veggi.

Kannski að dyravörðurinn hafi sagt við dólgana:

“Give me a hug.” 

Þessir útlendingar sem að árásinni stóðu hafa kannski bara kunnað eitthvað hrafl í ensku og íslensku og haldið að hann væri að meina: 

“Give me a högg.”

Þeir hafa ekki látið segja sér það tvisvar og hafið buffun þegar í stað.

Og þetta hefur komið í bakið á dyraverðinum.

En hvað veit ég? Ég var ekki á staðnum.

 

Leiðir til úrbóta

Guðni með buffiðHvað um það. Forsetinn setti eflaust upp buff í tilefni dagsins og saman skeggræddu þeir félagar ógnir og öryggi í borg óttans og leiðir til úrbóta í þessum mikilvægu málum sem forsetinn ræður nákvæmlega engu um.

 

En mér er spurn: Eru einhverjar raunhæfar leiðir til úrbóta? Er eitthvað sem getur komið í veg fyrir að dyraverðir séu rotaðir? Er til einhverskonar “rotvarnarefni”? Það held ég ekki. 

 

Rugbyhjálmur kannski? Nebb. Þá fá þeir bara spark í punginn og það er ekkert mikið þægilegra þó þeir rotist hugsanlega ekki við það. (Það er reyndar sagt að öll hugsun karlmanna fari fram þarna á neðri hæðinni). Rugbyhjálmur og punghlíf? Nebb. Þá fá þeir bara baseballkylfu í vömbina. Rugbyhjálmur, punghlíf og bumbupúði eða jafnvel skothelt vesti? Nebb. Þá fá þeir bara hníf eða kjötsax í lærið. Stálbrynja einsog riddarar notuðu í gamladaga? Nebb. Óþægilegur vinnuklæðnaður innanhúss og ekki beint traustvekjandi fyrir ímynd friðsæls skemmtistaðar.

 

Fleiri slæmar leiðir til úrbóta

Rimlabúr? Nebb. Dyraverðir verða að geta athafnað sig innanum fólk og gengið að leiðindapakki og barið það í gólfið og hent því í fallegum boga útá stétt. 

 

Rambo dyravörðurEr vopnvæðing dyravarða svarið? Það er spurning. Gefa þeim leyfi til að bera rafbyssu? Piparúða? Hnúajárn? Kylfu? Sleggju? Klaufhamar? Rambohníf? Öxi? Skógarsveðju? Keðjusög? Skammbyssu? Afsagaða haglabyssu? Hríðskotariffil? Handsprengju? Basúku? Eldvörpu? Dínamítstúpu?

 

Held ekki. Hætta á misnotkun og ofnotkun. Það er ekki bara holdsveikum sem er laus höndin. Sumir eru með stuttan kveikiþráð. Þetta gæti sprungið í andlitið á þeim.

 

Tilhvers að funda með forsetanum af öllum mönnum?

Vegna þess að forsetinn bauð þeim í heimsókn. Ekki flóknara en það. Afhverju bauð hann þeim í heimsókn? Af sömu ástæðu og hann fer í smábarnaafmæli útí bæ til fólks sem hann þekkir ekki neitt - af sömu ástæðu og hann hangir í biðröðum á pizzustöðum - og syndir í vinnuna - og horfir á fótboltastórleiki í 12 tommu svarthvítu túpusjónvarpi í einhverju mígleku illa þefjandi afdalafjósi útá landi, norpandi í sundurtættri hettuúlpu einsog fuglahræða, bryðjandi gaddfreðnar pulsur og útmíginn hákarl með sveitavargnum og þorpsfíflinu. 

 

Semsé: Vegna þess að hann vill verða alþýðlegasti forseti ever og til þess að svo geti orðið þá þarf hann að grípa hvert einasta tækifæri sem gefst til að skerpa þá imynd sína, meiraðsegja að boða til fundar með útkösturum um mál sem eru víðsfjarri því að vera á hans könnu.

 

Yfirdrifinn alþýðleiki

Um jólin má búast við að forsetinn fari að sjálfboðaliðast á pósthúsum við að sleikja frímerki fyrir fólk sem er að senda jólakort, nú eða að safna saman kerrum í Bónus eða að þrífa framrúðuna fyrir ökumenn á rauðu ljósi eða að leysa af í dyravörslunni á skemmtistöðum borgarinnar eða að hnýta bambuskörfur á Kleppi eða eitthvað svoleiðis.

 

Það er svosem alveg gott og blessað en fyrr má nú rota en dauðrota, svo maður noti nú viðeigandi orðalag. Ef fram fer sem horfir mun hann vinna gullið á Alþýðleikunum og slá landsmet Pírata í popúlisma. 

 

Forseti þjóðarinnar eða forseti stjórnvalda?

Guðni er hlýðinn og góður og vill gera öllum til hæfis, bæði alþýðunni, sem hann er í vinnu fyrir, og stjórnvöldum, sem skipa honum fyrir, jafnvel þó þau hafi ekki boðvald yfir forsetanum. Hann vill vera vakinn og sofinn yfir velferð allra landsmanna - ekki bara elítunnar og utanríkisráðherra sem hann hlýðir í einu og öllu og lætur meiraðsegja skipa sér að mæta ekki á HM í Rússlandi - heldur líka okkar starfsmanna á plani.

 

En málið er að menn í hans stöðu geta ekki haft tvo herra. Ólafur Ragnar Grímsson gerði sér grein fyrir því. Guðni þyrfti að fara að gera það upp við sig hvort hann ætli að vera forseti þjóðarinnar eða forseti stjórnvalda. Það ætti nú ekki að vera erfitt val fyrir svo alþýðlegan mann. 

 

Það mun koma í ljós þegar á reynir hvoru megin hryggjar hann raunverulega liggur, til að mynda ef hann fær til undirritunar plögg sem skerða fullveldi landsins og má í því sambandi nefna orkulöggjöf Evrópusambandsins sem um þessar mundir er verið að undirbúa að lauma í gegnum þingið. Sá grjótharði pakki felur í sér framsal ríkisvalds til alþjóðlegra stofnanna, fullveldisskerðingu, stjórnarskrárbrot, hálsbrot á gullgæs þjóðarinnar og hrein og klár landráð - freistingar sem þingmenn eiga afar erfitt með að standast.

Með hverjum mun alþýðlegi forsetinn standa þegar til kastanna kemur, stjórnvöldum eða þjóðinni?

 

Eru aðrir og fýsilegri ókostir í stöðunni?

Hefðu dyraverðirnir ekki alveg eins getað rætt þessi ofbeldismál við biskupinn? Hann ætti að vera orðinn ansi sjóaður í þessum málaflokki með alla þessa harðduglegu kófsveittu presta innan vébanda kirkjunnar sem eru í því að koma fermingarbörnum á kné. Eða einsog segir í málshætti mínum: Fermt barn forðast prestinn. Og sjálfur þekkir hann málin á eigin skinni ef eitthvað er að marka málsháttinn: Enginn verður óbarinn biskup.

 

Hugmynd DagsinsEn hefði ekki legið beinast við að funda með lögregluyfirvöldum eða borgarstjóranum og hans undirsátum?

Borgarstjórinn hefði reyndar ekki svarað beiðni um viðtal þar sem hann er á fullri ferð við að hægja á umferð, þétta byggð, þrengja götur, loka götum, þrengja að fólki, auka mengun, auka skuldir, auka leiðindin, stytta líf borgarbúa með auknum umferðartöfum, setja upp rauð gangbrautarljós á stofnbrautum, gefa grænt ljós á byggingu hótela á bílastæðum og kirkjugörðum, funda stíft um ókyngreind klósett, ulla á minnihlutann og gefa skynsemi langt nef í öllum málum.

Þess á milli er hann að dunda sér við að skrúfa fyrir fjárframlög til Fjölskylduhjálpar og dæla út 450 milljónum í endurbætur á brennivínsbragga í Nauthólsvík.

Kallinn er allur að "braggast."

 

 

Lögreglan alveg uppfyrir haus í stóru málunum

HatursorðræðaOg lögreglan er að sjálfsögðu upptekin með upptökutæki og headphone við að reyna að finna “hatursorðræðu” (rangar skoðanir) á Útvarpi Sögu þar sem orðið á að vera frjálst, og finna leiðir til að draga hinn stórhættulega raðspjallþáttastjórnanda og fjölda-orðingja Pétur Gunnlaugsson aftur fyrir dómstóla fyrir að hlusta á fólk tjá sig í opnum innhringitíma stöðvarinnar.

Þannig að kannski var ekkert annað í boði en að þiggja ímyndarboð forsetans.

 

Svona að endingu vil ég láta í ljós þá einlægu von mína að dyravörðurinn nái fullum bata og að ofbeldishrottarnir náist og hljóti makleg málagjöld. Kannski verða þeir ekki jafn borubrattir þegar þeir þurfa að fara að beygja sig eftir sápunni í sturtuklefa dýflissunnar.

 

 

Þessi grein birtist í Morgunblaðinu í gær, 8. september.


mbl.is Funduðu með forseta vegna árásar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 9. september 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband