Ríkur er "aurugur" maður

MoneyOutOfAssÉg sagði Jónínu Ben vinkonu minni einusinni að fara í rassgat, og nú hefur hún látið verða af því. 

Ég á ekki við giftingu hennar og Gunnars á Krossinum heldur Detox ævintýrið. Ég veit ekki hvort það svínvirkar en það svíngengur allavega. Skítnóg að gera. Drulluflott dæmi. Algjör óþarfi að vera að hreyta skít í hana fyrir að reka þetta meðferðarhæli. Minnir að það heiti Saurbær.

Endaþarmur hvers manns er "matarhola" í vissum skilningi og þangað er hægt að sækja "aur" í tvennum skilningi.  Sem er mjög gott mál.

Þessi kjarnakona kann að bjarga sér - og kannski einnig öðrum. Sem er mjög gott mál.

 


mbl.is Kvartað yfir detox til landlæknis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Jónina er nú soddans "rassgat"

Jón Snæbjörnsson, 11.6.2010 kl. 09:37

2 Smámynd: Sverrir Stormsker

Jón, já gvöööð, alveg gaaaasalegt rassgat.

Sverrir Stormsker, 11.6.2010 kl. 09:55

3 Smámynd: Dingli

Getur verið að velgengi Jónsu, byggist á því hversu vel ríðandi hún sé. Mætir á stórasviðið ríðandi glóandi gullösnum, hvað eftir annað. Nú síðast einum Guðlegum.

Nei ég bara spyr.

Dingli, 11.6.2010 kl. 10:04

4 Smámynd: Sverrir Stormsker

Dingli, veit ekki. Hún hefur allavega vit á aur.

Jón og Gunna...., ég meina Jóna og Gunni eru flott saman. Flott par.

Sverrir Stormsker, 11.6.2010 kl. 10:29

5 Smámynd: Ómar Ingi

 Djöfull er gaman af þessu

Ómar Ingi, 11.6.2010 kl. 15:42

6 identicon

Skemmtilegt orð, endaþarmur. Ennþá skemmtilegra að allir skuli vera með einn.

Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 11.6.2010 kl. 22:13

7 Smámynd: Eiríkur Harðarson

Já hún Jóna(ína) er sko ekki í vandræðum með að redda aur, jafnvel þó hann innihaldi saur.

Eiríkur Harðarson, 15.6.2010 kl. 03:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband