Reykingar og hávaðamengun

Hávaðamengun í formi einstaklingsÓlífræn hávaðamengunVið sátum um kvöld á rómó veitingastað hér í borg, ég og vinkona mín. Kertaljós, notaleg tónlist í bakgrunni, góður matur - og kelling með organdi smákrakka á næsta borði. Hún hefði allt eins getað mætt með loftbor. Ég spurði þjóninn hvort ég mætti kveikja mér í vindli, það væri örugglega minni mengun af honum en öskurapanum. Nei, ég mátti það ekki, ég yrði að Martröðsýna tillitssemi. Ég spurði þá hvort hann væri til í að sýna þá tillitssemi að biðja mömmuna við hliðina að sýna gestum þá tillitssemi að borða heima hjá sér með loftbornum sínum. Nei, það vildi hann ekki. Ég spurði: „Eru reykingar bannaðar en hávaðamengun leyfð á veitingastöðum þar sem fólk vill njóta næðis?“ Hann heyrði ekki hvað ég sagði fyrir öskrum og gekk í burtu. Stemman var í molum og við hröðuðum okkur út með hlustaverk.

 

 

 

 

FlugdólgurDaginn eftir skruppum við til útlanda. Flugvélin var þéttsetin. Langt flug fyrir höndum. Fyrir framan okkur sat kelling með hágrenjandi smákrakka í fanginu. Einmitt það sem vantaði. Farþegarnir hrylltu sig og fóru að raða í sig svefntöflum og róandi, allir nema litli loftborinn sem var í gangi á öskrandi ferð alla leiðina. Engum kom dúr á auga. Ein lítil róandi barnatafla í réttan munn og öll vélin hefði steinsofnað. Kannski vantar sérbása fyrir ómálga flugdólga? Ég ætlaði að fara að kveikja mér í vindli en mundi að ég varð að sýna tillitssemi.

 

 

                                                                                    (Þessi pistill birtist í 24 Stundum 14. júní)

 

 

 

Í þætti mínum "Miðjunni" í dag klukkan 16:00 á Útvarpi Sögu fm 99.4 verður gestur minn Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndaskáld. Hann var í spjalli hjá mér fyrir fáeinum vikum og þar sem hann er mikill sagnabrunnur þá er ekki annað hægt en að rekja aðeins fleiri garnir úr honum, - allavega eina ósmurða görn.

Síðustu 4 þættir verða komnir inn á síðu mína  www.stormsker.net  fyrir helgi. Njótið vel. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þóra Elísabet Valgeirsdóttir

Ha ha ha!! Já lítill loftbor! Já ég verð eiginlega að vera sammála þér með þetta þó að ég eigi nú börn sjálf, að þá fer þetta líka í taugarnar á mér, ef ég vil hafa ró og næði í kringum mig.
Skemmtilegir pistlar hjá þér.

Þóra Elísabet Valgeirsdóttir, 25.6.2008 kl. 08:38

2 Smámynd: 365

Þaka góða þætti á útvarpi Sögu.  Það verður virkilega gaman að heyra í Hrafni.  Gleymdu ekki að spyrja hann um það þegar hann var næstum búinn að kveikja í Stjórnarráðinu og eins hvernig hann hefur komist upp með ýmsa hluti í Laugarnesinu, sér bátastæði, flutningi á grjóti og öðru í fjörunni hjá sér án þess að spyrja neinn um hvort má, án þess að fara í umhverfismat!!!

365, 25.6.2008 kl. 09:10

3 Smámynd: Gulli litli

Við reykingafólk erum líka fólk.....bara ekki eins lengi.

Gulli litli, 25.6.2008 kl. 11:31

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

kannski við ættum að banna börn?

Hólmdís Hjartardóttir, 25.6.2008 kl. 13:43

5 Smámynd: Guðrún Ágústa Einarsdóttir

Já það meiga allr menga fyrir reykingarfólkinu en svo má reykingarfólk ekki menga fyrir öðrum, ferlega óréttlatt eitthvað. Sem sagt öll mengun er leyfileg sama hvaða nafni það ber nema reykingar. En svona hávaðamengunarloftboraorg er hvimleitt að hlusta á..úff bara. Ég tala nú ekki um ef  maður vill hafa það næs á veitingastað með sínum vinum, með kertaljós og rauðvín. Kv. Gunna.

Guðrún Ágústa Einarsdóttir, 25.6.2008 kl. 14:55

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það á ekki að banna börn en barnafólk ætti að læra tillitssemi við aðra. Það mun það seint læra. En einhver gerir svo athugasemd við barnaöskrin á algjörlega óviðeigandi stöðum þá setur barnafólkið upp svip. Einu sinni flaug ég frá Krít í sjö tíma flugi og þar var eitt svona skrímsli í næsta sæti.  En ég var séður eins og fyrri daginn og stakk upp í eyrun á mér voldugum eyrnatöppum. Allir aðrir í vélinni hötuðu helvítis barnið og mömmu þess.   

Sigurður Þór Guðjónsson, 25.6.2008 kl. 16:04

7 Smámynd: Himmalingur

Það er nú meira djöfulsis vælið alltaf í ykkur reykingafólki! Sjálfselskan að DREPA ykkur og þá sem eru næstir ykkur!

Himmalingur, 25.6.2008 kl. 16:40

8 Smámynd: Ómar Ingi

Reykingar eru svo 80´s Sverrir og meira segja 90´s er að verða vinsælla en 80´s hvað tónlistina varðar , þannig að þú verður bara að hætta að reykja og verða smart aftur

Segi nú bara svona , en það mátti ekki fara mína leið í þessum málum staði fyrir reykingafólk og staði fyrir reykleysa , nei þá er verið að mismuna fólki sem á veitingastaði.

En hey allt annað að sjá kallin eftir að þú lagðir hárinu úr andlitinu á þér til hliðar

Ljúfar

Ómar Ingi, 25.6.2008 kl. 17:22

9 Smámynd: Heimir Tómasson

Hvaða hvaða. Ég flýg mikið, lendi oft með organdi smábörnum (og þá er ég reyndar ekki að tala um sölumennina hjá fyrirtækinu sem ég er hjá, ótrúlegt en satt) ne mín aðferð við þetta er einföld. MP3 spilari og mjög, mjög heyrnatól. Verra með matsölustaðina....

Heimir Tómasson, 25.6.2008 kl. 17:23

10 Smámynd: Heimir Tómasson

Átti náttúrulega að vera mjög GÓÐ heyrnatól. Afsakið.

Heimir Tómasson, 25.6.2008 kl. 17:24

11 Smámynd: Theódór Norðkvist

Hvort er verra á veitingastað, móðir með ungbarn grenjandi, eða þrír háværir hrokagikkir með tilheyrandi öskrum og hrossahlátri, á næsta borði?

Theódór Norðkvist, 25.6.2008 kl. 18:16

12 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Ungbörnum líður oft illa í flugvél og það er spurning hvort fólk ætti eitthvað að vera að þvælast með þau í langar ferðir fyrsta árið og hvað þá taka þau með á veitingastaði.

Margrét St Hafsteinsdóttir, 25.6.2008 kl. 19:02

13 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Mér hefur dugað ágætlega að spyrja kurteislega hvort fólki sé ekki sama hvort það hætti að éta meðan ég reyki. Pakkinu verður þá vanalega orðavant nægilega lengi til að ég geti klárað smókinn.

Smábörn þurfa aðra og drastískari meðferð. Eins og þú komst svo sniðuglega að í dag, elskan.

PS. Ofsalega hló ég kvikindislega!

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 25.6.2008 kl. 20:53

14 Smámynd: Steinunn Helga Snæland

Grínistinn Dave Allen (sá Írski með stóra vindilinn) var tíður gestur á íslesnkum heimilum, rétt fyrir litasjónvarpið....(Hmmmm já, ég ER svona gömul!!!) Hann kom skemmtilega að þessum málum, hann lýsti kvöldi í kvikmyndahúsi, þar sem hann mátti sitja undir poppkorns-bryðjandi, gos-sjúgandi og ropandi sessunautum,- og heyrði vart hvað gerðist í bíómyndinni,- en hann mátti ALLS EKKI kveikja í sínum vindli, ónei,ónei!!!! Þetta er einhvernveginn allt öfugsnúið. Ég er alveg sátt við að reykja ekki í kringum mína stráka, en ég áskil líka öðru fólki þau sjálfsögðu mannréttindi, að þeir geti hagað sér á almannafæri. Ef þeir valda ónæði fyrir aðra, þá get ég tekið þá annað. Afhverju þarf þetta allt að vera svona flókið? Afhverju mega vertar ekki ákveða hvort leyfðar séu reykingar inni á þeirra eigin stöðum, og þá geta þeir upplýst starfsfólk um það fyrirfram (þetta er/er ekki reykingastaður) og allir eiga sér val.  Kúnnar eiga líka að eiga slíkt val..... En nei, heldur boð og bönn,- og láta svo allan annan ósóma yfir reykingarmanninn ganga, eins og einhver sagði,- fullir, slefandi og öskrandi kúnnar eru OK, en Fjandinn fjarri mér ef þeir sitja hljóðlausir á endanum á sínum vindli!!!!  Sverrir, góð grein, ég er algjörlega sammála!!!  Kveðja frá Kongó :)  Steinunn

Steinunn Helga Snæland, 26.6.2008 kl. 10:43

15 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Að hugsa sér Sverrir minn, að einu sinni varst þú svona óþolandi,grenjandi hávaðasamur loftbor og þinn uppalandi hefur örugglega Jesúsað sig í bak og fyrir.........Eina, að þá mátti reykja út um allt og pirruðu gaurarnir á næsta borði eða sætum eða eitthvað svoleiðis hafa bara hallað sér aftur og kveikt sér í vindli eða sígó. Ég man eftir öllum bíl og flugveiku börnunum á meðan reykingar voru leifðar út um allt og enginn vissi betur. Ef þú hefðir kveikt þér í vindli og allir hinir líka þ.e.a.s. ef það hefði mátt, þá hefðirðu kannski fengið yfir þig ælugusur líka, frá loftbornum ógurlega. Tek það fram að ég er ekki að predika gegn reykingum, er sjálf alltaf að reyna að hætta þeim ósóma Eigðu góða helgi, lausa við loftbora.

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 28.6.2008 kl. 11:32

16 Smámynd: Viðar Freyr Guðmundsson

Ef þetta hefði verið fullorðin einstaklingur sem öskraði svona, þá hefði nú þjónninn líklega beðið viðkomandi um að hafa hljótt.. síðan beðið hann um að fara.

Er það ekki bara nákvæmlega þannig sem á að fara að í svona sitjúasjon, biðja þann sem ber ábyrgð á þessum hávaða vinsamlegast að fara?

..flækist nú málið ef þetta á sér stað í flugvél. En þá væri viðkomandi flokkaður sem flugdólgur og líklega skilinn eftir og handtekinn einhverstaðar.

Viðar Freyr Guðmundsson, 28.6.2008 kl. 18:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband