Hjálpum útlendingum, ekki Íslendingum

ítalskt flóttamannahlaðborð

Páfinn að kyssa flugvöllÞað hefur margt jákvætt verið í fréttum undanfarna daga. Paul Ramses var t.d. heimtur úr viðbjóðslegu ítölsku hóteli þar sem hann þurfti að borða pizzur og pastaóþverra og Villibráð í Kenyafara í sturtu þrisvar á dag. Hræðilegt.

Þegar hann lenti hér á klakanum þá kyssti hann að sjálfsögðu flugstöðina og flugvöllinn í bak og fyrir einsog aðrir páfar. Ég hélt fyrst að þetta væri opinber heimsókn einhvers heimsfrægs blökkumannaleiðtoga en svo kom uppúr dúrnum að þetta var Paul Ramsens eða Ramstein eða Rambó eða hvað hann heitir nú þessi frómi sannsögli flóttamaður. Hefði hann verið sendur til Kenya, paradísar skotveiðimannsins, þá hefði hann vitaskuld verið eltur uppi af safaríveiðimönnum á jeppum og plaffaður niður.

 

Peningar af himnum ofanFleira jákvætt: Jóhanna Kristjónsdóttir safnaði tugum milljóna handa fátæku fólki hinumegin á hnettinum. Ekkert hefði komið í kassann hefði hún reynt að safna aurum handa fátækum Íslendingum, nema náttúrulega ef þeir hefðu misst allt sitt í snjóflóði. Þá hefði opnast fyrir flóðgáttir seðla.

Sjálfur er ég búinn að vera að hjálpa Nígeríunegrum með ómældum fjárframlögum svo þeir geti leyst út einhvern milljarðaarf eða eitthvað þessháttar. Þarf endilega að fá Bubba með mér í þessa arðbæru fjárfestingu.

 

Oflaunaðir ÍslendingarKósí heimili Fleira jákvætt: Íslenskir utangarðsmenn í Reykjavík hafa fundið sér huggulegan ruslagám í miðbænum sem svefnstað svo það mun því pottþétt ekki væsa um þessa ágætu starfsstétt í vetur.

 

 

 

(Þessi pistill birtist í 24 Stundum, 6. september)

 

Í þætti mínum "Miðjan" á Útvarpi Sögu FM 99.4 í dag, miðvikudag, milli kl. 16:00 og 18:00, verður gestur minn enginn annar en tónlistarmaðurinn og sjóræninginn síkáti Gylfi Ægisson. Gylfi hefur átt mörg klassísk lög einsog t.d. Í sól og sumaryl, Minning um mann og Stolt siglir fleyið mitt, en hann hefur einnig átt kærustur í hverri höfn enda siglt um öll heimsins höf. Hann mun segja mér af svaðilförum sínum í rúminu og úti á rúmsjó þar sem hann hefur margoft þurft að berjast við allskyns skrímsl. Þær eru ófáar hámerarnar sem hann hefur glímt við og þeir eru ófáir mannætuhákarlarnir sem hann hefur snúið úr hálsliðnum.

Fyrri þætti má finna á:  www.stormsker.net 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Paul Rammstein hver?

Eggert Ólafur Sigurðsson (IP-tala skráð) 10.9.2008 kl. 07:57

2 Smámynd: Yngvi Högnason

Hva, er afmælið búið?

Yngvi Högnason, 10.9.2008 kl. 08:07

3 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Þú ert sannkallaður sólargeisli á þessum gráa degi.

Ragnhildur Kolka, 10.9.2008 kl. 10:03

4 Smámynd: Svavar Guðnason

Mælt þú manna heilastur.

Svavar Guðnason, 10.9.2008 kl. 10:08

5 Smámynd: Gulli litli

Gott að fá bara jákvæðar fréttir.......Gylfi Ægisson uhuhuhu spennandi..

Gulli litli, 10.9.2008 kl. 10:08

6 Smámynd: Óskar Arnórsson

Til hvers að hjálpa íslendingum þegar til eru svona margir útlendingar?

Óskar Arnórsson, 10.9.2008 kl. 15:49

7 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Þið voruð góðir félagarnir í dag.

Frábærir skjallvinir og góðir tónsmiðir báðir, en þú betri.

Ég er að ég held sammála Gylfa í því að þú sért bestur hérlendis og þó víða væri farið.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 10.9.2008 kl. 20:08

8 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Íslendingum á skerinu fer víst óðum fækkandi :)

Kjartan Pétur Sigurðsson, 10.9.2008 kl. 21:21

9 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Og hér kem ég alveg rosalega sammála Heimi sem var sammála Gylfa. Gylfi Ægisson var stórgóður. Þvílíkur brunnur af frábærum drykkjusögum! Það mætti sko heyrast miklu meira í honum... hann er eiginlega efni í ritröð þessi sagnameistari.

Svo hlær hann svo ótrúlega skemmtilega og smitandi!

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 10.9.2008 kl. 22:51

10 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Mig hefur svo oft langað að hjálpa nígeríumönnum líka, alveg sérstaklega þegar þetta með arfinn sem é að renna 80% til mín hefur borið á góma.

Jón Halldór Guðmundsson, 10.9.2008 kl. 23:26

11 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Veit einhver ykkar á hverju Jóhanna lifir, þarna hinu megin á hnettinum?

Högni Jóhann Sigurjónsson, 11.9.2008 kl. 02:16

12 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Nú er akkurat tíminn til að fleyta kertum, fara í mótmælagöngu, mótmælastöðu fyrir framan Dómsmálaráðuneytið og gera allt vitlaust.

Það er ótrúlega léleg gestrisni, að löggiman brjótist inn til að snuðra uppi rétt nafn og ríkisfang manna, sem hingað koma.

 Svo eru þeir eitthvað að gera spooky að menn eigi smá skotsilfur og nokkur vegabréf.

Hvað er eiginlega að þessu liði?  Ha, eins og það sé eitthvað asnalegt að eiga seðla til að redda smá málum?  Ha, eru þessir menn svona kaldlyndir ?

Við fórum í allskonar göngur, stöður og fýlu, til að Ramses /Páll eða hvað svo sem hann heitir. fengi að vera hjá ,,konu sinni og barni" en ekki í sólinni á Ítalíu, enda vverða menn að fara að lögum þar, ferlega fúllyndir löggimannar þar.

Svo er það jafnréttisspursmál, að hinir sem eru að leita að hæli hér fái SÖMU MEÐFERÐ þegar ÞEIR LJÚGA EKKI NEITT MEIRA EN RAMSES EÐA hvað hann heitir. Jufhu eða hvað sem ættingjar hans segja.

Allir mega ljúga að löggimann, við verðum að skrifa lögguna upp og steikja á teini.

Miðbæjaríhaldið

Cosmopolitan og víðsýnn með afbrigðum

Bjarni Kjartansson, 12.9.2008 kl. 10:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband