Íslendingar fyrirlitnir og hataðir um allan heim

kort_kotta_i_strimla.jpgVinur minn var í Köben fyrir stuttu og fór náttúrulega yfir Strikið. Þegar hann var að borga fyrir sig með korti í einni versluninni og afgreiðslukellingin sá frá hvaða landi hann var þá greip hún skæri og klippti kortið hans í strimla og þreif svo veskið hans af borðinu og tók fuck_you_man_699192.jpgíslensku seðlana upp úr því og tróð þeim í pappírstætara og svo klippti hún veskið vandvirknislega í þunnar í ræmur ekki ósvipaðar beikoni og öskraði hástöfum á hann að hann ætti að hypja sig aftur til helvítis, þeas til Íslands. Það var alveg sama þó hann reyndi að segja henni að hann væri alls óskyldur Bónusgrísum og Bjórúlfum og Bjarna Ármanns og Björk og öllum þessum Bé-um, hún hélt bara áfram að öskra á hann að hann skyldi drulla sér tafarlaust til helvítis. Þegar hún tók upp afsagaða haglabyssu þá skildi hann loksins svona nokkurnvegin hvað hún átti við og hraðaði sér út. 

Hann sagðist vita um marga Íslendinga sem hefðu svipaða sögu að segja. Orðspor Íslendinga út um allan hinn stóra siðmenntaða heim er jafn ónýtt og íslenska krónan.

 

 

_slendingur_i_utlondum_i_dag.jpgÞað er orðið nokkuð algengt víða erlendis að það sé hrækt framan í  Íslendinga vænum grænum slummum og jafnvel snýtt sér á þá og þeim hótað öllu illu, sérstaklega í Bretlandi, Hollandi og Danmörku. Sumstaðar er þeim vorkennt. Í Asíu er aðallega hlegið góðlátlega að þeim. Íslensk „viðskiptasnilld" hefur t.d. verið all mikið til umfjöllunnar í tælenskum fjölmiðlum og þar er Íslendingum lýst sem broslegum flónum með minnimáttarkennd sem héldu að þeir gætu keypt upp allan heiminn með matadorpeningum. Það vill oft gleymast að það var náttúrulega ekki öll þjóðin sem stóð í þessu svínaríi heldur aðeins 20 - 30 óprúttnir fjárglæframenn með forsetann sem klappstýru.

 

 

Í gær kom fram í fréttum að tónleikaferð Sinfoníuhljómsveitar Íslands til Japans hefði verið frestað um óákveðinn tíma. Og afhverju? Jú, Japanir sögðu að „vegna frétta af Íslandi undanfarna daga væri hljómsveitinni ekki treystandi fjárhagslega." Þröstur Ólafsson framkvæmdastjóri sveitarinnar bætti svo við: „En síðan held ég að aðalástæðan hafi nú verið sú að orðspor landsins er orðið svo lélegt...að þeir hafi bara ekki getað selt miða eða að minnsta kosti ekki eins marga og þeir þurftu. En það er alveg ljóst að orðspor okkar er komið niður í kjallara."

 

 

ver_ir_vinkonu_minnar_699198.jpgVinkona mín í Bretlandi, sem er svo þrælóheppin að vera Íslendingur, er búin að fá dobíu af hótunum frá bálreiðum Bretum. Húsið hennar er þakið eggjum og grænmeti einsog Geir Ólafs eftir tónleika. Hún er búin að vera í stofufangelsi dögum saman og húsið hennar er vaktað dag og nótt af breskum þungvopnuðum lögregluþjónum. Þeir vilja eflaust líka buffa hana en gera það ekki starfs síns vegna. Það eina sem hún hefur til saka unnið er að vera frá sama landi og útrásar"víkingarnir" orðumprýddu.

 

fuck_you_icelandic_bastard.jpgOg nú í fyrradag var frænka mín Halla Vilhjálms, söng - og leikkona í London, borin út úr íbúð sinni og fleygt út á götu í fallegum boga. Ástæðan? Jú, hún er Íslendingur. „Enga íslenska hálfvita hér takk fyrir. Þið og ykkar getnumrotna viðskiptasiðferði! Veriði úti djöfulsins ræsisrotturnar ykkar og látið ekki sjá ykkur hér framar! Skítseiði!"

 

 

 

george_bush_me_puttann_fraega.jpgVið eigum enga vini, eða einsog segir í textanum Traustur vinur: "Þegar af könnuninni ölið fer, fljótt þá vinurinn fer." Frændþjóðirnar Noregur, Svíþjóð og Rússland ætla jú að henda í okkur apana nokkrum bönunum en þeir eru ekki uppí rass á nokkrum ketti. Osama bin Laden hefur neitað okkur um aðstoð og meiraðsegja gæðablóðið George W. Bush, sem má ekkert aumt sjá (án þess að sparka í það), hann fyrirlítur og hatar okkur og vill akkúrat ekkert fuck_you_asshole_699323.jpgfyrir okkur gera, ekki einusinni sprengja okkur í loft upp. Hann vill ekkert af okkur vita þrátt fyrir að hann viti að hann hefði aldrei getað unnið Íraksstríðið án okkar hernaðaraðstoðar, (man ekki í svipinn hvað stelpan hét sem við sendum á vettvang). Hann vill ekkert lána okkur og ekkert gefa okkur, nema puttann, og við þurfum síst á enn einum puttanum að halda núna. Það kemst allsekki einn putti í viðbót uppí ósmurt taðgatið á okkur. Útrásar"víkingarnir" hafa séð til þess og eru þar með drjólann á bólakafi fyrir.


 - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

 

 

Gestur í þætti mínum "Miðjan" á Útvarpi Sögu fm 99.4 á milli klukkan 16:00 og 18:00 í dag, miðvikudag, verður enginn annar en Íslandsvinurinn og kyntröllið Jón Baldvin Hannibalsson.

Við munum ræða nýjustu flatskjáina, þriðju kindaslóð farsíma, flottustu Range Roverana og ísmeygilegustu kellingarnar og í hvaða íslensku bönkum sé best að kaupa hlutabréf um þessar mundir og hvort það væri ekki gróðavænlegt að breyta Stjórnarráðinu í spilavíti og Seðlabankanum í fyrsta klassa hóruhús. Við munum svo hugsanlega bjalla í Bubba og fá ráðgjöf í fjárfestingum og fræðslu í verðmyndun verðtryggðra viðskipta. 

Það er engin hætta á að Jón hlaupi út úr miðju viðtali enda hefur hann marga fjöruna sopið og einnig margt annað sterkara á börum og í þjóðhöfðingjaveislum út um allan hinn stóra heim umhverfis Ísland.

 Fyrri þætti má finna á:  www.stormsker.net

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Djöfull sem að er hressandi að lesa okkar ástkæra ilhýra svona umbúðalaust. Hlakka til að hlusta á Jón nokkurn Baldvinsson.Fegin að heyra að hann muni ekki leggja á flótta úr viðtalinu miðju. Næst spyrðu OD.?

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 15.10.2008 kl. 10:45

2 Smámynd: Sverrir Stormsker

Fínasta ljóð. Og þá er bara að fá Bubba til að semja lag við þetta og Geir Hornef til að syngja.

Sverrir Stormsker, 15.10.2008 kl. 10:58

3 Smámynd: Ómar Ingi

Snilldar pistill nema hvað

Ómar Ingi, 15.10.2008 kl. 11:58

4 Smámynd: Óskar Þorkelsson

það fauk nú í felst skjól þegar barstelpurnar suður í Thailandi hætta að taka Visað hjá manni.... hversu lágt er hægt að komast með mannorð okkar ???

Óskar Þorkelsson, 15.10.2008 kl. 12:08

5 Smámynd: Sverrir Stormsker

Já barstelpurnar í Thailandi. Þær eru orðnar soldið smeykar við íslensk kreditkort en debetkortið hefur alltaf gengið. Ef þær eru ekki með posa þá bara rennir maður kortinu í aðra rifu. Það hefur alltaf svínvirkað. Maður þarf bara að renna því soldið oft.

Sverrir Stormsker, 15.10.2008 kl. 12:32

6 Smámynd: Johann Trast Palmason

það er stór spurning sverrir í þessari heimatilbúnnu kreppu sjálfstæðismanna sem stunda pólitiskt vændi í hórusúsinu við austurvöll hvort við getum ekki tekið Tæland okkur til fyrirmyndar þar sem við erum orðin 3 flokks ríki í evropu og gert not fyrir þessa LADY BOYS eða sjalfstæðismenn og boðið þjónustu þeirra til sölu í fyrstaklassa umhverfi þeirra og nað þannig gjaldeyri aftur inni landið ?

þetta eru jú þeirra skuldir ekki okkar sem þeir ætla láta okkur borga

og munið !!

Aldrei Aftur X-D.

Johann Trast Palmason, 15.10.2008 kl. 14:03

7 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Sverrir, geturðu ekki fengið Nonna til að beila mig út hérna - hefja landssöfnunina Helguna heim! eða eitthvað svoleiðis hjálparstarf? Allavega leggja í púkk fyrir matar- og vínkörfu fyrir okkur pólitísku fanga frelsis og útþrár nokkurra plebba -með handayfirlagningu - og að lokum signingu - forseta vorrar og ríkisstjórnar?

Já og kerti og spil fyrir Rósina. Hún er heima í dag - öryggis hennar vegna - og henni fellur það fremur þungt.

En það er auðvitað líka Dabba að kenna...  

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 15.10.2008 kl. 14:19

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Endemis bull er þetta!

Hrönn Sigurðardóttir, 15.10.2008 kl. 14:55

9 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Hemdu þig, Hrönn, ég meintettekki með landssöfnunina... 

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 15.10.2008 kl. 15:06

10 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Mér er nú alveg sama um söfnunina - enda mundi ég ekki tíma að gefa neitt í hana! Færi frekar og keypti mér eina góða vínflösku og skálaði fyrir þér ef vel lægi á mér!

Ég hef hins vegar ekki enn hitt þann verzlunarmann sem vill ekki peninga!

Hrönn Sigurðardóttir, 15.10.2008 kl. 15:28

11 Smámynd: Halldór Sigurðsson

Slæm landkynning er betri en engin -----

Halldór Sigurðsson, 15.10.2008 kl. 16:39

12 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Loksins orðið spennandi að vera íslendingur - sérstaklega í útlöndum.  Maður þarf ekki einu sinni að vera blindfullur með maskara niður á kinnar til að tekið sé efir manni.  Nóg að veifa vísakortinu.......  Cool

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 15.10.2008 kl. 22:34

13 Smámynd: Anita Björk Gunnarsdóttir

þú ert frábær

Anita Björk Gunnarsdóttir, 16.10.2008 kl. 00:04

14 Smámynd: Villi Asgeirsson

Hressilegur pistill. Ég er sammála Helgu. Setjum af stað átakið "Sauðina Heim". Það má örugglega nota okkur útlendingana í eitthvað, eins og að moka skít við Austurvöll.

Villi Asgeirsson, 16.10.2008 kl. 08:15

15 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Flottur pistill og myndirnar frumlegar og viðeigandi

Sigurður Þórðarson, 16.10.2008 kl. 12:40

16 identicon

Ísland er svona eins og Amy Winehouse... nema við fáum enga meðaumkun :)

DoctorE (IP-tala skráð) 16.10.2008 kl. 13:11

17 Smámynd: Kreppumaður

Þú ert gersemi og dýrlingur Sverrir!

Kreppumaður, 16.10.2008 kl. 15:59

18 Smámynd: Ben.Ax. (Benedikt  Jóhannes Axelsson)

Ég horfði á björtu hliðarnar
og hugsaði bara um vin minn, hann Sverri.
Af öðrum mönnum ætíð bar
alls staðar og hér og þar,
en nú er hann því miður orðinn eitthvað verri.

Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 16.10.2008 kl. 21:58

19 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Þið Jón voruð mjög skemmtilegir -og auðvitað freðnustu pulsurnar í pottinum...

Hildur Helga Sigurðardóttir, 17.10.2008 kl. 06:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband