Ef miðað er við mannfjölda

Ímynd Íslendingsins.jpgFræknir eru Íslendingar,

afar miklir hagfræðingar,

ef miðað er við mannfjölda.

 

Þeir eru leiknir, liðugir,

léttir, klárir og sniðugir,

ef miðað er við mannfjölda.

 

Þeir eru fróðir, þeir eru seigir,

þeir eru frekar gáfulegir,

ef miðað er við mannfjölda.

 

Þeir eru vitrir sem vel má sjá,

vitrastir allra eftirá,

ef miðað er við mannfjölda.

 

Þeir bera höfuð og herðar yfir

allar þjóðir og allt sem lifir,

ef miðað er við mannfjölda.

 

Íslendinga ekkert hrjáir,

af því eru svona fáir.

 

 

 

(Ljóð þetta birtist í ljóðabók minni  Kveðið í kútnum, 1982)

 

 

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

 

jonas_kristjansson.jpgreynir_traustason_712934.jpgÍ þætti mínum "Miðjan" á Útvarpi Sögu fm 99.4 klukkan 16:00 - 18:00 í dag verða gestir mínir þeir Reynir Traustason rithöfundur og ritstjóri DV og Jónas Kristjánsson rithöfundur og fyrrv. ritstjóri DV. Þessir menn hafa sjaldan farið með skoðanir sínar á mönnum og málefnum einsog mannsmorð og þeir eru all þekktir fyrir að tala mannamál, enda báðir homo sapiens.

Við munum ræða hvort þeim finnist að það eigi að steypa Davíð Oddsson í gifs og planta styttu af honum niðrá Austurvöll í stað hinnar sjálfstæðishetjunnar, Jóns Sigurðarsonar. Eða á að setja hann í steypuskó og trilla honum fram af bryggju í seðlabankastjórastólnum? Á að steypa honum af stóli? Á að steypa hann við stólinn? Á að steypa honum fyrir ætternisstapa? Er allt sem hann segir tóm steypa? Getur verið að Atkins megrunarkúrinn hafi ekki virkað og hann hreinlega komist ekki uppúr stólnum?

Hvort finnst þeim að útrásarvíkingarnir eigi að bjóða sig fram til forseta eða gefa sig fram við lögregluna?

Hvort finnst þeim Geir Haarde koma vel fyrir eða þvælast vel fyrir? Eða finnst þeim kannski að það ætti að koma honum vel fyrir? Hvað finnst þeim um kattarnef?

Allt eru þetta spurningar sem alveg bráðnauðsynlegt er að fá svör við og það strax.

 

Fyrri þætti má nálgast á:  www.stormsker.net   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Thee

Þessi þáttur verður áhugaverður, það eiga eftir að heyrast mörg orð sem ekki venjulega heyrast í hljóðvarpi.

Thee, 29.10.2008 kl. 08:03

2 Smámynd: Skrolli

Flott kveðið hjá þér, þar að segja ef miðað er við mannfjölda.

Ég veit ekki hvort þú ættir alltaf að taka fram að þú hafir samið þetta og annað svona ungur. Maður fær þá flugu í höfuðið að þú sért kominn á kaf í endurvinnsluna og frumleikinn tröllum gefin og illa leikinn... það er varla svo slæmt? 

Skrolli, 29.10.2008 kl. 11:19

3 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Þeir hafa líka verið einstaklega sparsamir miðað við mannfjölda.  Nægir þar að nefna Pétur Blöndal ef einhver kynni að vera í vafa.

Magnús Sigurðsson, 29.10.2008 kl. 12:46

4 Smámynd: Sverrir Stormsker

Bjarne Hansen, ef það verður opið fyrir símann í dag þá er þér guðvelkomið að hringja inn og bera upp þessa einföldu spurningu í 20 liðum. Ekki málið.

Efast stórlega um að ég muni spyrja þessa herramenn í blindfullri alvöru að því hvort þeim finnist að það eigi að steypa Dabba fyrir ætternisstapa, en Það má taka þessu alvarlega ef maður er Skandínavi. Reyndar hefur Jónas Kristjáns sett Dabba í 1. sæti yfir most wanted sökudólgana, men det er en heldt anden historien.

Rétt hjá þér Bjarni Harðarson (Skrolli): maður á aldrei nokkurntíma að minnast á aldur sinn, því þá fá menn allskonar furðulegar flugur í höfuðið og samsæriskenningarnar fara af stað. Skal græja þetta áríðandi mál alveg hreint á nóinu.

Annars á þetta gamla ljóð mitt nokkuð vel við í dag finnst mér. Kannski á það alltaf vel við okkur Íslendinga.

Þakka innlitið. Góðar stundir

Sverrir Stormsker, 29.10.2008 kl. 12:55

5 Smámynd: Hrannar Baldursson

Alltaf jafn hressandi þessi steypa.

Hrannar Baldursson, 29.10.2008 kl. 15:23

6 Smámynd: Ómar Ingi

Já afar hressandi steypa og ekki veitir af

Ómar Ingi, 29.10.2008 kl. 17:07

7 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

Dýrt kveðið.....

miðað við mannfjölda

Ævar Rafn Kjartansson, 29.10.2008 kl. 22:27

8 Smámynd: Sævar Einarsson

Ef miðað er við mannfjölda ... góð pæling

Finnland er með 77 sendiráð og samkvæmt íbúafjölda þar þá eru þeir 5,322,588 og það þýðir að það er eitt sendiráð á hverja 69.124 einstaklinga.


USA er með 166 sendiráð og samkvæmt íbúafjölda þar þá eru þeir 305,429,000 og það þýðir að það er eitt sendiráð á hverja 1.839.933 einstaklinga í USA.


Danmörk er með 80 sendiráð og samkvæmt íbúafjölda þar þá eru þeir 5,475,791 og það þýðir að það er eitt sendiráð á hverja 68.447 einstaklinga.


Bretland er með 146 sendiráð og samkvæmt íbúafjölda þar þá eru þeir 60,975,000 og það þýðir að það er eitt sendiráð á hverja 417.636 einstaklinga.


Ísland er með 17 sendiráð og samkvæmt íbúafjölda okkar þá erum við 313,376 og það þýðir að það er eitt sendiráð á hverja 18.433 einstaklinga.

Mér detta orð forsetafrúarinnar strax í hug "Ísland, stórasta land í heimi"

Sævar Einarsson, 29.10.2008 kl. 23:39

9 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

penis  Þið eruð ágætir, fermingarbræðurnir. Svona miðað við höfðatölu.  Þríeygur, einmannaður Þursaflokkur. Endingarbetri en Egill, sprækari en Spilverkið. Ljúfari en Láki jarðálfur og hrekkjóttari en Charie Brown.

Jesus PancakesPS. Það væri nú gustuk af þér að gefa kreppuþegum uppskriftina að þessum never-ending pönnsum þínum.  Það má örugglega lifa á þeim þar til hægt verður að taka upp kartöflur.  

miss you miss you

PPS. bladeagle -Hefur nokkur séð Sjálfstæðisflokkinn nýlega..?

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 31.10.2008 kl. 03:17

10 Smámynd: Heimir Tómasson

Takk fyrir  þetta Sver-rir

Heimir Tómasson, 31.10.2008 kl. 10:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband