Hussein forseti Bandaríkjanna

barack_hussein_obama_719589.jpgRétt í þessu var Barack Hussein Obama kjörinn forseti Bandaríkjanna, sem er mjög gott mál. Eftir 8 ára langa bið fáum við nú loksins heilbrigðan viti borinn kolsvartan mann í Hvíta Húsið. Ég átti satt að segja ekki von á því að Kanar höfnuðu John CoCaine sáluga og hinni stríðsglöðu þræltrúuðu Söru Palin því sú blaðra er Bush með pjöllu, og Kanar elska allt kristilegt ofbeldi, en kannski hafa þeir fengið nóg af slíku í bili. Kannski er sigur Barokks að einhverju leiti Palin og allri hennar kristilegu morðfýsn og dellu að þakka. Veit það ekki. Svo datt amma hans dauð niður stundvíslega rétt fyrir kjördag, sem var náttúrulega alveg grá upplagt og mikil guðs mildi uppá samúðaratkvæðin að gera.

 

Þótt Bandaríkjamenn séu all íhaldssamir þá geta þeir greinilega verið líbó og eru kannski eitthvað að þroskast og hafa í raun með þessu vali sínu sannað að ennþá er eitthvað til sem heitir ameríski draumurinn. Við eigum bara íslensku martröðina. Ég efast um að svartur „útlendingur" gæti verið kosinn forseti í nokkru öðru lýðræðisríki. Gæti Halim Al, óskabarn þjóðarinnar, einhverntíma orðið forseti á Íslandi, eða er það bara óskhyggja? Myndi blökkumaðurinn Mike Tyson eiga smugu á íslenska borgarstjórastólnum? Nebb. Hann fengi í mesta lagi rafmagnsstólinn eða þingsæti hjá Framsóknarflokknum, sem er kannski eitt og hið sama.

 

barokk_osama.jpgNú er bara að vona að Barokk Osama verði ekki skotinn með basúku milli augnanna af rasistum sem bera enga virðingu fyrir niggurum. Maður á að bera virðingu fyrir kafarabúningum og ég held þetta sé vandaður og góður gæi en hann á mikið verk fyrir höndum; að þrífa upp allan skítinn eftir George White trash Bush. Barokk situr í rauninni í djúpum skít og að því leiti verður hann for-seti í tvennum skilningi næstu fjögur árin ef allar byssukúlurnar og örvarnar missa marks.

 

 

 

------------------------------------------------------------------------------

 

jon_magnusson_719596.jpgGestur í þætti mínum „Miðjan" á Útvarpi Sögu klukkan 16:00 - 18:00 í dag verður einn besti þingmaður okkar, Jón Magnússon í Frjálslynda flokknum. Hann er einn af örfáum á Alþingi sem t.d. varaði mikið við drullupyttinum sem við erum núna á bólakafi oní, án þess að hann hafi slysast á það með því að vera sjálfkrafa á móti öllum sköpuðum og ósköpuðum hlutum.

Við munum spjalla um forsetakosningarnar í Brandararíkjunum, séríslenskan heiðarleika, afskriftir, grafskriftir, nýja fjölmiðlafyrirtækið Rauðkál, og hvort það væri ekki sniðugt að afhenda Jóni Ásgeiri líka RÚV og selja honum svo Samkeppnisstofnun og Fjármálaeftirlitið fyrir slikk. Svo munum við að sjálfsögðu ræða um það hvernig í ósköpunum standi á því að hér þrífist engin spilling.

 

Fyrri þætti má nálgast á:  www.stormsker.net

 


mbl.is Obama kjörinn forseti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jack Daniel's

Merkilegur fjandi að svertingi skuli hafa verið kosinn fram yfir Bush með pjöllu.
Mætti halda að kaninn væri farinn að hugsa sjálfstætt.

Jack Daniel's, 5.11.2008 kl. 15:23

2 Smámynd: Guðrún Magnea Helgadóttir

Verst ad netid herna lokar kl.12 a midnaetti og eg missi sidari hlutann af vidtali tinu vid Jon Magnusson. Er stodd i Thailandi!

Annars held eg ad stjornarandsstadan se ekkert heidarlegri en teir sem halda uanum tjodarbolid og hafa stadid ad hruninu mikla....

Sami rassinn er a ollu andskotans Altingislidinu og hana nu...

Guðrún Magnea Helgadóttir, 5.11.2008 kl. 16:03

3 Smámynd: Villi Asgeirsson

Hún var blessunarlega stutt, færslan í dag. Bráðfyndin þó, svo það er ekki allt ónýtt.

En mikið er ég feginn að klósettkafarinn hafi komist inn. Ég hef það á tilfinningunni að frönsk kartafla ætti lítinn séns í kúkinn sem moka þarf út þar vestra.

Villi Asgeirsson, 5.11.2008 kl. 16:16

4 Smámynd: persóna

Er að bíða eftir Jóni!

persóna, 5.11.2008 kl. 16:49

5 Smámynd: Ómar Ingi

Snilld tær snilld

Ómar Ingi, 5.11.2008 kl. 19:22

6 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Obama B og Osama B - En trúi og treysti Obama með þetta viðkunnanlega millinafn.

Haraldur Bjarnason, 5.11.2008 kl. 20:46

7 Smámynd: Johann Trast Palmason

Nú er þú gjarnan Kallaður Sverrir Obama Stormsker.

Johann Trast Palmason, 5.11.2008 kl. 21:13

8 Smámynd: Dóra

Ég er sko sátt við nýtt val í USA ..

eigðu góðan dag.. kveðja frá Dk Dóra

Dóra, 6.11.2008 kl. 08:04

9 Smámynd: Kristleifur Guðmundsson

Já þetta er skrýtin heimur litli svarti Sambó búinn að meika það í plastheilaheimum.

við eigum nú heimsmet í kúksökvun ef miðað er við höfðatölu. en það kemur ekki í hlut stjórnmálamanna hér að moka kúknum aftur á sinn stað, nei nei það litli maðurinn í þjóðfélaginu sem sér um þann mokstur, þotulið íslands mokar bara peningum. 

já það er ekkert grín að vera svartur dvergur á íslandi í dag.

Kristleifur Guðmundsson, 6.11.2008 kl. 19:49

10 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Maður getur ekki annað en hrist haus yfir þessu....

Fyrst fara morðóðir kanar um Írak til að ná einum Hussein til að slátra, svo kjósa þeir Hussein yfir sig!!!

Hann virðist þó vera skárri heldur en Pælin kristna byssuóða og hann Ma-in eitthvað.

Flottur pistill

Kv: Kaldi

Ólafur Björn Ólafsson, 8.11.2008 kl. 00:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband