Þorvaldur Gylfason kosinn maður ársins á Útvarpi Sögu

animal_farm.jpgUndanfarin ár hafa Íslendingar verið álíka glámskyggnir og mennirnir sem þeir hafa valið sem Mann Ársins á útvarpsstöðvunum. Þeir kusu Ólaf Ragnar mann ársins á Sögu fyrir 5 árum fyrir að neita að staðfesta fjölmiðlafrumvarpið. Það fannst kjósendum bráðnauðsynlegt og stórkostlegt afrek sem bæri að verðlauna alveg sérstaklega.

 

Svo kusu þeir gamla góða Villa fyrir að hafa náð að verða borgarstjóri. Það þarf náttúrulega alveg sérstaka hæfileika til að komast í það djobb, og eitt gott hnífasett. Aðeins um 10 manns gegna þessu djobbi árlega svo það hlýtur að þurfa mikinn garp til að ná að troða sér í þennan heita stól.

 

Í fyrra var svo Jóhannes í Bónus valinn maður ársins á Sögu fyrir vel heppnaða útrás og ólýsanlega viðskiptasnilld. Þetta var víst maðurinn sem kjósendur sammæltust um að hefði gert mest fyrir heimilin í landinu. Grínlaust.   

 

Þorvaldur GylfasonNú bregður hinsvegar svo við að það er kosinn heiðarlegur maður, - maður sem á þetta skilið, hagfræðingurinn góði Þorvaldur Gylfason. Þar fer gáfaður, víðsýnn og framsýnn maður sem er vel að þessu kominn, - þótt fyrr hefði verið. Á þennan mann hafa Íslendingar ekki nennt að hlusta undanfarin ár en eru núna fyrst farnir að opna eyrun þegar allt er hrunið. Væri óskandi að fá hann sem forsætis - eða fjármálaráðherra í næstu stjórn. Utanþingsstjórn vel að merkja.

 

Á ríkisdiskótekinu Rás 2 var Hörður Torfason valinn maður ársins fyrir að handvelja menn sem mega tala á Austurvelli. Fast á hæla honum kom afreksfólk einsog Jón Ásgeir forstjóri Baugs, Jóhannes í Bónus stjórnarmaður Baugs, Imba Solla talsmaður Baugs og Ólafur F. fyrrverandi borgarstjóri fyrir að hafa staðið vörð um flugvöllinn sem sker í sundur Reykjavík og fyrir að hafa eytt milljarði af peningum borgarbúa í tvo samantjaslaða vinnuskúra við Laugaveg. Þetta er fólkið sem hlustendum Rásar 2 finnst hafa skarað frammúr á nýliðnu ári. Það er nefnilega það.

Kannski hafa Íslendingar ekki lært svo mikið þrátt fyrir allt. Veit það ekki.

Ég óska allavega Þorvaldi Gylfasyni til hamingju með vel unnin störf undanfarna áratugi og megi vegur hans verða sem mestur. 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heidi Strand

Það er ánægjulegt að hlustendur á Sögu eru búin að læra af reynslunni. Ég reyndi að kjósa en það tókst ekki.

Heidi Strand, 1.1.2009 kl. 18:55

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Miðað við þessa upptalningu eru hlustendur þessara stöðva ekki ýkja miklir spámenn. Í ljósi þess tæki ég með fyrirvara þessu vali á Þorvaldi. Góðvinur hans (að eigin sögn) fékk Nóbelsverðlaunin í ár fyrir hagfræði og sá byrjaði á því að óska Íslendingum til hamingju með að hafa jafn frábæra seðlabankastjórn og raun ber vitni. Hugmyndir nóbelhafans stangast fullkomlega á við hugmyndir Þorvaldar þegar kemur að lausn vandans. 

Þær stangast jafnframt á við hugmyndir ríkisstjórnarinnar.  

Ragnhildur Kolka, 1.1.2009 kl. 19:59

3 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

amen

Brjánn Guðjónsson, 1.1.2009 kl. 20:35

4 Smámynd: Björn Birgisson

Hvað er útvarp SAGA? Hlustar einhver á það útvarp? Hvaða víkingar eiga SÖGU?

Björn Birgisson, 1.1.2009 kl. 21:43

5 Smámynd: Ómar Ingi

Takk

Ómar Ingi, 1.1.2009 kl. 21:52

6 Smámynd: Þorsteinn Sverrisson

Þorvaldur er glöggur maður og vel að þessu kominn.  Það er reyndar miklu léttara að vera spekingur í Háskólanum en að þurfa að fást við vandamálin "hands-on". Það væri gaman að geta spóla til baka og athuga hvernig allt hefði þróast ef Þorvarður hefði verið Seðlabankastjóri eða forstjóri Fjármálaeftirlitsins!!  Kannski hefðum við ekki lent í þessu bankahruni?

Annars dáist ég að litlum fjölmiðlum eins og Útvarpi Sögu og ÍNN Ingva Hrafns. Spyr mig hvers vegna við erum að ausa mörgum milljörðum í RÚV þegar fólk með tvær hendur tómar getur þó gert svona mikið.

Þorsteinn Sverrisson, 1.1.2009 kl. 23:37

7 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Ég kaus Davíð Oddsson sem mann ársins á Sögu, en  hann naut víst ekki hylli útvarpsstjórans sem stundum er undir áhrifum í vinnunni. Hún valdi Þorvald Gylfason sem er líka ágætur.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 1.1.2009 kl. 23:41

8 identicon

Heimir láttu ekki svona maður. Það heitir kosning af því að fullt af fólki kýs ekki satt? Svo er ég alls ekki sammála Þorsteini að það sé auðveldara að vera "spekingur í háskólanum en að fást við vandamálin "hands-on". Þetta er gömul tugga.

Að vera aðkeyptur tæknimaður einhvers viðskiptaveldis er aftur á móti eitthvað sem margir hafa engan áhuga á. Annars er Pétur Blöndal góður tæknimaður stjórnarinnar og tókst að framkvæma óskir manna um að klessukeyra endanlega Íslenskan efnahag. Þetta var allt mjög "hands-on".

sandkassi (IP-tala skráð) 2.1.2009 kl. 01:14

9 Smámynd: Sverrir Stormsker

Verst að Þorvaldur skuli ekki hafa neinn áhuga á að hella sér útí pólitík, eftir því sem hann segir sjálfur. Slæmt að hafa svona kláran gæa lokaðan inní kústaskáp uppí Melakleppi. Alltof mikið af frauðfroskum í pólitíkinni. En kannski nær Jón Baldvin eða einhver slíkur góður tappatogari að kippa honum útúr kompunni og vippa honum í aksjónina. Þá kannski fylgja aðrir klárir einstaklingar í kjölfarið. Aldrei að vita. Það gengur allavega ekki að hafa óbreytt kosningafyrirkomulag, óbreytt kjördæmakerfi, handónýtt harðlæst staðnað flokkakerfi og alla þessa seinheppnu vönkuðu klúsóa við kjötkatlana. Ég tek undir með Stormsker:

Opnaðu augun

íslenska þjóð.

Út með eitrið

og inn með nýtt blóð.

Sverrir Stormsker, 2.1.2009 kl. 08:18

10 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Gunnar, á Sögu heitir það val en ekki kosning og tillögur hlustenda eru hafðar til hliðsjónar.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 2.1.2009 kl. 10:55

11 Smámynd: Sverrir Stormsker

Þetta kemur mér á óvart Heimir. Hef ekki spurt Arnþrúði að þessu. Hélt að hlustendur réðu þessu algerlega. Þeir ættu allavega að gera það úr því það er verið að biðja þá um að hringja inn og kjósa.

Sverrir Stormsker, 2.1.2009 kl. 11:05

12 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Þorvaldur var vel að þessum titli kominn, en ég verð nú að viðurkenna að mér fannst Björk okkar Guðmunds hefði mátt ná lengra með sinni innkomu á s.l. ári.

Þú ert nú býsna góður líka Sverrir, allavega kysi ég þig kjafthák ársins og sérstaklega fyrir að fæla Guðna úr settinu hjá þér.

Megir þú njóta árs og friðar.

ÁFRAM ÍSLAND!

Ingibjörg Friðriksdóttir, 2.1.2009 kl. 17:06

13 identicon

Ég veit ekki hvernig þetta fer fram og það skiptir mig engu stórkostlegu máli. Annars má líka Árni Holli fá tilnefningu.

Saga er bara sjálfstæð stöð sem leyfir flestum skoðunum að koma fram. Mér finnst það mjög virðingarvert. Ég held ekki að einhver geri út á það að hljóta útnefninguna "maður ársins". Það væri í meira lagi undarlegt hugarfar.

Annars sé ég ekki að verið sé að gagnrýna útnefningu annarra aðila. Hvað með þetta "Rannveig Rist" dæmi. Ég bið ykkur að afsaka en ég sé ekki tilgang með hennar útnefningu.

Hvað er þessi áliðnaður? Hann er helsta ástæða þess að ekki hefur verið skipt um gjaldmiðil hér og heldur Íslendingum niðri í launum sem þeir fá greidd í krónu. Skítt með þessa umhverfisvernd hennar Bjarkar, hér er búið að breyta landinu í Sweat Shop fyrir erlenda viðskiptajöfra. Íslendingar eru þrælar.

sandkassi (IP-tala skráð) 2.1.2009 kl. 17:32

14 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Mér finnst að Jóhannes kenndur í Bónus eigi að fá tilnenfinguna árlega frá Arnþrúði kenndri við Sögu.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 2.1.2009 kl. 18:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband