Aðgerðir skila árangri, ekki skiltagerðir

geisp.jpgÞað er sárt að segja það en ég get lofað ykkur því kæru krepplingar og hef það frá fyrstu hendi að stjórnmálamenn taka akkúrat Ekkert mark á fundahöldum einsog þeim sem úlpurnar eru að halda niðrá Austurvelli. Þeim gæti ekki verið meira sama. Pulsujapl og geisp og dösuð ræðuhöld hrófla ekki við sálarró þeirra. Friðsamleg skiltamótmæli í þessum dúr bíta ekki á þá frekar en rök á fávita.

 

Ef fólk heldur að Gandhi og Martin Luther King og þeirra gengi hafi iðkað svona svefndrukkin mótmæli þá er það regin misskilningur. Það var borgaraleg óhlýðni sem skilaði árangri.

 

geieieisp_768452.pnghippo-yawn.jpgStjórnmálamenn voru ekki sáttir við að Kryddsíldinni þeirra skyldi hafa verið sturtað niður en þeir eru hinsvegar afar sáttir við sakleysisleg ræðuhöld og hangs niðrá Austurvelli. Við eigum ekki að láta þessa slímsetustjórnmálamenn og spillingarforkólfa í bönkum og skítafyrirtækjum vera sátta. Við erum ekki sátt við þá og á meðan þeir sýna engan vilja til úrbóta skulu þeir ekki vera sáttir við okkur. Við eigum að fara verulega í taugarnar á þeim. Við eigum að flæma þá út úr grenjum sínum með óhlýðni og taumlausum leiðindum.

Eitt er víst: Aðgerðir skila árangri, ekki skiltagerðir.

 

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

 

Bendi hér á gott erindi sem Eva Hauksdóttir flutti á Opnum borgarafundi í Iðnó í fyrradag.

Viðtal mitt við Evu Hauks og Sturlu Jónsson verður endurflutt á Útvarpi Sögu FM 99,4 á "besta tíma" í kvöld klukkan 20:00 til 22:00.


mbl.is Fjórtándi fundurinn á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlédís

Gott er að "Við tal mitt.." heppnðist, - eða eitthvað..   Auðvitað er Eva Hauksdóttir frábær í baráttuinni.   Fullyrðingar og túlkun á stórum geyspum valdhafa segja mér lítið.  Það er hægt að gera sér upp kæruleysi - alveg eins og hægt er að ljúga og svíkja á annan hátt. "Þetta" eru ekki atvinnu-flokka-pólitíkusar fyrir ekkert.

Hlédís, 10.1.2009 kl. 21:44

2 Smámynd: Sverrir Stormsker

Ekki fræðilegur möguleiki að skilja fyrstu setninguna hjá þér.

Stjórnmálamenn þurfa ekki að gera sér ekki upp kæruleysi og geispa gagnvart mótmælunum á Austurvelli.  Nákvæmlega svona vilja þeir hafa mótmæli því þau trufla engan og hafa akkúrat Ekkert að segja. Sumir þeirra hafa grínast með þessi Austurvallarmótmæli í mín eyru og ég skil það vel.

Sverrir Stormsker, 10.1.2009 kl. 22:05

3 Smámynd: Hlédís

 "Að gera grín " er alþekkt í tilraunum til að gera lítið úr öðrum.  Orð þitt "Pulsujapl" og fleiri ummæli um fundarmenn á Austurvelli  og áhersla þín á "Viðtal mitt.." segja mér nóg til að hætta hér - með geispa.

Vertu blessaður. 

Hlédís, 10.1.2009 kl. 22:33

4 Smámynd: Hrannar Baldursson

Ég er ekki frá því að þarna takist þér enn og aftur að hitta naglann á höfuðið. Friðsamleg mótmæli þurfa að vera óþægileg fyrir þann sem reynt er að tala við. Það reyndist erfitt að finna fréttina um síðustu mótmæli á mbl.is sem er deilt er um hvort að hafi verið fámenn eða fjölmenn. Spurning um að hlekkja lambaskrokk við jeppa einhverra snillinganna sem þarf að ná sambandi við?

Hrannar Baldursson, 10.1.2009 kl. 23:20

5 Smámynd: Sverrir Stormsker

Afsakaðu orðalagið Hléguðmundur. Þetta átti að vera: "Viðtalið sem Eva Hauks tók við mig á Sögu..." o..s.fr. Þú verður greinilega að gefa mér sopa af þessu sem þú ert að drekka svo ég skilji hvað þú ert að fara. 

Já Hrannar, þetta alþingislið er ekki að hlusta en það er aldrei að vita nema að lambaskrokkur á grillið muni svínvirka, nú eða að troða banana í púströrið, semsé á bílunum þeirra, ekki á þeim sjálfum. Fólk hefur samt varla efni á að vera að eyða miklum matvælum í þessa froska.

En svona í alvöru: Það er fúlt að hefðbundin Austurvallarmótmæli skuli ekki virka á stjórnmálamenn þannig að þeir opni eyrun og augun og hugann, en þannig er það engu að síður. Þá þarf greinilega aðrar og kröftugri aðferðir. 

Sverrir Stormsker, 11.1.2009 kl. 00:55

6 Smámynd: Sigurður Hrellir

Það dylst fáum að þessi huggulegu laugardagsmótmæli hafa ekki minnstu áhrif á viðvaningana í fílabeinsturninum. Nú þurfa þeir sem ekki ætla að eyða næstu árum í að lepja dauðann úr skel að fara að trufla þetta "slímsetupakk" og gera þeim lífið leitt. Ég sting t.d. upp á því að menn gangi í Framsóknarflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn til að fá aðgang á landsfundina í þessum mánuði og hleypa þessum heimskulegu og sjálfsupphöfnu fávitasamkomum upp.

Sigurður Hrellir, 11.1.2009 kl. 01:44

7 Smámynd: Sverrir Stormsker

Hrellir, Þú berð nafn með rentu. Held það verði nú einhverjar sviptar á hlandsfundum þessarra flokka en það væri jú gráupplagt að krydda aðeins þessa húðarjálkasteik þeirra með sterkum chilli.

Ágúst, Káinn gerði góða vísu og hún á mjög vel við í dag:

Ef að kraftur orðsins þver

á andan huldu brautum

þá gefa á kjaftinn verðum vér

vorum skuldunautum.

Sverrir Stormsker, 11.1.2009 kl. 05:33

8 Smámynd: Sverrir Stormsker

Það misfórst þarna eitt orð Hrellir. Ég endurtek:

Ég held það verði nú einhverjar sviptingar á hlandsfundum þessarra flokka en það væri jú gráupplagt að krydda aðeins þessa húðarjálkasteik þeirra með sterkum chilli.

Sverrir Stormsker, 11.1.2009 kl. 05:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband