Þann dag er Klakinn dó

 

Flestir sem komnir eru til vits og ára, eða skulum við segja ára, hafa heyrt lagið The night Chicago died með hljómsveitinni Paper Lace. Það fjallaði um þann skemmtilega tíma þegar öðlingurinn Al Capone réði ríkjum í Chicago á bannárunum. Við erum að  upplifa ekki ósvipaða gósentíma á Islandi í dag nema hvað fólkið er ekki plaffað niður með vélbyssum heldur með fláttskap og vélum.

Eg tók mig til núna um miðjan janúarber og gerði nýjan texta við þetta ágæta lag og tók það upp. Lagið heitir Þann dag er Klakinn dó. Eg og Richard Scobie syngjum. (Síðast sungum við félagarnir saman lag mitt Allsstaðar er fólk fyrir sléttum 20 árum síðan). Þetta lag, sem kemur út á sólóplötu minni í haust, má finna í tónlistarspilaranum hér til vinstri á síðunni.

 

 

island_806702.pngÞann dag er Klakinn dó


Dabbi hann var boss

hér á ísköldum klaka

í þá gömlu vondu daga.

Það er mikil sorgarsaga.

 

Það var kolsvartur september,

það var sárt fyrir frónska menn

þegar ískaldur Klakinn dó.

Það er talað um það enn.

 

Þá voru bjórúlfar í móð

við að ræna þessa þjóð

og þeir komu´upp bankaher

til að kyrkja þetta sker.

 

Ég heyrð´er mamma hló,

hún hló og grét þann dag er Klakinn dó.

Boring þessi djöfuls dagur var.

Borinn fyrir borð hvers hagur var.

Það er satt.

 

Ég heyrð´er mamma hló,

hún hló og grét þann dag er Klakinn dó.

Sérhver maður gekk af göflunum

vildi stúta fjármagnsöflunum.

Það er satt.

 

mechanical-paper-shredder_806738.jpgOg þeir fóru að tæta gögn,

koma ránsfengnum á þurrt.

Þegar lögreglan loksins kom

þá var allt á bak og burt.

 

Hér voru bankaflón í móð

við að ræna þessa þjóð,

já þeir sló´ana í rot

og þeir settu hana í þrot.

 

Ég heyrð´er mamma hló,

hún hló og grét þann dag er Klakinn dó.

Þvílík hörmung þessi dagur var.

Borinn fyrir borð hvers hagur var.

Það er satt.

 

broke.jpgÉg heyrð´er mamma hló,

hún hló og grét þann dag er Klakinn dó.

Sérhver maður reyndist ráðþrota,

rúinn inn að skinni, gjaldþrota.

Þjóðin sprakk.

 

Og það sagði enginn orð

er þeir frömdu þjóðarmorð.

 

Allir misstu húsin sín,

fóru að lifa einsog svín,

allir misstu sitt í hýt,

allir fóru að éta skít.

 

kreppa_806742.jpgÞann dag er Klakinn dó.

Þann dag er Klakinn dó.

Bróðir þvílík eymd og þvílíkt basl,

Bróðir þvílíkt mess og þvílíkt drasl.

Það er satt.

 

Þann dag er Klakinn dó.

Þann dag er Klakinn dó.

Margir flúðu land, þeir æddu út.

Þjóðinni já henni blæddi út.

Það er satt.

 

Þann dag er Klakinn dó.

Þann dag er Klakinn dó.

Allt er týnt og gefið tröllunum.

Ráðamenn þeir kom´af fjöllunum.

Það er satt.

 

Þann dag er Klakinn dó.

Þann dag er Klakinn dó.

Þjóðin þurfti´að hlust´á rugl og bull.

Ráðamenn þeir lugu okkur full.

Það er satt.

 

 

Stormsker >  Söngur, bakraddir og öll hljóðfæri.

Scobie > Söngur og bakraddir.

Snorri Snorrason idolstjarna > Upptakari.

Snorri og Stormsker > Mixarar.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakob Þór Haraldsson

Tær snild eins og ávalt - textinn beint í mark og vissulega má syngja um þann dag þegar KLAKKINN dó...

Jakob Þór Haraldsson, 6.3.2009 kl. 21:00

2 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Heyrð´etta á Sögunni í dag. Súpa! motivate-thumbsupsmiley.gif Thumbs Up image by elmisuechtiger

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 7.3.2009 kl. 00:33

3 Smámynd: Sjóveikur

Grimmt Sverrir, rent ut sagt GRIMMT GOTT

skoðaðu þessa www.icelandicfury.com og segðu hvort það sé eitthvað vert :) skðaðu vel og lestu vel, myndbandið La,la,la,la Ísaland er vissu lega demó lag, en ég held að þú glottir við tönn eða tvær,

Besta kveðja från Sverige

sjoveikur, alltaf

Sjóveikur, 7.3.2009 kl. 08:27

4 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Ég hef ávallt gaman af að lesa bloggin þín,Sverrir, þú ert svo akkolli orgínal.

Með góðri kveðju, KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 7.3.2009 kl. 13:19

5 Smámynd: Sveinbjörn Eysteinsson

Sannur stormsker eins og alltaf, kveðja

Sveinbjörn Eysteinsson, 8.3.2009 kl. 17:34

6 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Kjartan Pálmarsson, 10.3.2009 kl. 17:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband