Nú ríður á að banna allt "klám"

raddir_vg.jpg"Raddir fólksins" eru þagnaðar því nú hefur takmarkinu verið náð og vandamálin leyst: Vinstri græningjar eru komnir til valda og Dabbi farinn úr Seðlabankanum. Allt semsé komið í glimrandi gott stand. Verður ekki betra. Ég sagði í grein fyrir einhverjum mánuðum að það fyrsta sem Vinstri græningjar myndu gera þegar þeir kæmust til valda væri að einbeita sér að því sem mestu máli skipti til bjargar landinu og það væri náttúrulega að loka þessum örfáu stórhættulegu súlustöðum og banna allt "klám." Sem betur fer er það orðið að veruleika.

 

mouse.jpgÞað er alveg hryllilegt til þess að hugsa að fullorðnir sjálfráða karlar skulu leyfa sér að horfa á hálfberar fullorðnar sjálfráða stelpur og skulu meiraðsegja geta haft gaman af því. Þvílíkir djöfulsins drullusokkar. Þvílíkt óeðli. Þvílíkt helvítis fokking fokk! Auðvitað á að banna þessa viðbjóðslegu staði. Með því að banna þessa staði þá hverfur allt vændi einsog dögg fyrir sólu einn tveir og bingó og Klakinn rís úr sæ og allir geta tekið gleði sína á ný. Þarna þrífst alveg hreint gríðarlegt mansal og þrælahald í stórum stíl. Stelpurnar eru hlekkjaðar á höndum og fótum og barðar áfram með hnútasvipum og gaddakylfum og sendar í galeiðum milli landa. Þær koma frá þriðja heims löndum einsog Eystrasaltslöndunum og hugsanagangur.jpgBretlandi sem eru alræmd skítabæli einsog allir vita. Á súlustað einsog Goldfinger geta þær haft hátt í milljón á mánuði sem er náttúrulega alveg skelfileg tilhugsun. Mér persónulega myndi líða miklu betur vitandi af þeim á kassa í Bónus eða skeinandi gamalmennum á Grund fyrir 90 kall á mánuði. Svoleiðis draumadjobb myndu þær þiggja fegins hendi ef þær væru ekki í ánauð, marghlekkjaðar á höndum og fótum. Það á að stinga þrælahaldara og yfirdjöfli einsog Geira á Goldfinger beint í svartholið uppá vatn og bónusbrauð og pína hann til að lesa Kommúnistaávarpið og hlusta á allar þingræður Vinstri græningja kvölds og morgna, dag og nótt, árið um kring, ævina á enda

 

Ég þarf ekki að taka það fram að það ber að sjálfsögðu að banna klámmyndir einsog þær sem ég birti hér að ofan. Efsta myndin er náttúrulega sínu verst. Þeir sem góna of mikið á hana gætu leiðst út í drullupumpubisness.

 

 

no_porno.jpgVinstri grænir, sem af einhverjum mjög góðum og gildum ástæðum eru með kynlíf á heilanum, vilja einnig láta leiða í lög að sá sem kaupir þjónustu af hóru fari beinustu leið í grjótið, en ekki hóran. Að bjóða vændi á semsagt að vera löglegt en að þiggja þjónustuna og borga fyrir hana einsog sannur séntilmaður er vitaskuld glæpur. Allir hljóta að sjá að þetta er náttúrulega alveg ofboðslega skynsamlegt einsog allt sem frá Svíum og Vinstri grænum kemur. Skrítið að einhverjum hugsuði einsog Valda koppasala skyldi ekki hafa dottið þetta í hug. "Raddir fólksins" hafa greinilega hvorki náð hans eyrum né mínum nógu vel. Glæsileg, kynþokkafull kona sem vill nota guðsgjafir sínar í ábataskyni er ALLTAF í ánauð einhvers ógeðslegs hórmangara. Segir sig sjálft. Það á að banna allt atvinnufrelsi. Það er frá djöflinum komið einsog allt annað frelsi.

 

Þú átt semsagt þinn líkama og mátt bjóða hann hverjum sem er til afnota en þú mátt hinsvegar allsekki þiggja eina krónu fyrir gamanið. Sá sem er kurteis og gefur þér 1000 kall í þakklætisskyni fer beint í dýflissu þar sem hann verður hlekkjaður á höndum og fótum einsog súludansmey. Örugglega auðvelt að rannsaka svona mál. Vinstri græningjar hljóta þá um leið að vilja leiða það í lög að dópsalinn sé saklaus sem lamb en kaupandinn sekur. Það gefur auga leið. Það verður að vera samræmi í hlutunum. Eitt skal yfir alla ganga

Boð og bönn hafa alltaf reynst heilladrýgst lausn hvers vandamáls, hvort sem um er að ræða vændi, súlustaði, áfengi eða annað. Með því að banna hlutina þá hverfa vandamálin. Maður skrifar undir lög og vandamálið er úr sögunni. Gott dæmi um það er áfengisbannið í Bandaríkjunum. Það hættu bókstaflega allir að drekka med det samme. Mafían brosti að vísu eitthvað en þetta svínvirkaði. Þorstinn hvarf einsog sparifé Breta í Icesave. Framsóknarflokkurinn gerði gott betur og setti í stefnuskrá sína fyrir um 10 árum síðan: "Vímuefnalaust Ísland árið 2000." Síðan þá hefur ekki nokkur kjaftur sést reykja svo mikið sem njóla og hvað þá gras á götum bæjarins. Sama gildir um vændið. Það er nefnilega kolrangt sem einhver orti hér um árið: "Þótt náttúran sé lamin með lurk / þá leitar hún út um síðir."

 

 

no_porno_816029.jpgMér sýnist að eina leiðin til að koma útrásarkrimmunum á bak við lás og slá sé að reyna að fá þá til að tíma að borga einhverri kellingu fyrir tottið. Annars borgar sig nú ekki að vera að pæla í smotteríi einsog hruni landsins. Það sem ríður á þarf að gera, nú þegar landið er að fara til helvítis, er að banna alla nekt og allt helvítis klám. Það er forgangsatriði og sem betur fer gerir ríkisstjórnin sér grein fyrir því og er að vinna í því baki brotnu einsog hóra á bakinu. Engir tveir einstaklingar skulu fá að fara í sturtu saman, hvorki í sundlaugunum né heima hjá sér. Sjáist berbrjósta kellingardrusla liggja í sólbaði skal hún umsvifalaust skotin á staðnum, beint á milli augnanna, nú eða brjóstanna, og sömuleiðis þeir perrar sem eru að góna á hana. Sérstaklega þeir. Beint á milli brjóstanna. Setjum heimsmet í forsjárhyggju og leiðindum rétt einsog glæpamennsku og spillingu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég vil ganga skrefi lengra: Banna hvers konar skrif og umræðu um klám! Harðbanna orðið klám í íslensku máli!

Sigurður Þór Guðjónsson, 21.3.2009 kl. 14:12

2 Smámynd: Haraldur Baldursson

Sverrir, það er annað mál þessu tengt, sem hefur viðgengist hér á landi óátalið áratugum saman. Það að menn bjóði álitlegum stúlkum í glas. Þetta verður ekki skilið frá þessum lögum, enda hrein og klár fyrirframgreiðsla á væntan greiða. Hvort það leiðir til nánari kynna en kurteislegst takk fyrir og bless skiptir engu máli. Þetta er klár tilraun til vændiskaupa.

Haraldur Baldursson, 21.3.2009 kl. 14:12

3 Smámynd: Ómar Ingi

Já Sverrir Fólk er Fífl.

Ómar Ingi, 21.3.2009 kl. 15:05

4 Smámynd: doddý

ég bíð eftir að vg fari að tala um litinn á stofnanafötum ungbarna. hvaða réttlæti er það að nýfæddar stúlkur séu látnar vera í bleiku og strákar látnir vera í ljósbláu? kv d

doddý, 21.3.2009 kl. 19:23

5 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Ef öllum konum væri skylt að ganga í búrkum og bannað væri að mynda konur nema í búrkum myndi stórlega draga úr mannsali.

Ef það varðaði allt að 16 ára fangelsi að horfa á klám á netinu myndi stórlega draga úr mannsali.

Það er margt sem getur stuðlað að mannsali:Ferðafrelsi, flugvélar, internetið, myndavélar, Goldfinger og fleira.

Það er vertíð framundan fyrir stjórnsama. 

Benedikt Halldórsson, 21.3.2009 kl. 19:46

6 Smámynd: Haraldur Baldursson

Það er til lausn ! Kynjaskipta knæpum og ölduhúsum. Aðskilja kynin með öllu háð póstnúmerum. Sléttu tölurnar fyrir karla og oddatölurnar fyrir konur. Loka síðan fyrir heita vatnið til karlanna, svo kyndeyfðin víki fyrir kuldahrolli. Banna jafnvel áfengi ef þetta skilar sér ekki. Það þarf að horfa til lausna...

Haraldur Baldursson, 21.3.2009 kl. 21:08

7 Smámynd: Sverrir Stormsker

Sigurður Þór: Mér finnst alveg makalaust að þú skulir leyfa þér að taka þér orðið "klám" í munn á minni síðu. Þú færð kæru með Morgunblaðinu í fyrramálið, jafnvel þótt þú sért ekki áskrifandi, - að mínum kærum. Með kærum og kveðjum. 

Haraldur: Sammála. Að bjóða stelpu uppá drykk á bar er ekkert annað en fyrirframgreiðsla. Hreinn og tær vibbi. Glæpastarfsemi sem ber að stöðva þegar í stað.

Ómar Ingi: Það má vera að þú hafir rétt fyrir þér að fólk sé fífl en ég myndi nú ekki nota þetta orð yfir femínista, - þ.e.a.s. orðið fólk.

Sverrir Stormsker, 21.3.2009 kl. 23:42

8 Smámynd: Heimir Tómasson

Er þá ekki slagorðið hjá VG fyrir komandi kosningar "Kellingar með fellingar bjóða upp á fleiri stellingar"?

Heimir Tómasson, 21.3.2009 kl. 23:50

9 Smámynd: Sverrir Stormsker

Doddý: Það er búið að taka þetta alvarlega mál fyrir. Meðan útrásarvíkingarnir voru að taka þjóðina í fjósið þá hafði Kolbrún Halldórs að sjálfsögðu mestar áhyggjur af þessu máli og vildi ræða það í þaula.

Benedikt: Einsog allir vita þá er mansal hvergi útbreiddara en á Íslandi. Súlustaðirnir eru ekkert annað en óhreinar og klárar þrælabúðir. Það vita þeir sem aldrei hafa þar stigið fæti innfyrir dyr. Það verður að stemma stigu við þessu stórkostlega vandamáli. Lausn efnahagsvanda heimilanna verður að bíða betri tíma. 

Haraldur sjötti: Ég endurtek: Ef þú vilt leysa vandamál þá einfaldlega bannarðu vandamálið. That´s it og málið dautt. Reynum að læra af femínistum og Vinstri græningjum. Þeir kunna þetta.

Sverrir Stormsker, 22.3.2009 kl. 00:00

10 Smámynd: Sverrir Stormsker

Heimir: Úr því þú ert farinn að ríma svona hressilega þá skal ég birta hér vísu eftir Serði Monster sem opinberaðist á plötu hans Tekið stórt uppí sig. Þetta geri ég vegna fjölda áskoranna hardcore femínista hvaðanæva af á landinu sem virðist ekki geta á heilum sér tekið nema ég láti það gossa:

Í sig hella ástarsafti

ólmar kellingar,

mölva í hvelli meyjarhaftið,

máta stellingar.

Sæðið vellur úr hverjum kjafti.

Kveina pellurnar.

Stórir bellir brunda af krafti

beint í mellurnar.

Með bestu hreðjum. SS

Sverrir Stormsker, 22.3.2009 kl. 00:18

11 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

já,  Halló!! sammála síðasta ræðumanni

Guðmundur Júlíusson, 22.3.2009 kl. 00:35

12 Smámynd: Óskar Arnórsson

Það þarf fleiri Vilsna Græna og feimnarmellur í sttórn. Ráða harðsvíraða múslima til Íslands, setja þá i valdastöður, helst klerkana og

Alkvedaklæmista og svoleiðis fólk svo einhver friður og sæluríki myndast á Íslandi. Flengja alla XD menn opinberlega í fötunum og henda

Íslenska flagginu sem er tákn um viðbjóðslegt lýðræði og frelsi. Nota bara

Samfylkingarráðamenn á flaggstangirnar í staðin. Skammbyssur á að selja í Bykó og eiga að vera niðurgreiddar af Ríkinu fyrir fátækt fólk.

Svo á að setja lög um hversu oft íbúar landsins ríð...oft og setja ströng lög sem ekki gefa upp ríðing.. sínar upp til skatts.

Svo þarf að stofna Hlátursflokkinn, því hlátur bætir heilsuna og spara með því heilbrigðisútgjöld. Og gleyma þessu væli yfir því að barnafjölskyldur séu í fjárhagsvandræðum.

Takk fyrir góðan pistil. Algjörlega smmála hverju einasta orði.

Kv,

Óskar Arnórsson, 22.3.2009 kl. 00:57

13 Smámynd: Sverrir Stormsker

Guðmundur: Þó ég sé ekki oft sammála síðasta ræðumanni þá er ég sammála þér um að vera sammála síðasta ríðimanni, þ.e.a.s. sjálfum mér.

Óskar: Góðar ídeur. Ég segi bara takk. Mér finnst reyndar að það eigi að taka upp orðið þungaskattur í staðinn fyrir meðlag, en það er annað mál. 

Sverrir Stormsker, 22.3.2009 kl. 01:28

14 Smámynd: Einar B  Bragason

Nú er ég fullur , ræfill og róni, reikull í spori drekk ég mitt vín. Haga mér eins og helvítis dóni dragandi ''mellur'' upp í til mín ...
Lifi dýrlega ''Klám byltingin!'' ég sný aftur til 1968. þoli ekki græna höfrunga.

Einar B Bragason , 22.3.2009 kl. 02:14

15 Smámynd: Jónas Jónasson

Þegar ég sé klám þá verð ég órólegur og missi oft stjórn á því sem ég er að gera. Framtíðin er spennandi á Íslandi  lífið verður miklu betra þegar búið er að loka öllu því þá getur maður eitt meiri tíma með fjölskyldunni. Fara td. öll fjölskyldan saman reglulega í ránsferðir í kringum landið og Það er mjög auðvelt, fyrst stelur maður bíl svo bensíni osfr. þetta er frábær leikur sem allir geta tekið þátt í og ef maður er nappaður, nú þá fer maður bara fyrst austur í heimavist og þaðan aftur á byrjunnarreit.

Jónas Jónasson, 22.3.2009 kl. 02:24

16 Smámynd: Sverrir Stormsker

Lárus: Hef engan sérstakan áhuga á múslimablöðrum. Er mest fyrir homo sapiens.

Einar: Ég hef aldrei prófað höfrunga. Endurtek: Er mest fyrir homo sapiens.

Sverrir Stormsker, 22.3.2009 kl. 02:31

17 Smámynd: Sverrir Stormsker

Jónas: Ég fer mjög sjaldan út á land á Los Klakos. Er hvorki spenntur fyrir beljum né bændum. Endurtek: Er mest fyrir homo sapiens.

Sverrir Stormsker, 22.3.2009 kl. 02:36

18 Smámynd: Sverrir Stormsker

Lárus: Hef aldrei séð múslimablöðru undir 200 kílóum svo áhuginn er því miður vel undir frostmarki. Væri til í að prófa flóðhest við tækifæri en held ég láti múslimablöðrur eiga sig í bili. Vertu bara feginn; þá er nóg eftir handa þér.

Sverrir Stormsker, 22.3.2009 kl. 03:08

19 Smámynd: Óskar Arnórsson

Jamm..Stormsker. Kom á einn súlustað í Gautaborg og þar var fullt hús af kellingum að dansa í kringum súlu og engin af þeim var undir 120 til 150 kíló á þyngd! Og það var fullt hús!!! Botnaði ekkert í þessu "kicki" fyrr enn ég heyrði talað um fyrirbærið "feeders" sem er nú orðið glæpur í USA. Ég missti alla kynhvöt í 2 vikur og á MJÖG fallega konu, eftir þetta áfall á sílustaðnum þarna. Ég held að þetta hafi verið liðhlaupar úr feministagruppunum í Svíþjóð..annars hef ég ekki fundið neina skýringu á þessu enn..og er ekkert að leita að henni heldur.."keep on the good work!"

PS. 

Kalli bóndi spurði Sigga bónda hvort hann tryði því að konur væru betri enn kindur. Kalli svaraði að hann yrði að spyrja Sigga bónda því hann hafði heyrt að hann hefði prófað konu. Enn hann var ekki viss....ég sjálfur er ekki viss um að þetta sé djók, enn hvað veit ég...

Óskar Arnórsson, 22.3.2009 kl. 05:08

20 Smámynd: Óskar Arnórsson

...Kalla bónda átti þetta að vera...var í sveit á Vestfjörðum og besti vinur minn var sonur sytkyna úr Breiðafjarðareyjum ef það skýrir eitthvað...

Óskar Arnórsson, 22.3.2009 kl. 05:11

21 Smámynd: Jóhannes Guðnason

Við eigum ekki að banna KLÁM,ef við viljum horfa á stúlkur á súlustöðum (þær vilja vinna við þetta,sem stunda þessa vinnu) þá þeir um það,þeir sem ekki vilja horfa á þetta fara bara í tölvuleiki,mjög einfalt,þeir sem vilja borga fyrir drátt,nú þeir um það,þá borga þeir,þeir sem ekki vilja það,nú þeir borga þá ekkert,þetta er ekki flóki mál að mínu mati,en stjórnvöld eiga ekki að hafa vit fyrir fólki,fólkið er nú nó þroskað að mínu mati til að ákveða sjálf hvað það vill,við þurfum ekki löggjöf frá Ástu R.Um það hvað við meigum og hvað ekki,við höfum hingað til getað tekið þá ákvörðun sjálf,þurfum ekki lög frá stjórnmálamönnum til,ég er ekki að kjósa þá á þing,til að láta segja mér hvað ég má og hvað ekki,en þetta er frábær grein hjá Sverrir og alltaf gaman að lesa eftir hann og hlusta á hans sjóna mið,þótt ég sé ekki alltaf sammála honum,þá eru hans sjónamið skemmtileg og góður húmor hjá honum,maður bíður alltaf eftir næstu grein frá honum,Áfram Sverrir. 

Jóhannes Guðnason, 22.3.2009 kl. 11:11

22 Smámynd: Einar Jón

Þau eru greinilega á réttri leið með þetta. Hugsið ykkur hvað heilbrigðiskerfið myndi spara mikið ef við myndum bara banna krabbamein.

Einar Jón, 22.3.2009 kl. 11:48

23 Smámynd: Sverrir Stormsker

Óskar: Jú það skýrir ansi margt að vera sonur systkina úr Breiðarfjarðareyjum. Mamma hans er þá jafnframt frænka hans í föðurætt og pabbi hans frændi hans í móðurætt. Örugglega gaman á ættarmóti hjá þessum gæa. Fámennt en góðmennt.

Jóhannes: Stjórnmálamenn misskilja oft hlutverk sitt. Margir þeirra halda að þeir séu mömmur okkar og eigi að hafa vit fyrir okkur fullorðnum alveg út í eitt fram í rauðan dauðann og vilja helst halda um sprellann á okkur svo mígum ekki á setuna.

Ef þeir vilja endilega hafa vit fyrir okkur þá ætti að skikka þá í greindarpróf svo að eggið fari nú að hætta að reyna að kenna hænunni.

Í hvaða flokki er annars Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir akkúrat þessa stundina? Klukkan er ca 13.40 að staðartíma.

Einar: Gaukaðu þessari hugmynd að Ögmundi. Hann mun örugglega taka vel í hana. Í alvöru. Það er enginn eðlismunur á þessari hugmynd og öðru því sem vinstri bannistar hafa verið að reyna að lögbinda.

Sverrir Stormsker, 22.3.2009 kl. 13:37

24 Smámynd: MacGyver

Það er gaman hvernig vinstri-menn í Norður-Evrópu (mesta liberal place í heiminum) skuli hegða sér svipað og öfga-hægri-menn í Bandaríkjunum (mesta conservative place í heiminum) og skuli ná saman höndum þegar kemur að klámi. Þetta sýnir að bæði kantarnir á pólitiska spectrumið verður að sama illmennið.

MacGyver, 22.3.2009 kl. 16:02

25 Smámynd: Jóhann Kristjánsson

Legg til að það verði líka sett sú regla upp að speglar verði teknið niður af heimilum,, það gæti hugsanlega einhver slysast til að afklæðast fyrir framan spegil....

og að settar verði upp þær reglur að gluggar á íbúðarhúsnæði verði bannaðir þar sem einhver gæti hugsanlega gleymt að draga fyrir gluggana áður en afklæðst er....

Jóhann Kristjánsson, 22.3.2009 kl. 17:45

26 Smámynd: Snæbjörn Björnsson Birnir

Alveg magnaðar umræður (og menningarlegar). getur þetta verið útaf því að Íslendingar eru ekki vanir að hafa ríkisstjórn, sem getur gert fleiri hluti á stuttum tíma, í stað þess að vera með málþóf og vilja engu breyta??? Athugið það, að það er alveg hægt, að söðla hestinn og fara á bak sama daginn...!! Það þarf bara að venja sig við hugsunina. Þá fer allt vel.

Snæbjörn Björnsson Birnir, 22.3.2009 kl. 20:11

27 Smámynd: doddý

það á að banna fegrunaraðgerðir og nefréttingar eftir slagsmál og þannig pjatt og bent krabbameininu á að fara eitthvað annað ... og sjá sparað munum við. kv d

doddý, 22.3.2009 kl. 21:30

28 Smámynd: doddý

.. "og benda krabbameininu" afsakið mig

doddý, 22.3.2009 kl. 21:31

29 Smámynd: Jens Guð

  Einhverra hluta vegna kolféll Kolbrún Halldórsdóttir,  vinkona þín,  í prófkjöri VG.  Og það áður en hún náði að fangelsa Davíð Þór Jónsson fyrir klám.  Eins og vilji hennar til þess var þó einbeittur.  Hún hefur reyndar áður þurft að kyngja.  Sem stjórnarmaður í Kristnihátíðarnefnd barðist hún fyrir því að Ásatrúarfélagið þyrfti að borga klósettskatt upp á 800 þúsund kall.  Eitt allra trúfélaga.  Leikar fóru þannig eftir mikil læti að piss ásatrúarmanna var úrskurðað jafn verðlaust og piss kristlinga.  

Jens Guð, 23.3.2009 kl. 00:33

30 Smámynd: braveheart

Gott kvöld hér.

Það er von mín að Geiri gullputti haldi áfram með Goldfinger þó að frumvarpið um nektarstaði fari í gegn.

Það væri bráðsnallt hjá honum að hafa Goldfinger þá svona stað með venjulegt veitingaleyfi sem býður upp á spjalldömur (klæddar),  svona selskapsdömur getum við sagt.  Staðurinn gæti verið nákvæmlega eins með sama starfsfólki og verið hefur.  Hann gæti verið áfram með þessar gullfallegu austur evrópsku stelpur í vinnu sem störfuðu þá við það að selja áfengi út í sal og chatta við gesti í sófum og taka jafnvel dansspor (klæddar) við borðin ef að svo ber undir.

Þetta væri frábært mótsvar við þessum grimma feminisma sem Ísland hefur alið.  Þetta færi sennilega mjög í taugarnar á þeim.

Ég er nokkuð viss um að Goldfinger mundi halda öllum sínum viðskiptamannahópi með þessum hætti.

Fyrir Vinstri græna og Samfylkingu væri líklega ómögulegt að koma í veg fyrir svona starfsemi, nema hreinlega banna starfsmönnum veitingastaða almennt að spjalla við gesti.  Fari einhver ríkisstjórn út á svo hála braut þá mun hún falla í næstu kosningum þar á eftir.

braveheart, 23.3.2009 kl. 02:02

31 Smámynd: Sævar Einarsson

Hérna er grein um virkilega góð skrif um "löglegt" mannsal http://www.nornabudin.is/sapuopera/2009/03/frnka_min_var_fornarlamb_mansa.html

Ég get svo svarið það að ég kýs X-D bara til að reyna að hindra það fram í rauðan dauðann að lið eins og Kolbrún Halldórsdóttir og Sóley Tómasdóttir komist til valda, þær eru virkileg ógn við lýðræðisríki.

Sævar Einarsson, 23.3.2009 kl. 11:22

33 Smámynd: Sverrir Stormsker

MacGyver nr. 27:  Bandaríkin eru líklegast það land (heimsálfa) sem hefur af hvað mestri hræsni að státa og pempíuskap þegar kemur að sexi. Ofbeldisdýrkunin er þar hinsvegar í algleymingi. Það er rétt hjá þér að öfga-hægrimenn í Bandaríkjunum eru sama tó-pakkið og öfga-vinstrimenn í Evrópu hvað viðkemur viðkvæmni fyrir nekt og “klámi.”Ég segi því einsog Stormsker forðum daga:   

Eyðum öfgum / í öllu rófi. / Verum hófsöm / í hófi.

Jóhann nr. 28:  Femínistar á Íslandi þiggja allar svona góðar hugmyndir með þökkum.

Sverrir Stormsker, 23.3.2009 kl. 12:09

34 Smámynd: Sverrir Stormsker

Lárust nr. 29: Arabar dýrka fitubollur og svínala þær. Þykir fínt og á að bera vott um gasalegt ríkidæmi. Auðvitað eru til múslimakellingar undir 60 kílóum en þá eru þær líka um 60 cm á hæð. Annars er ég ekkert á þönum eftir múslimablöðrum.  Snæbjörn nr. 30:  Þegar Klakinn er að hruni kominn þá finnst sumum, þar á meðal mér, soldið hjákátlegt að ríkisstjórnin skuli eyða svo mikið sem einni sekúntu í svona tittlingaskít og vitleysu. Hélt að lífið lægi við að bjarga þessu gjörspillta glæpaskeri. Það virðist ekki liggja mikið á, hugsanlega vegna þess að stjórnmálamennirnir sjálfir eru innvinklaðir í vibbann.

Ef að súlustaðirnir eru svona glæpsamlegir og svona ofboðslega mikið vandamál hversvegna er þá ekki búið að troða Geira gullputta í djeilið fyrir mansal fyrir löngu? Það er vegna þess að það er akkúrat ekkert mansal þarna á ferðinni. Mjög einfalt. Súlustaðirnir eru þeir skemmtistaðir á Íslandi sem lögreglan hefur hvað sjaldnast þurft að hafa afskipti af.

Sverrir Stormsker, 23.3.2009 kl. 12:15

35 Smámynd: Sverrir Stormsker

Doddý nr. 31: Best er að banna ALLT. Þá erum við fullorðna fólkið alveg örugg fyrir sjálfum okkur.

Jens nr: 32: Ég man eftir þessu, þegar Kolbrún Halldórs ætlaði að mismuna trúfélögum (sem er reyndar stjórnarskrárbrot) með því að láta ásatrúarmenn borga gommu fyrir sitt pisserí meðan kristlingar fengu að kasta af sér sínu vígða vatni frítt. 

Eg er búinn að vera erlendis undanfarna mánuði þannig að ég veit ekki um þetta mál Davíðs Þórs. Hvaða “klám” var það sem Kolla vildi ólm og uppvæg kæra hann fyrir? Pissaði hann óvart standandi?

Sverrir Stormsker, 23.3.2009 kl. 12:19

36 Smámynd: Sverrir Stormsker

Braveheart nr. 33: Þetta er fín hugmynd og ég skal gauka henni að Geira gullputta. Við erum einmitt í sama landi um þessar mundir og búum nánast hlið við hlið. Hittumst á hverjum degi.

Hann er með fulla galeiðu af íslenskum kellingum hérna við höfnina og ætlar að selja þær hæstbjóðanda á uppboði sem verður á morgun. Svo flytur hann einn 40 feta gám af asískum kellingum uppá Klaka og selur þær þar í kynlífsánauð á uppsprengdu verði. Þetta eru reyndar fréttir sem ég hef ekki eftir Geira sjálfum heldur vinstri (talí)bannmönnum á Íslandi.

Lárus: Það eru engar glænýjar fréttir að það er nokkuð til sem heitir mansal. Að tengja hinsvegar mansal við íslensku nektarsýningarstaðina er einsog að segja að kaffihúsin í Reykjavík séu gróðrarstía kanabissölu líkt og í Amsterdam og að þar sé allt drekkhlaðið af mafíóum og illfyglum og því beri að banna þá. Nær væri að tengja mafíuna við Hjálparstofnun kirkjunnar og Rauða krossinn. Þar gæti hugsanlega komið ýmislegt bitastætt uppúr krafsinu.

Þetta forsjárhyggjulið er búið að horfa á allt of mikið af glæpamyndum og heldur að Spiderman sé heimildarmynd og að James Bond sé í símaskránni. Það vantar allt jarðsamband í þetta fólk. Afhverju byrja þessir alþingisróbottar ekki á því að fara inná súlustaðina og kynna sér málin. Það væri gott svona sem fyrsta skref, jafnvel þó þeir myndu hugsanlega misstíga sig og detta á svelli greddunnar.

Sverrir Stormsker, 23.3.2009 kl. 12:31

37 Smámynd: Sverrir Stormsker

Sævarinn:  Býst við að ég myndi frekar kjósa nazista en íslenska öfga-vinstrimenn, af mannréttinda- og lýðræðisástæðum.

Mæli einnig eindregið með þessari grein Evu Hauks. Við Geiri gullputti vorum einmitt að ræða svipað mál, nú síðast í fyrradag. Skal blogga um það fljótlega.

Sverrir Stormsker, 23.3.2009 kl. 12:35

38 Smámynd: Sævar Einarsson

Þetta er nottla viðbjóður !!! er ekki frekar hægt að láta þær lifa á atvinuleysisbótum ! HNEYKSLI ! og ég er svo sammála þér Sverrir, ég myndi frekar kjósa Kim Il-sung ef hann væri ekki undir vinstri grænni torfu, þeir eru þó byrjaðir á að lofa fólki að gæða sér á flatbökum í dag, það er skref í rétta átt

Sævar Einarsson, 23.3.2009 kl. 16:09

39 Smámynd: Óskar Arnórsson

Geiri Gold er heiðurmaður! Fólk skilur hann bara ekki! Góður maður sem vill öllum vel. Konan hans gerir gott kaffi. Kann vel við alvörufólk...Skilaðu kveðju til hans frá mér Stormsker!... Hann ætti eiginlega að vera forsætisráðherra, og ég er ekkert að djóka!

Bjargaði lífi mínu einu sinni, enn veit ekki hvernig...ennþá...

Óskar Arnórsson, 23.3.2009 kl. 20:00

40 Smámynd: kiza

Sverrir; takk fyrir að koma með heilbrigðan punkt í þetta mál.  Það gerir mig alveg gargandi geðveika að þessir róttæku VG 'second wave' feministar séu að sjanghæa orðinu 'feministi',  þar sem mér þykir hegðun þeirra og hugmyndir oft líkari kristnu repúblikönunum í USA sem vilja allt sexý banna  ;(  Ég tel mig vera feminista, en partur af því tel ég líka verða að vera stuðningur við málfrelsi og sérstaklega kynfrelsi (hvort sem maður er beinlínis sammála vinnuvali fólks eða ekki), EKKI stuðningur við ritskoðun og skoðanaskoðun.

Bendi á pistil minn 'Siðferðislög?' á kiza.blog.is þar sem ég tek á t.d. hinni glorifæuðu 'Sænsku leið' og árásum siðapostula á málfrelsið.

kiza, 23.3.2009 kl. 20:56

41 Smámynd: Sverrir Stormsker

Sævarinn: Sala á flatbökum er alltaf skref í rétta átt, þ.e.e.a.s. ef maður vill drepa þjóðina úr kransæðastíflu en ekki leiðindum.

Óskar: Geiri gullputti er ekkert nema eðalmaður, sama hvað sagt er um hann. Gegnumheill drengskaparmaður. Það vita allir sem þekkja hann. Hinir mega bulla sína vitleysu einsog gengur og gerist. (Þjóðarsport Íslendinga). Kallinn er með þeim allra bestu sem ég hef kynnst. Fágætt eintak. Original.

Kiza: Væri óskandi að þú segðir þig strax úr Femínistafélaginu, fyrir allra sakir, sérstaklega þínar. En þú ræður náttúrulega á hvaða snaga þú hangir. Margir aðrir kjósa hinsvegar að reyna að standa í lappirnar, - sérstaklega sínar eigin.

Sverrir Stormsker, 23.3.2009 kl. 22:27

42 Smámynd: Óskar Arnórsson

Hr. Sverrir Stormsker!

Þú ert hér með krýndur sem Jarlinn af Íslandi!

Engum myndi ég treysta betur en Geira Goldfinger fyrir öllum dætrum mínum. Og ég meina það!

Amen, kúmen og allt þar á milli. Ég er trúaður maður á alvöru engla og Geiri er einn af þeim! Þú líka! Þið vitið það kanski ekki...enn ég veit það...í alvöru! Ég er ekki að djóka neitt! Spurðu hann bara!

Englar vita oftast ekki að þeir eru það. "That is the name of the game"..

Kær kveðja,

Óskar

PS. Annars er ég Búddisti af og til, enn er krónískt englatrúar. Tilheyri engum trúarflokki, sjórnmálaflokki (same shit) glæpaflokki, bara mannfólki, kunningjum, vinum enn lítið af "vandamönnum".

Tröllatúnguættinn er ekkert að gorta sig af...Byrjar á að einhver biskup, Jón Arason var hálshögvinn og synir hans tveir.. og svo er restin bara habla habla....man ekki hvað hann gerði af sér.

5 bindi um ættfræði mína sem er bara bull og blaður um ekki neitt. "inavel är ett problem på Island och det ved alla i Norden förutom islänngingar...selvklart!...

Jävla pukko land! 

Systir mín gaf þessar bækur út og ég botna ekkert í svona áhugamálum.

Óskar Arnórsson, 24.3.2009 kl. 02:17

43 Smámynd: Sævar Einarsson

Ég held að Jens sé að meina þetta hérna ég er farinn að hallast að því að Kolbrún Halldórsdóttir sé haldin sjúklegri kynlífsfíkn og ætti að leita sér hjálpar, hún hugsar varla um neitt annað greyið konan, ef það reynist ekki satt vera þá hún kynlífsheft, en það er líka hægt að fá hjálp við því.

Sævar Einarsson, 24.3.2009 kl. 02:37

44 Smámynd: Sævar Einarsson

HAHA smellið á þennann link

Sævar Einarsson, 24.3.2009 kl. 02:40

45 Smámynd: Sverrir Stormsker

Lárus nr. 51: Alveg rétt hjá þér. Auðvitað kæmist Geiri eða annar ekki upp með neitt mansal hér í þessu dvergþjóðfélagi þar sem allir eru með nefið uppí rassgatinu á náunganum. Afhverju ætti hann að vera að riska með þetta ágæta gróðarfyrirtæki sitt ef hann þarf þess ekki? Veruleikafirring vinstri bannmanna í þessum efnum er nánast alger.

Eina "mansalið" sem ég hef orðið vitni að á Los Klakos er þegar kallar hafa gifst kellingum erlendis og farið með þær til helvítis, þ.e.a.s. uppá Klaka. Brúðkaup = mansal.

Svo má náttúrulega ekki gleyma því að þær eru ófáar kellingarnar sem hafa gifst til fjár. Það er gríðarlega algengt. Ef karlar iðkuðu þetta í jafn ríkum mæli og kellingar þá væru vinstri bannistar pottþétt komnir með hnefann á loft.

Óskar: Þakka þér englanafnbótina. Hingað til hef ég nú flokkast sem djöfull en versnandi mönnum er best að lifa

Sverrir Stormsker, 24.3.2009 kl. 12:24

46 Smámynd: Sverrir Stormsker

Sævarinn: Þessir linkar sem þú bendir á eru alveg magnaðir. Serðir Monster kemst greinilega ekki í hálfkvisti við Kolbrúnu vinkonu mína. Vissi ekki að ein manneskja gæti verið svona heltekin af kynlífi og það af kynlífi annars fólks. Þetta stappar eiginlega uppí algert brjálæði. Það virðist ekkert annað komast að.

Ég ætla samt að reyna að bæta um betur því nú er ég að vinna að plötunni Tekið stærst uppí sig með Serði Monster. Sú plata verður örugglega bönnuð einsog hinar tvær. Ég þurfti að klæða plötuna Tekið stærra uppí sig í nærbuxur svo að ofurviðkvæmir vinstri bannistar fengju ekki hjartaáfall í plötubúðunum. Það er semsagt búið að flokka grin í “hættulegt grin” og “meinlaust grin.” Þetta er hlálegt.

Sverrir Stormsker, 24.3.2009 kl. 12:26

47 Smámynd: Sævar Einarsson

Á báða diskana og býð spenntur eftir "Tekið stærst uppí sig " hafðu það samt þveng, nærbuxur eru eitthvað svo mikið turnoff

Sævar Einarsson, 24.3.2009 kl. 21:02

48 Smámynd: Alexander Kristófer Gústafsson

Vg hafa það að markmiði að gera Ísland að Saudi arabíu Evrópu

Alexander Kristófer Gústafsson, 24.3.2009 kl. 23:07

49 Smámynd: Sævar Einarsson

Og einn af flokksmönnum L-listans virðist vera með álíkar hugsjónir, sjá færslu um það hér

L-listinn með fasista á sínum snærum sem lokaði fyrir rest á ég gæti skrifað athugasemdir

Sævar Einarsson, 24.3.2009 kl. 23:54

50 Smámynd: ThoR-E

VG fengu umboð til þess að reyna að bjarga því sem bjarga getur eftir efnahagshrunið.

Ekki koma sínum baráttumálum í gegn. Sbr. banna nektarstaði.

Sýnir bara hverskonar tækifærissinnar eru í þessum flokki.

Aldrei mundi ég kjósa VG ... það væri það heimskulegasta sem hægt væri að gera.

Góður pistill Stormsker ... mikill sannleikur .. inná milli kaldhæðninnar ;)

ThoR-E, 25.3.2009 kl. 07:57

51 Smámynd: Gulli litli

Ég var búinn að gleyma hvað þú ert skemmtilegur Sverrir...........klámhundurinn þinn.

Gulli litli, 26.3.2009 kl. 19:33

52 Smámynd: Sigurjón

Snilldarpistill hjá þér Sverrir.  Ef banna á eitthvað, ætti það að vera VG (og þá er ég ekki að tala um norska blaðið Verdens Gang).

Sigurjón, 27.3.2009 kl. 00:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband