Að drulla á gólfið í annarra manna húsum

losnar við nöldur.jpgÖðru hvoru sé ég í bloggheimum hágrenjandi menn sem kvarta sáran yfir því að ég skyldi hafa hent þeim út af blogginu hjá mér sem ótækum kommenterum. Þeir eru um 5 talsins, - 5 af þeim þúsundum sem skrifa og kommentera á moggablogginu. Þessir menn eru svokölluð "troll" eða netheimanöldrarar sem eyðileggja alla umræðu sem þeir koma nálægt með því að dylgja og þrugla og bulla og rugla og leggja endalaust síðuhaldara orð í munn með tuðáráttu sinni og óendanlegum leiðindum.Yfirleitt nota þeir annarra manna síður undir sitt vafasamasta bullshit.

 

 

bannað að drulla á gólfið.jpgInnlegg þeirra eiga ekkert skylt við "rökræður" eða "skoðanaskipti" heldur aðeins jag og þus og rugl og bull og dylgjur og skítkast og nagg og röfl og skvaldur og nonsens og óbærileg leiðindi. Við svoleiðs menn segir maður einfaldlega: "Veistu það, ég nenni þér ekki. Þér er ekki viðbjargandi. Vertu úti."

Þetta flokka þeir sem gasalega ritskoðun og aðför að tjáningarfrelsinu og fara háskælandi um bloggheima og geta ekki á heilum sér tekið hvað maður er nú vondur að leyfa þeim ekki að nöldra og nöldra og nöldra og nöldra á manns eigin síðu í eyrað á manni í það óendanlega. Síðan taka þeir til við að bulla um að maður hafi ekki undan við að fleygja út mönnum sem eru manni ekki hjartanlega sammála í einu og öllu, sem er náttúrulega fráleit þvæla einsog annað sem þeir hafa uppá að bjóða.

 

i_can_poop_on_the_floor_929031.jpgBloggsíða hvers manns er hans eigið hús sem hann ræður hverjum hann býður í. Sumir menn eru einfaldlega ekki í húsum hæfir. Svokallaðir party spoilerar. Ekkert ósvipaðir drafandi barfyllibyttum sem liggja á öxlinni á manni og slefa einhverri heimsku uppí eyrað á manni. Þessir ódönnuðu aular leggja það í vana sinn að vaða inní annarra manna hús og skíta á teppið og furða sig síðan á því að þeim sé fleygt á dyr og sagt að drulla heima hjá sér. Slíkir menn eru ekki viðræðuhæfir og maður hendir þeim náttúrulega bara út með hryllingi og gúmmíhönskum. Eftir að hafa gefið þeim fullt af sénsum án árangurs þá fær maður að sjálfsögðu uppí kok og segir dæsandi: "Æi vertu úti apinn minn og lærðu að skíta í eigið klósett. Ekki á gólfið hjá mér. Láttu þig hverfa leppalúði. Vertu blessaður."

Það er ekki flóknara en það.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakob Þór Haraldsson

Heilbrigð skynsemi tekur undir þessi orð þín, ég hef einnig þurft að loka á SEX aðila, sem er ólíkt sporðdrekum sem elska SEX, en í þessu tilfelli voru á ferðinni "atvinnu spunnameistarar & lygar á vegum Samspillingarinnar" það lið er ekki húsum hæft og því fór sem fór.  Eða með orðum Jóns Náskers: "Farið hefur FÉ betra...!"  Mér finnst samt að þú eigir að opna aftur fyrir Óla grís, óþarfi að loka á hann þó hann sé alltaf að skíta á sig - það tengist eflaust skítlegu eðli þess manns.

kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)

Jakob Þór Haraldsson, 2.11.2009 kl. 11:24

2 Smámynd: Snorri Bergz

Algjörlega sammála. Ég hef þurft að losna við nokkra slíka menn, og sumir einmitt hagað sér svona í kjölfarið.

Takk.

Snorri Bergz, 2.11.2009 kl. 12:25

3 Smámynd: Offari

Allavega ertu ekki búinn að henda mér út. Mér sýnist oft sem að tilgangur þinn sé að hneyksla svo ég er ekkert hissa þótt viðbrögðin verði af misjöfnum toga.

Offari, 2.11.2009 kl. 12:31

4 Smámynd: Sigurjón

Sæll Sverrir.  Það er leiðinlegt að þurfa að fara út í svona aðgerðir...

Bara fyrir forvitnissakir: Hvaða 5 menn eru þetta?

Kv. Sigurjón V.

Sigurjón, 2.11.2009 kl. 12:35

5 Smámynd: Jóhann Kristjánsson

Þeir sem þú hefur hent út hafa iðulega bent á að um sé að ræða ritskoðun. Þetta er einfaldlega rangt hjá þeim. Einugis er um dritskoðun að ræða

Jóhann Kristjánsson, 2.11.2009 kl. 13:26

6 Smámynd: Haraldur Baldursson

Það er þokkalegur hópur dóna á blogginu. Þá á ég ekki við slormynnta menn sem kunna að skrifa; þeirra framlag er vitanlega ómetanlegt. Nei þessir dónar slá fram órökstuddu bulli og gera allt nema vera skemmtilegir.

Svo eru þeir líka til sem henda fólki út sem þeim er ekki sammála...jafnvel þó engar blammeringar og ekkert drullumall sé í gangi.... það er sorglegt lið sem þolir sjálfsagt eiginkonum sínum að salta grautinn og mikið... reyndar eru þeir einu slíkir sem ég hef rekist á Samfylkingarmenn... það hlýtur að vera tilviljun...er það ekki annars ?

Haraldur Baldursson, 2.11.2009 kl. 17:58

7 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

http://www.jonathanfun.com/blog2/wp-content/uploads/2008/11/assholes.jpg

Jón Steinar Ragnarsson, 2.11.2009 kl. 20:29

8 Smámynd: Sverrir Stormsker

Jakob Þór, já ég verð að fara að hleypa Óla grís aftur inn og verða þar með sá eini á landinu sem umber hann, fyrir utan Dorrit og útrásarvíkingana.

Sverrir Stormsker, 2.11.2009 kl. 20:41

9 Smámynd: Sverrir Stormsker

Snorri, þessum niðurgangsmönnum finnst alveg ótækt að fá ekki að vaða fretandi og drullandi inná annarra manna síður og menga þar allt hátt og lágt og finnst síðan alveg gríðarlega óréttlátt og skrítið að vera hent út á götu. Sumir þeirra íhuga eflaust að kæra málið fyrir Mannréttindardómstóli Evrópu.

Sverrir Stormsker, 2.11.2009 kl. 20:44

10 Smámynd: Sverrir Stormsker

Offari, hef aldrei séð nokkra ástæðu til að henda þér út þó við séum eflaust ekki sammála um alla hluti, enda breytir það engu.

Þótt ótrúlegt megi virðast þá hefur tilgangur minn ALDREI verið að hneyksla bara til að hneyksla. Tildæmis varð ég afar hissa þegar einhverjir misskilningsmeistarar héldu að ég væri að saurga íslenska fánann með myndinni á nýja plötuumslaginu mínu. Útrásardólgar ERU einfaldlega að taka Klakann í fjósið og ég teiknaði mynd af því. Fáninn var symbol. Mjög einfalt, en samt ekki nógu einfalt fyrir suma.

Sverrir Stormsker, 2.11.2009 kl. 20:48

11 Smámynd: Sverrir Stormsker

Sigurjón, man ekki hvaða 5 gæar þetta eru og nenni satt að segja ekki að garfa eftir því. Man samt að einn þeirra kallar sig Valsól eða Hvalsól eða eitthvað svoleiðis en honum hefur víst verið hent út af eyjunni og víðar, og skal engan undra. Hann er einn af þeim sem má ekki heyra minnst á Sjálfstæðisflokkinn án þess að ganga alveg af göflunum. Held hann sé með Davíðs-heilkennið í þokkabót á mjög alvarlegu stigi.

Sverrir Stormsker, 2.11.2009 kl. 20:52

12 Smámynd: Sverrir Stormsker

Jóhann, “dritskoðun” er akkúrat orðið sem mætti nota um þetta. Sjálfur kalla ég þessa netheimanöldrara oft drithöfunda.

Sverrir Stormsker, 2.11.2009 kl. 20:53

13 Smámynd: Sverrir Stormsker

Haraldur, þessir drithöfundar eru oft svo sjálfhverfir í þráhyggju sinni að þeir halda að það sé verið að henda þeim út afþví að síðuhaldari sé þeim ósammála en fatta ekki að þeir eru einfaldlega að kæfa allt úr leiðindum með fyrirsjáanlegu nonstop síbyljutuði sínu og eru einsog randafluga í eyranu á manni.

 

Veit ekki hvort að samfylkingarmenn séu búnir að sérhæfa sig í þessu en það kæmi mér þá ekki á óvart.

Sverrir Stormsker, 2.11.2009 kl. 20:56

14 Smámynd: Sverrir Stormsker

Jón Steinar, útrásarvíkingarnir hljóta að fá bóner þegar þeir sjá þessa mynd. Held þeir fái aldrei nóg af “fjósamennsku.” Skilst að Jón Násker sé um þessar mundir að gera enn eina slíka aftanítökutilraunina í gegnum Raupþing banka.

Sverrir Stormsker, 2.11.2009 kl. 20:59

15 Smámynd: Kári Friðriksson

Sæll Sverrir.                                                         Mér dettur í hug málsháttur sem ég las,og held nokkuð upp á. "Engin verður óbarinn boxari"    Þeir sem kasta skít,geta lent í því að fá eitthvað til baka.        Annars langar mig að fá álit þitt á þvi,og vonandi stuðning við að mómæla flutningi Reykjavíkurflugvallar. Sá flutningur MUN KOSTA mannslíf á hverju ári vegna lengri tíma sem mun taka fyrir fólk í lífshættu að komast á "hátæknisjúkrahús".   Ég skrifaði blogg um daginn til að mótmæla grein eftir Gísla Martein en því miður hafa sárafáir lesið bloggið.  3 til 4 sem falla á ári til að hægt sé að stækka snobbhverfi er kannski ekki mikil fórn að hans áliti.  Ég hef slæma reynslu af fjölmiðlum,þeir beita "þöggun" á þá sem eru ekki "inn". Ég hjólaði í K.Í, B.S.R.B. ríkið og fleiri um árið (2003) en fjölmiðlar þögðu um málið,þrátt fyrir góðan málstað hjá mér.JAFNRÉTTISBROT á KARLMÖNNUM. Mál nr. 10 árið 2003 hjá Kærunefnd jafnréttismála. (Það vannst á endanum)  Fékk heldur ekki neina athygli eða auglýsingu í fjölmiðlum í nóvember í fyrra,þegar ég hélt tónleika til styrktar Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur. (15 HÁA CÉA tónleika) Hélt líka sjö tónleika í sumar og gaf 1/3 til mannúðarmála,stóru fjölmiðlarnir og blöðin höfðu EKKI áhuga.    Ef þú vilt rífa kjaft til góðs fyrir þjóðina,þá bloggaðu um flugvallarmálið.Læknar og sjúkraflutningamenn sem skrifað hafa um það VITA að líf muni tapast ef leiðin lengist.       Vonandi tekur þú vel í þetta, það hlusta örugglega mun fleiri á þig en mig.    Virðingarfyllst, Kári Friðriksson,(tenorsöngvari).

Kári Friðriksson, 2.11.2009 kl. 23:15

16 identicon

Já, heyrðu, og um leið og þú bloggar um flugvallamálið þá máttu endilega blogga um að það vantar fleiri hraðahindranir í Kópavog, sérstaklega austurbæinn. Og fyrst þú ert nú að bjóða þessa þjónustu þá máttu endilega blogga líka fyrir nýrri lyftu í Vesturbrún 4, Rvík. Svo vantar líka frítt gel í sundlaugarnar.

Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 2.11.2009 kl. 23:28

17 identicon

Ég ætlaði að segja rakgel, ekki bara "gel" ... helst þetta í bláu túbunum.

Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 2.11.2009 kl. 23:30

18 identicon

Svo vildi ég benda á að myndin þarna af rassgötunum ER af útrásarvíkingunum ... Jón lengst til vinstri, svo Pálmi Haralds, svo Hannes Smára (þetta með tappanum í), Björgólfur og Óli. Þær hanga uppi á skrifstofu breska fjármálaeftirlitsins og eru frá íslenska ríkinu með þökk fyrir viðskiptin.

Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 2.11.2009 kl. 23:38

19 Smámynd: Ómar Ingi

Keep up the good work Serðir

Ómar Ingi, 2.11.2009 kl. 23:51

20 Smámynd: Eygló

Maður er nokkuð oft umkringdur hálfvitum...  líklega með skitu?

Eygló, 3.11.2009 kl. 02:26

21 Smámynd: Sverrir Stormsker

Kári, ég get því miður ekki aðstoðað þig í flugvallarmálinu því ég er þeirrar skoðunar að flugvöllurinn eigi að fljúga í burtu, (jafnvel þó pabbi hafi unnið þar í hálfa öld). Skrifaði um það mál fyrir mörgum árum og færði rök fyrir máli mínu.

Ég skal hinsvegar taka þátt í tónleikahaldi fyrir Mæðrastyrksnefnd og slík samtök hvenær sem ég hef tíma. Frítt að sjálfsögðu. Var einmitt að sækja brauðhlöss í nokkur bakarí með Eiríki Stefánssyni á Sögu vini mínum fyrir stuttu og alla þessa stóru poka keyrðum við svo niðrí Fjölskylduhjálp. Þetta gerir Eiríkur á hverjum þriðjudegi. Eiríkur er einn af mönnunum á bak við tjöldin.

Sverrir Stormsker, 3.11.2009 kl. 03:01

22 Smámynd: Sverrir Stormsker

Bergur, þessir myndir af rassgötunum eru náttúrulega af útrásarvíkingunum að sjálfsögðu. Sé það núna. Maður þarf að fara með nefið og augun alveg ofaní skjáinn til að sjá hver er hvað. Hannes Smára (þriðji frá vinstri) notar þessa mynd í ökuskírteinið sitt og það er víst vegna þess að hann myndast betur að aftan en framan.

Sverrir Stormsker, 3.11.2009 kl. 03:08

23 Smámynd: Sverrir Stormsker

Ómar Ingi, engin hætta á öðru

 

Eygló, já maður er undarlega oft umkringdur hálfvitum. Ég var einmitt á þingpöllum Alþingis í dag.

Sverrir Stormsker, 3.11.2009 kl. 03:10

24 identicon

hér hef ég aldrei drullað áður-kannski þú hendir mér bara út........

zappa (IP-tala skráð) 3.11.2009 kl. 03:37

25 Smámynd: Sverrir Stormsker

zappa, búið og gert. Næsti!

Sverrir Stormsker, 3.11.2009 kl. 07:30

26 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Með svona alvarlegri pistlum frá þér Stormsker, sem er bara gott, fínt og flott.

Sýnir að þú ert fjölhæft sker, sem ég kann að meta í háði og harmi.

(bara að tékka hvort ég væri komin í "fimmbækurnar")

Jenný Stefanía Jensdóttir, 3.11.2009 kl. 08:48

27 Smámynd: Kári Friðriksson

Takk fyrir svarið.                                         Ég vona auðvitað að flugvöllurinn verði áfram. Ef glatast fjögur mannslíf á ári þá gera það 200 á næstu 50 árum,)sem er líklegt að Gísli Marteinn geti lifað. Atvinna á vellinum var held ég fyrir c.a. 600 manns,sem mundi þá færast til Keflavíkur,eða tapast. Óþægindi tímatap og kostnaður fyrir þá sem fljúga og sjálfsagt tap fyrir verslunina í Reykjavík.Sumir munu hætta við að fara þangað ef það tekur mun lengri tíma,fara t.d. til Akureyrar að versla í staðin. Vonandi þurfum við hvorugur á því að halda að komast með flugi "suður" til að komast með hraði á spítala.   Fer að koma tími á bók frá þér...Kveðja,Kári.

Kári Friðriksson, 3.11.2009 kl. 12:23

28 Smámynd: Sverrir Stormsker

Jenný, ímyndaðu þér ef fimmbækurnar hétu SEX-bækurnar. Myndi örugglega misskiljast.

Annars finnst mér bara ansi gott að vera geðklofi á Íslandi í dag.

Sverrir Stormsker, 3.11.2009 kl. 14:44

29 Smámynd: Sverrir Stormsker

Kári, það kemur mjög sennilega út bók á næsta ári þó það sé kreppa. Ekki endilega eftir mig, en mér finnst ekki ólíklegt að það komi út bók á næsta ári, eftir einhvern

Sverrir Stormsker, 3.11.2009 kl. 14:51

30 Smámynd: Eygló

Sverrir, gæti verið að þú værir frekar með geðklof?  Nei, bara spur.

Eygló, 3.11.2009 kl. 18:46

31 Smámynd: Sverrir Stormsker

Eygló, jú geðklofar eru náttúrulega með geðklof. Þessvegna kallast þeir nú geðklofar. Þeir eru einnig kallaðir klofhugar og fá klofbætur hjá Tryggingamálastofnun. Það er ekki flóknara en það.

Sverrir Stormsker, 3.11.2009 kl. 20:21

32 Smámynd: ThoR-E

Ég hef þurft að henta 4 athugasemdum út í gegnum minn bloggferil sem "spannar" 2 ár og banna 3 ip tölur.

 Annars hafa þeir sem á mína síðu, semsagt núverandi síðu og þá sem ég hafði áður, verið til friðs og getað haldið uppi málefnalegum samræðum.

En það eru alltaf einhverjir sem það geta ekki. Því miður.

ThoR-E, 4.11.2009 kl. 13:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband