Áríðandi fréttatilkynning frá Tussudýraheimtufrekjusamtökum Íslands

Mér var að berast eftirfarandi fréttatilkynning:

 

Ekki tilgangur okkar að niðurlægja beljuna

 

 

Auddi og Sveppi í góðum málum.jpg

Í úttekt Tussudýraheimtufrekjusamtaka Íslands á því af hvaða kyni viðmælendur tveggja vinsælla umræðuþátta hjá Ríkissjónvarpinu- og útvarpinu hafa verið undanfarna tvo mánuði kemur í ljós að tæplega helmingur viðmælenda voru tuskudýr tussudýr, en það þykir afleit niðurstaða og lýsandi fyrir kúgun pungrottanna.

Um er að ræða þættina Sífur Egils í Sjónvarpinu og útvarpsþáttinn Vökulokin á Rás 1. Í ljós kom að tussudýr eru þar í miklum minnihluta eða um 49,9% viðmælenda.

Tussudýraheimtufrekjusamtök Íslands boða til vælusúpufundar á fimmtudaginn undir yfir-grafskriftinni „Tussudýr eru líka fólk og þau vilja miðla af fáfræði sinni og pungrottuhatri í fjölmiðlum á kosningaári á kostnað þeirra sem hafa eitthvað að segja."

Svínhildur Kvabber, formaður stjórnar Ríkisútvarpsins ohf., og Sóðey Tómhausdóttir, borgarfulltrúi Vit-Grannra, flytja of löng erindi og taka þátt í sveittum samræðum á eftir. Að því loknu mun Grátkór Raufarhafnar stíga á eggjastokk og taka nokkur lög. Í görnina.

Fundurinn fer fram á Hallærisstöðum við Túnguötu 14 í Rekkjuvík og hefst klukkan 12. Fundurinn er öllum opinn, líkt og tussudýrin, öllum nema pungrottum, og boðið verður upp á vælusúpu og gegnsteikt fórnarlamb í táraflóði að barlómnum loknum, að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu.

 

(Hugsanlegt er að fyrirsögnin og myndin tilheyri annarri frétt. Þó ekki víst)

 


Að drulla á gólfið í annarra manna húsum

losnar við nöldur.jpgÖðru hvoru sé ég í bloggheimum hágrenjandi menn sem kvarta sáran yfir því að ég skyldi hafa hent þeim út af blogginu hjá mér sem ótækum kommenterum. Þeir eru um 5 talsins, - 5 af þeim þúsundum sem skrifa og kommentera á moggablogginu. Þessir menn eru svokölluð "troll" eða netheimanöldrarar sem eyðileggja alla umræðu sem þeir koma nálægt með því að dylgja og þrugla og bulla og rugla og leggja endalaust síðuhaldara orð í munn með tuðáráttu sinni og óendanlegum leiðindum.Yfirleitt nota þeir annarra manna síður undir sitt vafasamasta bullshit.

 

 

bannað að drulla á gólfið.jpgInnlegg þeirra eiga ekkert skylt við "rökræður" eða "skoðanaskipti" heldur aðeins jag og þus og rugl og bull og dylgjur og skítkast og nagg og röfl og skvaldur og nonsens og óbærileg leiðindi. Við svoleiðs menn segir maður einfaldlega: "Veistu það, ég nenni þér ekki. Þér er ekki viðbjargandi. Vertu úti."

Þetta flokka þeir sem gasalega ritskoðun og aðför að tjáningarfrelsinu og fara háskælandi um bloggheima og geta ekki á heilum sér tekið hvað maður er nú vondur að leyfa þeim ekki að nöldra og nöldra og nöldra og nöldra á manns eigin síðu í eyrað á manni í það óendanlega. Síðan taka þeir til við að bulla um að maður hafi ekki undan við að fleygja út mönnum sem eru manni ekki hjartanlega sammála í einu og öllu, sem er náttúrulega fráleit þvæla einsog annað sem þeir hafa uppá að bjóða.

 

i_can_poop_on_the_floor_929031.jpgBloggsíða hvers manns er hans eigið hús sem hann ræður hverjum hann býður í. Sumir menn eru einfaldlega ekki í húsum hæfir. Svokallaðir party spoilerar. Ekkert ósvipaðir drafandi barfyllibyttum sem liggja á öxlinni á manni og slefa einhverri heimsku uppí eyrað á manni. Þessir ódönnuðu aular leggja það í vana sinn að vaða inní annarra manna hús og skíta á teppið og furða sig síðan á því að þeim sé fleygt á dyr og sagt að drulla heima hjá sér. Slíkir menn eru ekki viðræðuhæfir og maður hendir þeim náttúrulega bara út með hryllingi og gúmmíhönskum. Eftir að hafa gefið þeim fullt af sénsum án árangurs þá fær maður að sjálfsögðu uppí kok og segir dæsandi: "Æi vertu úti apinn minn og lærðu að skíta í eigið klósett. Ekki á gólfið hjá mér. Láttu þig hverfa leppalúði. Vertu blessaður."

Það er ekki flóknara en það.

Þýskaland er farið til helvítis einsog Ísland

umslagið fallega.jpgÞýskaland er eitt elsta og merkilegasta menningarsamfélag Evrópu. Þarna uxu úr grasi merkustu andans menn sem sagan kann frá að greina, svo sem Goethe, Beethoven, Heine, Derrick, Shiller, Einstein, Bernstein, Hammerstein, Gertrude Stein, Rammstein, Frankenstein, Hitler, Johann The Bastard Bach, Josef Mengele og svo mætti lengi áfram telja.

Þarna hafa að auki verið framleiddar frá örófi alda þær bestu og faglegustu klámmyndir sem heimurinn hefur haft spurnir af. Höfundarnir hafa ekki verið af verri endanum; allt frá MAX XXX til Erró.

Nú bregður svo við að Þjóðverjar hafa slegið af kröfunum og eru dottnir ofaní sorapytt siðprýði og ömurleika. Þeir hafa neitað að framleiða nýjustu plötu Serðis Monsters "Tekið stærst uppí sig" afþví að umslagsteikning mín (sjá mynd hér að ofan) fór eitthvað fyrir brjóstin á þeim. Bæði tvö. Ég fjalla um þetta alvarlega mál í viðtali HÉR.

Þýskaland er fínító. Andlega gjaldþrota. Búið spil. Eða einsog Móðir Theresa hefði orðað það: "Game over motherfuckers. It´s finished you bloody shitheads."


Danski Þjóðarflokkurinn vill banna Stormsker

Var að lesa í virtu dönsku blaði að Danski Þjóðarflokkurinn vilji banna mig í öllum dönskum borgum. Ekki veit ég hvernig þeir hafi komist yfir lög af nýju Serðis Monsters plötunni minni því hún kemur ekki út fyrr en eftir mánuð. Kannski hafa þeir tekið lagið mitt "Nei nei, ekki á kjólinn" upp úr útvarpinu, örugglega X-inu því þar er það mikið spilað.

 

banna_stormsker.jpgDanski Þjóðarflokkurinn lítur málið svo alvarlegum augum að þeir hafa meiraðsegja fyrir því að birta heilsíðuauglýsingu í einu útbreiddasta blaði Danmerku þar sem þeir frábiðja sér að ég láti nokkurntíma sjá mig í dönskum borgum. Þetta hljóta að vera apakéttir því þeir kunna ekki einusinni að stafsetja nafnið mitt rétt. Þeir skrifa "Stormoskeer." Svona er að vera lesblindur og skrifblindur og siðblindur og staurblindur í Danaveldi í dag.

 

Þó það sé pínulítið af "klámi" á nýju plötunni og þó ég sé þar oggulítið að salla niður femínista, bankabullur, útrásarhimpigimpi, stjórnmálafroska, hommadindla og fleiri þjóðfélagshópa, með fullri virðingu fyrir drullupumpum, þá finnst mér þetta óþarfa viðkvæmni af Danska Þjóðarflokknum. Þeir hljóta að vera að misskilja hlutina eitthvað.


Gott að vera svín á Gríslandi

Grísinn í peysu.gifForsetinn situr hugsi við skrifborð sitt á Bónusstöðum þegar Dorrit kemur inn í náttkjól.

 

Dorrit:  "Óli grís koma í rúmið og gera Do Do...Dorrit happy. Hvað ertu að gera grísinn minn?"

Óli:  "Ég er búinn að banna þér að kalla mig grís."

Dorrit:  "Hvað ertu að gera gölturinn minn?"

Óli:  "Ekki kalla mig gölt. Ekki dæma mig eftir útlitinu."

Dorrit:  "Hvað ertu að gera svínið mitt?"

Óli:  "Ekki kalla mig svín. Ekki dæma mig eftir innrætinu."

Dorrit:  "Eigum við að fara í Galtarlæk á morgun? Hvað ertu að gera Lord Bacon?"

Óli:  "Ég er að brjóta heilann um þessi helvítis vandræðalög um ríkisábyrgðina vegna Icesave."

 

olafur_islandskonungur.jpgDorrit: "Fyrst þú brjóta öxlin og nú þú brjóta heilann. Ekki meiri slys Óli bonehead. Þú mátt ekki brjóta alla bein í kollurinn þinn. Það kemur þér í koll ef þú reyna að brjóta heilann."

Óli:  "Þú misskilur alla hluti kellingarfálki. Ég verð að skrifa undir þessi fáránlegu lög. Ég er nú einsusinni guðfaðir útrásarvíkinganna og þessarar óskaríkisstjórnar minnar."

Dorrit:  "Já en meirihluti Íslendingar ekki vilja þú skrifa undir þessi lög Óli grís."

Óli:  "Só? Þú skilur ekki pólitík. Ég er ekki í vinnu hjá almúgapakkinu heldur elítunni og þotuliðinu. Þetta ættir þú nú vita. Annars værirðu ekki gift mér."

Dorrit:  "En þú skrifaðir ekki undir fjölmiðlalögin á sínum tíma Óli flesk?"

jon_asgeir_og_dorrit.jpgÓli:  "Nei, og það var vegna þess að ég vildi stoppa Dabba drullusokk af. Er þetta eitthvað flókið?"

Dorrit:  "En þú sagðir að það vera út af gjá milli þing og þjóð Óli grís."

Óli:  "Og tókstu mark á þeirri ræpu? Ertu hálfviti? Gjá milli þings og þjóðar my ass! Það var gjá á milli mín og Dabba og gjá á milli Dabba og Jóns Náskers. Með hvorum borgar sig nú að standa í lífinu, stjórnmálafífli eða billjóner? Nú auðvitað stóð ég með Jóni Náskeri."

Dorrit:  "Heyrðu Óli svín, ertu að segja að það borgar sig ekki fyrir mig að vera með stjórnmálafífli?"

stjórnmalamenn í boði Bónuss.jpgÓli:  "Jú, auðvitað borgar sig fyrir þig að vera með mér, en þú veist hvað ég meina. Þú færð náttúrulega fullt af sölusamböndum í gegnum mig og færð að umgangast kóngafólk og svoleiðis. Bissness is bissness. Varla ertu með mér út af útlitinu eða innrætinu?"

Dorrit:  "Nei, það segir sig nú sjálft. Sast þú fyrir þegar Bónusgrísinn var teiknaður?"

Óli:  "Ekki vera með þetta óþarfa rugl. Auðvitað var ég fyrirmyndin. Við skulum samt ekki fara að rífast núna. Bíðum með það þangað til á næsta blaðamannafundi með erlendum fréttamönnum."

Dorrit:  "En Óli göltur, stóðstu með Jón Násker og Baugur gegn þjóðin þegar þú neitaðir fjölmiðlalögin?"

forsetinn_a_hestbaki.jpgÓli:  "En ekki hvað? Hvort heldur maður með Gróttu eða Manchester United? Maður heldur náttúrulega bara með besta liðinu hverju sinni. Maður reynir jú auðvitað að veðja á réttan hest, einsog þú sérð á öxlinni á mér."

Dorrit:  "Fatlinn fara þér mjög vel Óli grísarnef. Núna þú vera sannkallað fatla-fól. Gerir allt með hangandi hendi. Geturðu ekki fengið svona fatla að neðan líka?"

Óli:  "Hummmm. Heyrðu Dorrit Músarnef, ég semsé reyndi að veðja á réttan hest. Ég stóð auðvitað með Baugi."

Dorrit:  "Þér aldrei standa með mér Óli svín."

Óli:  "Ekki misskilja hlutina Dorrit og fara að bulla. Við erum ekki í viðtali við erlenda sjónvarpsstöð. Þú ættir nú að þekkja það kvenna best að maður velur ekki alltaf rétt."

góður_félagsskapur.jpgDorrit: "Þú veðja á útrásarmenn en núna allt hrunið til grunnur. Þú baðst óformlega afsökunar og sagðir þú hafa farið offari. Samt þú skrifa núna undir lög að þjóðin borgar fyrir þessir glæpamenn næsta áratugir Óli pig?"

Óli:  "Heyrðu Dorrit apahaus, allir stærstu og bestu glæpamenn landsins eru góðir vinir okkar. Auðvitað gæti ég hagsmuna þeirra."

Dorrit:  "Ertu að tala um ráðamenn Óli grís?"

Óli:  "Já, líka. Ég meina....Ráðamenn. Land-ráðamenn. Hver er munurinn? Þú bætir bara orðinu "land" fyrir framan "ráðamenn" og þá ertu kominn með nánari útskýringu á fyrirbrigðinu."

 

Steingrimur Solla og Óli.jpgDorrit:  "Ekki tala svona mikið um Steingrím J., Svavar Gestsson, Jóhönnu og Imbu Sollu."

Óli:  "Allt þetta góða fólk er vinir okkar. Maður svíkur ekki vini sína, nema það komi sér vel og maður græði á því."     

Dorrit:  "Já en þú geta verið neyddur af þjóðin til að segja af þér Óli beikon. Kannski þjóðin safnar saman undirskriftir að þú verða að kvitta að vinna."

Óli:  "Kvitta undir hvað? Ég kvitta undir hvað sem er nema fjölmiðlalög og það sem kemur Baugi og vinstristjórninni illa."

Dorrit:  "Nei, þú Quit. Quit working. Rekinn með skít og skömm."

Bónusfjölskyldan.jpgÓli:  "Neinei, það kemur aldrei til. Þjóðin er samansafn af fíflum og fávitum. Annars hefði hún ekki kosið mig forseta. Og það fjórum sinnum."

Dorrit:  "Það er gott að vera svín á Gríslandi."

Óli:  "Heiðarleiki kostar ekki neitt, og það er vegna þess að hann er einskis virði. Maður kemst ekkert áfram á heiðarleika, hreinskilni og hugsjónum. Þessi þrjú -orð eru fyrir lfvita. Hentistefna er mín eina stefna í lífinu. Gefst best."

Dorrit:  "Já það er rétt. Óli grís er stórasti drullusokkur í heimi."

Óli:  "Takk. Þú ert nú heldur ekki sem verst."

Dorrit:  "Samt þú vera betri Óli flesk. Þú vera með skítlegasta eðli í heimi."

Óli:  "You ain´t seen nothing yet."

Dorrit:  "Það er rétt. I ain´t svín yet. Óli grís er stórasti og mestasti skítalabbi í heimi."

Óli:  "Svona svona, ekki vanmeta þingmennina okkar og útrásarvíkingana."

forsetinn í útreiðartúr.jpgDorrit:  "Hvað skulum við gera á morgun svínið mitt?"

Óli:  "Bara eitthvað frábært. Eitthvað sem getur ekki klikkað."

Dorrit:  "Einsog?"

Óli:  "Nú, fara á hestbak."

Dorrit:  "Já, hvernig væri það? Alveg útilokað að þú gera stærri mistök þar en í starfi. Það væri þá algjör grís."

Óli:  "Engin hætta á því. Svo getum við farið út að borða á eftir. Þú getur pantað borð núna."

Dorrit:  "Ókei, ég panta skurðarborð á Borgarspítalanum. Þú halda áfram að brjóta heilann."


mbl.is Forsetinn staðfestir Icesave-lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Síbrotamaðurinn á Bessastöðum

baugur group fær útfl.verðlaun í sept 2008 í miðjum greiðsluerfiðleikum.jpgUndanfarin misseri hefur Ólafur Ragnar farið ríðandi um héruð til að "blása bjartsýni í þjóðina," semsé gefa henni andlegt blowjob. Það er virðingarvert, sérstaklega eftir að hafa átt þátt í því að taka hana í kakóið með því að gefa útrásarskúrkunum gæðastimpil og lofsyngja þá hástöfum um allar jarðir. Hann raðaði á þá fálkaorðum og medalíum og glingri og bling bling og stórriddarakrossum svo mynduglega að þeir stóðu varla í lappirnar. Voru orðnir einsog gettómelludólgar í Harlem. Hér áðurfyrr voru glæpamenn hengdir á krossa. Í dag eru krossar hengdir á glæpamenn. Fálkaorðan ætti í raun að kallast skálkaorðan. Það er allavega mín tillaga.

 

utflutningsverdlaun2005_01.jpgForsetinn vill skiljanlega bæta fyrir afglöp sín, útrásardekur og dómgreindarleysi og því hendist hann kófsveittur í loftköstum um sveitir landsins til "að byggja að nýju upp traust á milli sín og fólksins í landinu" einsog segir í frétt DV. Hann er jú sameiningartákn þjóðarinnar. Allavega samnefnari. Af fenginni reynslu þótti Ólafi náttúrulega skynsamlegast að fara í þessa huggunarfundarherferð ríðandi á hrossi einsog sannri hetju sæmir. Dómgreindin söm við sig. Aldrei þessu vant þá hrundi kallinn einsog bankakerfið; kastaðist af baki og axlarbrotnaði. Mun því ekki geta axlað ábyrgð úr þessu. Löglega afsakaður.

 

Óli grís með gangsterum og banksterum.jpgÞessi margbrotni æðsti axlarbjörn ríkisins vill gera sín góðverk í hljóði og kyrrþey og án skrums og auglýsingamennsku, eða einsog segir í frétt DV: "Það vekur hinsvegar athygli að forsetinn heldur sig fjarri kastljósi fjölmiðlanna með fundarherferð sína og einnig slysið." Það vekur semsagt mikla athygli fjölmiðla að forsetinn skuli halda sig fjarri kastljósi fjölmiðla með þessa fundarherferð sína og einnig slysið. Það veit bókstaflega ekki nokkur maður af þessari auglýsingafundarherferð forsetans og hvað þá af slysinu einsog sjá má í öllum fjölmiðlum landsins. Maður á að vinna sín góðverk í kyrrþey einsog Ólafur Ragnar. Ólafur vill jarðsyngja landsmenn í kyrrþey í öllum fjölmiðlum landsins. Gott að vita af heiðarlegum síbrotamanni á forsetastóli.
mbl.is Forsetinn í aðgerð í morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsetinn hefur ekki úr háum söðli að detta

Óli grís í reiðtúr.jpgHvað er Óli Grease alltaf að reyna að ríða einhverjum truntum þegar hann veit að honum er fyrirmunað að sitja merar lengur en eina mínútu? (Ég er ekki að tala um Dorrit). Þær kasta honum allar af sér einsog hlandi. Er hann ekki ennþá farinn að skilja að þessar skepnur, að Íslendingum meðtöldum, vilja ekki hafa hann hangandi á sér einsog merkingarlausa fálkaorðu? Hestar eru mannþekkjarar og ekkert ólíkir konum að því leiti að þeim er ekki alveg sama hver hossast á þeim. Meiraðsegja þroskaheftur múlasni myndi fleygja kallinum af baki langar leiðir.

 

asnakjalki.jpgEins gott að hann reyni ekki einhverntíma að ríða asna inní Jerúsalem. Fyrir nú utan að fólk myndi ekki vita hver væri hvað.

Ég veit það þykir gasalega fínt og lordalegt að fara í útreiðartúra en þetta er bara greinilega ekki hans deild. Hans deild er náttúrulega 33c. Eitthvað í líkingu við það sem við sáum í Gaukshreiðrinu hér um árið.

En ef hann heldur áfram í útreiðartúrum og lætur sér ekki segjast þá er gjörgæsludeild hans deild. Finnst honum virkilega eðlilegt að hver einasti útreiðartúr endi í sjúkraþyrlu Landhelgisgæslunnar? Heldur hann að þetta eigi að vera svona? Að þetta sé hluti af sportinu? Að ríða voðalega kúl inní sólarlagið og koma svo allur mölbrotinn heim, vafinn einsog múmía frá hvirfli til ilja? Eru þetta hans hugmyndir um að vera stórbrotinn karakter? Held hann sé eitthvað að misskilja hlutina.

.

forsetinn_thessi_fyrir_ofan.gifGölturinn slasar sig á öllu og klúðrar öllu sem hann kemur nálægt. Hann hlýtur að vera með lágmark 10 þumla á hvorum skanka. Það er fréttaefni í hvert skipti sem hann fer á hestbak. Blaðamenn flykkjast að honum þegar hann stígur "um borð" á einhverja húðarbykkju rétt einsog hann sé að fara í geimflaug til tunglsins. Þeir horfa á hann í angist og súpa hveljur. Skyldi hann lifa þetta af? Hvað ætli hann brjóti mörg rifbein í þetta skiptið? 65? Skyldi lokkurinn haggast þegar hann hálsbrýtur sig? Skyldi hann detta svo kröftuglega á hausinn að hann gangi aftur í Framsóknarflokkinn?

 

klunni.jpgÉg skal veðja að hann gæti ekki spilað á munnhörpu án þess að hún hrykki ofan í hann. Hann er vægast sagt mjög heppinn að hann skuli ekki hafa lært á trompet. Væri ekki á lífi í dag.

Billjard og pílukast eru stórhættulegar áhættuíþróttir í hans huga. Ég myndi ekki einusinni treysta honum til að komast lifandi úr bingói i Vinabæ. Það eina sem kallinn hefur getað gert án þess að beinbrjóta sig er að smjatta á rjómatertum og hengja skálkaorður á útrásarræningja.

 

Hann sest á truntu og nánast drepur sig. Hann sest á forsetastól og nánast drepur þjóðina. Kallinn er af baki dottinn, í öllum skilningi.
mbl.is Ólafur Ragnar slasaðist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gætum við fengið DoctorE aftur takkfyrir

kristalskúluvömb.gifDoctorE hefur verið fleygt út af moggablogginu, mér og öðrum málfrelsissinnum til sárrar armæðu. Hann slysaðist víst til að segja að margt væri geðheilbrigðara í henni veröld en Lára jarðskjálftamiðill. Hún væri semsé klikk. Gaga. Gúgú. Trufluð. Röskuð. Sködduð. Kleppó. Kex. Snar. Með lausa skrúfu. Ding dong. Nutcase. Held að meining hans hafi hugsanlega verið að hún gengi ekki á öllum kertum eða eitthvað í þá veru.

 

Þeir eru fáir í bloggheimum sem og annarsstaðar sem hafa ekki einhverntíma fengið það í hausinn frá einhverjum að þeir séu geðbilaðir, - þekktir sem óþekktir einstaklingar. Nema þá kannski Davíð Oddsson og Ástþór Magnússon. 

 

peningaplokkari.jpgSjálfum þætti mér mun skynsamlegra að hleypa trúfrjálsum efahyggjumönnum einsog DoctorE að netmiðlum en trúflónum og "spámiðlum" sem vinna við að plata og hræða hrekklausa einfeldninga uppúr skónum með órum sínum.

 

Ég bendi enn og aftur á að "miðlar" hanga utaní 253. grein almennra hegningarlaga en þar stendur að noti maður sér bágindi annars manns, einfeldni hans og fákunnáttu í gróðarskyni þá varði það fangelsi allt að tveimur árum. Megum við við fleiri svikahröppum? Þurfum við ekki frekar á gagnrýnisröddum einsog DoctorE að halda, hvort sem menn eru nú skoðanabræður hans eður ei?

 

peningaplokkari_2_886746.jpgÉg sé ekkert athugavert við það að DoctorE og aðrir gagnrýni andaheimasveppi með skýru orðbragði rétt einsog við lýsum takmörkuðu áliti okkar á útrásarþjófum og öðrum fjárplógsdólgum með kröftugum hætti.

 

Ef einhverntíma hefur verið þörf fyrir gagnrýna sjálfstæða hugsun og opnar frjálsar umræður og kröftug andmæli gegn hverskyns svindilbraski og trúgirni þá er það akkúrat núna á þessum  síðustu og allra bestu tímum. Þar er DoctorE betri en enginn, allavega mun betri en staurblindir "sjáendur" sem hitta oftar á þumlana á sér en naglann á höfuðið.

Mikið væri nú ánægjulegt ef "miðlar" færu í sína andaheima og DoctorE aftur í bloggheima.


Spáum í spámiðla

tölvuvölva.gifUppgangstímar hjá einum eru niðurgangstímar hjá öðrum. Niðurgangstímar hjá þjóðinni eru t.d. uppgangstímar hjá miðlum og spámönnum og spámiðlum. Enda eru þeir farnir að auglýsa grimmt í útvarpinu:

"Viltu láta spá fyrir um framtíð þína? Tímapantanir hjá Pálínu peningaplokkara í síma bla bla bla."  

"Viltu vita hvort þú eigir einhverja framtíð? Tek að mér að segja fólki hluti sem hver froskur ætti að geta sagt sér sjálfur. Pantaðu tíma hjá Gunna grunna í síma bla bla bla." 

"Eru fjárhagsáhyggjurnar að sliga þig? Er þér illt eftir innrás útrásarvíkinganna í kakóið á þér? Láttu Samma svikahrapp spá fyrir þér í síma bla bla bla. Klukkutíminn á aðeins krónur 9.990. Veiti óniðurfellanleg kristallskúlulán. Aldrei of seint að vera tekinn aftur í afturendann."  

 

blörruð_kristalskúla.jpgVið eigum alveg hreint ótrúlega marga og margvíslega miðla; transmiðla, glansmiðla, spámiðla, skjámiðla, smámiðla, útvarpsmiðla, talnaspekinga, galna-spekinga og allskyns spákellingar sem lesa í lófa og iljar og rýna í kristallskúlur, fjallageitagarnir, spil og bolla og hlandkoppa og guð má vita hvað. Allt þetta spekingakraðak á eitt sameiginlegt: Enginn þeirra sá hrunið fyrir.

Ef öll þessi spámenni gátu ekki séð fyrir mestu hörmungar Íslandssögunnar, þetta stærsta gjaldþrot heimssögunnar, þá geta þeir varla verið mikið næmari en hauslaus prumphænsni og alveg hreint hverfandi líkur á að þeir hafi nokkuð að segja af viti.

 

Þeir geta í mesta lagi sagt:

spákelling.jpg"Þetta er allt mjög jákvætt. Þú þarft t.d. ekki að hafa neinar áhyggjur af peningum þegar fer að líða á árið. Það er vegna þess að þú munt ekki eiga neina. Og þú munt af sömu ástæðu ekki þurfa að hafa neinar áhyggjur af framtíðinni. Það er ekki hægt að hafa áhyggjur af því sem maður á ekki. Þetta er semsagt alltsaman mjög jákvætt.

Ég sé hérna mjög fallega götu. Veit ekki alveg í hvaða samhengi. Jú, núna sé ég það: Þú og þín fjölskylda verðið borin út á þessa götu mjög fljótlega, ef guð lofar. Það eru ekki allir sem lenda á svona fallegri götu get ég sagt þér. Þetta er allt mjög jákvætt. Þú ert mjög lánsamur maður. Ég vil samt ekki tala meira um "lán," nema hvað ég sé að fagleg ríkisstjórnin mun senda Mr. Bean með Svavari Gestssyni í næstu atrennu til að ná almennilegum uppgjafarsamningi. Mjög jákvætt. Virkilega jákvætt alltsaman.

hjá spákellingu.gifHérna sé ég snöru og gálga og það hlýtur nú að vera eitthvað jákvætt við það. Jú, þú munt hvorki hanga í vinnunni né símanum þegar nær dregur jólum. Tekur fljótt af. Mjög jákvætt. Alltaf jafn lánsamur. Ég myndi semsagt ekki fara að fylgjast með framhaldsþáttum í sjónvarpinu ef ég væri þú. Tekur því ekki. Sem er mjög jákvætt.

Ertu sáttur við mig? Flott. Það gera 9.990 krónur. Ef ég væri þú, sem ég er sem betur fer ekki, þá myndi ég borga þetta strax því þetta verður komið uppí 350.000 kall um mánaðarmótin með dráttarvöxtum og lögfræðikostnaði. Það er nú ýmislegt sem maður hefur lært af bönkunum. Takk fyrir kærlega. Guð veri með þér. Þú verður kominn til hans fljótlega. Engar áhyggjur. Mundu að vera jákvæður. Blessaður."

 

spákelling_sér_hreindýrakássu.jpgAðeins þrjár tegundir miðla eru verri en hinn klassíski miðill og þær eru: Íslenskur gjaldmiðill, íslenskir fjölmiðlar og íslenskir verðbréfamiðlar.

 

Eftir allt bankasvindilbraskið og spákaupmennskuna sem þjóðin hefur þurft að þola undanfarin ár þá held ég að miðlaspámennska og andaheimasólheimanonsens sé ekki akkúrat það sem hún þarf á að halda um þessar mundir. Og þó: Lifi svindlið og svínaríið!! Lifi geðveikin!! Skrifum undir Icesave-aftökuna og aftanítökuna með bros á vör!! Förum til spámiðla!! Verum jákvæð í garð svindlara og peningaplokkara!! Lifi jákvæðnin!!


Icesave-samningurinn er ekki til, að sögn Steingríms J.

Ævintýri í uppsiglingu.jpgHorfði á áhugaverða heimildarmynd um græðgi í gærkvöld, - "Leitina að týndu öxlinni" eða eitthvað svoleiðis eftir Steven Carlsberg. Þegar hún var búin hugsaði ég:

"Ætli það séu engir svona fágætir hlutir sem hægt er að leita að á Íslandi fyrir utan viðskiptaheiðarleika? Voðalega er Klakinn eitthvað boring."

Ég skrapp í netheima í Indjána Dow Jones fíling með hattinn og svipuna í huganum og fór að leita að einhverju trúverðugu og sönnu sem stjórnmála - og leyndarmálamaðurinn Steingrímur J. hefði sagt undanfarna mánuði. Hætturnar leyndust víða og oft erfitt að komast í gegnum lygavefinn og blekkingaholræsin. Í Kastljósi þann 3. júní síðastliðinn fann ég loksins sönn orð. Þar sat Steingrímur fyrir svörum og undir leyndarhjúp hjá Helga Seljan. Hér er þetta orðrétt:

 

Helgi: "Er eitthvað til í því sem hefur verið fleygt í dag að það líti allt út fyrir það að við þurfum að fara að taka á okkur að óbreyttu einhverja fleiri hundruð milljarða út af Icesave sem er mun meira heldur en gert var ráð fyrir og það sé verið að fara að ganga frá því, afþví að svona hefur þetta verið presenterað soldið í dag?"

Steingrímur: "Það eru algjörðar sögusagnir og þvert á móti gerum við okkur vonir um það að það sé kannski í sjónmáli miklu hagstæðari lausn í þeim efnum heldur en fyrri ríkisstjórn var búin að undirbúa."

Nákvæmlega. Alveg kórrétt. Það sem við erum að upplifa í dag í sambandi við Icesave samninginn eru bara sögusagnir og það meiraðsegja "algjörðar sögusagnir." Þar höfum við það. Við þurfum ekkert að óttast því Icesave-samningurinn er ekki til. Við þurfum fleiri svona stjórnmálamenn. Sérstaklega á tímum sem þessum.


mbl.is Icesave: Útgönguákvæði ekki afdráttarlaust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dínamítkassinn og reyksprengjurnar

ráðherra.jpgSkiljanlegt að Joly dínamítkassi skuli fara í fjölmiðla með kvartanir sínar þegar hún finnur að ríkisstjórnin er máttlaus reyksprengja sem vill hafa allt í þoku og gufu og vill halda áfram að vaða reyk. Eftir því sem Joly dínamítkassi segir sjálf þá hefur ekki verið hlustað á ráðleggingar hennar því Íslendingar kunna þetta jú alltsaman miklu betur. Það voru nefnilega þeir sem bjuggu til þetta mesta efnahagsglæparugl heimssögunnar og finnst að þeir hljóti þessvegna að vera akkúrat réttu mennirnir til að rannsaka það.

 

skeinipappír stjórnmálamanna.jpgRíkisstjórnin og kerfisþursarnir hafa fram að þessu reynt að bleyta í dínamítinu og sagt við Joly óbeinum orðum: "Hey þú þarna gamla beygla, þykist þú ætla að fara að segja OKKUR fyrir verkum? Hvern fjandann ertu að gera með vasaljós inní okkar myrkrakompum? Við erum íslenskir sjálfstæðir amatörar og látum ekki einhverja útlenska gribbu stjórna okkur og vasast í okkar myrkraverkum. Við erum búnir að vera á kafi í spillingunni áratugum saman þannig að við hljótum að vita hvað við erum að gera. Ef við kunnum að drulla á okkur þá hljótum við líka að kunna að skeina okkur, þó við munum ekki í svipinn hvernig eigi að snúa peningaseðlunum. Vertu úti!"

 

nýju föt keisaranna.jpgRannsókninni hefur verið haldið í fjársvelti og þegar Joly dínamítkassi hefur beðið um að fá hér skrifstofu til afnota þá hefur þetta verið undirtónninn: "Heyrðu kelling, hvað ertu alltaf að ybba gogg? Geturðu aldrei verið til friðs? Við höfum nóg annað að gera við peningana en að eyða þeim í þig og þína óæskilegu rannsókn á spillingunni og hruninu. T.d. þurfum við að hækka laun þingmanna og kerfissaltstólpa. Hvernig væri nú að þú myndir sýna smá sjálfsbjargarviðleitni og drullast með þína fokking fartölvu og allt þitt blaðarusl niðrá Kaffi Amsterdam eða Ölver og vinna þar? Heldurðu að við séum einhver félagsmálastofnun? Láttu spillinguna og okkur stjórnmálamennina sem hrærumst í henni í friði. Það er ekki svefnfriður fyrir þér kellingartuska. Vertu úti! Úti í Noregi!"

 

stjórnmálavampírur.jpgAuðvitað verður Joly dínamítkassi þreytt á þessu viðmóti og fer í fjölmiðla. Þá verða stjórnarvampírurnar hræddar því þær óttast ekkert meira en dagsljósið og kastljósið. Þær gætu fuðrar upp. Enda er núna fyrst örlítið farið að hlusta á Joly dínamítkassa - eftir þriggja mánaða vertu-úti-viðmót og endalausa útúrsnúninga, hindranir og vegatálma. Hún hafði náttúrulega vit á því að fara ekki í útrásarvíkingafjölmiðlana. Býst við að henni þyki það lyginni líkast að stærstu fréttaveitur landsins skuli ennþá vera í eigu eins útrásarvíkings. Það hlýtur að teljast eitt af mörgum heimsmetum okkar í heimsku sem hún hristir hausinn yfir.

 

eva_joly.jpgEkki má gleyma að það var ekki ríkisstjórnin sem hafði rænu á að draga Joly spæjó uppá Klaka heldur þáttagerðarmaður útí bæ. Lýsandi fyrir áhugaleysi og hugmyndafátækt stjórnmálamanna. Nokkrum mánuðum síðar var hún ráðin af stjórnvöldum og líklegast ætlast til að hún gerði ekki neitt frekar en þau sjálf, en líklega þótti hún heppileg sem ásýnd trúverðugleika. Íslenskur trúðsveruleiki þurfti alvarlegt andlit trúverðugleika.

 

Joly er eini erlendi sérfræðingurinn sem er að vinna í málinu þrátt fyrir þrábeiðni hennar um að fá fleiri slíka sér til aðstoðar. Á það hefur ekki verið hlustað frekar en annað, ekki fyrr en hún dró það fram í Kastljósið. Þá á að "skoða málið," einsog það heitir á máli pólitísku svæfingalæknanna.

 

íslensk stjórnmál.jpgJoly dínamítkassi er reyndur spæjari og finnur að sjálfsögðu áhugaleysið í kerfinu á að upplýsa nokkurn skapaðan hlut. Sauðsháttur og viðvaningsháttur stjórnvalda og embættismannakerfisins hefur ekki farið framhjá henni og henni finnst skiljanlega nóg komið af "stjórnun með skipulögðu aðgerðarleysi," einsog hún kallar það réttilega.

 

Púðurkellingarnar í ríkisstjórninni ráða Joly dínamítkassa og humma svo fram af sér allar ráðleggingar hennar. Sá sjúklingur er náttúrulega ekkert annað en rakið erkifífl sem reynir að segja heilaskurðlækninum hvernig hann eigi að vinna vinnuna sína: "Nei, þú átt ekki að nota svona beittan hníf. Þú átt að nota flísatöng og bitlausar tánaglaklippur."

 

islenskur_inspector_kluso.jpgMunurinn á íslenskum stjórnmálamönnum og Joly er að íslenskir stjórnmálamenn eru sérfræðingar í að klúðra hlutunum en Joly er sérfræðingur í rannsóknum á glæpsamlegu klúðri. Þeir eiga að opna svefndrukkin augun, sperra upp asnaeyrun og hlusta og halda sig á mottunni og halda sér saman og fara að ráðum hennar og reyna að læra og reyna að skilja að þjóðin hefur miklu meiri þörf fyrir eina Joly en þá alla til samans.

 

Það þarf dínamít til að sprengja upp maðkétið silalegt gegnumrotið kerfið og komast að krimmunum en ekki máttlausar reyksprengjur. Fýlubomburnar í ríkisstjórninni og embættismannakerfinu hafa reynt að svæla dínamítkassann burt frá rannsókninni en þær verða að fara að skilja að það eru ekki þær sem eru hæfar heldur Joly og ef þær munu ekki fara að ráðum hennar, sem hún var fengin hingað til að gefa þeim, þá mun allt heila klabbið springa í andlitið á stjórninni og stjórnin springa í loft upp í kjölfarið vegna þess að þjóðin sjálf er að springa.

 

 

(Birtist í Morgunblaðinu, 17. júní 2009)


Davíð, þjóðin og Steingrímur J.

doddsson_wanted_dead_or_alive_862314.jpgÞað er undarlegt þetta samband milli þjóðarinnar og Davíðs Oddssonar, eða sambandsleysi öllu heldur, og svo þetta ástarsamband milli þjóðarinnar og Steingríms J. Sigfússonar. Nokkur dæmi:

 

Davíð vildi ekki sjá IMF. Þjóðin vildi sjá IMF og vildi ekki sjá Davíð. Í dag vill þjóðin ekki sjá IMF en ennþá síður Davíð. Þjóðin vildi sjá Steingrím J. en Steingrímur vildi ekki sjá IMF, ekki fyrr en þjóðin var búin að gera hann að ráðherra. Þá vildi hann sjá IMF. Þjóðin treystir samt ennþá Steingrími en hatar Davíð.

 

Davíð vildi ekki sjá að allir hinir svokölluðu "frjálsu" fjölmiðlar væru á einni og sömu krumlu. Þjóðin vildi hinsvegar ekki sjá neitt athugavert við það og túlkaði þetta sem geðillskukast og öfund í Davíð.

 

Davíð vildi fjölmiðlafrumvarpið í gegn. Þjóðin vildi reka Davíð í gegn og vildi ekkert óþarfa fjölmiðlafrumvarp. Í dag vill þjóðin fjölmiðlafrumvarp. Steingrímur vildi ekki og vill ekki sjá neitt fjölmiðlafrumvarp. Þjóðin treystir samt ennþá Steingrími en hatar Davíð.

 

grís.jpgDavíð vildi ekki sjá Ólaf Ragnar. Meirihluti kjósenda vildi sjá Ólaf Ragnar og það aftur og aftur og aftur. Í dag er Ólafur uppgötvaður sem klappstýra útrásarvíkinganna og enginn vill sjá hann. Þjóðin er þarna orðin sammála Davíð. Samt situr Ólafur ótruflaður (af þjóðinni) en Davíð er böggaður kvölds og morgna.

 

 

Davíð var ekki par hrifinn af Baugi og útrásarloddurunum og var í raun eini maðurinn sem þorði að standa uppí hárinu á þeim. Þjóðin dýrkaði útrásarvíkingana og sagði að Davíð væri vitfirringur sem væri bara að reyna að hefna sín á þeim fyrir að hafa kyrkt Kolkrabbann. Í dag fyrirlítur þjóðin útrásardólgana. Bónus er hinsvegar ennþá vinsælasta verslunin, Samspillingin vinsælasti flokkurinn og Davíð óvinsælasti maðurinn.

 

frelsarinn_862317.jpgDavíð vildi ekki sjá það að greiða erlendar skuldir óreiðumanna. Baugsmiðlarnir bjuggu strax til hysteríu úr þessu og þjóðin lét teyma sig á asnaeyrunum einsog venjulega og trylltist gjörsamlega líkt og hún vildi alveg hreint endilega fá að borga erlendar skuldir óreiðumanna. Í dag vill þjóðin ekki sjá það að borga erlendar skuldir óreiðumanna. Það vill hinsvegar Steingrímur J. þó hann hafi sagt annað fyrir kosningar. Þjóðin treystir samt áfram Steingrími en hatar Davíð.

 

Jóhanna Sig. og "þjóðin" öskruðu Davíð í burtu, eina manninn á landinu sem hafði roð í útrásarþjófana, og tróðu Steingrími í ráðherrastól, manni sem sagði fyrir kosningar að myndi láta elta gangsterana uppi hvar sem til þeirra næðist og láta frysta eigur þeirra en að sjálfsögðu hefur hann ekki efnt það frekar en NOKKUÐ annað sem hann lofaði fyrir kosningar. Ekki EITT orð. Skjaldborgin sem hann og Jóhanna lofuðu t.d. að reisa um heimilin virðist eingöngu vera um þeirra eigin heimili og bankana.

 

Davíð vildi þjóðstjórn þegar allt var að hrynja. Þjóðin átti ekki til orð yfir slíkan hálfvitagang og meiraðsegja Þorgerður Katrín lét í það skína að kallinn væri með óráði. Í dag held ég að stór hluti þjóðarinnar sé sammála Davíð. Og þó. Líklega treystir hún ennþá Steingrími og Samspillingunni best til að leiða þjóðina útúr ógöngunum. (Ég hlýt að mega nota orðið "Samspillingin" þar sem ég bjó það orð nú til á sínum tíma, takkfyrir).

 

dr_jekyll_and_mr_hyde_862327.jpgDavíð vildi ekki sjá ESB og sagði það sem hann meinti og meinti það sem hann sagði. Þjóðin var klofin. Steingrímur J. sagði FYRIR kosningar að hann vildi ekki sjá ESB. EFTIR kosningar sáum við hvað gerðist. Fyrir undanlátsemina og vingulsháttinn fékk hann ráðherrastóla. Og þetta er maðurinn sem kallaði Davíð "gungu" og "druslu." Úfff.

 

Steingrímur J. hefur verið að vinna hörðum höndum að því að framkvæma allt sem hann lofaði fyrir kosningar að framkvæma ekki. Þjóðin hinsvegar hatar Davíð sem hún virðist í dag sammála um flesta hluti en elskar Steingrím J. sem hún er ósammála um allt.

 

Fyrir nokkrum mánuðum gerði þjóðin gasalega byltingu og heimtaði nýja ríkisstjórn, skiljanlega, því hin var vonlaus. En hvernig notaði þjóðin svo atkvæðisréttinn? Jú, kaus yfir sig sömu dugleysingjana og hugleysingjana sem höfðu ekki gert handtak þrjá mánuðina þar á undan; kaus meðreiðarsveina útrásarhlandaulanna sem stærsta flokk landsins og svo hentistefnukommúnista sem þann næststærsta. Þar af fengu þeir þrír flokkar sem komu með beinum hætti að hruninu, Sjálfstæðisflokkurinn, Framasóknarflokkurinn og Samspillingin um 70% atkvæða. Hver á að skilja þessa hringlandi vitlausu Reykáss-þjóð? Sálfræðingar sem sérhæfa sig í Stokkhólms-syndrominu?

 

vilmundur_gylfason.jpgÞjóðin vill greinilega engar breytingar. Hún reynir aldrei að hafa það sem sannara og betra reynist heldur aðeins það sem flokkshollara reynist. Hún rígheldur í sinn hrepparíg - flokksríg - sitt smáborgaralega þjóðarsport. Hún vill vera grilluð á daginn og láta snæða sig á kvöldin. Skilur ekki orð einsog þjóðstjórn, utanþingsstjórn, persónukjör, beint og milliliðalaust lýðræði o.s.fr. Enda setti hún framsýnasta þingmann síns tíma, Vilmund Gylfason, útá guð og gaddinn. Hefði þjóðin haft vit á því að hlusta á hann opnum huga fyrir 30 árum og parkera flokksdýrkun sinni þá er algerlega útilokað að hún væri í þessum sporum í dag. Sorglegt.

 

Ef sama fólkið er að mótmæla í dag og sem mótmælti fyrir nokkrum mánuðum þá er það raunverulega að mótmæla eigin trúgirni og einfeldni. Gleymskan og heimskan í algleymingi. Það er einsog þjóðin fæðist á fjögurra ára fresti og jafnvel innan við það.

steingrimur_j_mosdal_862335.jpgÓlafur Ragnar Reykás.jpgEftir næstu pottlokabyltingu og kosningar verðum við hreinlega að fá forsætisráðherra sem við getum kallað samnefnara þjóðarinnar. Það eru tveir sem koma til greina: Steingrímur J. Mosdal og Ólafur Ragnar Reykás.

 

(Birtist í Morgunblaðinu 11. júní 2009)


Tælenskar "sjálfsmorðs"aðferðir

Leikarinn Carradine fannst allsber þræddur uppá kjötkrók inní læstum kústaskáp með hendur bundnar fyrir aftan bak. Enn eitt sjálfsmorðið í Bangkok. Enn einn skápahomminn. Aðferðirnar sem einstaklingar nota til að útrýma sér í Tælandi eru afar áhugaverðar. Mjög algengt er að menn reyri tælenskt sjálfsmorð.jpgplastpoka utanum hausinn á sér, reki svo búrhníf á bólakaf í bakið á sér, bindi síðan hendurnar á sér með lampasnúru rækilega fyrir aftan bak og skjóti sig svo í hnakkann með afsagaðri haglabyssu. Þegar þessum fyrsta hluta sjálfsmorðstilraunarinnar er lokið þá fyrst byrjar nú gamanið því þá henda þeir sér gjarnan framaf svölunum í fallegum boga. Helst fyrir vörubíl til að tryggja að þeir komist nú örugglega vel dauðir frá þessari fyrirhöfn. Lögreglunni dettur aldrei í hug að hugsanlega gæti verið um morð að ræða. Nei, þetta eru alltsaman gríðarlegir Húdíníar sem eru að sálga sér.

 

keðjusögin klikkar ekki.jpgVinsælasta "sjálfsmorðs"aðferð þeirra í Tælandi sem vilja yfirgefa táradalinn á sem sársaukaminnstan hátt er að grípa góða keðjusög, sem á nú að vera til á hverju siðmenntuðu heimili, og spæna henni af alefli í mjóhrygginn á sér og sarga svo sem leið liggur alveg uppað haus, svona svipað og kjötiðnaðarmenn gera þegar þeir eru að úrbeina kindaskrokk. Þegar þessu nauðsynjaverki er lokið þá dýfa þeir hausnum á sér ofaní brennisteinssýru til að hressa sig aðeins við og svo hífa þeir sig upp á eyrunum og slengja sér uppá kjötkrók þannig að krókurinn fari vel á kaf í hálsinn aftanverðan. Þarna hanga þeir svo í vinnunni í góðu yfirlæti þangað til gamanið er búið og þeir geispa golunni saddir lífdaga. Þegar lögreglan mætir á svæðið þá strýkur hún hökuna íbyggin og segir: "Hér er greinilega um sjálfsmorð að ræða. Engin spurning. Virkilega faglegt og líflegt sjálfsmorð."

 

bakarofninn_er_must.jpgÞeir sem vilja vera verulega grand á´ðí þegar þeir stúta sér í Tælandinu byrja venjulega á því að brjóta á sér hnéskeljarnar með baseballkylfu eða stálröri. Síðan stinga þeir hausnum á sér inní bakarofn við 170 gráðu hita í ca 20 mínútur eða þangað til hausinn er orðinn medium steiktur einsog á stjórnmálamanni. Þá rölta þeir inná baðherbergi og ná sér í rakvélablað og skera sig snyrtilega á háls eyrna á milli.

Þegar þeim rakstri er lokið þá troða þeir oft og tíðum tusku uppí skoltinn á sér og teipa vel og vandlega fyrir. (Ekki veit ég hversvegna. Varla er það vegna þess að það er líf í tuskunum). Síðan taka þeir til við þetta klassíska; að múlbinda lúkurnar á sér fyrir aftan bak, sem virðist alveg ómissandi hluti af sjálfsmorðsleiknum í Tælandi. Þegar því verki er lokið þá reka þeir kjötsax af alefli milli herðablaðanna á sér og hlaupa svo einsog þeir eigi lífið að leysa að stofuglugganum og fleygja sér í gegnum hann með miklum bravör. Þessi tælenska "sjálfsmorðs"aðferð klikkar ekki, nema ef menn búa í kjallara eða á jarðhæð. Svonalagað er reyndar stundum flokkað sem "andlát af slysförum" til að hugga aðstandendur.

 

maður í sjálfsmorðshugleiðingum.jpgNokkur hundruð manns sálga sér árlega á ofangreindan hátt í Tælandi, þar á meðal túristar í ríkum mæli. Lögreglan kallar þetta að "falla fyrir eigin hendi," nú eða að "látast af slysförum" og finnst ekkert sjálfsagðara og hversdagslegra undir sólinni en múlbundinn sjálfsmorðingi með heykvísl í bakinu.

Því fleiri eldhúshnífa og gaffla og sveðjur og kjötsagir sem menn eru með í bakinu því meiri líkur telur lögreglan á að um sé að ræða dauða af eðlilegum orsökum, t.d. hjartaslagi. Allavega hjartastoppi. Það er því alveg augljóst að David Carradine dó eðlilegum dauðdaga. Eðlilegum tælenskum dauðdaga.


mbl.is Fjölskylda Carradine í uppnámi vegna ljósmynda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Munurinn á stjórnmálamönnum og almennum borgurum

amma_gamla.jpgÞessa hryllingssögu sagði amma mér þegar ég var á viðkvæmasta aldri. Eitthvað um fertugt. Þess má geta til fróðleiks, þó það komi sögunni ekki beint við, að hún vann lengst af við þjónustustörf á hinum ýmsu götuhornum stórborganna og var vel rið...liðin af öllum sem til hennar leituðu.

Ég hafði spurt ömmu gömlu: "Amma gamla, er einhver svo mikill munur á stjórnmálamönnum og okkur, þessum svokölluðu almennu borgurum? Ég meina, eru þeir ekki líka fólk? " Amma setti upp vandlætingarsvip og hristi hausinn einsog ég væri orðinn eitthvað geðveikari en venjulega og jafnvel á leiðinni inná þing. Svo varð hún íbyggin á svip, strauk sér um ósnyrt skeggið og plokkaði flatlýs uppúr nærbuxunum sem hún kramdi annarshugar milli fingranna. Loks tók hún til máls og sagði mér eftirfarandi sögu:

 

skíthaus.jpgDag einn fór prestur til rakarans. Eftir klippinguna spurði hann hvað hann ætti að borga mikið og rakarinn svarar:

"Ég get ekki fengið af mér að taka við peningum frá heilögum ríkisstarfsmanni - himnaríkisstarfsmanni. Sumir segja að þið séuð atvinnulygarar og skíthausar en það er guð einn sem dæmir að endingu. Ég gaf þér klippingu við hæfi. Allt í boði hússins."

Presturinn þakkar kærlega fyrir sig og fer sína leið. Daginn eftir þegar rakarinn mætir til vinnu sér hann hvar þakkarkort liggur við dyrnar og nokkrir kassar af þrælsterku messuvíni og heilu pokarnir af oblátum með paprikubragði.

 

lífvörður Ólafs konungs Grímssonar.jpgStuttu síðar kemur lífvörður hans hátignar, Ólafs Ragnars, í klippingu. Hann er með afar langan haus, einsog lífverðir af gamla skólanum eru yfirleitt með, og býst því við að þurfa að borga einhverja reiðinnar býsn. Eftir þessa líka fínu herraklippingu spyr lífvörðurinn hvað hann eigi nú að borga margar milljónir flotkróna fyrir herköttið. Rakarinn svarar:

"Þó að svínaflensuna megi kannski rekja til Óla grís þá er Ólafur konungur hreinn dýrð...dýrlingur og ég kann ekki við að þiggja peninga af manni sem er í þjónustu hans hátignar. Ég ætla ekki að svína á þér. Þú færð þetta frítt."

Lífvörðurinn þakkar pent fyrir sig og gengur hamingjusamur á braut. Þegar rakarinn mætir til vinnu daginn eftir bíður hans þakkarkort við dyrnar og heill haugur af fálkaorðum og stórriddarakrossum.

 

hagfræðiprófessor.jpgStuttu síðar birtist hagfræðiprófessor með stærðar skalla sem minnti á gatið á ósónlaginu. Þrjú einmanaleg hár stóðu uppúr hausnum á honum einsog kaktusar í eyðimörk.

"Fá hjá þér eina kótelettuklippingu," segir spekingurinn.

"Einmitt. Þú ert akkúrat með hráefnið sem þarf í væna kótelettu. Þrjú ýlustrá. Ekki málið," segir kraftaverkalæknirinn og fer að klippa og klippa einsog hann eigi lífið að leysa þannig að það er einsog 10 skæri séu á lofti samtímis. Eftir hamaganginn spyr prófessorinn hvað hann eigi nú að borga honum margar alíslenskar fallnar flotkrónur fyrir áreynsluna. Rakarinn svarar:

"Þú ert illa launaður kallinn minn og ég hef ekki brjóst í mér til að vera að taka við peningum af aumingjum og vesalingum sem kunna ekki að telja upp að þremur. Þar að auki ertu með jafn lítið á hausnum og í honum svo þetta er ekkert mál. Þetta er ókeypis."

Prófessorinn klökknar af þakklæti og gengur bljúgur á dyr. Morguninn eftir þegar rakarinn mætir til vinnu bíður hans þakkarkort við innganginn og heilu raðirnar af bráðnauðsynlegum fróðleiksbókum einsog t.d:  "How to Improve Your Business," "Becoming More Successful" og "How to Rape a Nation Without Breaking Your Dick" o.s.fr.

 

stjórnmalamaður.jpgStuttu síðar sest stjórnmálamaður í stólinn og hann fær þessa líka skínandi fínu mafíósaklippingu. Stjórnmálamaðurinn brosir breitt þannig að skín í blóðrauðar vígtennurnar og þegar hann spyr hvort hann neyðist ekki til að borga eitthvað fyrir þetta, segir rakarinn: 

"Heyrðu elsku vinur, þú ert að vinna óeigingjarnt og stórkostlegt starf fyrir okkur smælingja þessa lands. Þú hugsar aldrei um eigin hag heldur aðeins þjóðarhag. Þú hefur harðsoðið fjöregg þjóðarinnar í hendi þér og vinnur fórnfúst starf sem þjónn almennings og ég get ekki fengið af mér að rukka slíkt erkifí...slíkan erkiengil."

Stjórnmálamaðurinn brosir allan hringinn, hoppar uppúr stólnum af kæti og hraðar sér út. Morguninn eftir þegar rakarinn mætir til vinnu sér hann hvorki þakkarkort né gjafir við dyrnar einsog svo oft áður heldur einungis langa biðröð af stjórnmálamönnum.

 

Amma gamla sagði að þetta væri grundvallarmunurinn á stjórnmálamönnum og almennum borgurum.

Menn valda ekki valdinu

bush_retard_853145.jpgÞað er skrítið með mannskepnuna, það er einsog hún megi ekki fá smá völd í hendur án þess að ganga alveg af göflunum. Hitler, Stalin, Mussolini og Hussein og þessir séntilmenn allirsaman voru í grunninn ekkert verri menn en gengur og gerist þó þeir hafi kannski ekki beint verið sligaðir af kristilegri samvisku, en þegar þeir komust til valda þá umhverfðust þeir gjörsamlega og fóru að munda kjötsaxið. George W. Bush var hinsvegar fæðingarhálfviti og kristnari en guð og ekki tækur í þessu sambandi, enda tilheyrir hann jurtaríkinu.

 

Gamli frasinn: "Vald spillir og alræðisvald spillir algerlega," er örugglega ekkert nema sannleikur. Þó að íslenskir forsætisráðherrar hafi ekki verið miklir og merkilegir fjöldamorðingjar þá held ég að það sé mjög áríðandi að þeir sitji ekki lengur en í 8 ár, sama hversu góðir þeir eru. Dabbi átti t.d. bara að sitja í tvö kjörtímabil og standa þá upp og segja: "Þetta er orðið alveg ágætt hjá mér. Best að hætta á toppnum. Þjóðin er orðin góðærð og feit og fín og ég er kominn með rasssæri og meinsæri og sieg-hælsæri og nú pakka ég saman öllum mínum bláu hönskum og bláu spólum og fæ mér vinnu í Bónus. Ég er farinn í klippingu, þá fyrstu í 20 ár. Bless."

 

a-monkey-king.jpgPostulínsdúkkurnar á Bessastöðum eiga sömuleiðis ekki að sitja lengur en í 8 ár. Menn verða værukærir og missa allt jarðsamband og gleyma sér í rjómatertusmjatti, sjálfsdekri og gleiðgosahætti. Í viðtali sem ég átti við Ólaf Ragnar rétt áður en hann varð kóngur sagði hann einmitt að forsetinn ætti ekki að sitja lengur en tvö kjörtímabil og að hann myndi allsekki sitja lengur en 8 ár næði hann kjöri. Það skemmtilegasta við Ólaf er að sannleikurinn er aldrei neitt að þvælast fyrir honum þegar hann talar. Uppáhalds Stuðmannalagið hans er að sjálfsögðu "Bara ef það hentar mér."

 

dverga(úr)kast.jpgUm þessar mundir er enn einn dvergurinn að gera sig breiðan og stóran, Kim Wrong Ilsig í Norður Kóreu. Það er búið að fara lengi í taugarnar á honum að honum skuli aldrei vera boðið í alheimspartýin með stóru köllunum og finnst að það sé litið niður á sig á alþjóðavettvangi. Auðvitað er litið niður á dverga. Ekki annað hægt. Þetta er stubbur. Hann var ekki einusinni hár í skóla, frekar en annarsstaðar. Hann getur ekki vaxið neinum yfir höfuð enda vex hann ekki yfir höfuð. Og hvað tekur hann þá til bragðs? Jú, fer að drullumalla kjarnorkusprengjur og reynir að gera heiminn hræddan við sig. Alveg dæmigert fyrir smáborgara.

 

 

Roll over... 

 

Ef Hitler sæi þann hrylling sem nú er á döfinni,

þann hörmungar kjarnorkuviðbjóð sem við höfum lært,

þá mynd´ann vafalaust snúa sér við í gröfinni;

sér velta á hina hliðina´og sofna vært.

 

(Úr ljóðabók minni "Með ósk um bjarta framtíð," 1997).
mbl.is N-Kórea harðlega gagnrýnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðin var myrt en enginn drap hana

Útrásarvíkingaskápur.jpgÓlafur Þór Hauksson ber titilinn "sérstakur saksóknari" sem hlýtur að vera vísun í það að hinir séu ekkert sérstakir. Fyrst núna, um hálfu ári eftir hrunið, er loksins farið að róta í einhverjum löngu tæmdum skúffum og sótthreinsuðum líkskápum og yfirheyra einhverja dúdda og myglusveppi. Hvað þarf að gerast til að það vakni "rökstuddur grunur" um að eitthvað sé ekki alveg einsog það á að vera?

 

Þegar hundruð milljarða voru selfluttir úr Ice"save" út í buskann, vaknaði þá aldrei "rökstuddur grunur" um að eitthvað pínulítið spúkí hlyti nú að vera í gangi? Réttlætti sá gjörningur ekki að taka forsvarsmenn þessa undarlega kompanís til yfirheyrslu? Menn eru settir í gæsluvarðhald af ca milljón sinnum minna tilefni.

 

Þegar Bretar settu hryðjuverkalög á Landsbankann í kjölfarið, vaknaði þá aldrei örlítill vottur af "grun" um að það gæti nú hugsanlega verið einhver ástæða fyrir því, fyrir utan timburmenn Gordons Gin Brown? (Gauð Haarde þorði náttúrulega aldrei að lyfta upp tólinu til að komast að því sjálfur).

 

olafur-sigurdur-sheik.jpgÞegar stórfurðuleg viðskipti Ólafs Ólafssonar og Kaupþings við einhvern sjeikí Arabíu-Lawrence og hundruð milljarða tilfærslur komu fram í dagsljósið, (viðskipti sem Ólafur sagðist hafa átt við hann til að græða örugglega ekki eina krónu á þeim sjálfur), þurftu þá að líða margir mánuðir þangað til einhver sagði: "Vitiði strákar, ég hef það einhvernveginn á tilfinningunni að það sé ekki alveg allt með felldu í sambandi við þetta dæmi, þrátt fyrir að það hafi verið Dabbi djöfull sem sendi okkur bréfið um að Kaupþing starfaði líklega ekki alveg eftir reglum himnaríkis."

 

doddsson_wanted_dead_or_alive.jpg(Merkilegt að búsáhaldartrommuleikurunum skyldi aldrei hafa dottið í hug að ónáða neina af útrásarhetjunum. Davíð skyldi hinsvegar böggaður úr Seðlabankanum með eggjakasti og sprengingum hvað sem tautaði og raulaði, enda væri þar á ferðinni einhver sá alhættulegasti maður sem jarðarkringlan hefði alið. Hann var THE most wanted asshole of the planet - dead or alive - dead or a stonedead - í nafni Guðs, sonar og heilags Baugs. Það yrði bókstaflega að fá norskan farandhagfræðing í hans stað til að hækka stýrivextina til himnaríkis. Þá myndi allt komast í himnalag, ég tala nú ekki um ef jarðfræðingurinn og íþróttafréttamaðurinn Steingrímur J. yrði fjármálaráðherra og flugfreyjan Jóhanna yrði forsætisráðherfa. Þá væri okkur endanlega borgið. Segir sig sjálft. Enda er allt í orden í dag, einsog sést).

 

Þegar eitt stykki land fer á hvínandi kúpuna, vaknar þá virkilega ekki nægilega "rökstuddur grunur" um að eitthvað sé nú bogið við þetta mambó alltsaman sem réttlætir að taka þá engla í smá spjall sem líklega hafa nú ekki allt of hreina vængi á bakinu, fyrr en hálfu ári eftir að allt fór til helvítis? Ég hef ansi sterkan og "rökstuddan grun" um að Jón Jónsson væri kominn í dýflissu samdægurs ef minnsti grunur léki á að hann hefði stolið nokkrum íslenskum flotkrónum úr spreðigleðibönkum útrásarhöfðingjanna.


mbl.is Unnið úr leitinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tíu lygnir landráðamenn

Ég gerði þennan texta hér að neðan í desember í fyrra þegar Imba Solla og Geir Hordeli sátu við stjórnvölinn, eða lágu öllu heldur, sofandi svefni hinna réttlötu á sínu græna eyra. Lítið hefur breyst síðan þá, nema hvað nú sefur stjórnin svefni hinna réttlátnu á sínu Vinstri græna eyra.

 

rikisstjornin_i_skyjunum_851754.jpg"Skjaldborgin" sem ríkisstjórnin lofaði að slá um heimili landsins eftir pottlokabyltinguna reyndist því miður spilaborg rétt einsog bankarnir, sem stjórnin hinsvegar leggur allt kapp á að slá skjaldborg um. Sjálf lifir stjórnin í skýjaborg, fjarri raunveruleikanum og hótar því fólki öllu illu sem hvorki getur borgað af lánum sínum né kærir sig um að reyna að slökkva útrásareldana með blóði sínu. Stjórnin er jarðsambandslaus, alveg í skýjunum. Ground control to major Dumb!!!

 

flóttavíkingur_part_1_851755.jpgÚtrásargarparnir, sem voru svo örlátir á fé til stjórnmálamanna, ganga skiljanlega ennþá lausir, aldrei hamingjusamari. Reyndar eru þeir sumir farnir að flýja land á venjulegum Icelandair vélum (enda vanir öllum "vélum") á monkey class til að bæta ímyndina, en þeir og þeirra fjölskyldur hafa engu að síður ekki undan að spæna í sig rándýru loðfílakjöti og risaeðlueggjum og steypa í sig úrvals kampavíni og greifast villt og galið þegar út er komið.

 

Ég las einhverstaðar að bankahrunið íslenska væri stærsta gjaldþrot veraldarsögunnar frá upphafi - frá því að maðurinn steig fyrst niður úr trjánum. (Kannski að við Íslendingar ættum að flytja þangað aftur?). Íslensk viðskiptasnilld mun semsé fara í Heimsmetabók Guinnes og þá líklegast einnig það afrek að þeir sem eru "grunaðir" um stórglæpinn skulu ekki ennþá hafa verið teknir svo mikið sem í 25 kerta ljósaperu yfirheyrslu. Það hlýtur bókstaflega að vera heimsmet í blábjánahætti.

 

Hvað um það. Þetta lag, Tíu lygnir landráðamenn, ætlar Serðir Monster vinur minn að vera með á plötu sinni "Tekið stærst uppí sig" sem kemur út í haust. Lagið má finna í tónlistarspilaranum hér til vinstri á síðunni.

 

 

flóttavíkingur_part_2_851758.jpgTíu lygnir landráðamenn

 

Tíu lygnir landráðamenn

létu þjóð fá klígju.

Einn þaut í einkaþotu burt

og þá voru eftir níu.

 

Níu sekir ráðherraræflar

reyndu að leita sátta.

Einn þeirra sprakk úr spillingu.

Hvenær springa hinir átta?

 

Átta sofandi eftirlitsbjánar

umluðu mö mö mö.

Einn þeirra sofnaði svefninum langa.

Þá sváfu eftir sjö.

 

Sjö bústnir bankaþjófar

brugðu sér inná Rex.

Einn var tekinn og barinn í buff,

bólgnir voru sex.

 

Sex rotnir kaupréttarkálfar

kunnu þjófstartstrimm.

Einn þeirra flúði til Öfganistan,

og eftir sátu fimm.

 

flóttavíkingur_part_3_851762.jpgFimm svikulir útrásarasnar

ætluðu að verða stórir.

Einn sökk í miðja milljarðahít,

því miður sluppu fjórir.

 

Fjórir gráðugir glæpamenn

grilluðu landsins kýr.

Einn þeirra át yfir sig

og eftir voru þrír.

 

Þrír óhæfir alþingisstrumpar

ákaft hylltu Geir.

Af lotningu leið yfir einn,

og eftir voru tveir.

 

Tveir geislaBaugsmenn í banka

brytjuðu gögn sem einn.

Annar tróð sér í tætara,

á tánum var þá einn.

 

Einn hryðjuverkavibbi

vildi komast heim.

En ekki hafa áhyggjur,

það er víst nóg af þeim.

 

 

Stormsker: Söngur, bakraddir, píanó, kassagítarar, trommur, bassi, orgel, synthi og rafmagnsgítarar.

Upptakari: Snorri Snorrason idolstjarna.

Mixarar: Snorri og Stormsker.

(Baggalúti þakka ég innspírasjónina).


mbl.is Rannsakar Glitni nú en áður Saddam
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðtal mitt við Júrótröllið Johnny Logan

Enginn hefur oftar unnið Eurovision en írski söngvarinn Johnny Logan. Alls þrisvar sinnum. Það met verður seint slegið. Ég tók fyrst almennilega eftir því hvað kallinn var helvíti góður söngvari þegar hann bauð okkur Júróförunum í lítið partý ´88 og tók þar nokkur lög. Brilleraði gjörsamlega.

 

stormsker_og_logan_23_05_08_b.jpgÞann 23. maí í fyrra hitaði ég upp fyrir Johnny á Hótel Íslandi. Hann hafði óskað sérstaklega eftir því við tónleikahaldarann Daníel Birgisson. Ég átti stutt viðtal við Johnny niðrí búningsherbergi áður en ég fór á sviðið og eftir spjallið var smellt af okkur þessum ágætu hryllingsmyndum. Ég ætlaði að birta þetta viðtal í einhverju blaði í fyrra en það varð ekkert úr því. Læt það flakka núna þar sem Júróið er nú í algleymingi. Þó þetta hafi kannski verið soldið skrítið viðtal þá fór það mjög friðsamlega fram. Svona er viðtalið orðrétt:

 

Hefur þér aldrei dottið í hug að nútímavæða nafnið þitt á tölvuöld og kalla þig  Johnny Login?

„Nei en ég hef kallað sjálfan mig mörgum öðrum nöfnum."

En Johnny Low-Gang?

„Nei, en ég hef kallað sjálfan mig Jenny Loganawitch."

Það myndi ég líka gera ef ég væri kynskiptingur. Ef þú þyrftir að breyta nafni hljómsveitarinnar hvort myndir þú þá velja nafnið Johnny and the Silver Beatles eða Johnny and the Golden Shower, nú eða Johnny and the Low-Gang?

„Myndi ekki hvarfla að mér að breyta nafninu."

Ef þú sæir Heather Mills (fyrrum eiginkonu McCartney´s) á götu hvort myndir þú ganga að henni og hvísla í eyrað á henni: „Hold me now," eða saga af henni heila fótinn og berja hana með honum?

„Spyrja hana „Why?"

Samdirðu lagið „What´s Another Air" til uppblásinnar dúkku?

„Það heitir reyndar "What´s Another Year" og Shay Healy samdi það."

Nú ert þú gagnkynhneigður held ég og mikið fyrir fallegar heilvita stelpur, en hvernig kanntu hinsvegar við femínista?

„Ekkert vandamál."

Jú, þeir eru reyndar vandamál, en finnst þér Eurovisionkeppnin vera hommalegri núna en hún var þegar þú tókst þátt í henni síðast fyrir rúmum 20 árum?

„Nei."

Finnst þér að hún mætti vera ennþá hommalegri en hún er núna?

„Nei, ég sá hana aldrei í þessu ljósi."

Finnst þér að það eigi að gera það að skilyrði fyrir þátttöku í keppninni að allir karlkyns flytjendur séu saurþjöppur?

„Nei, bara að þeir séu færir um að syngja."

Hvað heitir félagsmálaráðherra Albaníu?

„Ekki minnstu hugmynd."

Hvort heldur þú að skipti meira máli í dag í Eurovision, gott lag eða flott show?

„Gott lag."

Grætirðu af hrifningu þegar þú heyrir nýja íslenska lagið með Eurobandinu eða missirðu trúna á mannkynið?

„Bara ánægður með að þau skyldu hafa komist upp úr forkeppninni."

Afhverju ertu viss um að íslenska lagið muni hafna á botninum? Er það vegna þess að söngvarinn vill vera í botnunum?

„Hef ekki hugsað út í það."

Hvort myndir þú vilja að Osama bin Laden héldist á lífi í 4 ár í viðbót eða að George W. Bush sæti enn eitt kjörtímabilið?

„Drepa þá báða og láta hyldýpið leysa málið."

stormsker_og_logan_23_05_08_a_847700.jpgHeldurðu að þjóðríki einsog Vestmannaeyjar gæti einhverntíma átt smugu á að vinna Eurovision?

„Veit ekki alveg um hvað þú ert að tala."

Þú hefur greinilega fengið 10 í landafræði. Með kommu á milli. Hvað hefurðu lært í mörg ár á munnhörpu og túbu?

„Ég spila í rauninni á hörpu, ekki á túbu."

Finnst þér að dvergar ættu að hafa sömu mannréttindi (human rights) og fullvaxta fólk?

„Nei, meiri, og ekki bara rights heldur lefts."

Kemur það oft fyrir að kellingar hendi nærbrókunum sínum og hótellyklinum uppá svið þegar þú ert að skemmta?

„Ekki nógu oft."

En þegar það gerist hvort þefar þú þá af nærbrókunum og kastar þeim með hryllingi út í sal aftur, eða stingur þeim innan á þig og þefar af þeim þegar þú kemur upp á hótelherbergi?

„Hvorugt."

Hefur það komið fyrir að gamlir sveittir feitir og fúlskeggjaðir vörubílstjórar hafi fleygt nærbuxunum sínum upp á svið?

„Ekki beinlínis."

En þegar það gerist hvort hefur þú þá þefað af bremsuförunum á sviðinu og stungið nærbrókunum inn á þig eða bara stungið þeim strax inná þig og þefað af þeim þegar þú hefur verið kominn uppá hótelherbergi?

„Hvorugt svo ég muni."

Svo þú munir? Einmitt. Hvort semur þú lögin þín á sekkjapípu eða hermannalúður?

„Á píanó."

Hefurðu einhverntíma fengið svo mörg egg og tómata í hausinn á tónleikum að þú hafir pælt alvarlega í því að opna matvöruverslun?

"Ég hef aldrei fengið neitt svona í hausinn."

En múrsteina?

"Nei, aldrei." 

Hvað hefurðu þá fengið í hausinn?

"Ég hef aldrei fengið neitt svona í hausinn?"

Ertu alveg viss? Þú ert semsagt bara fæddur svona? En hver er frægasti homminn sem þú hefur hitt fyrir utan söngvarann Boner í U2?

„Elton John."

Veistu hversu margir erlendir söngvarar hafa verið skotnir í vömbina með afsagaðri haglabyssu á Íslandi sem spila ekki réttu lögin fyrir fólkið?

„Gomma."

Heldurðu að þú náir upp góðri stemningu á Hótel Íslandi eða áttu von á því að vera spreyaður með táragasi og fjarlægður með lögregluvaldi?

„Ég held að hvorugt muni gerast. Get ég átt von á því?"

Já, ef ert eitthvað ósáttur við íslenskt verðlag. Passaðu þig bara á að vera ekki með neitt múður á milli laga.

„Ókey, ég skal passa mig á því."

Hvar léstu sauma þessa hárkollu sem þú ert með?

"Þetta er ekta."

Ekta hárkolla?

"Nei, ekta hár."

Einmitt. Þú ert flottur brandarakarl. Hvort ætlarðu að syngja eða vera með stand up show í kvöld?

"Ég er söngvari."

Einmitt. Og ég er Spiderman. Þakka þér fyrir spjallið. Viltu ljúga einhverju meiru svona í lokin?

"Ég bara vona að allir skemmti sér vel í kvöld."

Þú vonar það já. Er þetta óraunsæi meðfætt eða þarf maður að hafa mokað í sig smjörsýru? Þú þarft ekki að svara þessu. Ég fer núna á sviðið og þú heldur bara áfram að lifa í voninni kúturinn minn. Þakka þér aftur fyrir spjallið. Ertu ekki bara annars happy?

"Jú jú, ég er mjög hamingjusamur."

Gott. Ég vildi að eg gæti sagt það sama um fólkið sem mun hlusta á þig á eftir. Vertu blessaður.

"Blessaður."

Vertu blessaður. Blessaður, blessaður, blessaður, blessaður.

"Blessaður."

stormsker_og_logan_23_05_08_jsm6588_847703.jpgVertu alveg hreint margblessaður í bak og fyrir.

"Já, takk. Vertu sæll."

Ég veit það nú ekki. Ég er að fara að hlusta á þig á eftir.

 

Við semsagt kvöddumst svona vel og vandlega og hittumst svo aftur klukkutíma síðar og fengum okkur í glas.

Jóhanna Guðrún í gardínuafgöngum frá helvíti

Jóhanna Guðrún í vibbanum.jpgÞegar maður skoðar sígaunalarfana sem Jóhanna Guðrún ætlar að pínast í á Júróvisjón sviðinu annað kvöld þá fer ekki á milli mála að það er kreppa á Íslandi. Algjört hrun, á öllum sviðum. Var virkilega ekki til neitt skárra í Kolaportinu en þessir fáránlegu samansaumuðu þvottapokar? Hvaða handrukkari þröngvaði henni eiginlega í þennan ófögnuð? Annþór? Magabeltið er svo vandlega hert að henni að það er einsog bjórvömbin sé á leiðinni uppúr brjóstahaldaranum.

 

Jóhanna Guðrún flaggar bollunum.jpgMér finnst að vel vaxin blaðra einsog Jóhanna eigi ekki að klæða af sér kynþokkann. Jóhanna, sem hefur þessar líka fínu bollur, (sjá mynd til vinstri), lætur ekki einusinni sjást í skoruna. Hvorki að framan né að aftan einsog sexý pípari. Ég er ekki að segja að það sé dauðasök en það er ekki alveg nógu hressandi. Þetta væri náttúrulega ókey ef hún væri í laginu einsog jólatré en nú vill svo til að þetta er rennileg skonsa og rennilegar skonsur eiga að nota það sem guð gaf þeim, og hvað er það besta sem guð gaf almennilegum konum? Jú, fegurð og kynþokka. That´s it. Ef þær væru ekki sætar og ísmeygilegar þá hefðum við karlaparnir ekkert við þær að tala og værum bara að drullupumpast hvor á öðrum villt og galið einsog fangar og mannkynið myndi þurrkast út.

 

Ruslana með vibratorinn góða.jpgRuslana hefði aldrei náð fyrsta sætinu ef hún hefði verið í ruslatunnupoka á sviðinu á sínum tíma. (Sjá víbratormyndina af henni hér til hægri). Röddin eða breinið var ekki það besta sem guð gaf Ruslönu heldur líkaminn og það vissi Ruslana og þessvegna brúkaði hún hann að sjálfsögðu til hins ítrasta og fólkið keypti það sem hún hafði uppá að bjóða. Líkamann. Það er til lítils fyrir konur að vera gefinn flottur líkami ef þær vilja ekki eða kunna ekki að selja hann.

 

Klámmyndakroppur einsog Jóhanna á að sjálfsögðu að vera í blautbol og engu öðru. Jú og kannski nærbuxum. G-streng. Hún á að tæta af sér þessa viðurstyggilegu helbláu blúndugardínuafganga sem einhver afdankaður tískuplebbi hefur fundið í leikmunadeildinni í Valhöll, og skvera sér í blautbolinn og sýna hvað í henni býr, eða hvað á henni býr öllu heldur. Ef hún gerir það þá erum við í góðum málum og náum sextánda sætinu með stæl. Ef hún gerir það hinsvegar ekki þá erum við í tómu tjóni og höfnum í helvíti einsog landið sjálft. Og það þýðir mánaðar þjóðarfyllerí. Þá er of seint fyrir Jóhönnu að verða blaut.


mbl.is Lokaæfing fyrir undanúrslitin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skítugustu og leiðinlegustu borgir heimsins

reykjavik.jpgHef aldrei orðið var við þennan gasalega óþrifnað sem á að vera í London nema hvað varðar tannhirðu Breta. Klósettið hjá mér er líklegast hreinna en skolturinn á hinni dæmigerðu bresku herfu. Kannski að þessi könnun hafi eingöngu náð til homma og þeir sjá náttúrulega skít í hverju horni og hverju gati. Veit það ekki. Þeir vilja náttúrulega vera í djúpum skít. Draumadjobbið.

 

Fjölmargar heimsborgir eru nú mun ógeðslegri en London og má þar nefna Aþenu, Reykjavík, Calcutta, Eskifjörð og Kulusuk, svo dæmi séu tekin.

 

Þeir sem telja að næturlífið í London sé það besta og skemmtilegasta í heimi hafa greinilega bara komið til London. Ef menn flokka það sem skemmtun að fara á næturklúbba og horfa á rappandi kafarabúninga með derhúfur og pulsuvarir þá er náttúrulega mjög lítil hætta á að þeir fái lekanda en "skemmtunin" er svona álíka mikil og að horfa á málningu þorna.

 

Og þeir sem halda að Brussel sé leiðinlegasta borg heimsins hafa augljóslega hvorki komið til Stokkhólms né Reykjavíkur. Hvað þá Osló. Það verða að teljast þrjár siðprúðustu, geldustu og alleiðinlegustu borgir alheimsins með fullri virðingu fyrir Frankfurt og Borðeyri við Hrútafjörð. 


mbl.is Skítugasta borgin en besta næturlífið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband