23.12.2008 | 13:03
Land-Ráðamenn biðja um blóð
Það er deginum ljósara að stjórnmálaslúbbertarnir ætla sér að varpa öllum byrðunum á beinabert bogið bak þjóðarinnar. Á tyllidögum fjasa þeir um mannauðinn og gildi menntunnar og bla bla bla, en þá loksins þessir jarðsambandslausu aular þora að taka ákvarðanir þá miða þær allar að því að skera niður í mennta - og heilbrigðiskerfinu og sökkva fólki dýpra í skuldafenið og flæma það úr landi. Á sama tíma moka þeir undir taðgatið á sjálfum sér og geta ekki einusinni drullast til að afnema eftirlaunafrumvarpið með öllu. Það tók korter að keyra það í gegnum þingið en er búið að taka 5 ár að skralla efsta lagið ofanaf því þrátt fyrir loforð Samspillingarinnar um algert afnám þess. Þessir bananar eru bíða eftir einhverju miklu harðarara en snjóbolta í galtóman hausinn.
Þeir sýna engan vilja til að taka á úrásaröpunum og það gefur fólki skiljanlega þær hugmyndir að þeir sjálfir séu maðkétnir og gjörspilltir og innvinklaðir í bankasorann og að þeirra eigin pöddur hvíli undir hverjum þeim steini sem þeir eru sífellt að lofa að velta við. Það eru nær 3 mánuðir frá hruninu og enn eru menn að "rannsaka" sjálfa sig og enn kemur Björgvin G. af fjöllum einsog rammvilltur jólasveinn í öllum málum og enn er Geir fálmandi og hikstandi einsog blindur róni og enn eru gefin loðin svör og fólki haldið í þoku og óvissu og enn er "verið að skoða málin" (stinga þeim undir stól) og enn eru málin "í ákveðnum farvegi" (í pappírstæturunum) og enn sitja sömu strumparnir í bönkunum og enn láta hákarlarnir greipar sópa um allt fémætt sem eftir er í brunarústunum og enn hrýtur Fjármálaeftirlitið og enn ganga útrásarhryðjuverkamennirnir lausir.
Forsetinn, sameiningartákn útrásarþjófanna, býðst í auglýsingaskyni til að fá laun sín lækkuð úr tæpum tveimur milljónum í 1700.000 í stað þess einfaldlega að gefa helming þeirra þegjandi, hljóðalaust og skrumlaust í Mæðrastyrksnefnd. Ýldustækjan er kæfandi hvert sem fólk rekur nefið. Þorláksmessukötustækjan virkar sem rósaangan í samanburði. Aðstæður núna eru kjörnar til allsherjar hreingerninga og uppstokkunar en engu skal breytt. Öllu skal sópað undir teppið. Allt verður við það sama. Enginn banani skal fá að falla til jarðar af lýðveldistrénu. Það á greinilega að halda þjóffélaginu áfram í heljargreipum spillingar, óréttlætis, fúsks, yfirstéttarhagsmuna og heimsku. Fólk sér í hendi sér að það mun ekkert breytast. Kosningafyrirkomulaginu verður ekki breytt. Persónukjöri verður ekki komið á. Eftir kosningar munum við fá yfir okkur sama ógeðslega horið, - bara úr vinstri nösinni.
Auðvitað mun sjóða uppúr. Það ætti allavega að gera það. Pottlokið ætti að festast við loftið ekki seinna en í febrúarber. Ef að Íslendingar væru ekki þolinmóðustu lindýr jarðarinnar þá stæðu hús útrásartalíbananna og land-ráðamannanna í björtu báli eftir áramót og Alþingishúsið flygi í 30 þúsund fetum yfir Austurvelli. Stjórnmálamenn treysta því að þjóðin láti bjóða sér ALLT. Vonandi hafa þeir ekki rétt fyrir sér.
PS: Skellti inn jólalagi eftir mig frá 1987 í tónlistarspilarann, Söngi veiðimannsins, lagi sem var bannað á sínum tíma af einhverjum ástæðum.
"Gleðileg" kreppujól.
![]() |
Óttast að uppúr sjóði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
Bloggfærslur 23. desember 2008
Höfundur

Er tónlistarmaður og rithöfundur sem hefur alveg gríðarlega gaman af skokki og fjallgöngum og jarðgöngum og draugagöngum og rottugöngum og afgöngum og nefgöngum og leggöngum og niðurgöngum og forsjárhyggju og femínisma og kynjafræði og kommúnisma og glóbalisma og vinstrifasisma og hamfarahlýnuninni og samfarahlýnuninni og öllum 1000 kynjunum og rétttrúnaðinum og öllum andskotanum, sérstaklega honum, en semsé öllu sem lítur að heilbrigði til sálar og líkama. Það er ekki flóknara en það.
Tónlist SS má finna á Spotify og víðar.
Tónlistarspilari
Nýjustu færslur
- 29.11.2024 Úr öskunni í ESB. - Úr Katrínu í Þorgerði Katrínu
- 5.11.2024 Trump mun tapa þó hann sigri
- 1.6.2024 Viljum við halda K.J. eða á K.J. að halda ká joð?
- 30.5.2024 Bjarni bankster og Kató krimmi
- 14.6.2023 Konunglegir leghafar og pungberar
- 8.10.2022 Nýtt bóluefni gegn kjarnorkusprengjum
- 24.9.2021 Andlegir öreigar allra vinstriflokka sameinist
- 7.3.2019 Forsætisráðherra afhjúpar afmyndaðan Ólaf Ragnar
- 25.2.2019 Foreldraminning
- 6.2.2019 Alræmt dulargervi Báru
- 22.1.2019 Femíniskur fasismi
- 22.11.2018 Birgitta buffuð og fer til hjúkrunarkvendis
- 9.9.2018 Dyraverðir slegnir
- 24.6.2018 Óleikur íslenska varnarliðsins
- 27.5.2018 Stjórnmálahórerí
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Júní 2023
- Október 2022
- September 2021
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Nóvember 2018
- September 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Mars 2018
- Janúar 2018
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Nóvember 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Desember 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Ágúst 2011
- Maí 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.7.): 0
- Sl. sólarhring: 15
- Sl. viku: 92
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 46
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Júlí 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Menning og listir
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
Bloggvinir
-
laugatun
-
allib
-
alansmithee
-
alexandra-hetja
-
malacai
-
aliber
-
andres
-
anitabjork
-
annaragna
-
arijosepsson
-
maxi
-
sjalfbodaaron
-
aronb
-
hergeirsson
-
audunnh
-
axelaxelsson
-
gusti-kr-ingur
-
flinston
-
polli
-
kisabella
-
arh
-
astafeb
-
baldher
-
halo
-
lordbastard
-
bardurorn
-
bergthora
-
binnan
-
birgitta
-
birnan
-
birnast
-
launafolk
-
bjolli
-
bogi
-
braids
-
brahim
-
gattin
-
brynja
-
bestfyrir
-
brynjarsvans
-
skordalsbrynja
-
tilfinningar
-
brandarar
-
boddihlo
-
eurovision
-
limped
-
danni
-
dansige
-
rafdrottinn
-
diesel
-
dittan
-
djdanni
-
dora61
-
gagnrynandi
-
dvergur
-
dyrley
-
eddabjork
-
egillg
-
jari
-
saxi
-
einari
-
jaxlinn
-
hjolagarpur
-
sleggjan007
-
ellasprella
-
elma
-
skens
-
emmcee
-
madcow
-
skotta1980
-
jaherna
-
lundgaard
-
vinursolons
-
eythora
-
skaginn96
-
ea
-
fanneyogfjolnir
-
fanneyunnur
-
fsfi
-
folkerfifl
-
freyrholm
-
fridjon
-
frost
-
saltogpipar
-
geiragustsson
-
kransi
-
valgeir
-
gerdurpalma112
-
gilsneggerz
-
gislihjalmar
-
gtg
-
griman
-
gudni-is
-
gudbjartur
-
morgunn
-
lucas
-
gummidadi
-
gkristjansson
-
hugs
-
gummisig
-
dramb
-
lostintime
-
gurrihar
-
gunnagusta
-
zeriaph
-
gullilitli
-
gunnaraxel
-
gunnardiego
-
gunnarasgeir
-
topplistinn
-
gunnarkr
-
gunnarpalsson
-
gunnsithor
-
opinbera
-
gunnh
-
coke
-
gellarinn
-
morgunblogg
-
halldora
-
skodun
-
hvilberg
-
holi
-
hannamar
-
hannesgi
-
joggi
-
haddi9001
-
harpaka
-
haugur
-
730bolungarvik
-
heidistrand
-
heidathord
-
rattati
-
heimskyr
-
nala
-
helgadora
-
blekpenni
-
diva73
-
lost
-
helgatho
-
helgi-sigmunds
-
limran
-
hildurhelgas
-
hilmardui
-
snjolfur
-
himmalingur
-
folk-er-fifl
-
hlekkur
-
kolgrimur
-
don
-
hreinsamviska
-
minos
-
huldagar
-
minna
-
danjensen
-
hvitiriddarinn
-
kliddi
-
hordurvald
-
ingibjorgelsa
-
jara
-
ingolfursigurdsson
-
ingvarari
-
inaval
-
nosejob
-
keli
-
fun
-
jaisland
-
jevbmaack
-
jensgud
-
jenni-1001
-
svartur
-
jokapje
-
presley
-
johanneliasson
-
eyfeld
-
jgfreemaninternational
-
johannst
-
ljonas
-
kuriguri
-
jbv
-
jonsullenberger
-
jonmagnusson
-
jonlindal
-
jonsnae
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
judas
-
alda111
-
ktomm
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
bulgaria
-
kje
-
kjarrip
-
photo
-
kolbeinz
-
kona
-
leifur
-
kristbergur
-
krissa1
-
kristinnagnar
-
hjolaferd
-
kiddirokk
-
kristleifur
-
nutima
-
lauja
-
larusg
-
liljaloga
-
lindabald
-
loopman
-
ludvikludviksson
-
madddy
-
madurdagsins
-
maggi270
-
korntop
-
magnusunnar
-
magnusthor
-
maggaelin
-
astroblog
-
maggadora
-
marinomm
-
gummiarnar
-
markusth
-
101isafjordur
-
sax
-
mal214
-
mis
-
morgunbladid
-
nanna
-
offari
-
1kaldi
-
solir
-
king
-
trollchild
-
alvaran
-
vestskafttenor
-
skari60
-
dj-storhofdi
-
ljosmyndarinn
-
palmig
-
perlaoghvolparnir
-
peturmikli
-
pesu
-
storibjor
-
iceland
-
pjeturstefans
-
frisk
-
raggibjarna
-
raggirisi
-
ragnargests
-
raggipalli
-
ragnar73
-
rannveigh
-
re
-
reputo
-
robertb
-
rosaadalsteinsdottir
-
rosabla
-
lovelikeblood
-
siggileelewis
-
siggagudna
-
sirrycoach
-
meyjan
-
sigrunhuld
-
sigrunsigur
-
sibba
-
sibbulina
-
sigbragason
-
joklamus
-
siggifannar
-
siggi-hrellir
-
nerdumdigitalis
-
sigurdurkari
-
sisi
-
siggivalur
-
siggith
-
sigurgeirorri
-
sigurjon
-
sigurjonsigurdsson
-
sigurjonth
-
silfurhondin
-
sindri79
-
luther
-
snorris
-
sorptunna
-
stebbifr
-
bmexpress
-
rocco22
-
geislinn
-
lehamzdr
-
trukkalessan
-
steinnbach
-
sterlends
-
midborg
-
summi
-
svanurkari
-
ipanama
-
kerubi
-
sveinn-refur
-
sverrir
-
saemi7
-
isspiss
-
saethorhelgi
-
thee
-
linduspjall
-
ace
-
zerogirl
-
tryggvigunnarhansen
-
turilla
-
upprifinn
- skrudhamrar
-
valdimarjohannesson
-
valsarinn
-
jormundgand
-
vefritid
-
vest1
-
what
-
start
-
vibba
-
ippa
-
vilhelmina
-
villidenni
-
vga
-
villialli
-
audurvaldis
-
thjodarheidur
-
hector
-
thorrialmennings
-
steinibriem
-
skrifa
-
hrollvekjur
-
valdivest
-
torabeta
-
thorakristin
-
toti2282
-
bjarnakatla
-
tp
-
congress
-
satzen
-
thj41
-
doddidoddi
-
thorsaari
-
metal
-
iceberg
-
motta
-
hallelujah
-
boi2262
-
ornsh