Færsluflokkur: Trúmál

Svarskeyti til Hr. Salem Tamimis

 

Hr. Mansal Tamimi

 

Eins og þú getur kannski séð - þá er ég lítillega blyndur. Skryfblyndur. Ég segi og skrifa: Skuðbrundur. Þarna kom þetta rétt.

 

Ég vil frekar nota orðið „skeyti“ en „bréf“ þegar ég skrifa til múslima. Held að þið eigið auðveldara með að skilja það. Við vesturlandabúar tölum um flugpóst en þið talið líklega um flugskeyti. Það er svona nær ykkar siðmenningu.

Hvað um það.

 

Hr. Saloon Tamimi. Þakka þér svarið við grein minni sem bar nafnið „Svíþjóð nauðgað með samþykki Sví(n)a.“ Svar þitt hljóðaði svo, með leyfi forseta:

 

„Hver er sá sem nauðga íslenskar stelpur hér á landi? Ekki eru þetta múslimar. Þvílík heimska og fáfræði.“

 

Ég ekki vita. Ég ekki vera að tala um nauðgarar á Íslandinu. Ég vera að tala um nauðgarar í Svínþjóð. Við senda reykmerki einsog indjánar ef við ekki geta talað saman mannamál.

 

Jæja, hættum nú þessu rugli Hr. Salvar Tannlími og förum að tala íslensku einsog fullorðnir menn. Við erum báðir búnir að búa hérna í 50 ár og útskrifuðumst báðir úr Öskjuhlíðarskóla með hæstu einkunn, 0,5, þannig að við hljótum að geta rætt saman á skiljanlegan, siðaðan hátt einsog aðrir seinfærir öfgatrúarmenn. 

 

Hr. Salami Tamimi. Ég var bara nokkuð ánægður að sjá þig svona óvenju málefnalegan hér á síðunni minni, - í mínum húsum, sem sagt er. Þú hefðir nú samt gjarnan mátt fara úr skítugum skónum og sýna örlitla tillærða mannasiði, en maður á kannski ekki að gera of miklar kröfur til kærleiksríkra friðelskandi hófsamra múslima.

 

Hr. Salat Tamimi. Þó ég sé skryfblyndur og þú lesblindur og báðir eflaust siðblindir þá hefðirðu nú átt að sjá og skilja að ég var að tala um ástandið í Svíþjóð en ekki á Íslandi. Grein mín heitir: Svíþjóð nauðgað með samþykki Svía. Ég hélt að þessi fyrirsögn gæfi nokkuð sterkar vísbendingar um innihaldið og gæti varla orðið mikið skýrari en það má greinilega misskilja allt ef einbeittur vilji er fyrir hendi, - þeirri hendi sem ekki er ennþá búið að höggva af.

 

Ég er að fjalla um borðleggjandi staðreyndir Hr. Saltmann Tamíní. Mr. Google lýgur ekki. Hann lætur ekki blekkjast. Þó að meirihluti strangtrúaðra og „hófsamra“ múslima í Evrópu styðji ISIS, samkvæmt viðamiklum áreiðanlegum könnunum, og vilji sharialög og vilji t.d. láta handarhöggva þjófa þá skulum við ekki einhenda okkur útí öskur um „heimsku og fáfræði“ þegar herra Google á í hlut. Hann veit betur.

 

Staðreyndirnar tala sínu máli Hr. Salsa Taðlífi og munu gera það áfram þó að boðberar þeirra fái 10 ára fangelsi og 1000 svipuhögg.

2+2 eru 4 hvort sem okkur líkar betur eða verr.

 

Hr. Salvia Talsími. Hvað viðkemur klakanum þá mun ástandið hér verða eins og í Svíþjóð sálugu ef við höldum áfram að gleypa allt öfgafeministakommalufsurétttrúnaðarruglumbullið hrátt sem þaðan kemur og ef við stöndum ekki vaktina og á bremsunni og í lappirnar. Það þarf ekki einusinni alfræðing einsog Mr. Google til að segja okkur það.

Fræðumst aðeins meira og öskrum aðeins minna Hr. Semen Takílimi.

 

Allahu Akbar og allt það.

 

Sverrir Strompskyr


Svíþjóð nauðgað með samþykki Svía

 

Islömsk siðmenningSíðast þegar ég vissi var Svíþjóð í 2. sæti á listanum yfir mestu og verstu nauðgunarbæli heims. Það er allavega í 1. sæti í Evrópu, með tvöfalt fleiri nauðganir en nokkurt annað Evrópuríki. Það eru ekki Svíar sjálfir sem eru svona duglegir við þessa ömurlegu iðju heldur innflytjendur, fyrst og fremst múslimar. Svíar eru hinsvegar ábyrgir fyrir því hvernig komið er vegna galopinnar, galinnar innflytjendastefnu sinnar og smáborgaralegs ótta við að vera sagðir „fordómafullir“ og kallaðir „rasistar.“

 

Þeir hafa meiraðsegja leitt í lög að bannað sé að móðga múslima. Fangelsisvist liggur við slíku. Ef þú móðgar múslima sem er að nauðga konu þá eru sennilega meiri líkur á því að þú farir í fangelsi en músliminn:)

 

(Íslenskir femínistar eru líklega mjög hrifnir af þessu. Þeir (þær) vildu fyrir ekki löngu láta leiða það í lög að bannað væri að móðga konur. Þessi fasíska delluhugmynda“fræði“ þeirra er að sjálfsögðu fengin beint frá Svíþjóð, fyrirmyndarríki rétttrúnaðarins).

 

Sænskir fjölmiðlar eru að sjálfsögðu meðvirkir í vitleysunni og passa sig á því að birta nær eingöngu fréttir af hvítum nauðgurum og minnast ekki orði á hinn stóra meirihluta, múslimana. Þeir gætu móðgast. Fjölmiðlarnir, sem eiga að sjá um upplýsingu, sjá um að halda Svíum í svartnætti fáfræðinnar um ástandið heima fyrir.

 

Einsog flestir ættu að vita er Svíþjóð alveg þéttpakkað af gífurlegum leiðindum og þversagnakenndri pólitískri rétthugsun; t.d. tröllheimskum öfgafemínisma en um leið miklu umburðarlyndi í garð kvenfjandsamlegra óumburðarlyndra islamista. Óskiljanlegt rugl. Greinilegt að rétthugsun er andstæða rökhugsunar. Ekki að ástæðulausu að menn eru farnir að tala um Svíþjóð í þátíð. Líta á þetta sem búið spil. Ónýtt land.

 

Hér á landi er hópur karla og kvenna sem er kallaður „góða fólkið.“ Þetta eru aðallega vinstrimenn, af einhverjum ástæðum. Sumir þeirra eru svo illa haldnir af pólitískri rétthugsun að þeir fullyrða að það sé ekkert til sem heiti pólitísk rétthugsun, en ef hún sé til þá séu það hinir sem séu haldnir henni, ekki þeir. Þessi háværi, stjórnsami, freki minnihluti vill snúa merkingu orða á haus a la Orwell og opna um leið landið uppá gátt einsog útglennta hóru í nafni „frjálslyndis“ og „umburðarlyndis“ og þessarar margumtöluðu göfugu „fjölmenningar,“ sem flestir þjóðhöfðingjar Evrópu játa nú fyrst að hafi beðið algjört skipbrot. En einmitt þá finnst bláeygum bernskum íslenskum óvitum best að sigla í sama far.

 

Alveg kostulegt að Sví(n)aríki skuli vera það land sem við tökum helst til fyrirmyndar í einu og öllu. Aðeins spurning um tíma hvenær við förum sömu leið. Beint niður í holræsið. Hér vantar illilega flokk sem hefur skynsamlega, íhaldssama stefnu í innflytjendamálum. Sá flokkur er ekki til á alþingi í dag. Þar á bæ þorir enginn að opna munninn um þessi mál af ótta við að vera úthrópaður „rasisti.“ Svona flokkur mun örugglega koma hér upp. Það er líka aðeins spurning um tíma.

 

Meðan Evrópa er að vakna upp við vondan draum þá erum við steinhrjótandi á okkar vinstra græna eyra, svífandi um í lennonískum útópískum draumaheimi umburðarlyndis og bræðralags þar sem öll dýrin í skóginum eru svo gasalega góðir vinir: Ljónin og buffalóarnir leiðast ástfangin hönd í hönd og krókódílarnir eru gulrótajaplandi grænmetisætur og múslimar samlagast með glöðu geði og kristnir og múslimar lifa í sátt og samlyndi undir fíkjutré og sharialögum og prúðbúnir hommar gifta sig í mosku í skógarjaðrinum. Í þessum draumaheimi svífum við alveg þangað til okkur verður kippt niðrá jörðina með látum og vöknum upp með andfælum við að það er verið að taka okkur í rassgatið af fúlskeggjuðum andskota. En þá verður of seint að hrópa NAUÐGUN!

 

 

 

 

 

-------------------------------------------------------------

Fleiri hundruð fréttaskýringaþætti má finna á youtube um ömurlegt ástand Svíþjóðar, svo og múslimavandamálið í Evrópu yfir höfuð. BBC hefur margoft fjallað um þetta og reyndar flestar sjónvarpsstöðvar Evrópu, nema náttúrulega íslensku stöðvarnar. (Þær hafa eingöngu gert einn rómantískan þátt sem heitir Múslimarnir okkar. Sá var á Stöð 2. Ekkert sést á RÚV). En það er engin afsökun fyrir fáfræði okkar um islam og blindu fyrir því hvað er að gerast í kringum okkur. Við erum jú nettengdir.

Hér að neðan eru 3 linkar á hinn vinsæla, skarpa, írska spéfugl og þjóðfélagsrýni, Pat Condell, þar sem hann fjallar um heimatilbúnar hörmungar Svíþjóðar og annálaða aðlögunarhæfni múslima. Þess má geta að hann hefur fengið ófáar morðhótanir frá hinum umburðarlyndu múslimum. Hvert myndband er aðeins um 5 mínútur.

Í fyrsta vídeóinu, sem tæplega tvær milljónir hafa skoðað, segir hann umbúðarlaust álit sitt á islam, svo kröftuglega reyndar að „góða fólkið“ með réttu skoðanirnar ætti allsekki að horfa. Í síðari tveimur vídeóunum fjallar hann um sjálfskaparvíti Svíþjóðar.

A word to rioting Muslims

Sweden goes insane

Goodbye Sweden

 


mbl.is Nauðgaði „eiginkonunni“ reglulega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þórubragur

Þóra meyÞórudagur - Þjóðarhagur.

Þóra bjargar deginum.

Hún fylkir sér saman um sannleikann,

er samtvinnuð lífin´og veginum.

 

Þórupulsur, Þóruflokkur,

Þóruplaköt á hverjum stað.

Þóra hún mun hugga okkur

er harmur mikill steðjar að

 

því Þóra er móðir lýðs og lands,

linar þrautir sérhvers manns,

María meyer eina lífsvon almúgans,

einkadóttir Skaparans.

 

Þórustyrkir, Þórubasar.

Þóru drottningu samgleðjumst.

Þóruslagorð, Þórufrasar.

Um Þóru öll við sameinumst.

 

Þóruskyrtur, Þórumeik,

Þórupönnsur, Þórufeik.

Með Þóru mey í hug og hjarta

skal halda inní framtíð bjarta.

 

illvíg langammaÞarflegt mjög er Þórusmink,

það er gott við höggum vina.

Er Svavar gefur svaka vink

skal sminka yfir marblettina.

 

Ég margar illvígar ömmur þekki,

erfitt að færa þær til í böndunum.

Svavar heilsaði Ástþóri ekki

afþví hann var þreyttur í höndunum.

 

Við þurfum mjög á Þóru að halda

þó hún gefi óljós svör.

Þokum henni Þoku til valda

þó hún sé í engri spjör.

 

Þóra og börninÞórudúkkur, Þórubrúður,

Þóra fær myrkri í dagsljós breytt.

Þóruskötur, Þokulúður,

Þóru sameinumst öll sem eitt.

 

Um Þóru dýrðarsálma syngjum,

virgin_mary.jpgsöfnumst öll nú hana í kringum,

hefjum Þóru hátt á stall

og henni kyrjum Þóruskjall.

 

Ef að þú ert fallegt fés

og fræg úr TV þá ber þér lotning

og verður sjálfkrafa Sókrates

og sjálfkjörin sem Íslandsdrottning.

 

Þórudagur, Þóruhagur,

Þóruslagur, Þórubragur.

Þórumerki, Þórubolir,

_ora_me_bornin.jpgÞórufrasar að innan holir.

  

Þóruvöfflur, Þórublöðrur,

Þórusamfylkingarnöðrur,

Þórumusteri, Þórukirkja.

Þóra mun lýðræðið styrkja og virkja.

 

Þórubjórar, Þórubökur,

Þórusnúðar – snittur – kökur,

Þóruskilti, Þórutrú.

Þóruvæðum landið nú.

 

thorudagur_bordi.jpgHeiðarleiki og hreinskilni,

hófsemi og gagnsæi

eru hennar ær og kýr,

um það eru dæmin “skýr.”

 

Þóruhógværð, Þóru-gum,

Þóruauglýsingaskrum.

thorubolur.jpgPælum eingöngu´í umbúðum

því innihald tilheyrir frumstæðum.

 

Þrykktu á þig Þórumeiki,

það mun dylja innrætið.

“Hæverska og heiðarleiki

og hógværð” – það er mottóið.

 

 

Blessuð sé minning þessa framboðs. Votta Samfylkingunni og öðrum aðstandendum mína dýpstu samúð. Blöðrur og bolir vinsamlegast afþakkaðir.

SS


mbl.is Afgerandi forysta Ólafs Ragnars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Serði Monster meinað að syngja í Hvítasunnukirkjunni

 

trúarbragðamunur.jpgÞar sem mér hefur alltaf verið hlýtt til kirkjunnar og allra hennar deilda þá ákvað ég fyrir skömmu að bjóða henni starfskrafta mína. Ég hringdi í föður Hauk Haraldsson, innsta kropp í búri guðs almáttugs og kunngerði honum að Serðir Monster væri til þjónustu reiðubúinn sem forsöngvari á jólatónleikum Fíladelfíusafnaðarins. Hann spurði pirraður hvort þetta væri eitthvert grín og hvort að það væri ekki hægt fá neinn frið fyrir furðupoppurum. Ég tjáði honum að hér væri dauðans alvara á ferð enda ég ekki vanur að hafa kirkjunnar mál í flimtingum. Serðir Monster væri skapaður í guðs mynd eins og aðrir apakettir og ætti fullan rétt á að fá að syngja hástöfum í öllum kirkjum landsins eins og hann lysti. Annað væri mannréttindabrot. Haukur spurði hvort það væri ekki í lagi heima hjá mér. Ég kvað svo vera en ætti eftir að ryksuga. Hann sagði að þetta kæmi ekki til greina og vildi greinilega slíta samtalinu. Ég sagðist finna fyrir örlitlum fordómum hjá honum, bað hann um að slaka aðeins á og anda með rananum - Serðir Monster væri ekki rassriddari heldur bara ósköp venjulegur pervert og að þetta yrði mikil lyftistöng fyrir Hvítasunnukirkju hans og að fréttatilkynningin yrði flott:

"Serðir Monster verður forsöngvari á jólatónleikum Fíladelfíusafnaðarins. Serðir mun syngja sálma eins og t.d. "Saddam átti syni 7," "Þrjú tól undir fílnum," "Snæfinnur hórkall" og "Stóð mér útí pungsljósi" og mun svo klikkja út með lögunum "Nei nei, ekki á kjólinn" og "Another dick in the hole" af nýju plötunni sinni "Tekið stærst uppí sig."

Ég spurði Hauk hvort þetta gæti nokkuð orðið glæsilegra.

kirkjunnar_menn.jpg- "Þetta er hreint út sagt ógeðslegt. Við erum að reyna að skapa hátíðlega jólastemningu á þessum tónleikum en ekki að búa til einhverja djöflamessu."

- "Voðalegar kellingar getiði verið. Þið eru svo stífir að þið gætuð brotið nagla á milli rasskinnanna. Á ég að skilja þetta sem svo að þið afþakkið þjónustu Saint Monsters?"

- "Já! Kirkjan er ekki griðastaður fyrir klámkjafta og ósiðlegheit."

- "Við skulum nú ekki fara að tala illa um séra Gunnar Björnsson og fleiri guðsmenn."

- "Þetta er útrætt mál."

- "Heyrðu Gaukur minn...."

- "Ég heiti Haukur."

kristilegt umburðarlyndi.jpg- "Ókei, næsta fuglategund við, þú hlýtur að sjá að Serðir Monster er himnasending fyrir kirkjuna. Ég skal fara hérna með nokkrar hendingar úr nýju plötunni þó ég muni ekki kapitula og vers, t.d: "Taktu ofan kaskeitið og glenntu út rassg..."

- "Ég vil ekki heyra þetta!"

- "Hvernig er þetta eiginlega með ykkur í Fílabeinsturnssöfnuðinum..."

- "Þetta heitir Fíladelfíusöfnuðurinn!"

- "Ókei, hvernig er þetta eiginlega með ykkur í Fýludelasöfnuðinum, fyrst útskúfið þið Fretrik Ómari og nú ætlið þið að útskúfa Serði Monster. Ég meina, hver verður það næst? Guðmundur í Byrginu?"

- "Ekkert rugl. Guðmundur hefur látið af störfum í Byrginu."

- "Nú? Er hann kominn út í pólitík? Ætli hann muni ganga "óbundinn" til kosninga?"

- "Vertu blessaður. Reyndu að ganga á guðs vegum."

- "Nei, ég held ég taki taxa."

Það mætti hækka laun heimsins. Þau eru ekkert nema vanþakklæti.

 

 

 

(Þessi grein birtist í Morgunblaðinu í morgun)


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband