Nýtt bóluefni gegn kjarnorkusprengjum

Bomban góðaValdimar Pútín varð sjötugur í gær. Við óskum honum að sjálfsögðu til hamingju með áfangann og óskum honum áframhaldandi velfarnaðar í lífi og starfi.

Kallinn fékk af einhverjum ástæðum ekkert heillaóskaskeyti frá Biden og stríðshaukunum í Washington.

Það fer ekki mikið fyrir kurteisinni þar á bæ.

 

Bandaríkjastjórn er orðin svo hrædd um að stríðið hennar í Úkraínu, sem hún undirbjó svo vel, færist heim að dyrum hjá sér að hún er búin að birgja sig upp af lyfjum gegn kjarnorkusprengjum.

Grímuskylda æskileg í kjarnorkustyrjöldÞetta passlega magn af kjarnorkusprengjutöflum ætti að duga til að halda lífinu í elítunni ef Pútín skyldi gerast svo ósmekklegur að senda kaldhæðnislegt heillaóskaskeyti til Washington, - og þá er ég að tala um flugskeyti.

Best að setja hinsvegar bara grímuskyldu á almenning svo hann smiti ekki aðra af geislavirkni og Covid og frelsisást og einstaklingshyggju og öðrum óþverra.

 

Ekki er vitað hvort lyfin dugi ef kjarnorkusprengjurnar hæfa elítuna beint á milli augnanna.

KjarnorkusprengitöflurVið slíku þyrfti hún hugsanlega að taka öflugri pillur sem lyfjarisarnir eru mjög líklega að þróa í þessum skrifuðu orðum, - einhver sterkari og töframeiri snákaolíumeðöl sem væru svona álíka gagnleg og stórkostlegu „bólefnin“ þeirra.

Ekki ólíklegt að þeir séu langt komnir með svokallaðar sprengitöflur í því „augnamiði“ að afstýra bólgum og eymslum sem geta hlotist af völdum kjarnorkusprengja sem lenda beint á milli augnanna.

 

Svo að dýrmætur tími og ennþá dýrmætari peningar fari ekki til spillis þá gætu lyfjarisarnir haldið áfram sínu sama gamla, góða verklagi og einfaldlega bara skipt um merkimiða á óseldum og útrunnum „bóluefnum“ gegn Covid og kallað þau „Bólefni gegn kjarnorkusprengjum“ og lofað 99% árangri einsog þeir gerðu í sprautufaraldrinum sínum.

Ef upp um vörusvikin kemst þá skiptir það engu máli því þá verður enginn til frásagnar og þar að auki þá er búið að banna alla „hatursorðræðu“ gegn blekkingum, lygum, falsi, rétttrúnaði og svikum.

 

Kjarnorkusprengjur eru mannskemmandiÉg tek alltaf lýsi og vítamín á morgnana og ýmis lyf við bólgum og aids og femínisma og berklum og kláðamaur og glóbalisma og slíkum plágum en nú þyrfti ég að fara að bæta við Pfizer-sprengitöflum gegn óheilsusamlegum kjarnorkusprengjum úr því að stríðshaukarnir í Washington eru svona vissir um að þeim sé að takast að króa Pútín af einsog rottu útí horni og þröngva honum til að stökkva.

Ég vil nefnilega, líkt og Bandaríkjastjórn, vera með sterkt ónæmiskerfi og við góða heilsu ef ég skyldi fá kjarnorkusprengju í hausinn.


mbl.is Kaupa lyf gegn geislunarskaða fyrir 41 milljarð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Með því að beita kjarnorkuvopnum í Úkraínu drepur Pútín einnig fólk sem býr í Rússlandi og Hvíta-Rússlandi. cool

Stærstu borgirnar í Úkraínu, Kænugarður og Kharkiv, eru skammt frá landamærunum að Rússlandi og Hvíta-Rússlandi, rétt eins og Chernobyl.

"At Chernobyl approximately 100,000 square kilometres of land was significantly contaminated with fallout, with the worst hit regions being in Belarus, Ukraine and Russia. cool

Lower levels of contamination were detected over all of Europe except for the Iberian Peninsula."

Chernobyl disaster

Þorsteinn Briem, 8.10.2022 kl. 12:49

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Rússland er eitt af aðildarríkjum Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) en hefur ekki virt landamæri Rússlands og Úkraínu, eins og Rússlandi bar að gera, samkvæmt alþjóðalögum og -sáttmálum. cool

Og Pútín fannst í góðu lagi að Úkraína fengi aðild að Evrópusambandinu 10. desember 2004, eftir að flest Austur-Evrópuríkin höfðu fengið aðild að bæði Evrópusambandinu og NATO.

Þar að auki vita allir að hvorki Úkraína né NATO ætluðu að ráðast á Rússland. cool

Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE)

Helsinki yfirlýsingin (Helsinki Declaration):

"In the CSCE terminology, there were four groupings or baskets. In the first basket, the "Declaration on Principles Guiding Relations between Participating States" (also known as "The Decalogue") enumerated the following 10 points:

    • Sovereign equality, respect for the rights inherent in sovereignty

      • Refraining from the threat or use of force

        • Inviolability of frontiers

            • Peaceful settlement of disputes

              • Non-intervention in internal affairs

                    • Co-operation among States

                      • Fulfillment in good faith of obligations under international law"

                      Rússland er einnig eitt af aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna. cool

                      Aðildarríki Sameinuðu þjóðanna

                      Sáttmáli Sameinuðu þjóðanna:


                      "I. kafli

                      MARKMIÐ OG GRUNDVALLARREGLUR"

                      "2. gr. ..."

                      "4) Allir meðlimir skulu í milliríkjaskiptum varast hótanir um valdbeitingu eða beitingu valds gegn landamærahelgi eða stjórnmálasjálfstæði nokkurs ríkis eða á neinn annan hátt sem kemur í bága við markmið hinna sameinuðu þjóða." cool

                      Þorsteinn Briem, 8.10.2022 kl. 12:53

                      3 Smámynd: Þorsteinn Briem

                      17.6.2022:

                      Pútín: Aðild Úkraínu að Evrópusambandinu kemur Rússum ekki við

                      Pútín 10.12.2004 (eftir að flest Austur-Evrópuríkin höfðu fengið aðild að bæði Evrópusambandinu og NATO):

                      "As for enlargement of the Euroepan Union, we have always seen this as a positive process. cool

                      Certainly, enlargement gives rise to various issues that have to be resolved, and sometimes they are easy to resolve, sometimes not, but both sides have always shown a desire to find mutually acceptable solutions and we do find them.

                      If Ukraine wants to join the EU and if the EU accepts Ukraine as a member, Russia, I think, would welcome this because we have a special relationship with Ukraine. cool

                      Our economies are closely linked, including in specific areas of the manufacturing sector where we have a very high level of cooperation, and having this part of indeed our economy become essentially part of the EU would, I hope, have a positive impact on the economy of Russia."

                      "On the other hand, we are building a common economic space with the European Union, and we believe this is in the interests of both Russia and the European Union countries and will harmonise our economic ties with Europe.

                      But these projects are not in contradiction with the possibility of any country joining the European Union, including Ukraine. cool

                      On the contrary, the possibility of new members joining the EU makes our projects only more realistic.

                      But I repeat that the plans of other countries to join the EU are not our direct affair." cool

                      Kremlin: Press Conference Following Talks with Spanish Prime Minister Jose Luis Rodriguez Zapatero

                      Þorsteinn Briem, 8.10.2022 kl. 12:58

                      4 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

                      Snillingur ertu Sverrir.

                      Klikkar aldrei..coolcoolcool

                      Sigurður Kristján Hjaltested, 8.10.2022 kl. 16:41

                      5 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

                      Tek undir með Sigurði Kristjáni Hjaltested.

                      Það er sama hvað Sverrir Stormsker fjallar um, húmorinn er alltaf beittur og nær í gegn. Nú ættum við að biðja hann að skrifa bók um lífsins gagn og nauðsynjar eða hremmingar fyrir jólin, þar sem bækur á íslenzkum jólabókamarkaði eru orðnar svo leiðinlegar, ekkert nema kommaáróður. Ég væri til í eina slíka bók til að létta skapið - eða fylla mig af vizku.

                      En Þorsteinn Briem hér að ofan talar oft máli Djöfulsins, (ef hann er ekki kommúnisti hreinlega sjálfur eða eitthvað slíkt) (þ.e.a.s. vinstrimanna og þeirra sem skrifa athugasemdir á DV), og hann minnir Pútín á að hann eitrar einnig sitt land með gereyðingarsprengjuregni, en hann ætti að minna Joe Biden á það einnig, og aðra sem eru að daðra við það sama. Þeir eru varla skárri.

                      Ingólfur Sigurðsson, 8.10.2022 kl. 23:36

                      6 Smámynd: Sverrir Stormsker

                      Þorsteinn, einmitt sko. Það er ekki flóknara en það.

                      Sverrir Stormsker, 9.10.2022 kl. 08:51

                      7 Smámynd: Sverrir Stormsker

                      Sigurður, þetta er gott en það venst, einsog masókistinn sagði. smile

                      Sverrir Stormsker, 9.10.2022 kl. 08:54

                      8 Smámynd: Sverrir Stormsker

                      Ingólfur, þakka þér. Við Sigurður erum gamlir í hettunni en þú ert tiltölulega nýr hér á Moggablogginu og ert að gera stórfína hluti.

                      Samkór öskrandi öfgavinstrimanna er orðinn svo stór og stórkostlega falskur að það er alltaf gaman og óvenjulegt að heyra nýja sjálfstæða rödd meðvitaðs einstaklings sem heldur sönsum og heldur lagi og er með á nótunum.

                      Gott að þú skulir ekki vera eins latur að skrifa og ég.

                      Sverrir Stormsker, 9.10.2022 kl. 09:03

                      9 Smámynd: Jóhann Elíasson

                      Þú "klikkar" ekki frekar en fyrri daginn Sverrir.  Það eru menn eins og þú sem gefa lífinu gildi.  Það er kannski rétt að minna á það  að   Pútín hefur hvergi minnst á það hann hefði hug á að nota kjarnorkuvopn en aftur á móti hafa VESTRÆNIR leiðtogar mikið talað um að Pútín "væri vís til" að nota kjarnorkuvopn.....

                      Jóhann Elíasson, 10.10.2022 kl. 14:19

                      10 Smámynd: Sverrir Stormsker

                      Jóhann, það er rétt, Pútín hefur einfaldlega sagt að ef ráðist verði á Rússland eða tilvist þess ógnað þá muni hann ekki hika við að skella hramminum á buzzerinn.

                      En Biden heldur áfram að trampa á tánum á rússneska birninum og samkjafta um kjarnorkusprengjur og heimsendi og bryðja sprengitöflur í öll mál.

                      Sverrir Stormsker, 11.10.2022 kl. 23:30

                      Bæta við athugasemd

                      Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

                      Innskráning

                      Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

                      Hafðu samband