Færsluflokkur: Bloggar

Viljum við halda K.J. eða á K.J. að halda ká joð?

TrúðarnirForsetaframbjóðendur hafa á undanförnum mánuðum verið að keppast við að kynna sín „stefnumál“ og „málefni“ og tala einsog þeir ætli að vera alveg önnum kafnir við að gera eitthvað allt annað en það sem felst í starfsskyldum forseta.

Þetta tal frambjóðendanna skiptir auðvitað engu máli frekar en að okkur komi við hvort að stelpum í fegurðarsamkeppnum þyki gaman að ferðast eða fara á skíði eða skjóta fíla og hottintotta í Afríku.

 

Forseti er ekki einhver sálusorgari sem er í því að endasendast um bæinn og „hugga fólk“ í raunum og „telja kjark“ í einhverja hlandaula og „lyfta tækifærum“ og hjálpa handleggsbrotnum körlum að hitta í pissuskálina.

90% af tíma sitjandi forseta hefur farið í að horfa útum gluggann og klóra sér í hausnum og pungnum og plokka af sér lýsnar og telja á sér tásurnar á skrifstofunni og skrifa hugsunarlaust undir lög og ólög og víxla og allan fjandann sem að honum hefur verið rétt án þess að lesa það yfir, og halda veislur á Bessó og klæða sig í hnéháa skræbótta sokka og risastóra upprúllaða sirkusskó og allt of þrönga jakka einsog Mr. Bean og fara á frumsýningar og í opinberar heimsóknir á reiðhjóli til Garðabæjar og Kópavogs og skála við einhverja apaketti og bulla woke-vitleysu við hin ýmsu tækifæri.

Þetta eru engin geimvísindi. Hann er ekkert að kljúfa atómin inná kontór.

 

Þetta  er kosning um persónu en ekki málefni.

Ásýnd og ímynd og yfirbragð og útlit og klæðaburður og fas og framkoma og öll holning frambjóðenda hefur miklu meira að segja heldur en hvað þeir hafa að segja.

Það skiptir meiraðsegja meira máli Hvernig þeir segja hlutina heldur Hvað þeir segja.

Og það skiptir meira máli hvort þeir kunni að klæða sig heldur en hvort þeir kunni að hugsa.

Ég er ekki að segja að þetta eigi að vera svona en svona er þetta.

 

Þau fimm fræknu sem mælast með allra minnst fylgi, undir einu prósenti, er fólkið sem gerði fyrri „kappræðu“þáttinn á RÚV skemmtilegan og reyndar þann seinni líka sem var í gær. Þetta eru þau Steinolía sópransöngkona, Viktor hagfræðiprófessor, hin persónuverndaða Helga Þóris, Ísdrottningin Ásdís Rán og Peacekóngurinn Ástþór Clown.

 

Kíkjum aðeins á nokkra frambjóðendur:

 

Ásdís Rán með tútturnarÁsdís Rán

Ásdís Rán tók sig vel út í settinu með sitt mjallahvíta hár og föngulegu eldrauðu uppblásnu varir. Væri gott efni í varaforseta.

Uppblásnu tútturnar voru ekki síðri og sköguðu tignarlega fram í öllum sínum mikilfengleika.

Það var einsog hún hefði lent í árekstri og púðarnir sprungið út.

Ásdís Rán er hrein og bein enda sagðist hún koma til dyranna einsog hún er klædd.

Mér fannst skrýtið að sjá hana í fötum og átti soldið erfitt með að venjast því. Ég hafði bara séð hana allsnakta í tímaritum sem sveittir karlar fletta með annarri hendi.

Þessi glæsilega sílikona hefur margt til brunds að bera. Hún sagðist kunna að fljúga þremur þyrlutegundum og færi því létt með að gegna forsetaembættinu.

Allir vita að það er miklu erfiðara að fljúga þyrlu en að hella í sig kampavíni einsog forsetar eiga að vinna við að hennar mati.

Ásdís sagði: „Forseti á að vera ópólitískur og hafa mikla persónutöfra.“

Þarna hefur hún líklega verið að vísa í sjarmatröllið Ástþór Magnússon. Hann er íslenska feita Bónusútgáfan af Casanova og hefur álíka mikla útgeislun og kjarnorkuúrgangur.

Svo sagði Ásdís: „Ég vil veita þjóðinni innblástur.“

Ég persónulega hefði ekkert á móti því að þiggja hjá henni innblástur einsog hún kallar það, ef ég skil hana rétt. Blástursaðferðin hefur alltaf reynst vel. Ég myndi alveg þiggja einn hressilegan andlitsdrátt hjá henni, ef þannig má að orði komast.

Ég ætla að vona að ég sé ekki að misskilja þetta tal hennar um innblástur.

 

 

ÁstþórÁstþór Magnússon

Ástþór stóð sig best allra í „kappræðunum“ á RÚV í gær. Var rólegur og yfirvegaður og afslappaður og í góðu jafnvægi einsog venjulega og ég er viss um að fólk hafi fengið á tilfinninguna að þarna færi ballanseraður sáttasemjari sem iðkaði jóga og innhverfa íhugun og reykti friðarpípu á kvöldin. Fólk hefur hugsað með sér að þessum pollrólega manni væri sko óhætt að treysta til að koma á friði manna á milli, - hann væri fæddur friðarboðberi og mannasættir.

 

Í „kappræðu“þættinum sagðist Ástþór hafa borðliggjandi sannanir fyrir því að Katrín væri landráðamaður.

Hann sagði að með stórfelldum vopnakaupum fyrir Úkraínu hefði Katrín sem forsætisráðherra og ábyrgðaraðili farið á svig við þjóðaröryggisstefnu landsins og brotið Stjórnarskrána og brotið sáttmála Sameinuðu þjóðanna og brotið Nató-samninginn og brotið gegn landráðakafla almennra hegningalaga, en það væri hinsvegar „ekki hægt að kæra ráðherra fyrir landráð í þessu helvítis alræðisríki,“ einsog hann orðaði það svo réttilega.

 

Ástþór er mjög fylginn sér og gefst ekki upp og ef ég þekki minn mann rétt þá mun hann ekki linna látum fyrr en hann er búinn að koma landráðakvendinu í dýflissu uppá vatn og grjótharðar tvíbökur, hvernig sem hann fer nú að því.

 

Þó að Ástþór hafi ekki tekist að stöðvað kynbombuna Ásdísi Rán í sjónvarpssal þá mun hann fara létt með að stöðva kjarnorkubombur í universal. Hann segist hafa sannfæringakraftinn og sprengikraftinn til að ná friðarsamningum við Púddapúdd í Kreml og það ætli hann að gera þegar hann er búinn að vinna kosningarnar með glæsibrag.

 

Ástþór er minn maður. Hann er einn með öllu. Kannski ekki alveg öllu en allavega tómatsósu þegar vel liggur á honum. Hann er mjög líklega sponsaður af Heinz.

Ástþór í sparifötunumHann einn getur afstýrt kjarnorkustyrjöld. Hann hleypur inní símaklefa einsog Superman og kemur út í jólasveinabúningi, tilbúinn að bjarga mannkyninu frá tortímingu.

Kjarninn í skilaboðum hins friðelskandi og ástríka Ástþórs til þjóðarinnar er einhvernveginn svona :

 

„Ef þið kjósið mig ekki þá fáið þið kjarnorkusprengju á milli augnanna helvítis fíflin ykkar.

Ef þið kjósið aðra frambjóðendur þá elskið þið stríð og eruð að undirrita eigin dauðadóm andskotans skilningslausu grasasnarnir ykkar. Kjósið mig kærleiksríka friðflytjandann eða farist ella í vítislogum þið ömurlegu hálfvitar. Með ást skal frið boða.

Ég er spámaður og ég fæ sýnir og vitranir og tremma og ég heyri raddir í hausnum á mér sem segja mér að ég sé bjargvættur mannkyns.

Ég fæ allskonar sýnir. Ég hef fengið draumsýn og nærsýn og skammsýn og rörsýn og þröngsýn og hagsýn og skammastsýn og Jeltsýn og Úrval-Útsýn og guð má vita hvað.

Ég er Ástradamus. Ég spáði fyrir um Úkraínustríðið og Heimsstyrjöldina síðari og Napóleons-styrjaldirnar og bara just name it. Fyrsta sýnin sem ég fékk var appelsýn, en það er blandið sem ég notaði útí vodkað sem ég var að hvolfa í mig áður en ég fékk tremma og fór að fá allar þessar stórmerkilegu guðlegu sýnir og vitranir.

Kjósið mig Ástþór Krist Magnússon og ég mun frelsa heiminn í annað sinn.“

 

Þó að Ástþóri Kristi Magnússyni hafi ekki tekist að sannfæra nema 2 prósent þjóðarinnar um að kjósa sig til forseta þá er hann engaðsíður sannfærður um að honum takist að sannfæra Púddapúdd í Kreml um að það sé ekki alveg nógu heppilegt að sprengja Klakann í loft upp.

Nú er bara spurning hvort að Ástþór muni breyta nafninu á fyrirtæki sínu, Friður 2000, í Friður 2 prósent, að kosningum loknum.

 

 

Að „brjóta blað.“

Baldur Þórhallsson hefur kvartað sáran yfir því að verið væri að blanda kynhneigð hans inní þessa kosningabaráttu, en málið er að það hefur enginn verið ötulli við það en hann sjálfur.

Hann spyrðir sig við Vigdísi Finnbogadóttur sem braut blað sem fyrsti kvenkyns forseti heimsins. Slagorð hans framboðs er einmitt: „Brjótum blað,“ því hann vill verða fyrsti hommaforsetinn. Hann vill láta kjósa sig vegna kynhneigðar sinnar líkt og hún sé það allra mikilsverðasta sem hann hafi uppá að bjóða, og líklega er það rétt hjá honum.

Svo hefur hann jú uppá Felix að bjóða og saman falla þeir einsog flís við rass.

 

En málið er að við myndum líka brjóta blað ef við kysum Grettis-Kötu.

Grettis-Kata yrði allra lágvaxnasti forseti lýðveldissögunnar. Jafnvel mannkynssögunnar.

Hún nær varla Danny DeVito í axlir.

Þegar teknar eru myndir af þjóðarleiðtogum frá mitti og uppúr þar sem hún er á meðal þá sést oft bara rétt glitta í hárið á henni.

Forseti á helst ekki að vera lítilmenni í neinum skilningi.

En Grettis-Kata yrði ekki bara fyrsta „smámennið“ til gegna forsetaembættinu heldur yrði hún líka fyrsta landráðakvendið ef það kæmi uppúr dúrnum að Ástór hefði rétt fyrir sér einsog hann fullyrti harðákveðinn í Ríkissjónvarpinu í gær.

 

Það ótrúlega er að við myndum líka brjóta blað ef við kysum Höllu Hrund eða Ástþór.

Halla Hrund er bara 43 ára. Hún yrði yngsti forseti lýðveldissögunnar.

Ástþór yrði hinsvegar þyngsti forseti sögunnar.

Ástþór er eini forsetaframbjóðandinn sem er með stærri brjóst en Ásdís Rán.

Hann yrði feitasti forseti í heimi.

Enginn forseti hefur nokkrusinni verið feitari en hann.

Með því að kjósa friðarbolluna sem forseta gætum við brotið blað og komist á spjöld sögunnar.

Þetta er miklu merkilegra heldur en að fá einhverja rassriddara sem forseta, með fullri virðingu fyrir saurþjöppum.

 

Ástþór í bláum jakkafötumÁstþór yrði ekki bara þyngsti forseti sögunnar heldur líka sá allra elsti.

Hann fór fyrst í framboð 1944 en tapaði þá naumlega fyrir Sveini Björnssyni.

Síðan þá hefur hann boðið sig fram á fjögurra ára fresti og alltaf tapað naumlega. Þetta hefur lagst þungt á hann enda hefur hann þyngst með hverjum kosningum.

Þegar hann er kominn í bláu jakkafötin sín þá er hann virðulegur og flottur og ekki óáþekkur uppblásnum Nivea-sundbolta.

Hugsið ykkur hvað þetta yrði stórkostleg landkynning. Ekki ósvipuð og þegar Vigga Lásboga var kjörin.

Ástþór yrði fyrsti svínfeiti forsetagölturinn næði hann kjöri. Sá alfeitasti ever.

 

Við ættum að íhuga þennan möguleika og láta af fitufordómum okkar og hætta að fitusmána akfeita ístrubelgi og kjarnorkukeppi einsog Ástþór.

Verum opin fyrir nýjungum og mörvömbum og fögnum fjölbreytileikanum.

Ástþór er efnaður maður og það er aðeins tvennt sem hann á útistandandi:

Það er annarsvegar ístran og hinsvegar augun.

Hann hefur ávaxtað vel sitt pund í gegnum tíðina. Reyndar svo vel að hann er að nálgast 400 pund.

Það er óhætt að segja að hann sé eini þungavigtarkeppandinn í hópnum.

Hann er sannkallaður keppandi. Kepp-andi. Fitukeppandi.

 

 

Arnar Þór JónssonArnar Þór Jónsson

Hef hlustað all mikið á Arnar og þar er greinilega afburðarmaður á ferðinni.

Heiðarlegur, hreinlyndur, heilsteyptur, réttsýnn og klár.

Alger andstæða Grettis-Kötu.

Vandaður, hófsamur, staðfastur, hugaður, fylginn sér, vel lesinn, vel upp alinn, vel gerður, vel máli farinn, vel innrættur, vel gefinn.

Hefur djúpan skilning á því sem er að gerast í heiminum og skilur heildamyndina og veit hvernig landið liggur. Hann er vakandi en ekki „woke“ einsog flestir aðrir frambjóðendur. Verulega gott forsetaefni.

Svona maður á ekki minnstu smugu á að verða forseti þjóðar sem elskar undirförula hraðlygna sviksama þjóðníðinga einsog Jóhönnu Sig., Steingeld J. og Grettis-Kötu.

Arnar Þór er maður á besta aldri og hann má ekki láta staðar numið í þjóðmálum og þjóðþrifamálum þó hann muni ekki ekki ríða feitum fláðum gelti frá þessum kosningum.

Óskandi að hann fái sér kaffi og hrátt nautahakk með Sigmundi Davíð í sumar og spái í næstu alþingiskosningar.

 

 

Jón Georg BjarnfreðarsonJón Gnarr

Jón Gnarr er skemmtilegur þegar hann er að leika Georg Bjarnfreðarson en hann er ekki jafn skemmtilegur þegar hann bókstaflega ER Georg Bjarnfreðarson, og þannig hefur hann soldið verið í þessari kosningabaráttu. Hefur virkað sem úrillur og önugur gamaldags kommúnisti. Vantar bara að hann setji fávísingurinn á loft og segist vera með 5 háskólagráður.

 

Jón Gnarr er einn mesti wokeisti sem nú er uppi. Hann leggur sig fram um að tala kynhlutlausa nýslensku einsog öfgafemínisti og segist treysta þingmönnum fullkomlega (er ástæða til þess?) og segist elska fjölmenningu og „fagna fjölbreytileikanum“ og vill óheft innstreymi hælisleitenda og flóttamanna til landsins og er alfarið á móti því að fjölmiðlar greini frá þjóðerni ofbeldismanna.

Hann er einskonar blanda af rétttrúnaðarkommúnistunum Grettis-Kötu og téðum Georg Bjarnfreðarsyni.

 

En Jón Gnarr er engaðsíður ekki ánægður með Kötu sem forsætisráðherra þó að þau sé alveg á sömu línu í pólitíska rétttrúnaðinum og wokeismanum.

Hann segir Kötu bera ábyrgð á því að Bjarni Ben sé orðinn forsætisráðherra.

Vitaskuld gerir hún það.

Á sama hátt ber Jón Gnarr ábyrgð á því að Dagur B. varð borgarstjóri.

 

Þegar fólk situr fast í umferðinni og horfir á eyðileggingu okkar ástkæru bílafjandsamlegu gjaldþrota höfuðborgar þá á það að hugsa til tvíeykisins Jóns Gnarrs og Dags B.

Dagur B. hefði aldrei orðið borgarstjóri nema fyrir tilverknað Jóns Gnarrs.

Besti flokkurinn boðaði nýjungar þarna í borgarstjórnarkosningunum 2010 en þessi flokkur var í rauninni ekkert annað en Samfylkingin undir fölsku flaggi, einskonar gamaldags systurflokkur Samfylkingarinnar, rétt einsog Sjálfstæðisflokkurinn er í dag, enda gekk Jón Gnarr í Samfylkinguna strax og hann lét af störfum sem vinstri hönd Dags B. í borginni.

 

Jón Gnarr sagði fyrir stuttu í viðtali að hann „þyrfti að fá lánaða dómgreind“ ef hann næði kjöri sem forseti. Ætli hann muni þá aftur fá lánaða „dómgreind“ Dags?

Þessi framboðsbrandari Jóns virkaði árið 2010 vegna þess að þá var allt í upplausn í borgarstjórn og fólk hefði frekar kosið jólatré en hina hefðbundnu flokka, sem það og gerði þegar það kaus Jón Gnarr, en brandarar eru því miður ekki einsog vín að þeir batni með árunum.

Með fullri virðingu fyrir Gnarr sem skemmtikrafti þá má segja að þetta framboð hans sé „offramboð af leiðindum.“

Sem forsetaframbjóðandi er Gnarr álíka hressandi og sexý og Egill Helgason í G-streng.

 

BaldurBaldur Þórhallsson

Framboð Baldurs fór í rassgat þegar hann sagðist ekki muna hvernig hann kaus í Icesave, mikilvægasta máli þjóðarinnar frá landnámi.

Þegar hann sá að enginn trúði þessari lygi sagði hann: „Ég er of heiðarlegur til að ljúga.“

Einmitt sko.

Heiðarlegir menn þurfa ekki að tilkynna hástöfum að þeir séu heiðarlegir.

Heiðarlegir menn tala aldrei um það hvað þeir séu obboslega heiðarlegir því það eitt og sér er andstætt heiðarleika. Þeir sýna það með orðum sínum og athöfnum.

 

Það skiptir ekki máli hvort Baldur var að ljúga eða ekki. Ef hann var að ljúga þá stimplar fólk hann skiljanlega sem apakött.

Ef hann var ekki að ljúga þá stimplar fólk hann skiljanlega sem gjörsamlega minnislausan apakött.

Ég held að fólk vilji hvorki ljúgandi bavíana né minnislausan bavíana sem forseta. Hann getur því alveg gleymt þessu embætti og hlýtur að vera búinn að steingleyma því nú þegar einsog öllu öðru.

 

Baldur spyrðir sig við Vigdísi Finnbogadóttur sem braut blað sem fyrsti kvenkyns forseti heimsins. Slagorð hans framboðs er einmitt: „Brjótum blað,“ því hann vill verða fyrsti hommaforsetinn, einsog fyrr sagði. Verðleikarnir sem við eigum að kjósa hann útá eru sumsé:

„Heiðarleiki,“ minnisleysi og hommaskapur.

En hvað sem þessu líður þá fíla ég bæði Baldur og Felix og mitt síðasta verk væri að segja þeim að fara í rassgat, ... enda þarf ekkert að segja þeim það.

 

 

Harmonikku-HallaHarmonikku-Halla

Halla Hrund fæddist í afskekktri sveit uppí Árbæ.

Einbýlishúsið sem hún bjó í var svo stórt að hún hélt að það væri blokk. Það var fyrst núna í þessari kosningabaráttu sem hún komst að því að þetta var ekki blokk sem hún bjó í heldur 10 hæða einbýlishús.

Halla undi hag sínum best uppí fjöllum þar sem hún gaf lömbum mjólk úr pela og spilaði á harmonikku og langspil fyrir fjallageitur. Snemma náði hún slíkri leikni að hún fór að halda harmonikkukonserta og stjórna hljómsveitum útum allan heim.

 

Það má sjá af handahreyfingum Höllu þegar hún talar að þar fer manneskja sem hefur stjórnað mörgum sinfoníuhljómsveitum um dagana. Það vantar bara tónsprotann í hendurnar á henni þegar hún er að útlista hvernig hún ætli að „lyfta upp tækifærum“ og „hjálpa tækifærum.“

Þegar henni liggur mikið á hjarta baðar hún út höndunum og minnir soldið á Kermit frosk þegar hann var að kynna inn atriði.

 

Hún sagði í viðtali fyrir stuttu: „Mín framtíðarsýn felur í sér að við séum að þétta raðirnar og við séum öll saman í liði.“

Við viljum ekkert vera öll saman í liði og þessvegna erum við ekki öll saman í liði.

Góða fólkið og skynsama fólkið kærir sig t.d. ekkert um að vera saman í liði því þá færi allt í hund og kött.

Og þar að auki er þetta stéttskipt þjóðfélag. Valdaelítan, sem Katrín tilheyrir, kærir sig t.d. ekkert um að vera í liði með okkur sauðsvörtum almúganum þó að Katrín vilji alveg ólm verða yfir almúganum sem forseti.

 

Og hvað varðar að „þétta raðirnar“ þá sé ég ekki ástæðu til að þétta neinar raðir frekar en að þétta byggð eða að vera þéttholda.

Best að hafa rúmt í kringum sig. Því færra fólk því minni vandræði, því betra.

Best er að vera einn í biðröð.

Þó það sé mun meira af froðu en bjór í glasinu hennar Harmonikku-Höllu þá er hún viðkunnanleg og næs ljóska og ég held að enginn hefði neitt á móti því að hafa hana sem forseta.

 

 

Halla TómasarFjárlaga-Halla

Halla Tómasdóttir eða Fjármála-Halla einsog ég kalla hana stundum eða Fjárlaga-Halla einsog ég kalla hana mun oftar, er mikil bissnisskona og geislar af sjálfsöryggi og virðuleika. Hún er hraðmælsk og lætur aldrei slá sig út af laginu og getur talað einsog símsvari klukkutímunum saman án þess að draga andann.

Þó það sé smá mörgæsarlúkk á henni þá kemur það ekki að sök því hún kann að klæða sig einsog milljón dollarar og er alltaf rándýr í tauinu. Hver snýtuklútur sem hún er með um hálsinn kostar á við dýrustu týpuna af Teslu.

 

Hún er búsældarleg og glansar í framan einsog bakari og ég held að henni þyki ekkert leiðinlegt að raða í sig brauðtertum og rjómabollum, þannig að hún myndi pottþétt njóta þess að halda glæsilegar veislur á Bessastöðum.

Hún er með hlýtt viðmót og flotta Hitlersgreiðslu og hvar sem hún kemur bræðir hún alla uppúr skónum. Ég spjallaði smávegis við hana niðrí RÚV degi fyrir kosningar 2016 og hugsaði:

 

„Vá! Þetta er sko alvöru kelling. Þetta er sko enginn hálfviti þó hún sé femínisti. Hún er miklu meiri bógur en þessi Mr. Bean sem fólk er að fara að kjósa.“

 

Og nú er hún mætt aftur og fólk ætti ekki að klúðra þessu einstaka tækifæri til að fá alvöru forseta með pung.

 

 

 

Kata í rónadressinuGrettis-Kata

Einsog fyrr sagði þá finnst fólki miklu máli skipta að forseti komi vel fyrir og hafi virðulegt fas og framkomu og kunni að klæða sig og bera sig vel, og þá á ég ekki við að bera sig einsog Ásdís Rán gerir í tímaritum, heldur að bera sig vel og hafa góðan limaburð og svona. Með limaburði á ég ekki við ... jæja, þetta er kannski ekki alveg nógu heppilegt orðalag ... en þið vitið hvað ég á við.

 

Grettis-Kata hefur aldrei kunnað að klæða sig frekar en ég.

Hún er alltaf einsog fuglahræða til fara eða nýstigin uppúr gröf. Alltaf í einhverri dökkri draugalegri kommúnistaúlpu og öll vafin í einhverja mölétna trefla og viskustykki og skúringatuskur.

Forsetar eiga helst að vera örlítið snyrtilegri en miðbæjarrónar.

 

Grettis-Kata lúkkar ekki einsog forseti heldur einsog „for-seti“ – einsog hún hafi setið í hlandfor og sé nýdregin uppúr einni slíkri. Full of shit.

Þegar Grettis-Kata hefur skíttapað þessum kosningum þá mun hún ganga burt í hægðum sínum.

 

Í fyrsta „kappræðu“þættinum á RÚV var Grettis-Kata í myglugráum aðskornum kjól og leit út einsog dragúldin rúllupylsa komin langt framyfir síðasta leyfilega söludag, einsog reyndar hún sjálf sem pólitíkus, eftir því sem hún segir sjálf.

Miðað við útganginn á henni þá virðist vera meira um lík í hennar skápum en föt.

Í gær var hún í einhverjum hvítum vofulegum slopp einsog hún hafi verið að koma úr krufningu eða líkhúsi.

 

Hún flokkar þetta örugglega sem „hatursorðræðu“ og er líklega að hringja á lögregluna núna ef hún er að lesa þetta en ég er nú bara að lýsa minni upplifun á þessum forsetaframbjóðendum og í því felst ekki að ég álíti mig eitthvað betri eða merkilegri frosk. Öðru nær.

Og svo má minna á að sjálfur kalla ég mig Serði Monster þannig að hún má bara vera afar stolt af því að ég kalli hana Grettis-Kötu, sem minnir á Grettisgötu, en ég er þarna að sjálfsögðu að vísa í hennar fræga og fallega og heillandi og einlæga „bros“ sem hefur brætt suma en hrætt aðra.

 

Kata ShiningBros hennar lýsir karakternum og er svona álíka ekta og hárið á Elton John.

Brosið á það sameiginlegt með loforðum sem hún gefur að það hverfur jafn skjótt og það birtist.

Þegar hún setur í brýrnar og reynir að brosa samtímis þá minnir hún soldið á vitfirringinn Jack Nicholson í Shining þegar hann var að brjóta upp hurðina með öxi.

 

Forseti þarf ekki endilega að vera hár og spengilegur og virðulegur einsog Ólafur Ragnar og það er allt í lagi að hann sé í meðallagi einsog Höllurnar en hann má helst ekki vera einsog hobbiti með táfýlu af hausnum. Fólk verður að geta séð hann á venjulegum ljósmyndum án þess að þurfa að fara með þær í stækkun.

Það er ekki smart að sjá forseta setjast á gangstéttarbrún og dingla löppunum.

Það er alveg nóg að Ísland sé dvergríki þó að forsetinn sé ekki dvergur líka.

 

Grettis-Kata hefur komið víða við frá því hún var stigavörður í þættinum Grettu betur á RÚV í gamladaga. Lengst af hefur hún verið pólitískur stigamaður, bæði sem formaður Vinstri Geðveikra, sem hún er búin að koma niðrí 4% og rústa blessunarlega, og forsætisráðherfa í ríkisstjórn sem hún er búin að koma undir frostmark, - ríkisstjórn sem margir vilja meina að sé búin að rústa landinu gjörsamlega til frambúðar.

 

Grettis-Kata segist hafa yfirgefin stjórnmálin fyrir fullt og allt.

Nú sækist hún eftir „pólitískasta embætti landsins sem falið er einum manni,“ einsog Bjarni Ben eldri lýsti forsetaembættinu.

Þegar henni er bent á að það sé ódýr blekking að tala um að hún sé hætt í stjórnmálum þá segist hún ætla að verða ópólitískur forseti.

Ópólitískur forseti í pólitískasta embætti landsins.

Ópólitískur forseti nýstiginn úr forsætisráðuneytinu.

Einmitt sko. Menn verða ekki ópólitískari en Grettis-Kata.

 

Kata reytir af sér brandarana:

 

„Mig langar að gera þessu samfélagi gagn áfram. Ég finn það að ég er ekki að fara að gera það á vettvangi stjórnmálanna, en ég held að þarna gæti ég gert gagn.“

 

Ef hún treystir sér ekki til að gera gagn sem æðsta manneskja framkvæmdavaldsins hversvegna heldur hún þá að hún geti gert meira gagn í embætti sem hún segir að sé ópólitískt og valdalaust?

 

Hún sagði í viðtali rétt eftir að hún bauð sig fram:

 

„Enginn er ómissandi og ekki heldur ég.“

 

Ef hún lítur svo á afhverju getur hún þá ekki „yfirgefið stjórnmálin fyrir fullt og allt“ einsog hún lofaði og sleppt því að reyna að smokra sér í æðsta pólitískasta embætti landsins, vitandi að 75% líti svo á að hún hafi mjög góða fjarveru og sé vel missanleg og gott betur en það?

Það er vegna þess að hún lítur á sig sem gjörsamlega ómissandi drottningu.

 

Einkennismerki Grettis-Kötu er að hún hefur alltaf framkvæmt þvert á það sem hún hefur sagt.

Hljóð og mynd hefur aldrei farið saman hjá henni. Þetta hefur aldrei sinkað.

Trúverðugleikinn þar af leiðandi enginn en trúðsverðugleikinn alger.

 

Kató og ZelenskyHún segir að forseti eigi að fylgja stefnu ríkisstjórnarinnar í utanríkismálum.

Á sama tíma segir hún að forseti eigi alltaf að tala fyrir friði.

Hún var forsætisráðherra og ábyrgðaraðili þegar ríkisstjórnin fór útí stórfelld vopnakaup fyrir Úkraínu.

Hvernig er hægt að tala fyrir friði en jafnframt fylgja herskárri stefnu ríkisstjórnarinnar í utanríkismálum sem hún sjálf átti drjúgan þátt í að móta?

Grettis-Kata sparaði ekki skattfé landsmanna þegar hún var að fjármagna vopnakaup til að drepa fólk hinumegin á hnettinum en hún segist ætla að fara mjög sparlega með málskotsréttinn.

 

Hún hælir Nató á hvert reipi þegar hún er stödd erlendis og manar önnur ríki til inngöngu í þetta stórkostlega varnarbandalag, en þegar hún er hérlendis þá finnur hún Nató allt til foráttu og vill fyrir alla muni að við segjum okkur úr þessu hryllilega árásarbandalagi.

Kató, einsog ég kalla hana stundum, verður að fara að hafa örlítið samræmi í því sem hún segir og reyna að vera sama manneskjan heima og erlendis og taka sér ekki Dr. Jekyll and Mr. Hyde til fyrirmyndar í einu og öllu þó hún sé gríðarlega hrifin af glæpasögum og muni eflaust sjálf skrifa eina slíka í formi pólitískrar ævisögu.

 

Kató segist vilja vernda tunguna.

Málið er að hún hefur tungur tvær og talar sitt með hvorri.

Hvora tunguna vill hún vernda?

 

Þegar horft er yfir stuðningshóp Grettis-Kötu þá kennir þar margra grasa og grasasna.

Þar má t.d. sjá þríeykið eða Þríeitrið öllu heldur, þá Víði, Þórólf og Kára, (Gísla, Eirík og Helga).

Almannavarnir ræstar út. Öllu skal tjaldað til. Það er einsog lífið liggi við að koma Grettis-Kötu á Bessastaði.

Þarna má sjá Skrímsladeild Sjálfstæðisflokksins einsog hún leggur sig, sem margir halda að sé kennd við mig, Serði Monster, og halda að ég stjórni þessu batteríi. Það er nú ekki alveg rétt þó að við Davíð Oddsson séum gamlir og góðir vinir.

Og svo má sjá þarna Kötudýrkendurna og fóstbræðurna og skoðanabræðurna Hannes Morthens og Bubba Hólmstein og fleiri góða menn.

Líkur sækir líkan heim. Eða öllu heldur:

Líkið sækir líkið heim.

 

Hvernig væri nú að Grettis-Kata myndi kasta inn hvíta handklæðinu og líkklæðinu sem hún var í í gær og draga framboð sitt til baka og lýsa yfir stuðningi við Ástþór?

Það væri nú ansi stórmannlegt, en kannski er erfitt fyrir manneskju sem nær Danny DeVito í axlir að sýna stórmennsku.

 

Frekar þann næstbesta en þann versta

Þetta er í fyrsta skipti sem forsetakosningar ganga ekki beint útá að kjósa sér sinn forseta heldur að kjósa í burtu frambjóðanda sem yfir 75% Íslendinga vilja ekki sjá og hafa fengið sig fullsadda af og vilja fyrir alla muni losna við.

 

Þó að Arnar Þór Jónsson sé frábært forsetaefni og þó að Ástþró Marhnútsson sé gamall og góður vinur minn þá lagði ég viskíflösku undir fyrir um mánuði síðan að Halla Tómasdóttir yrði næsti forseti og að það yrði lágmark 10% munur á henni og Grettis-Kötu.

 

Ég veit að þetta er asskoti glannalegt veðmál því Grettis-Kata hefur alltaf verið að mælast hærra, en ég lét það gossa þar sem ég sé ekki útúr augunum fyrir viskíflöskum sem ég hef unnið.

 

Ég þyrfti nauðsynlega að fá einhverja alvöru örlagafyllibyttu til að hjálpa mér með allt þetta viskí einsog t.d. rafskúturónann Brynjar Níelsson. Skilst að það hafi ekki runnið af honum síðan um fermingu.

 

Það var líka glannalegt veðmálið sem ég gerði við sjálfan Ástradamus Magnússon árið 2015 þegar ég veðjaði flösku uppá að Donald Trump yrði næsti forseti Bandaríkjanna. Ástradamus sagði að ég væri galinn því að allir vissu að Hillary Clinton yrði næsti forseti.

Fyrir þá sem ekki vita þá vann Trump kosningarnar og ég vann flösku sem Ástradamus er ennþá að safna fyrir.

 

Hvað um það. Það má vera að þetta verði í fyrsta skipti sem ég tapa veðmáli því það er ekki hægt að gera ráð fyrir að það verði ekki svindlað í þessum forsetakosningum okkar.

Miðað við umfang framboðs Grettis-Kötu og fjáraustrið og hversu miklu hefur verið tjaldað til þá virðist hreinlega lífið liggja við að Nató-Kató nái forsetastólnum svo að valdaelítan og spillingaröflin þurfi ekki að örvænta þegar kemur að næstu einkavinavæðingu ríkiseigna, gjafagjörningum og landráðum, sem er víst alveg bannað að kalla sínu réttu nafni á Íslandi.

 

S.O.S – Svindl Og Svínarí

Nokkrar spurningar í tilefni kosningadagsins:

Hversvegna eru blýantar ennþá notaðir í kjörklefum og hversvegna er ekkert eftirlit með kjörgögnum og hversvegna eru kjörseðlar ekki númeraðir og hversvegna eru kjörkassar úr viði en ekki glærir einsog í öllum öðrum lýðræðislöndum og hversvegna er svona auðvelt að stela þeim og hversvegna getur hver sem er valsað um kjörfundarstaði og hversvegna eru herbergin „innsigluð“ með límbandi en ekki rammgerðum járnlás og hversvegna eru kjörgögn ekki send í lögreglufylgd ef það þarf að flytja þau og hversvegna hafa kjörkassar verið að finnast uppá háaloftum og útí móa og útum allar koppagrundir í gegnum tíðina?

 

Kosningasvindl á Íslandi hafa verið staðfest af Evrópudómstól sem lét okkur aldeilis heyraða.

Ég er ekkert að fullyrða að það verði svindlað en ég spyr:

Hversvegna eru hlutirnir hafðir með þessum hætti og hversvegna er verið að auðvelda svindl með þessum hætti ef ætlunin er ekki að svindla?

Samkvæmt áreiðanlegum mælingum eru Íslendingar ein allra óheiðarlegasta og spilltasta þjóð í heimi, einsog framboð Katrínar er skýrt dæmi um, og í ljósi þeirrar staðreyndar hlýtur sú spurning að vakna: Hversvegna skyldu Íslendingar ekki svindla í forsetakosningum einsog í öllu öðru sem þeir taka sér fyrir hendur?

 

 

Halla TómasdóttirGrettis-Kata vs Halla Tómasdóttir

Flestir eru á því að þessar kosningar snúist um það eitt að kjósa Grettis-Kötu í burtu. Ég hef hitt menn sem segjast frekar myndu kjósa ljósastaur en hana.

Það er allavega stundum kveikt á perunni í ljósastaur. Sá er kannski munurinn.

 

Margir af þeim sem vilja ekki fyrir nokkurn mun sjá Grettis-Kötu á Bessastöðum ætla engaðsíður að láta hjartað ráða för og kjósa sinn fylgislitla uppáhalds frambjóðanda hvað sem tautar og raular í sinni alíslensku þrjósku.

Aðrir ætla að láta heilann ráða för og kjósa þann sem er á mestri uppsiglingu og á mestu líkurnar á að sigra Grettis-Kötu, og það er án nokkurs vafa Halla Tómasar, með fullri virðingu fyrir Harmonikku-Höllu.

Þó að báðar Höllurnar séu virkilega viðkunnanlegar og bjóði af sér góðan þokka, - allavega ekki óþokka einsog ónefndur frambjóðandi, - þá geta þær ekki báðar orðið forsetar.

 

Það má segja að þeir sem ætli sér að láta hjartað ráða för munu eiga sinn þátt í því að Grettis-Kata muni ráða för að kosningum loknum. Ef þeir vilja það þá gott og vel. En ef þeir vilja allsekki að Grettis-Kata sigri þá verða þeir að fara að hugsa með heilanum og láta raunsæið ráða för og kjósa þá Höllu sem á meiri möguleika á að fella Grettis-Kötu, og það er Halla Tómasar. Menn verða bara að feisa það þó þeir séu hrifnir að öðrum frambjóðendum.

 

Munurinn á forsetanum Höllu og forsetanum Grettis-Kötu væri:

Halla yrði andlit Íslands útávið.

Grettis-Kata yrði andlát Íslands útávið.

 

 

 

(Tónlist Stormskers má finna á Spotify)


mbl.is Hnífjafnar í veðbönkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjarni bankster og Kató krimmi

Kata hobbiti, Singi og BjarniÞegar Kata tilkynnti samráðsmönnum sínum í ríkisstjórninni að hún, skipstjórinn, hyggðist stökkva á undan (hinum) rottunum frá borði til að fara í forsetaframboð þá þótti mönnum liggja beinast við að Sigurður Ingi tæki við forsætisráðherraembættinu því hann væri silalegur og sljór drumbur sem miklu meiri sátt yrði um en óvinsælasta stjórnmálamann landsins, en þá greip Bjarni bankster í eyrun á Kötu og hvíslaði:

 

„Hlustaðu nú á mig elsku litla Kata klóakrotta. Þú hefur reynst traustur og dyggur og trúr og tryggur glæpapartner. Ef þú lætur mig fá forsætisráðherrastólinn þá skal ég sjá til þess að öll spillingaröflin og valdaöflin í samfélaginu munu styðja þig af alefli og koma þér í rafmagnsstó..., ... ég meina forsetastólinn. Öllu skal tjaldað til. Ekki Höllu heldur ÖLLU.

 

Ég skal fá allra voldugustu og flottustu glæpamenn og stórfyrirtækjaeigendur landsins til að standa þétt við bakið á þér, ég skal fá minn helming Sjálfstæðisflokkinn til að styðja þig og ég skal fá Singa til að fá Framsóknarflokkinn til að styðja þig og ég skal fá fóstbræðurna Bubba Hólmstein og Hannes Morthens til að ausa þig lofi og ég skal fá Davíð uppá Mogga, pissudúkku auðvaldsins, til að berja á Harmonikku-Höllu og öðrum þeim frambjóðendum sem ógna þér og fá hann til að tala vel um gluggaskrautið sitt hana Kötu litlu og ég skal fá sægreifana til ausa hundruðum milljóna í framboðið þitt svo þú getir sómt þér vel sem gluggaskraut á Bessastöðum og skrifað undir öll okkar landráðalög hugsunarlaust einsog vinur okkar hann Gauðni Th. Wokehannesson hefur gert svo myndarlega til þessa.“

 

Bjarni bankster og Kató krimmiOg áfram heldur Bjarni bankster:

„Ég treysti því elsku litla Kata klóakrotta að þú munir skríkja af ánægju þegar við komum með Bókun 35 og Orkupakka 4 og 5 og 6 og þitt eigið gjafagjörningafrumvarp varðandi lagareldi þar sem við afhendum norskum auðjöfrum firði landsins á silfurfati og rústum villta laxastofninum, seljum vildarvinum Landsbankann og Landsvirkjun á undirverði og fleiri verðmæt ríkisfyrirtæki í bútum og ég vil að þú lofir því að þú munir nota áhrifavald þitt til að halda Sjálfstæðisflokknum við völd og látir okkur fá stjórnarmyndunarumboðið þegar þar að kemur og leggir þitt af mörkum til að halda spillingunni gangandi. Lífið liggur við.

 

Þú manst þegar Gufu-Guðni forseti lét þig hanga með stjórnarmyndunarumboðið vikum saman þarna 2017 þegar þú og Svandís Stalínsdóttir höfðuð lofað þjóðinni að þið mynduð Aldrei fara í stjórn með Sjálfstæðisflokknum. Það var svo frábært hvernig við blekktum allt andskotans pakkið uppúr skónum. Ég, þú og Steingeldur J. Sigfússon vorum búin að mynda ríkisstjórnina löngu áður en til sviðsettra stjórnarmyndunarviðræðna kom en við létum alla halda að þessar viðræður gengju alveg obboslega erfiðlega afþví að VG og Sjálfstæðisflokkurinn ættu jú að heita svo svakalega ólíkir flokkar.

Manstu eftir þessu Kata mín?

 

Kató og Steingeldur JÞá var nú gott að hafa Gauðna forseta í vasanum sem gaf grænt ljós á að þú fengir að hafa stjórnarmyndunarumboðið eins lengi og þörf krefði. Pírapar og Samflónin héldu að þeir kæmu virkilega til greina sem samstarfsaðilar á þessum tíma. Múhahaha.

 

Ég og þú og Steingeldur J. vorum fyrir löngu búin að plana að við ætluðum að starfa saman og það höfum við gert af heilindum síðan og aldrei borið skugga á enda erum við heiðarlegir krimmar. Bófar verða að vera heiðarlegir hvorir við aðra ef samstarfið á að endast. Og okkar hefur enst von úr viti.“

 

Og áfram heldur Bjarni bankster:

„Það voru nú einmitt mínir menn sem sáu um að koma Gauðna á Bessastaði með moldvörpuna Friðjón Friðjónsson fremstan í flokki, sama gengi og ég er búinn að ráða til að koma þér á Bessastaði.

Djöfull erum við góð saman Kata mín. Elsku klóakrottan mín.

Þennan leik þurfum við að leika aftur þegar þú ert orðin forseti og þá fæ ég að dúlla mér með stjórnarmyndunarumboðið vikum saman ef ég kæri mig um og saman getum við sett þumalskrúfu á þá formannsræfla sem vilja uppá dekk og halda að þeir séu eitthvað og eru með derring.

Allt þitt frábæra líf hefur verið lygi og svik og prettir og bakstungur og blekkingar og landráð.

Við eigum svo obboslega vel saman. Við erum einsog Bonnie and Clyde og heitum næstum því sömu nöfnum, Bernie and Kate.

 

Ég skal gera bókstaflega ALLT til að koma þér í forsetastólinn.

Þú varst nú sjálf yfirmaður RÚV sem menntamálaráðherra þannig að við getum treyst á góða veðrið þar á bæ enda hefurðu verið þar daglegur gestur í hartnær tvo áratugi.

 

Og svo ertu búin að gera stjórnarformann Gallup að kosningastjóranum þínum, sem hefur mikið verið að vinna fyrir Steingeld J. og Vinstri Galna í gegnum tíðina og þessi gæi getur séð um að hafa þig alltaf langefsta í öllum könnunum og talið fólki trú um að þú sért alvinsælasti stjórnmálamaður Íslands einsog hann hefur gert árum og áratugum saman til að setja þrýsting á að þú náir alltaf æðstu embættum þó að flokkur þinn sé við dvergamörk einsog þú sjálf.“

 

Og áfram heldur Bjarni bankster:

„Sjálfur skal ég ræsa út Almannavarnir og tala við Slökkviliðið og Lögregluna og Víkingasveitina og Ríkislögreglustjóra og Ríkissaksóknara og Ríkisskattstjóra og Martein Mosdal og Ríkisendurskoðun og allt embættiskerfið einsog það leggur sig og fá þau í lið með þér en kannski að það myndi lykta pínupons af spillingu? En gerir það nokkuð til?

Við tvö erum kannski ekki snillingar en við eru klárlega mestu spillingar landsins. Múahahahaha!

 

Víðir, Kári og FlónólfurÉg skal meiraðsegja fá sóttvarnarhálfvitana Gísla, Eirík og Helga eða hvað þeir heita nú þessir mongólítar þarna í Þríeykinu ... eða Þríeitrinu öllu heldur, - Víði víðáttuvitlausa, Flónólf fáráðling og Kára Klepptæka, til að lýsa yfir stuðningi við þig og dásama þig í bak og fyrir.

 

Kári „klári“ er nú vanur að kjafta upp hlutabréfin í vonlausum fyrirtækjum einsog þessu deFRAUD ponzisvindlkompaníi sínu sem setti hálfa þjóðina á hausinn þannig að hann fer nú létt með að kjafta upp hlutabréfin í vonlausum innistæðulausum forsetakandídat einsog þér elsku litla landráðakellingin mín sem hefur sundrað og rústað þjóðinni og pólaríserað hana og klofið hana í herðar niður í öllum skilningi með þindarlausum innflutningi hælisleitenda og sett allt á hausinn með dyggum stuðningi mínum í formi algers afskiptaleysis.

Engin manneskja frá landnámi hefur skapað aðra eins skautun og þú.

Þú ert sannkölluð skautadrottning Íslands eða skautunardrottning Íslands öllu heldur.“

 

Og áfram heldur Bjarni bankster:

„Þú Kata mín ert frábær fulltrúi alþjóðavæðingarinnar, wokeismans, loftslagstrúarbragðanna, alþjóðlegra stórglæpastofnana og stórfyrirtækja, opinna landamæra, rústunar þjóðríkisins, vinstrifasistanna, hnattræningjanna, spillingarinnar og valdaelítunnar.

 

Sjálfur hef ég enga skoðun á þessum málum. Ég hef engan áhuga á hugmyndafræði eða straumum og stefnum í pólitík. Ég veit ekki einusinnu hvort ég sé vinstrimaður eða hægrimaður. Mér er alveg sama um stjórnmál. Ég er fyrst og fremst bissnissmaður. Þessvegna er ég í pólitík. Það er ekki hægt að verða verulega ríkur á Íslandi nema með því að komast yfir ríkiseigur. Samþættun stjórnmála og viðskipta er lykillinn að velgengni á Íslandi.

Flestir kalla þetta spillingu en ég kalla þetta raunsæi.

 

VinstrifasismiÞú Kata ert hinsvegar öll í hugmyndafræðinni og elskar þinn femínisma og þinn wokeisma og þinn menningamarxisma og þinn vinstrifasisma og vilt að allur heimurinn lúti forsjá og handleiðslu einnar miðstýrðar alræðisstjórnar og til þess að koma þessum dásamlega kommúnisma á þarf að mola niður þjóðríkin innanfrá og þessvegna ertu svo gríðarlega hrifin af galopnum landamærum."

 

Og áfram heldur Bjarni bankster:

"Veistu það Kata mín að innan 20 ára verða Íslendingar orðnir minnihlutahópur í eigin landi? Stefna þín og þinna manna sem þú ert að vinna fyrir er að ganga upp og nú er þjóðin rammflækt í þessum glæsilega blekkingaWEF og getur sig hvergi hrært.

 

Þú telur að þú sért akkúrat manneskjan sem getur orðið sameiningartákn þjóðarinnar eða „sameiningarafl“ eða hvað þú vilt kalla þetta. Þú getur í það minnsta orðið sameiningartákn valdaelítunnar og spillingaraflanna og þau eru nú mun mikilvægari en þessi helvítis þjóð sem við erum blessunarlega að skipta út fyrir íslamista.

 

Íslamistar mega eiga fjórar konur og þeir fjölga sér áttfalt á við okkur geldingana í Evrópu og verða búnir að taka yfir álfuna fyrir 2050. Stærðfræði 101.

Ísland er dvergríki og verður orðið íslamskt land innan tveggja áratuga og mun líklega kallast Íslandistan.

Þökk sér þér elsku Landráða-Kata mín, sem ert margfaldur Evrópumeistari í hælisleitendainnflutningi og þökk sé mér fyrir að vera punglaus aumingi og hafa leyft þér að henda dómsmálaráðherrunum Sigríði Á. Andersen og Jóni Gunnarssyni útí tunnu, einu hægrimönnunum í Sjálfstæðisflokknum sem voru að reyna að breyta galinni innflutningsstefnunni í útlendingamálum.

 

Ég þykist vera að rumska núna en persónulega er mér í raun alveg sama um þessi mál svo framarlega sem ég fæ að koma ríkiseigum í réttar hendur. Og þú hefur gefið grænt ljós á það gegn því að ég hreyfi ekki andmælum þegar þú hefur verið að innleiða eyðileggingarstefnu heimsvaldafasistanna í Davos og rústa þjóðfélaginu. Um þetta snýst okkar verkaskipting og okkar góða samstarf.

 

Samkvæmt áreiðanlegum mælingum þá eru Íslendingar ein óheiðarlegasta og spilltasta þjóð í heimi þannig að þó að þeir vilji hugsanlega ekki fá þig sem sameiningartákn eða „sameiningarafl“ af einhverjum óskiljanlegum ástæðum, þá má alveg segja að þú sem svokallaður skítakarakter sért samnefnari þjóðarinnar, elsku klóakrottan mín.

 

Það er ekki ég sem er að segja að þú sért sleazy skítakarakter heldur þessir helvítis popúlistar og öfgahægrimenn og rasistar og nasistar og útlendingahatarar sem skilja ekki gangverk samfélagsins og eru stútfullir af óæskilegum skoðunum og demba útúr sér stórhættulegri hatursorðræðu og viðbjóðslegum hugmyndum um einstaklingsfrelsi og tjáningarfrelsi og kunna ekki að meta þennan stórkostlega glóbalisma og vinstrifasisma sem þú hefur verið að innleiða með mínu þögla samþykki.“

 

Kató Maó byltingarhetjaOg áfram heldur Bjarni bankster:

„Þú boðaðir 2017 þegar við mynduðum okkar frábæru ríkisstjórn að þú myndir gjörbreyta íslensku samfélagi og það hefur þér svo sannarlega tekist. Þessi stórkostlega menningarbylting þín, sem þú framkvæmdir að sjálfsögðu að undirlagi þeirra alþjóðlegu stofnana sem þú ert að vinna fyrir, hefur ekki bara umbylt íslensku samfélagi heldur gjöreyðilagt það til frambúðar því þetta er óafturkræf tortíming á samfélagsgerðinni og hún verður aldrei söm, sem betur fer. Þetta er alveg meiriháttar.

Áhrifin munu koma í ljós á allra næstu árum í formi gríðarlegrar aukningar glæpatíðni og Ísland mun alveg pottþétt enda í sama æðislega drullupyttinum og Svínþjóð. Það er mikil guðs blessun.

 

Þú hefur sagt að þú hafir mjög mikið vit á gangverki samfélagsins og það má til sanns vegar færa að því leyti að þú veist alveg nákvæmlega hvernig á að stoppa gangverkið. Þú hefur jú sagt sem græningi að þér sé meinilla við hagvöxt og að þú teljir hann "ofmetið fyrirbrigði."

Fólki sem er illa við hagvöxt og vill fórna hagsæld og farsæld landsins fyrir loftslagstrúarbrögðin er sjálfkrafa illa við allar framkvæmdir og framleiðslu og nýtingu auðlinda.

 

Ef ég hefði ekki látið allt eftir þér þá væri stjórnin sprungin fyrir lifandi löngu. Vinstrimenn eru öskurapar og ef maður hefur hlutina ekki nákvæmlega eftir þeirra höfði þá sprengja þeir allt í loft upp. Almenningur heldur hinsvegar að það sé Ég sem hafi spillt Þér og að Þú sért undir hælnum á Mér. Við tvö vitum að það er mikill misskilningur. Þessu er öfugt farið.

 

Besta sönnunin fyrir því að þú ráðir öllu er að stjórnin hefur starfað í 7 ár og þjóðfélagið er ein rjúkandi rúst.

Hefði ég reynt að fá að ráða einhverju um hugmyndafræðina og menningarmarxismann þinn og vinstrifasismann þinn sem þú elskar út af lífinu þá hefði stjórnin sprungið á fyrstu mánuðunum.

 

Núna loksins þegar þú ferð þá get ég reynt að fara að berja í brestina og gera eitthvað örlítið af viti.

En verkaskipting okkar hefur verið alveg skýr  og frábær og þessvegna hefur stjórnin lifað. Eina leiðin til að lynda við kommúnista er að lúffa og halda kjafti.

Sá vægir sem vitið hefur meira og maður þarf ekki að hafa mikið vit til að hafa meira vit en vinstrimenn."

 

Og áfram heldur Bjarni bankster:

"Ég hef leyft þér að hindra allar virkjanaframkæmdir og orkuöflun og standa í vegi fyrir öllum framkvæmdum og allri framþróun og öllum framförum í landinu og allri atvinnuuppbyggingu og öllu vitrænu sem þarf að vera til staðar svo að gangverk samfélagsins geti virkað, sem þú segist skilja svo svakalega vel, og ég hef leyft þér að vera með ríkisstjórnina og þjóðina í gíslingu í 7 ár enda er hér líka allt í einni glimrandi flottri rjúkandi rúst:

 

Landbúnaður í hakki, fiskveiðar í hakki, hvalveiðar í hakki, vextir í botni, verðbólgan í botni, orkumál í hakki, útlendingamál í hakki, heilbrigðismál í hakki, ríkisfjármál í hakki, húsnæðismál í hakki, öldrunarmál í hakki, öryrkjamál í hakki, menntamál í hakki og tungumálið sjálft í hakki, sem þú segist bera svo mikla umhyggju fyrir, og okkur hefur meiraðsegja tekist að setja leigubílstjórastéttina í þvílíkt hakk að það er farið að hafa áhrif á ferðamannaiðnaðinn. Guði sé lof.

Allt er í einni glæsilegri rjúkandi rúst.

 

Bláeygir einfeldningar halda að þessi rústun þjóðríkisins sé stefnuleysi en það er öðru nær. Þetta er markviss marxísk stefna og það er verið að framkvæma hana allsstaðar á Vesturlöndum af þínum glópalglópum sem þú ert að vinna fyrir Kata mín, en þú hefur sem betur fer aldrei verið spurð um þetta grundvallarmál af okkar gagnslausu steinsofandi handónýtu fjölmiðlum sem við erum búin að stinga snuði uppí og breyta í ríkisfjölmiðla svo þeir grjóthaldi kjafti.“

 

Og áfram heldur Bjarni bankster:

„Já, ég ætla að halda áfram að lýsa þessari frábæru verkaskiptingu okkar:

 

Ég hef leyft þér að iðka þinn gasalega gáfulega menningarmarxisma og eyðileggja íslenska tungu með innleiðingu á kynhlutlausu málfari og orwellskri nýslensku í skólakerfinu og leyft þér að bulla fallega um femínisma og fóstureyðingar fram að fæðingu og kynrænt sjálfræði og svokallaða „hatursorðræðu,“ en það eru skoðanir sem samræmast ekki pólitískum rétttrúnaði vinstrifasista sem eru að róa að því öllum árum að koma á einni miðstýrðri alheimsstjórn.

 

Kató í NatóOg ég hef leyft  þér að dásama Nató þegar þú ert að halda ræður erlendis og mana þjóðir til inngöngu í þetta stórkostlega varnarbandalag og ég hef leyft þér að rakka niður Nató þegar þú ert að halda ræður hérlendis og tala um að þú viljir að Ísland segi sig úr þessu hryllilega árásarbandalagi og hef leyft þér að hafa þínar tungur tvær og tala sitt með hvorri og ég hef leyft þér stoltur að slá hvert heimsmetið á fætur öðru í tvískinnungshætti og hræsni og óheilindum og óheiðarleika og svikum og prettum og blekkingum og glæsilegum raðlygum elsku besta Kató mín.

Ég er bara svo ofsalega stoltur af þér að þú trúir því ekki. Nú tárast ég af hrifningu.“

 

Og áfram heldur Bjarni bankster:

„Og hvað verkaskiptingu okkar varðar þá ég hef leyft þér berja á bændum og eyðileggja landbúnaðinn í nafni loftslagstrúarbragðanna þinna og yfirboðara þinna í WEF og ESB og WHO og Sameinuðu þjófunum, sem er í raun allt sama stofnunin með sömu markmið og sömu eyðileggingarstefnuna sem verið er að innleiða útum öll Vesturlönd.

Heimsvaldakommúnistar þessara yfirþjóðlegu glæpastofnana, sem þú samsamar þig við, hafa breytt Vesturlöndum í Verstulönd.

 

Og ég hef leyft þér og Svíndísi Stalínsdóttur að stöðva strandveiðar og hvalveiðar og þverbrjóta stjórnarskrána og lög um atvinnufrelsi og ég hef leyft þér að bulla fallega um manngert veðurfar og ausa tugum milljarða í loftslagsrétttrúnaðarkirkjuna og hundruðum milljóna í hryðjuverkasamtökin Hamas og eyða gríðarlegum fjármunum í kolólögleg vopnakaup í trássi við þjóðaröryggisstefnu landsins og alþjóðasamninga til að drepa Rússa hinumegin á hnettinum, sem getur varla flokkast undir neitt annað en enn ein fyrirtaks landráðin.

 

Tjáningarfrelsi KatrínarOg ég hef leyft þér að hjala um lýðræði og réttarríkið og mannréttindi og tjáningarfrelsi á meðan þú hefur bak við tjöldin barist fyrir niðurbroti þjóðríkisins og innleiðingu vinstrifasisma og skerðingum á málfrelsi, líkt og búið er að innleiða í Skotlandi og víðar, og viljað skikka opinbera starfsmenn á námskeið í pólitískri rétthugsun.

 

Og ég hef leyft þér að framfylgja Agenda 2030 og Heims(ku)markmiðum Sameinuðu þjófana og ég hef leyft þér að rústa menntakerfinu og ýta undir kyn- og transvæðingu grunnskólabarna og leyft þér að vera Agenda Contributor hjá WEF og sérlegur erindreki og sendiherra WHO á Íslandi og leyft þér að innleiða fasíska niðurbrotsstefnu þessara alþjóðlegu stofnana gagnrýnislaust og leyft þér að vinna gegn hagsmunum þjóðarinnar kvölds og morgna árið um kring og koma henni undir erlend yfirráð og gefa auðlindir þjóðarinnar erlendum auðjöfrum og framselja ríkisvald til alþjóðlegra stofnana og stórfyrirtækja og opna landamærin uppá gátt og rústa innviðum landsins til frambúðar og framleiða ósætti og sundrungu og „skautun“ í samfélaginu sem þú hefur síðan sjálf kvartað mest yfir í áróðursskyni.

 

Og alla þessa óendanlegu dásamlegu glóbalistaheimsku hef ég leyft þér að framkvæma á meðan ég hef fengið að vera með mína löngu fingur oní kökuboxi landsmanna.

Þannig hefur díll okkar verið síðastliðin 7 ár.“

 

KatóOg áfram heldur Bjarni bankster:

„Elsku litla Landráða-Kata mín. Þú veist vitaskuld alveg hvaða afleiðingar þessi innleiðing þín á eyðileggingarstefnu alræðisglóbalistanna mun hafa á Ísland á næstu árum og áratugum þannig að það er ekkert skrýtið að þú, skipstjórinn, skulir vilja forða þér frá borði fyrst allra áður en að allt fer til andskotans og þá verður þú komin í friðhelgina á Bessastöðum.

 

Þar munt þú „halda áfram að gera þjóðinni gagn“ og „halda áfram að vinna að þjóðarhagsmunum“ einsog þú hefur orðað það svo kaldhæðnislega.

Það er greinilega húmor í minni.

 

Ekki gleyma að segja nokkra vel valda brandara í kosningabaráttunni:

Þú getur t.d. sagt að þú munir "alltaf sýna þjóðinni hollustu" og að þú hafir "alltaf staðið með þeim sem höllustum fæti standa í samfélaginu" á sama tíma og þú hefur séð til þess að 15.000 eldriborgarar eru núna undir fátæktarmörkum.

 

Og þú getur sagt að þú munir sko ekki láta öryrkja og aldraða bíða eftir réttlætinu þó þú hafir látið þá bíða og bíða í 7 ár - og þú getur sagt og að þú munir alltaf tala fyrir friðsamlegum lausnum og friðsamlegum vopnakaupum.“

 

Kató á taugumOg áfram heldur Bjarni bankster:

„Og í guðanna bænum ekki fara í viðtöl á Samstöðinni hans Gunnars Smára eða á Útvarpi Sögu hennar Arnþrúðar Karls vegna þess að þó þú náir mér bara í nafla þá ertu engaðsíður allt of stór og merkileg persóna til að fara að ræða við einhverja venjulega almúgadúdda sem eru með undir 5 milljónum á mánuði. Þú ert langt yfir svona alþýðupakk hafin.

Þú ert hin eina sanna Kató krimmi en ekki einhver Edda öryrki.

Þú ætlar að verða forseti fjármálaaflanna og valdaklíkunnar en ekki sauðsvarts almennings og einhverra helvítis aumingja.

 

Þú getur alveg eins farið í Kolaportið eða Góða hirðinn eða Fjölskylduhjálpina einsog að láta sjá þig á þessum skítblönku fjölmiðlum, og svo er alltaf hætta á að þú fáir óþægilegar spurningar og ekki viljum við það.

 

Þau gætu gerst svo ósvífin að fara að gagnrýna þig og við vitum að öll gagnrýni á stjórnvöld og valdamenn flokkast undir hatursorðræðu á Íslandi.

Þau gætu farið að spyrja þig hverju þú hefðir komið í verk sem forsætisráðherfa og þá myndi kannski koma uppúr kafinu að þú hafir bara viljað framleiða úrræðaskort í hælisleitendamálum, orkuskort, fæðuskort, húsnæðisskort, peningaskort, menntunarskort o.s.fr. því ekki skortir ykkur kommúnistana greindarskort.

 

En þú ert alveg frábær Kató mín og við eigum það sameiginlegt að vera alveg gegnheil í okkar óheilindum og leynimakki gegn þjóðinni. Við höfum starfað feykivel saman sem glæpapartnerar, enda hefur þú sagt opinberlega að ég sé besti partner ever og ég get sagt það sama um þig: Þú ert minn allra besti og traustasti glæpapartner, Kató krimmi. Við þurfum manneskju einsog þig sem forseta. Ég skipaði Gauðna Té Hán að pakka saman svo að þú gætir komist að sem forseti og hann hlýddi vitaskuld þegjandi og hljóðalaust enda var það ég og mínir menn sem komu honum í forsetastólinn á sínum tíma.“

 

Bjarni og KatóOg áfram heldur Bjarni bankster:

„Og nú tekur þú við sem forseti Kató mín.

Nú lætur þú mig fá forsætisráðherrastólinn og ég læt þig fá forsetastólinn.

Er þetta díll elsku Nató-Kató mín? Elsku litla sæta gluggaskrautið mitt?

Flott. Þá er það ákveðið. Ég fer þá strax í kynleiðréttingu og læt breyta mér í karlmann og fer að reyna að taka á málunum einsog maður og reyna að telja þjóðinni trú um að núna þegar þú ert farin að þjóna þinni metorðagirnd og valdagræðgi á Bessastöðum í stað þess að þjóna fólkinu í landinu, þá ætli ég að þykjast að fara að taka á útlendingamálunum og orkumálunum og ríkisfjármálunum og reyna að lágmarka skaðann sem þú hefur valdið þjóðinni.

 

Ég get ekki lofað að ég geti látið svindla með beinum hætti í kosningunum með því að fixa til kjörgögn og svona en ég reyni mitt besta.

Það er ástæða fyrir því að allt varðandi kosningar sé með þeim hætti að sem auðveldast sé að svindla. Það er einfaldlega til að hægt sé að svindla.

Þó að allt sé gert til að auðvelda kosningasvindl þá get ég samt engu lofað um árangur á þessu stigi málsins.

 

Kató yfir NatóÉg reyni að krimmast einsog ég get og enginn elskar krimma meira en þú elsku Kató krimmi. Ef svo fáránlega vildi til að þú yrðir ekki forseti Kató mín þá reynum við að koma þér að sem framkvæmdastýru Nató. Þig hefur hvort eð er dreymt um þá stöðu síðan þú varst í Keflavíkurkommúnistagöngunum með Steingeldi J. Sigfússyni og hrópaðir: ÍSLAND ÚR NATÓ – HERINN BURT! Það yrði nú aldeilis draumadjobbið fyrir þig Kató mín.

Við gætum verið með flott slagorð: KATÓ YFIR NATÓ.

 

Nú, ef að Nató þekkir þig of vel og vill ekki sjá þig frekar en þínir eigin flokksmenn og 75% þjóðarinnar, þá geturðu bara tekið við formennsku og aðalritarastöðu í kommúnistaflokknum mínum þegar ég er búinn að koma öllum fjöreggjum þjóðarinnar á mína spæleggjapönnu.“


mbl.is Horfðu hér: Heitar kappræður í Hádegismóum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konunglegir leghafar og pungberar

KonungsfjölskyldanÞar sem ég ætla að fjalla hér lítillega um kóngafólk þá skal ég reyna að vanda orðaval mitt í hvívetna og laga það að kröfum ríkjandi rétthugsunnar.

 

Það er blessunarlega nýbúið að opna Grafhýsi íslenskunnar, sem kallast Edda, og þangað eru flutt skelfileg orð einsog „mamma“ og „pabbi,“ sem nú kallast foreldri nr. 1. og foreldri nr. 2., og „kona“ sem nú kallast leghafi, og „karl“, sem nú kallast reðurhafi eða pungberi eða sláturhafi eða eitthvað álíka smekklegt.

 

Það er sumsé verið að hreinsa tungumálið af óæskilegum og varasömum orðum sem falla ekki að yfirlýstri alræðisstefnu heimsvaldakommúnista (glóbalista) sem raunverulega stjórna landinu þó að (land)ráðamenn ríkisstjórnarinnar sjái um að framkvæma vald þeirra.

 

Kalla tími komÞetta er soldið bagalegt því að nýkrýndi maðurinn sem ég er að fara að fjalla um heitir einmitt Karl og hann heitir ekki bara Karl heldur ER hann líka karl, sem er alveg ferlegur dónaskapur í dag, og svo er hann hvítur í ofanálag sem „kórónar“ nú óskammfeilnina, og þar að auki er þessi karl sem heitir Karl sonur pabba síns og líka sonur mömmu sinnar, sem vill svo til að er kona. Ekki trans heldur alvöru kona af gamla skólanum.

Þetta verður ekki mikið verra.

 

 

Háæruverðugi leghafinn Elísabet II

Kalli ánægðurSvo ég móðgi ekki öll þessi 780 kyn sem eru til í dag og öll  þessi kúguðu fórnarlömb sem tilheyra minnihlutahópum þá held ég að það sé best að kalla Karl bara Kalla. Þá verður enginn sár og enginn fer að titra af bræði einsog nú er í tísku.

 

Ég skal reyna að fara fínt í þetta og ef ég minnist á Elísabetu þá skal ég reyna að muna eftir að tala ekki um hana sem konu heldur sem leghafa eða foreldri Kalla nr: 1, sem gæti reyndar orðið soldið ruglingslegt því hún sjálf er Elísabet II og Kalli sjálfur er Karl III.

 

Beta í kistunniÞess má geta að ég fór einmitt í útför téðrar Elísabetar því það vildi svo vel til að ég var staddur í Betuveldi á þessum tíma, og þegar ég stóð við kistuna í Westminster Hall þá rétthugsaði ég:

 

„Í þessu fánasveipaða gullna boxi hvílir Elísabet II foreldri Karls III  númer 1. Ef sál hennar lifir þá kæmi sér nú vel fyrir hana að geta hugsað útfyrir boxið. Blessuð sé minning þessa merka leghafa. Hún var ekki bara konungleg persóna heldur var hún eflaust með konungLeg og ætti því að kallast konungleghafi. Að auki var hún ansi skemmtileg og ekki ósennilegt að hún hafi verið með skemmtiLeg og ætti því máski að kallast skemmtileghafi. Ég vona allavega að hún hafi getað skemmt þér konunglega þó hún hafir verið drottning. Hvíl í friði háæruverðugi konunglegi skemmtileghafi eða skemmtilegi konungleghafi.

Guð blessi Betu Bretadronsu.“

 

 

Krýning reðurhafa og „kóngs“

Konungshjónin og bastarðurinnKrýning Kalla var ekki bara sögulegur viðburður heldur var þetta einstakur sjónvarpsviðburður því í fyrsta skipti í sögunni fékk heimsbyggðin að horfa á krýningu Bretakonungs í beinni og þar að auki er Kalli sá allra elsti sem krýndur hefur verið. Engin hætta á að menn ruglist á orðunum „kornungur“ og „konungur“ þegar hann er annarsvegar.

 

Ég ætla í þessari grein að lýsa stuttlega því sem fyrir augu bar vegna fjölda áskoranna fólks hvaðanæva af landinu sem missti af herlegheitunum vegna þess að það er búið að reka það úr íbúðum sínum til að koma velferðarflóttamönnum og lúxushælisleitendum í húsaskjól.

Landamærin verða jú að verða galopin að kröfu WEF og ESB sem stjórna stjórnvöldum.

 

Ég er ekki góður í að muna mannanöfn og ef ég misfer með nöfn eða verð missaga einhversstaðar þá biðst ég velvirðingar á því.

 

 

Ennishátt varðmenniÞað var breskt veður þennan morgun og það rigndi á háa sem lága, aðallega lága sem hímdu úti og horfðu á háa stíga úr glæsivögnum sínum og ganga inn í Westminster Abbey.

 

Fólk var nýbúið með morgunverðinn sinn og morgunverðir stóðu vörð við kirkjuna.

Þessir konunglegu heiðursvarðmenn eru allir með verulega hátt enni einsog sjá má af löngu loðnu höttunum sem þeir þurfa að bera af þeirri ástæðu.

Þeir klæðast blóðrauðum búningum til að það sjáist ekki ef þeir særast.

Af svipaðri ástæðu klæðist Joe Biden alltaf brúnum buxum.

 

 

Guðni Th. Wokehannesson og aðrir gestir

Guðni Th. WokehannessonÍ kirkjunni var margt tignra gesta í sínu allra fínasta pússi. Má þar fyrstan nefna Guðna Th. Wokehannesson. Hann sást að vísu aldrei í mynd en hann hefur áreiðanlega verið í sínum hátíðlegustu stuttbuxum í öllum regnbogans litum og í marglitum köflóttum hnéháum sokkum og upprúlluðum sirkusskóm í stíl og með buff á hausnum, líklegast fyrsta flokks hakkabuff frá SS.

 

Norður-kóreski kubburinn með flottu mackintoshdolluklippinguna, sem hágæða veitingastaðurinn „Feiti dvergurinn“ er mjög líklega skírður í höfuðið á, hann komst ekki vegna aftaka ... veðurs, en í hans stað var kanadíska öfgavinstrimanninum Justin Trúðó boðið, sem margir telja gott efni í fyrirmyndar fasistaleiðtoga. Samherji hans, hún Úrkula vonar Liar, aðalritari ESB, var á svæðinu en þótti ekki heppilegt myndefni í opinni dagskrá, ekki frekar en Ólafur Skólp, kanslari Þriðja ríkisins.

 

„Vinur“ Ólafs Skólps, hann Joe Biden, sá sem lofaði að sprengja þýsk-rússnesku Nord Stream gasleiðslurnar ef Rússar færu inn í Úkraínu, til að veikja bæði Þýskaland og Rússland, hann gat ekki mætt því það var verið að laga nokkrar sprungnar leiðslur í hausnum á honum eftir þrálátar hrasanir undanfarin ár.

 

Þarna voru margir fyrrum gosar úr Clowning Street 10, svosem friðarhöfðinginn Tjóni Blair, Íslandsvinurinn Gordon Clown, handabakarinn Boring Johnson og svo Liz Trash sem var forsætisráðherfa í heila 40 daga áður en glóbalistinn Risky Slimebag tók við.

Vona að ég fari rétt með nöfnin á þessu ágæta fólki.

 

 

Elítan flýgur á undan með góðu fordæmi

ElítuhræsnararnirÁður en lengra er haldið er ekki úr vegi að fræða lesendur örlítið um kóngsa.

Einsog aðrir sem gera mikið af því að fljúga um í einkaþotum þá er Kalli afar mikill loftslagsáhyggjumaður, eða það sem ég kalla lofthaus, - airhead, enda er hann yfirleitt með sinn kvíðafulla haus í skýjunum og þar fyrir ofan. Svo sterk er trúarsannfæring hans um að veðurfarið sé manngert og svo miklar áhyggjur hefur hann af þessu öllusaman að hann verður að teljast einn fremsti loftslagsáhyggjumaður í heimi.

 

50 mínútna flug í einkaþotu losar jafn mikið kolefni og 1 venjulegur fjölskyldubíll gerir á einu ári og þessvegna er nú Kalli og aðrir elítu-umhverfissinnar stöðugt fljúgandi útum allar jarðir á loftslagsráðstefnur til að vara almenning við því að vera að ferðast um á bílum og með flugvélum og fara frekar að ferðast fótgangandi eða í gripalestum.

 

Til að róa samviskuna þá er Kalli búinn að láta breyta gamla Austin Martin bílnum sínum þannig að í dag þá á þessi bíll það sameiginlegt með Boring Johnson að ganga fyrir hvítvíni. Ótrúlegt en satt. Engin missögn.

Sláttuvélin hans hlýtur að ganga fyrir kampavíni þannig að hann er nú aldeilis búinn að bæta fyrir allt sitt einkaþotuflug.

 

Móðir náttúra vs mongólítarKalli hlýtur fljótlega að boða Grétu Tungldverg og Djörk Guðmunds og Grettis-Kötu á sinn fund til að bjarga plánetunni og lýsa yfir neyðarástandi vegna hamfarahlýnunnar.

Áðurfyrr var talað um vitringana þrjá sem komu með gull, reykelsi og myrru.

Í dag er talað um vitfirringana þrjá sem koma með bull, ergelsi og firru.

 

Neyðarástandið sem mun ríkja innan nokkura ára mun reyndar ekki stafa af hamfarahlýnun heldur hamfarafasisma sem loftslagsvinstrið verður búið að koma á.

 

 

Kalli og loftslagsbissnissinn

Konungur glóbalistaKalli mætti galvaskur á fund World Economic Forum í Davos í janúar 2020, á einkaþotunni að sjálfsögðu, þar sem hann mærði í hástert glænýja verkefnið: „The Great Reset,“ sem ku vera runnið undan rifjum Klás Skvap stofnanda WEF. Nokkrum mánuðum síðar, eða 3. júní, startaði Kalli verkefninu formlega og varð opinber verndari þess.

 

Stórhuga svindilkompaní fá iðulega kóngafólk eða fyrrum forseta sem andlit sorans útávið til að gefa blekkingaglæpastarfseminni trausta ímynd og trúverðugleika. Vigga Finnboga var eitt sinn notuð á þennan hátt sem "useful idiot" af þekktu íslensku ponzisvindlfyrirtæki.

 

VindmyllurugliðKalli er ekki alveg hlutlaus verndari því krúnan stórgræðir á þessum loftslagsbissniss sem eigandi hafsbotnsins umhverfis Bretland og fær því dágóðan skilding í lommen fyrir hvert haf-vindorkuver sem reist er.

 

Orkureikningar þjóðanna munu fara uppúr þakinu og peningar sogast úr vasa almennings í vasa hinna ofurríku sem fitna einsog Pútín á fjósbitanum. Aldrei hefur verið fundin upp kröftugri peningasuguvél sem samtímis rústar þjóðríkjunum, einsog ætlunin er. Meiraðsegja „bóluefna“faraldurinn bliknar í samanburði.

 

Miðað við hvað mannkynið er trúgjarnt og vanbúið til höfuðsins þá hlýtur þessi „hamfarahlýnun af mannavöldum“ að vera alsnjallasta fjárplógshugmynd og valdatökuplott allra tíma.

 

 

Bretlandseyjar verði „Grænhöfðaeyjar“

Kalli wokeKalla er margt til lista lagt. Hann er ekki bara umhverfiskommúnisti og wokester heldur spilar hann á selló og lúður. Er jafnvígur á herlúður og grálúður og stórlúður og ýmsar aðrar lúðutegundir.

Hann er verulega góður vatnslitamálari, reyndar svo góður að hann þykir slaga uppí Adolf Hitler. Ekki leiðum að líkjast, segja eflaust topparnir í ESB.

 

Kalli er hardcore glóbalisti (kommúnisti) einsog flestir billjónamæringar, og grænn að sama skapi. Hann nýtur þess að róta í blómabeðum og kálgörðum með öllum sínum eiturgrænu þumalputtum. Hann er sannkallaður grænhöfði sem elskar allt vænt sem vel er grænt og vill að Bretlandseyjar verði einskonar „Grænhöfðaeyjar“ í vissum skilningi.

 

Loftslagsbreytingar af mannavöldumHann er ekki bara grænn í gegn heldur er hann líka alveg ómeðvitaður og grænn fyrir því að gríðarlega miklar loftslagsbreytingar hafi átt sér stað frá árdaga, löngu áður en burrandi mannkyn og prumpandi búpeningur kom til sögunnar, og að 97% af heildarlosun koltvísýrings sé af náttúrulegum orsökum, sem hefur að auki engin áhrif á hlýnun jarðar.

 

Þessi mikli grænhöfði minnir um margt á grænu hausana sem hann ræktar í kálgarðinum sínum.

Þess má geta að Filippus drottningarmaður kallaði Elísabetu sína alltaf „cabbage,“ sem þýðir kálhaus, þannig að Kalla kippir greinilega í kynið. (Gúgglið þér vantrúaðir).

 

Kalli hefur sagt að hann klappi blómum og tali við plöntur.

Flestum þykir jú gaman að tala við andlega jafningja sína. Sækjast sér um líkir.

Hann elskar sumsé plöntur og gróður en er engaðsíður á móti losun koltvísýrings sem er undirstaða gróðurs og lífs á jörðunni.

Það er ekki alltaf auðvelt að skilja umhverfiskommúnista.

 

 

(Kol)efnilegur Kalli viðar að sér fáfræði

LoftslagstrúarbrögðinSem wokester nýtur Kalli þess að lesa ritskoðaðar heimsbókmenntir og bækur um loftslagskvíða og loftslagstrúarbrögð og femínisma og kynjafræði og kynrænt sjálfræði og "fögnun fjölbreytileikans" og fjölmenningu og menningarmarxisma og open borders og dýrð hins "vísindalega" kommúnisma sem í dag kallast glóbalismi o.s.fr. og svo liggur hann yfir „fréttunum“ á BBC og CNN og MSNBC og öðrum rétthugsandi meginstraumsfjölmiðlum og gleypir þar í sig hvert orð.

 

Vinstri libtardsÞví meira sem hann les því fáfróðari verður hann, og nú er svo komið að hann er orðinn einn helsti og virtasti fáfræðingur heimsins og gæti eflaust komist að sem álitsgjafi á RÚV (Rétttrúnaðarútvarpi vinstrimanna) ef hann missti vinnuna sem kóngur, því hann er afar hlynntur galopnum landamærum og myndi njóta sín vel við að skilgreina þá menn sem tala fyrir aðhaldi og skynsemi í innflytjendamálum sem „útlendingahatara“ og „popúlista“ og „öfgahægrimenn.“

 

Kalli hefur ekki bara gaman af að sökkva sér oní kellingabækur (leghafabækur) heldur líka oní allskyns gjár og drullupytti og rotþrær og skólpfrárennsli því hann er einnig lærður kafari.

Harry hefur greinilega erft þennan áhuga föður síns á köfun því hann er að eigin sögn djúpt sokkinn í eiturlyf.

Þeir feðgar eru allir á dýptina ... í vissum skilningi.

 

 

Fallið í trans

Villi með hárgreiðslunaAftur að krýningunni. Þarna í kirkjunni var að sjálfsögðu Villi krónprins með alla sína krakkalakka og allar sínar mikilfenglegu tennur og stórglæsilegu hárgreiðslu sem hefur aldeilis slegið í gegn útum allan heim. Hann hefur mest verið að vinna með hárið í hliðunum og að aftan. Hann hefur það snöggklippt og slétt og er ekkert að flækja málin með permanenti eða dreadlocks eða neinu slíku rugli. Virkilega flottur kragi. Nettkrulluð hárin á hvirflinum eru líka gasalega lekker, bæði tvö, og eru alveg í stíl við hrokkin bringuhárin, enda eru þetta líklega bróderuð bringuhár sem hann er með þarna á skallanum. Þau gætu líka verið af einhverjum vafasamari stað líkamans og þar er hugsanlega komin skýringin á því hversvegna hann er kallaður rasshaus.

 

Villi virkar nokkuð geðheilbrigður og fínn gæi þó hann sé woke einsog aðrir í þessari fjölskyldu. Hann sást aldrei kasta kveðju á Harry, sem von er. Fyrr myndi hann kasta í hann sveðju en kveðju.

Villi mun feta í kolefnisfótspor föður síns innan nokkura ára en Harry mun halda áfram að freta í fótspor föður síns.

Konungdæmið byrjaði með William the Conqueror, sem er afkomandi víkingsins Göngu-Hrólfs einsog undirritaður - og það mun að öllum líkindum enda með William the woke.

 

Villi, Kate og króarVilli var að sjálfsögðu með sínum myndarlega eiginleghafa, henni Katrínu og yrðlingunum þeirra þremur einsog áður sagði.

Sá elsti, Georg, er verðandi kóngur, ef guð lofar. Ef hann verður sendur í almennan grunnskóla, þar sem kerfisbundið er ruglað í hausnum á börnum og þau látin efast um eigið kyn og mönuð í að ákveða hvort þau vilji vera strákur eða stelpa, þá eru góðar líkur á að hann muni falla í trans-gryfjuna og verði því ekki konungur heldur drottning og kallast Georgina.

Margir myndu eflaust "fagna þeim fjölbreytileika" að fá brjóstgóðan ladyboy sem drottningu með kóng í nærbrókunum.

Tveir fyrir einn.

 

 

Katrín og Harry Pothead í íslensku fánalitunum

Kate í íslenska fánanumKatrín prinsessa er virkilega rennileg og ísmeygileg skonsa. Hún var í glæsilegum kufli í íslensku fánalitunum; bláum, rauðum og hvítum. Það vill svo til að þetta eru líka bresku fánalitirnir, en hún hefur örugglega ekki haft hugmynd um það.

 

Harry rauðnefjiÞað má segja að íslensku fánalitirnir hafi sömuleiðis einkennt prinsinn og kannabissnissmanninn Harry Pothead því hann var þarna mættur vel reyktur með hvítuna og sitt þrútna æðasprengda blárauða kókaínnef og sitt ryðrauða strý á galtómum hausnum. Að auki var hann í hvítri skyrtu í stíl við það sem hann var með í nefinu.

(Talandi um þetta efni; Zelensky var ekki sjáanlegur í kirkjunni).

 

Harry með nefiðÞegar erkibiskupinn hrópaði: „God Shave the King,“ þá tóku allir kirkjugestir undir nema Harry, sem stóð þarna einsog álfur útúr alkóhól og saug uppí ranann.

Þegar allir kirkjugestir sungu þjóðsönginn þá tók hann tvær fyrstu línurnar og gafst svo upp, enda vanur að taka öðruvísi línur.

Ekki ætla ég að núa honum því um nasir.

 

 

Meghan ekki eggjandi í London

Harry fjallhressHarry er orðinn svo loðinn um lófana af því að drulla yfir konungsfjölskylduna að hann ætti að kallast Hairy. Hann sat þarna bitur og beyskur og þroskaheftur og taðreyktur einsog Húsavíkurhangikjöt á bekk með reiðhróknum Andrési föðurbróður sínum og einhverjum öðrum stropuðum dúddum. Þetta virkaði einsog sakamannabekkur.

 

Harry og AndrewAndrés, sem var augasteinn og epsteinn móður sinnar og loks legsteinn hennar, er pungberi sem kallar ekki allt ömmu sína, enda ekki mikið í ömmunum. Hann þykir ansi þurr og súr týpa og bara hreint út sagt hrútleiðinlegur. Það má eiginlega segja að hann sé súrsaður hrútspungberi.

 

Oprah og fórnarlömbinHarry og Meghan eru komin niður fyrir Andrés og Amber Heard í vinsældum. Þau mælast einhversstaðar mitt á milli Joe Biden og Charles Manson, en með þeim kollegum Biden og Manson hefur ekki verið lífsmark svo árum skiptir.

 

 

Meghan og rakkinnEf gullgrafandi atvinnufórnarlambið Mega Markless hefði látið sjá sig þá hefðu tómataframleiðendur og eggjabændur grætt milljarða, en hún lagði ekki í að mæta í þessa matvælasturtu. Hún er að auki líklega upptekin við að skrifa opinskáar opinberunarbækur og opinberunarþáttaseríur um einkalíf sitt og mikilvægi þess að fá að vera í friði fyrir hnýsnum fjölmiðlum sem virða ekki friðhelgi einkalífsins, og hvað hún verði fyrir miklum fordómum sem svört leikkona, ... þó hún sé hvorugt.

 

Þar sem það er ekkert meira á Harry að græða þá hlýtur hún að vera að undirbúa að fleygja honum í ruslið með öðrum afgöngum og fá sér nýjan pungbera, ekki beint nýjan heldur einn fjörgamlan fjörlítinn hjartabilaðan siginn pungbera, moldríkan vel að merkja og vel snekkjaðan.

 

 

Kalli dregur gardínurnar fyrir

Kalli í gardínunumKalli var klæddur í allt of síðan lafafrakka sem hefði mátt stytta um svona 10 metra. Skrýtið að sjá rígfullorðinn mann í einhverjum flauelsgardínum einsog trúður. Klæðskerinn hans ætti að setja tappann í flöskuna. Það þurfti 4 gaura til að halda jakkalafinu frá jörðu. Buxunum gat hann hinsvegar haldið uppum sig alveg sjálfur.

 

Kalli loksins kóngurKalli var gugginn og þreytulegur og tuskulegur einsog hann hafi verið að skríða af hádegisbörunum. Jafnvel líkbörunum. Fyrir utan að vera tuskulegur í orðsins fyllstu merkingu í þessum gardínulörfum þá er skiljanlegt að hann skuli vera lúinn og dasaður því hann er búinn að bíða og bíða og bíða allt sitt líf eftir að sú gamla pakkaði saman og flyttist yfir í annan heim svo hann gæti orðið kóngsi.

Kannski er að auki búið að vera að æfa þessa krýningu á nóttunni árum saman og svo núna loksins þegar kemur að stóru stundinni þá er hann á áttræðisaldri með annan fótinn í gröfinni og hinn á bananahýði.

 

 

Þungar byrðar lagðar á Kalla

Kalli og kraftlyftingaklerkurinnKalli sat þarna einsog dæmdur maður í sinni bjálfalegu flauelsgardínu á meðan erkifíflið ... ég meina erkibiskupinn, messaði yfir honum.

 

Kórónan sem beið Kalla er þyngsta kóróna í heimi enda er hún úr solid gulli og þakin mörg þúsund demöntum og rúbínsteinum og safír og tópaz og ópal og strepsils og öllu þessu dóti. Hún er víst álíka þung og ísskápur.

 

Kalli með blóðhlaupin auguKraftalega vaxinn biskupinn tók upp níðþunga kórónuna í réttstöðulyftu og tróð henni þéttingsfast af gríðarlegu afli beint ofaná skallann á Kalla sem varð rauðþrútinn í framan og það var einsog augun ætluðu útúr hausnum á honum. Hann varð einsog Ástþór Magnússon til augnanna, en það eina sem sá maður á útistandandi eru augun. Það var einsog hausinn á Kalla greyinu væri alveg við það að skreppa saman í harmonikku.

Hann þorði ekki að hreyfa sig. Ef hann hefði hallað höfðinu lítið eitt þá hefði hann líklega hálsbrotnað.

 

 

Kalli woke en Beta skynsöm

Woke should wake upKalli sór ekki bara eið að mótmælendatrúnni einsog aldagömul hefð er fyrir heldur einnig að íslam og öðrum trúarbrögðum og þá líklega lofslagstrúarbrögðunum líka, því Kalli er jú airhead og wokester fram í fingurgóma einsog aðrir eftirlifandi fjölskyldumeðlimir.

Í fyrsta skipti sem slíkt er gert. Tímanna tákn.

 

ShariaCourtsInEnglandLíkt og aðrir frjálslyndir öfgavinstrimenn sem „fagna fjölbreytileikanum“ og „fjölmenningunni“ þá vill Kalli kóngur mörg lög og marga siði í landinu og heldur að það sé til friðar fallið. Skynsamir menn hinsvegar, einsog t.d. ástkær afi minn hann Þorgeir Ljósvetningagoði, vissu að þessu er öfugt farið. Mörg lög og margir siðir í landinu eru ávísun á ófrið til lengri tíma litið. Ef við slítum í sundur lögin og siðinn þá er úti um friðinn.

En þetta er tómt mál að tala um því tjónið er nú þegar orðið og Bretland er að molna niður innanfrá líkt og Evrópa öll, sem verður búið spil innan ekki margra ára.

 

 

Gardínurnar dregnar frá

Kalli gardínukóngurÍ miðri heilagri krýningarmessunni var níðþunga kórónan losuð með miklum djöfulgangi af ringluðum lofthausnum á Kalla og gardínurnar dregnar frá og teknar niður og hann færður úr öllu heila draslinu og eiginlega bara berstrípaður þannig að hann var með allt niðrum sig og líklega bara verið á pungnum þó að það hafi ekki sést í mynd. Það má segja að þetta hafi „kórónað“ sérkennilegheitin.

 

 

Hann var smurður með einhverri olíu, örugglega ekki diesel eða koppafeiti því hann er á móti öllu slíku enda skröltir hann ennþá um í hestakerru þegar hann er ekki á hvítvínsbílnum eða á einkaþotunni, en þetta hefur líklegast verið einhver ægilega umhverfisvæn og heilög snákaolía, alveg margblessuð í bak og fyrir.

 

Kalli í pimpnáttsloppnumAð smurningu lokinni var hann færður í gulllitaðan náttslopp einsog melludólgar klæðast gjarnan í bíómyndum. Hugh Hefner hefði tekið sig vel út í þessu en ekki cheap Charlie. Þarna fór kallinn soldið yfir strikið í tilraunum sínum til að virka töff.

 

Svo var skellt oná skallann á honum léttari kórónu, einhverri leikfangalegri Bónusútgáfu sem hann gat sprangað um með án þess að eiga á hættu að hálsbrotna.

 

 

Fegurðardrottningin og drottningin Camilla

FegurðardrottninginNú, svo kom röðin að augnayndinu henni Camillu Barking Bulldog eða hvað hún nú heitir, margkrýndri fegurðardrottningu sem núna átti að krýna sem alvöru drottningu. Hún hefur ekki alveg verið látin njóta sannmælis sem augnakonfekt í gegnum tíðina. Sumir smekklausir menn vilja meina að hún sé einsog útskitið hundsrassgat í framan en ég er allsekki sammála því. Ég tel það orðum aukið. Margir halda að Kamilla sé að „moona“ þegar hún rekur hausinn útum bílglugga. Menn halda svo margt.

 

Diana og fegurðardrottninginMeð fullri virðingu fyrir Díönu þá hafði hún ekki fegurðina og útgeislunina og kynþokkann sem Karlmella hefur. Fegurð Kallmellu minnir á íslenska náttúru að því leyti að hún er ekki óáþekk huggulegu hraungrýti í framan.

Karamella er með fallega crispy húð einsog djúpsteiktur kjúklingur. KFC ætti að sponsa hana. (Kentucky Fried Camilla).

Ef hún væri ekki drottning þá gæti hún lifað kóngalífi á því að auglýsa grófmynstraða hjólbarða.

 

Camilla KFCKanamella Parket Balls er léttur og skemmtilegur leghafi sem finnst gaman að reykja og drekka og hún segist gera mikið af því enda er hún afskaplega dugleg og viljasterk manneskja sem hættir ekki því sem hún er byrjuð á.

Hún þykir einhver farsælasti strompur og ástsælasta fyllibytta sem Bretland hefur alið síðan Winston Churchill var og hét. Sjálf reykir hún Winston rettur og Churchill vindla og fer létt með að drekka heilu sjóræningjaáhafnirnar undir borð og jafnvel fyrir borð.

 

Ég veit ekki hvort að Kalli sé fullmeðvitaður um himneska fegurð Kamarmyllu sinnar því hann laug því að henni alveg fram að krýningu að Covid væri ennþá í gangi svo hún tæki ekki niður grímuna.

Og líkt og krakki þá hefur Kalli mikið talað um að það sé ógeðslegt skrímsli undir rúminu sínu.

Þau sofa í koju. Hann á efri hæðinni.

 

En þeim kemur vel saman og þau eiga allt lífið framundan. Ég vona innilega að þau muni ekki falla frá í blóma lífsins einsog hæstvirtur leghafi, Elísabet II, foreldri hæstvirts sláturhafa Karls III nr: 1, og hæstvirtur pungberi, Filippussa, foreldri hæstvirts sköndulhafa Karls III nr: 2.

 

Happadagur

Kalli og KanillÚtför Betu Bretadronsu fór fram 19. september 2022.

Kalli var krýndur 6. maí 2023.

Hvað þýðir það?

Það þýðir að krýningin fór fram 6 mánuðum og 6 vikum og 6 dögum eftir útför Betu.

Það hlýtur að boða lukku og samræmast trúarbrögðum einkaþotuelítunnar.

 

KarmellaMeðan Kamagra Porkneck Bowling sat þarna í kirkjunni og beið eftir kórónunni sinni þá brosti hún sínu fallega brosi einsog hún væri að rýna í sólina og borða sítrónu á sama tíma.

 

Einhver aðstoðarmaður kom og fór að dedúa við hana með kremfötu í annarri hendi og sandpappír eða slípirokk í henni. Maður sá þetta ekki vel en það steig reykský upp frá andlitinu á henni þegar hann hafði lokið sér af og hún ljómaði í framan og leit út einsog milljón dollarar, ... milljón dollarar í krókódílaveski.

 

GullvagninnKórónunni var síðan troðið af miklu afli á hausinn á Kanínu drottningu og hún trítlaði á eftir konunglega pungberanum sínum í pimpnáttfötunum og gardínulörfunum eftir kirkjugólfinu og útí hrollkalt global-warming-sumarið þar sem gullvagninn beið þeirra með 8 loftslagsmengandi prumpandi óslátruðum hestum, - gullvagni sem mun svo að endingu sækja þau vindmyllurafknúinn aftur á efsta degi.


Nýtt bóluefni gegn kjarnorkusprengjum

Bomban góðaValdimar Pútín varð sjötugur í gær. Við óskum honum að sjálfsögðu til hamingju með áfangann og óskum honum áframhaldandi velfarnaðar í lífi og starfi.

Kallinn fékk af einhverjum ástæðum ekkert heillaóskaskeyti frá Biden og stríðshaukunum í Washington.

Það fer ekki mikið fyrir kurteisinni þar á bæ.

 

Bandaríkjastjórn er orðin svo hrædd um að stríðið hennar í Úkraínu, sem hún undirbjó svo vel, færist heim að dyrum hjá sér að hún er búin að birgja sig upp af lyfjum gegn kjarnorkusprengjum.

Grímuskylda æskileg í kjarnorkustyrjöldÞetta passlega magn af kjarnorkusprengjutöflum ætti að duga til að halda lífinu í elítunni ef Pútín skyldi gerast svo ósmekklegur að senda kaldhæðnislegt heillaóskaskeyti til Washington, - og þá er ég að tala um flugskeyti.

Best að setja hinsvegar bara grímuskyldu á almenning svo hann smiti ekki aðra af geislavirkni og Covid og frelsisást og einstaklingshyggju og öðrum óþverra.

 

Ekki er vitað hvort lyfin dugi ef kjarnorkusprengjurnar hæfa elítuna beint á milli augnanna.

KjarnorkusprengitöflurVið slíku þyrfti hún hugsanlega að taka öflugri pillur sem lyfjarisarnir eru mjög líklega að þróa í þessum skrifuðu orðum, - einhver sterkari og töframeiri snákaolíumeðöl sem væru svona álíka gagnleg og stórkostlegu „bólefnin“ þeirra.

Ekki ólíklegt að þeir séu langt komnir með svokallaðar sprengitöflur í því „augnamiði“ að afstýra bólgum og eymslum sem geta hlotist af völdum kjarnorkusprengja sem lenda beint á milli augnanna.

 

Svo að dýrmætur tími og ennþá dýrmætari peningar fari ekki til spillis þá gætu lyfjarisarnir haldið áfram sínu sama gamla, góða verklagi og einfaldlega bara skipt um merkimiða á óseldum og útrunnum „bóluefnum“ gegn Covid og kallað þau „Bólefni gegn kjarnorkusprengjum“ og lofað 99% árangri einsog þeir gerðu í sprautufaraldrinum sínum.

Ef upp um vörusvikin kemst þá skiptir það engu máli því þá verður enginn til frásagnar og þar að auki þá er búið að banna alla „hatursorðræðu“ gegn blekkingum, lygum, falsi, rétttrúnaði og svikum.

 

Kjarnorkusprengjur eru mannskemmandiÉg tek alltaf lýsi og vítamín á morgnana og ýmis lyf við bólgum og aids og femínisma og berklum og kláðamaur og glóbalisma og slíkum plágum en nú þyrfti ég að fara að bæta við Pfizer-sprengitöflum gegn óheilsusamlegum kjarnorkusprengjum úr því að stríðshaukarnir í Washington eru svona vissir um að þeim sé að takast að króa Pútín af einsog rottu útí horni og þröngva honum til að stökkva.

Ég vil nefnilega, líkt og Bandaríkjastjórn, vera með sterkt ónæmiskerfi og við góða heilsu ef ég skyldi fá kjarnorkusprengju í hausinn.


mbl.is Kaupa lyf gegn geislunarskaða fyrir 41 milljarð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Andlegir öreigar allra vinstriflokka sameinist

Enginn munur á kynjunumAllir flokkar á Íslandi í dag eru pólitískt rétthugsandi vinstriflokkar, nema ef vera skyldi Miðflokkurinn, en þó gerðist það fyrir nokkrum vikum að kjördæmaráðin dúkkulísuvæddu flokkinn og úthýstu úr honum mörgum góðum og gegnum hægrisinnuðum farsælum bjórbelgjum og þjóðhollum heilbrigðum „karlrembusvínum“ þannig að nú er svo komið að þessi góði flokkur er ekki svipur hjá sjón og ekki víst að hann muni bera sitt barr eftir þessa femínísku „hreinsun“ sem fólst í að úthýsa sápunni og innleiða óþrifnaðinn eftir ströngustu kynjakvótakröfum nútímageðveikinnar.

 

Fúlt að Miðflokkurinn skyldi falla í þennan fúla ilmvatnspytt.

Hverjum átti þetta að þjóna?

Vinstrimenn ætluðu sér aldrei að fara að kjósa þennan flokk þó hann yrði kjaftfylltur af kellingum og nú hafa fjölmargir hægrimenn snúið við honum bakinu því þeir þola skiljanlega ekki að kyn skuli vera sett ofar hæfni og vilja síst af öllu enn einn femínistaflokkinn.

Þetta var því afleitur afleikur.

 

Sigmundur DavíðÞessi misskilda „hreinsun“ og misheppnaða tilraun til reyna að gera öllum til hæfis og ná til stærri kjósendahóps gerir það að verkum að trúverðugleikinn laskast og flokkurinn mun missa stóran hluta af sínu hægrafylgi og missa sérstöðu sína og missa fótanna og jafnvel detta út af þingi, sem væri mjög slæmt því Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er einstakur stjórnmálamaður; frjór, eldklár, rökfastur, íhugull, áræðinn, víðsýnn, vel að sér, lausnamiðaður, fylginn sér, orðheldinn, þjóðhollur og blessunarlega laus við woke-ruglið, glóbalismann og rétttrúnaðinn sem tröllríður öllu í dag.

En náði tröllríðandi femínisminn að koma aftan að honum?

Varð hann að beygja sig fyrir valdi kyngreinandi kjördæmaráðanna?

Þurfti hann að beygja sig eftir sápunni í sturtuklefa rétttrúnaðarins?

 

 

Niðurskurður í Flokki fólksinsFlokkur fólksins eða Flokkur fólsins?

Sömuleiðis væri sárt að missa Flokk fólksins af þingi því þau eru heiðarleg og sönn í því sem þau eru að gera og enginn þarf að efast um vilja þeirra til góðra verka. Flokkurinn væri eflaust stærri ef Inga Sæland hefði sleppt því að skera hann í sundur og minnka hann um helming.

Þá óheppilegu skurðaðgerð framkvæmdi hún vegna þess að tveir af hennar mætustu mönnum leyfðu sér að efast um stjórnunarhæfileika hennar og fengu sér örlítið messuvínstár í afar vel heppnuðu samsæti á Klausturbar.

 

FólksflokkurinnSömuleiðis er hæpið að hún græði mikið á því að nota hvert tækifæri sem gefst til að hnýta í Sigmund Davíð af öllum mönnum. Það var ekki hann sem sagði í hófinu góða að hún væri „húrrandi klikkuð kunta“ heldur var það samflokksmaður hans, Bergþór Ólason, sem er kunnur fyrir mannþekkingu, háttprýði og varfærni í orðavali þó hann hafi þarna kannski sagt eitthvað sem var aðeins orðum aukið.

 

Ingu bættist góður liðsauki í Jakobi F. Magnússyni sem verið er að djöflast á um þessar mundir en hann þekki ég af góðu einu. Þar fer harðduglegur málafylgjumaður og drengur góður þó hann sé krati.

Inga má eiga að það býr í henni eldmóður, líf, ástríða og sannfæringarkraftur enda hefur hún staðið sig best allra leiðtoga í sjónvarpskappræðum að undanförnu.

Flokkur fólksins getur varla talist dæmigerður vinstriflokkur í hefðbundnum skilningi. Ég vona því að hann nái vopnum sínum og óska honum góðs gengis.

 

Political_CorrectnessSjálfstæðisflokkurinn er skásti vinstriflokkurinn

Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki farið varhluta af pólitíska rétttrúnaðinum, woke-vírusnum, glóbalismanum, Kínaveirunni, femínismanum, og öðrum mannskæðum plágum.

Enda fékk flokkurinn taugaáfall þegar Trump sigraði spilltasta skaðræðisvinstrakvendi í heimi, Crooked Hillary, og allur flokkurinn studdi að sjálfsögðu vinstri-pottaplöntuna Sleepy Joe Biden núna síðast.

Þetta er lýsandi fyrir kratamóralinn og meðvitundarleysið í flokknum og sýnir best á hvaða stigi hann er og hvert hann er kominn.

Í rétthugsuninni er hann alveg á pari við Samfylkingarviðreisnarpíratavinstrigræningjana.

 

Politically correctHægrimönnum er ekki lengur vært í Sjálfstæðisflokknum.

Nokkur dæmi:

Á landsfundi fyrir 5 árum voru þeir þjóðhollu eðalhægrimenn, Gústaf Níelsson og Jón Magnússon hrl, baulaðir niður af sviðinu fyrir að tala fyrir varfærni og heilbrigðri íhaldssemi í útlendingamálum.

Fyrir borgarstjórnarkosningar síðustu var Sjálfstæðisflokkurinn í borginni femíniseraður og þá var reynslumiklum hægrikörlum einsog Kjartani Magnússyni fleygt útí tunnu til að skapa pláss fyrir eyrnablautar kratastelpur.

Sigríður ÁiFyrir stuttu var hægrimönnunum Brynjari Níelssyni og Arnari Þór Jónssyni sparkað niður tröppurnar og Sigríði Á. Andersen dúndrað útum gluggann. Alltsaman topp fólk. En hægrisinnað. Það gengur ekki. Ekki í þessum flokki.

Hægrimennska er einfaldlega ekki lengur liðin í Sjálfstæðisflokknum.

Brynjar greyið hefur ekki undan við að samþykkja allskyns kommúnistadellufrumvörp og kyngja ælum í gríð og erg. Hann segir þetta sjálfur.

Hann er ekki aðeins mesti fýlupokinn á þingi, að eigin sögn, heldur er hann orðinn stærsti ælupokinn.

Að mínu mati er Sjálfstæðisflokkurinn engu að síður skásti vinstriflokkurinn því þar á bæ eru menn upp til hópa meðvirkir vinstrimennskunni frekar en sturlaðir vinstrivitleysingar.

 

Húmor cancellaðEru Bernie and Kate - Bonnie and Clyde?

Ég býst við að Bjarni Ben myndi viðurkenna það fúslega að hann hafi beygt sig undir ægivald snargeðveiks tíðarandans og breytt flokknum í femínískan krataflokk pólitískrar rétthugsunar.

Enda kemst ekki hnífurinn á milli hans og Grettis-Kötu, einsog ég kalla hana stundum í gamni, ef það er leyfilegt á þessum woke-tímum. (Ég kalla sjálfan mig stundum Serði Monster).

Það er lítill sem enginn munur á þessum tveimur femínísku vinstriflokkum þeirra Bjarna og Grettis-Kötu og þessvegna gengur samstarfið svona líka ljómandi vel.

 

Bernie, Kate and SissyVerkaskiptingin er skýr: Bjarni sér um viðskiptahlið stjórnmálanna og stjórnmálahlið ættarveldisins og öll corleone-plottin og Grettis-Kata sér um handaböndin við erlenda þjóðhöfðingja og brosgretturnar og geiflurnar og kynræna sjálfræðið og hálendisþjóðgarðinn og fóstureyðingar fram að fæðingu og menningamarxismann og femínismann og kynjafræðina og manngerðu loftslagsbreytingarnar og öll þau stórkostlegu „vísindi.“

 

Sigurður Ingi situr þolinmóður á kantinum og kinkar kolli og mátar sig í huganum í stól Grettis-Kötu með ennþá ógæfulegri vinstristjórn í skjalatöskunni.

 

 

ViðreisnarhóranEn ef stjórnin missir meirihlutann þá væri einfaldast að kippa bara Viðreisn uppí. Viðreisn ber nafn með rentu og er vön að gefa lýðræðinu langt nef og reisa við fallna meirihluta sem fólk er búið að kjósa í burtu.

En „Viðreisn mun selja sig dýrt“ einsog forkonan orðaði það þegar hún fór í bólið með föllnum borgarstjórnarmeirihlutanum.

Forkonan er semsé búin að gefa það út að Viðreisn sé hóra og að þetta sé bara spurning um prís.

Kúlulán gæti dugað.

Gleðihúsið við Austurvöll veldur skiljanlega mörgum ógleði.

 

Allir jafn fátækirVinstrisinnaðir „nýfrjálshyggjuflokkar“

Einn er sá maður sem trúir því að Sjálfstæðisflokkurinn sé hægriflokkur og það er sósíalistaforinginn Gunnar Smári Egilsson. Hann kallar reyndar alla flokka „nýfrjálshyggjuflokka“ sem eru hægra megin við Stalín.

Þetta gerir hann til að skapa sér sérstöðu. Hann vill gera sig að eina valkosti sannra vinstrimanna en auðvitað eru valkostirnir allir hinir 50 vinstriflokkarnir eða hvað þeir eru nú margir.

 

Íslenskur smákóngurÁstæðan fyrir öllum þessa fjölda flokka er ekki málefnaágreiningur heldur sú að allir Íslendingar vilja vera kóngar. Ef það kemur upp minnsta misklíð í flokki þá stofnar fúli froskurinn nýjan flokk utanum sjálfan sig þar sem hann getur verið kóngur í ríki sínu.

Og svo má ekki gleyma að hver flokkur fær gríðarlega styrki úr ríkissjóði og formennirnir feita bónusa þannig að það getur verið góður bissniss að stofna flokk og segjast vera á móti spillingu til að geta komist á kaf í hana sjálfur.

Heiðarleiki hefur aldrei verið sterkasta hlið Íslendinga. Allur heimurinn veit af því.

 

Sósíalismi, ávísun á fátæktGamalt vín á nýjum ólátabelgjum

Undanfarnar vikur hefur Gunnar Smári reynt að vera rólegur og kurteis til að sýna öllum hinum vinstriflokkunum á þingi að hann sé stofuhæfur og stjórntækur.

Hann vill að flokkarnir fái á tilfinninguna að hann sé ekki einsog hver annar ódannaður vanþroska taðreyktur pírapi á sokkaleistunum sem vilji bara öskra sig hásan í stjórnarandstöðu heldur að hann sé siðaður ábyrgur sósíalistaleiðtogi í vandlega útjöskuðum verkamannalörfum sem geti sest niður og rætt ennþá útjaskaðri hugmyndafræði sína af yfirvegun á málefnalegum grundvelli.

 

Sósíalisminn í framkvæmdEn málið er að þegar Smárinn neyðist til að ræða málin á rólegum nótum þá opinberast enn frekar brotalamirnar í stefnu hans. Þessi stefna kemst nefnilega best til tilfinninganna sé hún öskruð með handapati og látum en hún þolir illa vitsmunalega og yfirvegaða umræðu.

 

Sósíalisminn sökkarÞessvegna er Smárinn bestur þegar hann er yfirspenntur og óðamála og frussar orðunum útúr sér einsog vínberjasteinum í heilagri bræði og lætur vaðalinn ganga í belg og biðu og keyrir sig uppí trylling yfir óréttlæti heimsins og arðráni auðvaldsins og hræðilegum kapítalistum sem leyfi sér að græða peninga, og hræsnandi vellauðugum útrásarritstjórum sem komi sér hjá að borga kúguðum starfsmönnum sínum umsamin laun, (hann kannast við það), og hvað það sé nú ömurlega óréttlátt að wannabe-braskarar skuli fljúga um í einkaþotum útrásarvíkinganna á meðan hreingerningakonan lepji dauðann úr skúringafötu o.s.fr. (Hann veit hvað hann er að tala um).

 

 

 

Socialism distancingSósujafnarinn Gunnar Smári

Ég hef lengi haft gaman af Gunnar Smára sósíalista og jafnaðarmanni (sósujafnara) eða hvað hann gefur sig nú út fyrir að vera akkúrat þessa stundina því hann er hugmyndaríkur og klár dellukall og vel að sér og skemmtilegur áheyrnar og góður penni en ég man ekki eftir að hafa verið honum sammála um nokkurn skapaðan hlut, enda er mjög erfitt að fylgja honum eftir í hringlandahættinum því hann hefur eina skoðun í dag og aðra á morgun, bara eftir því hvernig vindurinn blæs og hvað hentar honum best hverju sinni.

 

 

SósujafnarinnÍ fyrradag var hann grjótharður armaníklæddur frjálshyggjumaður og bindisreyrður kapítalisti með handlegginn þakinn Rolex-úrum og vildi einkavæða allt heilbrigðiskerfið í hvelli.

 

Í gær barðist hann fyrir því að Ísland afsalaði sér sjálfstæði sínu og gerðist fylki í Noregi.

 

Í dag er hann allt í einu orðinn lenínskeggjaður sósíalisti í köflóttri snýtuklútaskyrtu og drulluskítugum gámajakka úr Sorpu.

Hann er fljótari en Laddi að skipta um gervi.

 

Sósíalismi fyrir grunnskólabörnHann vill láta færa kosningaaldurinn niðrí 7 ára. Skiljanlega. Grunnskólakrakkar í dag vita nefnilega ekkert um hryllingssögu sósíalismans og munu ekki læra að lesa fyrr en um fimmtugt. Gráupplagður kjósendahópur.

 

Smári segir að kraftur, nýsköpun, frumkvæði og framkvæmdavilji einstaklingsins skipti engu máli í stóru myndinni.

Hann vill drepa niður einstaklingsframtakið en fjölga þess í stað ríkisstarfsmönnum (jökkum á stólum) og vinstrisinnuðum alþingismönnum og vill láta ríkið sjá um alla þætti samfélagsins með tilheyrandi tröllauknum útgjöldum, og miðstýra kerfinu að ofan og ganga á milli bols og höfuðs á stóreignafólki og viðskiptamógúlum og þeim sem skapa verðmæti og draga björg í landsbú.

 

Sósíalisminn og annarra manna peningarHann er á því að það beri að tæma ríkissjóð sem allra fyrst til að byggja upp innviði samfélagsins og fara að safna glæsilegum skuldum að hætti Reykjavíkurborgar.

 

Til að kóróna snilldina þá er hann að sjálfsögðu sammála rétthugsandi vinstriríkisstjórninni um að það eigi að spreða fleiri tugum milljarða í loftslagstrúarbrögðin og flytja inní landið sem allra mest af síðskeggjuðum velferðarflóttabörnum og lúxushælisleitendum því við séum svo ofboðslega rík og svo svakalega gott fólk.

 

Slæmt að gamla fólkið okkar skuli aldrei verða vart við ríkidæmi okkar og meinta góðmennsku.

 

Margprófaður sósíalisminnSósíalistar allra flokka sameinist

Velferðarkerfið fer lóðrétt til helvítis með þessum sósíalísku aðgerðum, sem allir stjórnmálamenn Íslands virðast eindregið hlynntir í sínum funheita rétttrúnaði, að Sigmundi Davíð undanskildum.

Það sem gerist er að Íslendingar verða sameinaðir öreigar og samfélagið morknar niður og deyr drottni sínum (Allah). Engu að síður virðist fólki þykja skynsamlegt að gefa þessari skaðlegu og úrbræddu hugmyndafræði séns í hundraðasta skipti til að athuga hvort að niðurstaðan verði ekki önnur núna.

 

Hugmyndafræði sósíalismansGrunnurinn í trúarbrögðum vinstrimanna er að peningar vaxi á trjánum og þessvegna er þeim líklega svona umhugað um grænu málefnin og trjárækt.

Erfitt er þó að sjá hvernig þeir ætla að fjámagna alla þessa góðmennsku sína og björgun heimsins því vaxtaskilyrði trjáa eru ekki svo góð á köldum Klakanum.

 

Skýrasta merki geðveikinnarSósíalisminn er einfaldlega gjaldþrota stefna sem gerir alla gjaldþrota.

Hann færir ekki alþýðunni feita launaávísun heldur er hann ávísun á tóman sparibauk.

Svo galin er þessi stefna að ég efast ekki um að Sósíalistaflokkurinn verði hástökkvari kosninganna og vinni frækinn sigur.

Það er alltaf pláss fyrir fleiri póitískt rétthugsandi vinstriflokka á Íslandi.

Lengi lifi geðveikin!

 

Open bordersSama hver niðurstaða kosninganna verður þá er 100% öruggt að það verði mynduð vinsristjórn og það er einfaldlega vegna þess að það er enginn hægriflokkur á Íslandi.

Hægriflokkur mun ekki verða stofnsettur og fá brautargengi á Íslandi fyrr en allt góða fólkið í öllum góðu glóbalistavinstriflokkunum verður búið að rústa landinu með open-borders-stefnu sinni og misskilinni góðmennsku og búið að umbreyta Íslandi í Íslandistan.

 

Ef Íslendingar væru ekki þrætugjarnir egósentrískir smákóngar þá væri í raun alveg nóg að vera bara með einn flokk á Íslandi einsog staðan er núna og það væri pólitískt rétthugsandi vinstriflokkur sem gæti kallast Flokkur íslenskra félagshyggjulíberalista, skammstafað: F.Í.F.L.

 

 

(Þessi grein birtist í Morgunblaðinu í morgun).


mbl.is Ríkisstjórnin gæti haldið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsætisráðherra afhjúpar afmyndaðan Ólaf Ragnar

 

Óli hálfiNýlega afhjúpaði forsætisráðherra brjóstmynd af Ólafi Ragnari Grímssyni, eða afmynd öllu heldur. Þó að Ólafur hafi ótal sinnum axlarbrotnað í sínum brokkgengu útreiðartúrum í gegnum tíðina þá var nú óþarfi af listamanninum að skera af honum aðra öxlina og höggva hann bókstaflega í herðar niður þannig að hann minnti einna helst á sitjandi kött.

 

 

Stytta af kettiÞað er greinilega niðurskurður hjá hinu opinbera. Það hefur líklega verið hringt í axlarhöggvarann og hann beðinn um að helminga prísinn. Honum hefur misheyrst og tekið til við að helminga grísinn. Og þegar hið opinbera hefur verið að tala við hann um „styttuna“ þá hefur hann haldið að hann ætti að „stytt‘ana.“

Einn allsherjar misskilningur alltsaman. Og að lokum hefur ríkið fengið hálfa styttu á heilvirði og allir hálf óánægðir, nema afmyndarinn.

 

 

Ekki nóg með að styttan sé hálf glötuð og illa "köttuð" þá vantar þarna að auki öll helstu persónueinkenni Ólafs. Hvar er t.d. Mónu Lísu-brosið? Hvar er sveigurinn frægi í hárinu? Lokkurinn góði? Ólafur er með hliðargreiðslu en ekki þessa afgreiðslu sem hann fær þarna. Ólafur án sveigsins er einsog Hitler án hormottunnar annáluðu og hliðarsmjörgreiðslunnar flottu. Óþekkjanlegur. Hver myndi þekkja Hitler mottulausan með afró-biðukollugreiðslu?

 

 

Þessi stytta væri eflaust ágæt ef hún væri ekki svona afkáraleg.

Ólafur RagnarHvar eru gleraugun sem Ólafur hefur verið með á nefinu í 60 ár og eru orðin samgróin ásýnd hans? Var gasalega flókið að hnoða saman gleraugum?

 

Ólafur Ragnar er í raunveruleikanum örlítið langleitur. Ekki einsog hestur en samt með höfuðlag á lengdina. Afmyndarinn býr hinsvegar til þrútinn samþjappaðan kassahaus einsog fyrirmyndin sé nýstigin uppúr margra mánaða fylleríi og hafi í ölæði lent með hausinn í skrúfstykki hjá sadískum lýtalækni.

 

Að auki gerir hann Ólaf einsog apa til munnsins. Hann ýkir bilið á milli nefs og munns og snýr munnvikunum niðrávið. Ólafur er hinsvegar jákvæða týpan og nær alltaf með munnvikin uppávið.

 

 

Það er enginn að segja að stytta verði að vera nákvæmlega einsog fyrirmyndin en hún verður fjandakornið að líkjast henni eitthvað og vera ekki þannig að fólk haldi að þarna sé á ferðinni köttur með apahaus. Einhverskonar apaköttur.

 

 

Ekki skil ég hvernig öll helstu persónueinkenni Ólafs gátu farið framhjá afmyndaranum, sem er víst einhver Helgi Gíslason. Ég hefði frekar skotið á að þetta klastur væri eftir Gísla Helgason, blinda blokkflautublásarann.

 

 

Það er ekki nema von að Kata Jak sé við það að skella uppúr þegar hún er að afhjúpa hrákasmíðina. Það er einsog hún sé að hugsa:

„Ekkert smá bjánaleg stytta. I love it. Algjör brandari. Nú verð ég að passa mig á að halda andlitinu í skorðum í fyrsta skipti á ævinni. Ólafi var nær að samþykkja ekki Icesave. Djöfull er þetta gott á hann. Ég hlæ inNaní mér. Múhahahahaha.“

 

 

Ef efsta ljósmyndin er skoðuð grannt má sjá nokkur byssukúlnagöt neðst á styttunni, sem gefur til kynna að Steingrímur Joð og Jóhanna Sig hafi fengið hana til afnota áður en hún var afhjúpuð.

 

 

Ómynd af ÓlafiPappakassiÞessi stytta gæti faktískt verið af hverjum sem er.

Ef fólk vissi ekki að þessi afmynd ætti að vera af Ólafi þá myndi það giska á alla aðra en hann:

Leonid Bréfsnef, Boris Yeltsin, Ted Bundy, Pol Pot, Michael Corleone, Stefán frá Nöðrudal, John Gotti, Josef Mengele, Hannibal Lecter, apa, Ingu Sæland, Drakúla o.s.fr.

 

 

Ólafur Ragnar, sem ber höfuð og herðar yfir aðra forseta Íslands, á ekki skilið að vera höggvinn í herðar niður. Og breytt í apakött.

Þessari níðstöng þarf að henda útí ruslatunnu og fá fagmann til að gera alvöru styttu af okkar besta forseta, sóma Íslands, sverði þess og skildi.

 

 

 

 

Leonid BréfsnefBoris YeltsinTed BundyPol PotMichael CorleoneStefán frá NöðrudalJohn GottiJosef MengeleHannibal LecterApiInga SælandDrakúla

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


mbl.is Brjóstmynd af Ólafi Ragnari afhjúpuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Foreldraminning

 

VILHELMÍNA NORÐFJÖRÐ BALDVINSDÓTTIR

Fædd 30. september 1930 og lést 8. febrúar 2019

 

Vilhelmína Norðfjörð BaldvinsdóttirMamma var heilsteypt og vönduð kjarnakona af gamla skólanum. Afar ólík þessum heimtufreku sífrandi sjálfsvorkunnarpissudúkkum sem nú ríða húsum og öðru í dag.

 

Hún var mjög samviskusöm, vandvirk og vinnuglöð og skilaði alltaf pottþéttu verki. Hún var orginal og laus við áhrifagirni og lét ekki stjórnast af tískusveiflum og áliti annarra. Öfugt við mig þá þoldi hún ekki óreglu, leti og ómennsku. Það fannst mér skrýtið.

 

Frá því ég var 7 ára kallaði hún og aðrir mig aldrei annað en Láka. Stundum Láka jarðálf. Ég var víst örlítið úr hófi fram hrekkjóttur og óþekkur. Stundum byrsti hún sig þegar ég var yngri og reyndi eftir fremsta megni að siða mig til: „Heyrðu nú mig Láki jarðálfur! Nú hættir þú að setja sprengjur í vindlana hans pabba þíns og reynir að fara að haga þér einsog maður! Þú ert orðinn fertugur og þetta gengur ekki lengur!“

 

Mamma var svakalega músíkölsk og lagviss. Hún samdi t.d. lagið „Sem ljúfur draumur“ sem Helena Eyjólfs söng inná plötu 1966 og náði mikilli hylli. Um árabil söng hún alt millirödd með Selkórnum. Og ekki bara með Selkórnum heldur söng hún líka millirödd með Elvis, Bítlunum, ABBA og öðrum góðum flytjendum sem hún heyrði í útvarpinu inní eldhúsi þegar hún var að hræra í sínum grautarpottum og sjóða sínar ýsur.

 

Hún lék sér að því annarshugar að syngja flóknar milliraddir án þess að fara nokkrusinni útaf laginu. Þetta var henni jafn eðlislægt og að anda. Hún átti ekki langt að sækja þetta, pabbi hennar var kórsöngvari og einn af stofnendum Karlakórsins Vísis á Siglufirði, og móðurætt hennar var þéttpökkuð af söngfuglum og hljóðfæraleikurum.

 

Þar sem mamma elskaði tónlist þá var það henni mikið fagnaðarefni þegar hún sá mig nokkurra mánaða gamlan skríða á harðaspani að útvarpsskápnum í stofunni þegar ákveðin lög komu, reisa mig upp á afturlappirnar með bleyjuna á bossanum, styðja mig við skápinn og fara að dilla mér á fullri ferð.

  

Eftir það varð ég eftirlætið hennar og fékk í laumi bestu þjónustuna (leyniþjónustuna) af systkinunum á Hótel Mömmu það sem eftir var. Ég var að auki yngstur og með englalokka og tikkaði því í öll box sem kjörið dekurbarn og mömmudrengur þrátt fyrir óþekktina.

 

Þegar ég fór að semja lög í löngum bunum 10 ára gamall þá varð mamma strax minn allra mesti aðdáandi. Hún þreyttist aldrei á að syngja og lofsyngja þessi lög mín sem mörg hver urðu löngu seinna ansi vinsæl. Sem vinur stóð hún sterk og óbifandi með Láka sínum hvað sem á bjátaði. Hún var kletturinn í mannhafinu sem aldrei haggaðist og aldrei brást.

 

Hún var óeigingjarnasta, ósérhlífnasta, umhyggjusamasta, fórnfúsasta og besta manneskja sem ég hef kynnst. Ungarnir hennar voru henni allt. Á hátíðardögum fékk hún sér aldrei sæti við matarborðið fyrr en allir voru alveg örugglega búnir að fá sitt. Hún lét sjálfa sig alltaf mæta afgangi, og át hann jafnvel. Fólk þurfti að mana hana til að fá sér sæti og slaka á. Hún setti sjálfa sig alltaf í síðasta sæti í orðsins fyllstu merkingu. En í mínum huga og í mínu hjarta var hún og er og verður alltaf í fyrsta sæti.

 

 

(Þessi minningargrein birtist í Morgunblaðinu í morgun).

 

 

 

Finnst við hæfi að birta hér í sömu færslu minningargrein sem ég skrifaði um karl föður minn á sínum tíma:

 

 

ÓLAFUR BERGMANN STEFÁNSSON

Fæddur 12. september 1926 og lést 21. mars 2013.

 

Ólafur Bergmann StefánssonPabbi, eða „kallinn“ eins og hann jafnan var kallaður af okkur í fjölskyldunni, var margslunginn náungi. Hann var mjög vinsæll meðal samstarfsmanna sinna hjá Flugfélaginu og þar var hann í góðum flug-félagsskap. Heima var hann ekki í alveg jafn góðum félagsskap, enda við krakkarnir frekar þreytandi kvikindi.

 

Hann gat verið fljótur upp og jafn fljótur niður aftur – líka tröppurnar. Minnti soldið á John Cleese í Fawlty Towers. Hann var mínútugæi og skelfilega samviskusamur. Allt varð að vera 100% og hann þoldi ekkert fúsk og rugl.

 

Hann hafði gaman af að gleðjast með góðum, sem sagt er, en alltaf mætti kallinn í vinnuna, bláedrú, á mínútunni, alveg fjallfrískur og sprellfjörugur, og í þannig skapi var hann alveg þangað til hann kom heim til sín. Hann sagði oft að hann væri í fríi þegar hann væri í vinnunni.

 

Kallinn hafði vit á því að reka mig að heiman þegar ég var 17 ára, af því ég neitaði að verða sprenglærður rykfallinn háskólafagidjót, og þá rofnaði samband okkar í nokkur ár.

 

Það var ekki fyrr en hann var um sextugt sem ég fór að kynnast hans bestu hliðum. Hann var t.d. mjög meinhæðinn og stríðinn og hafði afar glöggt arnarauga fyrir öllu því neikvæða sem lífið hefur uppá að bjóða. Eins og hann var nú hjartahlýr og viðkvæmur þá hafði hann einstakt lag á að finna veiku blettina á fólki og stinga pínulítið í þá með meinfyndnum nastí athugasemdum.

 

Eitt sinn vorum við í veislu og til okkar gekk virtur bókmenntagúrú sem minnti soldið á apa í framan. Pabbi tók í spaðann á honum og kynnti sig sem Homo sapiens. Apinn gladdist ekki en það gerðum við feðgarnir að sjálfsögðu.

 

Kallinn var afar hugmyndaríkur, frumlegur, framsýnn, listrænn og frjór. Hann hafði mikinn áhuga á auglýsingasálfræði og ætlaði sér að opna fyrstu íslensku auglýsingastofuna um miðbik síðustu aldar en rakst á of marga veggi. Menn vissu ekkert um hvað hann var að tala svo hann gaf þetta upp á bátinn.

 

Um svipað leyti fékk hann umboð fyrir BMW en rakst á of marga veggi. Gaf það frá sér. Leiddist veggir. Fyrir ca. tveimur áratugum varð hann sér úti um umboð fyrir stóru flettiskiltin sem nú eru út um alla borg. Hann talaði við allskonar steingelda blýantanaggrísi í kerfinu til að fá að koma þessu upp en rakst alls staðar á veggi. Gafst loks upp og sagði þessum flónum að hoppa uppí óæðri endann á sér, sem sé munninn.

 

Stuttu síðar spruttu þessi flettiskilti upp út um allt á öllum þeim veggjum sem hann var alltaf að rekast á, sem þýðir að „réttur“ maður hafi hirt þetta, sem er alllýsandi fyrir íslenskt viðskiptasiðferði.

 

Það voru mistök hjá kallinum að velja sér Ísland sem búsetuland því hann var stálheiðarlegur sómamaður. Enda hætti hann í lögfræði og guðfræði eftir tveggja ára nám. Skellti sér þess í stað til útlanda og kláraði þar flugumsjónarnám og vann hjá Flugfélaginu í 50 ár.

 

Hann umbar lítt drulludela og fávita og átti því skiljanlega mjög fáa íslenska vini. Honum þótti vænt um dýr og átti skynsama og viðræðugóða kisu. Og ekki síðri eiginkonu.

Ég kveð kallinn með elsku, trega og söknuð í hjarta. Hann var óneitanlega eftirminnilegur karakter.

 

 

(Þessi minningargrein birtist í Morgunblaðinu 2. apríl 2013).

 


Alræmt dulargervi Báru

 

NærmyndForvitinn kalkúnn fór á Klaustur

með farsímann svo tens,

dulbjó sig með hörku herkjum

sem Homo sapiens.

 

Ég var alveg búinn að gleyma að það er stranglega bannað að gantast með alla þessa minnihlutahópa sem „maður ársins“ tilheyrir þannig að sem pólitískt rétthugsandi maður þá biðst ég innilegrar afsökunar á þessari vísu og tek hana til baka.

 

Fyrst ætlaði ég að hafa þetta svona: "Fylltur kalkúnn fór á Klaustur" en áttaði mig strax á því sem PC-maður að þá væri ég að fitusmána kalkúninn þannig að ég sleppti því. Ég má þó eiga það. Ég er greinilega allur að koma til.

 

Maður ársinsÉg myndi ekki beint segja að ég væri "korter í downs," því þá væri ég að móðga einhverja, en ég myndi segja að ég væri svona korter í Samfó. Kemur útá eitt. Batnandi flónum er best að lifa.

 

Þar sem ég þykist vita að afsökunar- og fyrirgefningarbeiðni er aldrei tekin gild á Íslandi því auðmýktin virðist aldrei vera nógu mikil þá mun ég sýna sára iðrun mína í verki:

Ég mun segja af mér sem tónlistarmaður og rithöfundur og melludólgur og skríða einsog lúbarinn rakki eftir götum borgarinnar og lepja drullupolla og sleikja sérhverjar tær sem á vegi mínum verða og húðstrýkja sjálfan mig með hrísvendi og hnútasvipu á bert bakið kvölds og morgna það sem eftir er ævinnar.

 

 


Femíniskur fasismi

Free the nippleÞótt ótrúlegt megi virðast þá er til nokkuð sem er helmingi verra en femínisti. Og hvað skyldi það nú vera?

Jú, tveir femínistar.

Fátt er þó aumkunarverðara en þeir undanlátssömu aular sem beygja sig undir kröfur rétttrúnaðarrugludallanna, nema ef vera skyldi karlfemínistar en það eru einhverskonar andlegir einfrumungar sem skammast sín fyrir sína „eitruðu karlmennsku“ og halda að femínismi hafi eitthvað með jafnrétti að gera en ekki það sem nafnið gefur til kynna: Forréttindi kvenna.

 

Þeir virðast ekki skilja að femínismi er valdapólitík sem gengur útá að svínbeygja kallpungana í duftið og koma kellingum í allar æðstu stöður í krafti þess sem þær hafa á milli fótanna en ekki þess sem þær hafa á milli eyrnanna.

 

Var að gera vísu í tilefni þess að nú hefur Sæðisbankinn Seðlabankinn læst inní geymslu brjóstverkin hans Gunnlaugs Skandal listmálara. (Hann var oft með brjóstverk). Þessar nýfrelsuðu geirvörtur fóru svo gasalega fyrir brjóstin á femínistum bankans að þeir vildu fyrir alla muni koma þeim bakvið lás og slá.

 

Það eru ekki vönduðu bringublöðrumyndirnar sem ættu að vera lokaðar inní geymslu heldur ættu óvönduðu rétttrúnaðarfasistarnir að vera lokaðir inná viðeigandi stofnun í bólstruðum klefa.

 

Femínismi er fasísk stefna,

fyrirlítur mannkyn hálft,

drepur húmor, drepur listir,

drepur jafnvel lífið sjálft.


mbl.is Brjóstamyndir Gunnlaugs inni í geymslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Birgitta buffuð og fer til hjúkrunarkvendis

BirgittaEkki skil ég hvernig fólk getur verið svona vont við góða söngtækninn hana Birgittu Haukdal.

Þetta er góðhjörtuð, snotur, brosmild blómarós með jákvæða útgeislun og lítur út einsog kópur í framan. Hver getur skvett úr hlandkoppi yfir svona sakleysislegt og viðkunnanlegt trýni?

 

 

Fyrir nokkrum árum ræskti Jens Guð sig vel og vandlega og sendi henni væna tópaksslummu á milli galopnu góðlegu brúnu kópsaugnanna.

Jens þessi Guð er annálað kaldrifjað harðbrjósta klakabrynjað varmenni sem má ekkert aumt sjá án þess að girða niðrum sig og saurspreyja það allt frá hvirfli til ilja. Í því liggur metnaður hans í lífinu. Brúnt skal það vera. Eftir að hafa látið það gossa yfir Haukdalinn með gríðarlegum frethljóðum og gusugangi hæddist hann að henni fyrir að nota brúnkukrem.

Það var ekki fallega gert.

Ekki bað hún um þetta “brúnkukrem.”

 

 

Og hvað gerði Haukdalurinn í kjölfarið? Hefndi hún sín á honum? Reyndi hún að kveikja í jólasveinaskegginu á honum eða snýta sér í strýið á honum?

Nebb, aldeilis ekki. Hún sendi honum hjartnæmt jólakort og bað Guð að blessa Jens Guð…eða öfugt.

Þetta sýnir að Birgitta er ekki bara góður söngtæknir heldur líka góð manneskja.

 

 

Þessi stórmannlegu eða öllu heldur stórkvenlegu viðbrögð Birgittu fengu misyndismanninn Jens til að iðrast sáran og rýna klakavotum augum í sitt grjótharða steinrunna hjarta og síðan þá hefur hann getað staðist þá freistingu að ausa svívirðingum og saur yfir engilfríða söngfugla.

Batnandi illvirkjum er best að lifa.

 

 

Hjúkrunarkona

Það höfðu ekki margir hugmynd um að Birgitta væri að skrifa barnabækur fyrr en þrælsnobbaðir titlatogandi ofurviðkvæmir móðgunargjarnir femínismasjúkir hjúkrunarfræðingar ákváðu að brjálast yfir einu orði sem kemur aðeins fyrir einu sinni í nýjustu bók Birgittu.

 

Hið stórskaðlega orð sem á víst að afvegaleiða æsku landsins og hreinlega leiða hana til glötunar er ekki orðið rassraðnauðgari eða keðjusagamorðingi heldur:

 

Hjúkrunarkona.

 

Verra gat orðið varla orðið.

 

Núna eru þessir fræðingar og fretkellingar að velta Haukdalnum uppúr mykju og óþverra og brúnka hana enn meir en orðið er fyrir að nota þetta viðurstyggilega orð “hjúkrunarkona” í staðinn fyrir fína starfsheitið “hjúkrunarfræðingur.”

Þennan glæp gerði hún sig seka um í nýjustu barnabókinni sinni “Lára skellir sér í þungunarrof á þrítugustu meðgönguviku.”

 

 

Áður hafði hún gefið út barnabækurnar “Lára gerist hryðjuverkakona” og “Lára gerist vændiskona.”

Mér skilst að rétthugsandi femínistabreddur hafi líka orðið bandbrjálaðar yfir þessum bókum og farið fram á að hún breytti titlunum í:

“Lára gerist hryðjuverkatæknir” og “Lára gerist vændisfræðingur.”

 

Kvenrembugyltur virðast af einhverjum ástæðum hata endinguna "kona" í starfsheitum.

 

 

Rétttrúnaðurinn og móðgunargirnin er hér allt að drepa. Ég sé ekkert því til fyrirstöðu að menn noti gamla og virðulega starfstitilinn vændiskona jafnvel þó að “vændisfræðingur” sé kannski lögvarið starfsheiti sem beri að nota yfir professional sæðistunnur.

 

 

Kvenrembugyltur hafa sömuleiðis hrínt hástöfum yfir því að Birgitta skyldi hafa vogað sér að láta hjúkrunarkonuna í nýju bókinni sinni klæðast kjól og vera með svona dæmigert gamaldags hjúkkukaskeiti á skallanum.

Hverjum kemur við hvernig hún klæðir sínar helvítis persónur? Þetta er hennar skáldverk en ekki hennar doktorsritgerð um líf og störf snobbaðra hjúkrunarfræðinga á spítölum borgarinnar á 21. öldinni.

 

 

Hún hefði þessvegna getað látið hjúkkudrusluna vera í G-streng einum fata eða í rifnum og tættum Chaplin-fötum einsog rykfallnir háskólakennarar klæðast gjarnan. Bókin hefði ekki orðið neitt verri fyrir vikið. Bara öðruvísi. Og hún hefði þessvegna getað látið hjúkrunarkvendið kæfa sjúklingana með kodda án þess að það rýrði gildi bókarinnar.

Gæði bókar fer ekki eftir rétthugsun höfandarins.

Fólk sem getur ekki lesið skáldverk sem skáldverk á bara að halda sig við símaskránna.

 

 

Rithöfundar og aðrir listamenn eru ekki uppeldisstofnanir. Þeim kemur ekkert við hvort að einhverjir froðufellandi ferkantaðir “fræðingar” álíti að verk þeirra séu full af “eitraðri karlmennsku” og ýti undir “skaðlegar staðalímyndir.” Enginn með viti setur reglustiku kynja”fræðinnar” á listaverk. Slíkt gera bara femínistar og aðrir seinfærir fasistar.

 

 

Stormsker & Birgitta Haukdal (30.04.2004)Listamenn hafa aðeins þá einu skyldu að tjá það sem þeim býr í brjósti með þeim hætti sem þeim sjálfum þykir hæfa. Allt og sumt.

Þeirra síðasta áhyggjuefni ætti að vera hvort að kynjagleraugun sitji nú ekki alveg örugglega rétt á nefinu á þeim eða hvort að verk þeirra falli nú ekki alveg örugglega inní ramma pólitískrar rétthugsunar. Um leið og þeir fara að gera slíkt þá hætta þeir að vera listamenn og verða þrælar samtímaheimskunnar.

 

 

Haukdalurinn á þessvegna ekki að hlusta á þetta þurrkuntulega kynjafræðiprumphænsnapíp heldur bara að þurrka saursletturnar (brúnkuna) framan úr sér með handarbakinu og segja öllum þessum móðgunargjörnu fræðingum og fasystrum að stökkva á trambólíni beint uppí rassgatið á sér og skella í lás.

 

Við lifum á móðursjúkum tímum í ímynduðu feðraveldi.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband