28.6.2013 | 18:49
Hemmi Gunn
Þetta er í annað eða þriðja sinn á fáeinum árum sem ég frétti af andláti Hemma Gunn. Síðast andaðist hann hér heima fyrir nokkrum árum eftir langa dvöl í Tælandi en reis þá upp á þriðju mínútu eftir smá lífgunartilraunir og varð ekki meint af. Það eru ekki allir sem komast lifandi frá dauðanum. En núna held ég að þetta sé endanlega búið.
Það var einmitt Hemmi sem kynnti Tæland fyrir mér fyrir tæpum áratug. Ég var þá á leið til Kína og hann sagði að ég yrði að koma við í Tæ, þó ekki væri nema bara í viku. Þessi vika varð mjög löng. Svo gaman er að lifa lífinu lifandi í Tælandinu góða að það eru ekki allir sem lifa það af. Mikið gaman, mikið grín, mikið djammað, mikið vín, alltaf sólin, alltaf jólin. Það er auðvelt að deyja þar sem gaman er að lifa. Við getum allavega huggað okkur við að hann dó hjá góðu og jákvæðu og hláturmildu fólki.
Sjálfum fannst Hemma verulega gaman að hlæja einsog allir vita. Flestir fara að hlæja þegar þeir heyra eitthvað fyndið en Hemmi þurfti enga ástæðu til. Hann bara byrjaði að hlæja og þá varð allt voðalega fyndið. Yfirleitt hló hann og talaði samtímis.
Þegar hann fór með mér í júróvisjónferðina til Dublin hér um árið þá var hann eitt sinn nálægt því að kafna úr hlátri, í orðsins fyllstu. Við sátum tveir á hótelbarnum (hvar annarsstaðar?) og hann var með fullan túllann af rækjusamloku og bjórfroðu þegar hann fór að skellihlæja. Hann reyndi að halda munninum lokuðum og við það varð hann einsog útþaninn hamstur í framan, og svo kom að innsoginu og þá festust einhverjar ótuggnar rækjur í kokinu á honum þannig að hann stóð á öndinni. Ég var farinn að sjá fyrir mér fyrirsagnir blaðanna: Hemmi Gunn kafnaði úr hlátri í Dublin." En þetta reddaðist og hann hélt lífi. Í bili.
Þar sem Hemmi var með ofurhressustu sprelligosum í bænum þá hélt maður að hann yrði alveg svakalega langlífur, en hláturinn lengir greinilega ekki lífið. Lengir kannski munninn meðan á hlátrinum stendur en ekki mikið meir. Kannski er bara best að vera alltaf í fýlu til að tryggja að maður verði eins langlífur og Jóhanna Sig. Mér skilst að hún sé frá bronsöld. Allavega ekki brosöld. Til eru manneskjur sem hafa orðið á annað hundrað ára gamlar og jafnvel eldri án þess að þeim hafi nokkurntíma stokkið bros á allri sinni gríðarlega löngu ævi. En nóg um Jóhönnu.
Fólk er misjafnt. Hemmi hló og hló og hló þar til hann dó, á besta aldri. Aðrir flissa aldrei svo mikið sem eitt fliss en ná samt versta" aldri. Ég held það sé nú betra að taka Hemma á þetta og reyna að hafa soldið gaman af öllum þessum íslensku leiðindum, og það er alveg hægt - ef maður býr í Tælandi. Þó að hláturinn lengi kannski ekki lífið þá er aldrei að vita nema menn geti lengt hláturinn alveg frammá tíræðisaldur.
Við hæfi að Hemmi skyldi hafa dáið í "The land of smiles," einsog Tæland er jafnan kallað. Kæmi ekki á óvart að hann hafi drepist úr hlátri. Í banastuði."
Þó að hann hafi verið spaugsamur og hláturmildur þá var hann alvöru gæi, í víðum skilningi.
Jæja Hemmi minn. Að lokum, ef þú ert þarna einhversstaðar: Vertu hress, ekkert stress, ekkert mess, keep it fresh, play your chess with happiness, njóttu þess, yes yes yes. Bæ.
(Þessi minningargrein birtist í Morgunblaðinu 29. júní 2013).
Útför Hemma: Ekkert stress, bless bless | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Blessuð sé minning þessa góða, hreinskilna og ærlega grallara. Það rúmaðist svo ótrúlega margt gott og húmor-ríkt í þessum velviljaða og djúpvitra dreng.
Ég tel að sálarljósið hans hafi mætt kl. 4.00 í morgun á Keflavíkur-farangursfæribanda-stýrikerfinu. (Hann hefði líklega hlegið og sagt, að þeir hefðu ekki viljað laumufarþega-engla á fyrsta farrými), ef hann hefði sjálfur sagt frá.
Það er alltaf pláss fyrir ekta sálir á öðru eða þriðja far-rými, í lúxussnekkjum þeirra samviskulausu og gráðugu, sem telja sig ráða yfir fyrsta farrými.
Hemmi Gunn. gerði sinn húmor-ríka feril ekki endaslepptan. Ljósorkan hans kærleiksríka og ekta, sló veraldartækni-raforkunni út.
Sú orka sem er ekta, slær alltaf hinu ó-ekta út.
Klukkan 7.00 í morgun var ekta sálarorkan hans Hemma kominn áleiðis til Reykjavíkur, í sína eigin jarðarför, og þá fór ó-ekta orkan á Keflavíkur-færiböndunum aftur að virka.
Þetta er bara dæmisaga hjá mér, um hvers megnug kærleiks-ljósorka þessa góðs drens gat verið í raun. Enginn er fullkominn, en allir eru eitthvað ómetanlega mikið.
Samúðarkveðjur til hans nánustu.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 28.6.2013 kl. 23:44
Anna, sendi sömuleiðis samúðarkveðjur til hans nánustu, sem voru eiginlega öll þjóðin. Þannig. Ef kallinn er einhversstaðar á sveimi hér yfir táradalnum þá er hann pottþétt á first class, í sjöunda himni, hlæjandi.
Sverrir Stormsker, 29.6.2013 kl. 18:01
Sverrir. Auðvitað er hann á sveimi, og vill að allir séu jákvæðir og hlæjandi.
Þessi færibanda-saga varð til í mínum huga, þegar ég beið einn og hálfan tíma í röðinni í flugstöðinni með syni mínum, sem var að fara í frí til ættingja sinna.
Það kom einhver grallara-húmorsorka yfir okkur mæðginin, stuttu áður en allt töskubandakerfið fór aftur í gang. Ég eignaði sálarljósi Hemma, þessa jákvæðni sem allt í einu steyptist yfir mig, þegar tilgangslaus og neikvæður pirringur var um það bil að ná tökum á mér í biðröðinni.
Þetta er bara lítið dæmi um það, hvernig jákvæð orka hefur uppbyggileg og góð áhrif, meðan neikvæð orka hefur slæm og niðurbrjótandi áhrif.
Auðvitað er Hemma-ljósið enn á sveimi meðal aðstandendanna, og þeirri orku fylgir ómetanlegur og jákvæður grallara-húmor :)
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 29.6.2013 kl. 18:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.