21.8.2009 | 16:00
Síbrotamaðurinn á Bessastöðum
Undanfarin misseri hefur Ólafur Ragnar farið ríðandi um héruð til að "blása bjartsýni í þjóðina," semsé gefa henni andlegt blowjob. Það er virðingarvert, sérstaklega eftir að hafa átt þátt í því að taka hana í kakóið með því að gefa útrásarskúrkunum gæðastimpil og lofsyngja þá hástöfum um allar jarðir. Hann raðaði á þá fálkaorðum og medalíum og glingri og bling bling og stórriddarakrossum svo mynduglega að þeir stóðu varla í lappirnar. Voru orðnir einsog gettómelludólgar í Harlem. Hér áðurfyrr voru glæpamenn hengdir á krossa. Í dag eru krossar hengdir á glæpamenn. Fálkaorðan ætti í raun að kallast skálkaorðan. Það er allavega mín tillaga.
Forsetinn vill skiljanlega bæta fyrir afglöp sín, útrásardekur og dómgreindarleysi og því hendist hann kófsveittur í loftköstum um sveitir landsins til "að byggja að nýju upp traust á milli sín og fólksins í landinu" einsog segir í frétt DV. Hann er jú sameiningartákn þjóðarinnar. Allavega samnefnari. Af fenginni reynslu þótti Ólafi náttúrulega skynsamlegast að fara í þessa huggunarfundarherferð ríðandi á hrossi einsog sannri hetju sæmir. Dómgreindin söm við sig. Aldrei þessu vant þá hrundi kallinn einsog bankakerfið; kastaðist af baki og axlarbrotnaði. Mun því ekki geta axlað ábyrgð úr þessu. Löglega afsakaður.
Þessi margbrotni æðsti axlarbjörn ríkisins vill gera sín góðverk í hljóði og kyrrþey og án skrums og auglýsingamennsku, eða einsog segir í frétt DV: "Það vekur hinsvegar athygli að forsetinn heldur sig fjarri kastljósi fjölmiðlanna með fundarherferð sína og einnig slysið." Það vekur semsagt mikla athygli fjölmiðla að forsetinn skuli halda sig fjarri kastljósi fjölmiðla með þessa fundarherferð sína og einnig slysið. Það veit bókstaflega ekki nokkur maður af þessari auglýsingafundarherferð forsetans og hvað þá af slysinu einsog sjá má í öllum fjölmiðlum landsins. Maður á að vinna sín góðverk í kyrrþey einsog Ólafur Ragnar. Ólafur vill jarðsyngja landsmenn í kyrrþey í öllum fjölmiðlum landsins. Gott að vita af heiðarlegum síbrotamanni á forsetastóli.
Forsetinn í aðgerð í morgun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Lífstíll, Stjórnmál og samfélag | Breytt 23.8.2009 kl. 03:31 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Er tónlistarmaður og rithöfundur sem hefur alveg gríðarlega gaman af skokki og fjallgöngum og jarðgöngum og draugagöngum og rottugöngum og afgöngum og nefgöngum og leggöngum og niðurgöngum og forsjárhyggju og femínisma og kynjafræði og kommúnisma og glóbalisma og vinstrifasisma og hamfarahlýnuninni og samfarahlýnuninni og öllum 1000 kynjunum og rétttrúnaðinum og öllum andskotanum, sérstaklega honum, en semsé öllu sem lítur að heilbrigði til sálar og líkama. Það er ekki flóknara en það.
Tónlist SS má finna á Spotify og víðar.
Tónlistarspilari
Nýjustu færslur
- 5.11.2024 Trump mun tapa þó hann sigri
- 1.6.2024 Viljum við halda K.J. eða á K.J. að halda ká joð?
- 30.5.2024 Bjarni bankster og Kató krimmi
- 14.6.2023 Konunglegir leghafar og pungberar
- 8.10.2022 Nýtt bóluefni gegn kjarnorkusprengjum
- 24.9.2021 Andlegir öreigar allra vinstriflokka sameinist
- 7.3.2019 Forsætisráðherra afhjúpar afmyndaðan Ólaf Ragnar
- 25.2.2019 Foreldraminning
- 6.2.2019 Alræmt dulargervi Báru
- 22.1.2019 Femíniskur fasismi
- 22.11.2018 Birgitta buffuð og fer til hjúkrunarkvendis
- 9.9.2018 Dyraverðir slegnir
- 24.6.2018 Óleikur íslenska varnarliðsins
- 27.5.2018 Stjórnmálahórerí
- 28.3.2018 Minningarorð um Arnar S. Helgason, tæknimann
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Júní 2023
- Október 2022
- September 2021
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Nóvember 2018
- September 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Mars 2018
- Janúar 2018
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Nóvember 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Desember 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Ágúst 2011
- Maí 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 18
- Sl. sólarhring: 31
- Sl. viku: 173
- Frá upphafi: 975153
Annað
- Innlit í dag: 11
- Innlit sl. viku: 136
- Gestir í dag: 10
- IP-tölur í dag: 10
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Menning og listir
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
Bloggvinir
- laugatun
- allib
- alansmithee
- alexandra-hetja
- malacai
- aliber
- andres
- anitabjork
- annaragna
- arijosepsson
- maxi
- sjalfbodaaron
- aronb
- hergeirsson
- audunnh
- axelaxelsson
- gusti-kr-ingur
- flinston
- polli
- kisabella
- arh
- astafeb
- baldher
- halo
- lordbastard
- bardurorn
- bergthora
- binnan
- birgitta
- birnan
- birnast
- launafolk
- bjolli
- bogi
- braids
- brahim
- gattin
- brynja
- bestfyrir
- brynjarsvans
- skordalsbrynja
- tilfinningar
- brandarar
- boddihlo
- eurovision
- limped
- danni
- dansige
- rafdrottinn
- diesel
- dittan
- djdanni
- dora61
- gagnrynandi
- dvergur
- dyrley
- eddabjork
- egillg
- jari
- saxi
- einari
- jaxlinn
- hjolagarpur
- sleggjan007
- ellasprella
- elma
- skens
- emmcee
- madcow
- skotta1980
- jaherna
- lundgaard
- vinursolons
- eythora
- skaginn96
- ea
- fanneyogfjolnir
- fanneyunnur
- fsfi
- folkerfifl
- freyrholm
- fridjon
- frost
- saltogpipar
- geiragustsson
- kransi
- valgeir
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gislihjalmar
- gtg
- griman
- gudni-is
- gudbjartur
- morgunn
- lucas
- gummidadi
- gkristjansson
- hugs
- gummisig
- dramb
- lostintime
- gurrihar
- gunnagusta
- zeriaph
- gullilitli
- gunnaraxel
- gunnardiego
- gunnarasgeir
- topplistinn
- gunnarkr
- gunnarpalsson
- gunnsithor
- opinbera
- gunnh
- coke
- gellarinn
- morgunblogg
- halldora
- skodun
- hvilberg
- holi
- hannamar
- hannesgi
- joggi
- haddi9001
- harpaka
- haugur
- 730bolungarvik
- heidistrand
- heidathord
- rattati
- heimskyr
- nala
- helgadora
- blekpenni
- diva73
- lost
- helgatho
- helgi-sigmunds
- limran
- hildurhelgas
- hilmardui
- snjolfur
- himmalingur
- folk-er-fifl
- hlekkur
- kolgrimur
- don
- hreinsamviska
- minos
- huldagar
- minna
- danjensen
- hvitiriddarinn
- kliddi
- hordurvald
- ingibjorgelsa
- jara
- ingolfursigurdsson
- ingvarari
- inaval
- nosejob
- keli
- fun
- jaisland
- jevbmaack
- jensgud
- jenni-1001
- svartur
- jokapje
- presley
- johanneliasson
- eyfeld
- jgfreemaninternational
- johannst
- ljonas
- kuriguri
- jbv
- jonsullenberger
- jonmagnusson
- jonlindal
- jonsnae
- prakkarinn
- nonniblogg
- judas
- alda111
- ktomm
- kari-hardarson
- kiddijoi
- bulgaria
- kje
- kjarrip
- photo
- kolbeinz
- kona
- leifur
- kristbergur
- krissa1
- kristinnagnar
- hjolaferd
- kiddirokk
- kristleifur
- nutima
- lauja
- larusg
- liljaloga
- lindabald
- loopman
- ludvikludviksson
- madddy
- madurdagsins
- maggi270
- korntop
- magnusunnar
- magnusthor
- maggaelin
- astroblog
- maggadora
- marinomm
- gummiarnar
- markusth
- 101isafjordur
- sax
- mal214
- mis
- morgunbladid
- nanna
- offari
- 1kaldi
- solir
- king
- trollchild
- alvaran
- vestskafttenor
- skari60
- dj-storhofdi
- ljosmyndarinn
- palmig
- perlaoghvolparnir
- peturmikli
- pesu
- storibjor
- iceland
- pjeturstefans
- frisk
- raggibjarna
- raggirisi
- ragnargests
- raggipalli
- ragnar73
- rannveigh
- re
- reputo
- robertb
- rosaadalsteinsdottir
- rosabla
- lovelikeblood
- siggileelewis
- siggagudna
- sirrycoach
- meyjan
- sigrunhuld
- sigrunsigur
- sibba
- sibbulina
- sigbragason
- joklamus
- siggifannar
- siggi-hrellir
- nerdumdigitalis
- sigurdurkari
- sisi
- siggivalur
- siggith
- sigurgeirorri
- sigurjon
- sigurjonsigurdsson
- sigurjonth
- silfurhondin
- sindri79
- luther
- snorris
- sorptunna
- stebbifr
- bmexpress
- rocco22
- geislinn
- lehamzdr
- trukkalessan
- steinnbach
- sterlends
- midborg
- summi
- svanurkari
- ipanama
- kerubi
- sveinn-refur
- sverrir
- saemi7
- isspiss
- saethorhelgi
- thee
- linduspjall
- ace
- zerogirl
- tryggvigunnarhansen
- turilla
- upprifinn
- skrudhamrar
- valdimarjohannesson
- valsarinn
- jormundgand
- vefritid
- vest1
- what
- start
- vibba
- ippa
- vilhelmina
- villidenni
- vga
- villialli
- audurvaldis
- thjodarheidur
- hector
- thorrialmennings
- steinibriem
- skrifa
- hrollvekjur
- valdivest
- torabeta
- thorakristin
- toti2282
- bjarnakatla
- tp
- congress
- satzen
- thj41
- doddidoddi
- thorsaari
- metal
- iceberg
- motta
- hallelujah
- boi2262
- ornsh
Athugasemdir
Enn og aftur gerir þú þig sekan um ótrúlega pennalipurð og kímni í bland við ískaldan sannleika.
Þessi "síbrotamaður" hlýtur alvalega að hugsa það í kyrrþei, að nú sé mál að linni.
Jenný Stefanía Jensdóttir, 21.8.2009 kl. 16:45
Þarf ekki að ryðja Bessastaði? Verst hvað það er erfitt að hitta á Viðskiptafulltrúann heima. Hann hefur enga sómakennd til að fara sjálfur.
Þorri Almennings Forni Loftski, 21.8.2009 kl. 17:45
Þarna á fyrstu mynd eru þeir vinirnir að afhjúpa saman listaverk skömmu áður en þeir voru afhjúpaðir sjálfir. Hvað skyldi það heita? -Vegir liggja til allra álfta..? -Svanasöngur í eyði..? -Álftirnar kvaka ekki meir..? -Svíðum, svíðum..?
Helga Guðrún Eiríksdóttir, 21.8.2009 kl. 21:22
Það er ekki ofsögum sagt að þú ert manna beittastur með pennann að sverr (ð) i :) þetta er skemmtilega orðað hjá þér og hárrétt svo ekki sé meira sagt, haltu áfram þessum beittu skrifum félagi.
Guðmundur Júlíusson, 21.8.2009 kl. 22:45
Sæll Sverrir.
Eitt að því sem gæti verið tákn fyrir uppreisn og æru þjóðarinar er að forsetinn sem dáði alla þessa útrásarglæpamenn víki á miðju kjörtímabili, NAUÐUGUR.
Upprisa þjóðarinnar mun aldrei nást nema að allir þeir sem komu að útrásarglæpnum víki.
Nú berjumst við allir Íslendingar og mætum galvösk á Austurvöll í haust og hrópum á réttlæti.
Kveðja.
Árelíus Þórðarson.
Árelíus Örn Þórðarson, 22.8.2009 kl. 04:27
Þó þessi fábjáni hefði ekki axlabrotnað þá hefði hann auðvitað aldei axlað ábyrgð á einu eða neinu, enda ekki hægt að ætlast til þess af SÝKÓPÖTUM að þeir skilji eitt eða neytt rangt við sýnar gjörðir. Þennan mann á að leggja inn á deild 33d, þá loksins er hann kominn á stað sem hann slær í gegn! Sorglegt hversu spilta stjórnmálamenn við eigum, stjórnmálamenn sem margir hverjir hafa svo sannarlega "svínslegt eðli" - ekki satt "Óli grís...??"
kv. Heilbrigð skynsemi
Jakob Þór Haraldsson, 22.8.2009 kl. 10:03
Hrein unun að lesa þetta; takk fyrir mig
Mofi, 22.8.2009 kl. 10:32
Frábær pistill sem spilar á alla tilfinningaflóruna hjá mér en fer hlæjandi frá henni. kveðja Kolla.
Kolbrún Stefánsdóttir, 22.8.2009 kl. 11:09
Takk fyrir mig.
Rut Sumarliðadóttir, 22.8.2009 kl. 11:26
Keypti mér um daginn tösku með axlarÓlum og dettur mér nú alltaf í hug forsetinn þrælsetinn og ofsetinn þegar ég snara henni á vinstri öxlina.
Þorvaldur Guðmundsson, 22.8.2009 kl. 13:16
Heiðra þig sem gullpenna dagsins!
Guðbjörg Hrafnsdóttir, 22.8.2009 kl. 13:29
Flottur fer aftur í betrunar vist fyrir þig haha !
Einar B Bragason , 22.8.2009 kl. 16:19
Tær snilld Sverrir.
Ómar Ingi, 22.8.2009 kl. 23:37
Sæll Sverrir.
Hafðu þökk fyrir þennan pistil. Ég lít á Óla sem sameiningartákn 40% þjóðarinnar, enda veit ég ekki til þess að stærri hluti þjóðarinnar hafi nokkurn tímann kosið hann. Hann er eiginlega sundrungartákn frekar en eitthvað annað...
Skál!
Sigurjón, 23.8.2009 kl. 06:03
Jenný, ussss. Ekki hafa hátt. Ólafur Ragnar Klúsó er að vinna í kyrrþey.
Sverrir Stormsker, 23.8.2009 kl. 13:51
Þorri Almennings, ég þarf nú að fara að endurheimta ættarsetrið, Bessastaði. Langalangafi var bróðir Gríms Thomsens Bessastaðabónda. Þarf endilega að fara að henda grísnum út og stinga mér oní vínkjallarann.
Sverrir Stormsker, 23.8.2009 kl. 13:52
Helga Guðrún, þetta verk sem Óli Grease og Jón Násker voru að afhjúpa í fyrra heitir Myrkraverk.
Sverrir Stormsker, 23.8.2009 kl. 13:53
Kreppumaðurinn, sammála. Skildi ekkert í því þegar grímuklæddir “byltingarmenn” fóru á Svessastaði til að drekka te. Hélt þeir myndu henda kallinum út. Nei nei, þeir tylltu sér niður og fengu sér te og smákökur í makindum og fóru að tala um veðrið. Þetta hefði átt að koma í heimsfréttunum: “Íslensk bylting.” Úfffff. Gengur vonandi betur næst.
Sverrir Stormsker, 23.8.2009 kl. 13:55
Jakob Þór, kallinn er ekki beint í fyrstu deild. Kannski að geðdeild sé svarið.
Sverrir Stormsker, 23.8.2009 kl. 13:56
Kolla, kallinn ætti fá sér eina kollu Kolla. Bjórkollu og hárkollu. Getur allavega ekki versnað.
Sverrir Stormsker, 23.8.2009 kl. 13:57
Þorvaldur, “For-seti:” Maður í djúpum skít.
Sverrir Stormsker, 23.8.2009 kl. 13:58
Guðbjörg, takk. Það er ekki slæmt að vera gullpenís dagsins.
Sverrir Stormsker, 23.8.2009 kl. 13:58
Einar, þú veist að kallinn datt á hraun. Ætti kannski bara að vera á Hrauninu.
Sverrir Stormsker, 23.8.2009 kl. 13:59
Ómar, “tær snilld” er búið að fá soldið vafasama merkingu
Sverrir Stormsker, 23.8.2009 kl. 14:00
Sigurjón, gölturinn verður örugglega kosinn aftur. Aftur og aftur og aftur og aftur. Hann lofaði reyndar í viðtali sem ég tók við hann 1996 að hann myndi aldrei sitja lengur en í 8 ár yrði hann kjörinn. Hann lofaði í sama viðtali að hann myndi fara afar sparlega með fálkaorðurnar og hengja þær aðeins á þá sem ættu þær fyllilega skilið. Einmitt. Óli Grease og loforð. Súrmjólk og brennivín. Góð blanda
Sverrir Stormsker, 23.8.2009 kl. 14:01
Hann Óli ætti nú bara að hætta þvi að hengja fálkaorðurnar á fólk. það væri skynsamlegra hjá honum og minni fyrirhöfn fyrir hann að orðunni yrði útdeilt í coco puffs pökkum.
Sölvi Arnar Arnórsson, 23.8.2009 kl. 23:08
Sölvi, láta eina fálkaorðu fylgja hverjum SS pulsupakka í Bónus.
Sverrir Stormsker, 24.8.2009 kl. 00:59
Sverrir: Grímur Thomsen var nú skástur í Skólaljóðunum sem við þurftum að þylja. Þótt Thomsen þætti ekki við alþýðuskap. Farðu nú að drífa þig í hústökubransann. Vonandi eru vínföngin ósnert. Ég bíð eftir boðsmiðanum.
Þorri Almennings Forni Loftski, 24.8.2009 kl. 02:13
Hann var að feika þessi meiðsli til að sleppa undan áreiti.
Guðni Þór Björnsson, 24.8.2009 kl. 10:34
Þú verður þá fyrst að leigja þér loftbor og brjóta niður vegginn sem hann lét setja í innganginn að vínkjallaranum þegar hann tók við embætti...
Tómas Örn Sigurbjörnsson (IP-tala skráð) 24.8.2009 kl. 14:17
Smá sending Sverrir;
sandkassi (IP-tala skráð) 25.8.2009 kl. 13:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.