Bloggfærslur mánaðarins, maí 2024

Bjarni bankster og Kató krimmi

Kata hobbiti, Singi og BjarniÞegar Kata tilkynnti samráðsmönnum sínum í ríkisstjórninni að hún, skipstjórinn, hyggðist stökkva á undan (hinum) rottunum frá borði til að fara í forsetaframboð þá þótti mönnum liggja beinast við að Sigurður Ingi tæki við forsætisráðherraembættinu því hann væri silalegur og sljór drumbur sem miklu meiri sátt yrði um en óvinsælasta stjórnmálamann landsins, en þá greip Bjarni bankster í eyrun á Kötu og hvíslaði:

 

„Hlustaðu nú á mig elsku litla Kata klóakrotta. Þú hefur reynst traustur og dyggur og trúr og tryggur glæpapartner. Ef þú lætur mig fá forsætisráðherrastólinn þá skal ég sjá til þess að öll spillingaröflin og valdaöflin í samfélaginu munu styðja þig af alefli og koma þér í rafmagnsstó..., ... ég meina forsetastólinn. Öllu skal tjaldað til. Ekki Höllu heldur ÖLLU.

 

Ég skal fá allra voldugustu og flottustu glæpamenn og stórfyrirtækjaeigendur landsins til að standa þétt við bakið á þér, ég skal fá minn helming Sjálfstæðisflokkinn til að styðja þig og ég skal fá Singa til að fá Framsóknarflokkinn til að styðja þig og ég skal fá fóstbræðurna Bubba Hólmstein og Hannes Morthens til að ausa þig lofi og ég skal fá Davíð uppá Mogga, pissudúkku auðvaldsins, til að berja á Harmonikku-Höllu og öðrum þeim frambjóðendum sem ógna þér og fá hann til að tala vel um gluggaskrautið sitt hana Kötu litlu og ég skal fá sægreifana til ausa hundruðum milljóna í framboðið þitt svo þú getir sómt þér vel sem gluggaskraut á Bessastöðum og skrifað undir öll okkar landráðalög hugsunarlaust einsog vinur okkar hann Gauðni Th. Wokehannesson hefur gert svo myndarlega til þessa.“

 

Bjarni bankster og Kató krimmiOg áfram heldur Bjarni bankster:

„Ég treysti því elsku litla Kata klóakrotta að þú munir skríkja af ánægju þegar við komum með Bókun 35 og Orkupakka 4 og 5 og 6 og þitt eigið gjafagjörningafrumvarp varðandi lagareldi þar sem við afhendum norskum auðjöfrum firði landsins á silfurfati og rústum villta laxastofninum, seljum vildarvinum Landsbankann og Landsvirkjun á undirverði og fleiri verðmæt ríkisfyrirtæki í bútum og ég vil að þú lofir því að þú munir nota áhrifavald þitt til að halda Sjálfstæðisflokknum við völd og látir okkur fá stjórnarmyndunarumboðið þegar þar að kemur og leggir þitt af mörkum til að halda spillingunni gangandi. Lífið liggur við.

 

Þú manst þegar Gufu-Guðni forseti lét þig hanga með stjórnarmyndunarumboðið vikum saman þarna 2017 þegar þú og Svandís Stalínsdóttir höfðuð lofað þjóðinni að þið mynduð Aldrei fara í stjórn með Sjálfstæðisflokknum. Það var svo frábært hvernig við blekktum allt andskotans pakkið uppúr skónum. Ég, þú og Steingeldur J. Sigfússon vorum búin að mynda ríkisstjórnina löngu áður en til sviðsettra stjórnarmyndunarviðræðna kom en við létum alla halda að þessar viðræður gengju alveg obboslega erfiðlega afþví að VG og Sjálfstæðisflokkurinn ættu jú að heita svo svakalega ólíkir flokkar.

Manstu eftir þessu Kata mín?

 

Kató og Steingeldur JÞá var nú gott að hafa Gauðna forseta í vasanum sem gaf grænt ljós á að þú fengir að hafa stjórnarmyndunarumboðið eins lengi og þörf krefði. Pírapar og Samflónin héldu að þeir kæmu virkilega til greina sem samstarfsaðilar á þessum tíma. Múhahaha.

 

Ég og þú og Steingeldur J. vorum fyrir löngu búin að plana að við ætluðum að starfa saman og það höfum við gert af heilindum síðan og aldrei borið skugga á enda erum við heiðarlegir krimmar. Bófar verða að vera heiðarlegir hvorir við aðra ef samstarfið á að endast. Og okkar hefur enst von úr viti.“

 

Og áfram heldur Bjarni bankster:

„Það voru nú einmitt mínir menn sem sáu um að koma Gauðna á Bessastaði með moldvörpuna Friðjón Friðjónsson fremstan í flokki, sama gengi og ég er búinn að ráða til að koma þér á Bessastaði.

Djöfull erum við góð saman Kata mín. Elsku klóakrottan mín.

Þennan leik þurfum við að leika aftur þegar þú ert orðin forseti og þá fæ ég að dúlla mér með stjórnarmyndunarumboðið vikum saman ef ég kæri mig um og saman getum við sett þumalskrúfu á þá formannsræfla sem vilja uppá dekk og halda að þeir séu eitthvað og eru með derring.

Allt þitt frábæra líf hefur verið lygi og svik og prettir og bakstungur og blekkingar og landráð.

Við eigum svo obboslega vel saman. Við erum einsog Bonnie and Clyde og heitum næstum því sömu nöfnum, Bernie and Kate.

 

Ég skal gera bókstaflega ALLT til að koma þér í forsetastólinn.

Þú varst nú sjálf yfirmaður RÚV sem menntamálaráðherra þannig að við getum treyst á góða veðrið þar á bæ enda hefurðu verið þar daglegur gestur í hartnær tvo áratugi.

 

Og svo ertu búin að gera stjórnarformann Gallup að kosningastjóranum þínum, sem hefur mikið verið að vinna fyrir Steingeld J. og Vinstri Galna í gegnum tíðina og þessi gæi getur séð um að hafa þig alltaf langefsta í öllum könnunum og talið fólki trú um að þú sért alvinsælasti stjórnmálamaður Íslands einsog hann hefur gert árum og áratugum saman til að setja þrýsting á að þú náir alltaf æðstu embættum þó að flokkur þinn sé við dvergamörk einsog þú sjálf.“

 

Og áfram heldur Bjarni bankster:

„Sjálfur skal ég ræsa út Almannavarnir og tala við Slökkviliðið og Lögregluna og Víkingasveitina og Ríkislögreglustjóra og Ríkissaksóknara og Ríkisskattstjóra og Martein Mosdal og Ríkisendurskoðun og allt embættiskerfið einsog það leggur sig og fá þau í lið með þér en kannski að það myndi lykta pínupons af spillingu? En gerir það nokkuð til?

Við tvö erum kannski ekki snillingar en við eru klárlega mestu spillingar landsins. Múahahahaha!

 

Víðir, Kári og FlónólfurÉg skal meiraðsegja fá sóttvarnarhálfvitana Gísla, Eirík og Helga eða hvað þeir heita nú þessir mongólítar þarna í Þríeykinu ... eða Þríeitrinu öllu heldur, - Víði víðáttuvitlausa, Flónólf fáráðling og Kára Klepptæka, til að lýsa yfir stuðningi við þig og dásama þig í bak og fyrir.

 

Kári „klári“ er nú vanur að kjafta upp hlutabréfin í vonlausum fyrirtækjum einsog þessu deFRAUD ponzisvindlkompaníi sínu sem setti hálfa þjóðina á hausinn þannig að hann fer nú létt með að kjafta upp hlutabréfin í vonlausum innistæðulausum forsetakandídat einsog þér elsku litla landráðakellingin mín sem hefur sundrað og rústað þjóðinni og pólaríserað hana og klofið hana í herðar niður í öllum skilningi með þindarlausum innflutningi hælisleitenda og sett allt á hausinn með dyggum stuðningi mínum í formi algers afskiptaleysis.

Engin manneskja frá landnámi hefur skapað aðra eins skautun og þú.

Þú ert sannkölluð skautadrottning Íslands eða skautunardrottning Íslands öllu heldur.“

 

Og áfram heldur Bjarni bankster:

„Þú Kata mín ert frábær fulltrúi alþjóðavæðingarinnar, wokeismans, loftslagstrúarbragðanna, alþjóðlegra stórglæpastofnana og stórfyrirtækja, opinna landamæra, rústunar þjóðríkisins, vinstrifasistanna, hnattræningjanna, spillingarinnar og valdaelítunnar.

 

Sjálfur hef ég enga skoðun á þessum málum. Ég hef engan áhuga á hugmyndafræði eða straumum og stefnum í pólitík. Ég veit ekki einusinnu hvort ég sé vinstrimaður eða hægrimaður. Mér er alveg sama um stjórnmál. Ég er fyrst og fremst bissnissmaður. Þessvegna er ég í pólitík. Það er ekki hægt að verða verulega ríkur á Íslandi nema með því að komast yfir ríkiseigur. Samþættun stjórnmála og viðskipta er lykillinn að velgengni á Íslandi.

Flestir kalla þetta spillingu en ég kalla þetta raunsæi.

 

VinstrifasismiÞú Kata ert hinsvegar öll í hugmyndafræðinni og elskar þinn femínisma og þinn wokeisma og þinn menningamarxisma og þinn vinstrifasisma og vilt að allur heimurinn lúti forsjá og handleiðslu einnar miðstýrðar alræðisstjórnar og til þess að koma þessum dásamlega kommúnisma á þarf að mola niður þjóðríkin innanfrá og þessvegna ertu svo gríðarlega hrifin af galopnum landamærum."

 

Og áfram heldur Bjarni bankster:

"Veistu það Kata mín að innan 20 ára verða Íslendingar orðnir minnihlutahópur í eigin landi? Stefna þín og þinna manna sem þú ert að vinna fyrir er að ganga upp og nú er þjóðin rammflækt í þessum glæsilega blekkingaWEF og getur sig hvergi hrært.

 

Þú telur að þú sért akkúrat manneskjan sem getur orðið sameiningartákn þjóðarinnar eða „sameiningarafl“ eða hvað þú vilt kalla þetta. Þú getur í það minnsta orðið sameiningartákn valdaelítunnar og spillingaraflanna og þau eru nú mun mikilvægari en þessi helvítis þjóð sem við erum blessunarlega að skipta út fyrir íslamista.

 

Íslamistar mega eiga fjórar konur og þeir fjölga sér áttfalt á við okkur geldingana í Evrópu og verða búnir að taka yfir álfuna fyrir 2050. Stærðfræði 101.

Ísland er dvergríki og verður orðið íslamskt land innan tveggja áratuga og mun líklega kallast Íslandistan.

Þökk sér þér elsku Landráða-Kata mín, sem ert margfaldur Evrópumeistari í hælisleitendainnflutningi og þökk sé mér fyrir að vera punglaus aumingi og hafa leyft þér að henda dómsmálaráðherrunum Sigríði Á. Andersen og Jóni Gunnarssyni útí tunnu, einu hægrimönnunum í Sjálfstæðisflokknum sem voru að reyna að breyta galinni innflutningsstefnunni í útlendingamálum.

 

Ég þykist vera að rumska núna en persónulega er mér í raun alveg sama um þessi mál svo framarlega sem ég fæ að koma ríkiseigum í réttar hendur. Og þú hefur gefið grænt ljós á það gegn því að ég hreyfi ekki andmælum þegar þú hefur verið að innleiða eyðileggingarstefnu heimsvaldafasistanna í Davos og rústa þjóðfélaginu. Um þetta snýst okkar verkaskipting og okkar góða samstarf.

 

Samkvæmt áreiðanlegum mælingum þá eru Íslendingar ein óheiðarlegasta og spilltasta þjóð í heimi þannig að þó að þeir vilji hugsanlega ekki fá þig sem sameiningartákn eða „sameiningarafl“ af einhverjum óskiljanlegum ástæðum, þá má alveg segja að þú sem svokallaður skítakarakter sért samnefnari þjóðarinnar, elsku klóakrottan mín.

 

Það er ekki ég sem er að segja að þú sért sleazy skítakarakter heldur þessir helvítis popúlistar og öfgahægrimenn og rasistar og nasistar og útlendingahatarar sem skilja ekki gangverk samfélagsins og eru stútfullir af óæskilegum skoðunum og demba útúr sér stórhættulegri hatursorðræðu og viðbjóðslegum hugmyndum um einstaklingsfrelsi og tjáningarfrelsi og kunna ekki að meta þennan stórkostlega glóbalisma og vinstrifasisma sem þú hefur verið að innleiða með mínu þögla samþykki.“

 

Kató Maó byltingarhetjaOg áfram heldur Bjarni bankster:

„Þú boðaðir 2017 þegar við mynduðum okkar frábæru ríkisstjórn að þú myndir gjörbreyta íslensku samfélagi og það hefur þér svo sannarlega tekist. Þessi stórkostlega menningarbylting þín, sem þú framkvæmdir að sjálfsögðu að undirlagi þeirra alþjóðlegu stofnana sem þú ert að vinna fyrir, hefur ekki bara umbylt íslensku samfélagi heldur gjöreyðilagt það til frambúðar því þetta er óafturkræf tortíming á samfélagsgerðinni og hún verður aldrei söm, sem betur fer. Þetta er alveg meiriháttar.

Áhrifin munu koma í ljós á allra næstu árum í formi gríðarlegrar aukningar glæpatíðni og Ísland mun alveg pottþétt enda í sama æðislega drullupyttinum og Svínþjóð. Það er mikil guðs blessun.

 

Þú hefur sagt að þú hafir mjög mikið vit á gangverki samfélagsins og það má til sanns vegar færa að því leyti að þú veist alveg nákvæmlega hvernig á að stoppa gangverkið. Þú hefur jú sagt sem græningi að þér sé meinilla við hagvöxt og að þú teljir hann "ofmetið fyrirbrigði."

Fólki sem er illa við hagvöxt og vill fórna hagsæld og farsæld landsins fyrir loftslagstrúarbrögðin er sjálfkrafa illa við allar framkvæmdir og framleiðslu og nýtingu auðlinda.

 

Ef ég hefði ekki látið allt eftir þér þá væri stjórnin sprungin fyrir lifandi löngu. Vinstrimenn eru öskurapar og ef maður hefur hlutina ekki nákvæmlega eftir þeirra höfði þá sprengja þeir allt í loft upp. Almenningur heldur hinsvegar að það sé Ég sem hafi spillt Þér og að Þú sért undir hælnum á Mér. Við tvö vitum að það er mikill misskilningur. Þessu er öfugt farið.

 

Besta sönnunin fyrir því að þú ráðir öllu er að stjórnin hefur starfað í 7 ár og þjóðfélagið er ein rjúkandi rúst.

Hefði ég reynt að fá að ráða einhverju um hugmyndafræðina og menningarmarxismann þinn og vinstrifasismann þinn sem þú elskar út af lífinu þá hefði stjórnin sprungið á fyrstu mánuðunum.

 

Núna loksins þegar þú ferð þá get ég reynt að fara að berja í brestina og gera eitthvað örlítið af viti.

En verkaskipting okkar hefur verið alveg skýr  og frábær og þessvegna hefur stjórnin lifað. Eina leiðin til að lynda við kommúnista er að lúffa og halda kjafti.

Sá vægir sem vitið hefur meira og maður þarf ekki að hafa mikið vit til að hafa meira vit en vinstrimenn."

 

Og áfram heldur Bjarni bankster:

"Ég hef leyft þér að hindra allar virkjanaframkæmdir og orkuöflun og standa í vegi fyrir öllum framkvæmdum og allri framþróun og öllum framförum í landinu og allri atvinnuuppbyggingu og öllu vitrænu sem þarf að vera til staðar svo að gangverk samfélagsins geti virkað, sem þú segist skilja svo svakalega vel, og ég hef leyft þér að vera með ríkisstjórnina og þjóðina í gíslingu í 7 ár enda er hér líka allt í einni glimrandi flottri rjúkandi rúst:

 

Landbúnaður í hakki, fiskveiðar í hakki, hvalveiðar í hakki, vextir í botni, verðbólgan í botni, orkumál í hakki, útlendingamál í hakki, heilbrigðismál í hakki, ríkisfjármál í hakki, húsnæðismál í hakki, öldrunarmál í hakki, öryrkjamál í hakki, menntamál í hakki og tungumálið sjálft í hakki, sem þú segist bera svo mikla umhyggju fyrir, og okkur hefur meiraðsegja tekist að setja leigubílstjórastéttina í þvílíkt hakk að það er farið að hafa áhrif á ferðamannaiðnaðinn. Guði sé lof.

Allt er í einni glæsilegri rjúkandi rúst.

 

Bláeygir einfeldningar halda að þessi rústun þjóðríkisins sé stefnuleysi en það er öðru nær. Þetta er markviss marxísk stefna og það er verið að framkvæma hana allsstaðar á Vesturlöndum af þínum glópalglópum sem þú ert að vinna fyrir Kata mín, en þú hefur sem betur fer aldrei verið spurð um þetta grundvallarmál af okkar gagnslausu steinsofandi handónýtu fjölmiðlum sem við erum búin að stinga snuði uppí og breyta í ríkisfjölmiðla svo þeir grjóthaldi kjafti.“

 

Og áfram heldur Bjarni bankster:

„Já, ég ætla að halda áfram að lýsa þessari frábæru verkaskiptingu okkar:

 

Ég hef leyft þér að iðka þinn gasalega gáfulega menningarmarxisma og eyðileggja íslenska tungu með innleiðingu á kynhlutlausu málfari og orwellskri nýslensku í skólakerfinu og leyft þér að bulla fallega um femínisma og fóstureyðingar fram að fæðingu og kynrænt sjálfræði og svokallaða „hatursorðræðu,“ en það eru skoðanir sem samræmast ekki pólitískum rétttrúnaði vinstrifasista sem eru að róa að því öllum árum að koma á einni miðstýrðri alheimsstjórn.

 

Kató í NatóOg ég hef leyft  þér að dásama Nató þegar þú ert að halda ræður erlendis og mana þjóðir til inngöngu í þetta stórkostlega varnarbandalag og ég hef leyft þér að rakka niður Nató þegar þú ert að halda ræður hérlendis og tala um að þú viljir að Ísland segi sig úr þessu hryllilega árásarbandalagi og hef leyft þér að hafa þínar tungur tvær og tala sitt með hvorri og ég hef leyft þér stoltur að slá hvert heimsmetið á fætur öðru í tvískinnungshætti og hræsni og óheilindum og óheiðarleika og svikum og prettum og blekkingum og glæsilegum raðlygum elsku besta Kató mín.

Ég er bara svo ofsalega stoltur af þér að þú trúir því ekki. Nú tárast ég af hrifningu.“

 

Og áfram heldur Bjarni bankster:

„Og hvað verkaskiptingu okkar varðar þá ég hef leyft þér berja á bændum og eyðileggja landbúnaðinn í nafni loftslagstrúarbragðanna þinna og yfirboðara þinna í WEF og ESB og WHO og Sameinuðu þjófunum, sem er í raun allt sama stofnunin með sömu markmið og sömu eyðileggingarstefnuna sem verið er að innleiða útum öll Vesturlönd.

Heimsvaldakommúnistar þessara yfirþjóðlegu glæpastofnana, sem þú samsamar þig við, hafa breytt Vesturlöndum í Verstulönd.

 

Og ég hef leyft þér og Svíndísi Stalínsdóttur að stöðva strandveiðar og hvalveiðar og þverbrjóta stjórnarskrána og lög um atvinnufrelsi og ég hef leyft þér að bulla fallega um manngert veðurfar og ausa tugum milljarða í loftslagsrétttrúnaðarkirkjuna og hundruðum milljóna í hryðjuverkasamtökin Hamas og eyða gríðarlegum fjármunum í kolólögleg vopnakaup í trássi við þjóðaröryggisstefnu landsins og alþjóðasamninga til að drepa Rússa hinumegin á hnettinum, sem getur varla flokkast undir neitt annað en enn ein fyrirtaks landráðin.

 

Tjáningarfrelsi KatrínarOg ég hef leyft þér að hjala um lýðræði og réttarríkið og mannréttindi og tjáningarfrelsi á meðan þú hefur bak við tjöldin barist fyrir niðurbroti þjóðríkisins og innleiðingu vinstrifasisma og skerðingum á málfrelsi, líkt og búið er að innleiða í Skotlandi og víðar, og viljað skikka opinbera starfsmenn á námskeið í pólitískri rétthugsun.

 

Og ég hef leyft þér að framfylgja Agenda 2030 og Heims(ku)markmiðum Sameinuðu þjófana og ég hef leyft þér að rústa menntakerfinu og ýta undir kyn- og transvæðingu grunnskólabarna og leyft þér að vera Agenda Contributor hjá WEF og sérlegur erindreki og sendiherra WHO á Íslandi og leyft þér að innleiða fasíska niðurbrotsstefnu þessara alþjóðlegu stofnana gagnrýnislaust og leyft þér að vinna gegn hagsmunum þjóðarinnar kvölds og morgna árið um kring og koma henni undir erlend yfirráð og gefa auðlindir þjóðarinnar erlendum auðjöfrum og framselja ríkisvald til alþjóðlegra stofnana og stórfyrirtækja og opna landamærin uppá gátt og rústa innviðum landsins til frambúðar og framleiða ósætti og sundrungu og „skautun“ í samfélaginu sem þú hefur síðan sjálf kvartað mest yfir í áróðursskyni.

 

Og alla þessa óendanlegu dásamlegu glóbalistaheimsku hef ég leyft þér að framkvæma á meðan ég hef fengið að vera með mína löngu fingur oní kökuboxi landsmanna.

Þannig hefur díll okkar verið síðastliðin 7 ár.“

 

KatóOg áfram heldur Bjarni bankster:

„Elsku litla Landráða-Kata mín. Þú veist vitaskuld alveg hvaða afleiðingar þessi innleiðing þín á eyðileggingarstefnu alræðisglóbalistanna mun hafa á Ísland á næstu árum og áratugum þannig að það er ekkert skrýtið að þú, skipstjórinn, skulir vilja forða þér frá borði fyrst allra áður en að allt fer til andskotans og þá verður þú komin í friðhelgina á Bessastöðum.

 

Þar munt þú „halda áfram að gera þjóðinni gagn“ og „halda áfram að vinna að þjóðarhagsmunum“ einsog þú hefur orðað það svo kaldhæðnislega.

Það er greinilega húmor í minni.

 

Ekki gleyma að segja nokkra vel valda brandara í kosningabaráttunni:

Þú getur t.d. sagt að þú munir "alltaf sýna þjóðinni hollustu" og að þú hafir "alltaf staðið með þeim sem höllustum fæti standa í samfélaginu" á sama tíma og þú hefur séð til þess að 15.000 eldriborgarar eru núna undir fátæktarmörkum.

 

Og þú getur sagt að þú munir sko ekki láta öryrkja og aldraða bíða eftir réttlætinu þó þú hafir látið þá bíða og bíða í 7 ár - og þú getur sagt og að þú munir alltaf tala fyrir friðsamlegum lausnum og friðsamlegum vopnakaupum.“

 

Kató á taugumOg áfram heldur Bjarni bankster:

„Og í guðanna bænum ekki fara í viðtöl á Samstöðinni hans Gunnars Smára eða á Útvarpi Sögu hennar Arnþrúðar Karls vegna þess að þó þú náir mér bara í nafla þá ertu engaðsíður allt of stór og merkileg persóna til að fara að ræða við einhverja venjulega almúgadúdda sem eru með undir 5 milljónum á mánuði. Þú ert langt yfir svona alþýðupakk hafin.

Þú ert hin eina sanna Kató krimmi en ekki einhver Edda öryrki.

Þú ætlar að verða forseti fjármálaaflanna og valdaklíkunnar en ekki sauðsvarts almennings og einhverra helvítis aumingja.

 

Þú getur alveg eins farið í Kolaportið eða Góða hirðinn eða Fjölskylduhjálpina einsog að láta sjá þig á þessum skítblönku fjölmiðlum, og svo er alltaf hætta á að þú fáir óþægilegar spurningar og ekki viljum við það.

 

Þau gætu gerst svo ósvífin að fara að gagnrýna þig og við vitum að öll gagnrýni á stjórnvöld og valdamenn flokkast undir hatursorðræðu á Íslandi.

Þau gætu farið að spyrja þig hverju þú hefðir komið í verk sem forsætisráðherfa og þá myndi kannski koma uppúr kafinu að þú hafir bara viljað framleiða úrræðaskort í hælisleitendamálum, orkuskort, fæðuskort, húsnæðisskort, peningaskort, menntunarskort o.s.fr. því ekki skortir ykkur kommúnistana greindarskort.

 

En þú ert alveg frábær Kató mín og við eigum það sameiginlegt að vera alveg gegnheil í okkar óheilindum og leynimakki gegn þjóðinni. Við höfum starfað feykivel saman sem glæpapartnerar, enda hefur þú sagt opinberlega að ég sé besti partner ever og ég get sagt það sama um þig: Þú ert minn allra besti og traustasti glæpapartner, Kató krimmi. Við þurfum manneskju einsog þig sem forseta. Ég skipaði Gauðna Té Hán að pakka saman svo að þú gætir komist að sem forseti og hann hlýddi vitaskuld þegjandi og hljóðalaust enda var það ég og mínir menn sem komu honum í forsetastólinn á sínum tíma.“

 

Bjarni og KatóOg áfram heldur Bjarni bankster:

„Og nú tekur þú við sem forseti Kató mín.

Nú lætur þú mig fá forsætisráðherrastólinn og ég læt þig fá forsetastólinn.

Er þetta díll elsku Nató-Kató mín? Elsku litla sæta gluggaskrautið mitt?

Flott. Þá er það ákveðið. Ég fer þá strax í kynleiðréttingu og læt breyta mér í karlmann og fer að reyna að taka á málunum einsog maður og reyna að telja þjóðinni trú um að núna þegar þú ert farin að þjóna þinni metorðagirnd og valdagræðgi á Bessastöðum í stað þess að þjóna fólkinu í landinu, þá ætli ég að þykjast að fara að taka á útlendingamálunum og orkumálunum og ríkisfjármálunum og reyna að lágmarka skaðann sem þú hefur valdið þjóðinni.

 

Ég get ekki lofað að ég geti látið svindla með beinum hætti í kosningunum með því að fixa til kjörgögn og svona en ég reyni mitt besta.

Það er ástæða fyrir því að allt varðandi kosningar sé með þeim hætti að sem auðveldast sé að svindla. Það er einfaldlega til að hægt sé að svindla.

Þó að allt sé gert til að auðvelda kosningasvindl þá get ég samt engu lofað um árangur á þessu stigi málsins.

 

Kató yfir NatóÉg reyni að krimmast einsog ég get og enginn elskar krimma meira en þú elsku Kató krimmi. Ef svo fáránlega vildi til að þú yrðir ekki forseti Kató mín þá reynum við að koma þér að sem framkvæmdastýru Nató. Þig hefur hvort eð er dreymt um þá stöðu síðan þú varst í Keflavíkurkommúnistagöngunum með Steingeldi J. Sigfússyni og hrópaðir: ÍSLAND ÚR NATÓ – HERINN BURT! Það yrði nú aldeilis draumadjobbið fyrir þig Kató mín.

Við gætum verið með flott slagorð: KATÓ YFIR NATÓ.

 

Nú, ef að Nató þekkir þig of vel og vill ekki sjá þig frekar en þínir eigin flokksmenn og 75% þjóðarinnar, þá geturðu bara tekið við formennsku og aðalritarastöðu í kommúnistaflokknum mínum þegar ég er búinn að koma öllum fjöreggjum þjóðarinnar á mína spæleggjapönnu.“


mbl.is Horfðu hér: Heitar kappræður í Hádegismóum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband