7.5.2008 | 08:28
Sofandi sauðir (Silence of the lambs)
Einhverjar hörðustu lögrugluaðgerðir Íslandssögunnar fóru fram fyrir 10 dögum. Og gegn hverjum beindust þær? Eiturlyfjabarónum? Glæpaklíkum? Fjöldamorðingjum? Nei, vörubílstjórum að sjálfsögðu. Hættulegustu djöflum landsins. Þessi fól vilja geta lifað af kaupinu sínu og neita að borga hæsta eldsneytisverð í heimi og hafa reynt að ná eyrum ráðamanna í aðeins þrjú ár. Svona öpum á sko ekki að sýna neina linkind. Þeir gætu skapað vont fordæmi og allt gæti hér farið úr böndunum.
Íslendingum er afar illa við ókurteisleg mótmæli og vilja helst bara mótmæla klámráðstefnum og nektarstöðum og það á penan hátt einsog teprulegum blævængjafrúm sæmir. Hafa þeir mótmælt kröftuglega stærsta ráni Íslandssögunnar, gjafakvótakerfinu? Nei, bara maldað í móinn. Hafa þeir mótmælt landbúnaðarkerfinu? Verndartollum? Innflutningshöftum? Nei, þeir elska heimspeki Bjarts í Sumarhúsum og dýrka allt sem íslenskt er og hafa illan bifur á öllu útlensku sem gæti bætt afkomu þeirra. Eru núna fyrst að fatta að krónan er jafn reikul og veik og þeir sjálfir.
Hafa þeir mótmælt spillingarútsölu eignanna á varnarsvæðinu á Vellinum? Nei. Hafa þeir mótmælt hæsta matvöruverði í heimi? Hæstu bankavöxtum í heimi? Hæstu tryggingaiðgjöldum í heimi? Nei, bara dæst og unnið meira að hætti þrælslundaðra bláeygðra hlandaula. Kjörorð okkar Íslendinga er: Don´t Wake Me Up! Kannski að vörubílstjórar séu að skapa gott fordæmi og nái að flauta svo hátt að við vöknum.
(Þessi pistill birtist í 24 Stundum, 3. maí)
Það væri eitthvað mikið að ef ég myndi ekki minna á þátt okkar Halldórs E, "Miðjuna" á Útvarpi Sögu sem er í dag, miðvikudag, milli kl. 16:00 og 18:00. Gestur að þessu sinni er rithöfundurinn eldklári, Þórarinn Eldjárn.
Hægt er að hlusta á eldri þætti á www.stormsker.net
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Lífstíll, Stjórnmál og samfélag | Breytt 10.5.2008 kl. 06:58 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Er tónlistarmaður og rithöfundur sem hefur alveg gríðarlega gaman af skokki og fjallgöngum og jarðgöngum og draugagöngum og rottugöngum og afgöngum og nefgöngum og leggöngum og niðurgöngum og forsjárhyggju og femínisma og kynjafræði og kommúnisma og glóbalisma og vinstrifasisma og hamfarahlýnuninni og samfarahlýnuninni og öllum 1000 kynjunum og rétttrúnaðinum og öllum andskotanum, sérstaklega honum, en semsé öllu sem lítur að heilbrigði til sálar og líkama. Það er ekki flóknara en það.
Tónlist SS má finna á Spotify og víðar.
Tónlistarspilari
Nýjustu færslur
- 5.11.2024 Trump mun tapa þó hann sigri
- 1.6.2024 Viljum við halda K.J. eða á K.J. að halda ká joð?
- 30.5.2024 Bjarni bankster og Kató krimmi
- 14.6.2023 Konunglegir leghafar og pungberar
- 8.10.2022 Nýtt bóluefni gegn kjarnorkusprengjum
- 24.9.2021 Andlegir öreigar allra vinstriflokka sameinist
- 7.3.2019 Forsætisráðherra afhjúpar afmyndaðan Ólaf Ragnar
- 25.2.2019 Foreldraminning
- 6.2.2019 Alræmt dulargervi Báru
- 22.1.2019 Femíniskur fasismi
- 22.11.2018 Birgitta buffuð og fer til hjúkrunarkvendis
- 9.9.2018 Dyraverðir slegnir
- 24.6.2018 Óleikur íslenska varnarliðsins
- 27.5.2018 Stjórnmálahórerí
- 28.3.2018 Minningarorð um Arnar S. Helgason, tæknimann
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Júní 2023
- Október 2022
- September 2021
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Nóvember 2018
- September 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Mars 2018
- Janúar 2018
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Nóvember 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Desember 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Ágúst 2011
- Maí 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 18
- Sl. sólarhring: 31
- Sl. viku: 173
- Frá upphafi: 975153
Annað
- Innlit í dag: 11
- Innlit sl. viku: 136
- Gestir í dag: 10
- IP-tölur í dag: 10
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Menning og listir
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
Bloggvinir
- laugatun
- allib
- alansmithee
- alexandra-hetja
- malacai
- aliber
- andres
- anitabjork
- annaragna
- arijosepsson
- maxi
- sjalfbodaaron
- aronb
- hergeirsson
- audunnh
- axelaxelsson
- gusti-kr-ingur
- flinston
- polli
- kisabella
- arh
- astafeb
- baldher
- halo
- lordbastard
- bardurorn
- bergthora
- binnan
- birgitta
- birnan
- birnast
- launafolk
- bjolli
- bogi
- braids
- brahim
- gattin
- brynja
- bestfyrir
- brynjarsvans
- skordalsbrynja
- tilfinningar
- brandarar
- boddihlo
- eurovision
- limped
- danni
- dansige
- rafdrottinn
- diesel
- dittan
- djdanni
- dora61
- gagnrynandi
- dvergur
- dyrley
- eddabjork
- egillg
- jari
- saxi
- einari
- jaxlinn
- hjolagarpur
- sleggjan007
- ellasprella
- elma
- skens
- emmcee
- madcow
- skotta1980
- jaherna
- lundgaard
- vinursolons
- eythora
- skaginn96
- ea
- fanneyogfjolnir
- fanneyunnur
- fsfi
- folkerfifl
- freyrholm
- fridjon
- frost
- saltogpipar
- geiragustsson
- kransi
- valgeir
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gislihjalmar
- gtg
- griman
- gudni-is
- gudbjartur
- morgunn
- lucas
- gummidadi
- gkristjansson
- hugs
- gummisig
- dramb
- lostintime
- gurrihar
- gunnagusta
- zeriaph
- gullilitli
- gunnaraxel
- gunnardiego
- gunnarasgeir
- topplistinn
- gunnarkr
- gunnarpalsson
- gunnsithor
- opinbera
- gunnh
- coke
- gellarinn
- morgunblogg
- halldora
- skodun
- hvilberg
- holi
- hannamar
- hannesgi
- joggi
- haddi9001
- harpaka
- haugur
- 730bolungarvik
- heidistrand
- heidathord
- rattati
- heimskyr
- nala
- helgadora
- blekpenni
- diva73
- lost
- helgatho
- helgi-sigmunds
- limran
- hildurhelgas
- hilmardui
- snjolfur
- himmalingur
- folk-er-fifl
- hlekkur
- kolgrimur
- don
- hreinsamviska
- minos
- huldagar
- minna
- danjensen
- hvitiriddarinn
- kliddi
- hordurvald
- ingibjorgelsa
- jara
- ingolfursigurdsson
- ingvarari
- inaval
- nosejob
- keli
- fun
- jaisland
- jevbmaack
- jensgud
- jenni-1001
- svartur
- jokapje
- presley
- johanneliasson
- eyfeld
- jgfreemaninternational
- johannst
- ljonas
- kuriguri
- jbv
- jonsullenberger
- jonmagnusson
- jonlindal
- jonsnae
- prakkarinn
- nonniblogg
- judas
- alda111
- ktomm
- kari-hardarson
- kiddijoi
- bulgaria
- kje
- kjarrip
- photo
- kolbeinz
- kona
- leifur
- kristbergur
- krissa1
- kristinnagnar
- hjolaferd
- kiddirokk
- kristleifur
- nutima
- lauja
- larusg
- liljaloga
- lindabald
- loopman
- ludvikludviksson
- madddy
- madurdagsins
- maggi270
- korntop
- magnusunnar
- magnusthor
- maggaelin
- astroblog
- maggadora
- marinomm
- gummiarnar
- markusth
- 101isafjordur
- sax
- mal214
- mis
- morgunbladid
- nanna
- offari
- 1kaldi
- solir
- king
- trollchild
- alvaran
- vestskafttenor
- skari60
- dj-storhofdi
- ljosmyndarinn
- palmig
- perlaoghvolparnir
- peturmikli
- pesu
- storibjor
- iceland
- pjeturstefans
- frisk
- raggibjarna
- raggirisi
- ragnargests
- raggipalli
- ragnar73
- rannveigh
- re
- reputo
- robertb
- rosaadalsteinsdottir
- rosabla
- lovelikeblood
- siggileelewis
- siggagudna
- sirrycoach
- meyjan
- sigrunhuld
- sigrunsigur
- sibba
- sibbulina
- sigbragason
- joklamus
- siggifannar
- siggi-hrellir
- nerdumdigitalis
- sigurdurkari
- sisi
- siggivalur
- siggith
- sigurgeirorri
- sigurjon
- sigurjonsigurdsson
- sigurjonth
- silfurhondin
- sindri79
- luther
- snorris
- sorptunna
- stebbifr
- bmexpress
- rocco22
- geislinn
- lehamzdr
- trukkalessan
- steinnbach
- sterlends
- midborg
- summi
- svanurkari
- ipanama
- kerubi
- sveinn-refur
- sverrir
- saemi7
- isspiss
- saethorhelgi
- thee
- linduspjall
- ace
- zerogirl
- tryggvigunnarhansen
- turilla
- upprifinn
- skrudhamrar
- valdimarjohannesson
- valsarinn
- jormundgand
- vefritid
- vest1
- what
- start
- vibba
- ippa
- vilhelmina
- villidenni
- vga
- villialli
- audurvaldis
- thjodarheidur
- hector
- thorrialmennings
- steinibriem
- skrifa
- hrollvekjur
- valdivest
- torabeta
- thorakristin
- toti2282
- bjarnakatla
- tp
- congress
- satzen
- thj41
- doddidoddi
- thorsaari
- metal
- iceberg
- motta
- hallelujah
- boi2262
- ornsh
Athugasemdir
Þetta er ekki einleiki hvernig þjóðin er. Við skulum ekki hafa hátt né gera veður út af þessu hugsanagangur. Kannski er þetta lambseðli alla veganna ekki sauðseðli því vit hafa þeir meira.
Valdimar Samúelsson, 7.5.2008 kl. 08:49
me
Gulli litli, 7.5.2008 kl. 09:52
Orð í tíma töluð, við látum alltaf allt yfir okkur ganga og gérum aldrei neitt.
Þórhildur Daðadóttir, 7.5.2008 kl. 10:29
já. það er ekki einleikið hvernig við leifum öllu að fara til andskotans og kunnum ekki við að gera neitt til að sporna við glæpsamlega háu matvælaverði t.d. eða olíuverði, enda mun enginn voga sér að mótmæla nokkrum sköpuðum hlut í framtíðinni, lögregluyfirvöld hafa gersamlega séð um það að enginn þori í þær aðgerðir. Skrítið að Hilmir og Benedikt voru ekki gasaðir í gær, á hestum í ráðhúsinu....
alva (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 12:19
af hverju eru ekki fleiri eins og þú Sverrir ??
nei annars ,það væri hundleiðinlegt,hrútleiðinlegt,hestleiðinlegt..
en góður pistill og já ég stilli alltaf á Miðjuna, það sem ég hló að ykkur með Begga Páls um daginn..
Bóas Börkur Bóasson, 7.5.2008 kl. 12:38
Hreinræktaðir aumingjar er það sem við erum, og stolt af því
DoctorE (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 12:51
Þetta er innræktað í okkurí gegnum áa okkar með tíðum höfuðhneigingum, höfuðfatsþæfingum og að lúta höfði þegar yfirvaldið reið hjá garði. Við vorum líka rekin frá Noregi, gáfumst upp fyrir sterkari aðilum, yfirgáfum gjöfult land og settumst að á þessu náskeri.
Það þarf að byrja mótmælin fyrir framan spegilinn. Gera mótmælaæfingar á morgnana og sleppa því að fara í ræktina. Andlegur, líkamlegur og fjárhagslegur árangur mun stóraukast!
Hagbarður, 7.5.2008 kl. 13:12
Ég held að Íslendingar séu almennt undan þrælum komnir,og þrælseðlið því í okkur blóð borið.
Óskar Aðalgeir Óskarsson, 7.5.2008 kl. 13:20
því okkur í blóð borið(á þetta að vera)
Óskar Aðalgeir Óskarsson, 7.5.2008 kl. 13:31
Ég held að þetta séu einkennisorð íslendingsins:
"LÁTUM VALTA OG VAÐA YFIR OKKUR"
Linda litla, 7.5.2008 kl. 13:51
Höldum fast í sviðakjammana. Látum ekki happ úr hendi sleppa!
Þorsteinn Briem, 7.5.2008 kl. 13:52
heyr! heyr! Steini.
með lurðum skal land byggja
Brjánn Guðjónsson, 7.5.2008 kl. 16:09
Meeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeee ...
Kjartan Pétur Sigurðsson, 10.5.2008 kl. 07:39
Ómar Ingi, 10.5.2008 kl. 16:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.