Færsluflokkur: Bloggar
28.4.2012 | 19:35
Dæmigert alíslenskt fullkomið smábæjarbullshit
Það er mikið búið að vera að rugla um það á Facebookí gærkvöld og í dag að ég hafi verið að safna meðmælendum fyrir Ástþór Magnússon hjá drukknum ungmennum í miðbænum uppúr hádeginu í gær.
Fyrir það fyrsta þá er Ástþór fyrir löngu búinn að skila inn sínum meðmælendalistum. Í öðru lagi hef ég ekki komið nálægt undirskriftasöfnunum fyrir þessar kosningar, hvorki fyrir Ástþór né aðra frambjóðendur. Sorry. Skal reyna að gera eitthvað í málunum næst, nú eða að bjóða mig fram, einsog restin af þjóðinni.
DV, sem oft og iðulega er fyrst með "fréttirnar," sendi fyrir klukkutíma svohljóðandi fyrirspurn til Ástþórs:
2012/4/28 Aðalsteinn Kjartansson <adalsteinn@dv.is>
Sæll Ástþór,
Mig langar að fá viðbrögð þín við mynd og gagnrýni sem gengið hefur um á samskiptasíðunni Facebook (sjáhttps://www.facebook.com/photo.php?fbid=3492303820585&set=a.1149535252835.23587.1061193730&type=1&theater).
Á myndinni sést þú safna undirskrifta á meðal ungra einstaklinga sem eru með áfengi um hönd.
Er eðlilegt að biðja þá sem neytt hafa áfengis að skrifa undir meðmælalista vegna forsetaframboðs?
Hverju svarar þú gagnrýnni þeirra sem segja það óeðlilegt?
Bestu kveðjur,
Aðalsteinn Kjartansson
Ætluðu að fá sér þarmastíflulummu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.8.2011 | 11:04
Sævar Ciesielski. Minningarorð
Í byrjun tíunda áratugarins var ég alloft með tónleika í allskonar nágrenjum í nágrenni Reykjavíkur og þá kom það oftar fyrir en ekki að Sævar ræki þar inn sitt margbrotna nef. Hann kom jafnan í búningsherbergið" til mín í pásum, semsé inní eldhús, að spjalla um heima og geima. Ég man vel þegar við hittumst fyrst. Hann kynnti sig frekar hátíðlega:
Sæll og blessaður, ég heiti Sævar Ciesielski."
Blessaður, Sverrir sjálfselski hér. Ert þú ekki gæinn sem stappaðir stálinu í Guðmund og Geirfinn?"
Hvað meinarðu, stappaði stálinu í?"
Þú veist, rakst þá á hol með garðyrkjugaffli?"
Svo er sagt, en það er víst smá misskilningur."
Þessi smá misskilningur var víst stærsta sakamál Íslandssögunnar og rústaði lífi hans.
Seinna urðum við vinnufélagar á hinu virðulega menningarsetri Rauða ljóninu útá Nesi. Hann vann þar sem parketleggjari og ég sem poolspilari - vann þar hvern leikinn á fætur öðrum, myrkranna á milli. Þar kynntist ég honum betur og fann að undir klakabrynjunni sló viðkvæmt og hlýtt hjarta. Hann var þarna farinn að huga að því að fá málið endurupptekið og fá þennan smá misskilning leiðréttan. Stuttu síðar lét hann verða af því en gekk bónleiður til búðar. Hæstiréttur var lok lok og læs og allur í stáli eins og Síðumúlafangelsi forðum. Ekki í fyrsta skipti sem Sævar kom að lokuðum dyrum. Aðeins dauðans dyr virtust standa honum opnar í þessu lífi. Ég gerði ljóð af þessu tilefni sem kom út í bók eftir mig þetta sama ár, 1997:
Vinur, mæta vel ég skil-að
vonin falli í dá
þegar kerfið kalt og bilað
kastar þér til og frá,
en erfiðleikar eru til-að
yfirstíga þá.
Vinur, mæta vel ég skil-að
vonin falli í dá
er tapsárt kerfið tregt og bilað
tekur þig aftan frá,
en óvinirnir eru til-að
yfir stíga þá.
Litlar líkur eru á því að málið verði tekið upp að nýju þar sem ekkert nýtt hefur komið fram og ekki er líklegt að líkin" finnist úr þessu, lifandi eða dauð. Að auki hafa kerfisþursar hingað til ekki beint verið áfjáðir í að viðurkenna og leiðrétta mistök. Hinsvegar er vitað að játningar voru kreistar upp úr sakborningum með ólögmætum hætti, þ.e. pyntingum, og það eitt og sér ætti að að nægja til að réttarkerfið ógilti allt málið og veitti þeim uppreisn æru og endanlega nafnhreinsun, en ég sé það ekki gerast því að til þess þyrftum við að búa í réttarríki.
Fyrir nokkrum árum bauð Sævar mér á málverkasýningu sem hann var með á Skólavörðustíg. Þegar ég mætti sat hann aleinn í salnum. Myndirnar hans voru draumkenndar og dulúðugar. Hann notaði ekki pensil við gerð þeirra heldur þrýstiloftspumpu. Með þessari pumpu blés hann lífi í vonir sínar um réttlæti og bjó til fagrar skýjaborgir á léreftinu, draumfagrar myndir sem aldrei fengu að framkallast í veruleikanum. Hann lofaði mér einni mynd ef hann myndi ekki selja allt upp. Hana fékk ég aldrei því stuttu síðar fluttist hann til Baunaveldis og ég yfir í aðra heimsálfu. Og nú er hann fluttur yfir í annan heim - heim sem fer vonandi betur með hann en þessi. En kannski er það líka smá misskilningur.
Aðstandendum hans votta ég mína innilegustu samúð.
(Þessi minningargrein birtist í Morgunblaðinu flöskudaginn 5. ágúst).
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.5.2011 | 10:39
Osama bin Laden. Minningargrein
Ástkær eiginmaður okkar, faðir, bróðir, sonur, bróðursonur, mágur og kviðmágur, Osama bin Laden andaðist á heimili sínu árla morguns mánudaginn 2. maí. Dánarorsökin var blýeitrun. Hann var 54 ára að aldri þegar hann safnaðist til feðra sinna.
Margar spurningar leita á hugann þegar maður fréttir af sorgaratburði sem þessum: Afhverju hann af öllum góðum mönnum? Why?! Hvar er réttlætið? Hvert er eiginlega þessi heimur að fara? Ertu þá farinn? Ertu þá farinn frá mér? Hvar ertu núna? Hvert liggur mín leið? Hvert er stærsta stöðuvatn Ástralíu? Afhverju er himininn blár? Hvað er klukkan?
Mörgum spurningum er ósvarað í þessum heimi. Mjög er um tregt tungu að hræra. Góður drengur er fallinn frá. Hvernig má það vera að ungur hryðjuverkamaður í blóma lífsins skuli burtkallast svo sviplega? Við sem eftir stöndum kunnum engin svör heldur lútum höfði í söknuði og trega, - sumir í trega yfir því að hann skyldi ekki hafa sálast fyrr, en aðrir af ást og umhyggju fyrir hjartahlýjum, góðlegum, jólasveinalegum hryðjuverkaleiðtoga.
Deyr fé,
deyja frændur og frænkur,
deyr sjálfur ið sama.
En orðstír
deyr aldregi
hveim er sér góðan getur.
(Úr Sjávarmálum)
Orðstír bin Ladens mun lifa um ókomin ár þó deildar meiningar séu um hversu góður sá orðstír sé. Osama var ekki allra. Óvinir hans sprungu yfirleitt úr einhverju öðru en hlátri. Hann var frekar umdeildur maður og þeir voru jafnvel til sem voru ekki alveg á eitt sáttir um aðferðir hans og framferði á alþjóðavettvangi. Ýmsum þótti hann ganga full langt í að sannfæra heimsbyggðina um að Bandaríkin væru heimsveldi hins illa. Þar þurfti engra sannana við. Víetnamstríðið eitt og sér ætti að nægja sem vitnisburður - svo ekki sé minnst á Britney Spears og Justin Bieber.
Osama lét verkalýðsmál mjög til sín taka og svo fór að hann varð einn frægasti verkalýðsforingi heims. Hryðjuverkalýðsforingi. Ekkert verk var honum ofviða og haft var á orði að hann einn væri fær um að sprengja íslensku þaulsætnu ríkisstjórnina. Til þess kom þó ekki, mörgum til óbærilegra vonbrigða. Koma tímar, koma ráð. Kommatímar, kommaráð.
Binni lati, eins og hann stundum var kallaður, átti það til að fara örlítið fram úr sjálfum sér, en vitaskuld getur enginn gert svo öllum líki. Allt orkar tvímælis þá gert er. En hann vildi vel. Hann var mjög misskilinn maður. Besta leiðin til að komast hjá gagnrýni er að segja ekki neitt, gera ekki neitt og vera ekki neitt. Osama lét verkin tala - aðallega hryðjuverkin. En allt var þetta vel meint. Það er hugurinn á bak við hryðjuverkið sem skiptir máli, en ekki hryðjuverkið sjálft. Fólk kann ekki gott að meta. Laun heimsins eru vanþakklæti.
Illa gekk að handsama Osama og Osama var skítsama. Hefði hann náðst lifandi og verið dreginn fyrir dómstóla þá hefði hann líklega verið dæmdur á líkum. Mjög mörgum líkum.
Lofsama bin Laden, eins og hann gjarnan var kallaður, var hrókur alls ófagnaðar og lókur alls getnaðar og eftirsóttur út um allan heim af dömum og herrum, sérílagi af Leyniþjónustu Bandaríkjanna en þar á bæ var hann á lista yfir Ten Most Wanted. Þrátt fyrir upphefð og vegtyllur af þessu tagi og endalaust áreiti og ónæði var hann auðmjúkur og lét lítið fyrir sér fara.
Af einhverjum ástæðum var hann ekki ýkja mannblendinn maður. Hann þreifst illa í fjölmenni og höfðu margir á orði að hann hlyti að vera skápahommi, sá allra mesti í bransanum. Það var þó ekki allskostar rétt þó hann slæi náttúrulega ekki höndinni á móti góðu kakói þegar það stóð til boða, eins og Araba er siður.
Síðustu æviárin bjó hann á sambýli í Abbottaverybad í Pakistan en lengst af bjó hann í afar huggulegum og snyrtilegum leðurblökuhelli í Tora Bora í Líkkistan. Hann undi sér best í faðmi fjölskyldunnar í þessum fallega innréttaða helli, sem flestum bar saman um að væri gasalega lekker.
Svo heimakær var hann að hann fór oft ekki út úr húsi svo klukkutímum og árum skipti enda hellirinn einkar vistlegur. Heimilið var prúðbúið og skartaði dýrindis kristalljósakrónum og rándýrum sófasettum úr trúboðabeinum, bólstruðum með gyðingahúð. Hann hafði einfaldan smekk og valdi aðeins það besta.
Á veggjum hellisins hengu myndir eftir heimsfræga meistara eins og t.d. Leonardo da Viskí, Van Cock og Stefán frá Nöðrudal. Á borðum hafði hann súpuskálar úr hauskúpum bandarískra fréttamanna og í frystikistunni geymdi hann restina af þeim. Hann átti semsé hug og hjörtu margra Bandaríkjamanna. Hann grobbaði sig aldrei af þessu og fór reyndar með þetta eins og mannsmorð.
Osama átti margvísleg áhugamál. Hann safnaði frímerkjum og skeggi og var haldinn ólæknandi "bíla"dellu. Limmósínan hans var um 8 metra löng, - einn lengsti úlfaldi sem sést hefur í Los Pakistanos. 8 sæta "kaggi." Satt.
Osama bin Latex, eins og hann gjarnan var kallaður, fór ekki troðnar slóðir í lífinu og batt ekki gísla sína sömu hnútum og samferðarmennirnir. Hann stytti fólki stundir með ýmsum óvæntum uppátækjum og stytti fólki jafnvel aldur þegar vel lá á honum. Shit happens. Þýðir ekki að velta sér uppúr smáatriðum.
Hann var stórtækur þegar hann tók sig til og sprengdi alla skala. Hann var reyndar með áform um að sprengja Scala á Ítalíu en einbeitti sér þess í stað að Eurovision höllinni í Noregi. Hann ætlaði semsé að taka þátt í keppninni með óbeinum hætti og gjörsamlega jarða hana en því miður féllu þessi áform niður þegar hann sjálfur féll dauður niður.
Osama bin Laddi, eins og hann gjarnan var kallaður, var afar hrifinn af samgöngumálum, sérílagi flugmálum, og vildi bæta þjónustu við almenning á því sviði. Hann réði til starfa marga reynslulitla en áhugasama flugmenn og plantaði þeim sem flugumönnum vítt og breitt um Bandaríkin. Hans draumur var að geta sparað fólki tíma og skutlað því beint á skrifstofuna. Þann 11. september 2001 lét hann þennan draum sinn verða að veruleika. Lendingin hefði kannski getað heppnast betur, en flugið sem slíkt var mjög gott og fólkið komst hratt og beint á skrifstofuna. Enginn farþeganna hefur allavega kvartað hingað til. Maturinn um borð var til fyrirmyndar og ég get séð í anda pakksadda farþega klappa sér á vömd og dæsa að máltíð lokinni og segja: "Ég er bara alveg að springa." Þetta fólk hafði rétt fyrir sér.
Enginn er fullkominn. Öll erum við mannleg, og þá er ég ekki að tala um svertingja heldur okkur mennina. Öllum getur okkur mistekist og Osama bin Lada, eins og hann jafnan var kallaður, var þar hugsanlega engin undantekning. Jafnvel hann gat misstígið sig og stigið á einhverjar tær, en það á ekki alltaf að vera að horfa í baksýnisspegilinn. Maður á ekki að persónugera vandann. Batnandi mönnum er best að lifa... Kannski of seint að tala um það núna.
Þá fluttar eru fréttir
sárt fá sumir grátið.
Hundruð láta lífið.
En hvert er lífið látið?
Það býður uppá betra
að bíða en ana.
Það býður þess enginn bætur
sem bíður bana.
(Sverrir Stormsker)
Dásama bin Látinn, eins og hann jafnan var kallaður, er burtkallaður. Hann var vel látinn í lifanda lífi og núna er hann látinn. Vel látinn. Verður ekki betur látinn. Margir munu dásama Osama bin látinn.
Mikill maður er fallinn frá, yfir tveggja metra langur sláni og guð veit hversu langan drjó....jæja, við skulum ekki fara nánar útí þá sálma. Hann var grannholda maður. Það eina sem hann náði aldrei að sprengja var mittismálið.
Osama bin Latte, eins og hann gjarnan var kallaður, lætur eftir sig 72 eiginkonur, 358 börn, 890 barnabörn og mikið og gott vopnasafn.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Útförin fer fram í kyrrþey en þeir sem vilja minnast hins látna er vinsamlegast bent á hryðjuverkasamtökin al-Qaeda og íslenska banka.
Blessuð sé minning hans. Friður guðs hann blessi og allt það. Rest in pieces.
Saudi bin Laden family
Obama þakkar sérsveitarmönnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
2.5.2011 | 09:02
Gleðihúsið við Austurvöll
Mér hefur alltaf þótt svolítið skrítið að sá stjórnmálaflokkur sem harðast hefur barist gegn vændi, semsé VG, skuli stunda það mest allra flokka á alþingi. Til að komast í ráðherrastóla seldu þeir sig Samfylkingunni fyrir slikk. Stefnuskráin, kosningaloforðin og "hugsjónirnar" fylgdu með í kaupbæti, enda var það dótarí fyrst og fremst hugsað sem augnskuggi og varalitur og því ekki mikils virði.
En það eru fleiri stjórnmálamellur á alþingi en bara Vinstri graðir. Hver flokkur uppistendur af pólitískum gleðikonum og gleðimönnum - semsé vændiskörlum. Alþingi er ekki aðeins stærsta gleðihús landsins heldur eina gleðihúsið sem vitað er um sem veldur ógleði. Þetta er því einskonar ógleðihús sem gerir út á pólitískt vændi og animalisma, þ.e. hrossakaup.
Notaðir þingmenn til sölu, með engri ábyrgð
Í afar greindarlegum sænskum lögum, sem samþykkt voru á alþingi Íslendinga í fyrra, stendur að vændiskonum sé leyfilegt að bjóða sig til kaups en það sé stranglega bannað að kaupa þær.
Í pólitíska vændinu er hinsvegar allt leyfilegt. Vinstri graðir mega selja sig Samfylkingunni og Samfylkingin má selja sig Baugi og bankamafíum, og útrásarglæpamenn og bankamafíur mega kaupa sér alþingishórur úr öllum flokkum. Sjálfstæðisflokkurinn má selja sig kvótagreifamafíunni og útrásarþjófum og Framsóknarflokkurinn má liggja útglenntur undir bændamafíunni og bankaræningjum og hverjum sem er, enda galopinn í báða enda. Þetta er í rauninni eitt allsherjar hóruhópsex. Allir mega selja sig hverjum sem er á hinu "háa" alþingi. Allt gengur þar kaupum og sölum. Allt er falt á alþingi fyrir rétt verð.
Ekki nema von að þessar gjörspilltu margkeyptu alþingismellur vilji láta loka á skjöl um eigin óþverramál í heil 110 ár, hvorki meira né minna. Svo alvarlegum augum líta þær sjálfar á óhæfuverk sín og leynimakk. Það mega heita býsna skuggaleg myrkraverk sem þola ekki dagsljósið í rúma öld. Þyrnirós sannleikans skal haldið sofandi langt fram á næstu öld svo lygin geti haldið áfram að blómstra á hinu "nýja Íslandi." Þetta er víst í dag kallað "gegnsæi."
Sem ég segi: Allt gengur kaupum og sölum í sölum alþingis, sérílagi þingmenn sjálfir. Það grátlegasta er að kjósendur skulu jafnframt kaupa alla þeirra lygi og blekkingar. Þeir kjósa yfir sig þessar handónýtu yfirstéttarhórur aftur og aftur. Væri kannski skiljanlegt ef þær veittu góða þjónustu en það er ekki beint hægt að segja að þær gefi hann góðan. Eina sem þær hafa uppá að bjóða er fjárhagsleg eyðni.
"Ástandinu" á alþingi lýst í skopmynd
Svo þegar drátthagur teiknari á Mogganum dregur upp skopmynd af þessu hóreríi þá tryllast alþingismellurnar líkt og frumstæðir villimenn sem sjá sjálfa sig í spegli. Þær tryllast ekki yfir vændisstarfseminni sem viðgengst á alþingi heldur yfir lítilli djókteiknimynd sem lýsir "ástandinu." Sendiboðinn skal skotinn. Þær heimta afsökunarbeiðni frá höfundinum og ritstjóranum í stað þess að heimta að alþingi biðji þjóðina afsökunar á melluskapnum undanfarin ár. Þær ríghalda í gagnrýnilausan 2007-hugsunarháttinn. Þjóðin gerir það líka og nýtur hvers höggs í masókískri meðvirkni með þessum svipulemjandi sadómellum.
Nýlega settu hórumömmurnar í ráðríkisstjórninni ritskoðunarlög á fjölmiðla til að þrengja enn frekar að tjáningarfrelsinu í landinu og kæfa niður alla óæskilega opna hvassa umræðu. Allt á að vera á settlegum siðprúðum svæfandi nótum að hætti sannra pukurkommúnista. Ritskoðunarráð ríkisins hefur samkvæmt þessum lögum fullt umboð til að drepa hvaða fjölmiðil sem er, sem hinu háæruverðuga leyndarhyggjuyfirvaldi er ekki þóknanlegur. Kynnið ykkur málið á www.fjolmidlalog.is.
Skopmyndaeftirlit ríkisins
Það gleymdist af einhverjum ástæðum að setja í ritskoðunarlögin að skopmyndateiknurum væri stranglega bannað að hafa ádeilumyndir sínar þannig gerðar að í þeim fælist broddur og kaldhæðni. Þær mættu allsekki særa neinn og koma við kaunin á neinum. Þær mættu ekki innihalda skot á veika minnihlutahópa eins og t.d. öryrkja, krypplinga, homma, múslima, negra, femínista og alþingishórur - og allsekki á konur yfir höfuð því þær eru jú svo gasalega kúgaðar af karlpungunum. Skopmyndir eigi að vera pólitískt réttar og sléttar og felldar og flatar og bitlausar og máttlausar og háttprúðar og gagnrýnilausar og geldar eins og alþingi og ríkisstjórnin. Semsé óendanlega leiðinlegar. Úr þessu verður örugglega bætt í viðbótarlögum.
"Stóra teiknimyndarmálið" er líklega hámark móðursýkinnar og húmorsleysisins eftir hrun og sönnun þess að landinn er endanlega farinn yfirum. Maður getur reynt að skilja öfgamúslima sem tryllast þegar teiknaðar eru skopmyndir af heilögum spámanni þeirra, en að tryllast yfir ádeilumynd í anda Spaugstofunnar og Sigmunds af Framfylkingarkonu með ESB-brókarsótt er ekkert annað en einn allsherjar brandari.
Félag íslenskra framsóknarlúða, sk.st: FÍFL
Vændismyndlíkingar í skopmyndum eru augljóslega grafalvarlegt mál þegar konur eiga í hlut. Það virðist hinsvegar í lagi að spauga með karlinn Sigmund Davíð Gunnlaugsson í teiknimynd í Gulu pressunni á DV og segja að hann vilji fá það í afturendann, án þess að framkvæmdastjórn Landssambands framsóknarfemínista geri nokkra athugasemd við það. Okkur vantar sárlega fleiri tilskipanir frá Félagi íslenskra framsóknarlúða, skammstafað FÍFL, svo við fáum það alveg á hreint hverju má gera grín að og hverju ekki. Viðbrögð íslenskra púrítana og teprulegra blævængjafrúa finnst mér satt að segja margfalt fyndnari en teikning Moggans.
Skopmyndateiknari á ekki að biðjast afsökunar ef hann hittir í mark. Ef að skopmyndir og ádeilulistaverk hreyfa við engum og reita engan til reiði og vekja hvorki grátur né hlátur þá er það merki þess að skotin hafi geigað.
Pólitískar sadóvændiskonur eru að nauðga þjóðinni (ekki taka þetta bókstaflega) en svo brjálast þjóðin þegar skopast er að nauðgurunum. Á máli geðlæknisfræðinnar kallast þetta Stokkhólmssyndromið.
Það má vel vera að Ísland sé stórasta land í heimi en Íslendingar sjálfir hljóta að vera litlustu lítilmenni og smáborgarar í heimi. Get ekki annað en tekið undir með Hrafni Gunnlaugs: "Þeir sem halda að Íslendingar séu leiðinlegir drukknir hafa ekki kynnst þeim edrú."
(Þessi grein birtist í DV, 29. apríl 2011)
Biðst ekki afsökunar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
26.1.2011 | 10:20
Prófessjónal amatörar
Stuttu eftir að ákveðið var að kjósa til stjórnlagaþings sagði ég í útvarpsviðtali:
"Mér líst vel á að þjóðin fái að velja sér fólk utan flokka til að setjast á þetta stjórnlagaþing þar sem jú stjónmálamenn hafa sýnt undanfarna áratugi að þeir eru ekki hæfir til verksins. En ég er ekki í nokkrum einasta vafa um að okkur mun takast að klúðra þessu gjörsamlega, annaðhvort vegna þess að niðurstaða þingsins er ekki bindandi sem þýðir að stjórnmálamenn munu útvatna þetta og fara að krukka í þetta með öllum sínum þumalputtum eða vegna þeirrar einföldu ástæðu að Íslendingar eru jú óneitanlega prófessjónal amatörar, hreinir og klárir sérfræðingar í klúðri, fúski, fljótfærni, spillingu og heimsku. Eiginlega á öllum sviðum. Sama hvar maður drepur niður fingri. Um það eru til grilljón vitnisburðir. Ef þú stingur puttanum út um gluggann þá færðu hann drulluskítugan til baka. Ísland er eitt stórt graftarkýli. Það þarf að stinga á því, en það verður því miður aldrei gert. Svínum líður nefnilega best í stíunni."
Svo mörg voru þau orð. Læt hér fylgja með frumsamið lag af nýju plötunni minni "Látum verkinN tala" sem kom út á Þorláksmessu. Lagið heitir Þjófabálkur og fjallar um álit ömmu minnar sálugu, Kristínar Ásgeirsdóttur frá Fróða, á okkur Íslendingum. Þess má geta að hún að sagði 20 árum fyrir hrun að þess yrði ekki langt að bíða Íslendingar, þessir sjálfumglöðu óvitar, myndu kollsteypa sjálfum sér efnahagslega því viðskiptasiðferðislega væru þeir á botninum. Vídeóið má finna HÉR á youtube.
Hér er texti lagsins:
Þjófabálkur
(Lag og texti: Sverrir Stormsker)
Amma hún var bæði góð og gegn,
grandvör, trú og alveg heil í gegn.
Hún gaf mér óspör ótal hagnýt ráð.
Hér eru nokkur sem ekki visna í bráð:
með Íslendingum, það er glapræði.
Þeir fara einatt út af réttri braut
og eru flestir heimskari en naut.
Hlýddu ekki á þeirra þýðu raust
sem þusa um sín heilindi, illa gerðir.
Þeir sem tala manna mest um traust
eru menn sem eru ekki traustsins verðir.
Trúðu varlega orðum Íslendinga,
þeir allir telja sig til sérfræðinga
og gorta sig af innri ofurmætti,
en eru bara fagmenn í viðvaningshætti.
Þótt þjóðin sé hláturmild, happy og lyndisgóð
þá hef ég grun um að obbinn í laumi gráti.
Við erum heimsins hamingjusamasta þjóð
og heimsmet eigum í þunglyndislyfjaáti.
- falskir smákóngar.
Íslendingar upp til hópa
eru fábjánar.
Þeir eru þjóðrembur fram í fingurgóma,
fella um sæmdarþjóðir sleggjudóma,
amatörar, aular, firrtir sóma,
öskra um sína snilld með hausa tóma.
Á stjórnmálaflokka og álfa og tröll þeir trúa,
tigna þá sem allra mestu ljúga,
geta ei lært af reynslu, eru á eftir,
svo innilega naive og þroskaheftir.
Þeir skemma allt og öllum hlutum klúðra,
en eru manna bestir í að slúðra,
er einkar lagið að okra, pretta og slugsa
en erfiðlega gengur þeim að hugsa.
Frá Noregi þeir forðum flýðu burtu,
fífl og krimmar, gungur, drulluhælar,
viðvaningar, vitfirringar, durtar,
þeir voru, eru og verða alltaf þrælar.
Þetta sólarlausa skálkasker
er skýli fyrir þjófa og rumpulýð.
Þar flestir ljúga grimmt að sjálfum sér
en sannleikann um sig þeir kalla níð.
þorlausir og óheiðarlegir,
svikulir, spilltir, sjálfumglaðir,
sjálfhverfir og gáfnatregir.
Þeir ljúga heil ósköp, öllu fögru lofa,
en efna fátt, já það er alveg víst.
Innræktaðir Íslendingar lofa
ekki góðu, þetta er genatískt.
Í öllum málum þeir vaða í villu og svíma.
Viðvaningar best á Fróni þrífast.
Í glópsku eyða öllum sínum tíma
í að þræla, hneykslast, slúðra og rífast.
Óupplýstir en fróðleiksfúsir mjög
um flest það sem að snýr að náunganum.
Búa flestir háum húsum í
en hugsunin er enn í torfkofanum.
Losna vildi hver einasta íslensk hetja
undan Dönum, - gjaldþrot upp við skárum.
Tókst með linnulausri snilld að setja
landið á hausinn á sextíu og fjórum árum.
Að gera út á galið djöflasker
getur varla talist hyggilegt.
Það verður bara að segjast eins og er
að Ísland það er ekki byggilegt.
Já amma hún var greind og góð
svo greinargóð og snjöll
Svona lýsti´hún þessari þjóð
og þá er sagan öll.
Sverrir Stormsker: Söngur, bakraddir og öll hljóðfæri.
Ingó veðurguð: Söngur í viðlögum.
(Leikkona í vídeói: Brynja Valdís Gísadóttir)
Niðurstaðan vel rökstudd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.1.2011 | 15:34
Íþróttir og brennivínsdrykkja
Ég horfði á leikinn Ísland - Þýskaland í gær á kjaftfullum sportbar, - fullum í öllum skilningi. Þar sást ekki áfengisleysi á nokkrum manni frekar en fyrri daginn þegar íþróttir eru á skjánum. Maður fær ekki betra tilefni til að fara á almennilegt fyllerí en þegar íþróttir eru í varpinu. Þetta fer svo vel saman. Íþróttir og fyllerí er jafn pottþétt blanda og vodki í kók. Það er meiraðsegja hægt að hafa gaman af jaðaríþróttum einsog handbolta, sniglakapphlaupi og kengúruboxi ef maður er bara nógu drukkinn.
Það má vera að íþróttir séu þroskandi en þær eru fyrst og fremst þorstandi. Það er eitthvað við íþróttir sem vekur upp hjá fólki mikla áfengislöngun. Sem er mjög gott mál. Þetta er nú það góða við íþróttir. Um þetta snúast þær faktískt. Á fótboltaleikvöngum hér og erlendis sést ekki einn maður edrú. Sumir leikmenn eru jú kannski ekki mjög drukknir á vellinum en áhorfendur eru náttúrulega allir á perunni. Þessvegna er svona gaman að horfa á fótbolta. Karlpeningurinn fær þar að auki frí frá sínöldrandi kellingarherfunni og fær að rasa almennilega út og fær að fíla sig sem hluta af einhverri liðsheild. Íþróttaleikur er mínístyrjöld. Landsleikur er smækkuð heimsstyrjöld. Þjóðremban í algleymingi. Svo má alltaf búast við að það brjótist út áhugaverð slagsmál að leik loknum sem kóróna skemmtilegheitin.
Íþróttamennirnir sjálfir eru yfirleitt álíka blautir og áhorfendur. George Best var t.d. tipptopp drykkjumaður og ekkert síðri fótboltahetja. Náði frábærum árangri í báðum greinum. Þetta helst í hendur. Eiður Smári og allt það. Ég tildæmis gæti ekki reykt og drukkið svona mikið ef ég væri ekki íþróttamaður. Í alvöru. Íþróttir auka manni úthald. Áramótaheit mitt var að æfa badminton og tennis og spretthlaup svo stíft á þessu ári að ég gæti slátrað tveimur bjórkössum og svælt fjóra vindlapakka á dag án þess að blása úr nös...ef þannig má að orði komast. Maður verður að hafa þolið í lagi ef það á að vera eitthvað gaman af þessu. Og maður verður að hafa eitthvað markmið í lífinu.
Örlítið meira um mína íþróttamennsku: Ég æfði sund í Vesturbæjarlauginni á tímibili, í alvöru, en hætti þegar ég uppgötvaði að það fór of mikið af klór ofan í vodkaglasið og svo drapst alltof oft í vindlinum. Þar að auki var maður litinn hornauga einsog maður væri eitthvað skrítinn. Ég prófaði baksund með glasið og vindilinn í annarri hendi og buslandi með hinni en allt fór á sama veg. Alltaf þurfti einhver hvalspikaður uppblásinn bringubítill að stinga sér í grenndinni þannig að gusurnar gengu yfir mann og maður drukknaði nánast í ölduróti og ófögnuði. Glasið barmafullt af klóróformi og vindillinn í henglum. Þessi áhugamál blönduðust semsé ekki vel saman. Í öllum skilningi. Það tók mig ekki langan tíma að sjá að sund væri fyrir örlagaedrúista og aumingja.
Hvað um það. Munurinn á Strákunum okkar og okkur áhorfendunum á sportbarnum var að við vorum vel fullir en þeir voru greinilega illa timbraðir. Maður á ekki að mæta timbraður í íþróttamót. Það er vanvirðing við sannan íþróttaanda. Ég veit ekki hvað ég er búinn að brýna þetta oft fyrir æskulýðnum. Maður á að vera í glasi þegar maður er að keppa. Ekki skelþunnur. Þunnir menn skjálfa einsog lauf í vindi, - einsog Geir Haarde. Þunnildi vinna enga sigra. Fullir menn geta hinsvegar unnið fullan sigur.
Strákarnir okkar ættu að taka snookerheimsmeistarannn Alex Higgins sér til fyrirmyndar. Einsog menn vita þá er snooker mesta nákvæmnisíþrótt í heimi. Alex mætti alltaf vel undirbúinn í mót. Sturtaði í sig einni ginflösku og hálfum kassa af stórum svellköldum öllurum og svældi með góðgætinu pakka af fílterslausum camel af miklum krafti einsog sannir íþróttamenn eiga að gera. Eftir þennan undirbúning þá gekk kappinn inná leikvanginn fjallfrískur í góðum gír og straujaði andstæðinginn. Svona eiga menn að vera. Hann passaði sig vel á því að mæta aldrei þunnur til leiks einsog strákarnir okkar. Hann var ekki bara metnaðarfullur heldur pöddufullur. Vínandi er rétti íþróttaandinn.
Handboltastrumparnir okkar gætu mikið lært af Alex Higgins, ímynd íþróttamennskunnar. Þeir hefðu mögulega átt roð í Þjóðverjana ef þeir hefðu skellt í sig nokkrum tekílasnöfsum fyrir leikinn og náð að koma þannig heilsunni í lag. Samt ekki of mörgum. Kannski 10 til 15 sjússum og 5 til 10 tvöföldum irishcoffee og svona einsog hálfri flösku af 50% smirnoff vodka af stút og þá hefðu þeir verið í góðum málum. Dass af hreinum spíra í restina hefði ekki skaðað. Með þessu hefði verið mjög gott að svæla nokkra vindla og keðjureykja umþaðbil hálfan til einn pakka af fílterslausum camel til að skerpa einbeitinguna. Þessir strákabjálfar okkar verða að fara að sýna íþróttamennskunni smá respect. Virðing og kurteisi kostar ekkert. Þeir verða að fara að haga sér einsog menn þessir helvítis heilhveitis grasasnar.
Eftir tapið gegn liði Þjóðverja, fyrsta liðinu sem Íslendingar keppa við sem kunna eitthvað í handbolta, var viðtal (sjá HÉR) við Björgvin markvörð og Róbert línudansara:
Róbert píreygður og utangátta: "Við vorum að klúðra, klikka á góðum færum...Maður sér þetta ekki alveg nógu skýrt."
Hann myndi kannski sjá hlutina aðeins skýrar ef hann væri ekki svona skelþunnur. Drekka meira.
Björgvin: "Við erum eins og aular sóknarlega og varnarlega."
Eins og? Þeir hefðu getað gert eitthvað af viti ef þeir hefðu drullast til að drekka úr sér þynnkuna fyrir leikinn.
Björgvin: "Ef við erum ekki fullir og gerum ekki hlutina almennilega þá getum við ekki neitt í handbolta. Það er alveg klárt."
Hverskonar setning er þetta eiginlega? Er maðurinn edrú eða hvað? Eru markverðir ekki markverðir menn? Þeir sem gera ekki hlutina almennilega geta ekki neitt og þeir sem geta ekki neitt gera ekki hlutina almennilega. Og hvað er ég búinn að brýna oft fyrir íþróttamönnum að mæta ekki skelþunnir í leik? Maður á að vera vel í glasi. Það er einsog það komist ekkert inní hausinn á þessum ösnum. Þarf maður að hella í þá brennivíni með trekt?
Björgvin: "Ef við erum ekki fullir þá erum við ekkert frábærir."
Old news. Nú ef að gæinn er svona meðvitaður um þetta afhverju sturtaði hann þá ekki í sig brennivíni fyrir leikinn og sagði félögum sínum að gera slíkt hið sama? Eru þetta alltsaman tómir fæðingarhálfvitar? Þetta eru allavega ekki fullir fæðingarhálfvitar. Algjörðir apakettir.
Björgvin: "Við erum að gera allt of mikið af feilum og svona miklum aulamistökum sem við erum að brenna okkur á."
Hverskonar menn gera mikið af aulamistökum? Hugsanlega aular? Drekka meira.
Róbert: "Við áttum í soldlu basli með þá í vörninni og svo vorum við að hitta aðeins of mikið í markmanninn."
Soldlu basli? Vörnin var galopin einsog Catalina á góðum degi.
Voruð að hitta aðeins of mikið í markmanninn? Halló! Var hann ekki að verja lásí og kraftlaus og ónákvæm skot? Þýski markvörðurinn var semsé ekkert góður að áliti strákaaulanna okkar. Hann var bara alltaf fyrir. Ástæðan fyrir því að hann varði svona mikið var víst bara vegna þess að strákarnir okkar hittu of oft í hann. Einmitt. Þegar Björgvin stendur sig vel í markinu og ver hvert skotið á hendur öðru þá er sagt að hann sé meiriháttar markvörður. Þegar þýski markvörðurinn ver hvert skotið á hendur öðru þá er það jú bara vegna þess að strákarnir okkar hitta of oft í hann. Hann er semsé alltaf að þvælast fyrir. Er alltaf á röngum stað. Úfff. Það er oft ótrúlegt ruglið sem vellur út úr ódrukknum Íslendingum.
Leikurinn var engu að síður ansi skemmtilegur. Í miðjum æsingnum, eða æsinginum einsog það heitir víst á bubbísku, þá öskraði ég á flatskjáinn: "Áfram strákar. Þið eigið leikinn. Látiði íslensku apana ekki komast upp með neitt múður. Sieg Heil!"
Þetta féll ekki í góðan jarðveg á sportbarnum af einhverjum ástæðum.
Fyrsta tap Íslands á HM | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
18.1.2011 | 01:10
Við erum bestir!!
Þetta var frækilegur sigur. Við völtuðum gjörsamlega yfir Hirosima. Strákarnir okkar stóðu sig glæsilega en það verður að segjast einsog er að Hreiðar Levy markvörður reddaði alveg seinni hálfleik. Hann varði 8 sinnum með pungnum og 17 sinnum með andlitinu. Geri aðrir betur. Frábær markvarsla. Hann var bókstaflega með nefið oní hvers manns bolta, ef þannig má að orði komast. Hann var allsstaðar með andlitið. Og punginn. Ekki má gleyma honum. Svona á að nota guðsgjafirnar.
Japanir áttu enginn ráð við þessu. Það var sama hvert þeir negldu, alltaf small tuðran af miklu afli á alltumlykjandi trýninu á Hreðjari. Og pungnum. Ekki má gleyma honum. Það var sama hversu oft þeir dúndruðu boltanum í smettið á honum og i boltana á honum, aldrei missti hann andlitið. Ekki heldur punginn. Ekki að ástæðulausu að þessi íþrótt kallist handballs. Enginn markvörður fyrr né síðar hefur varið jafn oft með eistunum og andlitinu í einum leik. Alls 25 sinnum. Hann verður pottþétt kóngurinn á Fésinu. Þetta er gæi sem fær ekki bara flugu í höfuðið. Þetta er maður sem kann að nota á sér hausinn. Áfram Hreðjar!
Sumir halda að Jappar séu einhverjir vesalingar og hlandaular með hor í nefi sem kunni ekkert í handballs en það er öðru nær. Þeir eru með eitt besta lið heimsins í dag. Þeir hafa unnið Austur-ríkisstarfsmenn, Færeyinga, Íraka, Grænlendinga, Írani, Saudi-Araba og Úgandabúa svo nokkur dæmi séu tekin. Leikmennirnir eru allir heimskunnir. Þetta eru nöfn sem allir þekkja: Kenya Toyota, Daihatsu Kawasaki, Moskito Suzuki, Risotto Tomato, Shuss Hirosima, Hoza Heimasima, Mazda Yamaha, Mitsubishi Hahaha og svo mætti lengi áfram telja. Það voru semsé engir aukvisar sem við vorum að slátra.
Svo er bara að vona að Hreðjar nái að halda haus og þá tökum við þetta alla leið. Sýnum þessum útlensku ösnum að þó við kunnum ekki reka banka og kunnum ekki að reka bankaræningja í ævilangt fangelsi og kunnum ekki að reka pólitík og kunnum ekki að reka pólitíkusa út úr alþingi - þá kunnum við sko að sýna okkar rétta andlit og fá boltann í það. Og punginn. Ekki má gleyma honum. Við munum halda andlitinu. Áfram Ísland!
HÉR má finna myndbandið við Sigurlagið sem ég gerði árið 2004. Tileinkað Strákunum okkar, að sjálfsögðu. Við erum bestir!
Stórsigur á Japan | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 04:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
4.1.2011 | 06:23
Jólasveinninn dreginn til yfirheyrslu
Enn einu sinni hefur Ástþóri Magnússyni verið varpað í dýflissu. Síðast var það árið 2002 þegar hann varaði við hryðjuverkaárásum á íslenskar flugvélar og stöðvaði með háværum mótmælum þá fyrirætlun stjórnvalda að senda vopn og hermenn með farþegaflugvélum Icelandair til Írak.
Að launum fyrir þá viðvörun sína var sveinki látinn dúsa í einangrun í myrkvuðum turnklefa á Litla Hrauni með rottum og kakkalökkum dögum og vikum saman uppá vatn og bónusbrauð og húðstrýktur reglulega með hnútasvipum og gaddakylfum og látinn hlusta á ræður Halldórs Ásgrímssonar kvölds og morgna af segulbandi. Þegar honum var loks hleypt út var hann ekkert nema skinn og bein. Hafði lést um 55 kíló. Var kominn niður í 130 kíló.
Í gær gerðist svolítið svakalegt: Við sveinki sátum á hinum virðulega hákúltúrveitingastað í Byko og sveinki var að skófla í sig kjötbollum og rjómabollum í góðu jólastuði þegar Víkingasveitin birtist grá fyrir járnum og kom honum í ennþá meira stuð með því að gefa honum rafbyssuskot beint í vömbina. Jólasveinninn hentist á gólfið og tók þar nokkra hressilega krampakippi þannig að belgurinn gekk í öldum einsog vatnsrúm. Svo lá hann hreyfingarlaus og stjarfur um stund með útglennt augun. Þau eru nú venjulega á stilkum þannig að ég veit ekki hvort það var óheillamerki eða ekki. Úr munnvikunum lak froða. Nú eða rjómi. Nei, ef þetta hefði verið rjómi þá hefði hann nú örugglega sleikt útum. Því næst var hann handjárnaður og fótjárnaður og dreginn á hárinu og skegginu uppá lögreglustöð til yfirheyrslu.
Sveinki hafði víst trassað að mæta í skýrslutöku vegna gruns um að standa að menningarveftímaritinu sorprit.com. Hreinn Loftsson fyrrum stjórnarformaður Baugs og fyrrum DV-eigandi og fyrrum Davíðsvinur vill meina að sveinki standi á bak við það rit og að þar séu ærumeiðandi ummæli að finna, og hafði lagt fram kæru á sveinka svínaskelfi.
Ég fór að heimsækja Ástþór í dýflissuna stuttu eftir að hann var tekinn til fanga. Hann sat þar margkeflaður við tréstól með brunablöðrur á andlitinu vegna hitans frá yfirheyrsluljóskastaranum. Ég spurði hvort hann brynni ekki í skinninu að losna og hvort honum væri ekki heitt í hamsi og hvort hann vanhagaði um eitthvað. Hann stundi flögnuðum vörum: "Vatn. Ég er að deyja úr þorsta." Ég átti ekkert vatn að gefa honum en tróð þess í stað uppí hann lúku af salthnetum sem ég var með á mér. Ég hélt fyrir munninn á honum svo hann kyngdi örugglega og að ekkert færi til spillis. Að því loknu spurði ég hann hvað hann hefði sagt löggunni varðandi sorprit.com. Hann sagðist hafa svarað öllum spurningum lögreglunnar á þessa leið, í alvöru:
"Ég mun engu svara ykkur í lögreglunni fyrr en þið hafið tekið fyrir allar mínar kærur á hendur DV."
"Og afhverju hefur lögreglan ekki tekið fyrir allar þínar kærur á hendur DV," spurði ég.
"Það er vegna þess að svín eru rétthærri jólasveininum hér á Íslandi."
"Afhverju segirðu að Hreinn Lofts og þeir á DV séu svín? DV hefur nú verið ötult við að berja á bankaræningjunum."
"Ég finn það á lyktinni. Það er ekki hreint loft í kringum Hrein Lofts. Farðu inná sorprit.com. Þar geturðu fræðst um útrásarsvínin, fjölmiðlasvínin og önnur svín. Svínin mega ljúga uppá alla en enginn má segja sannleikann um svínin," hrein jólasveinninn.
Á sama tíma og jólasveinninn sat þarna múlbundinn og emjandi einsog stunginn grís sá ég út um gluggann hvar útrásarbankaræningjasvínaglæpagengið alltsaman gekk skælbrosandi framhjá lögreglustöðinni í sólinni og veifaði löggunni. Líklegast á leið í einhvern bankann að hreinsa upp restina sem þeir gleymdu. Löggan veifaði á móti.
Þennan sama dag og Ástþór var tekinn til yfirheyrslu vegna meiðyrðaákæru og einhverra óvarlegra ummæla um útrásarsvínin og fleiri slíka þá kom í fréttum að Kaupþing hefði nokkrum dögum fyrir hrun lánað eigendum bankans og tengdum aðilum 450 milljarða króna. Daginn eftir þann gjörning ákváðu Kaupþingsmenn að afnema persónulegar ábyrgðir lykilstarfsmanna bankans vegna lána hlutabréfakaupa í bankanum. Frekar svínslegt alltsaman. En þessir höfðingjar skarta stórriddarakrossum og skálkaorðum og ganga skartklæddir um götur borgarinnar frjálsari en nokkrir aðrir ránfuglar.
Í dag, þriðjudaginn 4. janúar klukkan 4, verður sveinki svínaskelfir í þriggja gráðu yfirheyrslu á Sögu hjá Arnþrúði Karls og Pétri Gunnlaugs. Ekki missa af því. Líklegast í síðasta skipti sem Ástþór nær að tjá sig um útrásarsvínin og stjórnmálasvínin því nú ætla Vinstri grænir að teipa fyrir kjaftinn á fjölmiðlum og þjóðinni með glænýju fjölmiðlafrumvarpi svo þeir geti svínað á alþýðunni í friði.
Ástþór færður til skýrslutöku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
18.12.2010 | 17:08
Gæsin og gullgæsin
Maður á alltaf að horfa á björtu hliðarnar, þó þær séu kannski ekki ýkja margar hér á Los Klakos. Eitt af því jákvæða og góða við kreppuna er að hún kom með fangið fullt af áhugaverðum og skemmtilegum yrkisefnum handa okkur strumpunum sem höfum gaman af að smíða texta um svartnætti og hörmungar. Ég efast um að ég hefði gert þessa nýju plötu mína Látum verkinN tala ef blessuð kreppan hefði ekki stigið af himnum ofan. Maður á að vera þakklátur fyrir allar góðar guðsgjafir, því guð veit hvað hann er að gera, rétt einsog Jóhanna og Steingrímur.
Með mér á plötunni syngja 4 söngvarar: Kalli Bjarni, Snorri Idol Snorrason, Ingó Veðurguð og Alda Björk Ólafsdóttir. Fyrir þá sem hafa ekki hugmynd um hvaða froskar þetta eru þá skal ég kynna þá lítillega:
Kalli Bjarni vann fyrstu Idolkeppnina sem haldin var á Íslandi, sællar minningar. Eftir það lá leið hans að sjálfsögðu beint í ræsið, sællar minningar. Hann gerðist burðardýr fyrir hinn farsæla kókaínbarón Pablo Escobar og flutti inn til landsins 800 kíló af úrvals kóki, þar af slatta innvortis, en var því miður stoppaður af vondum mönnum í tollinum og vinsamlegast beðinn um að glenna út á sér fjósið. Þar fundust 20 kíló af frekar óhreinu kóki, en það var vitaskuld hreint áður en hann stakk því í browntown.
Kalli var tekinn til yfirheyrslu. Nokkur þessara skjala láku til Weakileaks, sem frægt er orðið í Kólimbíu og víðar:
Löggan: "Þú ert borubrattur þykir mér. Þú ert með fullt rassgatið af kókaíni."
Kalli: "Það getur ekki verið. Djöfull er að heyra þetta. Ég veit ekki hver ætti að hafa komið þessu þarna fyrir, því ég hleypi nú ekki hvaða gæa sem er í bílskúrinn á mér, en það getur svo sem vel verið að einhver api hafi tekið mig á orðinu þegar ég hef sagt honum að fara í rassgat. Maður veit aldrei. Og kannski hefur hann ekki bara tekið mig á orðinu heldur jafnvel á borðinu. Það er ómögulegt að segja til um þetta. En bara svo að það sé á hreinu þá hef ég hingaðtil bara tekið þetta stöff í ranann sko, en það getur svo sem vel verið að það hafi eitthvað slysast uppí taðgatið þegar ég settist á spegilinn."
Löggan: "20 kíló?"
Kalli: "Já. Það er nú ekki svo mikið. Það er nú ekki einusinni uppí nös á ketti."
Löggan: "Þú ert full of shit."
Kalli: "Þetta er bara í nösunum á mér. En ég myndi nú þar að auki ekki kalla þetta "shit." Þetta er eðal stöff."
Löggan: "Hei töff gæ, þú verður ekki svona borubrattur þegar þú ert orðinn bitch einhvers tveggja metra körfuboltakakónegra í djeilinu. Heldurðu að þú hafir göts og bein í nefinu til að þola dýflissuvist í sama klefa og Mundi morðingi og Árni Johnsen? Ef þú heldur að þú munir eiga 7 dagana sæla þá get ég sagt þér að það er þokkalegur misskilningur. Árni er nefnilega með gítarinn með sér. Hann mun örugglega ekki vanda þér lögin."
Kalli: "Ég hef nú hingaðtil verið með eitthvað annað en bein í nefinu."
Löggan: "Er minn bara í stuði?"
Kalli: "Nei, ég er hættur að reykja svoleiðis. Ég er í kóki."
Löggan: "Ég skal segja þér í hverju þú ert: Þú ert í djúpum skít. Og hvað þykistu vera með í nefinu skítseiðið þitt?"
Kalli: "Það eru hreinar línur."
Löggan: "Hreinar línur hvað?"
Kalli: "Það eru hreinar línur."
Löggan: "Hvað eru hreinar línur?"
Kalli: "Það sem ég er með í nefinu. Það eru hreinar línur."
Löggan: "Þú ert hálfviti. Það eru hreinar línur. Hvað með þessi 780 kíló sem fundust í 20 ferðatöskum sem þú komst með? Var það líka eitthvað "slys?"
Kalli: "Ég bara hef ekki hugmynd um hvernig þetta gat skeð. Amma pakkaði fyrir mig oní töskurnar í Amsterdam og Kólimbíu og það getur vel verið að hún hafi tekið feil á þessu stöffi og flórsykri eða rottueitri sem hún ætlaði að láta mömmu fá til að strá oná kleinuhringi fyrir jólabaksturinn."
Löggan: "780 kíló í 20 ferðatöskum? Heldurðu að ég kaupi þetta?"
Kalli: "Þú þarft ekkert endilega að kaupa þetta. Ég ætlaði nú að selja þetta kók öðrum en þér, en ef þú kemur með góðan díl þá er aldrei að vita nema við getum náð saman. DOH! Þarna talaði ég af mér."
Kalla var varpað í dýflissuna á Kvíabryggju þar sem hann hann mátti þola mikið harðræði: Púl frá morgni til kvölds, og þá meina ég virkilegt pool. Svo var lagt á hann að spila borðtennis þrisvar í viku og golf um helgar. Ég gat ekki horft upp á þessa hryllilegu meðferð á honum og borgaði 200 milljóna króna tryggingu fyrir hann svo hann gæti farið að syngja á ný. Hann syngur í 5 lögum á nýju plötunni.
Snorri Snorrason söng sig inn í hug og hjörtu og eyra þjóðarinnar og út um hitt í Idolkeppninni hér um árið. Ég manaði hann að fara í þessa keppni og sagði það 100% öruggt að hann myndi vinna, sem hann og gerði með glæsibrag. Eftir keppnina fór hann að sjálfsögðu í ræsið einsog lög gera ráð fyrir og fór að taka upp plötu með Serði Monster. Núna rekur hann stúdóið Fjarskipti.is og er við hestaheilsu, líkamlega.
Ingó Veðurguð tók þátt í Idolkeppninni hér um árið og kom, sá og tapaði. Hans leið lá því ekki í ræsið heldur beint uppá stjörnuhimininn. Hann hefur sungið og samið marga smelli og tuggið mikið tyggjó og er núna að syngja í söngleiknum um Buddy Holly sem fórst í flugslysi 1959 sællar minningar, sama ár og þau Jóhanna og Steingrímur settust á þing. Ingó syngur í þremur lögum á plötunni.
Alda Björk Ólafsdóttir söng mikið með mér hér áðurfyrr, t.d. lagið Bless sem var svona líka gasalega vinsælt. Eftir að hafa sungið með mér Bless sagði hún bless við Klakann og flutti til Bretlands og kom stuttu síðar laginu Real Good Time í 7. sæti breska vinsældarlistans. Enginn Íslendingur hefur náð frumsömdu lagi ofar á breska listanum. Stuttu síðar kom hún lagi sínu Girls Night Out í 20. sæti. Á þessum tíma var hún með heilt víravirki og allskonar drasl á hausnum og ennþá meira inní honum. Þegar hún var hvað vinsælust í Bretlandi þá var London þakin plakötum af henni hvert sem maður fór. Ég hélt fyrst hún væri eftirlýst einsog Kalli Bjarni en hún sagði að þetta væri út af vinsældum hennar. Ég var mjög efins og sagði: "Heyrðu þú þarna Alda Jerk Ólafs, þó við séum vinir þá geturðu nú ekki talið mér trú um hvað sem er." Seinna komst ég að því að hún var víst að segja satt, í þetta skiptið. Núna er hún að tónlistast á fullu þarna í útlandinu með saurþjöppum einsog Elton John, George Michael og Justin Óleik eða Timberleik eða hvað hann nú heitir sá ágæti hlandhaus.
Fyrir stuttu skellti ég einu lagi af nýju plötunni í tónlistarspilarann hér til vinstri á síðunni. Það var lagið Litli grísinn en það lag fjallar um lítinn útrásargrís. Núna ætla ég að skella öðru lagi í tónlistarspilarann af nýju plötunni og það lag heitir Gæsin og gullgæsin og fjallar um útrásargölt og smá misskilning milli hans og kærustunnar. (Þetta lag er nr. 6 í tónlistarspilaranum). Alda Björk Ólafs og Ingó veðurguð syngja.
(Lag og texti: Sverrir Stormsker)
(Gæsin): Mér líður djöfullega vel,
alveg dýrlega´að ég tel,
ég hef fundið flottan mel,
hann Belsebúb.
Hann á af eignum heilan haug,
hann á í mér hverja taug,
hann á hlutabréf í Baugi
og FL Group.
bryðjum djásn og demanta.
Hann hefur fimmtíu milljarða
í vikulaun.
Ég fíla þennan sveitta svepp,
þennan svanga fitukepp
sem er soldið hræddur við Klepp
og Litla Hraun.
(Gullgæsin): Hún hrifin er af mér,
mínum hreina karakter,
elskar mig einsog ég er
en ekki hvað?
(Gæsin): Já þó hann líti´út einsog svín,
sé í framan algjört grín,
þá er hann stóra ástin mín,
ja segjum það.
(Gullgæsin): Ég sveittur alltaf er,
hún samt heilluð er af mér.
Þó að drjúpi af mér smér,
hún umber það.
(Gæsin): Já þó hann líti´út einsog svín,
sé í framan algjört grín,
þá er hann stóra ástin mín,
en ekki hvað?
til dæmis Cayman-reikninginn,
alla´hans snilld og ránsfenginn
og fénæma nef.
Ég dái örlæti míns manns,
alla ástúð ræningjans,
allar innistæður hans
og hlutabréf.
(Gullgæsin): Hún eitthvað í mér sér,
elskar sálina í mér,
elskar mig einsog ég er,
en ekki Mammon.
(Gæsin): Já þó hann líti´út einsog svín,
sé í framan algjört grín,
þá er hann stóra ástin mín,
já hátt í tonn.
(Eitt af mínum elstu lögum. Samdi það 13 ára. Tók það upp í stúdíónu Bimbó á Akureyri það ár, instromental. Sendi það svo til útgefenda árið eftir ásamt lögunum "Þórður," "Bless," og fullt af öðrum frumsömdum hitturum, en þeir vildu ekkert hafa með þetta að gera. Þessvegna fór ég nú að gefa út plötur sjálfur. Ekki flóknara en það. Útgefendur skilja sjaldnast hlutina fyrr en maður hefur fullmatreitt þá ofaní þá. Þá segja þeir í uppgötvunartón: "Jáááá. Var það svona sem þú hafðir hugsað þér þetta? Ég skil. Jááá, ókei.")
Alda Björk Ólafsdóttir: Söngur og bakraddir.
Ingó veðurguð: Söngur.
Kalli Bjarni: Bakrödd og hlátur.
Sverrir Stormsker: Píanó, bassagítar, trommur, tambúrína, kassagítarar, hljómborð, rafmagnsgítarar.
Bloggar | Breytt 22.12.2010 kl. 12:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
10.12.2010 | 00:45
Ríkisstjórnin er Hómer Simpson
Þegar þjóðin kolfelldi Svavarssamninginn í þjóðaratkvæðagreiðslu þá fóru þau djöflaskötuhjú Jóhanna og Steingrímur af hjörum og fullyrtu að nú væru dagar okkar taldir og að himinn og jörð myndu líða undir lok innan fárra vikna því betri díl væri ekki hægt að fá. Annað kom á daginn. Það eina sem leið endanlega undir lok var trúverðugleiki þessara afglapa. Á þessum tímapunkti átti þeim að skiljast að dagar þeirra sjálfra væru taldir og þau áttu einfaldlega að pakka saman öllu sínu pípuhattsdrasli og kanínum og láta sig hverfa aftur inní hólinn sem þau skriðu út úr.
En þau þráuðust við, umboðslaus, getulaus og vitlaus, og héldu áfram að grenja í Bretum og Hollendingum að fá að leggja spilaskuld einkaglæpafyrirtækis á bak almennings. Nú liggur nýr samningur á borðinu, (að þessu sinni uppá borðinu), 200 milljörðum hagstæðari en sá fyrri, ef á annað borð er hægt að tala um "hagstæðan" ánauðarsamning.
Í ljósi þess að fyrri samningurinn hefði stórskaðað þjóðina liggur þá ekki nokkuð ljóst fyrir að þau hafa gerst sek um stórfelld embættisafglöp. Ætti þessi nýi samningur ekki sjálfkrafa að kalla á skilyrðislausa afsögn þeirra og rannsókn á öllu ferlinu?
Ríkisstjórnin og hennar setuliðar minna mig soldið á fávitann Hómer Simpson sem leggur höndina á rauðglóandi hellu og öskrar DOH! og leggur höndina aftur á brennandi helluna og öskrar DOH! og leggur svo höndina aftur á brennandi helluna og öskrar DOH! og svo aftur og aftur í það óendanlega þangað til lúkan er orðin skaðbrennd og well-done. Alveg fyrirmunað að læra nokkurn skapaðan hlut. Viðkvæðið er alltaf: "Já en við vissum ekki betur...Það er auðvelt að vera vitur eftirá."
Hversvegna geta þessir heyrnarlausu heilasteiktu hallardraugar ekki komið því inní hausinn á sér að þjóðin hafnaði fyrri aftökusamningnum vegna þess að hún tók það ekki í mál að borga upp ránsfeng stórglæpamanna, en ekki afþví að hún væri svona sólgin í að fá hægara andlát með "hagstæðari" aftöku?
Hvað er svona flókið við þetta? Það er deginum ljósara og margsannað af heimsþekktum spesíalistum svo sem Evu Joly og allrahandanna nóbelsverðlaunahöfum að það er akkúrat enginn grundvöllur fyrir greiðsluskyldu íslenska ríkisins.
Ég held það væri ágætis ráð að byrja á því moka skælbrosandi bankaræningjunum í dýflissu uppá hitaveituvatn og grjótharðar tvíbökur og fara vandlega oní saumana á eignasafni þeirra og grafa upp allar þeirra gullkistur áður en gerður er enn einn þjóðaránauðarsamningurinn uppá drápsklifjar til fleiri ára beint ofaná þindarlausar skattahækkanir steingeldrar ríkisstjórnarinnar.
Ég hélt ég ætti ekki eftir að gefa forsetanum high five en nú reynir enn einu sinni á bjargvættinn á Bessastöðum. Ríkisstjórninni gef ég high one. Löngutöng.
Býsna góð niðurstaða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (38)