27.8.2008 | 07:03
Feministur
Feministar hafa barist fyrir mörgu greindarlegu síðustu ár, t.d. því að börn á fæðingardeildum klæðist fötum í kynlausum litum; drengir skulu allsekki vera í bláum fötum og stúlkur allsekki í bleikum því þetta geti haft gríðarleg áhrif á afkomumöguleika stúlknanna í framtíðinni að sögn feminista. Augljóst.
Fleiri dæmi: Feministum finnst mjög niðurlægjandi að konur kallist ráðherrar." Konur tilheyri nefnilega ekki mannkyninu heldur kvenkyninu. Ég stakk uppá starfsheitinu ráðherfa" og þær hljóta að vera mjög ánægðar með það. Feministar kvörtuðu mikið yfir Smáralindarbæklingi en þar sást stúlka beygja sig eftir dóti. Stúlkur eiga ekki að beygja sig á myndum því þá er auðvitað verið að gefa til kynna að þær séu hórur.
Feministar fóru fram á að svæsin Toyota auglýsing yrði bönnuð en þar sást kona með pilsið svo langt upp um sig að það sást meiraðsegja í hnén á henni. Ógeðslegt. Feministar sögðu að það væri verið að hlutgera líkama kvenna. Einmitt. Toyota fór að tilmælum feminista og fjarlægði auglýsinguna, sem sýnir að það er til nokkuð sem heitir karlkellingar. Svoleiðis tuskur lúffa fyrir hverskyns rugli af ótta við að vera stimplaðar karlrembusvín. Ef fólki finnst öfgafeministar slæmir og allar þeirra hugmyndir, þá myndi ég nú segja að karlkellingarnar sem framfylgja kröfum þeirra væru 10 sinnum verri, - því slæm hugmynd er bara slæm hugmynd, en það að framkvæma slæma hugmynd af ótta við karlrembusvínsstimpilinn er alveg yfirmáta aulalegt. Öfgafeminismi er vondur í orði, en verri á borði.
Feministum hefur tekist að breyta sjálfri Biblíunni á þann hátt að ef Krissi segir t.d: Hey bræður, eru ekki allir í stuði?" þá er það í dag: Hey bræður og systur, eru ekki allir í stuði?," jafnvel þó engar systur hafi verið á svæðinu.
Orðið feministi" er karlkyns orð og því ber að breyta á stundinni í feminista," - hún femínistan. Must! Algjört Must!
Þessi pistill birtist í 24 stundum 9. ágúst, án djókmyndanna.
Minni á þátt minn "Miðjuna" á Útvarpi Sögu fm 99.4 í dag, miðvikudag, milli kl. 16:00 og 18:00. Gestur minn að þessu sinni verður enginn annar en söngvaskáldið hárprúða Bjartmar Guðlaugsson. Munum spjalla um allt milli himins og jarðar, t.d. afhverju mömmur geifli alltaf á sér munninn þegar þær maskara augun og hvort borgarstjórinn í Reykjavík megi láta sjá sig á kaffihúsum í borginni eða eingöngu á Goldfinger í Kópavogi og hvort það eigi að grafa göng milli Vestmannaeyja og Grímseyjar.
Fyrri "Miðjur" má finna á: www.stormsker.net
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Lífstíll, Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:52 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Er tónlistarmaður og rithöfundur sem hefur alveg gríðarlega gaman af skokki og fjallgöngum og jarðgöngum og draugagöngum og rottugöngum og afgöngum og nefgöngum og leggöngum og niðurgöngum og forsjárhyggju og femínisma og kynjafræði og kommúnisma og glóbalisma og vinstrifasisma og hamfarahlýnuninni og samfarahlýnuninni og öllum 1000 kynjunum og rétttrúnaðinum og öllum andskotanum, sérstaklega honum, en semsé öllu sem lítur að heilbrigði til sálar og líkama. Það er ekki flóknara en það.
Tónlist SS má finna á Spotify og víðar.
Tónlistarspilari
Nýjustu færslur
- 5.11.2024 Trump mun tapa þó hann sigri
- 1.6.2024 Viljum við halda K.J. eða á K.J. að halda ká joð?
- 30.5.2024 Bjarni bankster og Kató krimmi
- 14.6.2023 Konunglegir leghafar og pungberar
- 8.10.2022 Nýtt bóluefni gegn kjarnorkusprengjum
- 24.9.2021 Andlegir öreigar allra vinstriflokka sameinist
- 7.3.2019 Forsætisráðherra afhjúpar afmyndaðan Ólaf Ragnar
- 25.2.2019 Foreldraminning
- 6.2.2019 Alræmt dulargervi Báru
- 22.1.2019 Femíniskur fasismi
- 22.11.2018 Birgitta buffuð og fer til hjúkrunarkvendis
- 9.9.2018 Dyraverðir slegnir
- 24.6.2018 Óleikur íslenska varnarliðsins
- 27.5.2018 Stjórnmálahórerí
- 28.3.2018 Minningarorð um Arnar S. Helgason, tæknimann
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Júní 2023
- Október 2022
- September 2021
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Nóvember 2018
- September 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Mars 2018
- Janúar 2018
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Nóvember 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Desember 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Ágúst 2011
- Maí 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 4
- Sl. sólarhring: 17
- Sl. viku: 139
- Frá upphafi: 975182
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 112
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Menning og listir
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
Bloggvinir
- laugatun
- allib
- alansmithee
- alexandra-hetja
- malacai
- aliber
- andres
- anitabjork
- annaragna
- arijosepsson
- maxi
- sjalfbodaaron
- aronb
- hergeirsson
- audunnh
- axelaxelsson
- gusti-kr-ingur
- flinston
- polli
- kisabella
- arh
- astafeb
- baldher
- halo
- lordbastard
- bardurorn
- bergthora
- binnan
- birgitta
- birnan
- birnast
- launafolk
- bjolli
- bogi
- braids
- brahim
- gattin
- brynja
- bestfyrir
- brynjarsvans
- skordalsbrynja
- tilfinningar
- brandarar
- boddihlo
- eurovision
- limped
- danni
- dansige
- rafdrottinn
- diesel
- dittan
- djdanni
- dora61
- gagnrynandi
- dvergur
- dyrley
- eddabjork
- egillg
- jari
- saxi
- einari
- jaxlinn
- hjolagarpur
- sleggjan007
- ellasprella
- elma
- skens
- emmcee
- madcow
- skotta1980
- jaherna
- lundgaard
- vinursolons
- eythora
- skaginn96
- ea
- fanneyogfjolnir
- fanneyunnur
- fsfi
- folkerfifl
- freyrholm
- fridjon
- frost
- saltogpipar
- geiragustsson
- kransi
- valgeir
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gislihjalmar
- gtg
- griman
- gudni-is
- gudbjartur
- morgunn
- lucas
- gummidadi
- gkristjansson
- hugs
- gummisig
- dramb
- lostintime
- gurrihar
- gunnagusta
- zeriaph
- gullilitli
- gunnaraxel
- gunnardiego
- gunnarasgeir
- topplistinn
- gunnarkr
- gunnarpalsson
- gunnsithor
- opinbera
- gunnh
- coke
- gellarinn
- morgunblogg
- halldora
- skodun
- hvilberg
- holi
- hannamar
- hannesgi
- joggi
- haddi9001
- harpaka
- haugur
- 730bolungarvik
- heidistrand
- heidathord
- rattati
- heimskyr
- nala
- helgadora
- blekpenni
- diva73
- lost
- helgatho
- helgi-sigmunds
- limran
- hildurhelgas
- hilmardui
- snjolfur
- himmalingur
- folk-er-fifl
- hlekkur
- kolgrimur
- don
- hreinsamviska
- minos
- huldagar
- minna
- danjensen
- hvitiriddarinn
- kliddi
- hordurvald
- ingibjorgelsa
- jara
- ingolfursigurdsson
- ingvarari
- inaval
- nosejob
- keli
- fun
- jaisland
- jevbmaack
- jensgud
- jenni-1001
- svartur
- jokapje
- presley
- johanneliasson
- eyfeld
- jgfreemaninternational
- johannst
- ljonas
- kuriguri
- jbv
- jonsullenberger
- jonmagnusson
- jonlindal
- jonsnae
- prakkarinn
- nonniblogg
- judas
- alda111
- ktomm
- kari-hardarson
- kiddijoi
- bulgaria
- kje
- kjarrip
- photo
- kolbeinz
- kona
- leifur
- kristbergur
- krissa1
- kristinnagnar
- hjolaferd
- kiddirokk
- kristleifur
- nutima
- lauja
- larusg
- liljaloga
- lindabald
- loopman
- ludvikludviksson
- madddy
- madurdagsins
- maggi270
- korntop
- magnusunnar
- magnusthor
- maggaelin
- astroblog
- maggadora
- marinomm
- gummiarnar
- markusth
- 101isafjordur
- sax
- mal214
- mis
- morgunbladid
- nanna
- offari
- 1kaldi
- solir
- king
- trollchild
- alvaran
- vestskafttenor
- skari60
- dj-storhofdi
- ljosmyndarinn
- palmig
- perlaoghvolparnir
- peturmikli
- pesu
- storibjor
- iceland
- pjeturstefans
- frisk
- raggibjarna
- raggirisi
- ragnargests
- raggipalli
- ragnar73
- rannveigh
- re
- reputo
- robertb
- rosaadalsteinsdottir
- rosabla
- lovelikeblood
- siggileelewis
- siggagudna
- sirrycoach
- meyjan
- sigrunhuld
- sigrunsigur
- sibba
- sibbulina
- sigbragason
- joklamus
- siggifannar
- siggi-hrellir
- nerdumdigitalis
- sigurdurkari
- sisi
- siggivalur
- siggith
- sigurgeirorri
- sigurjon
- sigurjonsigurdsson
- sigurjonth
- silfurhondin
- sindri79
- luther
- snorris
- sorptunna
- stebbifr
- bmexpress
- rocco22
- geislinn
- lehamzdr
- trukkalessan
- steinnbach
- sterlends
- midborg
- summi
- svanurkari
- ipanama
- kerubi
- sveinn-refur
- sverrir
- saemi7
- isspiss
- saethorhelgi
- thee
- linduspjall
- ace
- zerogirl
- tryggvigunnarhansen
- turilla
- upprifinn
- skrudhamrar
- valdimarjohannesson
- valsarinn
- jormundgand
- vefritid
- vest1
- what
- start
- vibba
- ippa
- vilhelmina
- villidenni
- vga
- villialli
- audurvaldis
- thjodarheidur
- hector
- thorrialmennings
- steinibriem
- skrifa
- hrollvekjur
- valdivest
- torabeta
- thorakristin
- toti2282
- bjarnakatla
- tp
- congress
- satzen
- thj41
- doddidoddi
- thorsaari
- metal
- iceberg
- motta
- hallelujah
- boi2262
- ornsh
Athugasemdir
Heheheheheheh frábær pistill, rosalega er ég sammála þér. Þær ættu nú að fara að taka til í sálarræskninu sínu hver og ein. Með beztu kveðju.
Bumba, 27.8.2008 kl. 07:31
Já þetta er nú mannfólkið.
Anna Ragna Alexandersdóttir, 27.8.2008 kl. 09:03
Frábært...
Gulli litli ráðherfi.
Gulli litli, 27.8.2008 kl. 09:37
Alvöru dömur og herrar verða að fara að gera sér grein fyrir því að ofurfemínistar eru óvinir jafnréttis.
Þegar hrópað er sí og æ: Ill typpi, ill typpi þá endar með að dömur og herrar dissa þetta algerlega.... hvaða karlmaður vil verða svona karlkerling eins og karladeild ofurfemínistaklúbbsins er... hvaða dama vil verða kynlaus persóna í strigapoka
DoctorE (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 10:10
Hehe. Það er ekki beint leiðinlegt að lesa þessa pistla þina. Nánast ávanabindandi.
En mikið er ég annars rosalega sammála þér í einu og öllu.
Eggert Vébjörnsson (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 10:28
hehehehehe......U made my day!!
ein sem er ekki með fast kústskaft í rassg......inu!
Ragnheiður Arna Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 11:20
:)
Kjartan Pétur Sigurðsson, 27.8.2008 kl. 14:32
Ætti orðið herra og þá ráðherra líka, ekki bara að flokkast sem kvenkyns orð ? Eru einhver önnur orð sem enda á - a flokkuð sem karlkyns orð? ....
Ég hef komist að eftirfarandi lausn: Kona er ráðherra og karl er ráðherri (EF þau standa sig illa, má kalla konuna ráðherfu og karlinn ráðperra).
Þetta verður a.m.k. í minni ríkisstjórn þegar Mamma-mía flokkurinn brýst til valda.
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 27.8.2008 kl. 16:04
HAHAHAHAHAHA
Ómar Ingi, 27.8.2008 kl. 17:33
Hryllilega var þetta skemmtilegur þáttur með ykkur Bjartmari Guðlaugs núna áðan! Ég hló svo mikið að ég er ennþá að engjast úr hlaupasting... eða samskonar þindarkvölum. Við HáGizz fengum að koma tvisvar.. (reyndar kem ég alltaf amk tvisvar, veit ekki með HHG) .. en þessi frábæri náungi er hreinræktaður gleðigjafi og snillingur sem þyrfti að koma reglulega og helst alveg rað. Til þín sko...
Takk flottastur!
Helga Guðrún Eiríksdóttir, 27.8.2008 kl. 18:27
Stórgott!!
Eggert Ólafur Sigurðsson (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 21:39
Spaugilegt að tala um minnimáttarkennd gagnvart femínistum þegar öll röksemdafærsla femínista byggist á minnimáttarkennd, svo sem: fléttulistum, kynjakvóta, forgangi, sérréttindum o.s.fr. með þeim formerkjum að þær séu svo gasalega mikil fórnarlömb.
Nei, okkur "finnst" hreint engin ógn af femínösnum. En okkur "stendur" þeir ofsalega aulalegir.
Helga Guðrún Eiríksdóttir, 29.8.2008 kl. 22:57
Femínismi var lengst af alveg ágætis fyrirbæri. Hugtakinu var bara rænt af því... "sérstaka" fóki sem við sjáum berjast gegn bleikum barnafötum og smáralindarbæklingum í dag. Það er alveg hægt að berjast gegn kynbundnu órétti (t.d. launamismun) án þess að tapa sér í bandarískum póstmódernískum fasistafemínisma. Það er alveg heill skóli af þessum "kyngjafræðum" vestra sem álítur ALLT kynlíf á milli karls og konu vera kynferðislegt ofbeldi.
Rökin eru eitthvað á þá leið að maðurinn ryðji sér leið inn í líkama konunnar og því geti aldrei verið um "level playingfield" að ræða, konan lætur gera þetta við sig á meðan maðurinn er gerandi.
OK, kannski soldið extreme sjónarmið, en alls ekki svo langt frá því sem kallast mainstream í þessum fræðum þessa dagana. Sem er einmitt vandamálið.
Gunnar Hrafn Jónsson (IP-tala skráð) 30.8.2008 kl. 21:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.