Þýskaland er farið til helvítis einsog Ísland

umslagið fallega.jpgÞýskaland er eitt elsta og merkilegasta menningarsamfélag Evrópu. Þarna uxu úr grasi merkustu andans menn sem sagan kann frá að greina, svo sem Goethe, Beethoven, Heine, Derrick, Shiller, Einstein, Bernstein, Hammerstein, Gertrude Stein, Rammstein, Frankenstein, Hitler, Johann The Bastard Bach, Josef Mengele og svo mætti lengi áfram telja.

Þarna hafa að auki verið framleiddar frá örófi alda þær bestu og faglegustu klámmyndir sem heimurinn hefur haft spurnir af. Höfundarnir hafa ekki verið af verri endanum; allt frá MAX XXX til Erró.

Nú bregður svo við að Þjóðverjar hafa slegið af kröfunum og eru dottnir ofaní sorapytt siðprýði og ömurleika. Þeir hafa neitað að framleiða nýjustu plötu Serðis Monsters "Tekið stærst uppí sig" afþví að umslagsteikning mín (sjá mynd hér að ofan) fór eitthvað fyrir brjóstin á þeim. Bæði tvö. Ég fjalla um þetta alvarlega mál í viðtali HÉR.

Þýskaland er fínító. Andlega gjaldþrota. Búið spil. Eða einsog Móðir Theresa hefði orðað það: "Game over motherfuckers. It´s finished you bloody shitheads."


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rauða Ljónið

Myndin á plötum umslaginn gerir reyðaslaginn greinilega fölsuð útrásarvíkingur nær honum aldrei upp.

Rauða Ljónið, 31.10.2009 kl. 11:31

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Kannski þessi hefði dugað:

http://blogs.news.com.au/images/uploads/strange-switch-2341212.jpg

Jón Steinar Ragnarsson, 31.10.2009 kl. 11:38

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þessi fékk náð fyrir umslagaeftirlissiðgæðisráðinu:

http://turntabling.net/wp-content/uploads/2009/09/wtf-bad-album-art-jesus-use-me.jpg

Þú mátt taka þessar myndir út. Þær eru heldur plássfrekar. Vildi bara koma með einhverjar tillögur eða innblástur.

Jón Steinar Ragnarsson, 31.10.2009 kl. 11:45

4 Smámynd: halkatla

það er greinilega einhver freudísk kreppa í gangi þarna...

halkatla, 31.10.2009 kl. 11:57

5 Smámynd: Jakob Þór Haraldsson

Myndin er "tær snild", en til staðar eru hérlendis lög sem banna að þjóðfánanum sé sýnd lítisvirðing og þjóðverjar eru auðvitað ennþá í smá áfalli út frá yfirgangi Hitlers.  Mynd þín hefur í raun fengið þá til að muna hvernig Hitler fór með þýsku þjóðina.  Útrásar víkingarnir & íslenskir stjórnmálamenn hafa svo sannarlega "naugað íslensku þjóðiinni & íslenska sauðnum síðstu 25 árin eða svo..!"  Þegar þér verður stefnt (stefgjöld..:) af lögfræðingum, þá tekur þú fram að þú sért að gefa út LÖG og með "lögum skal land byggja og með ólögum eyðileggja..!"  Ég gef mér að öll lögin (bæði tvö) á plötunni þinni séu gargrandi snild....lol..!

Forza Sverrir SStormsker ...!

kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)

Jakob Þór Haraldsson, 31.10.2009 kl. 12:47

6 Smámynd: Sverrir Stormsker

Rjóða Ljónið, jújú, útrásardólgurinn er með hann svo beinstífann að hann kemur meiraðsegja út hinumegin. Það er ekki svo slæmt. Venst alveg hreint ótrúlega vel. Láttu mig þekkjaða.

Sverrir Stormsker, 31.10.2009 kl. 13:33

7 Smámynd: Sverrir Stormsker

Jónstein, skrítið að Biskupsstofa skuli ekki vera farin að selja svona slökkvara (kveikjara) einsog efri myndin sýnir. Ég myndi kaupa þetta þó ég kaupi nú ekki allt sem rennur útúr biskupnum.

 

Mér finnst eitthvað skrítið við höfuðlagið á þessum kellingum, nú eða köllum, á neðri myndinni. Þetta eru einsog geimverur. Eða vatnshausar. Í hvaða helvítis söfnuði er eiginlega þetta pakk? Krossinum? Vona að þetta sé ekki úr fjölskyldualbúminu!

Sverrir Stormsker, 31.10.2009 kl. 13:34

8 Smámynd: Sverrir Stormsker

Tittlingur, já hér eru miklar freudískar kryppur á ferðinni. Ekki hægt annað en vera sammála því.

Sverrir Stormsker, 31.10.2009 kl. 13:35

9 Smámynd: Sverrir Stormsker

Jakob Thor, já myndin er “tær snilld” einsog Icesave.

Hugsanlega er þetta eitthvað flashback hjá Þjóðverjunum. Þeir mega ekki sjá aftanítöku án þess að verða hugsað til Adolfs gamla, hvernig svosem skuli geta staðið á því.

Hvað lögin á plötunni varðar þá held ég að menn lifi þau alveg af. Skal skella einu á næstu dögum í spilarann hérna á síðunni.

Sverrir Stormsker, 31.10.2009 kl. 13:37

10 Smámynd: Jakob Þór Haraldsson

Kæri SSverir, þjóðverjar hafa ekki ennþá gleymt því að gamli Adolf var misheppnaður listmálari og þetta er bara övund þeirra í þinn garð þegar þú setur fram "enn eitt meistarastykkið" og ég sé fyrir mér að Adolf gamli sé að deyja úr öfund, mér skilst að hann hafi í raun aldrei dáið, hann er ennþá í felum & eins og kóngurinn Elvis...!  Þjóðin, betri hluti hennar bíður spennt, næstum yfirspennt eftir að heyra lögin á plötunni þinni, öll SEX - endilega setja sum þeirra inn á þína síðu sem fyrst - "schnell" - danke schön mein HERRRRR...

kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)

Jakob Þór Haraldsson, 31.10.2009 kl. 15:02

11 identicon

Þetta er mjög svo fín og táknræn mynd

DoctorE (IP-tala skráð) 31.10.2009 kl. 15:12

12 Smámynd: Rauða Ljónið

Með dólginn drjóla

og digra sjó.

Horfinn er frá landi

en tókst að taka heila þjóð

görnin bindur landið.


Rauða Ljónið, 31.10.2009 kl. 16:03

13 Smámynd: Offari

Mér finnst umslagið vera soralegt en lýsur samt óstandinu vel.  Ég vona að innihaldið sé ekki síðra en það sem áður hefur frá þér komið því mér líkar þín músík.

Offari, 31.10.2009 kl. 16:53

14 Smámynd: Ómar Ingi

Sneddý

Ómar Ingi, 31.10.2009 kl. 17:53

15 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Flott umslag og mjög táknrænt. Annars er efri myndin í athugasemdinni hans Jóns Steinars kannski eitthvað sem kirjan ætti að taka upp til að hafa betri stjórn á klerkum landsins. Ansi handhægt ef biskupsstofa getur með einu handtaki slökkt á þeim sem baldnastir eru......

Ómar Bjarki Smárason, 31.10.2009 kl. 18:08

16 Smámynd: Sverrir Stormsker

Jakob, lögin á plötunni eru reyndar 19 þó þau segi SEX og fjalli sum hver um það.

Lifi Elvis og Adolf!

Sverrir Stormsker, 31.10.2009 kl. 20:33

17 Smámynd: Sverrir Stormsker

DoctorE, já, ég held líka að þetta sé nefnilega alveg ágætis mynd. Þó að Kalli Bjarni vinur vor fái kannski heimþrá í fangelsið þegar hann sér þessa mynd þá verkar hún ekki þannig á alla.

Sverrir Stormsker, 31.10.2009 kl. 20:35

18 Smámynd: Sverrir Stormsker

Rauða Lónið, verulega hugguleg vísa. Ég myndi senda hana í Lesbók Morgunblaðsins eða Kirkjutíðindi.

Sverrir Stormsker, 31.10.2009 kl. 20:36

19 Smámynd: Sverrir Stormsker

Offari, þakka þér fyrir það. Ég ætla rétt að vona að tónlist disksins sé álíka hugljúf og smekkleg og umslagið.

Sverrir Stormsker, 31.10.2009 kl. 20:38

20 Smámynd: Sverrir Stormsker

Ómar Ingi, já þetta er bara ansi hreint fjári sneddí. Það er ekki flóknara en það.

Sverrir Stormsker, 31.10.2009 kl. 20:39

21 Smámynd: Sverrir Stormsker

Ómar Bjarki, efri myndin í athugasemd Jóns Steinars er verulega fín og kristileg og minnir mann óneitanlega á upprisu holdsins.

Sverrir Stormsker, 31.10.2009 kl. 20:40

22 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég hef aldrei verið þezzi 'æ tóld jú zó' tíba, & hnerrandi hraðfrozinn í helvíti að ég byrji núna...

Zhnilldertettaenda....

Steingrímur Helgason, 31.10.2009 kl. 23:27

23 Smámynd: Jens Guð

  Hefurðu séð flogakastið sem píanistinn viðkvæmi,  Þórarinn, liggur í vegna plötuumslagsins:  http://icekeiko.blog.is/blog/icekeiko/entry/973270/#comment2670661.  Hér er um bráðatilfelli að ræða.  Hvað er símanúmerið hjá Neyðarlínunni? 

Jens Guð, 1.11.2009 kl. 00:23

24 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Er að gá öðruhvoru hvort líti hér inn stelpur eða kellingar,Ok ,þá er ég sú eina. Veistu það Sverrir ég roðna,kalla þó ekki allt langa,langömmu mína. Þetta með þjóðfánann! Við verðum að eiga einhverja   HELGI,  þjóðfáninn er mér afar kær,en hann er þarna sem tákn um misþyrmingu á okkur,þjóðinni.Það er ef heil þjóð tapar ærunni á einu bretti.  Skil það allt, en hugsa;  kanski fussar Stína og Bjössi og Bína; yfir skoðun minni, já soldil tepra stundum.

Helga Kristjánsdóttir, 1.11.2009 kl. 03:16

25 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Er það ekki talsvert meiri vanhelgun á þjóðfánanum að hengja hann á alþigishúsið þessa dagana?

Annars mætti fara að skipta út þjóðfánanum og hafa hann bara hvítann. Uppgjafartákniðð.

Svo er þessi fáni með krossinum á, svo það er móðgun við aðra trúflokka og trúlausa. Raunar er allt útklínt í þessari kristnu táknfræði á öllu hér. Skjaldamerkið er með táknum buðspjallamannanna, myntin líka. Seðlarnir með dauðum prelátum, þjóðsöngurinn upp úr Davíðssálmum, þingsetning í kirkju.  Það er sama hvert litið er. Allstaðar er búið að klína þessu klámi.  Frekja og yfirgangur kirkjunnar er fenómenal. 

Jón Steinar Ragnarsson, 1.11.2009 kl. 10:22

26 Smámynd: Offari

Hér er rekið rassinn í

Reyðarfjarðarmeginn

Stormsker móðgar menn á ný

mynd hans er óþvegin.

Annar eru það Reyðfirðingar sem eru hvað sárastir.

Offari, 1.11.2009 kl. 11:52

27 Smámynd: Sverrir Stormsker

Zteingrímur, gott að heyra. Þær eru orðnar zoldið margar I-told-you-so-týpurnar eftir hrun. Fer annarz ekki að vera kominn tími á pool?

Sverrir Stormsker, 1.11.2009 kl. 22:19

28 Smámynd: Sverrir Stormsker

Jens Guð, já þetta er skrítið. Tek algerlega undir athugasemd þína sem þú birtir á bloggsíðu þessa undarlega æsta manns þar sem þú segir: “Í tilfelli umslags nýjustu plötu Stormskers virðist mér sem vísað sé til þess á táknrænan hátt hvernig örfáir bankaræningjar hafa leikið hinn almenna Íslending = íslensku þjóðina.”

 

Þetta er í raun ekki flóknara en þetta.

Það er verið að taka þjóðina í kakóið og menn láta sér það bara nokkuð vel líka og enginn útrásardjöflanna er farinn í grjótið. En svo teikna ég mynd af nauðgun djöflanna á landinu, fánanum, fólkinu og öllu sem er okkur nokkuð kært og þá tryllast sumir menn og vilja að mér sé stungið í grjótið. Man því miður ekki símann hjá neyðarlínunni.

Sverrir Stormsker, 1.11.2009 kl. 22:21

29 Smámynd: Sverrir Stormsker

Helga, held að enginn Íslendingur hatist við íslenska fánann. Þarna á myndinni minni er hann ekki “sem tákn um misþyrmingu á okkur, þjóðinni” einsog þú segir, heldur tákn þjóðarinnar sem verið er að taka í fjósið. Á þessu er stór munur. Annars má fólk svosem túlka þetta alltsaman sundur og saman. Alveg guðvelkomið.

Tek það samt fram til að fyrirbyggja enn frekari misskilning að mér er ansi hlýtt til landsins, fánans, og fólksins sem nú er verið að blóðnauðga. Vona samt að ég fái að halda listræna frelsi mínu þó að hér sé tandurhrein vinstristjórn

Sverrir Stormsker, 1.11.2009 kl. 22:24

30 Smámynd: Sverrir Stormsker

Jón Steinar, ríkiskirkjan og hennar ofríki í gegnum tíðina er náttúrulega alveg sér kapituli út af fyrir sig.

Ansi frumleg og skemmtileg hugmynd hjá þér að gera hvítan uppgjafarfána að þjóðfána. Sömuleiðis fannst mér einkar viðeigandi að setja Bónusfána á alþingishúsið.

Sverrir Stormsker, 1.11.2009 kl. 22:26

31 Smámynd: Sverrir Stormsker

Offari, góð og rétt kveðin vísa. Sjaldan sem maður sér rétta stuðlasetningu nú á tímum.

 

“Reiðarfjörður” ætti í þessu tilviki kannski að vera með einföldu i-i.

Sverrir Stormsker, 1.11.2009 kl. 22:27

32 Smámynd: Sigurjón

Sæll Sverrir.  Það er magnað að sjá hvernig fólk getur misskilið einföldustu myndir.  Ekki er tepruskapurinn minni.  Mér finnst þetta töff umslag og hlakka til að gefa ömmu það í jólagjöf...

Sigurjón, 2.11.2009 kl. 17:59

33 Smámynd: Sverrir Stormsker

Sigurjón, það virðist ekki vera til sá hlutur í veröldinni sem ekki megi misskilja.

En ég myndi nú ekki bara gefa ömmu gömlu umslagið í jólagjöf einsog þú ætlar að gera. Ég myndi líka gefa henni diskinn sjálfan

Sverrir Stormsker, 3.11.2009 kl. 14:26

34 Smámynd: Sigurjón

Hehe. Hann liggur í umslaginu...

Sigurjón, 3.11.2009 kl. 18:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband