22.10.2008 | 13:51
Íslendingar orđnir ennţá geđveikari!
Ástandiđ hefur stundum veriđ skárra á Los Klakos. Allar bankalínur eru lokađar og allar hjálparlínur rauđglóandi. Ađrar línur hafa útrásardólgarnir tekiđ í nefiđ. Geđdeildirnar eru yfirfullar og bankastarfsmenn fá daglega áfallahjálp sálfrćđinga og prestar blessa bankastjóra í bak og fyrir og skvetta vígđu vatni frá Jóni Ólafssyni á tómar bankahirslurnar. Almúginn hímir í kílómetra löngum biđröđum eftir súpu og Bubbi er betlandi á torgum međ apa og lírukassa og er kominn á tveggja ára Range Rover (eđa Game Over einsog hann heitir víst í dag). Hummer er orđinn ađ Bummer og Landcruser ađ Grandlúser.
Útrásarfroskarnir eru flúnir land á einkaţotunum enda ekkert meira ađ hirđa af landslýđ sem er svo mergsoginn og vanađur ađ meirađsegja Blóđbankinn og Sćđisbankinn eru farnir á hausinn. Pólverjar flýja í ofbođi til friđsamlegri og manneskjulegri landa einsog t.d. Íraks, Afganistan og Vestmannaeyja. Á hverjum degi sér mađur gjaldţrota fólk fleygja sér fram af byggingum í fallegum boga, en ţađ er sívinsćl vandamálalausn á krepputímum. Fólki bókstaflega rignir niđur á gangstéttirnar svo mađur er í bráđri lífshćttu á göngutúrum um bćinn.
Ţegar mađur hringir á Klepp ţá kemur sjálfvirkur símsvari: Ţú ert kominn í samband viđ Klepp. Ef ţú hefur fjárfest í íslenskum bönkum, ýttu ţá á einn. Ef ţú ert farinn ađ hamstra matvćli í Bónus, ýttu á tvo. Ef ţú heldur virkilega ađ einhver verđi látinn sćta ábyrgđ á hruninu, ýttu á ţrjá. Ef ţú treystir stjórnmálamönnum og öđrum íslenskum amatörapaköttum til ađ leysa úr vandanum, ýttu á fjóra. Ef ţér finnst skynsamlegt ađ sömu hlandaularnir sem áttu stóran ţátt í hruninu, Fjármálaeftirlitiđ og ríkisstjórnin, sjái um uppbygginguna, ýttu á fimm. Ef ţú heldur ađ krónan sé gjaldgengur gjaldmiđill, ýttu á sex. Ef ţú ert búinn ađ gleyma lofrćđum forsetans um útrásarkrimmana, ýttu á sjö. Ef ekkert er valiđ ţá verđur ţér gefiđ samband viđ útibúiđ viđ Austurvöll. Ţú ert númer 168.537 í röđinni."
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Gestur minn í síđasta ţćtti "Miđjunnar" á Útvarpi Sögu fm 99.4 var Jón Baldvin Hannibalsson. Gestur minn í dag, miđvikudag, frá klukkan 16:00 til 18:00 verđur hinsvegar enginn annar en Jón Baldvin Hannibalsson. Jón Baldvin er einsog Marteinn Mosdal; hann kemur alltaf aftur og aftur og aftur og aftur. Ađ ţessu sinni munum viđ fjalla um alveg hreint stórmerkilega hluti. Sjá: HÉR.
Allir fyrri ţćttir eru komnir inná: www.stormsker.net
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dćgurmál, Lífstíll, Stjórnmál og samfélag | Breytt 23.10.2008 kl. 14:59 | Facebook
« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »
Höfundur
Er tónlistarmaður og rithöfundur sem hefur alveg gríðarlega gaman af skokki og fjallgöngum og jarðgöngum og draugagöngum og rottugöngum og afgöngum og nefgöngum og leggöngum og niðurgöngum og forsjárhyggju og femínisma og kynjafræði og kommúnisma og glóbalisma og vinstrifasisma og hamfarahlýnuninni og samfarahlýnuninni og öllum 1000 kynjunum og rétttrúnaðinum og öllum andskotanum, sérstaklega honum, en semsé öllu sem lítur að heilbrigði til sálar og líkama. Það er ekki flóknara en það.
Tónlist SS má finna á Spotify og víðar.
Tónlistarspilari
Nýjustu fćrslur
- 5.11.2024 Trump mun tapa ţó hann sigri
- 1.6.2024 Viljum viđ halda K.J. eđa á K.J. ađ halda ká jođ?
- 30.5.2024 Bjarni bankster og Kató krimmi
- 14.6.2023 Konunglegir leghafar og pungberar
- 8.10.2022 Nýtt bóluefni gegn kjarnorkusprengjum
- 24.9.2021 Andlegir öreigar allra vinstriflokka sameinist
- 7.3.2019 Forsćtisráđherra afhjúpar afmyndađan Ólaf Ragnar
- 25.2.2019 Foreldraminning
- 6.2.2019 Alrćmt dulargervi Báru
- 22.1.2019 Femíniskur fasismi
- 22.11.2018 Birgitta buffuđ og fer til hjúkrunarkvendis
- 9.9.2018 Dyraverđir slegnir
- 24.6.2018 Óleikur íslenska varnarliđsins
- 27.5.2018 Stjórnmálahórerí
- 28.3.2018 Minningarorđ um Arnar S. Helgason, tćknimann
Eldri fćrslur
- Nóvember 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Júní 2023
- Október 2022
- September 2021
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Nóvember 2018
- September 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Mars 2018
- Janúar 2018
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Nóvember 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Desember 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Ágúst 2011
- Maí 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 11
- Sl. sólarhring: 15
- Sl. viku: 157
- Frá upphafi: 975170
Annađ
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 125
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 9
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Ţ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Fćrsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Menning og listir
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
Bloggvinir
- laugatun
- allib
- alansmithee
- alexandra-hetja
- malacai
- aliber
- andres
- anitabjork
- annaragna
- arijosepsson
- maxi
- sjalfbodaaron
- aronb
- hergeirsson
- audunnh
- axelaxelsson
- gusti-kr-ingur
- flinston
- polli
- kisabella
- arh
- astafeb
- baldher
- halo
- lordbastard
- bardurorn
- bergthora
- binnan
- birgitta
- birnan
- birnast
- launafolk
- bjolli
- bogi
- braids
- brahim
- gattin
- brynja
- bestfyrir
- brynjarsvans
- skordalsbrynja
- tilfinningar
- brandarar
- boddihlo
- eurovision
- limped
- danni
- dansige
- rafdrottinn
- diesel
- dittan
- djdanni
- dora61
- gagnrynandi
- dvergur
- dyrley
- eddabjork
- egillg
- jari
- saxi
- einari
- jaxlinn
- hjolagarpur
- sleggjan007
- ellasprella
- elma
- skens
- emmcee
- madcow
- skotta1980
- jaherna
- lundgaard
- vinursolons
- eythora
- skaginn96
- ea
- fanneyogfjolnir
- fanneyunnur
- fsfi
- folkerfifl
- freyrholm
- fridjon
- frost
- saltogpipar
- geiragustsson
- kransi
- valgeir
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gislihjalmar
- gtg
- griman
- gudni-is
- gudbjartur
- morgunn
- lucas
- gummidadi
- gkristjansson
- hugs
- gummisig
- dramb
- lostintime
- gurrihar
- gunnagusta
- zeriaph
- gullilitli
- gunnaraxel
- gunnardiego
- gunnarasgeir
- topplistinn
- gunnarkr
- gunnarpalsson
- gunnsithor
- opinbera
- gunnh
- coke
- gellarinn
- morgunblogg
- halldora
- skodun
- hvilberg
- holi
- hannamar
- hannesgi
- joggi
- haddi9001
- harpaka
- haugur
- 730bolungarvik
- heidistrand
- heidathord
- rattati
- heimskyr
- nala
- helgadora
- blekpenni
- diva73
- lost
- helgatho
- helgi-sigmunds
- limran
- hildurhelgas
- hilmardui
- snjolfur
- himmalingur
- folk-er-fifl
- hlekkur
- kolgrimur
- don
- hreinsamviska
- minos
- huldagar
- minna
- danjensen
- hvitiriddarinn
- kliddi
- hordurvald
- ingibjorgelsa
- jara
- ingolfursigurdsson
- ingvarari
- inaval
- nosejob
- keli
- fun
- jaisland
- jevbmaack
- jensgud
- jenni-1001
- svartur
- jokapje
- presley
- johanneliasson
- eyfeld
- jgfreemaninternational
- johannst
- ljonas
- kuriguri
- jbv
- jonsullenberger
- jonmagnusson
- jonlindal
- jonsnae
- prakkarinn
- nonniblogg
- judas
- alda111
- ktomm
- kari-hardarson
- kiddijoi
- bulgaria
- kje
- kjarrip
- photo
- kolbeinz
- kona
- leifur
- kristbergur
- krissa1
- kristinnagnar
- hjolaferd
- kiddirokk
- kristleifur
- nutima
- lauja
- larusg
- liljaloga
- lindabald
- loopman
- ludvikludviksson
- madddy
- madurdagsins
- maggi270
- korntop
- magnusunnar
- magnusthor
- maggaelin
- astroblog
- maggadora
- marinomm
- gummiarnar
- markusth
- 101isafjordur
- sax
- mal214
- mis
- morgunbladid
- nanna
- offari
- 1kaldi
- solir
- king
- trollchild
- alvaran
- vestskafttenor
- skari60
- dj-storhofdi
- ljosmyndarinn
- palmig
- perlaoghvolparnir
- peturmikli
- pesu
- storibjor
- iceland
- pjeturstefans
- frisk
- raggibjarna
- raggirisi
- ragnargests
- raggipalli
- ragnar73
- rannveigh
- re
- reputo
- robertb
- rosaadalsteinsdottir
- rosabla
- lovelikeblood
- siggileelewis
- siggagudna
- sirrycoach
- meyjan
- sigrunhuld
- sigrunsigur
- sibba
- sibbulina
- sigbragason
- joklamus
- siggifannar
- siggi-hrellir
- nerdumdigitalis
- sigurdurkari
- sisi
- siggivalur
- siggith
- sigurgeirorri
- sigurjon
- sigurjonsigurdsson
- sigurjonth
- silfurhondin
- sindri79
- luther
- snorris
- sorptunna
- stebbifr
- bmexpress
- rocco22
- geislinn
- lehamzdr
- trukkalessan
- steinnbach
- sterlends
- midborg
- summi
- svanurkari
- ipanama
- kerubi
- sveinn-refur
- sverrir
- saemi7
- isspiss
- saethorhelgi
- thee
- linduspjall
- ace
- zerogirl
- tryggvigunnarhansen
- turilla
- upprifinn
- skrudhamrar
- valdimarjohannesson
- valsarinn
- jormundgand
- vefritid
- vest1
- what
- start
- vibba
- ippa
- vilhelmina
- villidenni
- vga
- villialli
- audurvaldis
- thjodarheidur
- hector
- thorrialmennings
- steinibriem
- skrifa
- hrollvekjur
- valdivest
- torabeta
- thorakristin
- toti2282
- bjarnakatla
- tp
- congress
- satzen
- thj41
- doddidoddi
- thorsaari
- metal
- iceberg
- motta
- hallelujah
- boi2262
- ornsh
Athugasemdir
Alveg óborganlegur Sverrir Stormsker!! Vissir ţú ađ margir Toyota Landcruser eigendur voru ađ skipta yfir og fá sér Ice-Land-crash-er...síđan fá allir fyrrum bankastjórar og starfandi ríkisstjórn og bossarnir hjá FME, gefins nýjasta eintakiđ af Ford jeppanum, sem heitir ţví skemmtilega og viđeigandi nafni; Ford Kuga...ţar sem ţeir hafa algerlega skitiđ upp á bak og alveg upp ađ hnakka sumir undanfariđ..
alva (IP-tala skráđ) 22.10.2008 kl. 14:14
Er ekki betra ađ ýta á sjö ef mađur er ekki viss hún er orđin svo andskoti löng röđin. Svo vćri náttúrlega reynandi ađ hringja í Davíđ, hann á ráđ undir rifi hverju.
Magnús Sigurđsson, 22.10.2008 kl. 14:39
Ef ţér finnst ađ Seđlabankinn eigi ađ vera elliheimili fyrir stjórnmálamenn, ýttu ţá á 8.
Sverrir Stormsker, 22.10.2008 kl. 14:58
Góđur!!
Brynja skordal, 22.10.2008 kl. 15:24
HAHAHAHAHAHA
Alltaf ferskur
Ómar Ingi, 22.10.2008 kl. 16:10
he he góđ fćrsla
Óskar Ţorkelsson, 22.10.2008 kl. 16:32
Spaugstofan hvađ? Ţú átt ađ fá Óskarinn fyrir ađ koma ţví til leiđar ađ ţađ tekur sig upp gamalt bros, já gott ef ekki skellihlátur. Segir ein sem hef veriđ eins og hertur handavinnupoki.
Hallgerđur Pétursdóttir (IP-tala skráđ) 22.10.2008 kl. 18:18
:)
Kjartan Pétur Sigurđsson, 22.10.2008 kl. 18:34
Ţrćlgóđur ertu, gott ađ geta hlegiđ međ góđgćtinu sem bođiđ er uppá í ţjóđfélagssúpunni.
Ađ mínu mati eigum viđ ađ láta ALLA flokka fokka og kjósa ţá fáu heiđarlegu og ćrlegu fulltrúa innan ţess hóps í ţann faghóp sem ţeir valda síđan fagmenn fyrir hvern málaflokk. Fjármál, Atvinnumál, Heilbrigđismál, Landverndarmál o.s.frv.
Annar kostur er ađ sitja áfram í súpunni, sem smámsaman verđur ađ ţykkum sykurlausum graut sem lykst um okkur og kćfir.
Gerđur Pálma, 22.10.2008 kl. 18:51
Góđur pistill - Oytota Landcrusher er nýjasta nafniđ í bílaflórunni....
Kv. Steini
Ţorsteinn Gunnarsson, 22.10.2008 kl. 20:43
haha flottur
ţeir voru nú oft hálfklikkađir hanniballarnir ţegar ţeir ferđuđurst međ ríkisskipum í den dííí
Jón Snćbjörnsson, 22.10.2008 kl. 21:05
Flottur!!!!
Ţetta međ toyotu Landcruiser, ţá er ég vanur ađ kalla ţá Hlandcruiser vegna ţess ađ margir ef ekki flestir fá hland fyrir hjartađ um hver mánađarmót ţegar reikningurinn kemur.
Snildarpistlar hjá ţér Stormsker
Ólafur Björn Ólafsson, 22.10.2008 kl. 22:52
Frábćr pistill.
Sannkölluđ sáluhjálp. Ég leyfi mér ţá ađ ýta á 9.
Jón Halldór Guđmundsson, 22.10.2008 kl. 22:57
... Ţú ert snilld .. HR. STORMSKER...Ţú léttir lundina mína međ pistlum ţínum hahah.. sé ţig fyrir mér í pontu ađ ţrusa yfir ţingheimi.. er einhver von til ţess????
Sigríđur Inga Ingimarsdóttir, 23.10.2008 kl. 08:39
Í denn var ţađ sverasta sem menn gerđu, ađ fá sér í eina feita.
Nú snorkla menn línur og gera bú bú í stórmennskubrjálćđisköstum.
Tjilla bara međ eina Jónu eđa svo, er miklu meira mellow og gerir fćrrum mein.
E-töflur og línur eyđilögđu Bluesinn.
Comfort og Jóna var gott fyrir Janis en ţegar harđara stöff tók viđ fór allt í fokk.
Detoxum ţjóđina í hvelli
Miđbćjaríhaldiđ
vill henda listasafninu úit og setja góđan dansstađ inn í húsiđ viđ hliđina á Fríkirkjunni.
Back to back
Bjarni Kjartansson, 23.10.2008 kl. 10:19
Spjalliđ viđ Jón Baldvin í Miđjunni var góđ skemmtun - eins og í fyrri skipti sem ţiđ hafiđ spjallađ saman í útvarpinu. Já, og ţessi fćrsla er snilld!
Jens Guđ, 24.10.2008 kl. 00:47
Jćja ţá er kominn dagur...
Ertu nokkuđ búinn ađ gefa út lagiđ međ textanum - kjósum ţá ekki á ný gefum ţeim ćvilangt frí....?
Ţađ vantar í spilarann
Brúnkolla (IP-tala skráđ) 24.10.2008 kl. 00:51
Ţađ er engin föst regla á endurflutningum á Sögu en Arnţrúđur var ađ segja mér ađ ţátturinn verđi endurfluttur kl. 1:00 - 3:00 í nótt og svo kl. 16:00 - 18:00 á sunnudaginn. Svo verđur honum jafnvel skotiđ inn á fleiri stöđum. Gott mál.
Ţess má geta til fróđleiks ađ ţessi grein fékkst ekki birt í Mogganum vegna ţess ađ hún ţótti ekki nógu siđsamleg. Ţađ er nefnilega bannađ ađ segja sannleikann međ grínrćnu ívafi í Mogganum.
Lifi leiđindin!
Ţakka kommentin gott fólk.
Sverrir Stormsker, 24.10.2008 kl. 13:03
Hć Sverrir, ég heiti Eyjó.
ég held ađ ţú sért rétti mađurinn til ađ svara ţessum manni
http://webtv.tv2.no/webtv/?progId=269417&treeId=777
Ertu ekki til í ađ skođa máliđ?
Bestu kveđjur, Eyjó (sár íslendingur í Noregi)
Eyjólfur Daníel Jóhannsson, 24.10.2008 kl. 15:39
Jón Baldni er stórgáfađur mađur og ţessvegna talađi hann um margt annađ en ESB einsog t.d. KGB, JFK, BSÍ, ASÍ, CIA og LSD. Hann fór vítt og breitt yfir sviđiđ enda gáfu spurningar mínar tilefni til ţess. En líklegast vćrum viđ ekki í ţessum hyldjúpa skít ef viđ hefđum gengiđ í ESB og tekiđ upp evru fyrir svosem einsog 10 árum síđan. Íslenskir stjórnmálamenn eru fyrir löngu búnir ađ sanna ađ ţeim er ekki treystandi fyrir peningamálastjórn landsins og ţví vćri kannski best einsog stađan er núna ađ skella ráđuneytunum og Alţingi í lás og fleygja lyklunum og fá hingađ til lands erlenda óháđa sérfrćđinga til ađ koma skikki á hlutina og stjórna ţessu ótrúlega heimska og óheiđarlega ribbaldaţjóđfélagi nćstu árin.
Góđa helgi.
Sverrir Stormsker, 24.10.2008 kl. 15:52
Ţađ ekki spurning Sverrir ađ ţađ á ađ sćma ţig Stórriddarakrossinum fyrir ţína orđasnilld, ţađ er vöntun á fólki eins og ţér, reyndar eru baggalútsmenn líka snillingar og ég tala nú ekki um ţeirra nýjasta útspil ađ smella sér í útrás sjá hér. Takk fyrir ţennan snilldar pistil og eigđu (g)óđa helgi.
— ICELAND'S MOST WANTED —
Sćvar Einarsson, 25.10.2008 kl. 10:05
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.