Færsluflokkur: Bloggar

Femíniskur fasismi

Free the nippleÞótt ótrúlegt megi virðast þá er til nokkuð sem er helmingi verra en femínisti. Og hvað skyldi það nú vera?

Jú, tveir femínistar.

Fátt er þó aumkunarverðara en þeir undanlátssömu aular sem beygja sig undir kröfur rétttrúnaðarrugludallanna, nema ef vera skyldi karlfemínistar en það eru einhverskonar andlegir einfrumungar sem skammast sín fyrir sína „eitruðu karlmennsku“ og halda að femínismi hafi eitthvað með jafnrétti að gera en ekki það sem nafnið gefur til kynna: Forréttindi kvenna.

 

Þeir virðast ekki skilja að femínismi er valdapólitík sem gengur útá að svínbeygja kallpungana í duftið og koma kellingum í allar æðstu stöður í krafti þess sem þær hafa á milli fótanna en ekki þess sem þær hafa á milli eyrnanna.

 

Var að gera vísu í tilefni þess að nú hefur Sæðisbankinn Seðlabankinn læst inní geymslu brjóstverkin hans Gunnlaugs Skandal listmálara. (Hann var oft með brjóstverk). Þessar nýfrelsuðu geirvörtur fóru svo gasalega fyrir brjóstin á femínistum bankans að þeir vildu fyrir alla muni koma þeim bakvið lás og slá.

 

Það eru ekki vönduðu bringublöðrumyndirnar sem ættu að vera lokaðar inní geymslu heldur ættu óvönduðu rétttrúnaðarfasistarnir að vera lokaðir inná viðeigandi stofnun í bólstruðum klefa.

 

Femínismi er fasísk stefna,

fyrirlítur mannkyn hálft,

drepur húmor, drepur listir,

drepur jafnvel lífið sjálft.


mbl.is Brjóstamyndir Gunnlaugs inni í geymslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Birgitta buffuð og fer til hjúkrunarkvendis

BirgittaEkki skil ég hvernig fólk getur verið svona vont við góða söngtækninn hana Birgittu Haukdal.

Þetta er góðhjörtuð, snotur, brosmild blómarós með jákvæða útgeislun og lítur út einsog kópur í framan. Hver getur skvett úr hlandkoppi yfir svona sakleysislegt og viðkunnanlegt trýni?

 

 

Fyrir nokkrum árum ræskti Jens Guð sig vel og vandlega og sendi henni væna tópaksslummu á milli galopnu góðlegu brúnu kópsaugnanna.

Jens þessi Guð er annálað kaldrifjað harðbrjósta klakabrynjað varmenni sem má ekkert aumt sjá án þess að girða niðrum sig og saurspreyja það allt frá hvirfli til ilja. Í því liggur metnaður hans í lífinu. Brúnt skal það vera. Eftir að hafa látið það gossa yfir Haukdalinn með gríðarlegum frethljóðum og gusugangi hæddist hann að henni fyrir að nota brúnkukrem.

Það var ekki fallega gert.

Ekki bað hún um þetta “brúnkukrem.”

 

 

Og hvað gerði Haukdalurinn í kjölfarið? Hefndi hún sín á honum? Reyndi hún að kveikja í jólasveinaskegginu á honum eða snýta sér í strýið á honum?

Nebb, aldeilis ekki. Hún sendi honum hjartnæmt jólakort og bað Guð að blessa Jens Guð…eða öfugt.

Þetta sýnir að Birgitta er ekki bara góður söngtæknir heldur líka góð manneskja.

 

 

Þessi stórmannlegu eða öllu heldur stórkvenlegu viðbrögð Birgittu fengu misyndismanninn Jens til að iðrast sáran og rýna klakavotum augum í sitt grjótharða steinrunna hjarta og síðan þá hefur hann getað staðist þá freistingu að ausa svívirðingum og saur yfir engilfríða söngfugla.

Batnandi illvirkjum er best að lifa.

 

 

Hjúkrunarkona

Það höfðu ekki margir hugmynd um að Birgitta væri að skrifa barnabækur fyrr en þrælsnobbaðir titlatogandi ofurviðkvæmir móðgunargjarnir femínismasjúkir hjúkrunarfræðingar ákváðu að brjálast yfir einu orði sem kemur aðeins fyrir einu sinni í nýjustu bók Birgittu.

 

Hið stórskaðlega orð sem á víst að afvegaleiða æsku landsins og hreinlega leiða hana til glötunar er ekki orðið rassraðnauðgari eða keðjusagamorðingi heldur:

 

Hjúkrunarkona.

 

Verra gat orðið varla orðið.

 

Núna eru þessir fræðingar og fretkellingar að velta Haukdalnum uppúr mykju og óþverra og brúnka hana enn meir en orðið er fyrir að nota þetta viðurstyggilega orð “hjúkrunarkona” í staðinn fyrir fína starfsheitið “hjúkrunarfræðingur.”

Þennan glæp gerði hún sig seka um í nýjustu barnabókinni sinni “Lára skellir sér í þungunarrof á þrítugustu meðgönguviku.”

 

 

Áður hafði hún gefið út barnabækurnar “Lára gerist hryðjuverkakona” og “Lára gerist vændiskona.”

Mér skilst að rétthugsandi femínistabreddur hafi líka orðið bandbrjálaðar yfir þessum bókum og farið fram á að hún breytti titlunum í:

“Lára gerist hryðjuverkatæknir” og “Lára gerist vændisfræðingur.”

 

Kvenrembugyltur virðast af einhverjum ástæðum hata endinguna "kona" í starfsheitum.

 

 

Rétttrúnaðurinn og móðgunargirnin er hér allt að drepa. Ég sé ekkert því til fyrirstöðu að menn noti gamla og virðulega starfstitilinn vændiskona jafnvel þó að “vændisfræðingur” sé kannski lögvarið starfsheiti sem beri að nota yfir professional sæðistunnur.

 

 

Kvenrembugyltur hafa sömuleiðis hrínt hástöfum yfir því að Birgitta skyldi hafa vogað sér að láta hjúkrunarkonuna í nýju bókinni sinni klæðast kjól og vera með svona dæmigert gamaldags hjúkkukaskeiti á skallanum.

Hverjum kemur við hvernig hún klæðir sínar helvítis persónur? Þetta er hennar skáldverk en ekki hennar doktorsritgerð um líf og störf snobbaðra hjúkrunarfræðinga á spítölum borgarinnar á 21. öldinni.

 

 

Hún hefði þessvegna getað látið hjúkkudrusluna vera í G-streng einum fata eða í rifnum og tættum Chaplin-fötum einsog rykfallnir háskólakennarar klæðast gjarnan. Bókin hefði ekki orðið neitt verri fyrir vikið. Bara öðruvísi. Og hún hefði þessvegna getað látið hjúkrunarkvendið kæfa sjúklingana með kodda án þess að það rýrði gildi bókarinnar.

Gæði bókar fer ekki eftir rétthugsun höfandarins.

Fólk sem getur ekki lesið skáldverk sem skáldverk á bara að halda sig við símaskránna.

 

 

Rithöfundar og aðrir listamenn eru ekki uppeldisstofnanir. Þeim kemur ekkert við hvort að einhverjir froðufellandi ferkantaðir “fræðingar” álíti að verk þeirra séu full af “eitraðri karlmennsku” og ýti undir “skaðlegar staðalímyndir.” Enginn með viti setur reglustiku kynja”fræðinnar” á listaverk. Slíkt gera bara femínistar og aðrir seinfærir fasistar.

 

 

Stormsker & Birgitta Haukdal (30.04.2004)Listamenn hafa aðeins þá einu skyldu að tjá það sem þeim býr í brjósti með þeim hætti sem þeim sjálfum þykir hæfa. Allt og sumt.

Þeirra síðasta áhyggjuefni ætti að vera hvort að kynjagleraugun sitji nú ekki alveg örugglega rétt á nefinu á þeim eða hvort að verk þeirra falli nú ekki alveg örugglega inní ramma pólitískrar rétthugsunar. Um leið og þeir fara að gera slíkt þá hætta þeir að vera listamenn og verða þrælar samtímaheimskunnar.

 

 

Haukdalurinn á þessvegna ekki að hlusta á þetta þurrkuntulega kynjafræðiprumphænsnapíp heldur bara að þurrka saursletturnar (brúnkuna) framan úr sér með handarbakinu og segja öllum þessum móðgunargjörnu fræðingum og fasystrum að stökkva á trambólíni beint uppí rassgatið á sér og skella í lás.

 

Við lifum á móðursjúkum tímum í ímynduðu feðraveldi.


Dyraverðir slegnir

Guðni með dyravörðumForseti Íslands hleypti inn dyravörðum í Bessastaði í síðustu viku. Tilefnið var að einn úr þeirra röðum var barinn fólskulega fyrir skemmstu á skemmtistaðnum Suckers i Austurstræti. Nafni þess staðar hlýtur fljótlega að verða breytt í Barinn.

 

Dyraverðirnir voru slegnir eftir árásina, þó ekki jafn rækilega og starfsfélagi þeirra, en þeir voru skiljanlega miður sín og þáðu því þetta boð forsetans þó erfitt sé að sjá hvað Guðni kallinn hafi að gera með einhver dyravörslumál önnur en kannski þau sem snúa að vínkjallaranum á Bessastöðum. En þetta fundarboð hans undirstrikaði náttúrulega hvað hann er nú obboslega góð manneskja og svo gasalega mikið svona “maður fólksins” og allt það, og þá er nú tilganginum náð.

 

Grín er ekkert gamanmál

Áður en lengra er haldið vil ég láta þess getið að ég er alfarið á móti því að gantast sé með alvarlega og viðurstyggilega hluti, svosem atburð sem þennan sem hér um ræðir, pyntingar, morð, hungursneyð, stórslys, femínisma, styrjaldir, vinstrifasisma, drepsóttir, kynjafræði, náttúruhamfarir, pólitískan réttrúnað, engisprettufaraldur, gróðurhúsa- og góðafólksáhrifin, RÚV, hryðjuverk, ESB, íslensku lífeyrissjóðina, islamsvæðingu Evrópu, umhverfismengun, glóbalisma o.s.fr.

Grín getur nefnilega verið dýrt spaug og spaug er ekkert grín.

 

Unnið baki brotnu

Ekki veit ég hvert var tilefni þessarar skelfilegu árásar á skemmtistaðnum Slaughters í Austurstræti en maður hlýtur að mega koma með tilgátur án þess að fólk snappi og fari að skalla veggi.

Kannski að dyravörðurinn hafi sagt við dólgana:

“Give me a hug.” 

Þessir útlendingar sem að árásinni stóðu hafa kannski bara kunnað eitthvað hrafl í ensku og íslensku og haldið að hann væri að meina: 

“Give me a högg.”

Þeir hafa ekki látið segja sér það tvisvar og hafið buffun þegar í stað.

Og þetta hefur komið í bakið á dyraverðinum.

En hvað veit ég? Ég var ekki á staðnum.

 

Leiðir til úrbóta

Guðni með buffiðHvað um það. Forsetinn setti eflaust upp buff í tilefni dagsins og saman skeggræddu þeir félagar ógnir og öryggi í borg óttans og leiðir til úrbóta í þessum mikilvægu málum sem forsetinn ræður nákvæmlega engu um.

 

En mér er spurn: Eru einhverjar raunhæfar leiðir til úrbóta? Er eitthvað sem getur komið í veg fyrir að dyraverðir séu rotaðir? Er til einhverskonar “rotvarnarefni”? Það held ég ekki. 

 

Rugbyhjálmur kannski? Nebb. Þá fá þeir bara spark í punginn og það er ekkert mikið þægilegra þó þeir rotist hugsanlega ekki við það. (Það er reyndar sagt að öll hugsun karlmanna fari fram þarna á neðri hæðinni). Rugbyhjálmur og punghlíf? Nebb. Þá fá þeir bara baseballkylfu í vömbina. Rugbyhjálmur, punghlíf og bumbupúði eða jafnvel skothelt vesti? Nebb. Þá fá þeir bara hníf eða kjötsax í lærið. Stálbrynja einsog riddarar notuðu í gamladaga? Nebb. Óþægilegur vinnuklæðnaður innanhúss og ekki beint traustvekjandi fyrir ímynd friðsæls skemmtistaðar.

 

Fleiri slæmar leiðir til úrbóta

Rimlabúr? Nebb. Dyraverðir verða að geta athafnað sig innanum fólk og gengið að leiðindapakki og barið það í gólfið og hent því í fallegum boga útá stétt. 

 

Rambo dyravörðurEr vopnvæðing dyravarða svarið? Það er spurning. Gefa þeim leyfi til að bera rafbyssu? Piparúða? Hnúajárn? Kylfu? Sleggju? Klaufhamar? Rambohníf? Öxi? Skógarsveðju? Keðjusög? Skammbyssu? Afsagaða haglabyssu? Hríðskotariffil? Handsprengju? Basúku? Eldvörpu? Dínamítstúpu?

 

Held ekki. Hætta á misnotkun og ofnotkun. Það er ekki bara holdsveikum sem er laus höndin. Sumir eru með stuttan kveikiþráð. Þetta gæti sprungið í andlitið á þeim.

 

Tilhvers að funda með forsetanum af öllum mönnum?

Vegna þess að forsetinn bauð þeim í heimsókn. Ekki flóknara en það. Afhverju bauð hann þeim í heimsókn? Af sömu ástæðu og hann fer í smábarnaafmæli útí bæ til fólks sem hann þekkir ekki neitt - af sömu ástæðu og hann hangir í biðröðum á pizzustöðum - og syndir í vinnuna - og horfir á fótboltastórleiki í 12 tommu svarthvítu túpusjónvarpi í einhverju mígleku illa þefjandi afdalafjósi útá landi, norpandi í sundurtættri hettuúlpu einsog fuglahræða, bryðjandi gaddfreðnar pulsur og útmíginn hákarl með sveitavargnum og þorpsfíflinu. 

 

Semsé: Vegna þess að hann vill verða alþýðlegasti forseti ever og til þess að svo geti orðið þá þarf hann að grípa hvert einasta tækifæri sem gefst til að skerpa þá imynd sína, meiraðsegja að boða til fundar með útkösturum um mál sem eru víðsfjarri því að vera á hans könnu.

 

Yfirdrifinn alþýðleiki

Um jólin má búast við að forsetinn fari að sjálfboðaliðast á pósthúsum við að sleikja frímerki fyrir fólk sem er að senda jólakort, nú eða að safna saman kerrum í Bónus eða að þrífa framrúðuna fyrir ökumenn á rauðu ljósi eða að leysa af í dyravörslunni á skemmtistöðum borgarinnar eða að hnýta bambuskörfur á Kleppi eða eitthvað svoleiðis.

 

Það er svosem alveg gott og blessað en fyrr má nú rota en dauðrota, svo maður noti nú viðeigandi orðalag. Ef fram fer sem horfir mun hann vinna gullið á Alþýðleikunum og slá landsmet Pírata í popúlisma. 

 

Forseti þjóðarinnar eða forseti stjórnvalda?

Guðni er hlýðinn og góður og vill gera öllum til hæfis, bæði alþýðunni, sem hann er í vinnu fyrir, og stjórnvöldum, sem skipa honum fyrir, jafnvel þó þau hafi ekki boðvald yfir forsetanum. Hann vill vera vakinn og sofinn yfir velferð allra landsmanna - ekki bara elítunnar og utanríkisráðherra sem hann hlýðir í einu og öllu og lætur meiraðsegja skipa sér að mæta ekki á HM í Rússlandi - heldur líka okkar starfsmanna á plani.

 

En málið er að menn í hans stöðu geta ekki haft tvo herra. Ólafur Ragnar Grímsson gerði sér grein fyrir því. Guðni þyrfti að fara að gera það upp við sig hvort hann ætli að vera forseti þjóðarinnar eða forseti stjórnvalda. Það ætti nú ekki að vera erfitt val fyrir svo alþýðlegan mann. 

 

Það mun koma í ljós þegar á reynir hvoru megin hryggjar hann raunverulega liggur, til að mynda ef hann fær til undirritunar plögg sem skerða fullveldi landsins og má í því sambandi nefna orkulöggjöf Evrópusambandsins sem um þessar mundir er verið að undirbúa að lauma í gegnum þingið. Sá grjótharði pakki felur í sér framsal ríkisvalds til alþjóðlegra stofnanna, fullveldisskerðingu, stjórnarskrárbrot, hálsbrot á gullgæs þjóðarinnar og hrein og klár landráð - freistingar sem þingmenn eiga afar erfitt með að standast.

Með hverjum mun alþýðlegi forsetinn standa þegar til kastanna kemur, stjórnvöldum eða þjóðinni?

 

Eru aðrir og fýsilegri ókostir í stöðunni?

Hefðu dyraverðirnir ekki alveg eins getað rætt þessi ofbeldismál við biskupinn? Hann ætti að vera orðinn ansi sjóaður í þessum málaflokki með alla þessa harðduglegu kófsveittu presta innan vébanda kirkjunnar sem eru í því að koma fermingarbörnum á kné. Eða einsog segir í málshætti mínum: Fermt barn forðast prestinn. Og sjálfur þekkir hann málin á eigin skinni ef eitthvað er að marka málsháttinn: Enginn verður óbarinn biskup.

 

Hugmynd DagsinsEn hefði ekki legið beinast við að funda með lögregluyfirvöldum eða borgarstjóranum og hans undirsátum?

Borgarstjórinn hefði reyndar ekki svarað beiðni um viðtal þar sem hann er á fullri ferð við að hægja á umferð, þétta byggð, þrengja götur, loka götum, þrengja að fólki, auka mengun, auka skuldir, auka leiðindin, stytta líf borgarbúa með auknum umferðartöfum, setja upp rauð gangbrautarljós á stofnbrautum, gefa grænt ljós á byggingu hótela á bílastæðum og kirkjugörðum, funda stíft um ókyngreind klósett, ulla á minnihlutann og gefa skynsemi langt nef í öllum málum.

Þess á milli er hann að dunda sér við að skrúfa fyrir fjárframlög til Fjölskylduhjálpar og dæla út 450 milljónum í endurbætur á brennivínsbragga í Nauthólsvík.

Kallinn er allur að "braggast."

 

 

Lögreglan alveg uppfyrir haus í stóru málunum

HatursorðræðaOg lögreglan er að sjálfsögðu upptekin með upptökutæki og headphone við að reyna að finna “hatursorðræðu” (rangar skoðanir) á Útvarpi Sögu þar sem orðið á að vera frjálst, og finna leiðir til að draga hinn stórhættulega raðspjallþáttastjórnanda og fjölda-orðingja Pétur Gunnlaugsson aftur fyrir dómstóla fyrir að hlusta á fólk tjá sig í opnum innhringitíma stöðvarinnar.

Þannig að kannski var ekkert annað í boði en að þiggja ímyndarboð forsetans.

 

Svona að endingu vil ég láta í ljós þá einlægu von mína að dyravörðurinn nái fullum bata og að ofbeldishrottarnir náist og hljóti makleg málagjöld. Kannski verða þeir ekki jafn borubrattir þegar þeir þurfa að fara að beygja sig eftir sápunni í sturtuklefa dýflissunnar.

 

 

Þessi grein birtist í Morgunblaðinu í gær, 8. september.


mbl.is Funduðu með forseta vegna árásar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óleikur íslenska varnarliðsins

Íslenska varnarliðiðÉg er ekki sammála þeim fjölmörgu knattspyrnusérfræðingum útum víða veröld sem segja að íslenska landsliðið sé það alleiðinlegasta tuðrulið sem hafi komið fram síðan sögur hófust. Þeir sem segja það hafa greinilega ekki séð argentíska liðið.

 

Vissulega er íslenskur fótbolti álíka mikið fyrir augað og Jóhanna Sig. en það eru til lönd og ríki sem toppa okkur í leiðindum og eru betri en við í að spila lélegan bolta, tildæmis Færeyjar, Grænland, Svalbarði, Vatikanið og Argentína.

 

Vasilyn ÚrkynEinn virtasti og glöggskyggnasti knattspyrnurannsakandi heims, séntilmaðurinn og prúðmennið Vasilyn Úrkyn frá Rússlandi, segir í nýútkominni greiningaskýrslu að íslenska landsliðið sé samansafn af hæfileikalausum himpigimpum, landeyðum og lúsablésum, kokhraustum kellingatuskudruslum, aumkunarverðum úrhrökum og örlagaaumingjum, tattóveruðum tröllheimskum tréhestum og tittlingatotturum og klúðrandi klunnum sem kunni ekkert nema að flækjast í eigin fótum einsog hrossaflugur og hanga í vörn og ríghalda um eistnalausan samanskroppinn punginn á sér einsog feimnir fermingadrengir í almenningssturtu.

Hann kannski orðaði þetta ekki nákvæmlega með þessum hætti en þetta er það sem hann vildi sagt hafa.

 

Hann segir að megin markmið þessara íslensku glötuðu grasbíta á HM sé að koma í veg fyrir að hin liðin geti leikið almennilega knattspyrnu. Það sé engin önnur hugsun á bak við óþolandi leik íslenska amatörliðsins. Þetta séu viðurstyggilega þreytandi slefandi slúbbertar og hörmungar hálfvitar og hann geti ekki beðið eftir að þeir láti sig hverfa af heimsmeistaramótinu og af yfirborði jarðar, beint ofaní rauðglóandi eiturspúandi eldfjöll sinnar daunillu djöflaeyju.   

 

Ég veit ekki með ykkur en mér finnst þessi góði maður taka aðeins of sterkt til orða. Hann kannski orðaði þetta ekki nákvæmlega með þessum hætti en þetta er það sem hann vildi sagt hafa.

 

MessiLionel Messi tók reyndar í sama streng þó hann notaði örlítið mildara orðfæri. Eftir jafnteflisleik Íslands og Argentínu sagði þessi almesti knattspyrnusnillingur allra tíma að strákarnir okkar væru eflaust góðar sálir en ekki alveg jafn góðir knattspyrnumenn. Þeir hefðu nánast ekki gert nokkurn skapaðan hlut, enda ekki færir um það. Þetta væru klunnalegir helfrosnir spýtukallar og leikstíll þeirra minnti á tilþrifalausan og langdreginn sundbolta hreyfihamlaðra hlandaula.

Þeir kynnu ekki að spila sín á milli og halda boltanum eins og menn. Sóknarleikur þeirra fælist í löngum og ómarkvissum innköstum og þess á milli hengju þeir í vörn með lífið í lúkunum og útglennt augun einsog dádýr í bílljósum.

En Messi kallinn gaf þeim samt prik og taldi að þeir myndu eiga möguleika á ólympíuleikum fatlaðra þegar fram liðu stundir.

Hann kannski orðaði þetta ekki nákvæmlega með þessum hætti en þetta er það sem hann vildi sagt hafa.

 

En hvernig skyldi nú standa á því að strákarnir okkar náðu jafntefli við þessa sögufrægu knattspyrnuþjóð, Argentínu, úr því að þeir eru svona glataðir einsog þessir góðu menn segja?

 

Fyrir utan agaðan og vel skipulagðan varnarleik þá er það nú meðal annars vegna þess að Argentína er með liðónýtt lið og handónýtan þjálfara, einhvern Jorge Sjampóolíu de Vito sem er dvergur í öllum skilningi. Sá samþjappaði stubbur verður að öllum líkindum þjappaður ennþá betur niður í skítinn að mótinu loknu. Jafnvel drepið í honum eins og hverjum öðrum sígarettustubbi.

 

Hannes og MessiOg svo var markmaðurinn okkar hann Hannes mjög oft rangur maður á röngum stað fyrir Messi. Hannes er mjög góður í að flækjast fyrir góðum leikmönnum og fá boltann í sig. Herra Lionel Messi og fröken Kristín Ronaldo ættu bæði að vita það. Oft eru markverðir markverðir menn.

 

En það var semsé ekkert meiriháttar afrek að gera jafntefli við þetta ótrúlega tuskulega lið Argentínu. Það var frekar hálfgert afrek að vinna þá ekki.

 

Það besta við strákana okkar er að þeir hafa þann hæfileika að geta áttað sig á takmörkuðum hæfileikum sínum og spila samkvæmt því.

Þeir vita manna best að varnarboltinn sem þeir spila er jafn leiðinlegur og þeir sjálfir en málið er að þeir eru ekki að reyna að skemmta fólki einsog einhverjir sirkusbangsar heldur eru þeir að reyna að sigra. Útá það gengur nú geimið einsog flest önnur geim.

Að spila leiðinlegan varnarbolta er þeirra eina leið til að vinna skemmtilegan sigur.

 

Það tókst ekki vel gegn Niggeríu og það er vegna þess að Niggería lokkaði íslenska liðið útúr varnarfylgsni sínu og fram á völlinn til að geta straujað auðveldlega yfir það. Þeir gerðu okkur smá óleik með marki og við lékum óleik það sem eftir lifði leiks. Vörn íslenska liðsins raknaði upp og fór útum víðan völl. Skamm!

 

Nú er bara að vona að Klóaksía lofi strákunum okkar að vinna því það ágæta land er komið uppúr riðlinum og þarf ekkert á sigrinum að halda. Bestu leikmönnum þess hefur verið gefið frí til að þeir verði vel reyktir og úthvíldir þegar kemur að alvöru leikjum við alvöru lið.

 

Þó að strákarnir okkar spili oftar sucker en soccer þá eiga þeir örlítinn séns. Ef það verður völlur á okkar mönnum á vellinum á þriðjudaginn þá gætu þeir hugsanlega marið þetta varamannalið. Tala nú ekki um ef þeir fá góðfúslegt leyfi hjá þeim til að vinna þá.

 

Messi í messiEn það er raunverulega undir hinum týnda og tröllum gefna Messi og hans vönkuðu félögum komið hvort við komumst uppúr riðlinum eður ei. Félagar hans hafa ekki ennþá áttað sig á að hann er með þeim í liði og sjálfur virðist hann ekki alveg viss um með hvaða liði hann er að spila en við skulum rétt vona að utangátta meistarinn komi í leitirnar og klári Niggeríu. Þó ekki of stórt. 

 

Var að gera hérna kurteislega hvatningarvísu til strákanna okkar:

 

Ef hugsum við ekki ferlega vel um vörnina

þá verðum við teknir af alefli í görnina.

Höngum því allir í andskotans djöfulsins vörninni

svo okkur líði betur í helvítis görninni.

 

Áfram Íshland!


mbl.is Náum alltaf að gera hið ómögulega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnmálahórerí

Viðreisn að störfumViðreisn er í lykilstöðu, sem vitað var. Heimsins mestu glópar gátu séð það fyrir.
Forkona flokksins, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir eðalkrati, sagði orðrétt í viðtali fyrir kosningar:

"Við munum selja okkur dýrt."


Þetta slagorð flokksins hefur hún margendurtekið síðan. Viðreisn er semsé til sölu einsog hver önnur klamedíugötumella og mun selja sig hæstbjóðanda, ef eitthvað er að marka orð hórumömmunnar.

 

Þó að borgarmeirihlutinn sé blessunarlega kolfallinn þá er hann það í rauninni ekki, ef maður lítur á þetta með rúllandi augum Dags B, og það er einfaldlega vegna þess að Viðreisn er til sölu, og Viðreisn er alveg nákvæmlega sama kláðamaursdræsan og Björt framtíð og Samfó.

 

Viðreisn boðaði breytingar. Ef að breytingarnar eiga að felast í því að viðhalda gamla kæsta meirihlutanum þá er nokkuð ljóst að þessi flokkur þarf að fara í endurmenntun.

 

Það er ekki beint hægt að segja að það sé mikil reisn yfir Viðreisn. Það verður hinsvegar að vera mikil reisn á þeim sem kaupir hana, því nú er það bara spurningin hvor kúnninn sé graðari og bjóði betur, Sjálfsæðisflokkurinn eða Samfylkingin - systurflokkur Viðreisnar.

 

Niðurstaðan verður því annaðhvort:

Sjálfstæðisflokkurinn, Miðflokkurinn, Flokkur fólksins og Viðreisn

eða áframhaldandi helvíti:

Samfylkingin, Píratar, Vinstri græningjar og Viðreisn, kannski með Sósíalistaflokkinn sem hjálpartæki ástarlífsins.

 

Og hvor niðurstaðan skyldi nú vera líklegri? Að mínu mati sú síðari og síðri og það er nú bara vegna þess að Viðreisn og Samfó er sami ruslflokkurinn - sama horið í sitthvorri nösinni.

  

Þó að "stjórnmálafræðingar" segi að Viðreisn sé hægriflokkur og partur af Sjálfstæðisflokknum þá er einsog þeir átti sig ekki ennþá á að þessir seinfæru pólitísku flóttamenn yfirgáfu Sjálfstæðisflokkinn vegna þess að þeir voru hreinræktaðir júrókratar og pjúra ratar og áttu í raun aldrei að vera í Sjálfstæðisflokknum.

 

Ef að Sjálfsæðisflokkurinn ætlar að kaupa þessa Viðreisnarviðreynslumellu þá þarf hann að bjóða henni stól forseta borgarstjórnar eða borgarráðs eða eitthvað álíka. Hann þarf að troða milljónum í brjóstaskoruna og fylla vel uppí öll göt því að þetta er jú ofurmella sem ætlar sko að selja sig dýrt einsog yfirpimpinn orðar það.

 

Inga Sæland, formóðir Flokks fólksins, gaf það út í sjónvarpinu strax eftir kosningar að hún væri ekki síðri pimp en forkvendi Viðrekstrar og að hún styðji bæði Dag B. og Eyþór Arnalds og henni sé í raun sama hvort að hennar netadræsur liggi vinstra eða hægra megin í bælinu. Þessvegna er þriðji möguleikinn í sjónmáli þó ólíklegur sé:

Samfylkingin, Píratar, Vinstri græningjar, Sósíalistaflokkurinn og Flokkur fólksins.

 

Þessi möguleiki gefur Degi B. skárri stöðu gagnvart Viðreisn því nú getur hann sljákkað í heimtufrekju hennar með vísun í aðra þurfandi skotgrafamellu bíðandi í ofvæni við rúmgaflinn. 

 

En þetta er reyndar afar ólíkleg lending því Sósíalistar virðast gera sér grein fyrir því að niðurstaða kosninganna var ákall um breytingar og uppstokkun. Flokkur fólksins hlýtur sömuleiðis að fatta að ef hann fer í þetta grálúsuga góðafólksrassriddarahópsex þá fær hann aids og er búinn að vera. Það er hinsvegar ekki víst að Viðreisn skilji þetta.

 

Samfó tapaði 6% atkvæða og VG helmingi atkvæða. Þetta hroðalega leiðinlega gallsúra partý sem hófst fyrir 8 árum ætti því að vera búið en ég er alveg handviss um að Dagur átti sig ekki á því og reyni allt til að halda því gangandi.

 

Sósíalistaforinginn Gunnar Smári vill meina að Sjallar og Samfó muni fari í eina sæng saman en ég hef ekki trú á því. Borgarbúar myndu drulla og æla hver um annan þveran þannig að borgin yrði í ennþá dýpri skít en hún er nú þegar.

 

Miðað við niðurstöðu kosninganna þá ætti spurningin einfaldlega að snúast um það hversu mikið Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að gefa eftir og hversu miklu hann þurfi að punga út til að fröken Viðreisn ofurmella geti talist happy hooker. Kannski að hann þurfi að taka kúlulán hjá Þorgerði.

 


mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn stærstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Minningarorð um Arnar S. Helgason, tæknimann

Fæddur 6. apríl 1973 og lést 20. mars 2018

 

Arnar Sigurður HelgasonÞað eru rúm 25 síðan ég kynntist Adda. Hann var þá að vinna með bróður mínum í Kassagerðinni á öflugum lyftara. Addi þótti fyrirtaks lyftaradræver en átti það til að sofna undir stýri og keyra hrjótandi í gegnum skilrúm og veggi og hafna með gríðarlegu brambolti á háum kassasamstæðum og grafast undir hrúgum af drasli. Verkstjórinn var af gamla skólanum og vildi frekar að menn notuðu dyrnar til að komast á milli sala. Addi gat í raun lyft öllu á þessari vinnuvél nema augnalokunum. Hann skipti því um gír og fór í rafvirkjun og var vakinn og sofinn við ýmis störf tengd því fagi meðan honum entist heilsa til. Hann var tæknimaður á hinum ýmsu útvarpsstöðvum, nú síðast á Útvarpi Sögu þar sem hann gerði gott mót undir styrkri yfirstjórn Arnþrúðar Karls, sem hann bar mjög vel Söguna og hún honum.

 


Adda þótti margt leiðinlegra en að fá sér soldið í svanginn. Heilsufæði var hans ær og kýr. Ær og kýr voru hans heilsufæði. Hrifnastur var hann af svokölluðum örorkumat sem uppistóð af næringaríkri glútenlausri hollustu einsog unnum kjötvörum og hvítu hveiti. Kanínufóður vildi hann ekki fyrir nokkurn mun láta inn fyrir sínar varir en kanínum gat hann hinsvegar sporðrennt í massavís með eyrunum og öllu saman.

 


Þar sem hann var mikill smekkmaður á mat og vín og vildi eingöngu hágæða hráefni þá leið honum best sultuslökum á bolnum uppí sófa fyrir framan sjónvarpið með lafandi pizzusneið í annarri og löðursveittan hamborgara í hinni og svellkaldan freyðandi öllara í lítrakrús á borðinu, horfandi aðdáunaraugum á lífskúnstnerinn og idolið Homer Simpson gúffa í sig pizzum og hamborgurum og svolgra í sig bjór fyrir framan sjónvarpið.

 


Greiðviknari maður en Addi var vandfundinn. Hann var alltaf boðinn og búinn að veita fólki liðsinni, oft óumbeðinn að fyrra bragði þegar hann sá að hann gat komið að gagni. Hann var mikill reddari og var aldrei að benda á klukkuna til að minna á að hann hefði nú annað við tímann að gera en að hugsa um náungann. Hann var alveg blessunarlega laus við alla þessa frægu alkafræðifrasa um að menn eigi fyrst og fremst að elska sjálfa sig og sinn dýrmæta tíma og sitt mikilsverða rassgat.

 


Í dag er í tísku að vera veinandi fórnarlamb með hortauma niðrá bringu og grenja útúr fólki samúð og athygli, en aldrei heyrði ég Adda barma sér yfir nokkrum sköpuðum hlut, hvorki hrörnunarsjúkdómnum sem hann gekk með (eða haltraði með öllu heldur) né yfir annarra manna ófullkomleika. Hann áleit sjálfan sig ekki gallalausan engil og taldi ekki að allt væri öðrum að kenna. Hann nennti engu sjálfsvorkunnarpípi. Hann nennti hinsvegar að endasendast eins og þeytispjald um bæinn þveran og endilangan til að gera mönnum greiða og snatta og snúast fyrir Pétur og Pál, jafnvel fyrir fólk sem kunni ekki að meta hjálpsemi hans og góðmennsku.


Það var ekki vottur af óheilindum og skítmennsku í hans barnslegu og hrekklausu sál. Hann var gegnheilt ljúfmenni. Góður vinur vina sinna. Einn besti drengur sem ég hef kynnst.
Fjölskyldu hans og ástvinum færi ég innilegar samúðarkveðjur.

 

 

(þessi minningargrein birtist í Morgunblaðinu í morgun).


Afmæliskveðja til Davíðs Oddssonar

Davíð og StormskerInnilega til hamingju með afmælið kæri vinur. Vona að þú verðir eldri en Mogginn og jafnvel eldri en Jóhanna Sig, svo langt sé til seilst.

 

Megi hann Davíð lengi lifa
og leiðbeina þjóð sem er skökk og hálf
og sveittur í Moggann sannleikann skrifa.
Sagan skrifar sig ekki sjálf.

 

Morgunblaðið er mannvitssjóður,
manni kemur á lappir.
Mogginn er déskoti dúndur góður
en Dabb’er samt betri pappír.

 

Bestu afmælis- og nýárskveðjur,
Sverrir Stormsker


Séntilmaðurinn Gunnar Nelsson

Nelsson og JúbanÞað skal tekið fram að ég hef ekkert vit á þessari MMA íþrótt og veit ekkert um hvað þetta sprikl snýst en ég vona samt að mér leyfist að lýsa upplifun minni af leiknum í gær á milli þeirra Gunnars Nelssonar og Alans Júban eða hvað hann nú heitir sá ágæti maður.

 

Margir vilja meina að þetta sé ekki íþrótt heldur bara ógeðslegt ofbeldi og pjúra villimennska. Ég get ekki lagt neinn dóm á það þar sem ég veit ekkert útá hvað þetta gengur og hef aldrei horft á þetta áður en ég get þó sagt það að þessi leikur í gær á milli Gunnars Nelssonar og Anals Túrban sýndi og sannaði, allavega fyrir mér, að MMA getur seint talist til ofbeldisíþrótta.

 

Leikurinn byrjaði þannig að þeir félagar dönsuðu við hvorn annan í níðþröngum nærbuxum einum fata í nokkra stund. Mér fannst þetta frekar vandræðalegt en ákvað samt að horfa áfram og gefa þessu séns.

 

Gunnar var frekar ágengur og dansaði þétt uppvið gæann en Anal Jogvan færðist undan og vildi greinilega fá að vera í friði. Gunnar hélt áfram að elta Anal um dansgólfið og áreita hann og stugga við honum og pota í hann alveg þangað til það fauk í Anal og hann hreinlega sparkaði í Gunnar. Gæinn greinilega ekki alveg í andlegu jafnvægi.

 

Ég var mjög hissa á þessum harkalegu viðbrögðum Anals en Gunnar virtist ekkert kippa sér upp við þetta og hélt áfram að dansa og hoppa í kringum Anal og ýta við honum og dangla í hann og pirra hann á alla lund. Ekki veit ég afhverju en kannski að það sé hluti af leiknum að vera með smá stæla og leiðindi. Ekki spyrja mig.

 

Gólffélagarnir Gunnar og AnalSvona hélt þetta áfram þangað til þeir voru orðnir vel heitir og rjóðir í kinnum. Þá allt í einu skrikaði Anal fótur og var alveg við það að detta en Gunnar greip hann í fallinu og forðaði honum frá meiðslum og lagði hann mjúklega á gólfið. Gunnar lagðist ofaná Anal og þeir fóru að láta vel hvor að öðrum og skiptast á svita og hvísla einhverju í eyra hvors annars sem ég heyrði ekki.

 

Ég leit undan því mér fannst þetta orðið aðeins of persónulegt og eitthvað sem mér kæmi ekki við – þetta væri þeirra einkamál - en ég ákvað að harka af mér og taka þessu eins og fordómalaus hvítur miðaldra ófatlaður forréttindakarlmaður og halda áfram að horfa til að vera viðræðuhæfur um þessa íþrótt þó ég hafi reyndar aldrei verið par hrifinn af rómantískum ljósbláum myndum.

 

Einmitt þegar fjör var farið að færast í leikinn þá klingdi í bjöllu og dómarinn sagði þeim að slaka aðeins á og kæla sig niður og fara í sitthvort hornið svo að þessi sýning yrði ekki bönnuð innan 16 ára. Sminkurnar þeirra í horninu þurrkuðu af þeim svitann, púðruðu þá í framan, settu á þá augnskugga eða eitthvað og helltu ísmolum oní nærbuxurnar.

 

Í annarri lotu æstust leikar og leikmenn enn frekar. Anal Súpan, eða hvað hann heitir nú annars sá ágæti maður, þykir nú ekki beint á pari við Einstein og því ákvað Gunnar að reyna að koma vitinu fyrir hann og hrista aðeins upp í hausnum á honum með því að gefa honum smá vink. Eða kannski að Anal hafi spælt Gunnar með orðum eins og: "Heyrðu elskan, við skulum bíða meðetta þangað til í fyrramálið uppá hótelherbergi. Ég er með hausverk."  Ég bara hreinlega veit það ekki. Allavega sló Gunnar til hans og það var kannski ekki mjög íþróttamannslega gert í leik sem þessum en það er sama. Ætli hann hafi ekki bara verið að svara fyrir sparkið sem hann fékk í fyrstu lotu. Hvað veit ég? Þetta var allavega ekki gert til að meiða hann því hann miðaði á gagnaugað á honum en ekki beint á trýnið.

 

KlofbragðÞetta kom Anal mjög á óvart og hann vissi ekki í hvorn fótinn hann átti að stíga og í sömu svifum stökk Gunnar Níelsson einsog kirkjuslanga á Anal og vafði arminum nokkra hringi um háls hans og faðmaði hann þétt að sér. Svo vöðlaði hann honum saman og sneri uppá hann allan þannig að andlit Anals var eins og harmonikka í klofi Gunnars. Þetta er víst kallað klofbragð og Anal fékk að finna það.

Næst þegar hann fer útí ísbúð þá biður hann örugglega um sjeik með klofbragði. (Smá djók).

Ég verð að segja að ég hef aldrei séð aðrar eins aðferðir í nokkurri klámmynd og er ég þó búinn að sjá þær margar.

 

Á þessu augnabliki hélt ég að leikurinn væri fyrst að hefjast fyrir alvöru en kemur þá ekki einhver afskiptasamur leiðinda siðgæðisvörður askvaðandi inná dansgólfið og slítur þá úr faðmlögunum og baðar út höndunum einsog vitfirringur til merkis um að þetta sé alltsaman búið og það sé ekkert meira að sjá.

 

Það fannst mér einkennilegt helvíti því rétt áður en hann flautaði leikinn af þá þuklaði hann af ákefð á rassi Gunnars (eins og sjá má á mynd) og handlék kinnarnar fagmannlega eins og hann hefði aldrei gert neitt annað um sína daga, þannig að þessi dúddi hafði nú ekki beint efni á að vera að leika einhverja siðgæðislöggu.

 

Hvað um það. Í morgun sá ég viðtal á útlensku við Gunnar um leikinn. Þar spurði einhver ofbeldissinnaður blaðamaður Gunnar að því afhverju hann hefði ekki kýlt Anal sundur og saman og flatt út á honum smettið í restina þegar hann hafði kjörið tækifæri til þess.

 

Ég skildi ekki þessa spurningu og líklegast ekki Gunnar heldur því hann svaraði eitthvað á þá leið að það hefði ekki verið nein ástæða til þess - Anal þessi Rjúpan væri myndarlegur náungi og ynni fyrir sér sem ljósmyndafyrirsæta og nærbuxnagína og jakkafataherðatré og því engin ástæða til þess að vera að hræra eitthvað í andlitinu á honum – og sem friðelskandi og umhyggjusamur maður hafi hann því ákveðið að hengja hann.  "Það er hreinna og fallegra en að vera að djöflast á honum eins og graður hundur," sagði Gunnar.

 

Það er rétt. Það var alveg kominn tími til að hann hætti því. Það er nefnilega svo mikið mikið hreinna og fallegra og hjartnæmara að hengja menn og kyrkja þá með berum höndum en að djöflast og riðlast á þeim eins og spólgraður hundur eða hjólgraður karlmaður. Það þarf ekkert að deila um það. 

 

En jæja, ég er allavega einhverju nær um þessa íþrótt þó ég misskilji hana kannski eitthvað ennþá. Get allavega sagst hafa horft á einn leik og ég verð að segja að ég er bara alveg ágætlega ánægður með þetta erótíska sport þó það mætti kannski vera aðeins meira um smá pústra og átök og svoleiðis í þessu og minna um faðmlög og knús.

Ég hef ekki hugmynd um fyrir hvað skammstöfunin MMA stendur en ég myndi skjóta á: Mannúð. Munúð. Aðgát.


mbl.is Magnaður sigur Gunnars (myndskeið)
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Píratar eru alveg geðveikt kúl

Pírasni slakar á í vinnunniÍ fréttum er þetta helst:

Gunnar Hrafn Jónsson, þingmaður Pírata, snýr aftur til starfa eftir að hafa verið í veikindafríi á Kleppi (útibúi Alþingis) frá því í desember.

Hann hyggst beita sér fyrir bættu aðgengi geðveikra að helstu valdastofnunum landsins og jafnframt fjölgun vinnustaðasálfræðinga.

Hann mælir eindregið með því að þingmenn fái sér vel launað aðalstarf samhliða þingmennskunni - til dæmis hjá Geimvísindastofnun Evrópu - svo þeir hafi efni á að kaupa sér íbúð eða eitthvert þolanlegt mý-greni.

„Sko, við Pírapar erum engir asnar. Geðsjúklingar eru líka fólk,“ sagði Gunnar um leið og hann strauk sér um makka og fax.


Vondi kallinn Trump og Íslandófóbía háttfirrtra þingmanna

Trump er Hitler. EinmittGríðarleg móðursýki hefur gripið um sig eftir að Adolf Hitler - en svo kalla vinstri öfgamenn Donald Trump - setti 90 daga bann við komu fólks frá nokkrum vara- og vafasömum ríkjum sem að mestu heyra undir alræðisstefnuna Íslam.

Flest þessi ríki eiga það sameiginlegt að hafa verið bombarteruð af Obama, friðarverðlaunahafa Nóbels, og því var talið líklegt að þau væru ekki í sjöunda himni með það og vildu hugsanlega svara fyrir sig á sínu tungumáli - með hryðjuverkum. Þessi ríki voru því ekki valin af handahófi. Obama sá um þetta á sínum tíma og enginn sagði neitt við því.

 

Trump var ekkert að finna upp hjólið í þessum efnum. Hann uppgötvaði ekki harðar reglur í innflytjenda- og varnarmálum. Vestræn ríki eru hvert af öðru að vakna upp af óværri þyrnirósarmartröð og taka upp strangari landamæragæslu, gott ef ekki öll, nema Ísland að sjálfsögðu.

Vissulega er Trump stórtækur í þessu sem öðru og situr ekki við orðin tóm. Það finnst mörgu góðu fólki mjög slæmur ókostur.

 

Kosningarnar eru búnar. Skiljú?

LibtardFjölmargir Bandaríkjarforsetar hafa sett svipuð ferðabönn á undan Trump og enginn hefur gert óveður út af því en þar sem Trump á í hlut þá er náttúrulega um að gera að reita og tæta hár sitt og skegg og öskra afar vinsæl blótsyrði eins og „fasisti rasisti nasisti kvenhatari“ og ganga alveg af göflunum og hnífunum.

 

Það þarf varla að taka það fram að þessi móðursýki er að megninu til í höfðinu á vinstrimönnum sem hata kallinn einsog pestina og prestana og geta með engu móti sætt sig við að hann hafi sigrað óspilltu friðardúfuna hana Hillary í lýðræðislegum kosningum eftir þeim leikreglum sem gilda í USA. Á ensku heitir þetta að vera libtard, en það orð er samsett úr orðunum liberal (frjálslyndur) og retard (þroskaheftur).

 

Íslamófóbía - Nasismófóbía. Einhver munur?

Svefnlaus nóttMóðursýkin er komin á það alvarlegt stig að nú segjast Píratar ekki lengur geta sofið á nóttunni sökum angistar og þeir sjá eld og brennistein og gasklefa í hverju horni og eru með klærnar fastar uppí sér í vitfirringslegri skelfingu og sængina breidda uppfyrir haus - titrandi og skjálfandi í rækjustellingu - muldrandi í svitakófi og óráði að nú sé heimsendir í nánd því vondi kallinn hann Trump (Hitler) ætli sér að sprengja okkur öll í loft upp. Svo gægjast þeir undir rúmið með geðveikislegan hræðsluglampa í augunum til að athuga hvort að skrímslið hann Trump (Hitler) sé nokkuð mættur á svæðið.

 

Fake newsVinstrimenn verða að fara að róa sig. Slaka aðeins á. Taka valium eða svefnpillu eða arsenik eða eitthvað.

Það er Hillary en ekki Trump sem vill stríð við Rússa. Það var Hillary en ekki Trump sem talaði Obama inná að sprengja Líbýu í tætlur. Obama friðarhöfðingi var í stríði hvern og einn einasta dag sem hann sat á forsetastóli en Trump hefur hinsvegar ekki farið í stríð við neinn ennþá - nema hvað hann mun alveg örugglega taka blessuðu englana í ISIS í bakaríið - svo farið nú að anda með rananum kæru óttaslegnu taugabiluðu vinstri öfgamenn hvar í flokki sem þið standið og hættið að gleypa allt hrátt sem stendur í falsfréttamiðlunum ykkar og látið af angist ykkar og andúð og taumlausu hatri og ofsa og ofstæki og grynnkið aðeins á þráhyggjukenndri heiftúðugri hatursorðræðu ykkar sem þið eruð alltaf að ásaka aðra um að viðhafa. Þið verðið að fara að láta af þessari nasismófóbíu ykkar svo þið öðlist svefnsamar nætur.

 

Vinstriflokkarnir 3 - Gísli, Eiríkur og Helgi

Vinstrimenn, Gísli, Eiríkur og HelgiÉg er náttúrulega að tala við vegg (múr) því nú hafa vinstriflokkarnir 3, semsé Vinstri græningjar, Samfylkingin (þriggja manna „fylking“) og systurflokkur þeirra – Píratar - tekið sig til og drullumallað gjörsamlega tilgangslausa þingsályktunartillögu þar sem tilskipun Trumps er harðlega mótmælt og farið fram á að „Alþingi fordæmi og saki Bandaríkjaforseta um fordæmalausa mannfyrirlitningu og fordóma,“ eins og þeir orða það svo fágað og fordómafullt. Popúlisminn og pólitíska rétthugsunin í algleymingi.

 

Ef það á að vera eitthvað samræmi í þessu óráði þeirra og ofstæki og ef þeir ætla að vera sjálfum sér samkvæmir þá verða þeir einnig að senda harðorð mótmæli til þjóðhöfðingja Japans, Austurríkis, Ungverjalands, Póllands, Slóveníu, Króatíu o.s.fr. en öll þessi ríki hafa verið mun harðari í innflytjendamálum og landamæravörslu sinni en Bandaríkin.

En munu þeir gera það? Nebb. Hversvegna ekki? Sumir myndu segja að það væri vegna þess að þeir væru libtard, en það er bara hluti af skýringunni. Annað brot af skýringunni er inngróin kommalufsuhræsni og eðlislægur popúlismi stefnulausra rekalda.

Það er t.d. mikill misskilningur hjá Sjálfstæðisflokknum að halda að það sé til fylgisaukningar og vinsælda fallið að stökkva uppá bögglabera vinstri öfgaflokkanna og þeirra úrelta útrunna útbrunna pólitíska rétttrúnaðar. Svoleiðis reiðhjólatúr er dæmdur til að enda útí skurði.

 

Trumpófóbía

Umburðarlyndir frjálslyndir vinstrimennEn fyrst og fremst beinast mótmæli háttfirrtra þingmanna og fordæmalaus mannfyrirlitning og fordómar þeirra eingöngu gegn Trump vegna þess að þeir hata hann út af lífinu og orðræðan eftir því. Hann stendur fyrir allt sem þeir hata og svo snúa þeir hatri sínu á honum yfir á hann sjálfan og segja að hann sé kvenhatari og kynþáttahatari o.s.fr. Tóm vitleysa og rugl. En það er ansi margt sem þeir hata við hann:

 

Hann er t.d. ekki femínisti. Hann er ekki hálfviti (sem er mjög slæmt því ef hann væri það þá væri hann hugsanlega femínisti). Hann er kjaftfor ráðríkur ákveðinn og óheflaður (ruddaleg týpa með vonlausan tónlistarsmekk). Svo er hann að sjálfsögðu Hitler með afrakaða hormottu og uppfærða hárgreiðslu. Hann er ómútanlegur (það hlýtur að hneyksla Hillary). Hann er öðruvísi (allir verða að vera eins í dag). Hann stendur við kosningaloforð sín og er snöggur að því (algerlega ófyrirgefanlegt). Hann er ekki kelling í neinum skilningi. Hann er með pung í öllum skilningi. Hann er ekki pólitískt rétthugsandi viðrini (skelfilegt. Hvert er þessi heimur eiginlega að fara?). Hann tengir saman öfgaíslam og hryðjuverk (öfugt við Hillary og Obama sem þorðu aldrei að nefna öfgaíslam á nafn og hvað þá að fordæma hryðjuverk íslamista). Hann er hreinskilinn og segir hug sinn umbúðalaust án fílters og án tillits til hvort það falli í kramið eða ekki (öfugt við popúlista). Hann þorir að vera hann sjálfur (glæpur). Hann hefur heilbrigða þjóðerniskennd (en það er bannað í dag og er kallað þjóðremba). Hann vill landi sínu og þjóð allt hið besta og vill verja landamærin mynduglega (öfugt við vinstrimenn). Hann gerir sér grein fyrir að galopin landamæri þýða eyðileggingu þjóðríkisins. Hann vill ekki að land sitt fari til helvítis eins og Evrópa stefnir hraðbyr í undir forystu Merkel. Hann er semsé ekki dæmigerður vestrænn stjórnmálaslúbbert.

 

Menn hafa nú verið hataðir fyrir minna en þetta. Og svo er hann með hárgreiðslumeistara sem hlýtur að vera mikill húmoristi.

Auðvitað er kallinn egóisti, klámkjaftur, frekur, hefnigjarn, gráðugur, móðgandi, ögrandi, „karlrembusvín,“ en svo hlýtur hann líka að hafa einhverja ókosti því enginn er fullkominn.

 

Hagsmunir Íslands aukaatriði að venju

SósíalistarHvaða árangri vilja vinstriflokkarnir ná með þessari þingsályktunartillögu sinni og fordæmingu og formælingum? Hverju vilja þeir ná fram? Halda þeir að þetta komi Íslandi vel? (Það finnst þeim náttúrulega aukaatriði enda haldnir Íslandófóbíu). Halda þeir að þetta bæti samskipti ríkjanna? (Aukaatriði. Íslandófóbían). Halda þeir að Trump breyti stefnu sinni vegna þessa?

Ég þykist vita að þeir séu að slá sig til réttlætisriddara með þessu dómgreindarlausa tilfinningalega frumhlaupi sínu en halda þeir virkilega að Trump segi við ráðherrana sína skjálfandi röddu:

 

„Ég var að fá hérna fordæmingu og svívirðingar frá Alþingi Íslands og það þýðir að ég verð að hætta þessum komubannspælingum einn tveir og bingó. Ég er lamaður af ótta og er alveg við það að spræna í buxurnar og gubba af stressi. Ég veit að þið hafið aldrei heyrt á Ísland minnst en ég get sagt ykkur það að Ísland er smáhólmi norður í rassgati með nokkrum hræðum. Við byggðum handa þeim flugvöll og höfum varið þá í um 7 áratugi endurgjaldslaust. Þingmenn þessa eyjakrílis eru ofboðsleg gáfnaljós og vammlausir stálheiðarlegir óspilltir siðavandir réttlætisriddarar og eru gríðarlega áhrifamiklir í alheiminum þannig að það er mjög mikilvægt að hafa þá góða. Ég er hættur við öll áform um ferðabann og ég verð að fara að ganga í brúnum buxum svo það sjáist ekki þegar ég drulla á mig úr hræðslu.“

 

Ekki vaxa dvergar yfir höfuð

ChurchillEru þetta viðbrögðin sem vinstrivitringarnir búast við? Ef ekki, til hvers eru þeir þá að þessu?

Árangurinn af svona óráðstillögu verður að liggja fyrir. Það þarf engan stjórnvitring til að sjá að þetta vanhugsaða tilfinningalega óðagot mun engu skila nema fullkomnu antípati valdamesta manns heims á okkur. Trump er ekkert að fara að taka við fíflalegum umvöndunum og formælingum einnar spilltustu þjóðar Evrópu með brosi á vör án þess að svara með rothöggi til baka eins og hann er frægur fyrir. Það er kýrskýrt.

 

Það er nú þegar búið að eyðileggja móralinn milli Íslands og Rússlands með þátttöku okkar í fáránlegu viðskiptabanni og nú á að myndast við að rústa vinskapnum milli Íslands og Bandaríkjanna, sem alltaf hafa reynst okkur vel, rétt eins og Rússland.

 

Hjálp. Við erum ósammála manninumFyrir rúmu ári stakk borgarstjórinn í Reykjavík uppá því að sniðganga vörur frá Ísrael, sem var náttúrulega gaga, og um svipað leyti toppaði kafteinn Pírata hann í ruglinu með sniðgöngutillögu á Kína og sagði:

„Ég legg til að við skoðum innkaupastefnu Alþingis um það hvort við eigum að kaupa vörur frá Kína.“

 

Hvað er að? Mikilmennskubrjálæði? Veruleikafirring? Eigum við ekki bara að slíta öll tengsl við umheiminn og fara að búa í leðurblökuhelli í öllum okkar heilagleika úr því að siðferði okkar er á svona líka miklu hærra plani en allra annarra? Hvað höldum við eiginlega að við séum? Íslendingar verða að fara að fatta að þeir eru dvergar í dvergríki og hafa ekki beint úr háum söðli að detta í neinu tilliti. Dvergar stækka ekkert við það að tylla sér á tá og reyna að breiða úr sér

 

Trump er ekki Hitler. Óhætt að fara að sofa

SkoðanakönnunÞað vill gleymast að meirihluti Bandaríkjamanna styður forseta sinn í þessu máli og svo má geta þess að samkvæmt nýrri viðamikilli breskri skoðanakönnun kemur fram að meirihluti fólks í 10 ESB löndum vill alfarið stöðva innflutning fólks frá löndum múslima. Ekki tímabundið eins og Trump er að gera heldur varanlega og alfarið.

 

Draumur vinstrimannaÞessi 10 vondu ESB lönd kunna greinilega ekki að meta góða „fjölmenningu“ og nútímalega sharia dómstóla. Hvað ætla háttfirrtir vinstriþingmenn á Íslandi að gera í því? Krefjast viðskiptabanns á þau? Sniðganga vörur frá þeim? Fordæma þessar þjóðir og gangsetja sína dæmigerðu hatursorðræðu gegn þeim og úthrópa þær sem rasista og fasista? Heimta að þær taki við fólki frá löndum múslima með góðu eða illu og raði því á 5 stjörnu hótel á kostnað skattgreiðenda eins og gert er á Íslandi?

 

VinstripressanTraust og virðing Alþingis mælist skiljanlega í frostmarki en samt halda þessir óhæfu óvitar að þeir séu þess umkomnir að skipta sér af innanríkismálum Bandaríkjanna og vanda um fyrir Bandaríkjaforseta með blammeringum og fasistauppnefningum og segja honum til í þjóðaröryggismálum og jafnvel í fóstureyðingarmálum. Síðan hvenær fór rottan að hafa efni á að halda siðaprédikun yfir fílnum? Á hún ekki að vera að taka til í sinni illa þefjandi rottuholu?

 

Háttfirrtir þingmenn eru með allt í rusli hér heimafyrir í öllum málaflokkum og með allt niðrum sig og saursletturnar langt uppá hnakka en halda samt að þeir séu akkúrat réttu mennirnir til að segja Trump hvernig hann eigi að stjórna landi sínu.

Hvað eru þessir jólasveinar eiginlega að reykja? Þurrkaðan grameðluskít? Finnst þeim þeir virkilega hafa efni á að leika einhvern Tarzan útí heimi? Þessi gúmmí Tarzan er ekki einusinni í skýlu eða með bleyju. Hann er ekki apabróðir heldur bara apaköttur.

 

Ísland fyrst

Trumpurinn góðurSvo lengi hafa værukærir krónískir vinstrimenn legið maríneraðir í sínum pólitíska rétthugsunarsora eins og klóakrottur að það er ekki nema von að þeir fái hland fyrir hjartað þegar fram kemur harðduglegur sjálfstætt þenkjandi hreingerningamaður sem lætur hendur standa fram úr ermum og fer að skrúbba allt hátt og lágt.

 

Ef þessir háttfirrtu þingmenn vilja fordæma forseta Bandaríkjanna og saka hann um mannfyrirlitningu og fordóma og rasisma og fasisma og þessháttar ekkisensdellu og prumphænsnapíp þá eiga þeir að gera það í sínu eigin nafni, ekki í nafni Alþingis eða þjóðarinnar - en það er örugglega til of mikils mælst. Þetta eru nefnilega að uppistöðu til sömu flokkarnir og vildu að við borguðum Icesave og slóu tjaldborg um heimilin. Þeir virðast haldnir Íslandófóbíu á mjög háu stigi.

 

Þessir háttfirrtu þingmenn mættu gjarnan taka Trump sér til fyrirmyndar og fara að setja hagsmuni eigin lands og þjóðar í fyrsta sæti. Það væri tímabær tilbreyting. Til þess voru þeir kjörnir og til annars ekki - þó þeir skilji það greinilega ekki ennþá.

 

Til að taka ómakið af góða og gáfaða fólkinu með réttu skoðanirnar þá skal ég titla mig með ofnotuðustu blótsyrðum þess::

 

Sverrir Stormsker

Höfundur er rasisti, fasisti, nasisti, kvenhatari og miðaldra hvítur karlmaður.

 

 

(Þessi grein birtist í Morgunblaðinu í morgun).


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband