Prófessjónal amatörar

 

Stuttu eftir að ákveðið var að kjósa til stjórnlagaþings sagði ég í útvarpsviðtali:

islenskur inspector klúsó"Mér líst vel á að þjóðin fái að velja sér fólk utan flokka til að setjast á þetta stjórnlagaþing þar sem jú stjónmálamenn hafa sýnt undanfarna áratugi að þeir eru ekki hæfir til verksins. En ég er ekki í nokkrum einasta vafa um að okkur mun takast að klúðra þessu gjörsamlega, annaðhvort vegna þess að niðurstaða þingsins er ekki bindandi sem þýðir að stjórnmálamenn munu útvatna þetta og fara að krukka í þetta með öllum sínum þumalputtum eða vegna þeirrar einföldu ástæðu að Íslendingar eru jú óneitanlega prófessjónal amatörar, hreinir og klárir sérfræðingar í klúðri, fúski, fljótfærni, spillingu og heimsku. Eiginlega á öllum sviðum. Sama hvar maður drepur niður fingri. Um það eru til grilljón vitnisburðir. Ef þú stingur puttanum út um gluggann þá færðu hann drulluskítugan til baka. Ísland er eitt stórt graftarkýli. Það þarf að stinga á því, en það verður því miður aldrei gert. Svínum líður nefnilega best í stíunni."

Svo mörg voru þau orð. Læt hér fylgja með frumsamið lag af nýju plötunni minni "Látum verkinN tala" sem kom út á Þorláksmessu. Lagið heitir Þjófabálkur og fjallar um álit ömmu minnar sálugu, Kristínar Ásgeirsdóttur frá Fróða, á okkur Íslendingum. Þess má geta að hún að sagði 20 árum fyrir hrun að þess yrði ekki langt að bíða Íslendingar, þessir sjálfumglöðu óvitar, myndu kollsteypa sjálfum sér efnahagslega því viðskiptasiðferðislega væru þeir á botninum. Vídeóið má finna HÉR á youtube. 

Hér er texti lagsins:

 

Þjófabálkur

(Lag og texti: Sverrir Stormsker)

 

Amma hún var bæði góð og gegn,

grandvör, trú og alveg heil í gegn.

Hún gaf mér óspör ótal hagnýt ráð.

Hér eru nokkur sem ekki visna í bráð:

 

Íslenskur bankastjóriFarðu aldrei út í viðskipti

með Íslendingum, það er glapræði.

Þeir fara einatt út af réttri braut

og eru flestir heimskari en naut.

 

Hlýddu ekki á þeirra þýðu raust

sem þusa um sín heilindi, illa gerðir.

Þeir sem tala manna mest um traust

eru menn sem eru ekki traustsins verðir.

 

ClouseauTrúðu varlega orðum Íslendinga,

þeir allir telja sig til sérfræðinga

og gorta sig af innri ofurmætti,

en eru bara fagmenn í viðvaningshætti.

 

Þótt þjóðin sé hláturmild, happy og lyndisgóð

þá hef ég grun um að obbinn í laumi gráti.

Við erum heimsins hamingjusamasta þjóð

og heimsmet eigum í þunglyndislyfjaáti.

 

HomerSimpsonHér á Fróni er fjöldi glópa,

- falskir smákóngar.

Íslendingar upp til hópa

eru fábjánar.

 

Þeir eru þjóðrembur fram í fingurgóma,

fella um sæmdarþjóðir sleggjudóma,

amatörar, aular, firrtir sóma,

öskra um sína snilld með hausa tóma.

 

lygararÁ stjórnmálaflokka og álfa og tröll þeir trúa,

tigna þá sem allra mestu ljúga,

geta ei lært af reynslu, eru á eftir,

svo innilega naive og þroskaheftir.

 

Þeir skemma allt og öllum hlutum klúðra,

en eru manna bestir í að slúðra,

er einkar lagið að okra, pretta og slugsa

en erfiðlega gengur þeim að hugsa.

 

raeningjastrumpurFrá Noregi þeir forðum flýðu burtu,

fífl og krimmar, gungur, drulluhælar,

viðvaningar, vitfirringar, durtar,

þeir voru, eru og verða alltaf þrælar.

 

Þetta sólarlausa skálkasker

er skýli fyrir þjófa og rumpulýð.

Þar flestir ljúga grimmt að sjálfum sér

en sannleikann um sig þeir kalla níð.

 

KlúsóÞröngsýnir og þrælslundaðir,

þorlausir og óheiðarlegir,

svikulir, spilltir, sjálfumglaðir,

sjálfhverfir og gáfnatregir.

 

Þeir ljúga heil ósköp, öllu fögru lofa,

en efna fátt, já það er alveg víst.

Innræktaðir Íslendingar lofa

ekki góðu, þetta er genatískt.

 

öskrandi íslendingurÍ öllum málum þeir vaða í villu og svíma.

Viðvaningar best á Fróni þrífast.

Í glópsku eyða öllum sínum tíma

í að þræla, hneykslast, slúðra og rífast.

 

Óupplýstir en fróðleiksfúsir mjög

um flest það sem að snýr að náunganum.

Búa flestir háum húsum í

en hugsunin er enn í torfkofanum.

 

ÍslandLosna vildi hver einasta íslensk hetja

undan Dönum, - gjaldþrot upp við skárum.

Tókst með linnulausri snilld að setja

landið á hausinn á sextíu og fjórum árum.

 

Að gera út á galið djöflasker

getur varla talist hyggilegt.

Það verður bara að segjast eins og er

að Ísland það er ekki byggilegt.

 

Já amma hún var greind og góð

svo greinargóð og snjöll

Svona lýsti´hún þessari þjóð

og þá er sagan öll.

 

Sverrir Stormsker: Söngur, bakraddir og öll hljóðfæri.

Ingó veðurguð: Söngur í viðlögum.

(Leikkona í vídeói: Brynja Valdís Gísadóttir)  


mbl.is Niðurstaðan vel rökstudd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íþróttir og brennivínsdrykkja

 

íþróttaáhugamaðurÉg horfði á leikinn Ísland - Þýskaland í gær á kjaftfullum sportbar, - fullum í öllum skilningi. Þar sást ekki áfengisleysi á nokkrum manni frekar en fyrri daginn þegar íþróttir eru á skjánum. Maður fær ekki betra tilefni til að fara á almennilegt fyllerí en þegar íþróttir eru í varpinu. Þetta fer svo vel saman. Íþróttir og fyllerí er jafn pottþétt blanda og vodki í kók. Það er meiraðsegja hægt að hafa gaman af jaðaríþróttum einsog handbolta, sniglakapphlaupi og kengúruboxi ef maður er bara nógu drukkinn.

 

Það má vera að íþróttir séu þroskandi en þær eru fyrst og fremst þorstandi. Það er eitthvað við íþróttir sem vekur upp hjá fólki mikla áfengislöngun. Sem er mjög gott mál. Þetta er nú það góða við íþróttir. Um þetta snúast þær faktískt. Á fótboltaleikvöngum hér og erlendis sést ekki einn maður edrú. Sumir leikmenn eru jú kannski ekki mjög drukknir á vellinum en áhorfendur eru náttúrulega allir á perunni. Þessvegna er svona gaman að horfa á fótbolta. Karlpeningurinn fær þar að auki frí frá sínöldrandi kellingarherfunni og fær að rasa almennilega út og fær að fíla sig sem hluta af einhverri liðsheild. Íþróttaleikur er mínístyrjöld. Landsleikur er smækkuð heimsstyrjöld. Þjóðremban í algleymingi. Svo má alltaf búast við að það brjótist út áhugaverð slagsmál að leik loknum sem kóróna skemmtilegheitin.

 

góð blandaÍþróttamennirnir sjálfir eru yfirleitt álíka blautir og áhorfendur. George Best var t.d. tipptopp drykkjumaður og ekkert síðri fótboltahetja. Náði frábærum árangri í báðum greinum. Þetta helst í hendur. Eiður Smári og allt það. Ég tildæmis gæti ekki reykt og drukkið svona mikið ef ég væri ekki íþróttamaður. Í alvöru. Íþróttir auka manni úthald. Áramótaheit mitt var að æfa badminton og tennis og spretthlaup svo stíft á þessu ári að ég gæti slátrað tveimur bjórkössum og svælt fjóra vindlapakka á dag án þess að blása úr nös...ef þannig má að orði komast. Maður verður að hafa þolið í lagi ef það á að vera eitthvað gaman af þessu. Og maður verður að hafa eitthvað markmið í lífinu.

 

allt er nú bannaðÖrlítið meira um mína íþróttamennsku: Ég æfði sund í Vesturbæjarlauginni á tímibili, í alvöru, en hætti þegar ég uppgötvaði að það fór of mikið af klór ofan í vodkaglasið og svo drapst alltof oft í vindlinum. Þar að auki var maður litinn hornauga einsog maður væri eitthvað skrítinn. Ég prófaði baksund með glasið og vindilinn í annarri hendi og buslandi með hinni en allt fór á sama veg. Alltaf þurfti einhver hvalspikaður uppblásinn bringubítill að stinga sér í grenndinni þannig að gusurnar gengu yfir mann og maður drukknaði nánast í ölduróti og ófögnuði. Glasið barmafullt af klóróformi og vindillinn í henglum. Þessi áhugamál blönduðust semsé ekki vel saman. Í öllum skilningi. Það tók mig ekki langan tíma að sjá að sund væri fyrir örlagaedrúista og aumingja.

 

íslensk handboltahetjaHvað um það. Munurinn á Strákunum okkar og okkur áhorfendunum á sportbarnum var að við vorum vel fullir en þeir voru greinilega illa timbraðir. Maður á ekki að mæta timbraður í íþróttamót. Það er vanvirðing við sannan íþróttaanda. Ég veit ekki hvað ég er búinn að brýna þetta oft fyrir æskulýðnum. Maður á að vera í glasi þegar maður er að keppa. Ekki skelþunnur. Þunnir menn skjálfa einsog lauf í vindi, - einsog Geir Haarde. Þunnildi vinna enga sigra. Fullir menn geta hinsvegar unnið fullan sigur.

 

alex-higginsStrákarnir okkar ættu að taka snookerheimsmeistarannn Alex Higgins sér til fyrirmyndar. Einsog menn vita þá er snooker mesta nákvæmnisíþrótt í heimi. Alex mætti alltaf vel undirbúinn í mót. Sturtaði í sig einni ginflösku og hálfum kassa af stórum svellköldum öllurum og svældi með góðgætinu pakka af fílterslausum camel af miklum krafti einsog sannir íþróttamenn eiga að gera. Eftir þennan undirbúning þá gekk kappinn inná leikvanginn fjallfrískur í góðum gír og straujaði andstæðinginn. Svona eiga menn að vera. Hann passaði sig vel á því að mæta aldrei þunnur til leiks einsog strákarnir okkar. Hann var ekki bara metnaðarfullur heldur pöddufullur. Vínandi er rétti íþróttaandinn.

 

Handboltastrumparnir okkar gætu mikið lært af Alex Higgins, ímynd íþróttamennskunnar. Þeir hefðu mögulega átt roð í Þjóðverjana ef þeir hefðu skellt í sig nokkrum tekílasnöfsum fyrir leikinn og náð að koma þannig heilsunni í lag. Samt ekki of mörgum. Kannski 10 til 15 sjússum og 5 til 10 tvöföldum irishcoffee og svona einsog hálfri flösku af 50% smirnoff vodka af stút og þá hefðu þeir verið í góðum málum. Dass af hreinum spíra í restina hefði ekki skaðað. Með þessu hefði verið mjög gott að svæla nokkra vindla og keðjureykja umþaðbil hálfan til einn pakka af fílterslausum camel til að skerpa einbeitinguna. Þessir strákabjálfar okkar verða að fara að sýna íþróttamennskunni smá respect. Virðing og kurteisi kostar ekkert. Þeir verða að fara að haga sér einsog menn þessir helvítis heilhveitis grasasnar.

 

Eftir tapið gegn liði Þjóðverja, fyrsta liðinu sem Íslendingar keppa við sem kunna eitthvað í handbolta, var viðtal (sjá HÉR) við Björgvin markvörð og Róbert línudansara:

 

timbraðurRóbert píreygður og utangátta: "Við vorum að klúðra, klikka á góðum færum...Maður sér þetta ekki alveg nógu skýrt."

Hann myndi kannski sjá hlutina aðeins skýrar ef hann væri ekki svona skelþunnur. Drekka meira.

Björgvin: "Við erum eins og aular sóknarlega og varnarlega."

Eins og? Þeir hefðu getað gert eitthvað af viti ef þeir hefðu drullast til að drekka úr sér þynnkuna fyrir leikinn.

Björgvin: "Ef við erum ekki fullir og gerum ekki hlutina almennilega þá getum við ekki neitt í handbolta. Það er alveg klárt."

íþróttaálfurHverskonar setning er þetta eiginlega? Er maðurinn edrú eða hvað? Eru markverðir ekki markverðir menn? Þeir sem gera ekki hlutina almennilega geta ekki neitt og þeir sem geta ekki neitt gera ekki hlutina almennilega. Og hvað er ég búinn að brýna oft fyrir íþróttamönnum að mæta ekki skelþunnir í leik? Maður á að vera vel í glasi. Það er einsog það komist ekkert inní hausinn á þessum ösnum. Þarf maður að hella í þá brennivíni með trekt?

Björgvin: "Ef við erum ekki fullir þá erum við ekkert frábærir."

Old news. Nú ef að gæinn er svona meðvitaður um þetta afhverju sturtaði hann þá ekki í sig brennivíni fyrir leikinn og sagði félögum sínum að gera slíkt hið sama? Eru þetta alltsaman tómir fæðingarhálfvitar? Þetta eru allavega ekki fullir fæðingarhálfvitar. Algjörðir apakettir.

Björgvin: "Við erum að gera allt of mikið af feilum og svona miklum aulamistökum sem við erum að brenna okkur á."

íslenskir íþróttamennHverskonar menn gera mikið af aulamistökum? Hugsanlega aular? Drekka meira.

Róbert: "Við áttum í soldlu basli með þá í vörninni og svo vorum við að hitta aðeins of mikið í markmanninn."

Soldlu basli? Vörnin var galopin einsog Catalina á góðum degi.

Voruð að hitta aðeins of mikið í markmanninn? Halló! Var hann ekki að verja lásí og kraftlaus og ónákvæm skot? Þýski markvörðurinn var semsé ekkert góður að áliti strákaaulanna okkar. Hann var bara alltaf fyrir. Ástæðan fyrir því að hann varði svona mikið var víst bara vegna þess að strákarnir okkar hittu of oft í hann. Einmitt. Þegar Björgvin stendur sig vel í markinu og ver hvert skotið á hendur öðru þá er sagt að hann sé meiriháttar markvörður. Þegar þýski markvörðurinn ver hvert skotið á hendur öðru þá er það jú bara vegna þess að strákarnir okkar hitta of oft í hann. Hann er semsé alltaf að þvælast fyrir. Er alltaf á röngum stað. Úfff. Það er oft ótrúlegt ruglið sem vellur út úr ódrukknum Íslendingum.

 

íþróttadrykkjaLeikurinn var engu að síður ansi skemmtilegur. Í miðjum æsingnum, eða æsinginum einsog það heitir víst á bubbísku, þá öskraði ég á flatskjáinn: "Áfram strákar. Þið eigið leikinn. Látiði íslensku apana ekki komast upp með neitt múður. Sieg Heil!"

Þetta féll ekki í góðan jarðveg á sportbarnum af einhverjum ástæðum. 


mbl.is Fyrsta tap Íslands á HM
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við erum bestir!!

íslensk markvarslaHandballs. Beint í punginn.Þetta var frækilegur sigur. Við völtuðum gjörsamlega yfir Hirosima. Strákarnir okkar stóðu sig glæsilega en það verður að segjast einsog er að Hreiðar Levy markvörður reddaði alveg seinni hálfleik. Hann varði 8 sinnum með pungnum og 17 sinnum með andlitinu. Geri aðrir betur. Frábær markvarsla. Hann var bókstaflega með nefið oní hvers manns bolta, ef þannig má að orði komast. Hann var allsstaðar með andlitið. Og punginn. Ekki má gleyma honum. Svona á að nota guðsgjafirnar. 

Hreiðar á góðum degifaceballJapanir áttu enginn ráð við þessu. Það var sama hvert þeir negldu, alltaf small tuðran af miklu afli á alltumlykjandi trýninu á Hreðjari. Og pungnum. Ekki má gleyma honum. Það var sama hversu oft þeir dúndruðu boltanum í smettið á honum og i boltana á honum, aldrei missti hann andlitið. Ekki heldur punginn. Ekki að ástæðulausu að þessi íþrótt kallist handballs. Enginn markvörður fyrr né síðar hefur varið jafn oft með eistunum og andlitinu í einum leik. Alls 25 sinnum. Hann verður pottþétt kóngurinn á Fésinu. Þetta er gæi sem fær ekki bara flugu í höfuðið. Þetta er maður sem kann að nota á sér hausinn. Áfram Hreðjar!

 

andlitsboltiHreiðar í rugbySumir halda að Jappar séu einhverjir vesalingar og hlandaular með hor í nefi sem kunni ekkert í handballs en það er öðru nær. Þeir eru með eitt besta lið heimsins í dag. Þeir hafa unnið Austur-ríkisstarfsmenn, Færeyinga, Íraka, Grænlendinga, Írani, Saudi-Araba og Úgandabúa svo nokkur dæmi séu tekin. Leikmennirnir eru allir heimskunnir. Þetta eru nöfn sem allir þekkja: Kenya Toyota, Daihatsu Kawasaki, Moskito Suzuki, Risotto Tomato, Shuss Hirosima, Hoza Heimasima, Mazda Yamaha, Mitsubishi Hahaha og svo mætti lengi áfram telja. Það voru semsé engir aukvisar sem við vorum að slátra.

faceplantHreðjar eftir leikinn við JappaSvo er bara að vona að Hreðjar nái að halda haus og þá tökum við þetta alla leið. Sýnum þessum útlensku ösnum að þó við kunnum ekki reka banka og kunnum ekki að reka bankaræningja í ævilangt fangelsi og kunnum ekki að reka pólitík og kunnum ekki að reka pólitíkusa út úr alþingi - þá kunnum við sko að sýna okkar rétta andlit og fá boltann í það. Og punginn. Ekki má gleyma honum. Við munum halda andlitinu. Áfram Ísland!

 

HÉR má finna myndbandið við Sigurlagið sem ég gerði árið 2004. Tileinkað Strákunum okkar, að sjálfsögðu. Við erum bestir!
mbl.is Stórsigur á Japan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólasveinninn dreginn til yfirheyrslu

 

JólasveinninnEnn einu sinni hefur Ástþóri Magnússyni verið varpað í dýflissu. Síðast var það árið 2002 þegar hann varaði við hryðjuverkaárásum á íslenskar flugvélar og stöðvaði með háværum mótmælum þá fyrirætlun stjórnvalda að senda vopn og hermenn með farþegaflugvélum Icelandair til Írak.

Að launum fyrir þá viðvörun sína var sveinki látinn dúsa í einangrun í myrkvuðum turnklefa á Litla Hrauni með rottum og kakkalökkum dögum og vikum saman uppá vatn og bónusbrauð og húðstrýktur reglulega með hnútasvipum og gaddakylfum og látinn hlusta á ræður Halldórs Ásgrímssonar kvölds og morgna af segulbandi. Þegar honum var loks hleypt út var hann ekkert nema skinn og bein. Hafði lést um 55 kíló. Var kominn niður í 130 kíló.

Í gær gerðist svolítið svakalegt: Við sveinki sátum á hinum virðulega hákúltúrveitingastað í Byko og sveinki var að skófla í sig kjötbollum og rjómabollum í góðu jólastuði þegar Víkingasveitin birtist grá fyrir járnum og kom honum í ennþá meira stuð með því að gefa honum rafbyssuskot beint í vömbina. Jólasveinninn hentist á gólfið og tók þar nokkra hressilega krampakippi þannig að belgurinn gekk í öldum einsog vatnsrúm. Svo lá hann hreyfingarlaus og stjarfur um stund með útglennt augun. Þau eru nú venjulega á stilkum þannig að ég veit ekki hvort það var óheillamerki eða ekki. Úr munnvikunum lak froða. Nú eða rjómi. Nei, ef þetta hefði verið rjómi þá hefði hann nú örugglega sleikt útum. Því næst var hann handjárnaður og fótjárnaður og dreginn á hárinu og skegginu uppá lögreglustöð til yfirheyrslu.

Sveinki hafði víst trassað að mæta í skýrslutöku vegna gruns um að standa að menningarveftímaritinu sorprit.com. Hreinn Loftsson fyrrum stjórnarformaður Baugs og fyrrum DV-eigandi og fyrrum Davíðsvinur vill meina að sveinki standi á bak við það rit og að þar séu ærumeiðandi ummæli að finna, og hafði lagt fram kæru á sveinka svínaskelfi.

Ég fór að heimsækja Ástþór í dýflissuna stuttu eftir að hann var tekinn til fanga. Hann sat þar margkeflaður við tréstól með brunablöðrur á andlitinu vegna hitans frá yfirheyrsluljóskastaranum. Ég spurði hvort hann brynni ekki í skinninu að losna og hvort honum væri ekki heitt í hamsi og hvort hann vanhagaði um eitthvað. Hann stundi flögnuðum vörum: "Vatn. Ég er að deyja úr þorsta." Ég átti ekkert vatn að gefa honum en tróð þess í stað uppí hann lúku af salthnetum sem ég var með á mér. Ég hélt fyrir munninn á honum svo hann kyngdi örugglega og að ekkert færi til spillis. Að því loknu spurði ég hann hvað hann hefði sagt löggunni varðandi sorprit.com. Hann sagðist hafa svarað öllum spurningum lögreglunnar á þessa leið, í alvöru:

Ástþór í yfirheyrslu"Ég mun engu svara ykkur í lögreglunni fyrr en þið hafið tekið fyrir allar mínar kærur á hendur DV." 

"Og afhverju hefur lögreglan ekki tekið fyrir allar þínar kærur á hendur DV," spurði ég.

"Það er vegna þess að svín eru rétthærri jólasveininum hér á Íslandi."

"Afhverju segirðu að Hreinn Lofts og þeir á DV séu svín? DV hefur nú verið ötult við að berja á bankaræningjunum."

"Ég finn það á lyktinni. Það er ekki hreint loft í kringum Hrein Lofts. Farðu inná sorprit.com. Þar geturðu fræðst um útrásarsvínin, fjölmiðlasvínin og önnur svín. Svínin mega ljúga uppá alla en enginn má segja sannleikann um svínin," hrein jólasveinninn.

 

ÚtrásarsvínÁ sama tíma og jólasveinninn sat þarna múlbundinn og emjandi einsog stunginn grís sá ég út um gluggann hvar útrásarbankaræningjasvínaglæpagengið alltsaman gekk skælbrosandi framhjá lögreglustöðinni í sólinni og veifaði löggunni. Líklegast á leið í einhvern bankann að hreinsa upp restina sem þeir gleymdu. Löggan veifaði á móti.

Þennan sama dag og Ástþór var tekinn til yfirheyrslu vegna meiðyrðaákæru og einhverra óvarlegra ummæla um útrásarsvínin og fleiri slíka þá kom í fréttum að Kaupþing hefði nokkrum dögum fyrir hrun lánað eigendum bankans og tengdum aðilum 450 milljarða króna. Daginn eftir þann gjörning ákváðu Kaupþingsmenn að afnema persónulegar ábyrgðir lykilstarfsmanna bankans vegna lána hlutabréfakaupa í bankanum. Frekar svínslegt alltsaman. En þessir höfðingjar skarta stórriddarakrossum og skálkaorðum og ganga skartklæddir um götur borgarinnar frjálsari en nokkrir aðrir ránfuglar.

 

Í dag, þriðjudaginn 4. janúar klukkan 4, verður sveinki svínaskelfir í þriggja gráðu yfirheyrslu á Sögu hjá Arnþrúði Karls og Pétri Gunnlaugs. Ekki missa af því. Líklegast í síðasta skipti sem Ástþór nær að tjá sig um útrásarsvínin og stjórnmálasvínin því nú ætla Vinstri grænir að teipa fyrir kjaftinn á fjölmiðlum og þjóðinni með glænýju fjölmiðlafrumvarpi svo þeir geti svínað á alþýðunni í friði.


mbl.is Ástþór færður til skýrslutöku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gæsin og gullgæsin

 

Látum verkinn tala - fronturMaður á alltaf að horfa á björtu hliðarnar, þó þær séu kannski ekki ýkja margar hér á Los Klakos. Eitt af því jákvæða og góða við kreppuna er að hún kom með fangið fullt af áhugaverðum og skemmtilegum yrkisefnum handa okkur strumpunum sem höfum gaman af að smíða texta um svartnætti og hörmungar. Ég efast um að ég hefði gert þessa nýju plötu mína Látum verkinN tala ef blessuð kreppan hefði ekki stigið af himnum ofan. Maður á að vera þakklátur fyrir allar góðar guðsgjafir, því guð veit hvað hann er að gera, rétt einsog Jóhanna og Steingrímur.

Með mér á plötunni syngja 4 söngvarar: Kalli Bjarni, Snorri Idol Snorrason, Ingó Veðurguð og Alda Björk Ólafsdóttir. Fyrir þá sem hafa ekki hugmynd um hvaða froskar þetta eru þá skal ég kynna þá lítillega:

 

 

SS og KallibjarniKalli Bjarni vann fyrstu Idolkeppnina sem haldin var á Íslandi, sællar minningar. Eftir það lá leið hans að sjálfsögðu beint í ræsið, sællar minningar. Hann gerðist burðardýr fyrir hinn farsæla kókaínbarón Pablo Escobar og flutti inn til landsins 800 kíló af úrvals kóki, þar af slatta innvortis, en var því miður stoppaður af vondum mönnum í tollinum og vinsamlegast beðinn um að glenna út á sér fjósið. Þar fundust 20 kíló af frekar óhreinu kóki, en það var vitaskuld hreint áður en hann stakk því í browntown.

Kalli var tekinn til yfirheyrslu. Nokkur þessara skjala láku til Weakileaks, sem frægt er orðið í Kólimbíu og víðar:

Löggan: "Þú ert borubrattur þykir mér. Þú ert með fullt rassgatið af kókaíni."

Kalli: "Það getur ekki verið. Djöfull er að heyra þetta. Ég veit ekki hver ætti að hafa komið þessu þarna fyrir, því ég hleypi nú ekki hvaða gæa sem er í bílskúrinn á mér, en það getur svo sem vel verið að einhver api hafi tekið mig á orðinu þegar ég hef sagt honum að fara í rassgat. Maður veit aldrei. Og kannski hefur hann ekki bara tekið mig á orðinu heldur jafnvel á borðinu. Það er ómögulegt að segja til um þetta. En bara svo að það sé á hreinu þá hef ég hingaðtil bara tekið þetta stöff í ranann sko, en það getur svo sem vel verið að það hafi eitthvað slysast uppí taðgatið þegar ég settist á spegilinn."

Löggan: "20 kíló?"

Kalli: "Já. Það er nú ekki svo mikið. Það er nú ekki einusinni uppí nös á ketti."

Löggan: "Þú ert full of shit."

Kalli: "Þetta er bara í nösunum á mér. En ég myndi nú þar að auki ekki kalla þetta "shit." Þetta er eðal stöff."

Löggan: "Hei töff gæ, þú verður ekki svona borubrattur þegar þú ert orðinn bitch einhvers tveggja metra körfuboltakakónegra í djeilinu. Heldurðu að þú hafir göts og bein í nefinu til að þola dýflissuvist í sama klefa og Mundi morðingi og Árni Johnsen? Ef þú heldur að þú munir eiga 7 dagana sæla þá get ég sagt þér að það er þokkalegur misskilningur. Árni er nefnilega með gítarinn með sér. Hann mun örugglega ekki vanda þér lögin."

Kalli: "Ég hef nú hingaðtil verið með eitthvað annað en bein í nefinu."

Kallibjarni í yfirheyrsluLöggan: "Er minn bara í stuði?"

Kalli: "Nei, ég er hættur að reykja svoleiðis. Ég er í kóki."

Löggan: "Ég skal segja þér í hverju þú ert: Þú ert í djúpum skít. Og hvað þykistu vera með í nefinu skítseiðið þitt?"

Kalli: "Það eru hreinar línur."

Löggan: "Hreinar línur hvað?"

Kalli: "Það eru hreinar línur."

Löggan: "Hvað eru hreinar línur?"

Kalli: "Það sem ég er með í nefinu. Það eru hreinar línur."

Löggan: "Þú ert hálfviti. Það eru hreinar línur. Hvað með þessi 780 kíló sem fundust í 20 ferðatöskum sem þú komst með? Var það líka eitthvað "slys?"

Kalli: "Ég bara hef ekki hugmynd um hvernig þetta gat skeð. Amma pakkaði fyrir mig oní töskurnar í Amsterdam og Kólimbíu og það getur vel verið að hún hafi tekið feil á þessu stöffi og flórsykri eða rottueitri sem hún ætlaði að láta mömmu fá til að strá oná kleinuhringi fyrir jólabaksturinn."

Löggan: "780 kíló í 20 ferðatöskum? Heldurðu að ég kaupi þetta?"

Kalli: "Þú þarft ekkert endilega að kaupa þetta. Ég ætlaði nú að selja þetta kók öðrum en þér, en ef þú kemur með góðan díl þá er aldrei að vita nema við getum náð saman. DOH! Þarna talaði ég af mér."

Kalla var varpað í dýflissuna á Kvíabryggju þar sem hann hann mátti þola mikið harðræði: Púl frá morgni til kvölds, og þá meina ég virkilegt pool. Svo var lagt á hann að spila borðtennis þrisvar í viku og golf um helgar. Ég gat ekki horft upp á þessa hryllilegu meðferð á honum og borgaði 200 milljóna króna tryggingu fyrir hann svo hann gæti farið að syngja á ný. Hann syngur í 5 lögum á nýju plötunni.

 

SS og Snorri (23.05.08)_JSM6321Snorri Snorrason söng sig inn í hug og hjörtu og eyra þjóðarinnar og út um hitt í Idolkeppninni hér um árið. Ég manaði hann að fara í þessa keppni og sagði það 100% öruggt að hann myndi vinna, sem hann og gerði með glæsibrag. Eftir keppnina fór hann að sjálfsögðu í ræsið einsog lög gera ráð fyrir og fór að taka upp plötu með Serði Monster. Núna rekur hann stúdóið Fjarskipti.is og er við hestaheilsu, líkamlega.

 

 

 

Stormsker & IngóIngó Veðurguð tók þátt í Idolkeppninni hér um árið og kom, sá og tapaði. Hans leið lá því ekki í ræsið heldur beint uppá stjörnuhimininn. Hann hefur sungið og samið marga smelli og tuggið mikið tyggjó og er núna að syngja í söngleiknum um Buddy Holly sem fórst í flugslysi 1959 sællar minningar, sama ár og þau Jóhanna og Steingrímur settust á þing. Ingó syngur í þremur lögum á plötunni.

 

 

 

 

SS, Hlölli g AldaAlda Björk Ólafsdóttir söng mikið með mér hér áðurfyrr, t.d. lagið Bless sem var svona líka gasalega vinsælt. Eftir að hafa sungið með mér Bless sagði hún bless við Klakann og flutti til Bretlands og kom stuttu síðar laginu Real Good Time í 7. sæti breska vinsældarlistans. Enginn Íslendingur hefur náð frumsömdu lagi ofar á breska listanum. Stuttu síðar kom hún lagi sínu Girls Night Out í 20. sæti. Á þessum tíma var hún með heilt víravirki og allskonar drasl á hausnum og ennþá meira inní honum. Þegar hún var hvað vinsælust í Bretlandi þá var London þakin plakötum af henni hvert sem maður fór. Ég hélt fyrst hún væri eftirlýst einsog Kalli Bjarni en hún sagði að þetta væri út af vinsældum hennar. Ég var mjög efins og sagði: "Heyrðu þú þarna Alda Jerk Ólafs, þó við séum vinir þá geturðu nú ekki talið mér trú um hvað sem er." Seinna komst ég að því að hún var víst að segja satt, í þetta skiptið. Núna er hún að tónlistast á fullu þarna í útlandinu með saurþjöppum einsog Elton John, George Michael og Justin Óleik eða Timberleik eða hvað hann nú heitir sá ágæti hlandhaus.

 

Fyrir stuttu skellti ég einu lagi af nýju plötunni í tónlistarspilarann hér til vinstri á síðunni. Það var lagið Litli grísinn en það lag fjallar um lítinn útrásargrís. Núna ætla ég að skella öðru lagi í tónlistarspilarann af nýju plötunni og það lag heitir Gæsin og gullgæsin og fjallar um útrásargölt og smá misskilning milli hans og kærustunnar. (Þetta lag er nr. 6 í tónlistarspilaranum). Alda Björk Ólafs og Ingó veðurguð syngja.

 

                      sigurdur_eGæsin og gullgæsin

                       (Lag og texti: Sverrir Stormsker)

 

(Gæsin):       Mér líður djöfullega vel,

                      alveg dýrlega´að ég tel,

                      ég hef fundið flottan mel,

                      hann Belsebúb.

                      Hann á af eignum heilan haug,

                      hann á í mér hverja taug,

                      hann á hlutabréf í Baugi

                      og FL Group.

 

                      sigurdur-einarsson_1018582Við étum gull og gimsteina,

                      bryðjum djásn og demanta.

                      Hann hefur fimmtíu milljarða

                      í vikulaun.

                      Ég fíla þennan sveitta svepp,

                      þennan svanga fitukepp

                      sem er soldið hræddur við Klepp

                      og Litla Hraun.

 

Svín(Gullgæsin):   Hún hrifin er af mér,

                       mínum hreina karakter,

                       elskar mig einsog ég er

                       en ekki hvað?

(Gæsin):       Já þó hann líti´út einsog svín,

                      sé í framan algjört grín,

                      þá er hann stóra ástin mín,

                      ja segjum það.

 

Siggi_Einars(Gullgæsin):   Ég sveittur alltaf er,

                       hún samt heilluð er af mér.

                       Þó að drjúpi af mér smér,

                       hún umber það.

(Gæsin):       Já þó hann líti´út einsog svín,

                      sé í framan algjört grín,

                      þá er hann stóra ástin mín,

                      en ekki hvað?

 

                      Útrásarsvín.jpg-675x550Ég dái allt við kallinn minn,

                      til dæmis Cayman-reikninginn,

                      alla´hans snilld og ránsfenginn

                      og fénæma nef.

                      Ég dái örlæti míns manns,

                      alla ástúð ræningjans,

                      allar innistæður hans

                      og hlutabréf.

 

Gullæta_420x315(Gullgæsin):   Hún eitthvað í mér sér,

                       elskar sálina í mér,

                       elskar mig einsog ég er,

                       en ekki Mammon.

(Gæsin):        Já þó hann líti´út einsog svín,

                       sé í framan algjört grín,

                       þá er hann stóra ástin mín,

                       já hátt í tonn.

 

(Eitt af mínum elstu lögum. Samdi það 13 ára. Tók það upp í stúdíónu Bimbó á Akureyri það ár, instromental. Sendi það svo til útgefenda árið eftir ásamt lögunum "Þórður," "Bless," og fullt af öðrum frumsömdum hitturum, en þeir vildu ekkert hafa með þetta að gera. Þessvegna fór ég nú að gefa út plötur sjálfur. Ekki flóknara en það. Útgefendur skilja sjaldnast hlutina fyrr en maður hefur fullmatreitt þá ofaní þá. Þá segja þeir í uppgötvunartón: "Jáááá. Var það svona sem þú hafðir hugsað þér þetta? Ég skil. Jááá, ókei.")

 

Alda Björk Ólafsdóttir: Söngur og bakraddir.

Ingó veðurguð: Söngur.

Kalli Bjarni: Bakrödd og hlátur.

Sverrir Stormsker: Píanó, bassagítar, trommur, tambúrína, kassagítarar, hljómborð, rafmagnsgítarar.


Ríkisstjórnin er Hómer Simpson

 

Vitleysingar_nÞegar þjóðin kolfelldi Svavarssamninginn í þjóðaratkvæðagreiðslu þá fóru þau djöflaskötuhjú Jóhanna og Steingrímur af hjörum og fullyrtu að nú væru dagar okkar taldir og að himinn og jörð myndu líða undir lok innan fárra vikna því betri díl væri ekki hægt að fá. Annað kom á daginn. Það eina sem leið endanlega undir lok var trúverðugleiki þessara afglapa. Á þessum tímapunkti átti þeim að skiljast að dagar þeirra sjálfra væru taldir og þau áttu einfaldlega að pakka saman öllu sínu pípuhattsdrasli og kanínum og láta sig hverfa aftur inní hólinn sem þau skriðu út úr.

En þau þráuðust við, umboðslaus, getulaus og vitlaus, og héldu áfram að grenja í Bretum og Hollendingum að fá að leggja spilaskuld einkaglæpafyrirtækis á bak almennings. Nú liggur nýr samningur á borðinu, (að þessu sinni uppá borðinu), 200 milljörðum hagstæðari en sá fyrri, ef á annað borð er hægt að tala um "hagstæðan" ánauðarsamning.

Í ljósi þess að fyrri samningurinn hefði stórskaðað þjóðina liggur þá ekki nokkuð ljóst fyrir að þau hafa gerst sek um stórfelld embættisafglöp. Ætti þessi nýi samningur ekki sjálfkrafa að kalla á skilyrðislausa afsögn þeirra og rannsókn á öllu ferlinu?  

homerdohRíkisstjórnin og hennar setuliðar minna mig soldið á fávitann Hómer Simpson sem leggur höndina á rauðglóandi hellu og öskrar DOH! og leggur höndina aftur á brennandi helluna og öskrar DOH! og leggur svo höndina aftur á brennandi helluna og öskrar DOH! og svo aftur og aftur í það óendanlega þangað til lúkan er orðin skaðbrennd og well-done. Alveg fyrirmunað að læra nokkurn skapaðan hlut. Viðkvæðið er alltaf: "Já en við vissum ekki betur...Það er auðvelt að vera vitur eftirá."

Hversvegna geta þessir heyrnarlausu heilasteiktu hallardraugar ekki komið því inní hausinn á sér að þjóðin hafnaði fyrri aftökusamningnum vegna þess að hún tók það ekki í mál að borga upp ránsfeng stórglæpamanna, en ekki afþví að hún væri svona sólgin í að fá hægara andlát með "hagstæðari" aftöku?

Hvað er svona flókið við þetta? Það er deginum ljósara og margsannað af heimsþekktum spesíalistum svo sem Evu Joly og allrahandanna nóbelsverðlaunahöfum að það er akkúrat enginn grundvöllur fyrir greiðsluskyldu íslenska ríkisins.

Ég held það væri ágætis ráð að byrja á því moka skælbrosandi bankaræningjunum í dýflissu uppá hitaveituvatn og grjótharðar tvíbökur og fara vandlega oní saumana á eignasafni þeirra og grafa upp allar þeirra gullkistur áður en gerður er enn einn þjóðaránauðarsamningurinn uppá drápsklifjar til fleiri ára beint ofaná þindarlausar skattahækkanir steingeldrar ríkisstjórnarinnar.

Ég hélt ég ætti ekki eftir að gefa forsetanum high five en nú reynir enn einu sinni á bjargvættinn á Bessastöðum. Ríkisstjórninni gef ég high one. Löngutöng.


mbl.is Býsna góð niðurstaða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Litli grísinn

 

Davíð hittir í markÍ bókinni Stormskerið eftir Björgvin G. Sigurðsson fyrrv. bankaránsmálaráðherra lýsir hann því þegar Davíð Oddsson, þá seðlabankastjóri, kom askvaðandi á fund ríkisstjórnarinnar í aðdraganda bankahrunsins og tilkynnti að þetta land okkar á norðurhjara veraldar væri farið norður og niður, - semsé ennþá norðar og neðar og gjörsamlega veg allrar veraldar. Grípum niður í skruddunni:

"Nú hafa útrásarvíkingarnir skuldsett landið þannig að landráðum líkist, sagði Davíð og gaf Ólafi Ragnari Grímssyni vænt olnbogaskot í leiðinni - uppklappaðir af forsetanum og fleiri fínum mönnum, bætti hann við. Skerum á landfestar og skuldirnar við útlönd, sagði hann. Skiljum víkingana og þeirra brask eftir. Þá losnar þjóðin við erlendu skuldirnar og við getum haldið áfram betur sett en nokkru sinni fyrr."

Að þessari tölu lokinni barði hann í ríkisstjórnarborðið af svo miklu afli að borðbúnaðurinn tókst á loft og kaffið skvettist í frosin andlit fundargesta. Því næst reif hann í krullurnar á sér og öskraði einsog ljón: "Og reyniði svo að láta hendur standa fram úr ermum helvítis amlóðarnir ykkar! Djöfulsins dusilmenni og leppalúðar sem þið getið verið! Hálfvitar! Láttu græða eistu í punginn á þér þú þarna Geir gunga eða Gay gauð eða hvað þú nú heitir örlagaræfillinn þinn! Þú titrar einsog lauf í vindi! Þú ert meiri kellingartuska en Imba Solla erkiapi! Og vakna þú þarna Jóhanna ráðherfa, you bloody motherfucker! Rífið ykkur upp á rassgatinu andskotans prumphænsnin ykkar og látið verkin tala!"

Svona á náttúrulega að taka á þessu. Í alvöru. Af festu, ákveðni og röggsemi. Ef Dabbi Don hefði verið við stjórnvöldinn á þessum tíma þá hengju útrásarhlandaularnir núna roðflettir á skreiðarhjalli og allar þeirra eigur væru djúpfrystar.

SteingleyminnSteingrímur J. raðlygari sagði í kosningabaráttunni að kæmist hann til valda þá yrði hans fyrsta verk að hafa hendur í hári bankaræningjanna og láta kyrrsetja eigur þeirra, en auðvitað var það ómarktækt vinsældahjal einsog hans var von og vísa. Eftir kosningar sneri hann öllu á haus: Almenningi var látið blæða út og ríkisstjórnin hélt hlífiskildi yfir útrásardólgum og öðrum kúluvömbum bankanna, enda ófáir stjórnmálamenn innvinklaðir í dýpsta sorann. Skylt er skeggið hökkunni. Og staðan er eins í dag.

Núna fyrst, tveimur árum eftir hrun, er gerð húsleit hjá meintum bankaræningjum, sem er líklega heimsmet í vitleysu á sviði stórglæparannsókna. Allir eru yfirheyrðir í fyrirtækjum þeirra, hver einasti starfsmaður; alveg frá pappírstætarameisturum uppí skúringakellingar, - allir nema hinir "grunuðu." Það borgar sig ekki að vera að ónáða þá. Þeir gætu orðið tens og misst legvatnið. Sérstakur saksóknari gæti að auki þurft að blæða á þá fari með limmósínu eins og hann þurfti að gera með Sigurð Einarsson.

SkitnirHvað ætti Sérstakur saksóknari svosem að finna í skúffum hinna grunuðu bankaræningja heilum tveimur árum eftir glæpinn annað en klámblöð, afrifna miða á Bubbatónleika og svo kannski notaða smokka undir rúmi eftir veislur með útrásarmellum og öðrum stjórnmálamönnum? Ef einhver markverð tölvugögn finnast þá er það kraftaverk. Hvaða almennilegi innanbúðarbankaræningi lætur ekki endurnýja tölvuflota sinn eftir vel heppnað heimsklassa rán?

 

Læt hér fljóta með texta við lag af nýju plötunni minni "Látum verkinN tala," sem kemur út næsta mánudag. Lagið, sem heitir Litli grísinn, má finna í tónlistarspilaranum hér til vinstri á síðunni. Kalli Bjarni syngur og ég er á öllum hljóðfærum einsog venjulega:

 

ÚtrásarvíkingurLITLI GRÍSINN

(Lag og texti: Sverrir Stormsker)

 

Þegar ég var ungur var ég ólýsanlegt frat,

átti´ei nærbuxur til skiptanna,

raðaði í Bónushillur dósadrullumat

og dreymdi um að vinna á lyftara.

 

En veldið jókst og pyngjan óx er Kaupþing kynntist mér,

með komu þeirra breyttist mín tilvera.

Áður en ég vissi var ég orðinn billjóner

sem alsæll skuldaði 1000 milljarða.

 

Sagan hún flaug, ég setti´upp geislaBaug,

sá var sko þyngri´en blý.

Hringurinn minn, hann horfinn er um sinn,

- hann mun samt birtast á ný.

 

Ég lán tók fyrir öllu, já ég þurrjós mína þjóð,

það er ljóst að ég var "lánsamur."

Mínum löngu Baugfingrum ég tróð í sérhvern sjóð

því að sama skapi var ég ránsamur.

 

Ég keypti félög, mergsaug þau, ég átti bara allt,

allt er hægt að fá með pyngjunni.

Skjótt ég komst að raun um það að fólk er líka falt,

fyrir slikk ég keypti þingmenni.

 

Ég lánalínur tók í nefið, gerðist Glitnisblók,

lét greipar sópa´um allt uns Klakinn sökk.

Þá fór ég úr hreinu kóki yfir í dollu-diat kók,

en duldi´á vísum stöðum seðlamökk.

 

Að strjúka lubba´um höfuð frjálst það núna erfitt er,

að eiga falda sjóði er mikil raun.

GeislaBaugurinn herðist mjög að höfðinu á mér,

en hvað með það? Ég kaupi Litla Hraun.

 

Sjá hér er ÉG, Íslendingurinn,

útrásin guðdómleg.

Þjófur er hver? Hann þrengist hringurinn.

Það er ljóst að ekki´er það ég.

 

Ég mun um síðir í vasa mína flytja fjársjóðinn,

fúlgur eru enn til skiptanna,

svo eflaust mun að lokum rætast æskudraumur minn

sem er að fara að vinna á lyftara.

 

 


mbl.is Ekki boðaður til yfirheyrslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

100 kg af fiskislori sturtað niður við heimili Steingríms J.

 

Stormsker og Helga Guðrún á Austurvelli (04.10.2010)Í stóru mótmælunum í fyrrakvöld hitti ég gamlan félaga sem sagði mér að nokkrir kunningjar sínir hefðu um helgina fleygt 100 kílóum af dragúldnu fiskislori við útidyr heimilis Steingríms J. Sigfússonar. Þarna er hugsanlega komin skýringin á því hversvegna Steingrímur lét þessi ógleymanlegu orð falla í fyrradag: "Látum heimili fólks í friði." Þetta verður að teljast setning ársins. Hann var að sjálfsögðu ekki að tala um heimili alþýðufólks sem ríkisstjórnin er að vinna baki brotnu við að splundra með dyggri aðstoð bankanna og AGS, heldur friðhelg heimili stjórnmála-elítunnar. "Háttvirtir" stjórnmálamenn verða nefnilega að fá frið inná sínum heimilum við að rústa heimilum alþýðunnar.   

 

lygararÞað væri gaman ef einhver fréttamaður myndi spyrja hann aðeins út í fiskislorið, t.d. hvort það hafi lyktað verr en ríkisstjórnin, og hvort hann ætli að færa það Mæðrastyrksnefnd að gjöf. Allavega er það frétt í sjálfu sér ef ástkær alþýðuleiðtogi einsog Steingrímur fær svona "gott" í skóinn löngu fyrir jól. Tek það fram að heimildirnar sem ég hef þetta eftir eru mun áreiðanlegri en allt sem hefur gengið fram af munni Steingríms frá hruni.

Þeir sem hafa gaman af hringlandahætti, ósamkvæmni, viðsnúningi, óheiðarleika, lygaáráttu, tækifærismennsku og valdafíkn, ættu endilega að skoða þetta óborganlega myndbrot með Steingrími J.


mbl.is Verða 73 þúsund heimili eignalaus?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hannes Þór Helgason - Minning

 

HannesÉg var svo lánsamur að kynnast Hannesi útí Asíu fyrir nokkrum árum. Hann staldraði þar yfirleitt við í viku í senn, nokkrum sinnum á ári og þá var alltaf glatt á hjalla. Við urðum strax góðir félagar og flökkuðum þarna víða um lönd tveir okkar liðs í fínum fílingi. Ég minnist margra langra ánægjulegra heilsubótargöngutúra í sólinni þar sem við spjölluðum um lífsins næturgagn og nauðsynjar og horfðum á litfagrar blöðrur á strætum og torgum. Á kvöldin var regla hjá okkur að fara á einhvern freistandi gæðastað og gæða okkur á safaríkum skinkum og gómsætum skonsum.

Það var alltaf gaman að fá Hannes í heimsókn. Hann var fyrirtaks þunglyndiseyðir. Hann var glaðsinna og lét hverjum degi nægja sína hamingju. Man ekki eftir að hafa séð hann setja upp skeifu nema þegar hann reyndi einusinni í bríaríi að járna hest í Phnom Penh, en meiraðsegja það mistókst. Hann var jákvæð týpa með góða nærveru og var hrifnari af flestu öðru en þrætubókarfræðum, rógi og leiðindum. Kannski þessvegna sem hann var svona oft erlendis. Ég varð aldrei var við beiskju eða biturð hjá honum í garð nokkurs manns þrátt fyrir að allir hlutir gengju ekki alltaf einsog í lygasögu.  

Það er þyngra en tárum taki að það skuli hafa verið slökkt á þessum skæra hlýja loga.    

Læt hér fylgja með litla vísu sem ég gerði um Hannes vin minn, um leið og ég votta fjölskyldu hans mína dýpstu samúð.

 

Hann var sanngjarn, hlýr og dyggur,

hláturmildur, gæskusjóður.

Hann var mannvin, trúr og tryggur,

traustur, sigldur, drengur góður.

 

 

(Þessi minningargrein birtist í Mogganum í morgun).


Mannaráðningar Besta og Samfó á "faglegum forsendum"

Í samstarfsyfirlýsingu Besta flokksins og Samfylkingarinnar stendur: “Öll störf hjá Reykjavíkurborg verði auglýst og ráðningar ákveðnar á faglegum forsendum.

Handrukkari lánafyrirtækisÁ þessum faglegu forsendum ákveður Besti og Samfó að ráða handrukkara hjá ræningjabælinu Lýsingu í fullt starf sem stjórnarformann Orkuveitu Reykjavíkur með um milljón á mánuði. Þegar þessi ráðning var ákveðin þá var náttúrulega horft til þess að maðurinn setti Viðskiptablaðið á hausinn með glæsibrag og tók svo til starfa sem yfirokrari og innheimtuböðull hjá Lýsingu en það fyrirtæki sérhæfir sig í að veita glæpsamleg gengistryggð okurlán og stela bílum fólks í skjóli nætur. Þeir hafa gengið svo hart fram í innheimtum á okurlánum að fólk hefur flúið undan þeim í gröfina.  

Besti og Samfó segjast ráða í störf Reykjavíkurborgar á “faglegum forsendum” og það þýðir að þeir telji að maður með þennan feril og einbeitta brotavilja sé akkúrat rétti maðurinn sem stjórnarformaður aðal fyrirtækis Reykjavíkurborgar. Hverjar eru þessar "faglegu forsendur?"

Jón Gnarr segir á Feisinu að hann efist stanslaust um eigin dómgreind. Það myndi ég líka gera ef ég myndi byrja minn “öðruvísi” borgarstjóraferil á hefðbundinni stórlaxaveiði og pólitískum mannaráðningum í þessum dúr. Ef þetta á að vera einn liðurinn í því að gera Reykjavík rosalega skemmtilega þá er það mjög leiðinlegur misskilningur.

Okrari

Jón segist þurfa að sturta í sig panódíl til að höndla borgarráðsfundi. Kjósendur hans og aðrir borgarbúar munu líklega einnig þurfa fara að dæla í sig hausverkjapillum til að þola það sem kemur út úr þessum borgarráðsfundum.ef það á að vera eitthvað í líkingu við þetta bullshit.

Mér fannst sjálfsagt af fólki að gefa Besta flokknum tækifæri til að spreyta sig en þeir hafa kolfallið á fyrsta prófinu með mínus 4,9. Einföld staðreynd. Besti og Samfó ættu að fá ráðningu fyrir að standa að þessari ráðningu. Þeir skulda borgarbúum skýringu á því hversvegna þeir vilja ólmir ráða og verðlauna fyrrv. yfirlögfræðing og yfirlögbrjót Lýsingar sem tók þátt í því að svipta fólk aleigunni með glæpsamlegum hætti. Ekki þýðir að láta nýráðinn handrukkarann rukka inn þá skýringaskuld. Svo mikið er víst. Það þurfa borgarbúar sjálfir að gera, en þeir eru líklegast stjarfir af hrifningu.


mbl.is Ný stjórn tekin við OR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Upphafleg hátíðarræða Jóhönnu Sig.

 

Ég hef komist yfir upphaflegu 17da júní-hátíðarræðu Jóhönnu Sigurðardóttur, einsog hún skrifaði hana, áður en aðstoðarmenn hennar kyngreindu hana og krukkuðu í hana og færðu til verri vegar. Hér er hún:

Jóka að mjálma á Austurvelli 17.júní 2010Góðir Íslendingar, fjær og þeir sem eftir eru. Sá sem ekki þekkir fortíðina getur ekki skilið sína samtíð og hvað þá skapað bjarta framtíð. Í því sambandi vil ég leyfa mér að vitna í skáldið Jónas Hallgrímsson frá Litla-Hrauni í Skandal: "Hæ hó jibbíjei og jibbíjei. Það er kominn 17. júní."

Við, sem erum hér saman komin á Austurvelli fyrir framan styttuna af Jóni Ásgeiri Sigurðarsyni forseta frá Högum í Syðri Fésýslu, hugsum til hans með söknuði og virðingu. Ég er mjög stolt af því að hafa kynnst honum persónulega. Á næsta ári munum við minnast þess að 600 ár eru liðin frá fæðingu þessa merka rithöfundar og brautryðjanda. Maður þarf ekki að blaða lengi í æviverki hans, Nonnabókunum frægu, til að sjá að þar fór einlægur Evrópusinni. Það er honum að þakka að Brussel verður höfuðborg Reykjavíkur innan skamms. 

 

Árangur stjórnarinnar lyginni líkastur - Enda lygi.

GegnsæiðGóðir hálsar. Samleikurinn mun gera yður frjálsa. Við í ríkisstjórninni vinnum saman sem einn köttur. (H)efndir fylgja orðum okkar. Við höfum svo sannarlega látið hendur standa fram úr skálmum. Gríðarlega mikið hefur áunnist frá því hreina vinstri helferðarstjórnin komst á laggirnar í kjölfar búsarabyltingarinnar: Atvinnuleysi þekkist ekki, eða allavega þekki ég það ekki. Hjól atvinnulífsins eru farin að snúast á fullu - í sama farinu í leðjunni.

Seðlabankastjóri er á góðum launum, þó þau mættu vera hærri. Það má fixa það einhvernveginn. Gegnsæið er orðið algert. Það getið þið sannfærst um með því að horfa inn í eyrun á mér. Sést í gegn. Allt er uppá borðum, sérstaklega möppurnar sem merktar eru Top Secret. Þær eru allar uppá borðum okkar Steingríms J.

Skattpíningarstefna okkar hefur gefist vel í kreppunni og mun gefast enn betur þegar fleiri hafa flúið land. Því færra fólk, því meiri hagsæld. Þegar fólk á ekki lengur til hnífs og skeiðar þá er skynsamlegast að taka af því hnífapörin. Þjóðarskútan marar ekki lengur í hálfu kafi. Ríkisstjórnin hefur sökkt henni til botns, sem þýðir að nú höfum við loksins fast land undir fótum. Mjög gott mál.

 

Bankarnir - Af hávöxtunum skuluð þér þekkja þá

íslenskur þrællGóðir landsmenn og konur. Bankarnir standa traustum fótum - ofan á alþýðunni. Skuldir stóreignamanna hafa verið afskrifaðar og þeim verið afhent fyrirtæki sín hvítþvegin og flott svo þeir geti byrjað að nýju að bæta hag almennings. Bónus - ekkert bruðl.

Einungis um 20.000 óreiðufjölskyldur verða bornar út úr húsum sínum og út á götu þegar nær dregur fæðingardegi frelsarans, sem er 24. október. Só? Þetta er seinni tíma vandamál, sem er ekki í verkahring ríkisstjórnarinnar að leysa heldur sveitarstjórnanna, aðallega Reykjavíkurborgar. Þetta óreiðufólk mun segja sig til sveitar og fá sínar bæjarblokkir í einhverju gettói. Reykjavíkurborg er skjaldborgin sem ég lofaði ykkur. Við í ríkisstjórninni stöndum traustan vörð um velferðina í þessu óþol-landi.

Það verður aldrei sagt að ég hafi dregið hendurnar í mínu fórnfúsa starfi - í þágu Breta og Hollendinga. Ég og Steingrímur J. höfum grenjað linnulaust í þessum gæum fyrir hönd þjóðarinnar að fá að borga Icesave-skuldir Björgólfs Thors og við munum hafa sigur að endingu. Og inn í ESB skulum við fara, lifandi eða dauð. Mér og Steingrími í Kattholti skal takast að smala öllum köttum landsins inn í himnaríkið. Við Steingrímur erum einsog eineggja síamskettir í þessu máli.  

 

Nektarlaust Ísland árið 2011

Þú ert bannaðurÞað sem hæst ber þegar litið er yfir afrek ráðríkisstjórnar minnar er óneitanlega sú staðreynd að okkur tókst að banna unglingum innan 40 ára að stunda ljósabekki. Fólk sem vill fá súkkuðlaðilit á að baða sig uppúr brúnkukremi einsog félagsmálaráðherra. Okkur tókst einnig að banna nekt á nektarstöðum. Þetta eru þau tvö mál sem okkur þótti brýnast að einbeita okkur að í kreppunni. Nú skulu allir vera kappklæddir inn á nektarstöðunum og líka í ljósabekkjunum.

Við erum um þessar mundir að íhuga hvað við getum bannað næst. Ríkisstjórnin veit hvað sjálfráða fólki er fyrir bestu.  Ég hef t.d. lagt fram frumvarp í samráði við femínistana í VG sem kveður á um blátt bann við því að fólk, 25 ára og eldra, sofi nakið. Því beri að sofa í náttfötum. Ríkisnáttfötum. Karlar skulu jafnframt sofa með bindi og konurnar með dömubindi. Helst vera í 20 bindum einsog ritsafn Davíðs Stefánssonar frá Skírisskógi.

Étiði skítGóðir Íslendingar og annað sláturfé. Ég, sem forsætisráðherfa, vil að endingu gera orð Jóns Ásgeirs Sigurðarsonar frelsishetju að mínum: "Þið þurfið ekki að hafa áhyggjur af mér. Ég á fyrir diet kók." Ef við náum að temja okkur nægjusemi Jóns Ásgeirs Sigurðarsonar frá Högum í Syðri Fésýslu, þá munum við farast vel. Landið er gjöfult og gott og enginn þarf að svelta. Sá sem á ekkert til í ísskápnum getur alltaf étið það sem úti frýs. Hvað sagði ekki Jésús frá Nagasaki: "Ekki hugsa um mat og drykk því að eftir þessu sækjast heiðingjarnir. Sælir eru hungraðir því að þeir munu sveltir verða. Sælir eru fátækir því að þeir munu gjaldþrota verða."

Ég óska ykkur öllum til hamingju með daginn og ríkisstjórnina. Ekki láta deigið síga. Skál í botn! Lifi fjórflokkurinn! Húrra! Húrra! Húrra! Húrra niður brekkuna til helsældar!

 

 

(Þessi grein birtist í Morgunblaðinu í morgun) 


Ríkur er "aurugur" maður

MoneyOutOfAssÉg sagði Jónínu Ben vinkonu minni einusinni að fara í rassgat, og nú hefur hún látið verða af því. 

Ég á ekki við giftingu hennar og Gunnars á Krossinum heldur Detox ævintýrið. Ég veit ekki hvort það svínvirkar en það svíngengur allavega. Skítnóg að gera. Drulluflott dæmi. Algjör óþarfi að vera að hreyta skít í hana fyrir að reka þetta meðferðarhæli. Minnir að það heiti Saurbær.

Endaþarmur hvers manns er "matarhola" í vissum skilningi og þangað er hægt að sækja "aur" í tvennum skilningi.  Sem er mjög gott mál.

Þessi kjarnakona kann að bjarga sér - og kannski einnig öðrum. Sem er mjög gott mál.

 


mbl.is Kvartað yfir detox til landlæknis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjórflokkurinn bjó til Besta flokkinn

 

sofandi nautSlagorð Samfylkingarinnar í borgarstjórnarkosningunum er: Vekjum Reykjavík! Broslegt að flokkur sem svaf á verðinum í aðdraganda hrunsins skuli velja sér þetta slagorð. Samfó er stærsta svefnherbergi landsins. Þeir mættu nú alveg byrja á því að rumska sjálfir. Svo eru þeir með svæfingalækni í forsvari. Sá gæi er svo fær í sínu fagi að hann gæti talað naut í svefn og jafnvel svæft það svefninum langa. Þetta eru svefnpillurnar sem ætla að "vekja Reykjavík." Einmitt. Þeir tala einsog flokkur þeirra sé ekki í ríkisstjórn. Þetta lið er ennþá allt steinsofandi á sínu vinstra græna eyra. Þeir skilja ekki að Reykjavík er vöknuð. Hroturnar í Fjórflokknum hafa vakið okkur. Stór hluti borgarbúa hefur opnað augun og er búinn að fá uppí kok af svefndrukknum Fjórflokknum og öllum hans innantómu svæfandi froðufrösum og er tilbúinn að sýna það í verki í dag. Þeir sem þurfa virkilega að vakna og rífa sig upp á rassgatinu eru atvinnustjórnmálamennirnir.

 

Glens er ekkert grín

Íslenskt dýralíf.Þegar ég heyrði fyrst um framboð Jóns Gnarrs og hans ísbjarnarblús hugsaði ég: "Enn ein þvælan. Ekki meiri dellu takkfyrir. Ætlar þetta rugl í Íslendingum engan endi að taka? Það ætti að læsa alla þjóðina inní búri í húsdýragarðinum með hinum svínunum."

En svo fór ég að skoða dæmið galopnum huga. Á heimasíðu Besta flokksins er að finna fjölmargt skynsamlegt og skemmtilegt, einsog t.d. hugmynd Hrafns Gunnlaugssonar um að flytja húsin í Árbæjarsafni í Hljómskólagarðinn og lífga hann við, gera listir að grunnþætti í skólastarfi, o.s.fr., og svo er alvaran krydduð með dágóðu spaugi, t.d. skotum á femínistajafnrétti: "Við erum eini flokkurinn á Íslandi sem er með þá kröfu að næsti forseti Íslands verði einhver þroskaheft kelling."

Margt gott fólk er á lista Besta flokksins, t.d. Einar Örn Benediktsson og ég veit að þar fer ljónklár og hugmyndaríkur framkvæmdamaður, þó hann sé tónlistarmaður. Enginn þarf að efast um að þetta fólk muni ekki gera sitt besta til að koma mynd á borgarómyndina. Eitt er víst að ljótari og leiðinlegri getur hún varla orðið. Ég vil mun frekar sjá spaugsamar ráðdeildarsamar húsmæður og húskarla í borgarstjórn með brjóstvitið í lagi en háalvarlega bannaglaða félagsvísindamenntaða talíbana og hélaðar skýrslukynjagreinandi femínistabullur. Og hver segir að greindur skapandi grínisti þurfi endilega að verða verri borgarstjóri en t.d. svæfingalæknir eða geimréttarhagfræðingur?

 

Fjórflokkurinn er kominn til að fara

deaf_blind_dumbFólk er búið að horfa uppá VG og Samfó í landsmálunum svíkja kosningaloforðin á færibandi og klúðra öllu sem hægt er að klúðra eftir hrun með fádæma klunnaskap, óheiðarleika, heimsku, vanhæfni og landráðatilburðum og fólk er búið að horfa uppá bakhnífasirkus og óheilindi Fjórflokksins í borginni og er skiljanlega búið að fá æluna út um báðar nasir. Hroki atvinnupólitíkusanna bætir ekki úr skák: "Við erum ábyrgir fagmenn. Látið okkur alvöru  proffana um að losa ykkur úr ógöngunum sem við komum ykkur í."

Fjórflokkurinn er í fílabeinsturni og hlustar ekki á fólk. Hann er blindur og heyrnarlaus. Fjölfatlaður. Neitar að breyta vinnubrögðum sínum og reita arfann í eiginn garði. Hann vinnur á móti fólkinu og hefur gert sig að óvini þess númer 1. Þessvegna varð Besti flokkurinn til. Besti flokkurinn er í raun alfarið í boði Fjórflokksins. Þetta er faktískt eini valkostur þeirra sem vilja gefa Fjórflokknum langt frí og ennþá lengra nef. Fólk kýs tvíhöfðagæa til að snýta fjórhöfða.

 

Lifi leiðindin!

formadurinnEf alvarlega þenkjandi fólk gæti reynt að gleyma því eitt augnablik að Jón Gnarr hafi húmor, sem virðist stórhættulegt að hafa í dag, og myndi lesa aðgerðaráætlun Besta flokksins fordómalaust, þá sæi það bestu og skemmtilegustu stefnuskrána sem boðið er uppá fyrir þessar kosningar. Þó að stefnuskrár stjórnmálaflokka séu þau plögg í þessum heimi sem minnst er farið eftir þá gefa þær engu að síður vísbendingu um það hvernig landið liggur í viðkomandi flokki og á hvaða nótum hann hugsar.

Jón Gnarr er frumlegur og frjór og vonandi kjarkaður og kann að hugsa út fyrir pappakassann, og því fyrirtaks borgarstjóraefni í alla staði, þrátt fyrir að hafa þann hræðilega galla að vera fyndinn. Georg Bjarnfreðarson er nú orðinn George Best. Það er alveg ástæðulaust fyrir fólk að vera hrætt við nýtt blóð og nýja vendi í borgarstjórn. Fjórflokkurinn þarf ráðningu. Nýir vendir sópa ekki bara best. Þeir flengja líka best.

 

 (Þessi grein birtist í Morgunblaðinu í morgun)


Serði Monster meinað að syngja í Hvítasunnukirkjunni

 

trúarbragðamunur.jpgÞar sem mér hefur alltaf verið hlýtt til kirkjunnar og allra hennar deilda þá ákvað ég fyrir skömmu að bjóða henni starfskrafta mína. Ég hringdi í föður Hauk Haraldsson, innsta kropp í búri guðs almáttugs og kunngerði honum að Serðir Monster væri til þjónustu reiðubúinn sem forsöngvari á jólatónleikum Fíladelfíusafnaðarins. Hann spurði pirraður hvort þetta væri eitthvert grín og hvort að það væri ekki hægt fá neinn frið fyrir furðupoppurum. Ég tjáði honum að hér væri dauðans alvara á ferð enda ég ekki vanur að hafa kirkjunnar mál í flimtingum. Serðir Monster væri skapaður í guðs mynd eins og aðrir apakettir og ætti fullan rétt á að fá að syngja hástöfum í öllum kirkjum landsins eins og hann lysti. Annað væri mannréttindabrot. Haukur spurði hvort það væri ekki í lagi heima hjá mér. Ég kvað svo vera en ætti eftir að ryksuga. Hann sagði að þetta kæmi ekki til greina og vildi greinilega slíta samtalinu. Ég sagðist finna fyrir örlitlum fordómum hjá honum, bað hann um að slaka aðeins á og anda með rananum - Serðir Monster væri ekki rassriddari heldur bara ósköp venjulegur pervert og að þetta yrði mikil lyftistöng fyrir Hvítasunnukirkju hans og að fréttatilkynningin yrði flott:

"Serðir Monster verður forsöngvari á jólatónleikum Fíladelfíusafnaðarins. Serðir mun syngja sálma eins og t.d. "Saddam átti syni 7," "Þrjú tól undir fílnum," "Snæfinnur hórkall" og "Stóð mér útí pungsljósi" og mun svo klikkja út með lögunum "Nei nei, ekki á kjólinn" og "Another dick in the hole" af nýju plötunni sinni "Tekið stærst uppí sig."

Ég spurði Hauk hvort þetta gæti nokkuð orðið glæsilegra.

kirkjunnar_menn.jpg- "Þetta er hreint út sagt ógeðslegt. Við erum að reyna að skapa hátíðlega jólastemningu á þessum tónleikum en ekki að búa til einhverja djöflamessu."

- "Voðalegar kellingar getiði verið. Þið eru svo stífir að þið gætuð brotið nagla á milli rasskinnanna. Á ég að skilja þetta sem svo að þið afþakkið þjónustu Saint Monsters?"

- "Já! Kirkjan er ekki griðastaður fyrir klámkjafta og ósiðlegheit."

- "Við skulum nú ekki fara að tala illa um séra Gunnar Björnsson og fleiri guðsmenn."

- "Þetta er útrætt mál."

- "Heyrðu Gaukur minn...."

- "Ég heiti Haukur."

kristilegt umburðarlyndi.jpg- "Ókei, næsta fuglategund við, þú hlýtur að sjá að Serðir Monster er himnasending fyrir kirkjuna. Ég skal fara hérna með nokkrar hendingar úr nýju plötunni þó ég muni ekki kapitula og vers, t.d: "Taktu ofan kaskeitið og glenntu út rassg..."

- "Ég vil ekki heyra þetta!"

- "Hvernig er þetta eiginlega með ykkur í Fílabeinsturnssöfnuðinum..."

- "Þetta heitir Fíladelfíusöfnuðurinn!"

- "Ókei, hvernig er þetta eiginlega með ykkur í Fýludelasöfnuðinum, fyrst útskúfið þið Fretrik Ómari og nú ætlið þið að útskúfa Serði Monster. Ég meina, hver verður það næst? Guðmundur í Byrginu?"

- "Ekkert rugl. Guðmundur hefur látið af störfum í Byrginu."

- "Nú? Er hann kominn út í pólitík? Ætli hann muni ganga "óbundinn" til kosninga?"

- "Vertu blessaður. Reyndu að ganga á guðs vegum."

- "Nei, ég held ég taki taxa."

Það mætti hækka laun heimsins. Þau eru ekkert nema vanþakklæti.

 

 

 

(Þessi grein birtist í Morgunblaðinu í morgun)


Femínistinn

femmur.jpgFemínistar hafa barist fyrir mörgu merkilegu á undanförnum árum. T.d. hafa þeir (þær) viljað finna kvenkynsorð yfir ráðherra. Ég græjaði málið í snarhasti fyrir þá (þær) og kom með orðið “ráðherfa.” Það orð sló strax í gegn og nú kallast allir kvenkyns ráðherrar “ráðherfur” og allir geta tekið gleði sína á ný.

 

Smáralindarbæklingurinn frægi fór mikið fyrir bæði brjóstin á femínistum því þar sást ung stúlka beygja sig eftir dóti. Málið var sett í nefnd og komist að þeirri niðurstöðu að það væri klámfengið og glæpsamlegt að ungar stúlkur væru að beygja sig eftir dóti í auglýsingabæklingum.

 

 

feminism3_940218.jpgÁ femínistasíðunni smugan.is hafa femínistar verið að telja typpin á RÚV. Þar verði að koma á  kynjakvóta sem og í öðrum fyrirtækjum. Fyrirsögnin er mjög greindarleg: “Hæst bylur í eintómum typpum.

Á sömu síðu er barist fyrir því að á Grundarfirði verði ekki talað um “gulir, rauðir, grænir og bláir,” heldur verði þetta haft í kvenkyni: “Gular, rauðar, grænar og bláar.” Þau eru stór og merkileg málin sem femínistar eru að berjast fyrir.

 

 

 

 

Biblíuna sjálfa er búið að femínisera. Þegar Kristur segir: “Bræður,” þá ber honum að segja: “Bræður og systur,” jafnvel þótt engar kellingar hafi verið á staðnum. Engu að síður er kristið fólk ekki velkomið í raðir femínista eftir því sem trúaður maður segir mér og má það undrun sæta.

 

blondewishingwell.jpgStrax eftir hrunið fannst femínistum mikilvægast að berjast fyrir því að hvítvoðungar klæddust fötum í kynlausum litum á fæðingardeildum því það gæti haft alveg gríðarleg áhrif á launakjör þeirra í framtíðinni. Einmitt. Greindarlegt alltsaman. Listinn er óendanlegur.

 

Á nýju plötu Serðis Monsters “Tekið stærst uppí sig” er lag eftir mig sem kallast Femínistinn. Lagið má finna í tónlistarspilaranum hér til vinstri á síðunni. Hér er textinn:

 

 

 

Femínistinn

 

th_feminism_1_940229.jpgÉg er forljótur femínisti,

er fylgjandi Stalín og Kristi.

Ég er kvenrembukommúnisti

og kynjakvóta ég styð.

Ég er ófullnægð, bæld og bitur,

bráðum ég kafna úr fitu.

Ég varla get talist vitur,

en það venst einsog útlitið.

 

Ég láta vil loka stöðum

með léttklæddum stelpum gröðum.

feminism-demotivational-poster.jpgÉg hlynnt er höftum og kvöðum

og hindrunum út í eitt.

Ég kála vil karlrembunöðrum

sem káfa á viljugum blöðrum.

Ég vil hafa vit fyrir öðrum

þó viti ég sjálf ekki neitt.

 

Ég er svo beisk og bæld,

ég er svo breið og spæld.

Helvítis rassinn á mér

hann þarf sér

póstnúmer.

 

Það hyski´ætti´að hengja og brenna

sem hlutgerir líkama kvenna.

feminism5.jpgEkki skal gantast og glenna

neitt grínklám í feisið á mér.

Mér líður svo ill´yfir öllum

ánægðum drulluböllum.

Ég vil´ekki vita af köllum

vera að skemmta sér.

 

Ég er svo beisk og bæld,

ég er svo breið og spæld.

Fer kannski´að fíla djók

fái ég fílalók.

 

Ég banna vil klám og bölvun,

ég banna vil kynlífsölvun,

ég banna vil blowjob í tölvum,

ég banna vil ljóskugrín.

Ég banna vil frjálslyndi´og frelsi,

ég fagna hér hverskonar helsi.

normal_feminism.jpgÞeim grýta´á í rammgirt fangelsi

sem grínast með kvenrembusvín.

 

Ég er svo beisk og bæld,

ég er svo breið og spæld.

Fer kannski´að flissa dátt

fái ég góðan drátt. 

 

Ef að ég gæti þá myndi

ég afnema mannréttindi.

Vil eingöngu kvenréttindi,

allsekkert karllægt shit.

Ég´er hluti´af þeim gaggandi hænum

sem hýrast í Vinstri grænum.

Í guðanna guðanna bænum

gefðu mér atkvæði þitt.

 

femolution_940233.jpgÉg er svo beisk og bæld,

ég er svo breið og spæld.

Flýg upp til skýjanna

fái ég í´ana.

 

Ég er svo beisk og bæld,

ég er svo breið og spæld.

Spái´ekki´í spillingu

fái ég fyllingu.

 

th_feminazi_1.jpgÉg er svo beisk og bæld,

ég er svo breið og spæld.

Helvítis rassinn á mér

hann þarf sér

póstnúmer.

 

 

Bryndís Ásmundsdóttir: Söngur og bakraddir.

Serðir Monster: Kassagítarar, rafmagnsgítarar, píanó,

trommur, bassagítar, hljómborð.

 

Útsetning og stjórn upptöku: Sverrir Stormsker.

Stúdíó: Fjarupptökur.is

Upptakari: Snorri Snorrason.

Hljóðblöndungar: Snorri Snorrason, Sverrir Stormsker

og Vilhjálmur Guðjónsson.

 

(Þessi grein birtist í Morgunblaðinum í gær)


Andlegir dvergar í smáríki

íslenskt viðskiptasiðferði.jpgAð undanförnu hefur mikið verið rætt og ritað um þetta kunningja- og klíkusamfélag sem okkur finnst svo ægilega gaman að búa í. Það er einhvernveginn einsog fólk sé að átta sig á því fyrst núna hvað nálægðin og klíkutengslin eru þjóðfélagslega eyðileggjandi. Fyrirlestrar hafa verið haldnir og nú nýverið kom út góð bók eftir Styrmi Gunnarsson þar sem hann m.a. fjallar ítarlega um kunningjasamfélagið og nálægðina sem er hér allt að drepa.

Árið 1997, fyrir heilum 12 árum síðan, tóku nemendur Menntaskólans við Hamrahlíð langt og ítarlegt viðtal við mig sem birtist í skólablaði þeirra þá um haustið. Þegar ég les viðtalið núna þá finnst mér einsog það hafi verið tekið í dag. Ætla að birta hér brot úr þessu viðtali, orðrétt:  

Spyrill: "Hvernig finnst þér Ísland miðað við önnur lönd? Hvað mætti betur fara?"

islenskir_fagmenn.jpgStormsker: "Klakinn er ágætur í rauninni og að mörgu leiti betri en mörg önnur lönd, þ.e.a.s. landið sem slíkt, en ekki fólkið. Geta og hæfileikar skipta hér engu máli þegar kemur að því að fá sér embætti. Menntun og gráður virðast ekki skipta hér nokkru einasta máli heldur fyrst og fremst það að eiga frænku í hirðinni, vera sonur forstjórans, þekkja deildarstjórann, hafa farið á fyllerí með vini eigandans, vera tengdasonur ritarans eða eitthvað þvíumlíkt. Þetta er ástæðan fyrir amatörmennskunni hér á flestum sviðum. Þótt þú sért menntaðasta séní veraldarinnar þá skiptir það akkúrat engu máli hér á þessu axlarklappslandi ef þú ert ekki kunningi kunningja forstjórans. Það er náttúrulega fámennið sem gerir þetta af verkum. Allir eru skyldir en sumir eru skyldari en aðrir. Fámennið gerir það semsé af verkum að þjóðfélagið getur ekki kallast þjóðfélag án gæsalappa og sviga. Þetta er bananalýðveldi einsog ég hef ítrekað í það óendanlega. Afskaplega úrkynjað og óinteresant.

En einsog ég segi, landið sem slíkt er gott og veðurfarið er að mörgu leiti ágætt, ef maður vill leggjast í þrúgandi þunglyndi, en það má hinsvegar segja margt misjafnt um kerfið og fólkið einsog gengur. Þó íslendingar séu kannski ekki manna skemmtilegastir, heiðarlegastir og klárastir þá mættu þeir samt vera tveimur milljónum fleiri, hversu einkennilegt sem það kann nú að hljóma."

 

Flokkapólitík og kreddur

 

Spyrill: "Ertu hlynntur einhverri stefnu í stjórnmálum?"

scratch_my_back.gifStormsker: "Nei, ég er ekki einstefnumaður, hvorki í pólitík né öðru. Ég held að menn sem vilja draga sjálfa sig í litla og þrönga dilka séu afskaplega lítils virði sem hugsandi verur. Ég get svosem sagt að ég sé afar frjálslyndur jafnaðarmaður, hægra megin við Sjálfstæðisflokkinn, en ég held að enginn myndi vita hvað ég ætti við. Blind trú á stefnur og isma er fyrir idjóta. Flokkapólitíkin hérna er sömuleiðis fyrir idjóta, eða sýnist þér margir á Alþingi vera með snjalla hausa á hálsinum? Ég spurði einu sinni frekar þunna þingkonu hvað hún væri stór. Hún sagði: "Ég er 1,70." Ég sagði þá við hana að ég væri að spyrja um hæð, ekki greindarvísitölu. Flokkakerfið og kjördæmaskipanin gerir það að verkum að það er ekki hægt að tala um neina alvöru pólitík hér á landi. Hérna er ekki nein önnur pólitík en valdapólitík; að sitja sem fastast á sínum breiða rassi á valdastóli og maka krókinn og sökkva sér á kaf oní kjötkatlana.

Uppistaðan í öllum flokkum er hin landlæga tröllheimska seigdrepandi afturhaldssemi, þ.e.a.s. framsóknarmennska. Ef snefill af hinni annars ágætu frjálshyggju kemst inní landið, þá breytist hún á stundinni í einokun, samkeppnisleysi, einkavinavæðingu og dellu. Hér komum við aftur að þessu skelfilega fámenni."

Svo mörg voru þau orð sem ég lét falla fyrir 12 árum síðan. Ekkert hefur breyst og ekkert mun breytast því fólkið vill ekki raunverulegar breytingar. Það vill sama gamla eitraða grautinn í sömu gömlu skálinni.

 

 

(Þessi grein birtist í Mogganum í morgun)


Friðarsúlan kom og friðurinn hvarf

frygðarsúlan.jpgÞó að flestir líti eflaust á friðarsúluna hennar Yoko Mono sem stærsta reðurtákn sem sést hefur á byggðu bóli, einskonar frygðarsúlu, þá eru samt sumir sem sjá í henni mannlega reisn í öðrum skilningi. Líta á hana sem tákn friðar, en einsog allir vita þá verður friðar best gætt með loftvarnarljóskösturum einsog þessum. Þessi súla hennar Yoko er semsé ekki bara óráð gamallar atvinnuekkju sem veit ekki hvað hún á við tímann að gera, heldur líka óráð gamallar listaspíru sem veit ekki hvað hún á við tímann að gera. Sjálfur hallast ég að því að þessum loftvarnarljóskastara hljóti að fylgja álög og bölvun. Dæmi:

Aðeins örfáum dögum eftir að Yoko kveikti fyrst á “friðar”súlunni, eða hvað þetta nú er, þá sprakk borgarstjórn Reykjavíkur í loft upp. Gamla góða Villa var sturtað niður og Ólafi F. lækni troðið með læknisvottorði í borgarstjórastólinn. Ráðhúsið logaði í óeirðum og ófriði.

 

 

 

bankaeyjan-frimerki_934787.jpgLengi getur vont versnað

 

Þegar “friðar”súlan var tendruð í annað sinn þá hrundi bankakerfið til grunna og allt fór rakleitt til helvítis. Í kjölfarið rak hvert áfallið annað: Gjaldþrot heimila, fólksflótti, Borgarahreyfingin, atvinnuleysi, botnfall krónunnar. Fólk þurfti að fara úr 12 ára viskíi í landa og útrásarhetjur úr kóki í diet kók. Helferðarstjórn Jóhönnu og Steingríms komst á koppinn og hellti svo úr honum yfir þjóðina. Þessi hreina vinstri stjórn réð hreina öfgafrjálshyggjudúdda í AGS sem yfirstjórnendur peningamála. Hún skuldbatt þjóðina á höndum og fótum. Ekkert mátti verða til að losa tungu hennar af botni ESB.

Aldrei fyrr í sögu íslensku þjóðarinnar hefur annar eins ófriður ríkt á Íslandi og eftir að kveikt var á friðarsúlunni hennar Yoko.

 

 

yoko_mono.jpgYoko og Jóka eru ekki að djóka

 

Svo þegar maður hélt að verra gæti það ekki orðið, tæpu ári eftir hrun, hvað gerðist þá? Jú, mætti ekki kellingarálfurinn enn einu sinni með öll sín sólgleraugu og allt sitt rugl, í sínu kolsvarta galdradressi með stromphatt einsog páfinn og fór að kyrja eitthvað akabradabra nonsens í Hafnarhúsinu og kveikti svo í ofanálag enn eina ferðina á þessum hörmungar ófriðardrjóla sínum.

Og viti menn: Í sömu andrá dundu hörmungar yfir okkur sem aldrei fyrr: Félagsmálaráðherra fór að kynna áætlanir sínar til “bjargar” heimilum landsins, Davíð ráðinn ritstjóri Moggans, Jóhanna Sig. lét sjá sig í dagsbirtu og ítrekaði ábyrgð barnabarnanna á einkabankanum sem fixaði Icesave-snilldina, Ögmundur stökk ælandi frá borði, Serðir Monster gaf út plötu, Stormsker fór að skrifa pistla í Moggann, og til að bæta gráu ofaná svart þá fór Steingrímur J. að hugsa, – upphugsa skattpíningarstefnu til að koma þjóðinni alveg endanlega undir vinstri græna torfu. Það er nefnilega ekki nóg að varpa skuldum bankakrimma á breitt bak þjóðarinnar, það verður að skattpína hana útúr kreppunni og alveg útúr heiminum ef að stefna “velferðarstjórnarinnar” á að ganga upp.  

Allt virðist springa í loft upp sem japanska galdranornin kemur nálægt; Bítlarnir, Lennon, Hiroshima, Nagazaki, World Trade Center og núna Klakinn. Ef að stjórnin springur líka þá eigum við henni þó allavega eitthvað að þakka.

 

 

(Þessi grein birtist í Mogganum í morgun)


Ingibjörg Sólrún reið þjóðinni

geir_og_imba.jpgÉg veit ekki alveg hvor ummæli Imbu Sollu eru óheppilegri; þau sem hún viðhafði á Borgarafundinum í fyrra - að fólkið í salnum væri ekki þjóðin, eða þegar hún afsakaði þessi orð sín í þætti Sölva á Skjá 1 fyrir stuttu: "Mér fannst fólkið reitt og það gerði mig líka reiða."

Reiði hennar var þó af allt öðrum toga en reiði fólksins sem var að missa aleiguna. Fólkið var reitt útí hana vegna getuleysis ríkisstjórnar hennar en Imba var auðvitað ekki reið útí sjálfa sig heldur var hún reið fólkinu fyrir að vera reitt henni og hennar handónýtu ríkisstjórn. Skilningsleysi Imbu er greinilega ennþá alveg í algleymingi. Hún virðist ekki ennþá ná því, ári eftir hrunið, hversvegna fólkið var og er reitt. Menn virðast missa allt jarðsamband um leið og þeir komast á þing. Fara strax uppí 40 þúsund fetin, - sumir í boði útrásardólganna.

 

geir_og_imba_dumb_and_dumber.jpgEr reiði fólks virkilega óskiljanleg?

 

Í þætti Sölva á Skjá 1 sagði Imba Solla spekingslega:

"Ég held að reiðin sé mjög vont afl. Eitt af því, sem ég ásaka sjálfa mig fyrir og á kannski erfiðast með að fyrirgefa sjálfri mér í kringum hrunið, það er það að hafa átt þátt í því að kalla fram alla þá reiði sem varð í samfélaginu. Ég get ásakað sjálfa mig fyrir að hafa ekki stuðlað að því að draga meira úr þeim skelli sem að þetta varð fyrir samfélagið og draga úr þeirri reiði sem þetta kallaði fram í samfélaginu, vegna þess einsog ég segi: Reiðin er svo vont afl."

Hún semsagt framkallaði reiði og reiddist svo fólkinu fyrir að reiðast. Hún skilur ekki að fólk fylltist réttlátri reiði. Reiði getur nefnilega verið réttlát og undanfari breytinga til batnaðar þó að Imba skilji það auðvitað ekki.

 

stjórnmálamenn í boði Bónus.jpgImba leggur réttláta reiði og græðgi að jöfnu

 

Og áfram hélt samspillingarskörungurinn að ausa úr viskubrunni sínum:

"Ég er þeirrar skoðunnar að þeir sem eru hugmyndafræðingar eða talsmenn reiðinnar þeir gera samfélaginu jafn mikið ógagn og hugmyndafræðingar og talsmenn græðginnar gerðu á sínum tíma."

Imba og Óli.jpgVá hvað þetta er djúpt. Einstein bara mættur á svæðið. Hún hlýtur að fá Nóbelinn fyrir þessa speki. Hún leggur að jöfnu fólk sem er reitt yfir því að hafa misst aleiguna og fólk sem mærði græðgina, Baugsveldið og útrásina í hástert. Þar er hún líklega að tala um sjálfa sig, Ólaf Grí(m)s og fleiri slíka lírukassaapa útrásarinnar. Henni virðist fyrirmunað að skilja reiði fólks enda lítur hún ekki á almenning sem þjóðina. Þjóðin er í hennar huga þotuliðið; stjórnmálamenn, útrásarviðrini og kúluvambir bankanna.

imba_haekkar_skattana.jpgHún og hennar vankaða ríkisstjórn framkölluðu reiði með aðgerðaleysi sínu og aulaskap og svo furðar hún sig núna á reiði fólks. Ég veit ekki hvað þetta er sem hún er með í höfðinu, en ég óska henni góðs bata þó hann sé ekki beint sýnilegur. Mitt síðasta verk væri að gera grín að veikindum fólks, en þegar einhver sagði mér að Imba Solla væri með eitthvað í hausnum þá sagði ég að það gæti bara ekki verið. Ég tryði nú ekki hverju sem væri. Hún væri jafn tóm og vasar almennings. Það eru greinilega engin batamerki á lofti. Bara manneskja full af lofti.

 

 

(Þessi grein birtist í Morgunblaðinu 14. nóvember 2009)


Nor-rænulausa helferðarstjórnin

sæti í vinstristjórninni.jpgÞað fer að verða soldið erfitt að botna í illa þefjandi ríkisstjórninni. Ögmundur stekkur í ofboði úr henni haldandi fyrir nefið en styður hana hinsvegar heilshugar. Hann er svo hrifinn af þessari ríkisstjórn að hann getur ekki fengið af sér að sitja í henni mínútunni lengur. Guðfríður Lilja vill sömuleiðis ekki sjá að taka sæti í þessari ríkisstjórn og kúgast við tilhugsunina en styður hana hinsvegar alveg af alefli. Hugsunin er einhvernveginn svona: "Ég vil engan þátt eiga í ykkar heimskulega glæpapukri og vil ekki bendla mig við ykkar rugl, en ég styð ykkur hinsvegar af heilum hug því frekar vil ég hreina vinstri óstjórn en óhreina hægri óstjórn." Ég veit ekki hver nennir að reyna að skilja þetta. Það er einsog hvert sæti í þessari ríkisstjórn sé rafmagnsstóll sem enginn vill tylla sér í nema fársjúkir valdafíklar.  

Steingrímur J. er löðursveittur á harðahlaupum útum allan heim til að redda snúrum og drasli í öndunarvél þessarar ríkisstjórnar sinnar og snýst einsog vindhani í ofsaroki og sturtar niður hverju kosningaloforðinu á fætur öðru enda hefur hann sagt að stefna flokks síns samræmist ekki raunveruleikanum.

 

Ráðríkið, það er ég

djóka.jpgJóhanna Skjaldborg Sigurðardóttir forsætisráðherfa er líklega illskiljanlegust þeirra sem nenna að sitja í þessari nor-rænulausu helferðarstjórn. Henni finnst best að stjórna með kúgunum og hótunum einsog yndislegi Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hennar og hún heimtar samstillta samvillta samspillta ríkisstjórn sem er til í að láta ALLT yfir sig og þjóðina ganga til að tryggja inngöngu í ESB sem fyrst. Einkunnarorð Jóhönnu eru: Ráðríkið, það er ég. Þetta er ráðríkisstjórn Jóhönnu. Hún flæmdi Ögmund burt afþví hann hafði sjálfstæða hugsun og vildi halda í þann mikilvæga fyrirvara að við gætum leitað réttar okkar fyrir dómstólum varðandi Icesave ruglið. Skömmu eftir að hafa sparkað Ögmundi út á götu snerist hún 180 gráður og sagði að "það væri auðvitað ekki ásættanlegt ef okkur væri bannað að leita rétta okkar síðar meir, ef í ljós kemur að okkur hafi ekki borið þessi greiðsluskylda á icesave láninu."

Og núna snýst hún aftur 180 gráður og vill ásamt villta spillta vinstrinu samþykkja að ákvæðið um dómstóla verði gert marklaust og einskisvert! Hvað er að? Ég er ekki alveg nógu þroskaheftur til að skilja þennan hringlandahátt. Fyrir örfáum mánuðum vildi hún troða þessum ánauðarsamningi ólesnum í gegnum þingið án ALLRA fyrirvara. Hún hendir Ögmundi út og tekur síðan undir allt sem hann sagði sem var orsök þess að hún henti honum út. Og núna snýr hún aftur við blaðinu og samþykkir að ef málið fari fyrir dómstóla þá töpum við því jafnvel þótt við vinnum. Eru ekki til einhver lyf við þessu?

 

Hring eftir hring eftir hring eftir hring fer flokkurinn

Með buxurnar á hælunum.gifAfhverju ganga ekki allir úr þessari ríkisstjórn úr því að verið er að framkvæma þar hluti sem allir virðast vera ósammála? Meiraðsegja Jóhanna er ósammála sjálfri sér. Steingrím J. væri að vísu ekki hægt að losa úr stólnum með járnkarli og kúbeini og 50.000 volta rafstuði því hann er jú hugsjónamaður. Hugsjón hans er að sitja sem fastast. Hann er einsog farþegi í strætisvagni sem fer með honum hring eftir hring mánuðum saman án þess að vita hvert hann er að fara og hvort hann sé yfirleitt í réttum vagni, en vill ekki standa upp og fara úr á næstu stoppustöð af ótta við að sjálfstæðismaður setjist í sætið hans. Jóhanna situr rammvillt og samvillt við stýrið í vagúmpökkuðum stjórnklefa. "Viðræður bannaðar við vagnstjóra í akstri." Kleppur - Hraðferð.

 

Óskastjórn pottaglamraranna

icesave_samningurinn_undirritaður.pngEndurtek: Fyrir örfáum mánuðum reyndu dýrðlingarnir gegnsæu þau Jóhanna Skjaldborg og Steingrímur Gjaldborg að lauma Icesave ánauðarsamningnum ólesnum í gegnum Alþingi, án allra fyrirvara, og töluðu um "frábæran samning" sem Svavar-ég-nenni-þessu-ekki-Gestsson og einhver Mr. Bean krotuðu annarshugar undir í útlandinu að beiðni Steingríms, góðvinar þeirra. Samfylkingarforkólfarnir töluðu þá um að þeir myndu samþykkja hann blindandi einsog kettlingar og voru skýjum ofar í einfeldni sinni, fákunnáttu og ábyrgðarleysi.

Þetta er óskastjórnin sem búsáhaldabyltingin vildi sjóða saman í pottunum sínum. Hér er hún komin: "Hrein" vinstristjórn. Hreinn viðbjóður. Þessi nor-rænulausa helferðarstjórn veit samt ekki hvort hún er að koma eða fara en hún mætti gjarnan fara, - fara ein og óstudd til heljar án þess að draga þjóðina með sér í fallinu.

baugsfylkingin.jpgVið þurfum að fá hér utanþingsstjórn, - neyðarstjórn skipaða óklíkutengdum, klárum, heiðarlegum, frjálsum og óháðum fagmönnum. Ef engir slíkir innlendir fagmenn finnast þá mega þeir allir vera erlendir mín vegna. Jafnvel helst erlendir. Allavega kæri ég mig ekki um fleiri gjörspillta, vanhæfa, vankaða, eiginhagsmunapotandi, keypta og illa þefjandi stjórnmálaviðvaninga í boði Baugs, kúluvambabankanna og FL-Group, hvar í flokki sem þeir hanga.

 

 

(Þessi grein birtist í Morgunblaðinu 7. nóvember 2009)


Loksins Loksins. Íslandi er borgið

umslagið fallega.jpgJæja, loksins er hún komin í verslanir, platan sem ég og heimsbyggðin höfum beðið eftir með óþreyju frá því í byrjun árs, "Tekið stærst uppí sig" með Serði Monster. Það mátti ekki seinna vera því ég var nær dauða en lífi. Loksins getur maður farið að hlusta á hjartnæma söngva um útrásarvíkinga, femínista, kúluvambir bankanna, stjórnmálafroska, drullupumpur og aðrar hetjur þjóðfélagsins. Í tilefni dagsins hef ég sett lagið "Mín slísí saga er sönn" í tónlistarspilarann hér til vinstri á síðunni, (þar má einnig finna lögin "Þann dag er Klakinn dó" og "Tíu lygnir landráðamenn" af plötunni) og svo ætla ég að birta hér brot úr viðtali sem birtist við Serði um plötuna í júlí:

 

"Siðferðið er í molum á Islandi. Siðgæðisvitundin er engin. Serðir Monster er náttúrulega akkúrat rétti maðurinn til að bæta úr því. Það sem Ísland vantar sárlega núna á þessum alvarlegu siðlausu tímum er almennilegt klám. Femínistar hljóta að geta verið mér sammála um það. Við þurfum að efla nýsköpun á því sviði. Ég er að að reyna að leggja mitt af mörkum með þessari hjartnæmu plötu minni.

Þessi 19 laga plata mín væri bókstaflega barmafull og þarmafull af eðal klámi ef ekki væri kreppa. Það er nefnilega kreppa í landinu þó það hafi ekki verið auglýst víða. Og þessari meintu kreppu verður maður einnig að gera skil. Platan er þessvegna bland í poka, rétt einsog eistu. Þau eru líka svona bland í poka.

Þó að kreppunni fylgi gjaldþrot, atvinnuleysi, hjónaskilnaðir, fólksflótti og svoleiðis fjör þá eru líka neikvæðar og alvarlegar hliðar og það eru þær hliðar sem ég er að reyna að koma auga á. Kreppan er nefnilega ekki bara skemmtun og húllumhæ og eintóm hamingja einsog allir halda. Það eru líka slæmir punktar við hana sem sakar ekki að gefa gaum."

 

Sakar ekki að geta þess að Hagkaup neitar að selja plötuna vegna þess að þeim þykir umslagið víst eitthvað dónalegt. Þeim finnst ekkert dirty við það að útrásarvíkingarnir skulu hafi tekið þjóðina í kakóið en þeim finnst gasalega dirty að ég skuli hafa teiknað mynd af athæfinu. Svona er Ísland í dag. Ætli ég verði ekki að klæða plötuna í nærbuxur eða umslag eða eitthvað svoleiðis svo að sprellinn og sprellið sjáist ekki. Hagkaup er það siðavant fyrirtæki og má ekki vamm sitt vita. Humm humm. Platan er hinsvegar komin í allar betri búðir.

 

Hér er svo textinn við lagið "Mín slísí saga er sönn." Þess má geta að lagið fæst ekki spilað á Bylgjunni, hvernig sem skyldi nú standa á því. Hver á eiginlega öll þessi bannaglöðu kompaní? Wink

 

 

 

Mín slísí saga er sönn

(Lag: Jacques Brel. Texti: Sverrir Stormsker)

 

Ég átti höll og eðal bíl,

og einkaþotu, jú og krakkaskríl,

já ég var æðislegur gaur.

Ég var dáður, átti aur,

núna ataður er aur.

 

Nú ógeðslanda drekk eg dræ,

og drepst á hverju kvöldi yfir Sky.

Ég bý í venjulegri blokk.

Drottinn, þetta er þvílíkt sjokk.

Fjandans helvitis fokking fokk.

 

Ég er foj, ég'er í fönn.

Öll min slísí saga'er sönn.

Þó´hún sé lygileg

er hún sannari en ég.

 

Goodbye mitt sukk og svínarí

og svindilbrask og glæpakompaní

hvar ég fékk bellibrögðum beitt.

Fyrir það ég fékk jú greitt.

Fólkið skilur ekki neitt.

 

Goodbye mín snekkja'og lúxuslíf.

ég lengur ekki'í einkaþotum svíf.

Nú tek ég strætó einsog pakk.

Horfinn er minn kadilakk.

Ég fæ klígju, ullabjakk!

 

Ég er foj, ég'er í fönn.

Öll mín slísí saga'er sönn.

En öll lög eru hjóm,

ég mun ekki fá neinn dóm.

 

Goodbye mitt skuggalega líf,

ég lengur ekki neina tinda klíf,

jú það er marflatt þetta sker.

Engir dalir eru hér,

aðeins krónur, því er ver.

 

Ég á í felum í útlöndum

jú eitthvað pínupons af milljörðum.

Ég held ég flýji'af Íslandi.

Hér eru allir hvíslandi

ef ég er eitthvað sýslandi.

 

Ég er foj, ég'er í fönn.

Öll mín slísí saga'er sönn.

En öll lög eru hjóm,

ég mun aldrei fá neinn dóm.

 

Ég er foj, ég'er í fönn.

Öll mín slísí saga'er sönn.

Hún er svívirðileg,

hún er sönn en ekki ég.

 

Fólk gargar á mig, gefur mér púst

fyrir það eitt að hafa´allt lagt í rúst.

Já þetta er nú þakklætið.

Ég mun aldrei finna frið

fyrr en ég eignast almættið.

 

Goodbye minn faðir, fjandi er hart

að flýja þegar ógert er svo margt.

Svo mörgu´á eftir að stela hér.

Fjölda banka á þetta sker.

When you see them I´ll be there.

 

Ég er foj, ég'er i fönn.

Öll mín slísí saga'er sönn.

Ekkert í þessu skil,

allt er farið fjandans til.

 

Ég er foj, ég'er i fönn.

Öll mín slísí saga'er sönn.

Þó hún sé lygileg

er hún sannari en ég.

 

Ég er foj, ég'er í fönn.

Öll mín slísí saga'er sönn.

En öll lög eru hjóm,

ég mun aldrei fá neinn dóm.

 

Ég er hálfviti já,

jibbí jibbí jibb jei,

algjör hálfviti já,

ligga ligga ligga lá.

 

 

 

Serðir Monster: Söngur, bakraddir, kassagítar, píanó, orgel,

rafmagnsgítar, trommur, bassagítar, hljómborð.

 

Útsetning: Sverrir Stormsker, með hliðsjón af útsetningu Terry Jacks.

Upptökustjóri: Sverrir Stormsker.

Stúdíó: Fjarupptökur.is, Flúðaseli 86.

Upptakari: Snorri Idol Snorrason.

Hljóðblöndungar: Vilhjálmur Guðjónsson og Sverrir Stormsker.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband