Upphafleg hátíðarræða Jóhönnu Sig.

 

Ég hef komist yfir upphaflegu 17da júní-hátíðarræðu Jóhönnu Sigurðardóttur, einsog hún skrifaði hana, áður en aðstoðarmenn hennar kyngreindu hana og krukkuðu í hana og færðu til verri vegar. Hér er hún:

Jóka að mjálma á Austurvelli 17.júní 2010Góðir Íslendingar, fjær og þeir sem eftir eru. Sá sem ekki þekkir fortíðina getur ekki skilið sína samtíð og hvað þá skapað bjarta framtíð. Í því sambandi vil ég leyfa mér að vitna í skáldið Jónas Hallgrímsson frá Litla-Hrauni í Skandal: "Hæ hó jibbíjei og jibbíjei. Það er kominn 17. júní."

Við, sem erum hér saman komin á Austurvelli fyrir framan styttuna af Jóni Ásgeiri Sigurðarsyni forseta frá Högum í Syðri Fésýslu, hugsum til hans með söknuði og virðingu. Ég er mjög stolt af því að hafa kynnst honum persónulega. Á næsta ári munum við minnast þess að 600 ár eru liðin frá fæðingu þessa merka rithöfundar og brautryðjanda. Maður þarf ekki að blaða lengi í æviverki hans, Nonnabókunum frægu, til að sjá að þar fór einlægur Evrópusinni. Það er honum að þakka að Brussel verður höfuðborg Reykjavíkur innan skamms. 

 

Árangur stjórnarinnar lyginni líkastur - Enda lygi.

GegnsæiðGóðir hálsar. Samleikurinn mun gera yður frjálsa. Við í ríkisstjórninni vinnum saman sem einn köttur. (H)efndir fylgja orðum okkar. Við höfum svo sannarlega látið hendur standa fram úr skálmum. Gríðarlega mikið hefur áunnist frá því hreina vinstri helferðarstjórnin komst á laggirnar í kjölfar búsarabyltingarinnar: Atvinnuleysi þekkist ekki, eða allavega þekki ég það ekki. Hjól atvinnulífsins eru farin að snúast á fullu - í sama farinu í leðjunni.

Seðlabankastjóri er á góðum launum, þó þau mættu vera hærri. Það má fixa það einhvernveginn. Gegnsæið er orðið algert. Það getið þið sannfærst um með því að horfa inn í eyrun á mér. Sést í gegn. Allt er uppá borðum, sérstaklega möppurnar sem merktar eru Top Secret. Þær eru allar uppá borðum okkar Steingríms J.

Skattpíningarstefna okkar hefur gefist vel í kreppunni og mun gefast enn betur þegar fleiri hafa flúið land. Því færra fólk, því meiri hagsæld. Þegar fólk á ekki lengur til hnífs og skeiðar þá er skynsamlegast að taka af því hnífapörin. Þjóðarskútan marar ekki lengur í hálfu kafi. Ríkisstjórnin hefur sökkt henni til botns, sem þýðir að nú höfum við loksins fast land undir fótum. Mjög gott mál.

 

Bankarnir - Af hávöxtunum skuluð þér þekkja þá

íslenskur þrællGóðir landsmenn og konur. Bankarnir standa traustum fótum - ofan á alþýðunni. Skuldir stóreignamanna hafa verið afskrifaðar og þeim verið afhent fyrirtæki sín hvítþvegin og flott svo þeir geti byrjað að nýju að bæta hag almennings. Bónus - ekkert bruðl.

Einungis um 20.000 óreiðufjölskyldur verða bornar út úr húsum sínum og út á götu þegar nær dregur fæðingardegi frelsarans, sem er 24. október. Só? Þetta er seinni tíma vandamál, sem er ekki í verkahring ríkisstjórnarinnar að leysa heldur sveitarstjórnanna, aðallega Reykjavíkurborgar. Þetta óreiðufólk mun segja sig til sveitar og fá sínar bæjarblokkir í einhverju gettói. Reykjavíkurborg er skjaldborgin sem ég lofaði ykkur. Við í ríkisstjórninni stöndum traustan vörð um velferðina í þessu óþol-landi.

Það verður aldrei sagt að ég hafi dregið hendurnar í mínu fórnfúsa starfi - í þágu Breta og Hollendinga. Ég og Steingrímur J. höfum grenjað linnulaust í þessum gæum fyrir hönd þjóðarinnar að fá að borga Icesave-skuldir Björgólfs Thors og við munum hafa sigur að endingu. Og inn í ESB skulum við fara, lifandi eða dauð. Mér og Steingrími í Kattholti skal takast að smala öllum köttum landsins inn í himnaríkið. Við Steingrímur erum einsog eineggja síamskettir í þessu máli.  

 

Nektarlaust Ísland árið 2011

Þú ert bannaðurÞað sem hæst ber þegar litið er yfir afrek ráðríkisstjórnar minnar er óneitanlega sú staðreynd að okkur tókst að banna unglingum innan 40 ára að stunda ljósabekki. Fólk sem vill fá súkkuðlaðilit á að baða sig uppúr brúnkukremi einsog félagsmálaráðherra. Okkur tókst einnig að banna nekt á nektarstöðum. Þetta eru þau tvö mál sem okkur þótti brýnast að einbeita okkur að í kreppunni. Nú skulu allir vera kappklæddir inn á nektarstöðunum og líka í ljósabekkjunum.

Við erum um þessar mundir að íhuga hvað við getum bannað næst. Ríkisstjórnin veit hvað sjálfráða fólki er fyrir bestu.  Ég hef t.d. lagt fram frumvarp í samráði við femínistana í VG sem kveður á um blátt bann við því að fólk, 25 ára og eldra, sofi nakið. Því beri að sofa í náttfötum. Ríkisnáttfötum. Karlar skulu jafnframt sofa með bindi og konurnar með dömubindi. Helst vera í 20 bindum einsog ritsafn Davíðs Stefánssonar frá Skírisskógi.

Étiði skítGóðir Íslendingar og annað sláturfé. Ég, sem forsætisráðherfa, vil að endingu gera orð Jóns Ásgeirs Sigurðarsonar frelsishetju að mínum: "Þið þurfið ekki að hafa áhyggjur af mér. Ég á fyrir diet kók." Ef við náum að temja okkur nægjusemi Jóns Ásgeirs Sigurðarsonar frá Högum í Syðri Fésýslu, þá munum við farast vel. Landið er gjöfult og gott og enginn þarf að svelta. Sá sem á ekkert til í ísskápnum getur alltaf étið það sem úti frýs. Hvað sagði ekki Jésús frá Nagasaki: "Ekki hugsa um mat og drykk því að eftir þessu sækjast heiðingjarnir. Sælir eru hungraðir því að þeir munu sveltir verða. Sælir eru fátækir því að þeir munu gjaldþrota verða."

Ég óska ykkur öllum til hamingju með daginn og ríkisstjórnina. Ekki láta deigið síga. Skál í botn! Lifi fjórflokkurinn! Húrra! Húrra! Húrra! Húrra niður brekkuna til helsældar!

 

 

(Þessi grein birtist í Morgunblaðinu í morgun) 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það var líka eithvað bogið við þessa ræðu.

Kennsla (IP-tala skráð) 22.6.2010 kl. 11:51

2 Smámynd: Sverrir Stormsker

Það er líka eitthvað bogið við banana og krypplinga.

Sverrir Stormsker, 22.6.2010 kl. 12:07

3 identicon

Þetta væri ekki sama lífið ef bananar væru beinir.

Kennsla (IP-tala skráð) 22.6.2010 kl. 12:33

4 Smámynd: Einar B  Bragason

Hlaut að vera fattaði ekki kerlinguna enda þorsta heftur en það stendur til bóta!

Einar B Bragason , 22.6.2010 kl. 12:39

5 Smámynd: Jakob Þór Haraldsson

Hjartanlega sammála þér að árangur þessara norrænu velferðarstjórnar er LYGIN lýkust, enda lygamerðir þarna inn á þingi fyrir Samspillinguna!  Ég grátbað einnig umhverfisráðherra um að taka Jón Ásgeir úr umferð, enda augljóst í mínum huga að hann var með GEISLAbaug.  Eða með orðum Saramans: "One ring to RULE them all, one money ring to bind them all..!"

kv. Heilbrigð skynsemi (www.fun.blog.is)

Jakob Þór Haraldsson, 22.6.2010 kl. 12:50

6 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Það er nú ekki á færi margra húmorista að skrásetja slíka ræðu.  Vissi ekki að forsætisráðherra væri slíkur?

Takk fyrir skellihlátur.    og leyfa oss aumum, sem ekki lesa MBL af ógeðslegum prinsippástæðum að njóta líka.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 22.6.2010 kl. 13:09

7 Smámynd: Sævar Einarsson

Alger snilld !

Sævar Einarsson, 22.6.2010 kl. 14:58

8 Smámynd: Geir Ágústsson

Mikil snilld!

Ætli Fréttablaðið hefði birt þessa grein? 

http://www.amx.is/fuglahvisl/15076/

Geir Ágústsson, 22.6.2010 kl. 15:18

9 Smámynd: Kolbrún Kvaran

Snillingur ertu nú alltaf Sverrir minn!

Kolbrún Kvaran, 22.6.2010 kl. 19:06

10 Smámynd: Ómar Ingi

Snilld

Ómar Ingi, 22.6.2010 kl. 21:14

11 Smámynd: Sverrir Stormsker

Kennsla, nr. 3, það er rétt. Lífið væri hreinlega óbærilegt ef bananar væru beinir, - og þá erum við að sjálfsögðu að tala um móðurlífið.

Sverrir Stormsker, 22.6.2010 kl. 21:36

12 Smámynd: Sverrir Stormsker

Einar B, bara drekka meira, þá kemur skilningurinn. Taka Churchill sér til fyrirmyndar.

Sverrir Stormsker, 22.6.2010 kl. 21:40

13 Smámynd: Sverrir Stormsker

Jakob, það eru náttúrulega lygamerðir og beinasnar í öllum flokkum. Fjórflokkurinn hangir saman á lyginni, samtryggingunni og samspillingunni. Uppistaðan í fjórflokknum er framsóknarmennska, þ.e.a.s. hagsmunahóruskapur. Mjög einfalt mál. Fyrirlitlegt??? Veit ekki. Þetta er bara íslensk “pólitík” einsog hún gerist best. Sem er verst.

Sverrir Stormsker, 22.6.2010 kl. 21:51

14 Smámynd: Sverrir Stormsker

Jenný, við skulum nú ekki móðga Jóku með því að kalla hana forsætisráðherra. Við skulum nota viðeigandi virðingarnafngift, og það er: Forsætisráðherfa.

Ég vil ekki upplýsa hvar ég fann þessa upphaflegu ræðu hennar, en það get ég sagt að það var ekki í bleiku klámblaðaskúffunni með rósótta mynstrinu hægra megin við hliðina á rúminu hennar með öllum John Holmes-dildóunum. Því get ég lofað einsog hann er....einsog ég er langur til.

Sverrir Stormsker, 22.6.2010 kl. 21:57

15 Smámynd: Sverrir Stormsker

Sævarinn, mér finnst þú nú full lágstemmdur í lýsingu þinni á greininni. Mátt fara að temja þér smá kurteisi hérna.

Sverrir Stormsker, 22.6.2010 kl. 22:05

16 Smámynd: Sverrir Stormsker

Geir spyr: "Ætli Fréttablaðið hefði birt þessa grein?"

Það er ekki ólíklegt að Fréttablaðið hefði birt þessa grein hefði Þorvaldur Gylfason skrifað hana, en hann gæti náttúrulega aldrei hafa skrifað hana vegna þess að hér er minnst á Jón Ásgeir.

Sverrir Stormsker, 22.6.2010 kl. 22:14

17 Smámynd: Sverrir Stormsker

Kolbrún, mikið hjartanlega er ég nú sammála þér Brúnka mín 

Sverrir Stormsker, 22.6.2010 kl. 22:20

18 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Sverrir þetta er alveg dásamlegt. Ég bara get ekki hætt að hlæja að þessu :)

Einar Örn Einarsson, 22.6.2010 kl. 23:55

19 Smámynd: Sverrir Stormsker

Ómar, snilld segirðu. Mér finnst það nú allt of vægt til orða tekið. Það er bara verið að ausa hérna yfir mann svívirðingum!

Sverrir Stormsker, 23.6.2010 kl. 00:26

20 Smámynd: Sverrir Stormsker

Einar, Jóka er joke.

Sverrir Stormsker, 23.6.2010 kl. 01:31

21 Smámynd: Haraldur Baldursson

Það er mikill fengur að þessari útgáfu ræðunnar sem þú fannst Sverrir. Það færi betur að Jóhanna héldi sgi við frumútgáfur í framtíðinni, enda mun fyndnari. Þú átt heiður skilin fyrir að birta þessa útgáfu.

Haraldur Baldursson, 23.6.2010 kl. 12:36

22 Smámynd: Sverrir Stormsker

Haraldur, takk fyrir það.

Sverrir Stormsker, 23.6.2010 kl. 21:46

23 Smámynd: Vilhjálmur Eyþórsson

Frábært!

Vilhjálmur Eyþórsson, 24.6.2010 kl. 02:35

24 Smámynd: Theódór Norðkvist

...fyrir framan styttuna af Jóni Ásgeiri Sigurðarsyni forseta frá Högum í Syðri Fésýslu...

Hló mikið að þessu.

Minnir mig á eina fígúruna hjá Ladda, Jarmund (h)landbúnaðarráðunaut, sem ætlaði að kæra bóndann að Syðri-Hnéskeljum vegna þess að hann færi ekki eftir fjárlögum og væri með of mikið af neikvæðu eigin fé.

Hann ætlaði að fá sér öxi og saxa niður rollurnar hans, þ.e. gera þær að hlutafé.

Theódór Norðkvist, 24.6.2010 kl. 10:28

25 Smámynd: Þórhallur Rúnar Rúnarsson

Þú ert náttúrulega ekki heill   þvílík snilld þessi "ræða" ráðherfurnar

Þórhallur Rúnar Rúnarsson, 25.6.2010 kl. 01:55

26 Smámynd: Sverrir Stormsker

Vilhjálmur, takk. Mæli sömuleiðis með stórgóðri grein þinni Eyja Sancho Panza fyrir alla þá sem eru búnir að liggja of lengi undir straujárni samfélagsins og eru kannski orðnir of sléttir og felldir. Flatir. (Voru í ofanálag kannski fæddir vel straujaðir karakterar).

Sjálfur skrifaði ég grein í ekki ósvipuðum þönkum árið áður, gósenárið 2007, grein sem heitir Best er að vera einn í biðröð og setti hana Hér á bloggið hjá mér þegar mér fannst hjarðmennskan og dellan vera farin að keyra um þverbak. Kíktu á hana. Must! Að sjálfsögðu!!

Sverrir Stormsker, 25.6.2010 kl. 12:16

27 Smámynd: Sverrir Stormsker

Theódór, Laddi kallinn minn gamli vinur er náttúrulega meiriháttar. En hver skyldi nú hafa komið með þessar skilgreiningu á hlutafé = kótelettur og lærisneiðar, o.s.fr. Þetta var í nýyrðabókinni minni Orðengill sem kom út fyrir langa löngu. Þó að Dengsi hafi fundið upp margt þá fann hann ekki upp ALLT!

Sverrir Stormsker, 25.6.2010 kl. 12:36

28 Smámynd: Sverrir Stormsker

Þórhallur, svona er að vera bilaður á Íslandi í dag.

Sverrir Stormsker, 25.6.2010 kl. 12:39

29 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Gaman að eiga svona frændur

 Ég stel þessu

Sigurður Þórðarson, 28.6.2010 kl. 01:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband