Færsluflokkur: Bloggar
13.4.2009 | 15:25
One fight in Bangkok
Ég var svo "heppinn" að vera staddur í Bangkok í dag þegar óeirðirnar brutust út. Það er reyndar allt búið að vera í hers höndum í orðsins fyllstu merkingu svo dögum skiptir, en í dag sauð pínulítið uppúr. Ég sat inná tuskulegum veitingastað og var að panta mér kokteil, bangkokteil, þegar molotovkokteill kom allt í einu fljúgandi inn um gluggann. Ekki alveg það sem ég var að biðja um. Á samri stundu breyttist þessi annars lítt vinsæli veitingastaður í einn þann heitasta í bænum. Ég brann í skinninu að komast út á götu en þegar þangað kom tók ekki betra við: Vélbyssuskothríð og sprengingar. Ég hugsaði með mér: "Þetta er nú ekki alveg nógu hressandi. Hvað hef ég nú gert af mér?" Ég gat huggað mig við það að ástandið væri nú samt skárra en uppá Klaka."
Hermenn voru um allt með hríðskotabyssur og basúkur, japlandi á basúkutyggjói. Ég sá hvers kyns var þegar þeir fóru að skjóta á rauðskyrtur, en það eru menn sem vilja ólmir og uppvægir fá Thaksin fyrrv. forsætisráðherra aftur að kjötkötlunum. Sá gæi var fyrir nokkrum mánuðum uppvís að lítilsháttar spillingu og var vinsamlegast beðinn um að taka hatt sinn og staf og skella sér í útlegð. Þetta gerist stundum í skrítnum löndum þar sem litið er á spillingu sem eitthvað sem þurfi að gera veður út af.
Nýi forsætisráðherrann, Abhisit, eða Apashit einsog ég kalla hann stundum, var ekki kosinn heldur settur í embættið og það fannst mörgum Tælendingum ekkert gasalega sniðugt og vilja nú fá sinn gamla góða Thaksin aftur með kosningu. Tælendingar eru einar mestu friðsemdarverur þessa heims en þegar þeir vilja eitthvað sem fullnægir réttlætiskennd þeirra, í þessu tilviki kosningar, þá nenna þeir ekki að fara að tromma á potta og pönnur einsog hottintottar og halanegrar eða standa hnípnir einsog barðir rakkar á einhverjum austurvelli í grafarþögulum mótmælum. Nei, þá taka þeir til við að að búa til rótsterka molotovkokteila og almennilegan hasar.
Ég sá nokkrar rútur sprengdar í loft upp og nokkra bíla og byggingar standa í frekar björtu báli. Herinn segist nota "blank shots" eða púðurskot en það eru þá einu púðurskotinn sem gera gat á hausinn á fólki. Þetta eru svo kröftug púðurskot að fólk hendist fram af svölunum sem verður fyrir þeim. Annars er þetta ansi skemmtilegt og upplífgandi og ekkert ólíkt því sem gerist í miðbænum á Los Klakos um helgar. Kannski ekki beint upplífgandi fyrir þá sem detta dauðir niður en fyrir áhorfendur er þetta náttúrulega prýðis skemmtun.
Kóngurinn er líklegast ekki við hestaheilsu því hann er búinn að vera í öndunarvél í nokkra mánuði. Menn fara varla í öndunarvél nema að þeir séu frekar slappir. Nú þyrfti að taka kóngsa úr öndunarvélinni og stilla honum upp hangandi í girni úti á hallarsvölunum og láta einhvern búktala fyrir hann og segja fólki að hætta þessum hávaða. Kóngsi er gæinn sem getur stoppað þessi læti því það er litið á hann sem guð, ekki ósvipað og litið var á útrásarvíkingana á gróðæristímanum. Hann þarf ekki annað en að lyfta upp litla putta og segja:" Skamm" og þá fellur allt í ljúfa löð og allir fallast í faðma og segja "solly," en það þýðir "sorry" á nútímaíslensku. (Tæjarar geta nefnilega ekki sagt R).
Ég á ekki von á að þessi skemmtun standi lengi yfir því tælenskir karlar eru frekar latir og vilja helst bara dytta að mótórhjólunum sínum og fara í kynskiptiaðgerð og hafa það næs. Hef ekki nokkrar áhyggjur af þessu.
Óeirðir í Taílandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 14.4.2009 kl. 16:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
21.3.2009 | 13:57
Nú ríður á að banna allt "klám"
"Raddir fólksins" eru þagnaðar því nú hefur takmarkinu verið náð og vandamálin leyst: Vinstri græningjar eru komnir til valda og Dabbi farinn úr Seðlabankanum. Allt semsé komið í glimrandi gott stand. Verður ekki betra. Ég sagði í grein fyrir einhverjum mánuðum að það fyrsta sem Vinstri græningjar myndu gera þegar þeir kæmust til valda væri að einbeita sér að því sem mestu máli skipti til bjargar landinu og það væri náttúrulega að loka þessum örfáu stórhættulegu súlustöðum og banna allt "klám." Sem betur fer er það orðið að veruleika.
Það er alveg hryllilegt til þess að hugsa að fullorðnir sjálfráða karlar skulu leyfa sér að horfa á hálfberar fullorðnar sjálfráða stelpur og skulu meiraðsegja geta haft gaman af því. Þvílíkir djöfulsins drullusokkar. Þvílíkt óeðli. Þvílíkt helvítis fokking fokk! Auðvitað á að banna þessa viðbjóðslegu staði. Með því að banna þessa staði þá hverfur allt vændi einsog dögg fyrir sólu einn tveir og bingó og Klakinn rís úr sæ og allir geta tekið gleði sína á ný. Þarna þrífst alveg hreint gríðarlegt mansal og þrælahald í stórum stíl. Stelpurnar eru hlekkjaðar á höndum og fótum og barðar áfram með hnútasvipum og gaddakylfum og sendar í galeiðum milli landa. Þær koma frá þriðja heims löndum einsog Eystrasaltslöndunum og Bretlandi sem eru alræmd skítabæli einsog allir vita. Á súlustað einsog Goldfinger geta þær haft hátt í milljón á mánuði sem er náttúrulega alveg skelfileg tilhugsun. Mér persónulega myndi líða miklu betur vitandi af þeim á kassa í Bónus eða skeinandi gamalmennum á Grund fyrir 90 kall á mánuði. Svoleiðis draumadjobb myndu þær þiggja fegins hendi ef þær væru ekki í ánauð, marghlekkjaðar á höndum og fótum. Það á að stinga þrælahaldara og yfirdjöfli einsog Geira á Goldfinger beint í svartholið uppá vatn og bónusbrauð og pína hann til að lesa Kommúnistaávarpið og hlusta á allar þingræður Vinstri græningja kvölds og morgna, dag og nótt, árið um kring, ævina á enda
Ég þarf ekki að taka það fram að það ber að sjálfsögðu að banna klámmyndir einsog þær sem ég birti hér að ofan. Efsta myndin er náttúrulega sínu verst. Þeir sem góna of mikið á hana gætu leiðst út í drullupumpubisness.
Vinstri grænir, sem af einhverjum mjög góðum og gildum ástæðum eru með kynlíf á heilanum, vilja einnig láta leiða í lög að sá sem kaupir þjónustu af hóru fari beinustu leið í grjótið, en ekki hóran. Að bjóða vændi á semsagt að vera löglegt en að þiggja þjónustuna og borga fyrir hana einsog sannur séntilmaður er vitaskuld glæpur. Allir hljóta að sjá að þetta er náttúrulega alveg ofboðslega skynsamlegt einsog allt sem frá Svíum og Vinstri grænum kemur. Skrítið að einhverjum hugsuði einsog Valda koppasala skyldi ekki hafa dottið þetta í hug. "Raddir fólksins" hafa greinilega hvorki náð hans eyrum né mínum nógu vel. Glæsileg, kynþokkafull kona sem vill nota guðsgjafir sínar í ábataskyni er ALLTAF í ánauð einhvers ógeðslegs hórmangara. Segir sig sjálft. Það á að banna allt atvinnufrelsi. Það er frá djöflinum komið einsog allt annað frelsi.
Þú átt semsagt þinn líkama og mátt bjóða hann hverjum sem er til afnota en þú mátt hinsvegar allsekki þiggja eina krónu fyrir gamanið. Sá sem er kurteis og gefur þér 1000 kall í þakklætisskyni fer beint í dýflissu þar sem hann verður hlekkjaður á höndum og fótum einsog súludansmey. Örugglega auðvelt að rannsaka svona mál. Vinstri græningjar hljóta þá um leið að vilja leiða það í lög að dópsalinn sé saklaus sem lamb en kaupandinn sekur. Það gefur auga leið. Það verður að vera samræmi í hlutunum. Eitt skal yfir alla ganga
Boð og bönn hafa alltaf reynst heilladrýgst lausn hvers vandamáls, hvort sem um er að ræða vændi, súlustaði, áfengi eða annað. Með því að banna hlutina þá hverfa vandamálin. Maður skrifar undir lög og vandamálið er úr sögunni. Gott dæmi um það er áfengisbannið í Bandaríkjunum. Það hættu bókstaflega allir að drekka med det samme. Mafían brosti að vísu eitthvað en þetta svínvirkaði. Þorstinn hvarf einsog sparifé Breta í Icesave. Framsóknarflokkurinn gerði gott betur og setti í stefnuskrá sína fyrir um 10 árum síðan: "Vímuefnalaust Ísland árið 2000." Síðan þá hefur ekki nokkur kjaftur sést reykja svo mikið sem njóla og hvað þá gras á götum bæjarins. Sama gildir um vændið. Það er nefnilega kolrangt sem einhver orti hér um árið: "Þótt náttúran sé lamin með lurk / þá leitar hún út um síðir."
Mér sýnist að eina leiðin til að koma útrásarkrimmunum á bak við lás og slá sé að reyna að fá þá til að tíma að borga einhverri kellingu fyrir tottið. Annars borgar sig nú ekki að vera að pæla í smotteríi einsog hruni landsins. Það sem ríður á þarf að gera, nú þegar landið er að fara til helvítis, er að banna alla nekt og allt helvítis klám. Það er forgangsatriði og sem betur fer gerir ríkisstjórnin sér grein fyrir því og er að vinna í því baki brotnu einsog hóra á bakinu. Engir tveir einstaklingar skulu fá að fara í sturtu saman, hvorki í sundlaugunum né heima hjá sér. Sjáist berbrjósta kellingardrusla liggja í sólbaði skal hún umsvifalaust skotin á staðnum, beint á milli augnanna, nú eða brjóstanna, og sömuleiðis þeir perrar sem eru að góna á hana. Sérstaklega þeir. Beint á milli brjóstanna. Setjum heimsmet í forsjárhyggju og leiðindum rétt einsog glæpamennsku og spillingu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (63)
6.3.2009 | 20:23
Þann dag er Klakinn dó
Flestir sem komnir eru til vits og ára, eða skulum við segja ára, hafa heyrt lagið The night Chicago died með hljómsveitinni Paper Lace. Það fjallaði um þann skemmtilega tíma þegar öðlingurinn Al Capone réði ríkjum í Chicago á bannárunum. Við erum að upplifa ekki ósvipaða gósentíma á Islandi í dag nema hvað fólkið er ekki plaffað niður með vélbyssum heldur með fláttskap og vélum.
Eg tók mig til núna um miðjan janúarber og gerði nýjan texta við þetta ágæta lag og tók það upp. Lagið heitir Þann dag er Klakinn dó. Eg og Richard Scobie syngjum. (Síðast sungum við félagarnir saman lag mitt Allsstaðar er fólk fyrir sléttum 20 árum síðan). Þetta lag, sem kemur út á sólóplötu minni í haust, má finna í tónlistarspilaranum hér til vinstri á síðunni.
Dabbi hann var boss
hér á ísköldum klaka
í þá gömlu vondu daga.
Það er mikil sorgarsaga.
Það var kolsvartur september,
það var sárt fyrir frónska menn
þegar ískaldur Klakinn dó.
Það er talað um það enn.
Þá voru bjórúlfar í móð
við að ræna þessa þjóð
og þeir komu´upp bankaher
til að kyrkja þetta sker.
Ég heyrð´er mamma hló,
hún hló og grét þann dag er Klakinn dó.
Boring þessi djöfuls dagur var.
Borinn fyrir borð hvers hagur var.
Það er satt.
Ég heyrð´er mamma hló,
hún hló og grét þann dag er Klakinn dó.
Sérhver maður gekk af göflunum
vildi stúta fjármagnsöflunum.
Það er satt.
koma ránsfengnum á þurrt.
Þegar lögreglan loksins kom
þá var allt á bak og burt.
Hér voru bankaflón í móð
við að ræna þessa þjóð,
já þeir sló´ana í rot
og þeir settu hana í þrot.
Ég heyrð´er mamma hló,
hún hló og grét þann dag er Klakinn dó.
Þvílík hörmung þessi dagur var.
Borinn fyrir borð hvers hagur var.
Það er satt.
hún hló og grét þann dag er Klakinn dó.
Sérhver maður reyndist ráðþrota,
rúinn inn að skinni, gjaldþrota.
Þjóðin sprakk.
Og það sagði enginn orð
er þeir frömdu þjóðarmorð.
Allir misstu húsin sín,
fóru að lifa einsog svín,
allir misstu sitt í hýt,
allir fóru að éta skít.
Þann dag er Klakinn dó.
Bróðir þvílík eymd og þvílíkt basl,
Bróðir þvílíkt mess og þvílíkt drasl.
Það er satt.
Þann dag er Klakinn dó.
Þann dag er Klakinn dó.
Margir flúðu land, þeir æddu út.
Þjóðinni já henni blæddi út.
Það er satt.
Þann dag er Klakinn dó.
Þann dag er Klakinn dó.
Allt er týnt og gefið tröllunum.
Ráðamenn þeir kom´af fjöllunum.
Það er satt.
Þann dag er Klakinn dó.
Þann dag er Klakinn dó.
Þjóðin þurfti´að hlust´á rugl og bull.
Ráðamenn þeir lugu okkur full.
Það er satt.
Stormsker > Söngur, bakraddir og öll hljóðfæri.
Scobie > Söngur og bakraddir.
Snorri Snorrason idolstjarna > Upptakari.
Snorri og Stormsker > Mixarar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Svona er dæmigerð þingmannsræða um þessar mundir:
"Hæstvirtur forseti. Ég er aumingi og hálfviti og vinn við það að hafa vit fyrir þessari þjóð. Mér þykir ákaflega leitt ad hafa steinsofið á verðinum meðan bankahrunið átti sér stað. Sömuleiðis þykir mér miður að vera hálfviti. Ég geri mér ljóst að ég er ekki starfi mínu vaxinn en hver er það svosem í okkar frændaþjóffélagi þar sem klíka skiptir meira máli en geta, menntun og hæfileikar? Ég hefði mátt vera gagnrýninn í hugsun, en til þess að vera gagnrýninn i hugsun þá þarf maður að geta hugsað Eitthvað og það er ekki beint mín sterkasta hlið frekar en annarra þingmanna einsog frægt er orðið um gjörvalla heimsbyggðina. Þjóðin sjálf á við sama vanda að glíma og þessvegna kýs hún okkur aulana á þing. Aftur og aftur. Við alþingismenn erum þverskurður og spegilmynd þjóðarinnar. Við erum semsagt fífl. Við erum asnar og amatörar en við erum að reyna að gera okkar besta þó það komi náttúrulega ekkert útúr því nema rugl.
Bankahrunið kom mér og öðrum þingmönnum alveg gjörsamlega í opna skjöldu þrátt fyrir allar kolsvörtu skýrslurnar og spárnar sem við vorum bókstaflega að drukkna í. Við vorum sjálfumglöð og værukær og gjörsamlega útá túni og veltum okkur uppúr bittlingunum og ferðadagpeningunum og spillingunni einsog svín og reyktum of mikið af sterku stöffi, og ég ætla að vona að þessir yndislegu tímar séu ekki liðnir. En þess ber þó að geta að fólkið í mínum flokki reykti ekki nánda nærri eins mikið og hyskið í hinum flokkunum og við tókum lítið sem ekkert oní okkur. Svo skal böl bæta að benda á eitthvað annað. Við öxlum ábyrgð með því að sitja áfram sem fastast.
Ég á minn þátt í þessu andavaraleysi sem við höfum gerst sek um undanfarna klukkutíma og jafnvel undanfarna áratugi. Það er bara eitt orð sem getur strikað út allt mitt rugl og það er: Sorry.
Ég hefði mátt vera vakandi og ég hefði mátt sleppa því að eyða tíma mínum og annarra þingmanna í tittlingaskít og bullshit einsog hvort öryrkjar og gamalmenni ættu rétt á að lifa af í þessu landi og hvort það væri réttlætanlegt að fólk gæti lifað af laununum einum saman o.s.fr. o.s.fr. Við hefðum mátt hugsa um það sem skipti máli og vera ekki með hausinn á bólakafi uppí rassgatinu á okkur. Við hefðum t.d. átt að taka nokkur ár í að ræða það alveg oní kjölinn hvort kornabörn ættu að klæðast bleikum fötum eða bláum á fæðingardeildum og hvort ekki mætti finna smekklegt kvenkyns orð yfir ráðherra o.s.fr. En gert er gert. Við erum nú einusinni Íslendingar og elskum aukaatriði og þrætur um nonsens.
Mér þykir þykir þetta miður fyrir Sjálfan mig, ekki aðra, og ég hef beðist afsökunar á þessum fávitahætti mínum. Það getur enginn gert að því þótt hann sé hálfviti en það var fólkið í landinu sem kaus mig til að gegna þessu ábyrgðarlausa embætti. Sökin er þessvegna ekki bara mín heldur líka fólksins sem kaus mig, aumingjann. Það eru bara kálfar sem kjósa naut á þing.
En hvað um það. Ég segi einsog Saxi læknir þegar hann hafði óvart höggvið sjúkling sinn i herðar niður: "Afhverju horfa allir svona á mig? Manni getur nú mistekist."
Við þjóðina vil ég segja þetta: Ekki gleyma að kjósa mig og minn flokk aftur i næstu kosningum. Aftur og aftur og aftur og aftur. Það er engin hætta á að við getum klúðrað hlutunum meira en við höfum þegar gert. Við áttum okkar þátt í því að sökkva þjóðarskútunni til botns en nú getur leiðin bara legið uppá við. Við erum rétta fólkið í það björgunarverkefni. Hryðjuverkamaður sem sprengir byggingu í loft upp er akkúrat rétti maðurinn til að endurbyggja hana. Treystið okkur. Við kunnum þetta þó við séum víðáttuvitlausir hlandaular.
Við eigum ekki alltaf að vera að horfa í baksýnisspegilinn. Við eigum að horfa á allar fögru brunarústirnar sem eru framundan. Það eru mjög spennandi tímar framundan fyrir okkur þingmenn. Við eigum að kjósa flokka, ekki fólk, vegna þess að í skjóli flokkanna hljóta hálfvitar eins og ég brautargengi. Hugsið ykkur bara; ég væri að raða kerrum í Bónus ef ég hefði ekki gengið í minn flokk og sleikt rassgöt og sagt já og amen við öllu sem formaðurinn bullaði. Ég er nefnilega ekki snillingur heldur spillingur.
Jæja. Við játum mistök okkar og öxlum ábyrgð með því að biðjast afsökunar. Sorry og málið dautt. Kæru kjósendur, ég treysti á yfirgripsmikla heimsku ykkar og ósjálfstæði. Hún hefur aldrei brugðist. Sjáumst í kjötklefanum."
Sekt og sakleysi á þingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
19.2.2009 | 03:24
Hreinn og tær viðbjóður
Á ferðalagi mínu um Cambodiu fyrir rúmlega tveimur árum kom ég við á Blóðvöllum, eða Killing Fields einsog þetta kallast í dag eftir myndinni frægu. Á miðjum akrinum stóð einmanalegt tré án sýnilegs tilgangs einsog framsóknarmaður. En þetta tré notuðu Rauðu kmerarnir óspart. Þeir tóku um lappir ungabarna og slengdu hausnum á þeim við það og hentu þeim ofan í fjöldagröf við hliðina. Orðið timburmenn fékk nýja merkingu í mínum huga. Þetta voru börn menntamanna og þeirra sem kommúnistarnir héldu að gætu slysast til að hugsa sjálfstæða hugsun í framtíðinni. Slíkt er stórvarasamt í kommúnistaríki.
Ég kynntist ekki þeirri stúlku í Cambodiu sem ekki hafði misst náinn fjölskyldumeðlim. Yfirleitt voru þær föður - eda móðurlausar. Pabbi þeirra eða mamma hafði verið svo óheppin að kunna að lesa og skrifa og það er glæpur sem hardcore kommúnismi líður ekki. Trúin á kommúnismann sem framtíðarfyrirkomulag rústaði framtíð þessarar þjóðar.
Strax a flugvellinum i Phnom Penh, höfuðborginni, fann maður fyrir óhugnaðinum og ofbeldinu sem sveif yfir vötnum. Mér var kastað einsog ruslapoka aftast í röðina afþví ég hafði gleymt að merkja x í einhvern reit í inngönguplagginu. Komst seinna að því að fyrrum böðlar Pol Pots voru nú starfsmenn flugvallarins og í öllum helstu stofnunum borgarinnar, en auðvitað áttu þeir að vera á öllum helstu geðheilbrigðisstofnunum borgarinnar.
Ráðlagt að fara ekki út eftir klukkan 8 á kvöldin ef maður vildi halda lífi. Reglur sem ég braut reyndar á hverju kvöldi í fylgd tuc tuc gæa sem ég leigði mér til að sniglast um borgina á mínum vökutíma, sem er ekki beint kristilegur. 3 vestrænir túristar voru rændir og stungnir á hol viku áður en ég mætti á svæðið. Virðingin fyrir mannslífum í sama frostmarki og virðing íslenskra bankafursta fyrir almannafé.
Hef flakkad víða um miður kræsilega staði en ferlegasti staður sem ég hef nokkurntíma komið á er án vafa Tuol Sleng fangelsið i Cambodiu sem þessi Kaing Guek Eav api stjórnaði. Þetta var áður barnaskóli en var breytt í pyntingarbúðir á tímum Pol Pots. Auswitch var einsog tívolí við hliðina á þessu helvíti. Þá sem þeir nenntu ekki að drepa strax létu þeir dúsa í pínulitlum básum sem rúmudu vart skugga af mannveru. Blóðslettur upp um alla veggi. Hauskúpur í glerskápum. Karlar, konur, gamalmenni, börn; alltsaman pyntað og myrt á hinn hugvitsamlegasta og skelfilegasta hátt. Sér pyntingarklefar. Drekkingartunnur sem fótbundið fólkið var látið síga á hvolf niður í. Járnrúm sem fólkið var njörvað niður í og gefið raflost. Útlimir sargaðir af með bitlausum hnífum sem lágu með grotnuðum kjöttætlum við hliðina á járnrúmunum. Strekkt á líkamanum í vatnskari þangað til hann nær slitnaði í sundur. Augun rifin úr með glóandi töngum. Myndir af fallegum manneskjum, kornungum sem öldnum, sem höfðu hlotið þessi hroðalegu örlög. Ekki hægt annað en að gráta á þessum hörmungarstað. Blóðskammaðist mín fyrir að tilheyra dýrategundinni "homo sapiens." Mannleg grimmd á sér ENGIN takmörk frekar en heimskan. Guð skapaði jú manninn í sinni mynd. Tek undir með Þórbergi Þórðarsyni: "Heimskan er einsog eilifðin. Hún takmarkast hvorki af tíma né rúmi."
Þar sem enga olíu er að finna í Cambodiu þá héldu Bandaríkjamenn að mestu að sér höndum á þessum tímum og vildu ekki vera að gera veður út af þessum Pol Pot þó hann væri að dunda sér við að slátra þjóð sinni.
Það voru Víetnamar, ein harðgerðasta þjóð heims, þjóð sem Bandaríkjamönnum tókst ekki að slátra örfáum árum áður þrátt fyrir góðan vilja, sem frelsuðu Cambodiu undan sjálfri sér. Hefðu gjarnan mátt klára verkið alveg. Þeir steyptu stjórninni en slepptu böðlunum. Pol Pot, líklegast grimmasta og heimskasta trúfífl mannkynssögunnar, lést í hárri elli um aldamótin, fullur gleði og óbilandi trú á kommúnismann.
Hér í Asíu, þar sem ég er núna staddur, er talað um Íslendinga í fjölmiðlum sem einhverja spilltustu, óheiðarlegustu og heimskustu þjóð sem sögur fara af. Það er sennilega ekki svo fjarri sanni. Þjóðin orðin heimskunn sökum heimsku. Loksins varð Ísland frægt, á réttum forsendum.
Cambodia losaði sig við síðasta kommúnistann árið 2003. Fundu hann útí skógi og skutu hann. Satt. Íslendingar hinsvegar framleiða kommúnista á færibandi. Ekki blóðþyrsta morðingja heldur einfeldninga og hálfvita.
Fyrsta sem Íslendingum dettur í hug að skera niður þegar syrtir í álinn er menntakerfið. Og svo heilbrigðiskerfið. Einmitt þegar þeir þurfa mest á menntun og andlegu heilbrigði að halda.
Síðan kommúnisminn leið undir lok þá hefur hann hvergi haft eins mikið fylgi í nokkru lýðfrjálsu ríki og á Íslandi.
Síðasti kommúnisti heimsins mun án nokkurs vafa vera Íslendingur.
Líkt og þegar Víetnamar björguðu Cambodiu þá þurfum við illilega á einhverri góðri og hjálpsamri þjóð að halda til að bjarga okkur frá sjálfum okkur.
Böðullinn á Blóðvöllum fyrir rétt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 2.11.2023 kl. 09:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
14.2.2009 | 22:02
Mjög gott mál
Hef lítid getað fylgst með því sem er að gerast á Los Klakos undanfarnar vikur. Veit þó að tími Jóhönnu Sigurðardóttur er nú loksins kominn, sem er mjög gott mál, og svo er víst tími Steingríms Joð, Kolbrúnar Halldórs, Marteins Mosdals og Georgs Bjarnfreðarsonar kominn líka og það er líka mjög gott mál. Mjög gott vandamál. Við þurfum ekki að örvænta þegar við höfum svona einvala lið við stjórnvölinn. Við höfum ekki lengur hrossalækni sem fjármalaráðherra heldur jarðfræding og tá hljóta málin nú að fara að blessast. Fagmennskan í fyrirrúmi.
Svo skilst mér að Dabbi sé kominn á 400 hestafla Corvettu og sé á stöðugum æðisgengnum flótta um götur borgarinnar undan snarbrjáluðum blaðasnápum og þungvopnuðum almenningi og geti hvergi um frjálsar krullur strokið og að hann sé búinn að flytja skrifstofu sína í Seðlabankanum í rammgirta gullhvelfinguna. Til standi að hann láti múra sig inní bankanum. Það er líka mjög gott mál. Hann er skyldurækinn maður hann Dabbos.
Svo var mér sagt að Imba Solla væri með eitthvað í höfðinu. Æxli eða eitthvað svoleiðis dótarí. Því trúi ég nú ekki. Það getur enginn logið því að mér að hún sé með nokkurn skapaðan hlut í hausnum. Ég trúi nú ekki hverju sem er. Það er akkúrat Ekkert í hausnum á henni, enda er hún formaður Samfylkingarinnar.
En það er semsé allt komið í flott stand á Los Klakos og það er bara verulega gott mál. Allir farnir að taka þátt í kærleiksgöngum og kossaflensi og faðmlögum og ríðingum. Skilst að það verði eitthvað smokklaust hópsex milli almennings og stjórnmálamanna við tjörnina í dag með lúðrablæstri og söng. Það myndi ég segja ad væri mjög gott mál. Kynlegt mál.
Kærleiksganga á Austurvelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 4.3.2009 kl. 12:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
18.1.2009 | 17:56
Framsóknarmartröðin heldur áfram
Ekki byrjar siðbótin í Framsókn vel. Fyrst er Höskuldur lýstur formaður og svo Sigmundur nokkrum mínútum síðar. Hver verður það í kvöld? Guðni? Valdi koppasali? Ragnar Reykás? Hver sér um atkvæðatalninguna fyrir þessa dúdda? Inspector Clouseau? Hvernig er hægt að ruglast á nöfnum? Settu þeir Gísla Helgason flautuleikara í að yfirfara þetta? Hvað eru þessir svefngenglar að drekka sem við höfum ekki smakkað? Absolut Idiot?
Það er ekki að ástæðulausu að ég set þessa færslu undir "heilbrigðismál."
Ég veit ekki hvort ég eigi að samgleðjast Sigmundi eða samhryggjast. Jú reyndar, ég veit það. Hann er í skelfilegum málum. Þarna fór fín perla í svínskjaft. Ég sem hélt að það yrði eitthvað úr honum. Ég myndi eflaust kjósa Sigmund í persónulegri kosningu, en flokkinn og allt það fálkager sem honum fylgir mun ég að sjálfsögðu aldrei kjósa.
Í gær heiðraði þessi gjörspillti flokkur Guðna Ágústsson. Fyrir hvað? Að standa sem lambbúnaðarráðherra með bændamafíunni á móti neytendum? Fyrir ævisöguna þar sem var ekki minnst einu orði á gjafakvótakerfið sem flokkurinn kom á? Fyrir að segja af sér formennsku og þingmennsku? Fyrir góða veislustjórn í spillingarbælinu? Fyrir að flýja einsog fætur toguðu úr þættinum mínum? Hver á að skilja þennan flokk?
Jónína Ben vinkona mín heldur að það sé hægt að ræsta spillinguna úr flokknum. Í gær setti ég inná síðuna hennar þessa athugasemd:
"Að ætla sér að reyna að hreinsa spillinguna úr Framsóknarflokknum er einsog að ryksuga hús sem er gegnétið af veggjatítlum. Það verður að brenna kofann til grunna."
Þessi flokkur á álíka mikið erindi við þjóðina og minkur við hænsnabú.
Sigmundur kjörinn formaður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 14.2.2009 kl. 00:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (44)
18.1.2009 | 13:41
Geir um Grey frá Gay til Gauðs
Ég tek undir með Geir Hor: Það er svolítið gremjulegt að "ríkiskerfið" skyldi hafa klúðrað málunum pínulítið. Árið 2009 gæti orðið svona frekar óspennandi þó það séu reyndar "mjög spennandi tímar framundan hjá Sjálfstæðisflokknum," einsog Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir benti á fyrir stuttu í miðri kreppunni.
Einhverjir gætu hugsanlega misst aukavinnuna tímabundið og svo er ekki loku fyrir það skotið að einhverjir óaðsjálir lúðar í Breiðholti lendi í smá vandræðum með að borga af blokkarkompunum sínum og kannski að nokkrir þurfi að fara að borða nautasteikur í staðinn fyrir hreindýrafille. En þetta er ekkert sem þarf að hafa miklar áhyggjur af því við búum við styrka stjórn valinkunnra spesíalista.
Það er rétt sem Geir segir að menn voru algerlega "óviðbúnir þegar fjármálaóviðrið skall á okkur." Aðeins nokkrir tugir innlendra og erlendra sérfræðinga höfðu varað ríkisstjórnina við mánuðum saman en þeir áttu það reyndar allir sameiginlegt að vera ómarktækir fávitar sem þurftu "á endurmenntun að halda," einsog Þorgerður Katrín orðaði það svo skemmtilega rétt fyrir hina svokölluðu "kreppu." Á sama tíma sagði Imba Solla: "Hér er engin kreppa," og hitti þar naglann á höfuðið einsog endranær.
Davíð Oddsson sagði við Geir á síðasta ári að það væru 0% líkur á að bankarnir myndu lifa af og í kjölfar þeirra orða voru settir nokkur hundruð milljarðar í að reyna að bjarga Kaupþingi. Einmitt. Geir segir: "Við töldum að Kaupþing myndi lifa þetta af, alveg fram á síðustu stundu." Samt voru 0% líkur á því samkvæmt orðum Davíðs. Niðurstaðan: 100% rugl.
Þó að maður skilji þetta ekki alveg þá hlýtur að vera eitthvað mikið vit í þessu öllu hjá okkar framsýnu ráðamönnum. Varla höfum við verið að kjósa yfir okkur einhverja asna! Svo er líka svo þægilegt að vita af því að ekki taka síðri proffar við eftir kosningar, semsé Vinstri græningjar. Þá fyrst byrjar nú gleðin og fagmennskan fyrir alvöru. Jibbííí!!!! Guð blessi Ísland.
Geir: Árið verður mjög erfitt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
17.1.2009 | 19:57
Til fjandans með allar nýjar raddir
Hvaða helvítis froskar standa eiginlega að baki þessum "Nýju röddum?" Við eigum að halda áfram að láta Hörð Torfason einan velja fólk sem má tala á Austurvelli. Þannig hefur það verið í 15 vikur og þannig skal það verða áfram. Hörður heyrir raddir og við eigum að hlusta á hans raddir. Raddir hans eru raddir fólksins.
Mótmæli Harðar Torfa hafa skilað gríðarlegum árangri, t.d. kvefi og lungnabólgu fundargesta svo ekki sé nú minnst á hvað þetta er góð æfing í ræðumennsku og tilvalinn stökkpallur inná þing. Enda eru þeir Hörður og Einar Már og Njörður P. Njarðvík og fleiri rauðliðar að stofna stjórnmálaflokk upp úr þessum mótmælum.
Geta þessar Nýju raddir ekki drullað sér eitthvað annað? Viljum við virkilega óheft tjáningarfrelsi? Viljum við virkilega að hver sem er geti tjáð sig niðrá Austurvelli á laugardögum kl. 3? Á ég að trúa þessu?! Ég meina, viljum við almennilegt fasistaríki eða ekki? Sjá menn ekki hvílíkt glapræði það er að hafa opinn hljóðnema fyrir hvern sem er til að tjá sig?
Guði sé lof að lögreglan fór að beiðni Harðar Torfa og fjarlægði bíl og hljóðtækjabúnað Nýrra radda og kom þannig í veg fyrir að nýjar og óæskilegar raddir heyrðust. Ef við leyfum þessu pakki að vaða uppi þá eigum við á hættu að hér þróist eitthvað sem geti kallast lýðræðisleg vinnubrögð og viljum við það? Ég segi NEI! Ég spyr einsog Hörður Torfa gerði á Austurvelli í dag: "Viljum við svona fólk?" NEI! Þetta fólk er ekki þjóðin.
og: Nýjar raddir
Fjöldi manns á Austurvelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (41)
16.1.2009 | 14:41
Forsetinn bað um að stjórnarskráin yrði brotin
Þetta er mjög einfalt. Ég skal reyna að orða þetta kurteislega: Annaðhvort er maðurinn fábjáni eða trúður. Ég hallast að því síðarnefnda. Ólafur er stjórnmálafræðingur og ætti því að þekkja stjórnarskránna jafnvel betur en útrásarvíkingana.
Kannski að fjármálaráðherrann geti aðstoðað hann við launalækkunina, en ef Ólafur er svona gasalega sólginn í að lækka laun sín og bæta þannig fyrir afglöp sín í starfi sem útrásarmella og lírukassaapi fyrir Baugsveldið þá á hann bara að gera það þegjandi og hljóðalaust og skrumlaust og hræsnislaust og slaka hinum og þessum góðgerðarfélögum millu á mánuði og svo gæti kannski hans betri helmingur bætt einhverju við. Hún hlýtur að mega missa einn lítinn demant úr námunni. Þetta er ekkert flókið
Það er svakalega lásí og idjótískt af honum að biðja Kjararáð að lækka laun sín þegar hann veit nákvæmlega hver niðurstaðan verður. Nema náttúrulega að hann hafi ekki vitað það og þá hefur hann þá einu afsökun að hann sé fábjáni og því kannski alveg tilvalinn sem samnefnari og sameiningartákn þjóðarinnar.
Forsetaembættið kostar þjóðarbúið nokkur hundruð milljónir á ári og þessari fúlgu væri án nokkurs vafa betur varið í styrkingu mennta - og heilbrigðiskerfisins og í aðstoð við þá sem hafa ekki til hnífs og skeiðar. Ef Ólafur vill raunverulega koma að gagni og spara þá færi vitaskuld best á því að hann segði af sér og leggði til í leiðinni að þetta tilgangslausa fokdýra snobbembætti yrði lagt niður í snarhasti.
Þessar endalausu leiksýningar forsetans fara að verða álíka þreyttar og hallærislegar og hárgreiðslan. Hann er búinn að koma embættinu niður í forarpytt sýndarmennsku, auðmannadekurs og ótrúverðugleika og í þeim skít situr hann sem fastast.
Ólafur er sannkallaður "for-seti."
Kjararáð getur ekki lækkað laun forsetans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 22.3.2009 kl. 02:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)