Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Loksins tekur Egill Helgason almennilegt viðtal

jon_nasker_696432.jpgEndurtek: Loksins tekur Egill Helgason almennilegt viðtal. Spurningarnar sem hann pundaði á Jón Násker í Silfrinu í dag voru ákveðnar og beinskeyttar enda var hann marg manaður í að taka ekki á þessum sleipa pilti með latexhönskum. Spurningarnar voru stórar og þungar og svörin lítil og léttvæg að sama skapi. T.d. sé ég ekki alveg fyrir mér Jón í jakkafötunum á lyftara í Bónus, einsog hann lýsti framtíðarstarfi sínu. Ábyrgð hans og annarra útrásarstrumpa á hörmulegu ástandi landsins er nákvæmlega engin af orðum hans að dæma. Allt er að sjálfsögðu ennþá Davíð að kenna.

 

 

 

Egill Helgason

 

Egill, þessi hægláti snobbaði maður sem alltaf er með sömu elítuna í sínum þáttum, bætti einum í safnið, en sýndi jafnframt og sannaði að hann getur tekið öflug og "kjörkuð" viðtöl ef þjóðin öll er á móti viðmælandanum.


Kaupþingshrunið var því miður ekki Davíð að kenna

Davíð Oddsson.jpgFyrir nokkrum dögum hrópuðu Glitnismenn að Davíð væri bankaræningi og hefði rænt Glitni. Í dag eru Glitnismenn að íhuga mál á hendur ríkinu afþví að Davíð rændi ekki bankann. Almenningur trúði Glitni. Davíð var vondi kallinn einsog endranær.

Dögum saman hefur almenningur verið harðákveðinn í að trúa því að það hafi verið "helvítið hann Davíð" sem hafi komið Kaupþingi til andskotans með "gaspri" sínu í Kastljósi, nú eða að það hafi verið "andskotinn hann Davíð" sem hafi komið Kaupþingi til helvítis. Nú er hinsvegar komið á daginn að það var dýralæknirinn Árni Mathiesen sem þarna var að verki. Hann ætti nú að vita manna best að orð geta verið "dýr."

 

Úr Mogganum 9. okt:

" Darling, fjármálaráðherra Bretlands mat það þannig eftir símtalið (við Árna Mathiesen) að ekki fengjust bætur vegna innistæðna á Icesave reikningum. Efnislega hafi hann skilið íslenska fjármálaráðherrann þannig að breskir sparifjáreigendur myndu tapa peningum sínum. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins var það á grundvelli þessa samtals sem breski ráðherrann tjáði sig um þessi mál í gærmorgun og ákvað að frysta eignir Landsbankans í Bretlandi, en ekki vegna þess sem Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, sagði í samtali við Kastljós Ríkissjónvarpsins í fyrrakvöld."

 

Árni Mathiesen.jpgÞetta var semsagt ekki Davíð að kenna einsog allt annað í þessari veröld, því miður, heldur fjármálaráðherranum, annaðhvort þeim breska eða íslenska, nú eða báðum að Gordon Brown viðbættum, og ekki má gleyma snillingunum í Icesave og þeirra stórfelldu peningaflutningum til Íslands, en þessar upplýsingar munu að sjálfsögðu í engu breyta þeirri bjargföstu trú manna að þetta hafi engaðsíður alltsaman verið Davíð að kenna. Árni talaði óvart íslensku við breska ráðherrann sem gerði það að verkum að smá misskilningur komst í gang sem flýtti fyrir jarðarför Kaupþings. Þessi Davíðshistería fer að minna soldið á fjaðrafokið og móðursýkina í kringum steindauða hundinn Lúkas sem hefur alltaf verið við góða heilsu.

 

Það eru fyrst og fremst útrásarænstænarnir sem hafa sökkt klakanum með "dugnaði sínum og áræði" einsog Forsetinn orðaði það fyrir 2 árum þegar hann var að heiðra Jón Násker fyrir "vel heppnuð útrásarverkefni," - þó að stjórnmálamenn hafi þar að sjálfsögðu einnig lagt gjörva hönd á plóginn.

Auðvitað hefur Dabbi gert einhver mistök í gegnum tíðina, enda mannlegur einsog við hin, en við ættum eingöngu að kenna honum um það sem  raunverulega er honum að kenna, einsog t.d. morðið á Kennedy og heimsstyrjöldina síðari, - en ekki ALLT.

 

 

 


Jón Násker og stórasta rán Íslandssögunnar

jon_nasker.jpgÞað er búið að vera mikið um rán og gripdeildir að undanförnu. Gjafakvótakerfið heppnaðist fullkomlega sem stærsta rán Íslandssögunnar og fyrir nokkrum dögum upplýsti Jón Ásgeir að það hefði verið framið bankarán, hvorki meira né minna en stærsta bankarán Íslandssögunnar, jafnvel heimsins. Þetta er um margt sögulegt bankarán því forsvarsmenn bankans leituðu til bankaræningjans og samþykktu ránið með undirskrift.

                                                                                                                                                                                                                                     Jón Násker sýnir sína löngu fingur

 

Þorsteinn Már Baldvinsson.jpgÞetta gerðist svona: Davíð gekk inní reyklaust bakherbergið og beindi byssu að gagnauga Þorsteins Más og sagði: „Velkominn til Vítis, auli. Ég heiti Davíð og ég er bankaræningi. Glitnir er að fara til andskotans, þ.e.a.s. til mín. Ég ætla að hirða bankann af ykkur. Ég er með ríkisstjórnina hérna í rassvasanum og nú er lag að dúndra hraustlega í punginn á Jóni Ásgeiri drulludela. Skrifaðu undir eða þú færð eitthvað annað en flugu í höfuðið, motherfucker!"

 

 

Þorsteinn Már Baldvinsson

 

satan.jpgDavíð Oddsson.jpgFólk elskar samsæriskenningar. Allt sem miður fer í þessum heimi er að sjálfsögðu Davíð að kenna. Hann og Satan eru tvíburar. Jón Ásgeir, sem bráðum mun breyta nafni sínu í Jón Násker, vill meina að Davíð sé handrukkari ríkisins og einn mesti ræningi sögunnar, fyrir utan matvörukaupmenn. Ég vil hinsvegar meina að stærsta bankarán Íslandssögunnar sé rán bankanna á landsmönnum í formi glæpsamlega hárra vaxta. Bankalán = bankarán. Þetta Glitnis"rán" er smotterí í samanburði við það raunverulega rán og það mun standa yfir um ókomin ár.

                                                                                                                                     Bankaræninginn ógurlegi                                       

 

 

 

(24 Stundir, 4. október)

 

Gestur í þætti mínum "Miðjan" á Útvarpi Sögu fm 99.4 í dag milli kl. 16:00 og 18:00 verður Jón Gerald Sullumberger eða hvað hann heitir nú annars sá ágæti maður. Jón þessi Kerald Shullendvergur er nýbúinn að skella tveimur mögnuðum sannsögulegum bíómyndum um fjárhúsið Glitni inná youtube í dolby steríó og þrívídd (http://www.youtube.com/watch?v=ffaLd1dkq2U). Þegar maður horfir á þessar óhugnanlegu glæpamyndir þá dettur manni í hug skammstöfunin S.O.S., - Sukk Og Svínarí. Verður þessi syrpa í þremur hlutum einsog The Godfather eða ætlar hann að hætta á toppnum? Er Jón Násker búinn að kaupa kvikmyndaréttinn að ævisögu Jóns Gímalds eða var Jóhannes í Bóner fyrri til? Við þessum áleitnu spurningum þarf að fá skýr svör. Það er við hæfi að ræða þessar óhugnanlegu kvikmyndir og margt annað bisnesstengt við Jón Rekald Spielberger eða hvað hann heitir nú annars þessi ágæti maður.

Svo mun Geiri á Goldfinger kíkja við með vel sleiktar skonsur undir arminum og ræða fjárfestingarfyrirtæki sitt Straumur Hurðarás um öxl en það kompaní var einmitt að festa kaup á nokkrum gámum af flottum blöðrum frá Litháen og Léttlandi. 

 

Fyrri þætti má nálgast á:  www.stormsker.net


Vonlaus fegrunaraðgerð

Íslensk húsagerðarlistJakob Frímann miðborgarstjóri á ekki létt verk fyrir höndum. Hann á að breyta ljótustu miðborg norðan Suðurpóls í ljótustu miðborg norðan Alpafjalla.

 

Og hvernig á þessi lýtaaðgerð að fara fram? Með því að brenna borgina til grunna? Nei, það væri vissulega góð byrjun, en það á semsé að taka spreibrúsa af listrænum unglingum. Það á að vera fyrsta skrefið. (Væri ekki nær að taka spreibrúsana af lögreglunni?)  

 Svo á að setja sæta plástra á opin svöðusár sem eru út um allt í miðbænum. Alltsaman tilgangslausar bráðabirgðaaðgerðir.

                                                                                                                                                                                                                                                                     Íslensk húsagerðarlist

 

Íslenskur viðbjóðurVandinn er ekki fólginn í spreibrúsakrökkum heldur skipulags"sérfræðingum" borgarinnar og íslenskum arkitektum og almennu séríslensku smekkleysi. Hér ægir öllu saman: Litlir ljótir Hans-og-Grétu-kofar við hliðina á ennþá smekklausari og andlausari glerbyggingum. Hverjir aðrir en Íslendingar hefðu plantað stíllausum glerklumpi á milli Apóteksins og Hótel Borgar? Eða bankaklumpi í Lækjargötu á milli Iðnó og fjörgamals krúttlegs piparkökuhúss? Eða nútíma tannlæknabyggingu við sömu götu við hliðina á gamla hornhúsinu sem brann?

 

 

 

LækjargataLækjargata er líklega hlæjilegasta gata í Evrópu. Þar ægir saman öllum stílum í fullkominni dellu, en þetta á víst að heita Main Street Reykjavíkur, sú gata sem hér áðurfyrr skipti borginni í vestur og austur.

 

 

 

ÓráðhúsiðÞað er engin heildarmynd á neinu, bara hryggðarmynd. Borgin er rugl. Meiraðsegja sjálft Óráðhúsið er einsog blanda af stórkallalegum hermannabragga og grísku hofi og rústar alveg heildarmynd hinnar snotru Tjarnargötu. Hofbragginn sem slíkur er ókey en rímar ekki við umhverfið, í raun alveg úr tengslum við umhverfið einsog fólkið sem þar er innandyra. Perlan er með því smartara hér í borg en hún myndi varla sóma sér vel niðrí Aðalstræti frekar en gamla Mogga"höllin."

 

Before and After

Borgir mættu gjarnan vera í uppbyggingu og stíl einsog ljóð eftir Tómas Guðmundsson. Maður segir helst ekki:

 

Tilvera okkar er undarlegt ferðalag,

við erum gestir sem dá sig.

Einir koma og aðrir fara í dag

og ég er að skíta á mig.

                                                                                         After                                   Before

 

Það verður að vera eitthvert vitrænt og listrænt samræmi í hlutunum og einhver heildar strúktúr sem gengur upp einsog krossgáta.

 

Þessi nýja fegrunaraðgerð miðborgarinnar er einsog að ráða mann til að ryksuga öskuhaugana. Hvað stoðar að meika herfu? Borgin er einsog greppitrýnið á Michael Jackson og við verðum bara að „feisa" það. Hún er vonlaust tilfelli sem hvorki Kobbi né hans hægri hönd, guð almáttugur, getur fegrað úr þessu.

 

                                                                              

                                                                                                                                       

 

(Þessi pistill birtist í 24 Stundum, 17.maí síðastliðinn. Hefur borgin eitthvað fríkkað síðan þá?)

 

Í þætti mínum "Miðjan" á Útvarpi Sögu fm 99.4 í dag milli kl. 16:00 og 18:00 verður gestur minn enginn annar en stórtenórinn Kristján Jóhannsson. Þó ég hafi sagt í málsháttabók minni: "Betri eru kynórar en tenórar," þá slagar Stjáni langt uppí rakan draum enda með bestu söngvurum sem Akureyri hefur alið. Hann er um þessar mundir að syngja óperuna Ommolettó í Nýja Bíói fyrir fullum kofa og ég ætla t.d. að spyrja hann út í það ævintýri og hvort hann væri til í að halda styrktartónleika fyrir íslensku "auðkýfingana" (ofurbótaþegana) sem nú eru að missa allt sitt, - og meira til í buxurnar. Er Dabbi saklaus englakrullóttur sprelligosi á einhjóli með lúður eða er hann kaldrifjaður bankaræningi sem vill vaða í Jón Ásgeir með vélsög og gleypa hann með húð og hári, einsog Jón sjálfur vill meina? Er Dabbi með stærra gin en Ljón Ásgeir? Þessu getur að sjálfsögðu enginn svarað nema Kristján Jóhannsson stórtenór og stórlax, innsti koppur í búri íslenskra yfirmafíósa.

Fyrri þætti má finna á síðu minni:  www.stormsker.net 

3 síðustu verða komnir inn annað kvöld.


Sannkristnir fjöldamorðingjar í Hvíta Húsinu

Ljós heimsins.jpgSenn lætur Bush af embætti forseta Bandaríkjanna. Hann segist útvalinn af guði til að leiða mannkynið í ljósið, - og er þá líklega að tala um hið skæra ljós kjarnorkusprengjunnar. Gáfnaljósið Bush hefur ekki drepið nema um nokkra tugi þúsunda óbreyttra borgara í Írak, sem þykir frekar slappur árangur hjá svo trúuðum leiðtoga.

 

 

stríð sé með yður.jpg

                                                                                   Ljós heimsins

 

Næsti forseti Bandaríkjanna verður John McCain sálugi sem er með annan fótinn í gröfinni. Þegar báðir fæturnir verða komnir þangað þá tekur varaforsetinn Sarah Palin við en hún er sannkristin mannvitsbrekka einsog Bússi.

 

 

 

palin_galin_i_essinu_sinu_680453.jpgkrissi.jpgHún vill engin höft á byssueign. Segir að stríðið í Írak sé verk guðs. (Það er reyndar verk Bússa en hann er handbendi guðs). Hún hafnar gróðurhúsaáhrifunum. Er á móti hjónaböndum samkynhneigðra. Er fylgjandi dauðarefsingum. Er afar stolt af því að sonur sinn sé slátrari í Írak. Drepur dýr, sem skotveiðisjúklingur, sér til skemmtunnar. Er skilyrðislaust á móti fóstureyðingum. Vill bara drepa fædda einstaklinga, enda sannkristin manneskja. Segir að stríð við Rússa komi vel til greina. Hafnar þróunarkenningunni og vill að við förum 200 ár aftur í tímann og förum að kenna sköpunarsögu Biblíunnar sem vísindi í skólum. (Ætli hún sé Íslendingur?) Hún sagðist hafa notað Gamla testamentið sem leiðarvísi um það hvernig hún ætti að stjórna Alaska. (Er Palin galin?) Þetta kallast víst í USA að vera til hægri. Ég kalla þetta að vera með hausinn á bólakafi uppí borunni á sér.

(Vel að merkja: Þótt ótrúlegt megi virðast þá er allt sem hér er sagt um Palin satt og rétt. Engar lygar. Engar blogdylgjur og rugl!)

 

Þessi pistill birtist í 24 stundum, 20. september.

 

Gestur minn í síðasta þætti "Miðjunnar" á Útvarpi Sögu fm 99.4 var Jóhann Helgason. Í dag milli kl. 16:00 og 18:00 kemur hinn helmingurinn, semsé Magnús Þór Sigmundsson. Þau eru ófá góðu lögin sem steinliggja eftir Magga. Spurningarnar eru ekki færri sem brýnt er að fá svör við: Eru álfar kannski menn? Hvar er sveitin mín? Hvar er hóllinn minn? Hvar er húfan mín? Er Ísland land þitt eða mitt? Hvenær býstu við að Hómer Simpson verði forseti Bandaríkjanna?

Síðustu 2 þættir verða komnir inn á:  www.stormsker.net  í þessari viku.


Dagbækur Matthíasar og Framsóknarflokkurinn

matti_jo.jpgDagbækur Matthíasar eru um margt mikil skemmtilesning þó það hafi eflaust ekki verið ætlun hans, enda fv. ritstjóri Moggans. Ein fyndnasta færslan er þegar framsóknarmaðurinn Helgi S. Guðmundsson fv. formaður bankaráðs Landsbankans kemur áhyggjufullur á fund þeirra Matta og Styrmis til að fá ráð hjá þeim við því „hvernig hann eigi að hrista af sér þær fullyrðingar Sverris Hermannssonar sem ýmsir virtust taka trúanlegar, að hann væri hálfviti."  Matti og Styrmir sögðu honum „að það væri erfitt að hrista slíkt af sér."  Þar töluðu reynsluríkir menn.  „Konan mín segir að ég sé ekki hálfviti, sagði Helgi." 

 

Og Matti heldur áfram: „Þess má geta til gamans að Helgi sagði okkur að hann hefði verið í Heimdalli á sínum tíma en farið úr honum vegna þess að honum leizt ekki á blikuna, taldi að þar væru of margir ofjarlar hans og hann mundi ekki komast neitt áfram þar í flokki!! Einn þessara ofjarla var víst Styrmir Gunnarsson sem hafði gegnt formennsku í Heimdalli! Helgi sneri sér þá að Framsóknarflokknum og þar hefur honum vel vegnað."

 

dverga_ur_kast.jpgDvergar fara í lítil föt. Matti er þarna að lýsa á raunsæan hátt hverskonar fólk það er sem gengur í Framsóknarflokkinn. Lagið "I´m a loser" með Bítlunum kemur ósjálfrátt uppí hugann, svo og bókin "Aulabandalagið" eftir John Kennedy Toole.

 

Þar eð ég var heimagangur hjá Matta þegar ég var polli þá vil ég nota hér tækifærið og færa honum og fjölskyldu hans mínar bestu kveðjur.

 

 Dverga(úr)kast

 

Þessi pistill birtist í 24 Stundum, 23. ágúst.

 

Í þætti mínum "Miðjan" á Útvarpi Sögu fm 99.4 milli kl. 16:00 og 18:00 verður gestur minn söngvarinn og lagasmiðurinn góðkunni Jóhann Helgason. Eftir Jóa liggja fjölmörg frábær lög, svosem Karen Karen Karen Karen Karen Karen, Ástarsorg, Ég gef þér allt mitt líf, Söknuður og fleiri. Nú hefur einhver vondur maður útí heimi rænt laginu Söknuður og þess er ákaft saknað. Ég ætla að forvitnast um þetta skuggalega mál svo og mörg önnur glæpamál, t.d. hvort honum finnist koma til greina að sameina Kaupþing og Búnaðarbankann, nú eða Glitni og Lýsingu, nú eða jafnvel Seðlabankann og Sparisjóð Vestfirðinga. 

Fyrri þætti má nálgast á:  www.stormsker.net


Hjálpum útlendingum, ekki Íslendingum

ítalskt flóttamannahlaðborð

Páfinn að kyssa flugvöllÞað hefur margt jákvætt verið í fréttum undanfarna daga. Paul Ramses var t.d. heimtur úr viðbjóðslegu ítölsku hóteli þar sem hann þurfti að borða pizzur og pastaóþverra og Villibráð í Kenyafara í sturtu þrisvar á dag. Hræðilegt.

Þegar hann lenti hér á klakanum þá kyssti hann að sjálfsögðu flugstöðina og flugvöllinn í bak og fyrir einsog aðrir páfar. Ég hélt fyrst að þetta væri opinber heimsókn einhvers heimsfrægs blökkumannaleiðtoga en svo kom uppúr dúrnum að þetta var Paul Ramsens eða Ramstein eða Rambó eða hvað hann heitir nú þessi frómi sannsögli flóttamaður. Hefði hann verið sendur til Kenya, paradísar skotveiðimannsins, þá hefði hann vitaskuld verið eltur uppi af safaríveiðimönnum á jeppum og plaffaður niður.

 

Peningar af himnum ofanFleira jákvætt: Jóhanna Kristjónsdóttir safnaði tugum milljóna handa fátæku fólki hinumegin á hnettinum. Ekkert hefði komið í kassann hefði hún reynt að safna aurum handa fátækum Íslendingum, nema náttúrulega ef þeir hefðu misst allt sitt í snjóflóði. Þá hefði opnast fyrir flóðgáttir seðla.

Sjálfur er ég búinn að vera að hjálpa Nígeríunegrum með ómældum fjárframlögum svo þeir geti leyst út einhvern milljarðaarf eða eitthvað þessháttar. Þarf endilega að fá Bubba með mér í þessa arðbæru fjárfestingu.

 

Oflaunaðir ÍslendingarKósí heimili Fleira jákvætt: Íslenskir utangarðsmenn í Reykjavík hafa fundið sér huggulegan ruslagám í miðbænum sem svefnstað svo það mun því pottþétt ekki væsa um þessa ágætu starfsstétt í vetur.

 

 

 

(Þessi pistill birtist í 24 Stundum, 6. september)

 

Í þætti mínum "Miðjan" á Útvarpi Sögu FM 99.4 í dag, miðvikudag, milli kl. 16:00 og 18:00, verður gestur minn enginn annar en tónlistarmaðurinn og sjóræninginn síkáti Gylfi Ægisson. Gylfi hefur átt mörg klassísk lög einsog t.d. Í sól og sumaryl, Minning um mann og Stolt siglir fleyið mitt, en hann hefur einnig átt kærustur í hverri höfn enda siglt um öll heimsins höf. Hann mun segja mér af svaðilförum sínum í rúminu og úti á rúmsjó þar sem hann hefur margoft þurft að berjast við allskyns skrímsl. Þær eru ófáar hámerarnar sem hann hefur glímt við og þeir eru ófáir mannætuhákarlarnir sem hann hefur snúið úr hálsliðnum.

Fyrri þætti má finna á:  www.stormsker.net 


Feministur

evolution of man and woman

Feministar hafa barist fyrir mörgu greindarlegu síðustu ár, t.d. því að börn á fæðingardeildum klæðist fötum í kynlausum litum; drengir skulu allsekki vera í bláum fötum og stúlkur allsekki í bleikum því þetta geti haft gríðarleg áhrif á afkomumöguleika stúlknanna í framtíðinni að sögn feminista. Augljóst.

FemolutionFleiri dæmi: Feministum finnst mjög niðurlægjandi að konur kallist „ráðherrar." Konur tilheyri nefnilega ekki mannkyninu heldur kvenkyninu. Ég stakk uppá starfsheitinu „ráðherfa" og þær hljóta að vera mjög ánægðar með það. Feministar kvörtuðu mikið yfir Smáralindarbæklingi en þar sást stúlka beygja sig eftir dóti. Stúlkur eiga ekki að beygja sig á myndum því þá er auðvitað verið að gefa til kynna að þær séu hórur.

 

toyotaauglýsingFeministar fóru fram á að svæsin Toyota auglýsing yrði bönnuð en þar sást kona með pilsið svo langt upp um sig að það sást meiraðsegja í hnén á henni. Ógeðslegt. Feministar sögðu að það væri verið að hlutgera líkama kvenna. Einmitt. Toyota fór að tilmælum feminista og fjarlægði auglýsinguna, sem sýnir að það er til nokkuð sem heitir karlkellingar. Svoleiðis tuskur lúffa fyrir hverskyns rugli af ótta við að vera stimplaðar karlrembusvín. Ef fólki finnst öfgafeministar slæmir og allar þeirra hugmyndir, þá myndi ég nú segja að karlkellingarnar sem framfylgja kröfum þeirra væru 10 sinnum verri, - því slæm hugmynd er bara slæm hugmynd, en það að framkvæma slæma hugmynd af ótta við karlrembusvínsstimpilinn er alveg yfirmáta aulalegt. Öfgafeminismi er vondur í orði, en verri á borði.

 

FeminkommunismiFeministum hefur tekist að breyta sjálfri Biblíunni á þann hátt að ef Krissi segir t.d: „Hey bræður, eru ekki allir í stuði?" þá er það í dag: „Hey bræður og systur, eru ekki allir í stuði?," jafnvel þó engar systur hafi verið á svæðinu.

Orðið „feministi" er karlkyns orð og því ber að breyta á stundinni í „feminista," - hún femínistan. Must! Algjört Must!

 

 

Þessi pistill birtist í 24 stundum 9. ágúst, án djókmyndanna.

 

Minni á þátt minn "Miðjuna" á Útvarpi Sögu fm 99.4 í dag, miðvikudag, milli kl. 16:00 og 18:00. Gestur minn að þessu sinni verður enginn annar en söngvaskáldið hárprúða Bjartmar Guðlaugsson. Munum spjalla um allt milli himins og jarðar, t.d. afhverju mömmur geifli alltaf á sér munninn þegar þær maskara augun og hvort borgarstjórinn í Reykjavík megi láta sjá sig á kaffihúsum í borginni eða eingöngu á Goldfinger í Kópavogi og hvort það eigi að grafa göng milli Vestmannaeyja og Grímseyjar.

Fyrri "Miðjur" má finna á: www.stormsker.net 


For(n)maður Framsóknar og viðhengi hans

Guðni í sleik við búkolluEinsog frægt er orðið þá rauk Guðni Ágústsson for(n)maður Framsóknarflokksins út úr þætti mínum "Miðjunni" á Útvarpi Sögu fyrir skömmu. Ég held að það hafi aldrei gerst fyrr að stjórnmálamaður hafi rifið af sér tólin og rokið á dyr í fússi úr miðju viðtali, og þá á ég náttúrulega við heyrnartólin. Það var tvennt sem ég tók eftir að honum mislíkaði stórlega, annarsvegar að ég skyldi hafa minnst á að hann væri sveitamaður og hinsvegar að ég skyldi ekki vera gapandi og slefandi af hrifningu yfir landbúnaðarkerfinu, semsé niðurgreiðslunum, beingreiðslunum, verndartollunum, ofurstyrkjunum, innflutningshöftunum og allri þeirri snilld.

 

Hann tók það afar skýrt fram að hann væri borgarbarn og neitaði því staðfastlega að hafa nokkurntíma átt belju og mér þykir það svolítið skrítin yfirlýsing af framsóknarmanni úr sveit, einu stærsta fjósi Suðurlands. Það er ekkert til að skammast sín fyrir að vera sveitamaður og beljuhluthafi.

 

LandbúnaðarkerfiðGuðni fyrtist við þegar ég sagði að að íslenska landbúnaðarkerfið væri peningaklósett sem um 15 milljörðum af skattfé landsmanna væri sturtað niður í árlega. (Við eigum heimsmet í þessu einsog öðru gáfulegu). Hann sagði þessa upphæð kolranga en rökstuddi það ekki nánar heldur bifaðist af geðshræringu og hvolfdi í sig sjóðandi heitu kaffi. Hann fyrtist ennþá meira við og herti á kaffidrykkjunni þegar ég sagði að íslenskur landbúnaður hlyti að þola utanaðkomandi samkeppni úr því að hann væri svona stórkostlegur og allt væri baneitrað sem kæmi að utan. Neytendur ættu einfaldlega að fá að velja og hafna. Orðið „samkeppni" virtist fá þennan fyrrum lambbúnaðarráðherra „frjálshyggjustjórnarinnar" til að nötra af bræði. Hann lyftist upp úr stólnum yfir óskammfeilni minni þegar ég spurði hann hvort að landbúnaðurinn væri til fyrir okkur neytendur eða hvort að neytendur væru til fyrir landbúnaðinn. Kaffikannan hvarf ofan í hann. Það sem gerði útslagið varðandi flótta hans úr stúdíóinu var ekki beljudjók heldur einfaldlega skilningsleysi mitt á guðdómlegri framsóknarmennsku, afdalamennsku, einangrunarhyggju. Ég erÍslensk pólitík eins lítill framsóknarmaður og hægt er að hugsa sér svo það er kannski ekkert skrítið að ég skyldi fara í þær taugar á Guðna sem hann var ekki búinn á. En auðvitað átti hann ekki að flýja út úr stúdíóinu einsog ofverndað niðurgreitt fjallalamb á leið á grillið heldur bara að svara spurningum mínum og beina mér, afvegaleiddum sauðinum, á rétta braut, semsé á hinn beina og breiða framsóknarveg sem liggur til himnaríkis sérhagsmuna og afturhalds. Hann æddi rauðþrútinn af bræði fram á gang og fór fram á það við lögfræðing Sögu að þessi þáttur yrði aldrei endurfluttur og að ég yrði rekinn. Bíddu, er gæinn í kínverska kommúnistaflokknum? Vill hann hefta tjáningarfrelsið líkt og innflutning á búvörum? Er ekki nóg að þroski Framsóknar sé heftur? Kannski finnst Íslendingum sjálfsagt að stjórnmálamaður skipti sér af frjálsri útvarpsstöð með þessum hætti enda erum við vanir pólitískt skipuðu útvarpsráði frá því við kveiktum fyrst á varpinu, en þetta getur varla talist í lagi árið 2008.

 

Í kjölfar þáttarins geystist framsóknarþingmaðurinn Bjarni Harðarson fram á bloggvöllinn til að þrífa upp eftir for(n)manninn og sagði að ég hefði orðið mér til skammar en tók jafnframt fram að hann hefði ekki hlustað á þennan umrædda þátt og ætlaði sér aldrei að gera það. (Sjá:  http://bjarnihardar.blog.is/blog/bjarnihardar/entry/603970/). Greindarlegt.  Framsóknarlegt. Ef að Guðni og framsóknardindlarnir í kringum hann vilja meina að það hafi verið ég sem hafi orðið mér til skammar í þættinum en ekki Guðni hversvegna var Guðna þá svona mikið í mun að þátturinn yrði Guðni og Bjarniekki endurfluttur en mér ekki? Bjarni Harðarson laug því uppá mig á moggabloggi sínu að ég hefði viðhaft ærumeiðandi ummæli um Steingrím J., Árna Mathiesen og Sigurbjörn biskup. Þessu hefði Bjagni líklegast ekki logið ef hann hefði hlustað á þáttinn, en sumir kjósa að skjóta fyrst og spyrja svo, og þykir kúl. Hvað yrði sagt um bókagagnrýnanda sem rakkaði niður verk opinberlega eingöngu af afspurn nokkurra félaga? Hann yrði réttilega sagður sauðheimskur og rekinn á nóinu. 

 

Til fróðleiks fyrir Framsókn og aðra má geta þess að það má hlusta á þáttinn og hneykslast á undirrituðum á www.stormsker.net.

Eina sem gæti kallast ærumeiðandi ummæli viðvíkjandi þættinum er þessi lygi Bjarna Harðarsonar þingmanns að ég hafi viðhaft ærumeiðandi ummæli. Það má skoða það mál. Endurtek: Þann dóm felldi hann í ofanálag án þess að hafa heyrt þáttinn, sem hlýtur að teljast heims(ku)met?! Mér finnst það ábyrgðarhluti af mönnum sem hafa þann starfa að setja okkur almúganum lög að þeir skuli í valdhroka sínum ljúga opinberlega uppá fólk Dæmigerður pólitíkussem þeir starfa í umboði fyrir. Ég, einsog aðrir Íslendingar, er að sjálfsögðu orðinn vanur því að stjórnmálamenn ljúgi mér en ég hef ekki átt því að venjast að stjórnmálamenn ljúgi uppá mig á opinberum vettvangi. En það má kannski venjast því frá þeim einsog öðrum. Ég veit ekki á hvaða vegferð Framsóknarflokkurinn er en hann sækir allavega ekki fram á við. Meiraðsegja nafn flokksins stenst ekki skoðun. Eftir fáein ár mun Guðni segja við Bjarna: „Þar sem 2 framsóknarmenn koma saman á flokksþingi, þar er 100% mæting." 

 

 

Þessi grein birtist í 24 Stundum, 12. ágúst. 


Þáttur Stormskers með Guðna ekki endurtekinn

Guðni gleðigjafiEinsog hlustendur Útvarps Sögu hafa eflaust tekið eftir þá var þátturinn með mér og Guðna Ágústssyni ekki endurtekinn klukkan 4 í dag einsog til stóð og búið var að auglýsa villt og galið. Ég hef sjálfur ekkert heyrt í Arnþrúði vinkonu minni og fæ yfirleitt síðastur manna að vita hvenær þáttur minn er endurtekinn, en ég trúi því ekki að óreyndu að Arnþrúður láti framsóknarforkólfana beygja sig og breyta sinni frjálsu og óháðu útvarpsstöð í ófrjálsa og háða. Ef að þátturinn verður endurtekinn þá vona ég fyrir hönd hlustenda að það verði ekki á einhverjum fáránlegum tíma þegar allir eru í móki. Ef hann verður hinsvegar ekki endurtekinn þá er ég hættur med det samme því ég  myndi aldrei undir nokkrum kringumstæðum vilja starfa á fjölmiðli sem væri í vasanum á stjórnmálamennum sem reyndu að hefta mitt tjáningarfrelsi. En sem ég segi: Ég trúi því ekki að kröftug spaugsöm manneskja einsog Arnþrúður láti einhverja grafalvarlega sveppi segja sér fyrir verkum.

Ég þykist vita að Halldór E og Markús Þórhallsson séu ekki beint ánægðir með það frekar en ég að hafa verið að kynna endurflutning þáttarins á tilteknum tíma sem svo var ekkert að marka, og ég hef aldeilis fengið að heyra það í mín eyru að hlustendur eru ekki par ánægðir heldur. En ég get því miður ekki beðist afsökunar á einhverju sem ég ræð engu um.

Guðni fór fram á það við Arnþrúði strax eftir viðtalið að þátturinn yrði ekki endurfluttur og að ég yrði rekinn. Ef að Guðni og litlu framsóknardindlarnir í kringum hann vilja meina að ég hafi orðið mér til skammar í þættinum en ekki Guðni sjálfur hversvegna er þeim þá svona mikið í mun að þátturinn verði ekki endurtekinn? Framsóknarmenn og aðrir stjórnmálamenn verða að fara að skilja að þeir eiga ekkert með að vera að grauta í frjálsum fjölmiðlum og reyna að hafa áhrif á hvað þar er sagt og gert. Læt meira heyra í mér síðar um þetta mál.

Þátturinn verður kominn inná heimasíðu mína á mánudaginn:  www.stormsker.net  hvað svo sem afturhaldssamir framsóknarstrumpar reyna að röfla í mér. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband