Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
21.3.2009 | 13:57
Nú ríður á að banna allt "klám"
"Raddir fólksins" eru þagnaðar því nú hefur takmarkinu verið náð og vandamálin leyst: Vinstri græningjar eru komnir til valda og Dabbi farinn úr Seðlabankanum. Allt semsé komið í glimrandi gott stand. Verður ekki betra. Ég sagði í grein fyrir einhverjum mánuðum að það fyrsta sem Vinstri græningjar myndu gera þegar þeir kæmust til valda væri að einbeita sér að því sem mestu máli skipti til bjargar landinu og það væri náttúrulega að loka þessum örfáu stórhættulegu súlustöðum og banna allt "klám." Sem betur fer er það orðið að veruleika.
Það er alveg hryllilegt til þess að hugsa að fullorðnir sjálfráða karlar skulu leyfa sér að horfa á hálfberar fullorðnar sjálfráða stelpur og skulu meiraðsegja geta haft gaman af því. Þvílíkir djöfulsins drullusokkar. Þvílíkt óeðli. Þvílíkt helvítis fokking fokk! Auðvitað á að banna þessa viðbjóðslegu staði. Með því að banna þessa staði þá hverfur allt vændi einsog dögg fyrir sólu einn tveir og bingó og Klakinn rís úr sæ og allir geta tekið gleði sína á ný. Þarna þrífst alveg hreint gríðarlegt mansal og þrælahald í stórum stíl. Stelpurnar eru hlekkjaðar á höndum og fótum og barðar áfram með hnútasvipum og gaddakylfum og sendar í galeiðum milli landa. Þær koma frá þriðja heims löndum einsog Eystrasaltslöndunum og Bretlandi sem eru alræmd skítabæli einsog allir vita. Á súlustað einsog Goldfinger geta þær haft hátt í milljón á mánuði sem er náttúrulega alveg skelfileg tilhugsun. Mér persónulega myndi líða miklu betur vitandi af þeim á kassa í Bónus eða skeinandi gamalmennum á Grund fyrir 90 kall á mánuði. Svoleiðis draumadjobb myndu þær þiggja fegins hendi ef þær væru ekki í ánauð, marghlekkjaðar á höndum og fótum. Það á að stinga þrælahaldara og yfirdjöfli einsog Geira á Goldfinger beint í svartholið uppá vatn og bónusbrauð og pína hann til að lesa Kommúnistaávarpið og hlusta á allar þingræður Vinstri græningja kvölds og morgna, dag og nótt, árið um kring, ævina á enda
Ég þarf ekki að taka það fram að það ber að sjálfsögðu að banna klámmyndir einsog þær sem ég birti hér að ofan. Efsta myndin er náttúrulega sínu verst. Þeir sem góna of mikið á hana gætu leiðst út í drullupumpubisness.
Vinstri grænir, sem af einhverjum mjög góðum og gildum ástæðum eru með kynlíf á heilanum, vilja einnig láta leiða í lög að sá sem kaupir þjónustu af hóru fari beinustu leið í grjótið, en ekki hóran. Að bjóða vændi á semsagt að vera löglegt en að þiggja þjónustuna og borga fyrir hana einsog sannur séntilmaður er vitaskuld glæpur. Allir hljóta að sjá að þetta er náttúrulega alveg ofboðslega skynsamlegt einsog allt sem frá Svíum og Vinstri grænum kemur. Skrítið að einhverjum hugsuði einsog Valda koppasala skyldi ekki hafa dottið þetta í hug. "Raddir fólksins" hafa greinilega hvorki náð hans eyrum né mínum nógu vel. Glæsileg, kynþokkafull kona sem vill nota guðsgjafir sínar í ábataskyni er ALLTAF í ánauð einhvers ógeðslegs hórmangara. Segir sig sjálft. Það á að banna allt atvinnufrelsi. Það er frá djöflinum komið einsog allt annað frelsi.
Þú átt semsagt þinn líkama og mátt bjóða hann hverjum sem er til afnota en þú mátt hinsvegar allsekki þiggja eina krónu fyrir gamanið. Sá sem er kurteis og gefur þér 1000 kall í þakklætisskyni fer beint í dýflissu þar sem hann verður hlekkjaður á höndum og fótum einsog súludansmey. Örugglega auðvelt að rannsaka svona mál. Vinstri græningjar hljóta þá um leið að vilja leiða það í lög að dópsalinn sé saklaus sem lamb en kaupandinn sekur. Það gefur auga leið. Það verður að vera samræmi í hlutunum. Eitt skal yfir alla ganga
Boð og bönn hafa alltaf reynst heilladrýgst lausn hvers vandamáls, hvort sem um er að ræða vændi, súlustaði, áfengi eða annað. Með því að banna hlutina þá hverfa vandamálin. Maður skrifar undir lög og vandamálið er úr sögunni. Gott dæmi um það er áfengisbannið í Bandaríkjunum. Það hættu bókstaflega allir að drekka med det samme. Mafían brosti að vísu eitthvað en þetta svínvirkaði. Þorstinn hvarf einsog sparifé Breta í Icesave. Framsóknarflokkurinn gerði gott betur og setti í stefnuskrá sína fyrir um 10 árum síðan: "Vímuefnalaust Ísland árið 2000." Síðan þá hefur ekki nokkur kjaftur sést reykja svo mikið sem njóla og hvað þá gras á götum bæjarins. Sama gildir um vændið. Það er nefnilega kolrangt sem einhver orti hér um árið: "Þótt náttúran sé lamin með lurk / þá leitar hún út um síðir."
Mér sýnist að eina leiðin til að koma útrásarkrimmunum á bak við lás og slá sé að reyna að fá þá til að tíma að borga einhverri kellingu fyrir tottið. Annars borgar sig nú ekki að vera að pæla í smotteríi einsog hruni landsins. Það sem ríður á þarf að gera, nú þegar landið er að fara til helvítis, er að banna alla nekt og allt helvítis klám. Það er forgangsatriði og sem betur fer gerir ríkisstjórnin sér grein fyrir því og er að vinna í því baki brotnu einsog hóra á bakinu. Engir tveir einstaklingar skulu fá að fara í sturtu saman, hvorki í sundlaugunum né heima hjá sér. Sjáist berbrjósta kellingardrusla liggja í sólbaði skal hún umsvifalaust skotin á staðnum, beint á milli augnanna, nú eða brjóstanna, og sömuleiðis þeir perrar sem eru að góna á hana. Sérstaklega þeir. Beint á milli brjóstanna. Setjum heimsmet í forsjárhyggju og leiðindum rétt einsog glæpamennsku og spillingu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (63)
6.3.2009 | 20:23
Þann dag er Klakinn dó
Flestir sem komnir eru til vits og ára, eða skulum við segja ára, hafa heyrt lagið The night Chicago died með hljómsveitinni Paper Lace. Það fjallaði um þann skemmtilega tíma þegar öðlingurinn Al Capone réði ríkjum í Chicago á bannárunum. Við erum að upplifa ekki ósvipaða gósentíma á Islandi í dag nema hvað fólkið er ekki plaffað niður með vélbyssum heldur með fláttskap og vélum.
Eg tók mig til núna um miðjan janúarber og gerði nýjan texta við þetta ágæta lag og tók það upp. Lagið heitir Þann dag er Klakinn dó. Eg og Richard Scobie syngjum. (Síðast sungum við félagarnir saman lag mitt Allsstaðar er fólk fyrir sléttum 20 árum síðan). Þetta lag, sem kemur út á sólóplötu minni í haust, má finna í tónlistarspilaranum hér til vinstri á síðunni.
Dabbi hann var boss
hér á ísköldum klaka
í þá gömlu vondu daga.
Það er mikil sorgarsaga.
Það var kolsvartur september,
það var sárt fyrir frónska menn
þegar ískaldur Klakinn dó.
Það er talað um það enn.
Þá voru bjórúlfar í móð
við að ræna þessa þjóð
og þeir komu´upp bankaher
til að kyrkja þetta sker.
Ég heyrð´er mamma hló,
hún hló og grét þann dag er Klakinn dó.
Boring þessi djöfuls dagur var.
Borinn fyrir borð hvers hagur var.
Það er satt.
Ég heyrð´er mamma hló,
hún hló og grét þann dag er Klakinn dó.
Sérhver maður gekk af göflunum
vildi stúta fjármagnsöflunum.
Það er satt.
koma ránsfengnum á þurrt.
Þegar lögreglan loksins kom
þá var allt á bak og burt.
Hér voru bankaflón í móð
við að ræna þessa þjóð,
já þeir sló´ana í rot
og þeir settu hana í þrot.
Ég heyrð´er mamma hló,
hún hló og grét þann dag er Klakinn dó.
Þvílík hörmung þessi dagur var.
Borinn fyrir borð hvers hagur var.
Það er satt.
hún hló og grét þann dag er Klakinn dó.
Sérhver maður reyndist ráðþrota,
rúinn inn að skinni, gjaldþrota.
Þjóðin sprakk.
Og það sagði enginn orð
er þeir frömdu þjóðarmorð.
Allir misstu húsin sín,
fóru að lifa einsog svín,
allir misstu sitt í hýt,
allir fóru að éta skít.
Þann dag er Klakinn dó.
Bróðir þvílík eymd og þvílíkt basl,
Bróðir þvílíkt mess og þvílíkt drasl.
Það er satt.
Þann dag er Klakinn dó.
Þann dag er Klakinn dó.
Margir flúðu land, þeir æddu út.
Þjóðinni já henni blæddi út.
Það er satt.
Þann dag er Klakinn dó.
Þann dag er Klakinn dó.
Allt er týnt og gefið tröllunum.
Ráðamenn þeir kom´af fjöllunum.
Það er satt.
Þann dag er Klakinn dó.
Þann dag er Klakinn dó.
Þjóðin þurfti´að hlust´á rugl og bull.
Ráðamenn þeir lugu okkur full.
Það er satt.
Stormsker > Söngur, bakraddir og öll hljóðfæri.
Scobie > Söngur og bakraddir.
Snorri Snorrason idolstjarna > Upptakari.
Snorri og Stormsker > Mixarar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Svona er dæmigerð þingmannsræða um þessar mundir:
"Hæstvirtur forseti. Ég er aumingi og hálfviti og vinn við það að hafa vit fyrir þessari þjóð. Mér þykir ákaflega leitt ad hafa steinsofið á verðinum meðan bankahrunið átti sér stað. Sömuleiðis þykir mér miður að vera hálfviti. Ég geri mér ljóst að ég er ekki starfi mínu vaxinn en hver er það svosem í okkar frændaþjóffélagi þar sem klíka skiptir meira máli en geta, menntun og hæfileikar? Ég hefði mátt vera gagnrýninn í hugsun, en til þess að vera gagnrýninn i hugsun þá þarf maður að geta hugsað Eitthvað og það er ekki beint mín sterkasta hlið frekar en annarra þingmanna einsog frægt er orðið um gjörvalla heimsbyggðina. Þjóðin sjálf á við sama vanda að glíma og þessvegna kýs hún okkur aulana á þing. Aftur og aftur. Við alþingismenn erum þverskurður og spegilmynd þjóðarinnar. Við erum semsagt fífl. Við erum asnar og amatörar en við erum að reyna að gera okkar besta þó það komi náttúrulega ekkert útúr því nema rugl.
Bankahrunið kom mér og öðrum þingmönnum alveg gjörsamlega í opna skjöldu þrátt fyrir allar kolsvörtu skýrslurnar og spárnar sem við vorum bókstaflega að drukkna í. Við vorum sjálfumglöð og værukær og gjörsamlega útá túni og veltum okkur uppúr bittlingunum og ferðadagpeningunum og spillingunni einsog svín og reyktum of mikið af sterku stöffi, og ég ætla að vona að þessir yndislegu tímar séu ekki liðnir. En þess ber þó að geta að fólkið í mínum flokki reykti ekki nánda nærri eins mikið og hyskið í hinum flokkunum og við tókum lítið sem ekkert oní okkur. Svo skal böl bæta að benda á eitthvað annað. Við öxlum ábyrgð með því að sitja áfram sem fastast.
Ég á minn þátt í þessu andavaraleysi sem við höfum gerst sek um undanfarna klukkutíma og jafnvel undanfarna áratugi. Það er bara eitt orð sem getur strikað út allt mitt rugl og það er: Sorry.
Ég hefði mátt vera vakandi og ég hefði mátt sleppa því að eyða tíma mínum og annarra þingmanna í tittlingaskít og bullshit einsog hvort öryrkjar og gamalmenni ættu rétt á að lifa af í þessu landi og hvort það væri réttlætanlegt að fólk gæti lifað af laununum einum saman o.s.fr. o.s.fr. Við hefðum mátt hugsa um það sem skipti máli og vera ekki með hausinn á bólakafi uppí rassgatinu á okkur. Við hefðum t.d. átt að taka nokkur ár í að ræða það alveg oní kjölinn hvort kornabörn ættu að klæðast bleikum fötum eða bláum á fæðingardeildum og hvort ekki mætti finna smekklegt kvenkyns orð yfir ráðherra o.s.fr. En gert er gert. Við erum nú einusinni Íslendingar og elskum aukaatriði og þrætur um nonsens.
Mér þykir þykir þetta miður fyrir Sjálfan mig, ekki aðra, og ég hef beðist afsökunar á þessum fávitahætti mínum. Það getur enginn gert að því þótt hann sé hálfviti en það var fólkið í landinu sem kaus mig til að gegna þessu ábyrgðarlausa embætti. Sökin er þessvegna ekki bara mín heldur líka fólksins sem kaus mig, aumingjann. Það eru bara kálfar sem kjósa naut á þing.
En hvað um það. Ég segi einsog Saxi læknir þegar hann hafði óvart höggvið sjúkling sinn i herðar niður: "Afhverju horfa allir svona á mig? Manni getur nú mistekist."
Við þjóðina vil ég segja þetta: Ekki gleyma að kjósa mig og minn flokk aftur i næstu kosningum. Aftur og aftur og aftur og aftur. Það er engin hætta á að við getum klúðrað hlutunum meira en við höfum þegar gert. Við áttum okkar þátt í því að sökkva þjóðarskútunni til botns en nú getur leiðin bara legið uppá við. Við erum rétta fólkið í það björgunarverkefni. Hryðjuverkamaður sem sprengir byggingu í loft upp er akkúrat rétti maðurinn til að endurbyggja hana. Treystið okkur. Við kunnum þetta þó við séum víðáttuvitlausir hlandaular.
Við eigum ekki alltaf að vera að horfa í baksýnisspegilinn. Við eigum að horfa á allar fögru brunarústirnar sem eru framundan. Það eru mjög spennandi tímar framundan fyrir okkur þingmenn. Við eigum að kjósa flokka, ekki fólk, vegna þess að í skjóli flokkanna hljóta hálfvitar eins og ég brautargengi. Hugsið ykkur bara; ég væri að raða kerrum í Bónus ef ég hefði ekki gengið í minn flokk og sleikt rassgöt og sagt já og amen við öllu sem formaðurinn bullaði. Ég er nefnilega ekki snillingur heldur spillingur.
Jæja. Við játum mistök okkar og öxlum ábyrgð með því að biðjast afsökunar. Sorry og málið dautt. Kæru kjósendur, ég treysti á yfirgripsmikla heimsku ykkar og ósjálfstæði. Hún hefur aldrei brugðist. Sjáumst í kjötklefanum."
Sekt og sakleysi á þingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
19.2.2009 | 03:24
Hreinn og tær viðbjóður
Á ferðalagi mínu um Cambodiu fyrir rúmlega tveimur árum kom ég við á Blóðvöllum, eða Killing Fields einsog þetta kallast í dag eftir myndinni frægu. Á miðjum akrinum stóð einmanalegt tré án sýnilegs tilgangs einsog framsóknarmaður. En þetta tré notuðu Rauðu kmerarnir óspart. Þeir tóku um lappir ungabarna og slengdu hausnum á þeim við það og hentu þeim ofan í fjöldagröf við hliðina. Orðið timburmenn fékk nýja merkingu í mínum huga. Þetta voru börn menntamanna og þeirra sem kommúnistarnir héldu að gætu slysast til að hugsa sjálfstæða hugsun í framtíðinni. Slíkt er stórvarasamt í kommúnistaríki.
Ég kynntist ekki þeirri stúlku í Cambodiu sem ekki hafði misst náinn fjölskyldumeðlim. Yfirleitt voru þær föður - eda móðurlausar. Pabbi þeirra eða mamma hafði verið svo óheppin að kunna að lesa og skrifa og það er glæpur sem hardcore kommúnismi líður ekki. Trúin á kommúnismann sem framtíðarfyrirkomulag rústaði framtíð þessarar þjóðar.
Strax a flugvellinum i Phnom Penh, höfuðborginni, fann maður fyrir óhugnaðinum og ofbeldinu sem sveif yfir vötnum. Mér var kastað einsog ruslapoka aftast í röðina afþví ég hafði gleymt að merkja x í einhvern reit í inngönguplagginu. Komst seinna að því að fyrrum böðlar Pol Pots voru nú starfsmenn flugvallarins og í öllum helstu stofnunum borgarinnar, en auðvitað áttu þeir að vera á öllum helstu geðheilbrigðisstofnunum borgarinnar.
Ráðlagt að fara ekki út eftir klukkan 8 á kvöldin ef maður vildi halda lífi. Reglur sem ég braut reyndar á hverju kvöldi í fylgd tuc tuc gæa sem ég leigði mér til að sniglast um borgina á mínum vökutíma, sem er ekki beint kristilegur. 3 vestrænir túristar voru rændir og stungnir á hol viku áður en ég mætti á svæðið. Virðingin fyrir mannslífum í sama frostmarki og virðing íslenskra bankafursta fyrir almannafé.
Hef flakkad víða um miður kræsilega staði en ferlegasti staður sem ég hef nokkurntíma komið á er án vafa Tuol Sleng fangelsið i Cambodiu sem þessi Kaing Guek Eav api stjórnaði. Þetta var áður barnaskóli en var breytt í pyntingarbúðir á tímum Pol Pots. Auswitch var einsog tívolí við hliðina á þessu helvíti. Þá sem þeir nenntu ekki að drepa strax létu þeir dúsa í pínulitlum básum sem rúmudu vart skugga af mannveru. Blóðslettur upp um alla veggi. Hauskúpur í glerskápum. Karlar, konur, gamalmenni, börn; alltsaman pyntað og myrt á hinn hugvitsamlegasta og skelfilegasta hátt. Sér pyntingarklefar. Drekkingartunnur sem fótbundið fólkið var látið síga á hvolf niður í. Járnrúm sem fólkið var njörvað niður í og gefið raflost. Útlimir sargaðir af með bitlausum hnífum sem lágu með grotnuðum kjöttætlum við hliðina á járnrúmunum. Strekkt á líkamanum í vatnskari þangað til hann nær slitnaði í sundur. Augun rifin úr með glóandi töngum. Myndir af fallegum manneskjum, kornungum sem öldnum, sem höfðu hlotið þessi hroðalegu örlög. Ekki hægt annað en að gráta á þessum hörmungarstað. Blóðskammaðist mín fyrir að tilheyra dýrategundinni "homo sapiens." Mannleg grimmd á sér ENGIN takmörk frekar en heimskan. Guð skapaði jú manninn í sinni mynd. Tek undir með Þórbergi Þórðarsyni: "Heimskan er einsog eilifðin. Hún takmarkast hvorki af tíma né rúmi."
Þar sem enga olíu er að finna í Cambodiu þá héldu Bandaríkjamenn að mestu að sér höndum á þessum tímum og vildu ekki vera að gera veður út af þessum Pol Pot þó hann væri að dunda sér við að slátra þjóð sinni.
Það voru Víetnamar, ein harðgerðasta þjóð heims, þjóð sem Bandaríkjamönnum tókst ekki að slátra örfáum árum áður þrátt fyrir góðan vilja, sem frelsuðu Cambodiu undan sjálfri sér. Hefðu gjarnan mátt klára verkið alveg. Þeir steyptu stjórninni en slepptu böðlunum. Pol Pot, líklegast grimmasta og heimskasta trúfífl mannkynssögunnar, lést í hárri elli um aldamótin, fullur gleði og óbilandi trú á kommúnismann.
Hér í Asíu, þar sem ég er núna staddur, er talað um Íslendinga í fjölmiðlum sem einhverja spilltustu, óheiðarlegustu og heimskustu þjóð sem sögur fara af. Það er sennilega ekki svo fjarri sanni. Þjóðin orðin heimskunn sökum heimsku. Loksins varð Ísland frægt, á réttum forsendum.
Cambodia losaði sig við síðasta kommúnistann árið 2003. Fundu hann útí skógi og skutu hann. Satt. Íslendingar hinsvegar framleiða kommúnista á færibandi. Ekki blóðþyrsta morðingja heldur einfeldninga og hálfvita.
Fyrsta sem Íslendingum dettur í hug að skera niður þegar syrtir í álinn er menntakerfið. Og svo heilbrigðiskerfið. Einmitt þegar þeir þurfa mest á menntun og andlegu heilbrigði að halda.
Síðan kommúnisminn leið undir lok þá hefur hann hvergi haft eins mikið fylgi í nokkru lýðfrjálsu ríki og á Íslandi.
Síðasti kommúnisti heimsins mun án nokkurs vafa vera Íslendingur.
Líkt og þegar Víetnamar björguðu Cambodiu þá þurfum við illilega á einhverri góðri og hjálpsamri þjóð að halda til að bjarga okkur frá sjálfum okkur.
Böðullinn á Blóðvöllum fyrir rétt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.11.2023 kl. 09:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
14.2.2009 | 22:02
Mjög gott mál
Hef lítid getað fylgst með því sem er að gerast á Los Klakos undanfarnar vikur. Veit þó að tími Jóhönnu Sigurðardóttur er nú loksins kominn, sem er mjög gott mál, og svo er víst tími Steingríms Joð, Kolbrúnar Halldórs, Marteins Mosdals og Georgs Bjarnfreðarsonar kominn líka og það er líka mjög gott mál. Mjög gott vandamál. Við þurfum ekki að örvænta þegar við höfum svona einvala lið við stjórnvölinn. Við höfum ekki lengur hrossalækni sem fjármalaráðherra heldur jarðfræding og tá hljóta málin nú að fara að blessast. Fagmennskan í fyrirrúmi.
Svo skilst mér að Dabbi sé kominn á 400 hestafla Corvettu og sé á stöðugum æðisgengnum flótta um götur borgarinnar undan snarbrjáluðum blaðasnápum og þungvopnuðum almenningi og geti hvergi um frjálsar krullur strokið og að hann sé búinn að flytja skrifstofu sína í Seðlabankanum í rammgirta gullhvelfinguna. Til standi að hann láti múra sig inní bankanum. Það er líka mjög gott mál. Hann er skyldurækinn maður hann Dabbos.
Svo var mér sagt að Imba Solla væri með eitthvað í höfðinu. Æxli eða eitthvað svoleiðis dótarí. Því trúi ég nú ekki. Það getur enginn logið því að mér að hún sé með nokkurn skapaðan hlut í hausnum. Ég trúi nú ekki hverju sem er. Það er akkúrat Ekkert í hausnum á henni, enda er hún formaður Samfylkingarinnar.
En það er semsé allt komið í flott stand á Los Klakos og það er bara verulega gott mál. Allir farnir að taka þátt í kærleiksgöngum og kossaflensi og faðmlögum og ríðingum. Skilst að það verði eitthvað smokklaust hópsex milli almennings og stjórnmálamanna við tjörnina í dag með lúðrablæstri og söng. Það myndi ég segja ad væri mjög gott mál. Kynlegt mál.
Kærleiksganga á Austurvelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.3.2009 kl. 12:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
18.1.2009 | 17:56
Framsóknarmartröðin heldur áfram
Ekki byrjar siðbótin í Framsókn vel. Fyrst er Höskuldur lýstur formaður og svo Sigmundur nokkrum mínútum síðar. Hver verður það í kvöld? Guðni? Valdi koppasali? Ragnar Reykás? Hver sér um atkvæðatalninguna fyrir þessa dúdda? Inspector Clouseau? Hvernig er hægt að ruglast á nöfnum? Settu þeir Gísla Helgason flautuleikara í að yfirfara þetta? Hvað eru þessir svefngenglar að drekka sem við höfum ekki smakkað? Absolut Idiot?
Það er ekki að ástæðulausu að ég set þessa færslu undir "heilbrigðismál."
Ég veit ekki hvort ég eigi að samgleðjast Sigmundi eða samhryggjast. Jú reyndar, ég veit það. Hann er í skelfilegum málum. Þarna fór fín perla í svínskjaft. Ég sem hélt að það yrði eitthvað úr honum. Ég myndi eflaust kjósa Sigmund í persónulegri kosningu, en flokkinn og allt það fálkager sem honum fylgir mun ég að sjálfsögðu aldrei kjósa.
Í gær heiðraði þessi gjörspillti flokkur Guðna Ágústsson. Fyrir hvað? Að standa sem lambbúnaðarráðherra með bændamafíunni á móti neytendum? Fyrir ævisöguna þar sem var ekki minnst einu orði á gjafakvótakerfið sem flokkurinn kom á? Fyrir að segja af sér formennsku og þingmennsku? Fyrir góða veislustjórn í spillingarbælinu? Fyrir að flýja einsog fætur toguðu úr þættinum mínum? Hver á að skilja þennan flokk?
Jónína Ben vinkona mín heldur að það sé hægt að ræsta spillinguna úr flokknum. Í gær setti ég inná síðuna hennar þessa athugasemd:
"Að ætla sér að reyna að hreinsa spillinguna úr Framsóknarflokknum er einsog að ryksuga hús sem er gegnétið af veggjatítlum. Það verður að brenna kofann til grunna."
Þessi flokkur á álíka mikið erindi við þjóðina og minkur við hænsnabú.
Sigmundur kjörinn formaður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 14.2.2009 kl. 00:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (44)
18.1.2009 | 13:41
Geir um Grey frá Gay til Gauðs
Ég tek undir með Geir Hor: Það er svolítið gremjulegt að "ríkiskerfið" skyldi hafa klúðrað málunum pínulítið. Árið 2009 gæti orðið svona frekar óspennandi þó það séu reyndar "mjög spennandi tímar framundan hjá Sjálfstæðisflokknum," einsog Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir benti á fyrir stuttu í miðri kreppunni.
Einhverjir gætu hugsanlega misst aukavinnuna tímabundið og svo er ekki loku fyrir það skotið að einhverjir óaðsjálir lúðar í Breiðholti lendi í smá vandræðum með að borga af blokkarkompunum sínum og kannski að nokkrir þurfi að fara að borða nautasteikur í staðinn fyrir hreindýrafille. En þetta er ekkert sem þarf að hafa miklar áhyggjur af því við búum við styrka stjórn valinkunnra spesíalista.
Það er rétt sem Geir segir að menn voru algerlega "óviðbúnir þegar fjármálaóviðrið skall á okkur." Aðeins nokkrir tugir innlendra og erlendra sérfræðinga höfðu varað ríkisstjórnina við mánuðum saman en þeir áttu það reyndar allir sameiginlegt að vera ómarktækir fávitar sem þurftu "á endurmenntun að halda," einsog Þorgerður Katrín orðaði það svo skemmtilega rétt fyrir hina svokölluðu "kreppu." Á sama tíma sagði Imba Solla: "Hér er engin kreppa," og hitti þar naglann á höfuðið einsog endranær.
Davíð Oddsson sagði við Geir á síðasta ári að það væru 0% líkur á að bankarnir myndu lifa af og í kjölfar þeirra orða voru settir nokkur hundruð milljarðar í að reyna að bjarga Kaupþingi. Einmitt. Geir segir: "Við töldum að Kaupþing myndi lifa þetta af, alveg fram á síðustu stundu." Samt voru 0% líkur á því samkvæmt orðum Davíðs. Niðurstaðan: 100% rugl.
Þó að maður skilji þetta ekki alveg þá hlýtur að vera eitthvað mikið vit í þessu öllu hjá okkar framsýnu ráðamönnum. Varla höfum við verið að kjósa yfir okkur einhverja asna! Svo er líka svo þægilegt að vita af því að ekki taka síðri proffar við eftir kosningar, semsé Vinstri græningjar. Þá fyrst byrjar nú gleðin og fagmennskan fyrir alvöru. Jibbííí!!!! Guð blessi Ísland.
Geir: Árið verður mjög erfitt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
17.1.2009 | 19:57
Til fjandans með allar nýjar raddir
Hvaða helvítis froskar standa eiginlega að baki þessum "Nýju röddum?" Við eigum að halda áfram að láta Hörð Torfason einan velja fólk sem má tala á Austurvelli. Þannig hefur það verið í 15 vikur og þannig skal það verða áfram. Hörður heyrir raddir og við eigum að hlusta á hans raddir. Raddir hans eru raddir fólksins.
Mótmæli Harðar Torfa hafa skilað gríðarlegum árangri, t.d. kvefi og lungnabólgu fundargesta svo ekki sé nú minnst á hvað þetta er góð æfing í ræðumennsku og tilvalinn stökkpallur inná þing. Enda eru þeir Hörður og Einar Már og Njörður P. Njarðvík og fleiri rauðliðar að stofna stjórnmálaflokk upp úr þessum mótmælum.
Geta þessar Nýju raddir ekki drullað sér eitthvað annað? Viljum við virkilega óheft tjáningarfrelsi? Viljum við virkilega að hver sem er geti tjáð sig niðrá Austurvelli á laugardögum kl. 3? Á ég að trúa þessu?! Ég meina, viljum við almennilegt fasistaríki eða ekki? Sjá menn ekki hvílíkt glapræði það er að hafa opinn hljóðnema fyrir hvern sem er til að tjá sig?
Guði sé lof að lögreglan fór að beiðni Harðar Torfa og fjarlægði bíl og hljóðtækjabúnað Nýrra radda og kom þannig í veg fyrir að nýjar og óæskilegar raddir heyrðust. Ef við leyfum þessu pakki að vaða uppi þá eigum við á hættu að hér þróist eitthvað sem geti kallast lýðræðisleg vinnubrögð og viljum við það? Ég segi NEI! Ég spyr einsog Hörður Torfa gerði á Austurvelli í dag: "Viljum við svona fólk?" NEI! Þetta fólk er ekki þjóðin.
og: Nýjar raddir
Fjöldi manns á Austurvelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (41)
16.1.2009 | 14:41
Forsetinn bað um að stjórnarskráin yrði brotin
Þetta er mjög einfalt. Ég skal reyna að orða þetta kurteislega: Annaðhvort er maðurinn fábjáni eða trúður. Ég hallast að því síðarnefnda. Ólafur er stjórnmálafræðingur og ætti því að þekkja stjórnarskránna jafnvel betur en útrásarvíkingana.
Kannski að fjármálaráðherrann geti aðstoðað hann við launalækkunina, en ef Ólafur er svona gasalega sólginn í að lækka laun sín og bæta þannig fyrir afglöp sín í starfi sem útrásarmella og lírukassaapi fyrir Baugsveldið þá á hann bara að gera það þegjandi og hljóðalaust og skrumlaust og hræsnislaust og slaka hinum og þessum góðgerðarfélögum millu á mánuði og svo gæti kannski hans betri helmingur bætt einhverju við. Hún hlýtur að mega missa einn lítinn demant úr námunni. Þetta er ekkert flókið
Það er svakalega lásí og idjótískt af honum að biðja Kjararáð að lækka laun sín þegar hann veit nákvæmlega hver niðurstaðan verður. Nema náttúrulega að hann hafi ekki vitað það og þá hefur hann þá einu afsökun að hann sé fábjáni og því kannski alveg tilvalinn sem samnefnari og sameiningartákn þjóðarinnar.
Forsetaembættið kostar þjóðarbúið nokkur hundruð milljónir á ári og þessari fúlgu væri án nokkurs vafa betur varið í styrkingu mennta - og heilbrigðiskerfisins og í aðstoð við þá sem hafa ekki til hnífs og skeiðar. Ef Ólafur vill raunverulega koma að gagni og spara þá færi vitaskuld best á því að hann segði af sér og leggði til í leiðinni að þetta tilgangslausa fokdýra snobbembætti yrði lagt niður í snarhasti.
Þessar endalausu leiksýningar forsetans fara að verða álíka þreyttar og hallærislegar og hárgreiðslan. Hann er búinn að koma embættinu niður í forarpytt sýndarmennsku, auðmannadekurs og ótrúverðugleika og í þeim skít situr hann sem fastast.
Ólafur er sannkallaður "for-seti."
Kjararáð getur ekki lækkað laun forsetans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 22.3.2009 kl. 02:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
15.1.2009 | 11:52
Maður getur grætt milljarða á "mistökum"
Ég skrifaði til gamans niður hluta af Kastljósviðtali sem Sigmar Guðmunds átti við Bjarna Ármanns fyrir stuttu. Allt annað að sjá þetta svona á prenti. Verður hálf hlálegt. Auðveldara að sjá í gegnum froðuna. Ég hef þetta algerlega orðrétt en innskot innan sviga eru hinsvegar mín.
Bjarni: Það varð mikill vöxtur á löngu tímabili hér á landi og eitt af því sem ég lagði upp með var að launakjör héldust í hönd við þann árangur sem að fyrirtækin og menn voru að ná - og ég held að það sem fór úr böndunum sé tvennt: Annarsvegar það að fjárhæðirnar sem slíkar urðu of háar, (þær urðu ekki of háar fyrir slysni, þær voru hækkaðar af bankastjórunum) og hinsvegar að líklega var maður að ofmeta mikilvægi einstaklingsins í að ná þeim árangri sem náðist (sem var að setja bankann á hausinn) og þá er ég ekki að undanskilja sjálfan mig í því." (Semsé: Mistök").
Bjarni: Við gengum úr þeim viðmiðunum sem samfélagið hafði um launakjör. Tölurrnar urðu einfaldlega miklu stærri en nokkurn óraði fyrir." (Endurtek: Þær urðu ekki of háar. Þær voru hækkaðar af bankastjórunum. En semsé: Mistök")
Bjarni: Jú þetta kallast græðgi á góðri íslensku." (og væntanlega mistök").
Bjarni: Græðgi er einn af þeim kröftum sem drífur svona kerfi áfram, og hún er ekki alslæm í sjálfu sér, en auðvitað má hún ekki vera of mikils ráðandi, en sem er klárlega það sem gerðist." (Semsé: Mistök")
Sigmar vitnar í nýlega sorry"blaðagrein Bjarna: Þú ert að lýsa alveg hreint órúlegum sofandahætti, Svo ég noti nú bara þín eigin orð Bjarni: Þið voruð of sókndjarfir, þið bjugguð til launakerfi sem fór úr böndunum, þið ástunduð einhverskonar hjarðhegðun, ykkur skorti skilning til að lesa samfélagið, þið sköpuðuð of veikan grunn til að standast sviptingarnar, þið létuð glepjast af hraða og skammtímaárangri og misstuð sjónar á langtímahagsmunum og gildum samfélagsins. Í ljósi þessa er þá ekki galið að þið séuð að fá fleiri hundruð milljónir fyrir það að vera í raun svona vankaðir?"
Bjarni: Það er alveg ein leið til að líta á þetta og alls ekki röng túlkun á því sem ég er að segja... það er alveg klárt að við fórum fram úr okkur sjálfum. Það má líka lýsa þessu sem sofandahætti." (Nei, frekar sem mistökum." Það kemur betur út).
Sigmar: Er ekki ósanngjarnt að þið sem gátuð farið út úr kerfinu á réttum tíma að þið skuluð sitja með svona mikla peninga á milli handanna á meðan almenningur er að verða fyrir allri þessarri lífskjararýrnun á sama tíma? Þú ert búinn að vera með á árabilinu 2004 - 2007 heilar 900 milljónir í laun og þú ert líka að selja hlutabréf fyrir marga milljarða. Þú ert sjálfsagt búinn að ganga út úr bankanum með fleiri fleiri milljarða."
Bjarni: Ég held að það sé alveg rétt lýsing að segja að það sé ósanngjarnt. Og það er kannski það sem ég er að gera í þessarri grein, er að horfa gagnrýnið á sjálfan mig í því ljósi sem hefur gerst þ.e.a.s. að kerfið hefur hrunið og það er verið að leggja hér álögur á fólk sem hefur ekkert til þess unnið." (Smá tæknileg mistök")
Sigmar: Og hvernig ætla menn að bregðast við því? Það er ekki nóg að segja bara í einhverri Fréttablaðsgrein Mér þykir þetta leitt"?
Bjarni: Nei nei. Það er alveg hárrétt. Og auðvitað er ég, alveg frá því að þessir atburðir gerðust í haust, búinn að hugsa hvað gerði maður rangt og hvar hugsaði maður hlutina vitlaust og hvað getur maður gert til að bæta fyrir það og hvernig getur maður komið á svona nýju gildismati ef svo má segja, þó ekki sé nema hjá sjálfum sér. Og mín niðurstaða var sú...að greiða Glitni til baka þær greiðslur sem ég hafði fengið eftir að ég lauk mínum starfskyldum hjá Glitni, 370 milljónir." (Jibbííí! Málið dautt).
Sigmar: Og finnst þér þar með nóg að gert í ljósi þess að þú ert búinn að hafa miklu meiri tekjur af fyrirtækinu í formi sölu hlutabréfa?"
Bjarni: Ja sko einhversstaðar...einhversstaðar verður maður að horfa á hlutina í samhengi og hvað maður hefur gert...uuuu...ég horfi á mál sem mér finnst vera mistök hjá mér, en ég er auðvitað ekki að segja að ef að ég hefði ekki gert þessi mistök þá hefði kerfið ekki hrunið. Það eru auðvitað fjölmargir þættir sem þar koma inní, bæði annarsstaðar frá sem og frá öðrum aðilum. (Já, það eru svona um 30 aðrar útrásarhetjur sem lögðu hönd á plóginn við að koma landinu til helvítis). En ef ég horfi á þessar tölur í samhengi við það sem þú nefnir og dregur upp að þá sýnist mér svona gróft að ef ég tek þau laun og þá bónusa og alla þá kauprétti sem ég hef fengið á því 10 ára tímabili sem ég starfaði hjá bankanum og fyrirrennurum hans og dreg frá þá skatta og skyldur sem ég hef greitt til samfélagsins á þeim tíma þá jafngildir þessi greiðsla (370 millur) um helmingi af þeim greiðslum sem ég hef fengið í minn hlut." (Skiptimynt miðað við það sem hann hefur sogið út úr bankanum).
Sigmar: Helmingi af öllum þeim greiðslum sem þú hefur fengið sem stjórnandi bankans?"
Bjarni: Já."
Bjarni: Ég er reiður út í sjálfan mig fyrir að hafa trúað of mikið á það góða, (græðgina) þ.e.a.s. að markaðurinn gæti haft eftirlit með sjálfum sér og að markaðsaðilar sæju langtímahagsmunina í því en það var ekki raunin. Ég sá það ekki einusinni sjálfur." (Með kíkinn fyrir blinda auganu. Semsé: Mistök").
Bjarni: Við ofmátum virkni markaða." (Það voru nú bara smá mistök").
Sigmar: Eins og þú ert búinn að lýsa þessu: Þú ert áhættusækinn, þú ert sókndjarfur, þú ferð glannalega og þú lest stöðuna ekki rétt og svo koma einhverjir inn (Jón Ásgeir og Hannes Smára) sem eru hvað - VERRI en þú?! Ég er að reyna að draga upp þessa mynd af því að þú ert búinn að lýsa þínum ákvörðunum sem kolröngum sko, og svo koma einhverjir aðrir sem eru ennþá verri?"
Bjarni: Já það má alveg draga upp þá mynd, því að síðan fór kerfið í enn meiri vöxt og gjaldmiðillinn okkar lenti í miklum hremmingum og við soguðumst inní spíral sem við náðum ekki að vinda ofan af sem þjóð." (Kerfið fór ekki af sjálfu sér í enn meiri vöxt. Vaxtaræktarhetjur útrásarinnar stútfylltu það af sterum).
Sigmar: En þessir menn sem fóru ekki svona varlega Bjarni, þú fórst seinna í samstarf með þeim stuttu síðar í REI-málinu, þeim Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Hannesi Smárasyni."
Bjarni: Það er rétt." (Alveg óviljandi mistök").
Sigmar: Þú virðist þá ekki hafa lært mikið af því að hafa verið varkárari aðilinn þarna nokkrum mánuðum fyrr?"
Bjarni: Nei það má svo sem alveg segja það. Og ég get svo sem ekkert litið á þetta REI-mál annað en sem stórkostleg Mistök, hvort sem er af minni hálfu eða annarra, - af minni hálfu í fyrsta lagi bara að þiggja það að koma inn í þetta mál. Í öðru lagi að vera þátttakandi í því og keyra þetta mál áfram á þeim hraða sem gert var." (Og afhverju var það keyrt áfram á svona miklum hraða? Vegna þess að þeir ætluðu að sölsa undir sig auðlindir þjóðarinnar).
Sigmar: Gerðir þú ekki meira heldur en að koma þarna inn? Varst þú ekki ákveðið hreyfiafl og drifkraftur í að keyra þetta allt í gegn?"
Bjarni: Jú. Ég taldi þetta vera rétta leið. Og það var líka röng ákvörðun að fara í samruna við Geysi Green Energy og draga þar semsagt draga semsagt FL að borðinu sem hluthafa.
Og þá er semsagt ekkert annað við því að gerast eða bregðast en að heldur en að horfa á þá stöðu og gera það sem hérna gerðist þar að segja sig frá málinu og hverfa á braut." (Voðalegt tafs er þetta þegar kemur að Geysi Green og FL Group).
Sigmar: En þú varst náttúrulega lengi að móast, þú vildir halda þessu til streitu, lengi, svo mánuðum skipti?"
Bjarni: Nei. Ég taldi semsagt rétt að gera þetta, en þegar að það var ekki vilji til þess af hálfu Orkveitunnar lengur að þá að sjálfsögðu bauðst ég til að draga mig í hlé..og var beðinn um að vera eitthvað áfram en fór bara frá málinu."
Þann 6. okt. 2007 var Fréttablaðs-viðtal við vinina Bjarna og Hannes Smárason. Bjarni var þá stjórnarformaður REI og Hannes Smárason var forstjóri FL Group og stjórnarformaður Geysis Green Energy. Þeir vinir sögðu þar að sameining fyrirtækjanna hefði verið afar skynsamleg og rosalega spennandi."
Auðvitað er rosalega spennandi" að hirða íslensk orkufyrirtæki. Í kjölfarið ætluðu þeir sér að fara í kröftuga útrás og ná undir sig raforkufyrirtækjum og orkulindum annarra þjóða: Við erum þegar með í pípunum fjárfestingar í fjórum heimsálfum og verulega metnaðarfull markmið til komandi ára..."
Viðhorf þeirra til Íslands lýsir sér vel í þessum orðum: Þetta snýst um að fjárfesta í virkjunum víðsvegar um heim og kemur Íslandi ekki við, nema að því leyti sem snýr að þekkingunni og baklandinu hvað það snertir."
Þeir voru búnir að plata gamla góða Villa borgarstjóra alveg uppúr skónum, en sexmenningarnir í borgarstjórn Sjálfstæðisflokksins stoppuðu þetta glæfraspil (landráð?) af á síðustu stundu og fengu miklar skammir í hattinn, sérstaklega frá Össuri Skarphéðinssyni, iðnaðarráðherra. Össuri fannst nefnilega alveg frábært að draga furðufyrirbærið FL Group inní REI og kallaði það viðskiptalega snilld." Það þarf ekki að taka það fram að hann situr ennþá, að sjálfsögðu.
Bjarni Ármanns trompaðist þegar sexmenningunum tókst að stöðva glæpinn. Þann 1. nóv. 2007 sagði hann í viðtali við visir.is að hann teldi ákvörðun Borgarráðs ranga: "Ég er ekki í pólitík en mér virðist sem það sé verið að kasta verulegum fjármunum á glæ með þessari ákvörðun." Það er rétt að HANN varð af verulegum fjármunum" en hann var ekkert að hugsa um það hvort að þjóðin væri með þessu að kasta verulegum fjármunum á glæ." Í veftímaritinu Deiglunni sakaði hann sexmenningana um að hafa skaðað ímynd íslenskra orkufyrirtækja á alþjóðavettvangi. Í dag kallar hann hinsvegar þetta REI-mál allt stórkostleg mistök."
Stórrán sem mistekst er auðvitað stórkostleg mistök." Hefði ránið hinsvegar tekist væri það rosalega spennandi" og viðskiptaleg snilld."
Aftur að Kastljósi:
Sigmar: En nú ert þú búinn að fara yfir þessa sögu svolítið svona gróflega og það eru mistök og mistök og mistök og mistök á mistök ofan Bjarni, sko...ég meina, hversu góður viðskiptamaður ertu þegar þú ert búinn að rekja þetta allt?"
Bjarni: Það auðvitað svo sem bara sést þegar horft er yfir einhverja heildarmynd sko." (Hryllingsmynd).
Sigmar: Er þetta ekki falleinkunn?"
Bjarni: Ég vil ekki meina að þau 10 ár sem ég er að stjórna FBA og síðan Íslandsbanka FBA og svo Glitni hafi verið tóm katastrófa eða bara röð mistaka. Ég vil meina að þarna hafi verið byggt upp sterkt og gott fyrirtæki."
Sigmar: Sem að hrundi."
Bjarni: Já, sem að hrundi." (Mjög STERK og GÓÐ fyrirtæki hrynja alltaf einsog spilaborgir sé blakað við þeim).
Sigmar: Við endum alltaf þar."
Bjarni: Inní þessum hérna, inní þessari uppbyggingu voru punktar veikleika sem urðu okkur að falli. Það er alveg klárt. Og þessvegna er ég að koma fram og skýra frá þessu og þetta er í mínum huga einlægt uppgjör og og og þetta er ekki..."(Segðu það bara, þetta voru bara alltsaman smá mistök").
Sigmar: Þú ert að gefa sjálfum þér falleinkunn samt? Ég ætla bara að fá þig til að meta sjálfan þig. Er þetta ekki falleinkunn?"
Bjarni: Ja, fyrirtækið er komið í greiðslustöðvun þannig að það getur í sjálfu sér ekki verið neitt annað, þannig að sá ferill sem ég hef hvað þetta varðar er að hafa byggt upp fyrirtækið sem síðan, sem síðan féll og það er auðvitað það sem ég lifi með."
Þjóðin lifir með þessu líka, en munurinn er kannski sá að heimilin hafa ekki milljarða í vasanum, nema í formi skulda.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 16.1.2009 kl. 11:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)