Færsluflokkur: Dægurmál

Helgi í Góu reynir að sansa Jóu

Helgi í Góu.jpgVið höfum heila(skerta) 63 froska á Alþingi en samt þarf undarleg oft einhvern góðan mann af götunni til að benda á augljóst ranglæti og þoka hlutunum í réttlætisátt. Helgi í Góu er einn af þessum ötulu hugsjónamönnum sem þreytist aldrei á því að reyna að opna augu ráðamanna fyrir óráðsíu og óréttlæti lífeyrissjóðanna. Hann vill að lífeyrissjóðirnir hætti að vinna einsog fjárhættuspilafíklar og hætti að vera bruðlstofnanir fyrir stjórnendurna og fari að sinna öldruðum og taka þátt í uppbyggingu samfélagsins. Þetta eru jú sjóðir í eigu landsmanna, sjóðir sem menn eru tilneyddir að borga í alla sína þrælsævi og þessvegna ber vitaskuld að nota þá í þágu fólksins, eigendanna.

 

Ekkert sex hér takkfyrir.gifNú hafa félagshyggjuöflin verið við stjórnvölin í nokkurn tíma og þau hafa að sjálfsögðu ekki haft tíma í þetta réttlætismál þrátt fyrir að þetta eigi nú samt að heyra undir þeirra uppáhalds málaflokk. Þau hafa verið upptekin við að sinna mikilvægari málum einsog t.d. að framleiða lög um súlustaði og vændi og nekt og klám og allt sem viðkemur kynlífi með einhverjum hætti. Að mörgu þarf að hyggja í þeim mikilvæga málaflokki meðan landið sekkur. Netlögregla á næsta leiti og svo þarf að minnka extra large smokka og banna sölu á Viagra á föstudögum og banna mínípils því þau gætu fjölgað nauðgunum o.s.fr.

 

islenskt_elliheimili.jpgJóhanna Sig. lofaði Helga í Góu fundi með lífeyrissjóðunum innan nokkurra mánaða þegar búið væri að afgreiða nokkur tonn af klámfrumvörpum. Hann varð að gera sér það að góu. Hvað ætli Helgi hafi heyrt svona loforð oft áður? Á meðan verða aldraðir að halda áfram að hírast samanpakkaðir í sardínudollum elliheimilanna, og á meðan getur Helgi víst ekkert annað gert en beðið og klórað sér í pungnum, á meðan það er enn leyfilegt.


mbl.is Hugsjónamaðurinn Helgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

120 ár eru í dag liðin frá fæðingu frelsishetju Íslands, Adolfs Hitlers

Hitler í góðum fíling.gifÍslandsvinurinn og athafnaskáldið Adolf Hitler er 120 ára í dag. Þessa merkisdags er minnst með mismiklum fögnuði og húrrahrópum út um allan heim. Adolf var ákaflega hrifinn af Íslandi en hann var reyndar einnig hrifinn af hefðbundnum þrælabúðum, sem sýnir kannski hvað hann hafði fjölbreytilegan smekk.

 

Hrifning hans á Íslandi gekk svo langt að hann samdi ungur að árum söngleik um þessa útópíu sína, Klakann, og seinna þegar hann var kominn til valda þá sendu þeir vinirnir, hann og Himmler, ýmsa erindreka hingað til lands til að rannsaka þessa þrælmerkilegu sögueyju og hetjurnar sem hér áttu að ríða um héruð með sverð í annarri hönd og fjaðurpenna í hinni. Hetjurnar voru því miður flúnar land eða höfðu allar látist í fornsögunum, en því meira fundu þeir hér af útpískuðum vinnuþrælum, misindismönnum og örlagarónum. Um æðar þeirra rann að sjálfsögðu fullkomlega hreint arískt blóð, reyndar í bland við smá alkóhól. Þetta voru semsé útópískir útpískaðir vinnuþrælar.

 

hverfisgata_fyrir_og_eftir_stri.jpgÞetta var skömmu fyrir stríð þegar götur Reykjavíkur voru eitt drullusvað og menn einangruðu bárujárnshjalla sína með dagblöðum og þurrkuðum hundaskít. Við vorum víðs fjarri nútímanum. Við vorum í raun þriðja heims land einsog við erum að stefna í að verða aftur. (Sjá mynd hér til vinstri af Hverfisgötu fyrir og eftir stríð). Eftir þessar rannsóknir sínar var Adolf fljótur að sjá að þessi eyja var einkum merkileg fyrir einar sakir; fornsögurnar, en að öðru leiti var þetta afar frumstæð þrælaeyja og að því leiti kannski "þrælmerkileg." Seinna ásældist hann þennan klett vegna hernaðarlega mikilvægrar staðsetningar hans en það er önnur saga. Hernaðarsaga.

 

islensk_vinnugledi_833808.jpgÞegar Adolf var hættur að geta haft frið fyrir friði þá fór hann í stríð einsog frægt er orðið. Þetta ágæta stríð hafði það í för með sér að Djöflaeyjan reis úr öskustónni og varð græn einsog þeir sem hana byggðu. Alltíeinu varð næga atvinnu að hafa á öllum sviðum; í fiski, tónlist, verslun og viðskiptum, vegavinnu, sjoppuránum, húsasmíðum og hrákasmíðum og eiginkonurnar létu ekki sitt eftir liggja í þjónustu við dátana, sem var víst alveg draumur að vera með, samkvæmt laginu góða. Menn flykktust úr moldarkofunum og fóru að vinna út um allt og stjórnmálatengdir stórgróðaspekúlantar settu á fót myndarleg svindilbraskkompaní og svo kom Marshall-aðstoðin sem var svo rífleg að það hefði mátt halda að við værum stríðshrjáð land á barmi glötunnar. Við erum það kannski núna en það var nú öðru nær í þann tíð.

 

astandi.jpgMeðan styrjöldin geisaði útí heimi var hér á Íslandi talað um "blessað stríðið" sem gerði okkur rík og frjáls. Meðan aðrar þjóðir voru blóðugar uppfyrir haus þá smjöttuðum við á kavíar og tartalettum og þömbuðum kampavín inná Hótel Borg og reyktum sígarettur úr munnstykkjum einsog lávarðar og veltum okkur uppúr nýfengnum stríðsgróða einsog útrásarvíkingar, nema hvað við græddum á innrásum annarra þjóða. Ég kem aðeins inná þetta í ljóði sem ég orti fyrir rúmlega 10 árum sem heitir "Svefn er besta vörnin" og birtist í ljóðabók minni "Með ósk um bjarta framtíð." Það er svona:

 

 

 

Í seinna stríði var ófriðlegt um að litast,

þá áttust við þriðja flokks ræflar og göfugir aríar,

en uppi á Fróni var friðurinn aldrei meiri,

menn fóru í bingó, dæstu og smjöttuð´á kavíar.

 

Ró og spekt er enn yfir Íslendingum,

alltaf hefur ríkt hér friður nokkur.

Við erum ekki hluti af þessum heimi,

- heimurinn er bara hluti af okkur.

 

Einsog skáldið hrópaði hérna forðum:

"Hungursneið er fjarri Íslands ströndum

Horfðu á björtu hliðarnar minn kæri;

heimsstyrjaldir verða í öðrum löndum."

 

Þótt jörðin farist þá ferst ekki Skerið góða,

um framtíð alla mun þrífast hér mörlandaflokkur.

Við tilheyrum ekki þessum hörmungarheimi,

svo hann má fara til skrattans fyrir okkur.

 

Það er draumur að vera með dáta.jpgVið vorum einangruð landfræðilega og í hugsun og stríðið snerti okkur ekki nema hvað við fundum að pyngjan þyngdist og það var það eina sem skipti okkur máli einsog fyrri daginn. Ömmur okkar blómstruðu sem aldrei fyrr á þessum skemmtilegu stríðs - og uppgangstímum og höfðu svo mikið að gera á bakinu og maganum að þær höfðu varla tíma til að fara í buxurnar svo árum skipti og peningarnir streymdu inn í réttu hlutfalli við dátasæðið. Stríðið var semsé ekki bara sprauta inní íslenskt efnahagslíf heldur einnig íslenskt móðurlíf. Kannski eitt og hið sama á þessum tíma.

 

 

hitler_theresa.jpgOg hverjum var þetta stríð nú að þakka sem reif Ísland upp á rassgatinu og kom því inní nútímann? Jú, engum öðrum en afmælisbarni dagsins, Adolfi kallinum Hitler. Hvað sem segja má um önnur verk karlsins þá verður ekki undan þeirri staðreynd vikist að hann er hin eina sanna frelsishetja Íslendinga, hvort sem það var nú meining hans eða ekki. Hefði Dolli ekki komið til sögunnar þá værum við Íslendingar ennþá hímandi í moldarkofum og samantjösluðum bárujárnsdrulluhjöllum plokkandi lýsnar úr krullunum hvort á öðru og étandi rolluandlit og hrútspunga einsog frumstæðir villimenn.

 

hitler_a_austurvelli.jpgHvort sem okkur finnst það súrt í broti eða ekki þá hefur enginn einn maður gert eins mikið fyrir Ísland og Adolf Hitler. Hann er frelsishetja og þjóðhetja Íslendinga þó Íslendingar viti ekki af því. Við Íslendingar eigum að setja hann á þann stall sem honum ber og sá stallur er að sjálfsögðu á Austurvelli þar sem Jón Sigurðsson stendur nú.


500 manns munu farast og 10.000 slasast í þessari viku í Tælandi

hversdagslíf i Thailandi.jpgÞað fór einsog ég vissi að óeirðirnar hér í Bangkok myndu ekki vara lengi. Það er búið að settla málin. Gamanið er búið, í bili. Leiðindin tekin við. Maður verður víst bara að bíta í það súra epli og fara að horfa á hversdagslegt götulíf á nýjan leik; slöngutemjara, kynskiptinga, fíla á mótórhjólum og vændiskonur. En það kemur dagur eftir þennan dag. Varanlegur friður er ekki til, aðeins vopnahlé, svo það er ennþá von.

 

Þessa vikuna stendur yfir áramótahátíð Tæverja. Mesta hátíð ársins. Kallast Songkran. Fólk skemmtir sér svo vel að það farast að jafnaði um 500 manns á þessum örfáum dögum sem hátíðin stendur yfir og 10.000 slasast alvarlega. Hvernig skyldi nú standa á þessu? Eru menn skotnir með basúkum og skriðdrekabyssum? Nebb. Eru menn trampaðir í svaðið af fílahjörð? Nebb. Er mönnum kastað fyrir ísbirni og rostunga? Nebb. Ekki mikið af þeim hér á þessum slóðum. Er mönnum troðið ofaní trjátætara? Nebb. Eru mönnum sagðar sögur af íslensku stjórnmálalífi og viðskiptasiðferði? Nebb. Pyntingar eru bannaðar í Tælandi. Hvernig skyldi þá standa á þessu mikla mannfalli? Jú, menn farast og slasast vegna þess að það er skvett á þá vatni. Og nú spyrja sumir einsog álfar út úr hól: "Skvett á þá vatni?" Já, ég sagði SKVETT Á ÞÁ VATNI! Kunniði ekki að lesa helvítis asnarnir ykkar?!

 

Þetta gerist svona og ég skal byrja á upphafinu: Fyrir mörgum mörgum árum þegar risaeðlur réðu ríkjum á jörðinni....

buddhabharami_festival_songkran.jpg

 Ég skal byrja aftur og fara aðeins framar í tímann: Fyrir mörgum mörgum árum höfðu Tæverjar þann sið á þessari áramótahátíð sinni að dýfa puttunum oní vatnsskál og skvetta pent með fingurgómunum á axlir vina og vandamanna, aðallega eldra fólks. Ýmsar serímoníur voru viðhafðar en þetta  var semsé táknrænn gjörningur hreinsunnar og átti að færa blessun og lukku. Munkar notuðu hinsvegar kalkduft í þessum sama tilgangi.

 

 

 

kani.jpg

Allt gekk þetta stórslysalaus fyrir sig þangað til bleiknefjar, einkum kexruglaðir Kanar, fóru að venja komur sínar til Tælands uppúr 1970 í lok Víetnamstríðsins. (Fyrir aðeins 40 árum var Pattaya fámennt fiskiþorp. Kanar breyttu því í stærstu Sódómu í heimi. Guði sé lof. Núna hafa þeir hinsvegar drekkhlaðið Pattaya af FBI-mönnum til að passa uppá að vændið fari nú örugglega siðsamlega fram. Þar sem tveir Kanar koma saman, þar er tvískinnungur).

 

songkran_skemmtun.jpgHvað um það. Eftir að bleiknefjar fóru að flykkjast hingað þá fór nú heldur betur að færast "fjör" í leikinn, eða öllu heldur fjörtjón. Þeir mættu á svæðið með hausinn fullan af rugli, belginn fullan af viskýi og lúkurnar fullar af kröftugum vatnsbyssum og vígalegum vatnsrörum og tóku að sprauta af fullum krafti á allt og alla, sérstaklega hjálmlaust fólk á reiðhjólum og mótórhjólum sem flaug uppí loftið í fallegum boga á vit feðra sinna. Þetta gerðu þeir náttúrulega til að færa þessu fólki lukku og hamingju.

 

vanthroska_vesturlandabui.gifÍ dag eru menn (einkum á Pattaya) vopnaðir kröftugum vatnspumpubyssum, mannýgum brunaslöngum með háþrýstidælum eða 20 sentimetra breiðum skólprörum sem þeir sprauta úr af gríðarlegum krafti á akandi og gangandi og blessa þá þannig svo kröftuglega að menn hendast eftir götunum í gegnum rúður og veggi, alveg marg blessaðir í bak og fyrir.

 

Sumar hetjurnar eru svo kærleiksríkar að þær skvetta klakavatni úr stórum fötum beint framan í mótórhjólafólk á fullri ferð þannig að það kastast í götuna og þeytist tugi metra þangað til það hafnar jafnvel undir 10 hjóla vörutrukki sem straujar það vel og vandlega ofaní malbikið, með guðs blessun að sjálfsögðu.

 

blautt fatlafól.jpgFatlafól í hjólastólum eru ekki síður lukkuleg því þau fá yfirleitt gusuna beint í bakið með ósk um velfarnað í framtíðinni og eru einfaldlega sprautuð fram af næstu bryggju þar sem þau eru tætt í sundur af mannætuhákörlum og piraniafiskum, hamingjusöm sem aldrei fyrr.

 

Allt svonalagað er flokkað sem "slys." Fólk sem er drittað niður af mótórhjólum í gegnum heilu húsveggina það deyr af "slysförum" vegna þess að meiningin var að færa því lukku og hamingju.

 

songkran.jpgMisþroska Tælendingar tóku upp þessa skemmtilegu manndrápsblessun vesturlandabúa fyrir nokkrum árum og hefur hún notið gríðarlegra vinsælda allra þroskaheftra út um allt land allar blóðugar götur síðan. Flestir eru blessaðir til bana í þorpum landsins þar sem þeir eru mótórhjólandi á fullri fart vel í glasi og mega ekki við því að vera færð lukka með öflugri vatnsgusu beint í smettið.

 

vatnshausar.jpgEn ég endurtek: Þennan forna fallega tælenska sið; að dýfa puttunum oní vatnsbolla og skvetta pent með fingurgómunum á axlir sinna nánustu með ósk um blessun, hreinsun og lukku þeim til handa, þennan sið "þróuðu" Kanar og aðrir vanþroska vatnshausar og hann hreinsar nú árlega 500 manns af yfirborði jarðar og blessar um 10.000 manns lukkulega inná spítala. Þetta er einsog ef það dræpust árlega 2000 Kanar og 40.000 slösuðust alvarlega um hver áramót í Bandaríkjunum út af einhverjum sið sem utanaðkomandi apakettir hefðu "þróað."

 

gaman gaman að drepast.jpgHeimspressan minnist aldrei á þetta svakalega manntjón í Songkran vikunni, kannski vegna þess að það er árlegur viðburður, en kannski ættu hún einmitt að minnast á það vegna þess að þetta er árlegur viðburður. (Öllu góðu fjöri fylgir tjón og þessvegna heitir þetta nú fjörtjón).

Það er samt svolítið skrítið að hugsa til þess að heimspressan skuli standa á öndinni yfir smá mótmælum í Bangkok þar sem nokkrar hræður duttu dauðar niður fyrir kurteisisakir, en skuli síðan yppta öxlum þegar 500 manns eru spreyaðir í gröfina og 10.000 á spítala á áramótafagnaði Tælendinga.


mbl.is Mótmælum hætt í Bangkok
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

One fight in Bangkok

smá glóð.jpgÉg var svo "heppinn" að vera staddur í Bangkok í dag þegar óeirðirnar brutust út. Það er reyndar allt búið að vera í hers höndum í orðsins fyllstu merkingu svo dögum skiptir, en í dag sauð pínulítið uppúr. Ég sat inná tuskulegum veitingastað og var að panta mér kokteil, bangkokteil, þegar molotovkokteill kom allt í einu fljúgandi inn um gluggann. Ekki alveg það sem ég var að biðja um. Á samri stundu breyttist þessi annars lítt vinsæli veitingastaður í einn þann heitasta í bænum. Ég brann í skinninu að komast út á götu en þegar þangað kom tók ekki betra við: Vélbyssuskothríð og sprengingar. Ég hugsaði með mér: "Þetta er nú ekki alveg nógu hressandi. Hvað hef ég nú gert af mér?" Ég gat huggað mig við það að ástandið væri nú samt skárra en uppá Klaka."

 

protesters-at-asean-summi-pattya.jpgHermenn voru um allt með hríðskotabyssur og basúkur, japlandi á basúkutyggjói. Ég sá hvers kyns var þegar þeir fóru að skjóta á rauðskyrtur, en það eru menn sem vilja ólmir og uppvægir fá Thaksin fyrrv. forsætisráðherra aftur að kjötkötlunum. Sá gæi var fyrir nokkrum mánuðum uppvís að lítilsháttar spillingu og var vinsamlegast beðinn um að taka hatt sinn og staf og skella sér í útlegð. Þetta gerist stundum í skrítnum löndum þar sem litið er á spillingu sem eitthvað sem þurfi að gera veður út af.

púðurskotin_virka.jpgNýi forsætisráðherrann, Abhisit, eða Apashit einsog ég kalla hann stundum, var ekki kosinn heldur settur í embættið og það fannst mörgum Tælendingum ekkert gasalega sniðugt og vilja nú fá sinn gamla góða Thaksin aftur með kosningu. Tælendingar eru einar mestu friðsemdarverur þessa heims en þegar þeir vilja eitthvað sem fullnægir réttlætiskennd þeirra, í þessu tilviki kosningar, þá nenna þeir ekki að fara að tromma á potta og pönnur einsog hottintottar og halanegrar eða standa hnípnir einsog barðir rakkar á einhverjum austurvelli í grafarþögulum mótmælum. Nei, þá taka þeir til við að að búa til rótsterka molotovkokteila og almennilegan hasar.

 

heitt_i_kolunum.jpgÉg sá nokkrar rútur sprengdar í loft upp og nokkra bíla og byggingar standa í frekar björtu báli. Herinn segist nota "blank shots" eða púðurskot en það eru þá einu púðurskotinn sem gera gat á hausinn á fólki. Þetta eru svo kröftug púðurskot að fólk hendist fram af svölunum sem verður fyrir þeim. Annars er þetta ansi skemmtilegt og upplífgandi og ekkert ólíkt því sem gerist í miðbænum á Los Klakos um helgar. Kannski ekki beint upplífgandi fyrir þá sem detta dauðir niður en fyrir áhorfendur er þetta náttúrulega prýðis skemmtun. 

 

kokteilframleiðsla_829629.jpgKóngurinn er líklegast ekki við hestaheilsu því hann er búinn að vera í öndunarvél í nokkra mánuði. Menn fara varla í öndunarvél nema að þeir séu frekar slappir. Nú þyrfti að taka kóngsa úr öndunarvélinni og stilla honum upp hangandi í girni úti á hallarsvölunum og láta einhvern búktala fyrir hann og segja fólki að hætta þessum hávaða. Kóngsi er gæinn sem getur stoppað þessi læti því það er litið á hann sem guð, ekki ósvipað og litið var á útrásarvíkingana á gróðæristímanum. Hann þarf ekki annað en að lyfta upp litla putta og segja:" Skamm" og þá fellur allt í ljúfa löð og allir fallast í faðma og segja "solly," en það þýðir "sorry" á nútímaíslensku. (Tæjarar geta nefnilega ekki sagt R).

Ég á ekki von á að þessi skemmtun standi lengi yfir því tælenskir karlar eru frekar latir og vilja helst bara dytta að mótórhjólunum sínum og fara í kynskiptiaðgerð og hafa það næs. Hef ekki nokkrar áhyggjur af þessu.


mbl.is Óeirðir í Taílandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú ríður á að banna allt "klám"

raddir_vg.jpg"Raddir fólksins" eru þagnaðar því nú hefur takmarkinu verið náð og vandamálin leyst: Vinstri græningjar eru komnir til valda og Dabbi farinn úr Seðlabankanum. Allt semsé komið í glimrandi gott stand. Verður ekki betra. Ég sagði í grein fyrir einhverjum mánuðum að það fyrsta sem Vinstri græningjar myndu gera þegar þeir kæmust til valda væri að einbeita sér að því sem mestu máli skipti til bjargar landinu og það væri náttúrulega að loka þessum örfáu stórhættulegu súlustöðum og banna allt "klám." Sem betur fer er það orðið að veruleika.

 

mouse.jpgÞað er alveg hryllilegt til þess að hugsa að fullorðnir sjálfráða karlar skulu leyfa sér að horfa á hálfberar fullorðnar sjálfráða stelpur og skulu meiraðsegja geta haft gaman af því. Þvílíkir djöfulsins drullusokkar. Þvílíkt óeðli. Þvílíkt helvítis fokking fokk! Auðvitað á að banna þessa viðbjóðslegu staði. Með því að banna þessa staði þá hverfur allt vændi einsog dögg fyrir sólu einn tveir og bingó og Klakinn rís úr sæ og allir geta tekið gleði sína á ný. Þarna þrífst alveg hreint gríðarlegt mansal og þrælahald í stórum stíl. Stelpurnar eru hlekkjaðar á höndum og fótum og barðar áfram með hnútasvipum og gaddakylfum og sendar í galeiðum milli landa. Þær koma frá þriðja heims löndum einsog Eystrasaltslöndunum og hugsanagangur.jpgBretlandi sem eru alræmd skítabæli einsog allir vita. Á súlustað einsog Goldfinger geta þær haft hátt í milljón á mánuði sem er náttúrulega alveg skelfileg tilhugsun. Mér persónulega myndi líða miklu betur vitandi af þeim á kassa í Bónus eða skeinandi gamalmennum á Grund fyrir 90 kall á mánuði. Svoleiðis draumadjobb myndu þær þiggja fegins hendi ef þær væru ekki í ánauð, marghlekkjaðar á höndum og fótum. Það á að stinga þrælahaldara og yfirdjöfli einsog Geira á Goldfinger beint í svartholið uppá vatn og bónusbrauð og pína hann til að lesa Kommúnistaávarpið og hlusta á allar þingræður Vinstri græningja kvölds og morgna, dag og nótt, árið um kring, ævina á enda

 

Ég þarf ekki að taka það fram að það ber að sjálfsögðu að banna klámmyndir einsog þær sem ég birti hér að ofan. Efsta myndin er náttúrulega sínu verst. Þeir sem góna of mikið á hana gætu leiðst út í drullupumpubisness.

 

 

no_porno.jpgVinstri grænir, sem af einhverjum mjög góðum og gildum ástæðum eru með kynlíf á heilanum, vilja einnig láta leiða í lög að sá sem kaupir þjónustu af hóru fari beinustu leið í grjótið, en ekki hóran. Að bjóða vændi á semsagt að vera löglegt en að þiggja þjónustuna og borga fyrir hana einsog sannur séntilmaður er vitaskuld glæpur. Allir hljóta að sjá að þetta er náttúrulega alveg ofboðslega skynsamlegt einsog allt sem frá Svíum og Vinstri grænum kemur. Skrítið að einhverjum hugsuði einsog Valda koppasala skyldi ekki hafa dottið þetta í hug. "Raddir fólksins" hafa greinilega hvorki náð hans eyrum né mínum nógu vel. Glæsileg, kynþokkafull kona sem vill nota guðsgjafir sínar í ábataskyni er ALLTAF í ánauð einhvers ógeðslegs hórmangara. Segir sig sjálft. Það á að banna allt atvinnufrelsi. Það er frá djöflinum komið einsog allt annað frelsi.

 

Þú átt semsagt þinn líkama og mátt bjóða hann hverjum sem er til afnota en þú mátt hinsvegar allsekki þiggja eina krónu fyrir gamanið. Sá sem er kurteis og gefur þér 1000 kall í þakklætisskyni fer beint í dýflissu þar sem hann verður hlekkjaður á höndum og fótum einsog súludansmey. Örugglega auðvelt að rannsaka svona mál. Vinstri græningjar hljóta þá um leið að vilja leiða það í lög að dópsalinn sé saklaus sem lamb en kaupandinn sekur. Það gefur auga leið. Það verður að vera samræmi í hlutunum. Eitt skal yfir alla ganga

Boð og bönn hafa alltaf reynst heilladrýgst lausn hvers vandamáls, hvort sem um er að ræða vændi, súlustaði, áfengi eða annað. Með því að banna hlutina þá hverfa vandamálin. Maður skrifar undir lög og vandamálið er úr sögunni. Gott dæmi um það er áfengisbannið í Bandaríkjunum. Það hættu bókstaflega allir að drekka med det samme. Mafían brosti að vísu eitthvað en þetta svínvirkaði. Þorstinn hvarf einsog sparifé Breta í Icesave. Framsóknarflokkurinn gerði gott betur og setti í stefnuskrá sína fyrir um 10 árum síðan: "Vímuefnalaust Ísland árið 2000." Síðan þá hefur ekki nokkur kjaftur sést reykja svo mikið sem njóla og hvað þá gras á götum bæjarins. Sama gildir um vændið. Það er nefnilega kolrangt sem einhver orti hér um árið: "Þótt náttúran sé lamin með lurk / þá leitar hún út um síðir."

 

 

no_porno_816029.jpgMér sýnist að eina leiðin til að koma útrásarkrimmunum á bak við lás og slá sé að reyna að fá þá til að tíma að borga einhverri kellingu fyrir tottið. Annars borgar sig nú ekki að vera að pæla í smotteríi einsog hruni landsins. Það sem ríður á þarf að gera, nú þegar landið er að fara til helvítis, er að banna alla nekt og allt helvítis klám. Það er forgangsatriði og sem betur fer gerir ríkisstjórnin sér grein fyrir því og er að vinna í því baki brotnu einsog hóra á bakinu. Engir tveir einstaklingar skulu fá að fara í sturtu saman, hvorki í sundlaugunum né heima hjá sér. Sjáist berbrjósta kellingardrusla liggja í sólbaði skal hún umsvifalaust skotin á staðnum, beint á milli augnanna, nú eða brjóstanna, og sömuleiðis þeir perrar sem eru að góna á hana. Sérstaklega þeir. Beint á milli brjóstanna. Setjum heimsmet í forsjárhyggju og leiðindum rétt einsog glæpamennsku og spillingu.


Þann dag er Klakinn dó

 

Flestir sem komnir eru til vits og ára, eða skulum við segja ára, hafa heyrt lagið The night Chicago died með hljómsveitinni Paper Lace. Það fjallaði um þann skemmtilega tíma þegar öðlingurinn Al Capone réði ríkjum í Chicago á bannárunum. Við erum að  upplifa ekki ósvipaða gósentíma á Islandi í dag nema hvað fólkið er ekki plaffað niður með vélbyssum heldur með fláttskap og vélum.

Eg tók mig til núna um miðjan janúarber og gerði nýjan texta við þetta ágæta lag og tók það upp. Lagið heitir Þann dag er Klakinn dó. Eg og Richard Scobie syngjum. (Síðast sungum við félagarnir saman lag mitt Allsstaðar er fólk fyrir sléttum 20 árum síðan). Þetta lag, sem kemur út á sólóplötu minni í haust, má finna í tónlistarspilaranum hér til vinstri á síðunni.

 

 

island_806702.pngÞann dag er Klakinn dó


Dabbi hann var boss

hér á ísköldum klaka

í þá gömlu vondu daga.

Það er mikil sorgarsaga.

 

Það var kolsvartur september,

það var sárt fyrir frónska menn

þegar ískaldur Klakinn dó.

Það er talað um það enn.

 

Þá voru bjórúlfar í móð

við að ræna þessa þjóð

og þeir komu´upp bankaher

til að kyrkja þetta sker.

 

Ég heyrð´er mamma hló,

hún hló og grét þann dag er Klakinn dó.

Boring þessi djöfuls dagur var.

Borinn fyrir borð hvers hagur var.

Það er satt.

 

Ég heyrð´er mamma hló,

hún hló og grét þann dag er Klakinn dó.

Sérhver maður gekk af göflunum

vildi stúta fjármagnsöflunum.

Það er satt.

 

mechanical-paper-shredder_806738.jpgOg þeir fóru að tæta gögn,

koma ránsfengnum á þurrt.

Þegar lögreglan loksins kom

þá var allt á bak og burt.

 

Hér voru bankaflón í móð

við að ræna þessa þjóð,

já þeir sló´ana í rot

og þeir settu hana í þrot.

 

Ég heyrð´er mamma hló,

hún hló og grét þann dag er Klakinn dó.

Þvílík hörmung þessi dagur var.

Borinn fyrir borð hvers hagur var.

Það er satt.

 

broke.jpgÉg heyrð´er mamma hló,

hún hló og grét þann dag er Klakinn dó.

Sérhver maður reyndist ráðþrota,

rúinn inn að skinni, gjaldþrota.

Þjóðin sprakk.

 

Og það sagði enginn orð

er þeir frömdu þjóðarmorð.

 

Allir misstu húsin sín,

fóru að lifa einsog svín,

allir misstu sitt í hýt,

allir fóru að éta skít.

 

kreppa_806742.jpgÞann dag er Klakinn dó.

Þann dag er Klakinn dó.

Bróðir þvílík eymd og þvílíkt basl,

Bróðir þvílíkt mess og þvílíkt drasl.

Það er satt.

 

Þann dag er Klakinn dó.

Þann dag er Klakinn dó.

Margir flúðu land, þeir æddu út.

Þjóðinni já henni blæddi út.

Það er satt.

 

Þann dag er Klakinn dó.

Þann dag er Klakinn dó.

Allt er týnt og gefið tröllunum.

Ráðamenn þeir kom´af fjöllunum.

Það er satt.

 

Þann dag er Klakinn dó.

Þann dag er Klakinn dó.

Þjóðin þurfti´að hlust´á rugl og bull.

Ráðamenn þeir lugu okkur full.

Það er satt.

 

 

Stormsker >  Söngur, bakraddir og öll hljóðfæri.

Scobie > Söngur og bakraddir.

Snorri Snorrason idolstjarna > Upptakari.

Snorri og Stormsker > Mixarar.

 

 

 


Æ æ, þarna skar eg aðeins of djúpt. Hausinn af! Gengur bara betur næst

Svona er dæmigerð þingmannsræða um þessar mundir:

 

islenskur_sofandi_thingmadur.jpg"Hæstvirtur forseti. Ég er aumingi og hálfviti og vinn við það að hafa vit fyrir þessari þjóð. Mér þykir ákaflega leitt ad hafa steinsofið á verðinum meðan bankahrunið átti sér stað. Sömuleiðis þykir mér miður að vera hálfviti. Ég geri mér ljóst að ég er ekki starfi mínu vaxinn en hver er það svosem í okkar frændaþjóffélagi þar sem klíka skiptir meira máli en geta, menntun og hæfileikar? Ég hefði mátt vera gagnrýninn í hugsun, en til þess að vera gagnrýninn i hugsun þá þarf maður að geta hugsað Eitthvað og það er ekki beint mín sterkasta hlið frekar en annarra þingmanna einsog frægt er orðið um gjörvalla heimsbyggðina. Þjóðin sjálf á við sama vanda að glíma og þessvegna kýs hún okkur aulana á þing. Aftur og aftur. Við alþingismenn erum þverskurður og spegilmynd þjóðarinnar. Við erum semsagt fífl. Við erum asnar og amatörar en við erum að reyna að gera okkar besta þó það komi náttúrulega ekkert útúr því nema rugl.

 

islenskur_thingmadur_i_vinnunni.jpgBankahrunið kom mér og öðrum þingmönnum alveg gjörsamlega í opna skjöldu þrátt fyrir allar kolsvörtu skýrslurnar og spárnar sem við vorum bókstaflega að drukkna í. Við vorum sjálfumglöð og værukær og gjörsamlega útá túni og veltum okkur uppúr bittlingunum og ferðadagpeningunum og spillingunni einsog svín og reyktum of mikið af sterku stöffi, og ég ætla að vona að þessir yndislegu tímar séu ekki liðnir. En þess ber þó að geta að fólkið í mínum flokki reykti ekki nánda nærri eins mikið og hyskið í hinum flokkunum og við tókum lítið sem ekkert oní okkur. Svo skal böl bæta að benda á eitthvað annað. Við öxlum ábyrgð með því að sitja áfram sem fastast.

 

Ég á minn þátt í þessu andavaraleysi sem við höfum gerst sek um undanfarna klukkutíma og jafnvel undanfarna áratugi. Það er bara eitt orð sem getur strikað út allt mitt rugl og það er: Sorry.  

islenskur_stjornmalamadur_med_augun_opin_fyrir_adalatridinu.jpgÉg hefði mátt vera vakandi og ég hefði mátt sleppa því að eyða tíma mínum og annarra þingmanna í tittlingaskít og bullshit einsog hvort öryrkjar og gamalmenni ættu rétt á að lifa af í þessu landi og hvort það væri réttlætanlegt að fólk gæti lifað af laununum einum saman o.s.fr. o.s.fr. Við hefðum mátt hugsa um það sem skipti máli og vera ekki með hausinn á bólakafi uppí rassgatinu á okkur. Við hefðum t.d. átt að taka nokkur ár í að ræða það alveg oní kjölinn hvort kornabörn ættu að klæðast bleikum fötum eða bláum á fæðingardeildum og hvort ekki mætti finna smekklegt kvenkyns orð yfir ráðherra o.s.fr. En gert er gert. Við erum nú einusinni Íslendingar og elskum aukaatriði og þrætur um nonsens.

 

7762_you-can-t-fix-stupid-posters.jpgMér þykir þykir þetta miður fyrir Sjálfan mig, ekki aðra, og ég hef beðist afsökunar á þessum fávitahætti mínum. Það getur enginn gert að því þótt hann sé hálfviti en það var fólkið í landinu sem kaus mig til að gegna þessu ábyrgðarlausa embætti. Sökin er þessvegna ekki bara mín heldur líka fólksins sem kaus mig, aumingjann. Það eru bara kálfar sem kjósa naut á þing.

 

En hvað um það. Ég segi einsog Saxi læknir þegar hann hafði óvart höggvið sjúkling sinn i herðar niður: "Afhverju horfa allir svona á mig? Manni getur nú mistekist."

 

idiots_at_work_805426.jpgVið þjóðina vil ég segja þetta: Ekki gleyma að kjósa mig og minn flokk aftur i næstu kosningum. Aftur og aftur og aftur og aftur. Það er engin hætta á að við getum klúðrað hlutunum meira en við höfum þegar gert. Við áttum okkar þátt í því að sökkva þjóðarskútunni til botns en nú getur leiðin bara legið uppá við. Við erum rétta fólkið í það björgunarverkefni. Hryðjuverkamaður sem sprengir byggingu í loft upp er akkúrat rétti maðurinn til að endurbyggja hana. Treystið okkur. Við kunnum þetta þó við séum víðáttuvitlausir hlandaular.

 

 

islenskur_framtidarpolitikus.jpgVið eigum ekki alltaf að vera að horfa í baksýnisspegilinn. Við eigum að horfa á allar fögru brunarústirnar sem eru framundan. Það eru mjög spennandi tímar framundan fyrir okkur þingmenn. Við eigum að kjósa flokka, ekki fólk, vegna þess að í skjóli flokkanna hljóta hálfvitar eins og ég brautargengi. Hugsið ykkur bara; ég væri að raða kerrum í Bónus ef ég hefði ekki gengið í minn flokk og sleikt rassgöt og sagt já og amen við öllu sem formaðurinn bullaði. Ég er nefnilega ekki snillingur heldur spillingur.

 

ekki_vanmeta_serislenska_heimsku_805430.jpgJæja. Við játum mistök okkar og öxlum ábyrgð með því að biðjast afsökunar. Sorry og málið dautt. Kæru kjósendur, ég treysti á yfirgripsmikla heimsku ykkar og ósjálfstæði. Hún hefur aldrei brugðist. Sjáumst í kjötklefanum."

 

 

islenskir_kjosendur_a_leid_i_slaturhusid.jpg


mbl.is Sekt og sakleysi á þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mjög gott mál

ny_stefna.jpgHef lítid getað fylgst með því sem er að gerast á Los Klakos undanfarnar vikur. Veit þó að tími Jóhönnu Sigurðardóttur er nú loksins kominn, sem er mjög gott mál, og svo er víst tími Steingríms Joð, Kolbrúnar Halldórs, Marteins Mosdals og Georgs Bjarnfreðarsonar kominn líka og það er líka mjög gott mál. Mjög gott vandamál. Við þurfum ekki að örvænta þegar við höfum svona einvala lið við stjórnvölinn. Við höfum ekki lengur hrossalækni sem fjármalaráðherra heldur jarðfræding og tá hljóta málin nú að fara að blessast. Fagmennskan í fyrirrúmi.

 

dabbi_eltur.jpgSvo skilst mér að Dabbi sé kominn á 400 hestafla Corvettu og sé á stöðugum æðisgengnum flótta um götur borgarinnar undan snarbrjáluðum blaðasnápum og þungvopnuðum almenningi og geti hvergi um frjálsar krullur strokið og að hann sé búinn að flytja skrifstofu sína í Seðlabankanum í rammgirta gullhvelfinguna. Til standi að hann láti múra sig inní bankanum. Það er líka mjög gott mál. Hann er skyldurækinn maður hann Dabbos.

 

Svo var mér sagt að Imba Solla væri með eitthvað í höfðinu. Æxli eða eitthvað svoleiðis dótarí. Því trúi ég nú ekki. Það getur enginn logið því að mér að hún sé með nokkurn skapaðan hlut í hausnum. Ég trúi nú ekki hverju sem er. Það er akkúrat Ekkert í hausnum á henni, enda er hún formaður Samfylkingarinnar.

 

make_love_not_war.jpgEn það er semsé allt komið í flott stand á Los Klakos og það er bara verulega gott mál. Allir farnir að taka þátt í kærleiksgöngum og kossaflensi og faðmlögum og ríðingum. Skilst að það verði eitthvað smokklaust hópsex milli almennings og stjórnmálamanna við tjörnina í dag með lúðrablæstri og söng. Það myndi ég segja ad væri mjög gott mál. Kynlegt mál.


mbl.is Kærleiksganga á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsóknarmartröðin heldur áfram

absolut_idiot.jpgEkki byrjar siðbótin í Framsókn vel. Fyrst er Höskuldur lýstur formaður og svo Sigmundur nokkrum mínútum síðar. Hver verður það í kvöld? Guðni? Valdi koppasali? Ragnar Reykás? Hver sér um atkvæðatalninguna fyrir þessa dúdda? Inspector Clouseau? Hvernig er hægt að ruglast á nöfnum? Settu þeir Gísla Helgason flautuleikara í að yfirfara þetta? Hvað eru þessir svefngenglar að drekka sem við höfum ekki smakkað? Absolut Idiot?

Það er ekki að ástæðulausu að ég set þessa færslu undir "heilbrigðismál."

 

Ég veit ekki hvort ég eigi að samgleðjast Sigmundi eða samhryggjast. Jú reyndar, ég veit það. Hann er í skelfilegum málum. Þarna fór fín perla í svínskjaft. Ég sem hélt að það yrði eitthvað úr honum. Ég myndi eflaust kjósa Sigmund í persónulegri kosningu, en flokkinn og allt það fálkager sem honum fylgir mun ég að sjálfsögðu aldrei kjósa.

 

dunce_774056.gifÍ gær heiðraði þessi gjörspillti flokkur Guðna Ágústsson. Fyrir hvað? Að standa sem lambbúnaðarráðherra með bændamafíunni á móti neytendum? Fyrir ævisöguna þar sem var ekki minnst einu orði á gjafakvótakerfið sem flokkurinn kom á? Fyrir að segja af sér formennsku og þingmennsku? Fyrir góða veislustjórn í spillingarbælinu? Fyrir að flýja einsog fætur toguðu úr þættinum mínum? Hver á að skilja þennan flokk?

 

 

Jónína Ben vinkona mín heldur að það sé hægt að ræsta spillinguna úr flokknum. Í gær setti ég inná síðuna hennar þessa athugasemd:

"Að ætla sér að reyna að hreinsa spillinguna úr Framsóknarflokknum er einsog að ryksuga hús sem er gegnétið af veggjatítlum. Það verður að brenna kofann til grunna."

Þessi flokkur á álíka mikið erindi við þjóðina og minkur við hænsnabú.


mbl.is Sigmundur kjörinn formaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geir um Grey frá Gay til Gauðs

Asni.jpgÉg tek undir með Geir Hor: Það er svolítið gremjulegt að "ríkiskerfið" skyldi hafa klúðrað málunum pínulítið. Árið 2009 gæti orðið svona frekar óspennandi þó það séu reyndar "mjög spennandi tímar framundan hjá Sjálfstæðisflokknum," einsog Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir benti á fyrir stuttu í miðri kreppunni.

Einhverjir gætu hugsanlega misst aukavinnuna tímabundið og svo er ekki loku fyrir það skotið að einhverjir óaðsjálir lúðar í Breiðholti lendi í smá vandræðum með að borga af blokkarkompunum sínum og kannski að nokkrir þurfi að fara að borða nautasteikur í staðinn fyrir hreindýrafille. En þetta er ekkert sem þarf að hafa miklar áhyggjur af því við búum við styrka stjórn valinkunnra spesíalista.

 

fyrir_islenska_stjornmalamenn_772929.jpgÞað er rétt sem Geir segir að menn voru algerlega "óviðbúnir þegar fjármálaóviðrið skall á okkur." Aðeins nokkrir tugir innlendra og erlendra sérfræðinga höfðu varað ríkisstjórnina við mánuðum saman en þeir áttu það reyndar allir sameiginlegt að vera ómarktækir fávitar sem þurftu "á endurmenntun að halda," einsog Þorgerður Katrín orðaði það svo skemmtilega rétt fyrir hina svokölluðu "kreppu." Á sama tíma sagði Imba Solla: "Hér er engin kreppa," og hitti þar naglann á höfuðið einsog endranær.

 

Davíð Oddsson sagði við Geir á síðasta ári að það væru 0% líkur á að bankarnir myndu lifa af og í kjölfar þeirra orða voru settir nokkur hundruð milljarðar í að reyna að bjarga Kaupþingi. Einmitt. Geir segir: "Við töldum að Kaupþing myndi lifa þetta af, alveg fram á síðustu stundu." Samt voru 0% líkur á því samkvæmt orðum Davíðs. Niðurstaðan: 100% rugl.

Þó að maður skilji þetta ekki alveg þá hlýtur að vera eitthvað mikið vit í þessu öllu hjá okkar framsýnu ráðamönnum. Varla höfum við verið að kjósa yfir okkur einhverja asna! Svo er líka svo þægilegt að vita af því að ekki taka síðri proffar við eftir kosningar, semsé Vinstri græningjar. Þá fyrst byrjar nú gleðin og fagmennskan fyrir alvöru. Jibbííí!!!! Guð blessi Ísland.  

 

 


mbl.is Geir: Árið verður mjög erfitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband