Færsluflokkur: Lífstíll

Sögufölsun forsetans

bonusfjolskyldan.jpg

 

Fyrir bankahrunið var vefsíða forsetans (www.forsetinn.is) alveg kjaftfull af mærðarlegum útrásarræðum og ljósmyndum af Óla Grí(m)s í faðmi útrásarvíkinganna. Nú er þar ekkert slíkt að finna. Svínslegt. Allt autt einsog veski fólksins og heilabú stjórnmálamannanna. Það eru ekki bara bankamenn og "eftirlitsstofnanir" sem eru í svitabaði við að eyða gögnum. Það er búið að hvítþvo allt og afmá öll vegsummerki um útrásaróráðið af vefsíðu forsetans rétt einsog hann hafi aldrei staðið á torgum út um allan heim einsog hani á fjóshaug og lofsungið viðskiptasnilld Jóns Náskers og annarra útrásargarpa.

 

bonusgrisirnir.jpg

Óli G. heldur að það sé skynsamlegast að henda hitamælinum þegar fer að kólna og þá komist allt í gott lag. Munurinn á hreingerningum forsetans og bankamannanna er að það vita allir allt um þær óþægilegu upplýsingar sem forsetinn er að fleygja í ruslið einsog hann eigi lífið að leysa. Það er ekki nema 8 mánuðir síðan hann veitti Jóni Náskeri og Baugi útflutningsverðlaun með pompi á prakt á Bessastöðum og jós yfir þá orðum og lofi af svo miklu kappi að það þurfti að leggja hann dauðþreyttan og kófsveittan inn á spítala á eftir:) 

 

forsetaskapurinn.jpgÍ haust þegar ljóst var að útrásaraularnir höfðu sett landið á hausinn þá lét hann fjarlægja 60 síður af lofi og skrumi um þá úr bók sinni Saga af forseta. Hvað er þetta þá annað en Lygasaga af forseta, eða Hálfsannleikur um forseta? Þó að skítnum sé sópað undir teppið þá er hann ennþá til staðar og þó að líkunum sé troðið inn í skáp þá minnkar nályktin ekkert við það.

 

 

bonuspappir.gifMaður sem blóðskammast sín fyrir embættisverk sín getur ekki furðað sig á því að þjóðin skuli blóðskammist sín fyrir hann. Fyrsta orðið sem kemur uppí hugann þegar talið berst að forsetanum og útrásarnáhirðinni í kringum hann er: Landráðamenn. Grísinn á að yfirgefa samkvæmið og segja af sér með jafn miklum hraði og hann reynir að afmá tengsl sín við Bónussvínið.


Sagnfræðingurinn Imba Solla verður fjármálaráðherfa

ra_herra.jpgÞað verða að sjálfsögðu engar afsakanir eða afsagnir í ríkisstjórninni en hugsanlega einhverjar hrókeringar. Imba er víst orðin langþreytt á pönnukökubakstri út um allan heim og vill komast í spikfeitt djobb þar sem hún getur hvílt sig og sofið allan liðlangan daginn. Flottustu svefnherbergin eru Fjármálaráðuneytið og Viðskiptaráðuneytið. Mun meiri líkur eru á að hún velji Fjármálaráðuneytið þar sem það ku víst vera mun fínna og virðulegra "djobb," þótt þess hafi kannski ekki sést merki í tíð Árna Matt.

 

Imba sagnfræðingur verður semsagt fjármálaráðherra og hrossalæknirinn Árni Matt verður þá líklegast utanríkisráðherra. Fagleg sjónarmið eru að sjálfsögðu látin ráða í þessu sem öðru hér á landi. Hinn heimspekimenntaði viðskiptaráðherra, Björgvin G., fer svo hugsanlega í Iðnaðarráðuneytið og ýsukynlífsfræðingurinn Össur Skarpi, sem nú er iðnaðarráðherra, væri þá tilvalinn sem viðskiptaráðherra. Svona á þetta að vera. Réttir menn á réttum stöðum. Fagmennskan í fyrirrúmi. Nú vantar bara Valda koppasala sem heilbrigðisráðherra og allt er fullkomnað. Verst að hann skuli vera óflokksbundinn.

 

stoltur_islendingur.jpgÞað er reyndar óþekkt í öðrum löndum að menn séu skipaðir í fagráðuneyti sem hafa ekki sérfræðimenntun til þess en við þurfum ekki á slíkum reglum að halda og síst af öllu á tímum sem þessum. Við erum Íslendingar. Við kunnum þetta. Við erum stoltir víkingar og hlustum ekki á heimskra manna ráð, hvort sem þau koma frá IMF, ESB eða whatever. Þetta eru allt útlenskir fávitar og við verðum að halda reisn okkar sem sjálfstæð þjóð.

 

Okkur var t.d. ráðlagt snemma árs af fjölmörgum erlendum sérfræðingum að auka gjaldeyrisforðann í einum grænum svo allt færi ekki hér til helvítis þegar tæki að syrta í álinn og okkur var ráðlagt að leita til IMF í vor en að sjálfsögðu hlustuðum við ekki á þessi útlensku erkifífl. Guði sé lof. Annars værum við í vondum málum. Stolt okkar hefði þar að auki beðið hnekki.

 

Imba.jpgEftir 6 krísufundi í Seðlabankanum sagði Imba orðrétt: „Hér er engin kreppa." Svona manneskju er nauðsynlegt að fá í Fjármálaráðuneytið. Þegar okkur var sagt á svipuðum tíma að ástandið hér minnti mikið á kreppuna sem reið yfir Asíu fyrir nokkrum árum þá svaraði ríkisstjórnin í einum kór: „Ísland er ekki Thailand." Hér giltu nefnilega séríslensk lögmál. Og séríslensk lögmál kalla á séríslenskar reglur í hagstjórn landsins. Segir sig sjálft. Þessvegna er gott að hafa hér draumlyndan heimspeking sem viðskiptaráðherra, sagnfræðing sem utanríkisráðherra, skriðdýralækni sem fjármálaráðherra og gullfiskakynlífsfræðing sem iðnaðarráðherra, - já þessvegna er hér valinn maður í hverju rúmi. Steinsofandi í hverju rúmi.

 

georg_j_sigfusson_757888.jpgEftir kosningar fáum við svo vonandi yfir okkur ekki minni sérfræðinga, t.d. Steingrím J. Bjarnfreðarson. Hann er með hvorki meira en 5 háskólagráður: Jarðfræði, uppeldisfræði, kennslufræði, forsjárhyggjufræði og afturhaldskommatittsfræði.  Getur ekki klikkað. Hann studdi gjafakvótakerfið á sínum tíma og vill hér kröftuga netlögreglu og einsog allir vita barðist hann hatramlega á móti því að bjór yrði leyfður hér á landi og greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en þegar hann var spurður að því nokkrum árum síðar hvaða atvinnuuppbyggingu hann sæi fyrir sér fyrir utan stóriðju þá nefndi hann bjórverksmiðju.

 

steingrimur_j_bjarnfredarson.jpgOkkar vantar svona flokk einsog Vinstri græna sem er samkvæmur sjálfum sér og kann að hugsa fyrir fólkið. Ekki skemmir svo fyrir flokknum að hafa fólk einsog Sóleyju Tómasdóttur og Kolbrúnu Halldórsdóttur í forystusveitinni. Kolbrún er leikari að mennt og gæti því sómt sér vel sem viðskiptaráðherfa. Sóley er hinsvegar með BA í uppeldisfræðum og væri því skotheld sem fjármálaráðherfa. Við þurfum ekki að hafa nokkrar áhyggjur af framtíðinni þegar svona spesíalistar komast til valda - því þá verður hugsanlega engin framtíð til að hafa áhyggjur af.  

 

Sjá frétt um Imbu Sollu HÉR


Land-Ráðamenn biðja um blóð

 

Dæmigerður íslenskur stjórnmálamaður.jpgÞað er deginum ljósara að stjórnmálaslúbbertarnir ætla sér að varpa öllum byrðunum á beinabert bogið bak þjóðarinnar. Á tyllidögum fjasa þeir um mannauðinn og gildi menntunnar og bla bla bla, en þá loksins þessir jarðsambandslausu aular þora að taka ákvarðanir þá miða þær allar að því að skera niður í mennta - og heilbrigðiskerfinu og sökkva fólki dýpra í skuldafenið og flæma það úr landi. Á sama tíma moka þeir undir taðgatið á sjálfum sér og geta ekki einusinni drullast til að afnema eftirlaunafrumvarpið með öllu. Það tók korter að keyra það í gegnum þingið en er búið að taka 5 ár að skralla efsta lagið ofanaf því þrátt fyrir loforð Samspillingarinnar um algert afnám þess. Þessir bananar eru bíða eftir einhverju miklu harðarara en snjóbolta í galtóman hausinn.

 

Íslensk stjórnmál.jpgÞeir sýna engan vilja til að taka á úrásaröpunum og það gefur fólki skiljanlega þær hugmyndir að þeir sjálfir séu maðkétnir og gjörspilltir og innvinklaðir í bankasorann og að þeirra eigin pöddur hvíli undir hverjum þeim steini sem þeir eru sífellt að lofa að velta við. Það eru nær 3 mánuðir frá hruninu og enn eru menn að "rannsaka" sjálfa sig og enn kemur Björgvin G. af fjöllum einsog rammvilltur jólasveinn í öllum málum og enn er Geir fálmandi og hikstandi einsog blindur róni og enn eru gefin loðin svör og fólki haldið í þoku og óvissu og enn er "verið að skoða málin" (stinga þeim undir stól) og enn eru málin "í ákveðnum farvegi" (í pappírstæturunum) og enn sitja sömu strumparnir í bönkunum og enn láta hákarlarnir greipar sópa um allt fémætt sem eftir er í brunarústunum og enn hrýtur Fjármálaeftirlitið og enn ganga útrásarhryðjuverkamennirnir lausir.

 

Forsetinn, sameiningartákn útrásarþjófanna, býðst í auglýsingaskyni til að fá laun sín lækkuð úr tæpum tveimur milljónum í 1700.000 í stað þess einfaldlega að gefa helming þeirra þegjandi, hljóðalaust og skrumlaust í status_quo_755512.jpgMæðrastyrksnefnd. Ýldustækjan er kæfandi hvert sem fólk rekur nefið. Þorláksmessukötustækjan virkar sem rósaangan í samanburði. Aðstæður núna eru kjörnar til allsherjar hreingerninga og uppstokkunar en engu skal breytt. Öllu skal sópað undir teppið. Allt verður við það sama. Enginn banani skal fá að falla til jarðar af lýðveldistrénu. Það á greinilega að halda þjóffélaginu áfram í heljargreipum spillingar, óréttlætis, fúsks, yfirstéttarhagsmuna og heimsku. Fólk sér í hendi sér að það mun ekkert breytast. Kosningafyrirkomulaginu verður ekki breytt. Persónukjöri verður ekki komið á. Eftir kosningar munum við fá yfir okkur sama ógeðslega horið, - bara úr vinstri nösinni.

 

spurning_um_tima.gifAuðvitað mun sjóða uppúr. Það ætti allavega að gera það. Pottlokið ætti að festast við loftið ekki seinna en í febrúarber. Ef að Íslendingar væru ekki þolinmóðustu lindýr jarðarinnar þá stæðu hús útrásartalíbananna og land-ráðamannanna í björtu báli eftir áramót og Alþingishúsið flygi í 30 þúsund fetum yfir Austurvelli. Stjórnmálamenn treysta því að þjóðin láti bjóða sér ALLT. Vonandi hafa þeir ekki rétt fyrir sér.

 

PS: Skellti inn jólalagi eftir mig frá 1987 í tónlistarspilarann, Söngi veiðimannsins, lagi sem var bannað á sínum tíma af einhverjum ástæðum.

"Gleðileg" kreppujól.


mbl.is Óttast að uppúr sjóði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Raddir fólksins" segja okkur að þegja

islenskur_motmaelandi_2.jpgVið eigum öll að mæta niður á Austurvöll í dag klukkan 15 til að grjóthalda kjafti. Það margborgar sig. "Raddir fólksins" segja okkur að þegja og þá náttúrulega þegjum við. Við erum hlýðin og góð. Mótmæli hafa alltaf gert sig best með því að mæta stundvíslega á tilteknum degi á eitthvað fallegt torg eða víðáttumikla gresju einsog Austurvöll, með pípuhatt, einglyrni, montprik og vaxborið yfirvaraskegg (sé maður karlmaður eða trukkalessa), og grjóthalda sér saman í algerðri kyrrstöðu. Gæta verður ýtrustu kurteisi og háttprýði. 

 

Blessuð jólabörnin mega ekki halda að það gangi eitthvað á í þjóffélaginu og við megum ekki raska svefnfriði alþingismanna og eftirlitsstofnanna. Þar að auki eru bankar þarna í kring og það er ekkert vit í því að vera að trufla þá við niðurfellingu á skuldum sægreifanna og stórlaxanna. Hinn ofurviðkvæmi og grátgjarni Sigurjón Árnason bankastjóri er með heila hæð í Apatehúsinu þarna við hliðina og hann gæti fengið taugaáfall við pappírstætarann ef einhver færi að öskra á úrbætur og réttlæti.

 

islenskur_motmaelandi_1.jpgHörður Torfa vill ekki sjá neitt egglos við Alþingishúsið og menn eiga að ganga hægt um Fjármálaeftirlitsins dyr. Við skulum standa þarna steinþegjandi og hnípin klukkutímum saman og lygna aftur augunum og svífa inní draumaland kommúnismans og ímynda okkur sæluna þegar Vinstri grænir taka við völdum og leiða okkur inní sumarhús forsjárhyggjunnar.

 

Þjóðin er búin að þegja og hlýða í 1000 ár og það er ekki glóra í að fara að breyta því úr þessu. Það gæti bara skapað vesen. Stjórnmálamenn gætu farið að halda að við værum eitthvað annað en kjarklausir þýlyndir hlandaular og það væri allsekki nógu gott fyrir orðspor þjóðarinnar. Þögn skal það vera. Þögn er besta vörnin. Hlustum á "Raddir fólksins" og þegjum ástandið í hel.

 

Farðu að sofa byltingarbleyðan smáa,

brúkaðu ekki minnsta fjandans þráa.

Haltu kjafti, hlýddu og vertu góður.

Heiðra skaltu landsins Stóra bróður.

 

(Káinn og Stormsker) 


mbl.is Boða þögul mótmæli á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hér er óstytta útgáfan af samtali Reynis Trausta og Jóns Bjarka

 

reynir_traustason_751969.jpgReynir:  „Tylltu þér niður Jón minn. Ég þarf aðeins að létta á mér og láta vaðalinn ganga í 8 klukkutíma eða svo um innanbúðarleyndarmál DV. Viltu eitthvað að drekka? Ég er hérna með kaffi nú eða kók og svo eitthvað sannleikslyf sem allir eru fyrir löngu hættir að drekka hérna. Fáðu þér slurk. Ekki hef ÉG lyst á þessum óþverra. En heyrðu kallinn minn, ertu ekki bara hress?"

Jón Bjarki:  „Uhhh...sko ég bara ... ég bara ekki vita... sko bara eins og sko staðan í landið í dag. Þú veist ... maður er svo hræddur um sko ef eru komnir einhverjir sko ... Mig ekki átta sig á hversu stórt þetta er."

Reynir:  „Ertu að tala um slátrið á þér? Ég tala ekki indíánamál sko."

Jón Bjarki:  „Nei ég meina sko...eða þannig...þú veist...sko mig langa tala íslenskur...sko en maður einhvern veginn fer að hugsa, ég fór að hugsa náttúrulega sko, og einhvern veginn sko..."

upptokur.pngReynir:  „Í guðanna bænum ekki fara að taka upp á því að hugsa. Þú verður að skilja að þú vinnur fyrir Baug. Þú ert einn af okkar allra traustustu og heiðarlegustu rökkum og ég tek það skýrt fram á meðan þú ert að munda þessa míkrafóna hérna að þetta er algjörlega undir fjögur augu og þú getur aldrei farið út með það sem ég er að segja þér. Þetta er bara ég og þú."

Jón Bjarki:  „Og Kastljós."

Reynir:  „Hvað segirðu? Ég heyrði ekki...Óljós?"

Jón Bjarki:  „Uhhh, sko ég bara, þú veist,  þetta horfir þannig við mér ... sko bara eins og sko staðan í Íslandið í dag. Þú veist ... mig svo hræddur um sko ef eru komnir einhverjir sko...ég bara ekki skilja....sko mig kúka buxur...mig finna prumpulykt sko eða þannig sko...."

Reynir:  „Jájá kallinn minn, það skíta allir einhverntíma á sig og snappa og fara á taugum og leggjast inná Klepp og allt það. Og það minnir mig á þessa smágrein sem þú skrifaðir um Sigurjón ÁrnasonSigurjón Þ. Árnason Landsbankakúkalabba sem er með skítakleprana á hálsinum aftanverðum. Kallinn bara bókstaflega fór yfir um og hringdi í mig hágrenjandi á barmi taugaáfalls og bað mig í lengstu lög að birta ekki svo mikið sem stafkrók um sig því þá væru öll hans glæpaverk unnin til einskis. Og svo sagði hann með ekkasogum að það sem hann væri að aðhafast í Landsbankanum ásamt fleirum sem settu bankana og þjóðina á hausinn væri svo svakalega subbulegt og svo obboslega mikill greiði við útrásardólgana að ef stjórnmálaöflin og fjármagnsöflin héldu ekki yfir honum hlífiskildi þá væri fyrir löngu búið að hengja hann í hæsta gálga, og ég mætti því bara ALLS EKKI minnast á hann einu einasta orði. Hann grenjaði svo hátt að ég hef ekki heyrt annað eins síðan Óli Bónusgrís, Baugur og þjóðin öll orgaði sig hása af reiði þegar Dabbi setti fram fjölmiðlalögin. Nú, í kjölfarið á þessu símtali við Sigurjón sveitta þá greip um sig einhver rosaleg hystería hjá öllu auðmannaliðinu því það er náttúrulega svona samtryggingarkerfi í gangi hjá þessu beinagrindaskápaslekti og þetta hafði einhver svona keðjuverkandi áhrif og fór að vinda uppá sig og þeir fóru að hringja í mig og hóta því að snúa mig úr hálsliðnum og sögðu að Sigurjón sveitti og fleiri bankahrunsmenn yrðu að fá að vinna sín myrkraverk í friði í bönkunum án afskipta fjölmiðla því annars yrði mér og DV troðið ofan í pappírstætara ásamt öðrum skítapappírum. Þú skilur. Og þeir sögðu að þeir fengju fullkominn frið fyrir stjórnmálamönnum því þeir sjálfir væru innvinklaðir í bankasorann í sambandi við niðurfellingu skulda o.s.fr. og að við fjölmiðlamenn yrðum einfaldlega líka að grjóthalda kjafti og aðhafast ekkert ef við vildum halda lífi. Þetta væri samspillingin í öllu sínu veldi, og almennileg spilling yrði að fá að þrífast í skjóli fjölmiðla og stjórnmálamanna sem sneru blinda auganu að þjóðarráninu."

Jón Bjarki:  „Þetta vera sko bara hreinn viðbjóður."

Reynir:  „Nei, veistu það að hann Hreinn er enginn viðbjóður skal ég segja þér. Hreinn er fair náungi sko. Ég myndi aldrei segja við hann: „Ert þú Hreinn Viðbjóður? Hvað segirðu gott?" Sko, þú mátt ekki láta baugsstækjuna blekkja þig."

Jón Bjarki:  „Já en ég,  þú veist sko...ég vilja hreint loft eða bara eitthvað sko en ekki hreinn viðbjóður. Mig hræddur við jólasveina og sko ég finna allskonar prumpulykt af málið og sko eða eitthvað...þú skilur...ha...þú veist. En bögg bögg bögg...."

bjorgolfur.jpgReynir:  „Böggólfur er bara aumingi og jólasveinn í röndóttum fangabúningi. Þessi djöfull á þetta prentaraskrapatól sem prentar Djöfulsins Vitleysu en so what?! Ég mun taka þennan djöfulsins apa niður úr trjánum og festa hann á endann á kústinum þarna við hliðina á kamerunni sem þú varst að stilla upp, og ég skal svoleiðis skúra með honum gólfið og sparka honum svo rakleitt til helvítis þar sem hann á lögheimili. Ekki málið kallinn minn. Ég og Baugsmenn höfum nú drepið í stærri stubbum en honum skal ég segja þér. Líttu bara á Dabba druslu! Við hjá Baugsmiðlunum höfum svoleiðis pönkast á honum og drullað svoleiðis yfir hann í gegnum árin að fólk er farið að trúa því að Hann sé landráðamaður og sorapoki númer eitt tvö og þrjú en ekki Útrásarræningjarnir. Múúú ha ha ha ha! Alveg frábært maður."

Jón Bjarki:  „Sko...ég skilja ekki...eða þannig... ég veit ekki, semsagt ef eigendurnir eru farnir eitthvað að...þú veist...eða eitthvað. Ég díla við mín samviska. Ég skipta um spólu núna sko svo þú tala meira undir þrjú augu."

Reynir:  „Samviskan á það sameiginlegt með ástinni að vera bara fyrir kellingar og homma. Ekki kjafta frá þér allt vit kallinn minn. Veistu það að það er alveg rosalega gott að tala við þig. Þú ert einn af allra heiðarlegustu og klárustu mönnum sem hafa nokkurntíma unnið hér á DV og mig langar að tala við þig hér í nokkra klukkutíma í viðbót ef þér er sama. Jafnvel nokkra daga. Þú getur lagt þig hérna á bekkinn við hliðina á sálfræðibeddanum mínum meðan ég læt móðann mása. Svona já. Flott. Hvar vorum við aftur?"

Jón Bjarki: „Mig bara vera að spyrja um svar við þú veist eina spurningu sko...Mig bara vilja vita þú veist sko hvað klukkan vera."

Reynir:  „Vertu rólegur. Ég er ekki búinn. Við höfum allan heimsins tíma og ...."

Jón Bjarki:  „Já en spólan endast bara 2 daga og mér svangur sko og soleiðis."

Reynir:  „Hvaða helvítis spóla? Svona þegiðu nú aðeins apinn minn og hlustaðu og vertu ekki stöðugt að grípa frammí fyrir mér. Leyfðu mér að klára þetta. Þú þarft að fræðast um ritstjórnarstefnuna og innviði blaðsins og öll leyndarmálin sem mega alls ekki fara út fyrir hússins dyr. Sko, erum við á trúnó eins og fullorðnir menn inná kvennaklósetti eða ekki? Ókey. Flott. Ég held þá áfram. Sko málið er þetta: Við stóðum bara andspænis þú veist þessum hroðalegu örlögum, að birta þessa grein þína um Sigurjón sveitta og öll hans skítverk og keyra á þessu og þurfa þá þessvegna bara að pakka saman. Ef ég hefði birt þetta akkúrat núna með ekki meira í höndunum en þetta þá hefði mér og þér og öllum hérna verið slátrað einsog hverjum öðrum prumphænsnum þannig að þú sérð að þetta fjölmiðladjobb er ekkert grín hér á klakanum kúturinn minn. Og maður verður að líka að hugsa um eignarhaldið. Maður segir ekki hvað sem er um hvern sem er við hvern sem er. Hvað heldurðu að ég hafi oft vaknað upp með hrosshaus.jpghrosshaus við hliðina á mér í rúminu þegar ég hef óvart minnst ógætilega á Jón Ásgeir í DV? Hvað heldurðu? EINU SINNI, og það var fyrir löngu síðan og það skal sko ekki gerast aftur. Þannig er þetta. Þetta er svona ... þannig að sko ég vildi allavega hafa það stærra mál ef það ætti að fara að láta reyna á líf eða dauða. Maður myndi þá falla með sæmd en ekki falla á einhverjum svona súkkulaðibúðingi. En svo ég trúi þér nú fyrir atvinnuleyndarmálunum hérna á DV sem eru merkt Top Secret. Sko, í fyrsta lagi þá.... Hvað, ertu sofnaður? Þú ert nú meira helvítis fíflið."

Jón Bjarki:  „Mér dottaði smá sko. Þú geta þú veist kannski skutlað mig í Ríkisútvarpið sko?"

bugging.jpgReynir:  „Jájá, ekki málið. En þú veist að ef þú opnar á þér trantinn við ömmu þína eða hvern sem er um þetta þá afneita ég þér gjörsamlega sem lygamerði og aumingja og níði af þér skóinn því þú hefur akkúrat ekkert í höndunum. EKKERT! Þetta verður bara orð gegn orði. Skilið? Taktu nú með þér þetta helvítis míkrafónadrasl og spólurusl. Átt þú þessa kameru á þrífætinum og alla þessa ljóskastara? Ókey. Helvíti eru þetta flott headphones sem þú ert með. Ég hélt við borguðum blaðamönnum ekki svona vel. Komum. Ég skal halda á mixernum fyrir þig."

 

 

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

 

Gestir í þætti mínum Miðjan á Útvarpi Sögu fm 99.4 í dag, miðvikudag,  kl. 16:00 til 18:00 verða þau Jón Gerald Sullenberger athafnaskáld og Jónína Benediktsdóttir viðskiptamógúll. Þau hafa bæði verið í þáttum hjá mér áður en þá í sitthvoru lagi. Einsog kunnugt er þá er Jónína genginn í Framsóknarflokkinn með stólpípuna að vopni og ætlar að ræsta sorann og spillinguna úr því fólki sem ennþá er eftir í flokknum. Það er ekki öfundsvert djobb. Skítadjobb. Jón Gerald er hinsvegar með það á prjónunum að opna lágvöruverslun hér á Los Klakos og fara í samkeppni við Bónus og ég held að margir yrðu fegnir þeirri nýbreytni. Báðar þessar manneskjur hafa fengið yfir sig drápsklyfjar af huggulegum svívirðingum og óbótaskömmum undanfarin ár en ég held það sé loksins farið að renna upp fyrir fólki að kannski hafi þau haft sitthvað til síns máls eftir alltsaman. Bæði eru þau með munninn fyrir nefið og ennið fyrir ofan augun svo ég held það sé óhætt að lofa fólki fyrirtaks skemmtun og fróðleik í dag. 

Alla fyrri þætti má finna á: www.stormsker.net


mbl.is „Stóðum andspænis þessum hroðalegu örlögum"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjartur í Brunarústum og íslenskt þjóffélag

  
  

Guðni í sleik við búkollu.jpgÞað er auðskiljanlegt flestu ósködduðu fólki að Guðni Ágústsson sagði ekki af sér þingmennsku vegna þess að hann væri að „axla ábyrgð" á ástandinu einsog margir eru að klifa á um þessar mundir. Skil ekki hvernig fólki dettur sú firra í hug að íslenskir stjórnmálamenn fari að taka upp á því að axla ábyrgð! Guðni sagði ekki af sér vegna ófara þjóðarinnar heldur vegna eigin ófara í Framsóknarflokknum. Einfalt. Honum var misboðið á miðstjórnarfundi flokksins þar sem fornaldarhugmyndir hans fengu ekki brautargengi og hann gerði sér að auki ljóst að hann myndi verða sleginn af í næsta for(n)mannsslag. Hann gekk ekki lengur í takt við aðra framsóknarstrumpa og fann að hann var að dragast afturúr, jafnvel hinum hæggengustu og afturhaldssömustu í flokknum. Hann vildi ekki breyta sínu þúfugöngulagi til samræmis við Evrópustaðla og var því svolítið á eftir, auk þess sem hann gekk afturábak. Hann vildi ganga út í öfgar og ganga á fjöll til hinna tröllanna og saltstólpanna en flokkurinn vildi ganga af honum dauðum og koma af fjöllum. Nú er bæði flokkurinn og Guðni genginn sér til húðar.

 

Guðni er mikill göngugarpur. Hann gekk út úr miðju viðtali hjá mér í sumar og gekk alveg af göflunum þegar ég minnti hann á að hann hefði í áratug Muuuðni og félagar.jpgstaðið fyrir afturhaldssamasta, óhagkvæmasta og neytendafjandsamlegasta landbúnaðarkerfi í heimi, og núna gengur hann út af þingi og frá Framsóknarflokknum þegar hann sér að einangrunarhyggja hans og 19du aldar hugmyndir um afdalamennsku og beljurómantík ná ekki eyrum flokksmanna. Honum var komið í opna Skjöldu. Og nú er Guðni genginn.

 

(Þessi mynd er líklega fótósjoppuð)

 

ofureftirlaunapotturinn.jpgEf fólki finnst virkilega „stórmannlegt" og „ábyrgðarfullt" að stökkva út um gluggann úr brennandi þjóðarhlöðunni beint ofan í heitan ofureftirlaunapottinn einmitt þegar hlaðan logar stafna á milli og landsmenn brenna í skinninu eftir lausnum þá er eitthvað meira að en ég hélt.

Reyndar hefði Guðni aldrei getað bætt ástandið, ekki frekar en aðrir sem bera ábyrgð á því, enda segir hann í kveðjubréfi sínu að hann telji sig gera mest gagn með því að hætta að tjá sig. Hann segir jafnframt í bréfinu: "Ásamt skýrum hugsjónum og pólitískri staðfestu eru það einmitt eining og drengskapur sem fæða af sér stórar hreyfingar."

Nú vitum við afhverju Framsóknarflokkurinn er dvergflokkur.

 

veljum_serislenskt_og_allir_tapa.jpgGuðni vill að sjálfsögðu ekki ganga í nein alþjóðleg bandalög og einhver alþjóðleg sambönd einsog hið stórhættulega og óþjóðlega Evrópusamband. Hann vill séríslenskt þjóðlegt hagkerfi, séríslenskar reglugerðir, séríslenska krónu, séríslenskt afturhald, séríslenska bændamafíu, séríslenskt landbúnaðarkerfi, séríslenskt verðlag, séríslenskt gjafakvótakerfi, séríslensk mannréttindabrot, séríslenska okurvexti, séríslenskar embættisveitingar, séríslenskt eftirlitsleysi, séríslenskt samkeppnisleysi, séríslenskt ábyrgðarleysi, séríslenskt eftirlaunafrumvarp, séríslenska spillingu, séríslenska kreppu og séríslenska þjóðlega heimsku.

alislenskur kreppuapiGuðni vill allsekki að þjóðin fari að taka við einhverjum útlenskum tilskipunum vegna þess að íslenskir stjórnmálasnillingar hafa sýnt það og sannað að þeim er sko treystandi fyrir efnahagsmálum landsins sem og öðrum málum. Veljum íslenskt. Íslensk kreppa, já takk. Íslenskt þjóffélag, já takk. Íslenskur heimalningsháttur, já takk.

Fyrirmynd Guðna er hinn sjálfstæði og þjóðlegi Bjartur í Sumarhúsum, eða öllu heldur Bjartur í Brunarústum, sem vildi frekar alíslenskar lýs á sínum skrokki en erlenda sápu.

 

fyrir_islenska_stjornmalamenn.jpgÉg tek undir með bandaríska hagfræðiprófessornum Robert Aliber: „Annaðhvort hafa Íslendingar látið stjórnast af græðgi eða heimsku undanfarin ár, - eða hvortveggja."

Tvímælalaust hvortveggja. Snemma árs sagði Aliber að allt myndi fara hér fjandans til ef ekki yrði gripið til skjótra og róttækra aðgerða en enginn aðhafðist. Á sama tíma sagði Ingibjörg Sólbrún að hér væri engin kreppa og allt væri í glimrandi velstandi, og aðrir íslenskir heyrnarlausir staurblindir stjórnmálaafglapar tóku í sama streng.

 

Nú er svo komið að velferðarkerfið er í tætlum og helferðarkerfið tekið við. Þegar ystu lögunum er flett ofan af áferðarfallegu þjóðfélaginu þá kemur í ljós að það er svo gegnumrotið og maðkétið og gjörspillt og dragúldið að Chicago á dögum Al Capone´s virkar sem himnaríki í samanburði. Þetta er ekki þjóðfélag heldur þjóffélag. En fólki finnst þetta þjóffélag gott, svo bananalydveldid_island_737796.jpgframarlega sem það er séríslenskt og án tilskipanna og afskipta erlendis frá. Við kunnum þetta jú alltsaman, einsog sést. Við megum ekki glata „sjálfstæði" okkar. Við eigum öll að vera í séríslensku skuldafangelsi. Við eigum að vera alveg gríðarlega sjálfstæðir hnarreistir sauðþráir sjálfumglaðir þjóðernissinnissjúkir smákóngar einsog Bjartur í Brunarústum. Þó þjóðin sé bernsk þá má hún ekki heyra minnst á einhverja útlenska barnapíu. Okkur líður vel að vita af fiskimiðunum, olíufélögunum, tryggingarfélögunum, fjölmiðlunum, bönkunum og öðru í séríslenskum glæpamannagreipum. Engir skulu sko fá að stjórna okkur nema alíslenskir aular. Það er fyrir öllu.

17. júní er þjóðhátíðardagur Dana. Þann dag losnuðu þeir við Íslendinga.

Á 50 ára lýðveldisafmæli okkar orti ég:

 

Loksins erum við laus úr dýflissuhlekkjum,

lengur ekkert helsi,

snara um engan háls.

Nú birgjum við okkur innan virkisveggja

til varnar okkar frelsi

og þykjumst vera frjáls.

 

 

(Morgunblaðið 21. nóvember)

 

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - 

 

 

Í þætti mínum "Miðjan" á Útvarpi Sögu fm 99.4 í dag, miðvikudag, kl. 16:00 - 18:00 verður endurtekið viðtal mitt við Guðna Ágústsson frá því 30 júlí þegar hann strunsaði út sællar minningar og fór fram á það við lögfræðing Sögu að þátturinn yrði aldrei endurtekinn og að ég yrði rekinn. Ekki mörgum þótti þessi framkoma Guðna bráðheppileg og sniðug fyrir flokkinn nema einna helst tölvusnillingnum Bjarna Harðarsyni sem hældi for(n)manninum á hvert reipi og rógbar mig hressilega í kjölfarið um leið og hann viðurkenndi að hann hefði ekki heyrt þáttinn og ætlaði sér aldrei að gera það!! 

Stjórnmálamenn myndu kannski geta haldið djobbinu ef þeir væru með opin eyru og opinn huga og lokaðan kjaftinn. 

 

Þessir gæar vildu mig út í hafsauga en nú er hinsvegar Bjarni búinn að dílíta sjálfum sér og búið að "reka" Guðna. For(n)mennska hans var "vinsamlegast" afþökkuð á miðstjórnarfundi flokksins fyrir skömmu og hann flýði í fýlu einsog fætur toguðu alla leið til Kanaríeyja þar sem hann nýtur ofureftirlaunanna í botn, enda studdi hann eftirlaunafrumvarpið áfjáður á sínum tíma því hann vildi ekki aðeins vera áfjáður heldur fjáður. (Það tók 5 mínútúr að koma þessu misréttisfrumvarpi í gegnum þingið með stuðningi ALLRA flokksformanna, en það mun taka heila eilífð að afnema það með Öllu einsog allan annan séríslenskan viðbjóð. Ingibjörg Sólbrún stendur þar sem einn stærsti steinninn í götu réttlætisins ásamt hrjótandi sjálfstæðismönnum).

 

Með banana í annarri hönd og hrútspung í hinni liggur nú Guðni, þessi einarði varðhundur bændamafíunnar og gjafakvótakerfisins á sólarströnd í áhyggjuleysi og ábyrgðarleysi með skottið á milli lappanna og óskar Íslendingum velfarnaðar og vonar að þeir komist út úr kreppunni og drullupyttinum sem hann og flokkur hans áttu svo drjúgan þátt í að koma okkur í.

 

 

 

 

Fyrri Miðjuþætti má finna á:  www.stormsker.net


Hussein forseti Bandaríkjanna

barack_hussein_obama_719589.jpgRétt í þessu var Barack Hussein Obama kjörinn forseti Bandaríkjanna, sem er mjög gott mál. Eftir 8 ára langa bið fáum við nú loksins heilbrigðan viti borinn kolsvartan mann í Hvíta Húsið. Ég átti satt að segja ekki von á því að Kanar höfnuðu John CoCaine sáluga og hinni stríðsglöðu þræltrúuðu Söru Palin því sú blaðra er Bush með pjöllu, og Kanar elska allt kristilegt ofbeldi, en kannski hafa þeir fengið nóg af slíku í bili. Kannski er sigur Barokks að einhverju leiti Palin og allri hennar kristilegu morðfýsn og dellu að þakka. Veit það ekki. Svo datt amma hans dauð niður stundvíslega rétt fyrir kjördag, sem var náttúrulega alveg grá upplagt og mikil guðs mildi uppá samúðaratkvæðin að gera.

 

Þótt Bandaríkjamenn séu all íhaldssamir þá geta þeir greinilega verið líbó og eru kannski eitthvað að þroskast og hafa í raun með þessu vali sínu sannað að ennþá er eitthvað til sem heitir ameríski draumurinn. Við eigum bara íslensku martröðina. Ég efast um að svartur „útlendingur" gæti verið kosinn forseti í nokkru öðru lýðræðisríki. Gæti Halim Al, óskabarn þjóðarinnar, einhverntíma orðið forseti á Íslandi, eða er það bara óskhyggja? Myndi blökkumaðurinn Mike Tyson eiga smugu á íslenska borgarstjórastólnum? Nebb. Hann fengi í mesta lagi rafmagnsstólinn eða þingsæti hjá Framsóknarflokknum, sem er kannski eitt og hið sama.

 

barokk_osama.jpgNú er bara að vona að Barokk Osama verði ekki skotinn með basúku milli augnanna af rasistum sem bera enga virðingu fyrir niggurum. Maður á að bera virðingu fyrir kafarabúningum og ég held þetta sé vandaður og góður gæi en hann á mikið verk fyrir höndum; að þrífa upp allan skítinn eftir George White trash Bush. Barokk situr í rauninni í djúpum skít og að því leiti verður hann for-seti í tvennum skilningi næstu fjögur árin ef allar byssukúlurnar og örvarnar missa marks.

 

 

 

------------------------------------------------------------------------------

 

jon_magnusson_719596.jpgGestur í þætti mínum „Miðjan" á Útvarpi Sögu klukkan 16:00 - 18:00 í dag verður einn besti þingmaður okkar, Jón Magnússon í Frjálslynda flokknum. Hann er einn af örfáum á Alþingi sem t.d. varaði mikið við drullupyttinum sem við erum núna á bólakafi oní, án þess að hann hafi slysast á það með því að vera sjálfkrafa á móti öllum sköpuðum og ósköpuðum hlutum.

Við munum spjalla um forsetakosningarnar í Brandararíkjunum, séríslenskan heiðarleika, afskriftir, grafskriftir, nýja fjölmiðlafyrirtækið Rauðkál, og hvort það væri ekki sniðugt að afhenda Jóni Ásgeiri líka RÚV og selja honum svo Samkeppnisstofnun og Fjármálaeftirlitið fyrir slikk. Svo munum við að sjálfsögðu ræða um það hvernig í ósköpunum standi á því að hér þrífist engin spilling.

 

Fyrri þætti má nálgast á:  www.stormsker.net

 


mbl.is Obama kjörinn forseti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingar orðnir ennþá geðveikari!

range_rover_-_game_over_706206.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

gaman_gaman_706286.jpgÁstandið hefur stundum verið skárra á Los Klakos. Allar bankalínur eru lokaðar og allar hjálparlínur rauðglóandi. Aðrar línur hafa útrásardólgarnir tekið í nefið. Geðdeildirnar eru yfirfullar og bankastarfsmenn fá daglega áfallahjálp sálfræðinga og prestar blessa bankastjóra í bak og fyrir og skvetta vígðu vatni frá Jóni Ólafssyni á tómar bankahirslurnar. Almúginn hímir í kílómetra löngum biðröðum eftir súpu og Bubbi er betlandi á torgum með apa og lírukassa og er kominn á tveggja ára Range Rover (eða Game Over einsog hann heitir víst í dag). Hummer er orðinn að Bummer og Landcruser að Grandlúser.

 

Útrásarvíkingur.jpgÚtrásarfroskarnir eru flúnir land á einkaþotunum enda ekkert meira að hirða af landslýð sem er svo mergsoginn og vanaður að meiraðsegja Blóðbankinn og Sæðisbankinn eru farnir á hausinn. Pólverjar flýja í ofboði til friðsamlegri og manneskjulegri landa einsog t.d. Íraks, Afganistan ut_um_gluggann_706250.jpgog Vestmannaeyja. Á hverjum degi sér maður gjaldþrota fólk fleygja sér fram af byggingum í fallegum boga, en það er sívinsæl vandamálalausn á krepputímum. Fólki bókstaflega rignir niður á gangstéttirnar svo maður er í bráðri lífshættu á göngutúrum um bæinn.

 

 

KleppurÞegar maður hringir á Klepp þá kemur sjálfvirkur símsvari: „Þú ert kominn í samband við Klepp. Ef þú hefur fjárfest í íslenskum bönkum, ýttu þá á einn. Ef þú ert farinn að hamstra matvæli í Bónus, ýttu á tvo. Ef þú heldur virkilega að einhver verði látinn sæta ábyrgð á hruninu, ýttu á þrjá. Ef þú treystir stjórnmálamönnum og öðrum íslenskum amatörapaköttum til að leysa úr vandanum, ýttu á fjóra. Ef þér austurvallarkleppur_706256.jpgfinnst skynsamlegt að sömu hlandaularnir sem áttu stóran þátt í hruninu, Fjármálaeftirlitið og ríkisstjórnin, sjái um uppbygginguna, ýttu á fimm. Ef þú heldur að krónan sé gjaldgengur gjaldmiðill, ýttu á sex. Ef þú ert búinn að gleyma lofræðum forsetans um útrásarkrimmana, ýttu á sjö. Ef ekkert er valið þá verður þér gefið samband við útibúið við Austurvöll. Þú ert númer 168.537 í röðinni."

 

 

 

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - 

 

 

Gestur minn í síðasta þætti "Miðjunnar" á Útvarpi Sögu fm 99.4 var Jón Baldvin Hannibalsson. Gestur minn í dag, miðvikudag, frá klukkan 16:00 til 18:00 verður hinsvegar enginn annar en Jón Baldvin Hannibalsson. Jón Baldvin er einsog Marteinn Mosdal; hann kemur alltaf aftur og aftur og aftur og aftur. Að þessu sinni munum við fjalla um alveg hreint stórmerkilega hluti. Sjá: HÉR.

Allir fyrri þættir eru komnir inná:  www.stormsker.net


Sofandi forseti og rotaðir fjölmiðlar

101_hotel_jpg_550x400_q95.jpg

 

Þessi fræga mynd birtist fyrir stuttu í breska blaðinu Daily Mail og þar var fjallað um Jón Ásgeir og co undir fyrirsögninni: „Djöflarnir að njóta síðustu daganna í helvíti."

Í greininni sagði að milljarðamæringurinn Jón Ásgeir, ljóshærða konan hans og vinir þeirra sem komu Íslandi á kaldan klaka, flissi og skemmti sér konunglega á eigin hóteli yfir rándýrum vínum, ósnortin af hrikalegu ástandinu í kringum þau. Gjaldþrota banki hans Glitnir skuldi breskum hlutabréfaeigendum milljónir punda, svo og fyrirtækjum og góðgerðarstofnunum. Meðan Ísland brenni og eignir séu frystar sé hr. Johannesson hinsvegar greinilega ekki á vonarvöl, um það vitni 85 punda flaska af hvítvíni á borðinu.

 

Hið skemmtilega Baugsblað DV (eru annars ekki öll blöð á landinu í dag í eigu Baugs?) kom að sjálfsögðu með leiðréttingu á þessari Daily Mail grein í gær og vitnaði í nýjasta Baugsblaðið Séð og heyrt en þar er viðtal við óþekktu ljóskuna á myndinni, Sybil Grétu Kristinsdóttur vinkonu Ingibjargar eiginkonu Jóns Náskers. „Sybil segir að þetta hafi ekki verið neitt svall, fólk hafi drukkið vatn og hún ekið öllum heim á eftir."

Afhverju þurfti hún að keyra alla heim á eftir ef allir voru í vatni? Fólk er náttúrulega yfirleitt ekki í ökuhæfu ástandi eftir taumlausa vatnsdrykku. Auðvitað voru þau öll bara í vatni einsog sést á myndinni. Fólk fer yfirleitt á 101 barinn á kvöldin með félögunum til að þamba vatn. Segir sig sjálft. Og hvað er betra en vatn úr bjórflöskum og 17.000 króna hvítvínsflöskum? Þessu vatni hefði þurft að breyta í vín, en kannski var búið að breyta víninu í vatn og það hefur þá verið í fyrsta skipti.

 

Áður en þessi hugulsama og dagsanna leiðrétting birtist í Dagblaðinu þá hafði Jón Trausti ritstjóri skrifað mjög heiðarlegan og góðan leiðara í DV (10. okt.) undir fyrirsögninni „Við brugðumst ykkur" þar sem hann segir m.a:

„Þjóðfélagið hefði aldrei farið á fullri ferð fram af brúninni ef það hefði ekki verið gegnsýrt af blekkingu í áraraðir. Blekkingin kom frá stjórnmálamönnum, viðskiptamönnum og líka þeim sem áttu að verja þjóðfélagið gegn blekkingunni, fjölmiðlamönnum....Það eru ekki lygasjúkir stjórnmála- og viðskiptamenn sem eru rót vandræða okkar, heldur fjölmiðlarnir sem endurómuðu lygina gagnrýnislaust....Íslenskt efnahagslíf verður aldrei heilbrigt ef fjölmiðlarnir rækja ekki skyldur sínar. Þeir eru allt of mjúkhentir í samanburði við erlenda fjölmiðla. (Hvernig skyldi nú standa á því?!!). Skylda þeirra snýr að almenningi en ekki stjórnmálamönnum og viðskiptamönnum....DV brást þjóðinni, eins og aðrir fjölmiðlar....Þeir sem ljúga að fjölmiðlum ljúga líka að almenningi. Blekkinguna verður að uppræta, því hún er meinið sem varð þjóðinni að falli."

 

DV ætlar semsé að snúa frá villu síns vegar og gerir það með þessari blekkingarlausu frétt um vatnsdrykkju og iðrun útrásarsnillinganna. Einmitt. Að öðru leiti er ég alveg hjartanlega sammála Jóni Trausta, enda var ég einn af örfáum í þessu þjóðfélagi sem studdi fjölmiðlafrumvarpið opinberlega á sínum tíma sem Ólafur Ragnar, forsöngvari og klappstýra útrásardólganna, neitaði að skrifa undir. Heilaþveginni þjóðinni fannst best og eðlilegast að allir fjölmiðlar væru á einni og sömu höndinni, - lófaloðinni krumlu sem jafnframt héldi utan um flesta aðra markaði landsins og heilan banka í ofanálag. Ef einhver annar en Davíð hefði lagt frumvarpið fram þá hefði það kannski farið í gegn, en annars efast ég um það því forsetinn var svo gríðarlega önnum kafinn við að mæra og verðlauna Baugshetjurnar og „útrásarvíkingana" einsog hann kallaði þá, og flakka með þeim um heimsbyggðina og kynna þá sem mennina sem myndu "auka hróður Íslands um ókomin ár." (Væri þjóðin ekki til í að kjósa yfir sig aðeins glámskyggnari forseta?) Ólafur Ragnar hefði sennilega alltaf neitað að skrifa undir frumvarp sem kæmi í veg fyrir að nábleik hönd Bónusgríssins hefði kverkatak á þjóðfélagsumræðunni.

 

BónusgrísinnÓli Bónusgrís

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

                            (Ólafur Ragnar Grísson og Bónusgrísinn. Ólafur til hægri).

 

Nú er Bleika Höndin búinn að stinga Mogganum í vasann líka svo fólk hlýtur að vera afskaplega hamingjusamt og sátt. Og nú er forsetinn farinn að labba í skóla og fyrirtæki til að hugga fólkið sem útrásarfurstarnir og fjölmiðlaeigendurnir tóku svo kröftuglega í rassgatið að undan mun svíða næstu áratugina, - sömu mennirnir og hann studdi og styður dyggilega og þeir hann.


 


Íslendingar fyrirlitnir og hataðir um allan heim

kort_kotta_i_strimla.jpgVinur minn var í Köben fyrir stuttu og fór náttúrulega yfir Strikið. Þegar hann var að borga fyrir sig með korti í einni versluninni og afgreiðslukellingin sá frá hvaða landi hann var þá greip hún skæri og klippti kortið hans í strimla og þreif svo veskið hans af borðinu og tók fuck_you_man_699192.jpgíslensku seðlana upp úr því og tróð þeim í pappírstætara og svo klippti hún veskið vandvirknislega í þunnar í ræmur ekki ósvipaðar beikoni og öskraði hástöfum á hann að hann ætti að hypja sig aftur til helvítis, þeas til Íslands. Það var alveg sama þó hann reyndi að segja henni að hann væri alls óskyldur Bónusgrísum og Bjórúlfum og Bjarna Ármanns og Björk og öllum þessum Bé-um, hún hélt bara áfram að öskra á hann að hann skyldi drulla sér tafarlaust til helvítis. Þegar hún tók upp afsagaða haglabyssu þá skildi hann loksins svona nokkurnvegin hvað hún átti við og hraðaði sér út. 

Hann sagðist vita um marga Íslendinga sem hefðu svipaða sögu að segja. Orðspor Íslendinga út um allan hinn stóra siðmenntaða heim er jafn ónýtt og íslenska krónan.

 

 

_slendingur_i_utlondum_i_dag.jpgÞað er orðið nokkuð algengt víða erlendis að það sé hrækt framan í  Íslendinga vænum grænum slummum og jafnvel snýtt sér á þá og þeim hótað öllu illu, sérstaklega í Bretlandi, Hollandi og Danmörku. Sumstaðar er þeim vorkennt. Í Asíu er aðallega hlegið góðlátlega að þeim. Íslensk „viðskiptasnilld" hefur t.d. verið all mikið til umfjöllunnar í tælenskum fjölmiðlum og þar er Íslendingum lýst sem broslegum flónum með minnimáttarkennd sem héldu að þeir gætu keypt upp allan heiminn með matadorpeningum. Það vill oft gleymast að það var náttúrulega ekki öll þjóðin sem stóð í þessu svínaríi heldur aðeins 20 - 30 óprúttnir fjárglæframenn með forsetann sem klappstýru.

 

 

Í gær kom fram í fréttum að tónleikaferð Sinfoníuhljómsveitar Íslands til Japans hefði verið frestað um óákveðinn tíma. Og afhverju? Jú, Japanir sögðu að „vegna frétta af Íslandi undanfarna daga væri hljómsveitinni ekki treystandi fjárhagslega." Þröstur Ólafsson framkvæmdastjóri sveitarinnar bætti svo við: „En síðan held ég að aðalástæðan hafi nú verið sú að orðspor landsins er orðið svo lélegt...að þeir hafi bara ekki getað selt miða eða að minnsta kosti ekki eins marga og þeir þurftu. En það er alveg ljóst að orðspor okkar er komið niður í kjallara."

 

 

ver_ir_vinkonu_minnar_699198.jpgVinkona mín í Bretlandi, sem er svo þrælóheppin að vera Íslendingur, er búin að fá dobíu af hótunum frá bálreiðum Bretum. Húsið hennar er þakið eggjum og grænmeti einsog Geir Ólafs eftir tónleika. Hún er búin að vera í stofufangelsi dögum saman og húsið hennar er vaktað dag og nótt af breskum þungvopnuðum lögregluþjónum. Þeir vilja eflaust líka buffa hana en gera það ekki starfs síns vegna. Það eina sem hún hefur til saka unnið er að vera frá sama landi og útrásar"víkingarnir" orðumprýddu.

 

fuck_you_icelandic_bastard.jpgOg nú í fyrradag var frænka mín Halla Vilhjálms, söng - og leikkona í London, borin út úr íbúð sinni og fleygt út á götu í fallegum boga. Ástæðan? Jú, hún er Íslendingur. „Enga íslenska hálfvita hér takk fyrir. Þið og ykkar getnumrotna viðskiptasiðferði! Veriði úti djöfulsins ræsisrotturnar ykkar og látið ekki sjá ykkur hér framar! Skítseiði!"

 

 

 

george_bush_me_puttann_fraega.jpgVið eigum enga vini, eða einsog segir í textanum Traustur vinur: "Þegar af könnuninni ölið fer, fljótt þá vinurinn fer." Frændþjóðirnar Noregur, Svíþjóð og Rússland ætla jú að henda í okkur apana nokkrum bönunum en þeir eru ekki uppí rass á nokkrum ketti. Osama bin Laden hefur neitað okkur um aðstoð og meiraðsegja gæðablóðið George W. Bush, sem má ekkert aumt sjá (án þess að sparka í það), hann fyrirlítur og hatar okkur og vill akkúrat ekkert fuck_you_asshole_699323.jpgfyrir okkur gera, ekki einusinni sprengja okkur í loft upp. Hann vill ekkert af okkur vita þrátt fyrir að hann viti að hann hefði aldrei getað unnið Íraksstríðið án okkar hernaðaraðstoðar, (man ekki í svipinn hvað stelpan hét sem við sendum á vettvang). Hann vill ekkert lána okkur og ekkert gefa okkur, nema puttann, og við þurfum síst á enn einum puttanum að halda núna. Það kemst allsekki einn putti í viðbót uppí ósmurt taðgatið á okkur. Útrásar"víkingarnir" hafa séð til þess og eru þar með drjólann á bólakafi fyrir.


 - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

 

 

Gestur í þætti mínum "Miðjan" á Útvarpi Sögu fm 99.4 á milli klukkan 16:00 og 18:00 í dag, miðvikudag, verður enginn annar en Íslandsvinurinn og kyntröllið Jón Baldvin Hannibalsson.

Við munum ræða nýjustu flatskjáina, þriðju kindaslóð farsíma, flottustu Range Roverana og ísmeygilegustu kellingarnar og í hvaða íslensku bönkum sé best að kaupa hlutabréf um þessar mundir og hvort það væri ekki gróðavænlegt að breyta Stjórnarráðinu í spilavíti og Seðlabankanum í fyrsta klassa hóruhús. Við munum svo hugsanlega bjalla í Bubba og fá ráðgjöf í fjárfestingum og fræðslu í verðmyndun verðtryggðra viðskipta. 

Það er engin hætta á að Jón hlaupi út úr miðju viðtali enda hefur hann marga fjöruna sopið og einnig margt annað sterkara á börum og í þjóðhöfðingjaveislum út um allan hinn stóra heim umhverfis Ísland.

 Fyrri þætti má finna á:  www.stormsker.net

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband