Færsluflokkur: Lífstíll

Geir um Grey frá Gay til Gauðs

Asni.jpgÉg tek undir með Geir Hor: Það er svolítið gremjulegt að "ríkiskerfið" skyldi hafa klúðrað málunum pínulítið. Árið 2009 gæti orðið svona frekar óspennandi þó það séu reyndar "mjög spennandi tímar framundan hjá Sjálfstæðisflokknum," einsog Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir benti á fyrir stuttu í miðri kreppunni.

Einhverjir gætu hugsanlega misst aukavinnuna tímabundið og svo er ekki loku fyrir það skotið að einhverjir óaðsjálir lúðar í Breiðholti lendi í smá vandræðum með að borga af blokkarkompunum sínum og kannski að nokkrir þurfi að fara að borða nautasteikur í staðinn fyrir hreindýrafille. En þetta er ekkert sem þarf að hafa miklar áhyggjur af því við búum við styrka stjórn valinkunnra spesíalista.

 

fyrir_islenska_stjornmalamenn_772929.jpgÞað er rétt sem Geir segir að menn voru algerlega "óviðbúnir þegar fjármálaóviðrið skall á okkur." Aðeins nokkrir tugir innlendra og erlendra sérfræðinga höfðu varað ríkisstjórnina við mánuðum saman en þeir áttu það reyndar allir sameiginlegt að vera ómarktækir fávitar sem þurftu "á endurmenntun að halda," einsog Þorgerður Katrín orðaði það svo skemmtilega rétt fyrir hina svokölluðu "kreppu." Á sama tíma sagði Imba Solla: "Hér er engin kreppa," og hitti þar naglann á höfuðið einsog endranær.

 

Davíð Oddsson sagði við Geir á síðasta ári að það væru 0% líkur á að bankarnir myndu lifa af og í kjölfar þeirra orða voru settir nokkur hundruð milljarðar í að reyna að bjarga Kaupþingi. Einmitt. Geir segir: "Við töldum að Kaupþing myndi lifa þetta af, alveg fram á síðustu stundu." Samt voru 0% líkur á því samkvæmt orðum Davíðs. Niðurstaðan: 100% rugl.

Þó að maður skilji þetta ekki alveg þá hlýtur að vera eitthvað mikið vit í þessu öllu hjá okkar framsýnu ráðamönnum. Varla höfum við verið að kjósa yfir okkur einhverja asna! Svo er líka svo þægilegt að vita af því að ekki taka síðri proffar við eftir kosningar, semsé Vinstri græningjar. Þá fyrst byrjar nú gleðin og fagmennskan fyrir alvöru. Jibbííí!!!! Guð blessi Ísland.  

 

 


mbl.is Geir: Árið verður mjög erfitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsetinn bað um að stjórnarskráin yrði brotin

Óli Bónusgris.gifÞetta er mjög einfalt. Ég skal reyna að orða þetta kurteislega:  Annaðhvort er maðurinn fábjáni eða trúður. Ég hallast að því síðarnefnda. Ólafur er stjórnmálafræðingur og ætti því að þekkja stjórnarskránna jafnvel betur en útrásarvíkingana.

Kannski að fjármálaráðherrann geti aðstoðað hann við launalækkunina, en ef Ólafur er svona gasalega sólginn í að lækka laun sín og bæta þannig fyrir afglöp sín í starfi sem útrásarmella og lírukassaapi fyrir Baugsveldið þá á hann bara að gera það þegjandi og hljóðalaust og skrumlaust og hræsnislaust og slaka hinum og þessum góðgerðarfélögum millu á mánuði og svo gæti kannski hans betri helmingur bætt einhverju við. Hún hlýtur að mega missa einn lítinn demant úr námunni. Þetta er ekkert flókið

Það er svakalega lásí og idjótískt af honum að biðja Kjararáð að lækka laun sín þegar hann veit nákvæmlega hver niðurstaðan verður. Nema náttúrulega að hann hafi ekki vitað það og þá hefur hann þá einu afsökun að hann sé fábjáni og því kannski alveg tilvalinn sem samnefnari og sameiningartákn þjóðarinnar.

Forsetaembættið kostar þjóðarbúið nokkur hundruð milljónir á ári og þessari fúlgu væri án nokkurs vafa betur varið í styrkingu mennta - og heilbrigðiskerfisins og í aðstoð við þá sem hafa ekki til hnífs og skeiðar. Ef Ólafur vill raunverulega koma að gagni og spara þá færi vitaskuld best á því að hann segði af sér og leggði til í leiðinni að þetta tilgangslausa fokdýra snobbembætti yrði lagt niður í snarhasti.

Þessar endalausu leiksýningar forsetans fara að verða álíka þreyttar og hallærislegar og hárgreiðslan. Hann er búinn að koma embættinu niður í forarpytt sýndarmennsku, auðmannadekurs og ótrúverðugleika og í þeim skít situr hann sem fastast.

Ólafur er sannkallaður "for-seti."


mbl.is Kjararáð getur ekki lækkað laun forsetans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maður getur grætt milljarða á "mistökum"

bjarni_engill.jpgÉg skrifaði til gamans niður hluta af Kastljósviðtali sem Sigmar Guðmunds átti við Bjarna Ármanns fyrir stuttu. Allt annað að sjá þetta svona á prenti. Verður hálf hlálegt. Auðveldara að sjá í gegnum froðuna. Ég hef þetta algerlega orðrétt en innskot innan sviga eru hinsvegar mín.

 

Bjarni: „Það varð mikill vöxtur á löngu tímabili hér á landi og eitt af því sem ég lagði upp með var að launakjör héldust í hönd við þann árangur sem að fyrirtækin og menn voru að ná - og ég held að það sem fór úr böndunum sé tvennt: Annarsvegar það að fjárhæðirnar sem slíkar urðu of háar, (þær urðu ekki of háar fyrir slysni, þær voru hækkaðar af bankastjórunum) og hinsvegar að líklega var maður að ofmeta mikilvægi einstaklingsins í að ná þeim árangri sem náðist (sem var að setja bankann á hausinn) og þá er ég ekki að undanskilja sjálfan mig í því." (Semsé: „Mistök").

Bjarni: „Við gengum úr þeim viðmiðunum sem samfélagið hafði um launakjör. Tölurrnar urðu einfaldlega miklu stærri en nokkurn óraði fyrir." (Endurtek: Þær urðu ekki of háar. Þær voru hækkaðar af bankastjórunum. En semsé: „Mistök")

bjarni_med_fenginn.jpgBjarni: „Jú þetta kallast græðgi á góðri íslensku." (og væntanlega „mistök").

Bjarni: „Græðgi er einn af þeim kröftum sem drífur svona kerfi áfram, og hún er ekki alslæm í sjálfu sér, en auðvitað má hún ekki vera of mikils ráðandi, en sem er klárlega það sem gerðist."  (Semsé: „Mistök")

Sigmar vitnar í nýlega „sorry"blaðagrein Bjarna: „Þú ert að lýsa alveg hreint órúlegum sofandahætti, Svo ég noti nú bara þín eigin orð Bjarni: Þið voruð of sókndjarfir, þið bjugguð til launakerfi sem fór úr böndunum, þið ástunduð einhverskonar hjarðhegðun, ykkur skorti skilning til að lesa samfélagið, þið sköpuðuð of veikan grunn til að standast sviptingarnar, þið létuð glepjast af hraða og skammtímaárangri og misstuð sjónar á langtímahagsmunum og gildum samfélagsins. Í ljósi þessa er þá ekki galið að þið séuð að fá fleiri hundruð milljónir fyrir það að vera í raun svona vankaðir?"

Bjarni: „Það er alveg ein leið til að líta á þetta og alls ekki röng túlkun á því sem ég er að segja... það er alveg klárt að við fórum fram úr okkur sjálfum. Það má líka lýsa þessu sem sofandahætti."  (Nei, frekar sem „mistökum." Það kemur betur út).

bisness_771358.gifSigmar: „Er ekki ósanngjarnt að þið sem gátuð farið út úr kerfinu á réttum tíma að þið skuluð sitja með svona mikla peninga á milli handanna á meðan almenningur er að verða fyrir allri þessarri lífskjararýrnun á sama tíma? Þú ert búinn að vera með á árabilinu 2004 - 2007 heilar 900 milljónir í laun og þú ert líka að selja hlutabréf fyrir marga milljarða. Þú ert sjálfsagt búinn að ganga út úr bankanum með fleiri fleiri milljarða."

Bjarni: „Ég held að það sé alveg rétt lýsing að segja að það sé ósanngjarnt. Og það er kannski það sem ég er að gera í þessarri grein, er að horfa gagnrýnið á sjálfan mig í því ljósi sem hefur gerst þ.e.a.s. að kerfið hefur hrunið og það er verið að leggja hér álögur á fólk sem hefur ekkert til þess unnið."  (Smá tæknileg „mistök")

Sigmar: „Og hvernig ætla menn að bregðast við því? Það er ekki nóg að segja bara í einhverri Fréttablaðsgrein „Mér þykir þetta leitt"?

Bjarni: „Nei nei. Það er alveg hárrétt. Og auðvitað er ég, alveg frá því að þessir atburðir gerðust í haust, búinn að hugsa „hvað gerði maður rangt og hvar hugsaði maður hlutina vitlaust og hvað getur maður gert til að bæta fyrir það og hvernig getur maður komið á svona nýju gildismati ef svo má segja, þó ekki sé nema hjá sjálfum sér. Og mín niðurstaða var sú...að greiða Glitni til baka þær greiðslur sem ég hafði fengið eftir að ég lauk mínum starfskyldum hjá Glitni, 370 milljónir." (Jibbííí! Málið dautt).

Sigmar: „Og finnst þér þar með nóg að gert í ljósi þess að þú ert búinn að hafa miklu meiri tekjur af fyrirtækinu í formi sölu hlutabréfa?"

Bjarni: „Ja sko einhversstaðar...einhversstaðar verður maður að horfa á hlutina í samhengi og hvað maður hefur gert...uuuu...ég horfi á mál sem mér finnst vera mistök hjá mér, en ég er auðvitað ekki að segja að ef að ég hefði ekki gert þessi mistök þá hefði kerfið ekki hrunið. Það eru auðvitað fjölmargir þættir sem þar koma inní, bæði annarsstaðar frá sem og frá öðrum aðilum. (Já, það eru svona um 30 aðrar útrásarhetjur sem lögðu hönd á plóginn við að koma landinu til helvítis). En ef ég horfi á þessar tölur í samhengi við það sem þú nefnir og dregur upp að þá sýnist mér svona gróft að ef ég tek þau laun og þá bónusa og alla þá kauprétti sem ég hef fengið á því 10 ára tímabili sem ég starfaði hjá bankanum og skitnir_771360.pngfyrirrennurum hans og dreg frá þá skatta og skyldur sem ég hef greitt til samfélagsins á þeim tíma þá jafngildir þessi greiðsla (370 millur) um helmingi af þeim greiðslum sem ég hef fengið í minn hlut." (Skiptimynt miðað við það sem hann hefur sogið út úr bankanum).

Sigmar: „Helmingi af öllum þeim greiðslum sem þú hefur fengið sem stjórnandi bankans?"

Bjarni: „Já."

Bjarni: „Ég er reiður út í sjálfan mig fyrir að hafa trúað of mikið á það góða, (græðgina) þ.e.a.s. að markaðurinn gæti haft eftirlit með sjálfum sér og að markaðsaðilar sæju langtímahagsmunina í því en það var ekki raunin. Ég sá það ekki einusinni sjálfur."  (Með kíkinn fyrir blinda auganu. Semsé: „Mistök").

Bjarni: „Við ofmátum virkni markaða." (Það voru nú bara smá „mistök").       

Sigmar: „Eins og þú ert búinn að lýsa þessu: Þú ert áhættusækinn, þú ert sókndjarfur, þú ferð glannalega og þú lest stöðuna ekki rétt og svo koma einhverjir inn (Jón Ásgeir og Hannes Smára) sem eru hvað - VERRI en þú?! Ég er að reyna að draga upp þessa mynd af því að þú ert búinn að lýsa þínum ákvörðunum sem kolröngum sko, og svo koma einhverjir aðrir sem eru ennþá verri?"

Bjarni:  „Já það má alveg draga upp þá mynd, því að síðan fór kerfið í enn meiri vöxt og gjaldmiðillinn okkar lenti í miklum hremmingum og við soguðumst inní spíral sem við náðum ekki að vinda ofan af sem þjóð." (Kerfið fór ekki af sjálfu sér í enn meiri vöxt. Vaxtaræktarhetjur útrásarinnar stútfylltu það af sterum).

hannes_smarason_og_jon_sgeir.jpgSigmar:  „En þessir menn sem fóru ekki svona varlega Bjarni, þú fórst seinna í samstarf með þeim stuttu síðar í REI-málinu, þeim Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Hannesi Smárasyni."

Bjarni:  „Það er rétt." (Alveg óviljandi „mistök").

Sigmar:  „Þú virðist þá ekki hafa lært mikið af því að hafa verið varkárari aðilinn þarna nokkrum mánuðum fyrr?"

Bjarni:  „Nei það má svo sem alveg segja það. Og ég get svo sem ekkert litið á þetta REI-mál annað en sem stórkostleg Mistök, hvort sem er af minni hálfu eða annarra, - af minni hálfu í fyrsta lagi bara að þiggja það að koma inn í þetta mál. Í öðru lagi að vera þátttakandi í því og keyra þetta mál áfram á þeim hraða sem gert var." (Og afhverju var það keyrt áfram á svona miklum hraða? Vegna þess að þeir ætluðu að sölsa undir sig auðlindir þjóðarinnar).

Sigmar:  „Gerðir þú ekki meira heldur en að koma þarna inn? Varst þú ekki ákveðið hreyfiafl og drifkraftur í að keyra þetta allt í gegn?"

Bjarni:  „Jú. Ég taldi þetta vera rétta leið. Og það var líka röng ákvörðun að fara í samruna við Geysi Green Energy og draga þar semsagt draga semsagt FL að borðinu sem hluthafa.

Og þá er semsagt ekkert annað við því að gerast eða bregðast en að heldur en að horfa á þá stöðu og gera það sem hérna gerðist þar að segja sig frá málinu og hverfa á braut." (Voðalegt tafs er þetta þegar kemur að Geysi Green og FL Group).

Sigmar:  „En þú varst náttúrulega lengi að móast, þú vildir halda þessu til streitu, lengi, svo mánuðum skipti?"

Bjarni:  „Nei. Ég taldi semsagt rétt að gera þetta, en þegar að það var ekki vilji til þess af hálfu Orkveitunnar lengur að þá að sjálfsögðu bauðst ég til að draga mig í hlé..og var beðinn um að vera eitthvað áfram en fór bara frá málinu."

 

hannes-smara-og-bjarni-armanns.gifÞann 6. okt. 2007 var Fréttablaðs-viðtal við vinina Bjarna og Hannes Smárason. Bjarni var þá  stjórnarformaður REI og Hannes Smárason var forstjóri FL Group og stjórnarformaður Geysis Green Energy. Þeir vinir sögðu þar að sameining fyrirtækjanna hefði verið afar skynsamleg og „rosalega spennandi."

Auðvitað er „rosalega spennandi" að hirða íslensk orkufyrirtæki. Í kjölfarið ætluðu þeir sér að fara í kröftuga útrás og ná undir sig raforkufyrirtækjum og orkulindum annarra þjóða: „Við erum þegar með í pípunum fjárfestingar í fjórum heimsálfum og verulega metnaðarfull markmið til komandi ára..."

Viðhorf þeirra til Íslands lýsir sér vel í þessum orðum: „Þetta snýst um að fjárfesta í virkjunum víðsvegar um heim og kemur Íslandi ekki við, nema að því leyti sem snýr að þekkingunni og baklandinu hvað það snertir."

ossuraforsiduthjodlifs.jpgÞeir voru búnir að plata gamla góða Villa borgarstjóra alveg uppúr skónum, en sexmenningarnir í borgarstjórn Sjálfstæðisflokksins stoppuðu þetta glæfraspil (landráð?) af á síðustu stundu og fengu miklar skammir í hattinn, sérstaklega frá Össuri Skarphéðinssyni, iðnaðarráðherra. Össuri fannst nefnilega alveg frábært að draga furðufyrirbærið FL Group inní REI og kallaði það „viðskiptalega snilld." Það þarf ekki að taka það fram að hann situr ennþá, að sjálfsögðu.

Bjarni Ármanns trompaðist þegar sexmenningunum tókst að stöðva glæpinn. Þann 1. nóv. 2007 sagði hann í viðtali við visir.is að hann teldi ákvörðun Borgarráðs ranga: "Ég er ekki í pólitík en mér virðist sem það sé verið að kasta verulegum fjármunum á glæ með þessari ákvörðun." Það er rétt að HANN varð af „verulegum fjármunum" en hann var ekkert að hugsa um það hvort að þjóðin væri með þessu að „kasta verulegum fjármunum á glæ." Í veftímaritinu Deiglunni sakaði hann sexmenningana um að hafa skaðað ímynd íslenskra orkufyrirtækja á alþjóðavettvangi. Í dag kallar hann hinsvegar þetta REI-mál allt „stórkostleg mistök."

Stórrán sem mistekst er auðvitað „stórkostleg mistök." Hefði ránið hinsvegar tekist væri það „rosalega spennandi" og „viðskiptaleg snilld."

 

Aftur að Kastljósi:

bjarni_clouseau.jpgSigmar:  „En nú ert þú búinn að fara yfir þessa sögu svolítið svona gróflega og það eru mistök og mistök og mistök og mistök á mistök ofan Bjarni, sko...ég meina, hversu góður viðskiptamaður ertu þegar þú ert búinn að rekja þetta allt?"

Bjarni:  „Það auðvitað svo sem bara sést þegar horft er yfir einhverja heildarmynd sko." (Hryllingsmynd).

Sigmar:  „Er þetta ekki falleinkunn?"

Bjarni:  „Ég vil ekki meina að þau 10 ár sem ég er að stjórna FBA og síðan Íslandsbanka FBA og svo Glitni hafi verið tóm katastrófa eða bara röð mistaka. Ég vil meina að þarna hafi verið byggt upp sterkt og gott fyrirtæki."

Sigmar:  „Sem að hrundi."

Bjarni:  „Já, sem að hrundi." (Mjög STERK og GÓÐ fyrirtæki hrynja alltaf einsog spilaborgir sé blakað við þeim).

Sigmar:  „Við endum alltaf þar."

bjarni ármanns eftir öll mistökin.jpgBjarni:  „Inní þessum hérna, inní þessari uppbyggingu voru punktar veikleika sem urðu okkur að falli. Það er alveg klárt. Og þessvegna er ég að koma fram og skýra frá þessu og þetta er í mínum huga einlægt uppgjör og og og þetta er ekki..."(Segðu það bara, þetta voru bara alltsaman smá „mistök").

Sigmar: „Þú ert að gefa sjálfum þér falleinkunn samt? Ég ætla bara að fá þig til að meta sjálfan þig. Er þetta ekki falleinkunn?"

Bjarni:  „Ja, fyrirtækið er komið í greiðslustöðvun þannig að það getur í sjálfu sér ekki verið neitt annað, þannig að sá ferill sem ég hef hvað þetta varðar er að hafa byggt upp fyrirtækið sem síðan, sem síðan féll og það er auðvitað það sem ég lifi með."

 

Þjóðin lifir með þessu líka, en munurinn er kannski sá að heimilin hafa ekki milljarða í vasanum, nema í formi skulda.


Raddir Harðar og hjarðarinnar

hordur_torfa_i_spjalli.jpgHörður Torfa gengur hnarreistur að ræðupallinum á Austurvelli í passlega alþýðlegum verkamannafrakka sem hann krumpaði vel og vandlega heima hjá sér áður en hann lagði af stað. Hann er nýkominn úr viðtali við DV þar sem hann sagði orðrétt: Það kemur ekki að þessum palli fólk sem hefur unnið fyrir stjórnmálasamtök."  Þessi orð hans klingja ekki í höfðinu á honum þegar hann fer að handvelja úr hópnum fólk sem má tala:

„Nei blessaður Einar Már, ert þú ekki örugglega ennþá í Vinstri grænum? Gott. Þá máttu tala. Nú og þið eruð hérna líka mætt, allt kommagerið: Pétur Tyrfings og Kristín Tóma, systir Sóleyjar og Katrín Odds og Viðar Þorsteins. Flokksbundin og flott. Í rétta flokknum. Glæsilegt. Þið megið tala. Ég vil nefnilega að mikill meirihluti frummælenda sem ég leyfi að tala hérna á pallinum séu í Vinstri grænum eða tengist þeim með einum eða öðrum hætti svo að mótmælin beinist í rétta átt. Við verðum að hagnýta okkur harmleik fólksins og nota þessi mótmæli til að koma Vinstri grænum til valda."

Það er bankað í bakið á Herði og hann snýr sér við og segir undrandi:

-  „Blessaður. Er þetta ekki bara sjálfur Steingrímur J.?"

georg_bjarnfredarson.jpg-  „Nei, ég heiti Georg Bjarnfreðarson. Það er þarna einhver smá miiisskilningur á ferðinni. Okkur er oft ruglað saman. Ég myndi nú gjarnan vilja fá að tala á þessum fundi. Ég er með 5 háskólagráður: Í félagsfræði, sálfræði, kommúnis......"

-  „Og ertu örugglega í Vinstri grænum?"

-  „Já, það er ég. Ég er einsog melóna; grænn að utan en rauður að innan. Ég er meiraðsegja með merki kommúnista hérna í barminum, sigð og kamar."

-  „Nú þá er þetta ekkert mál. Þá færðu að tala. Þið hér sem ég er búinn að velja úr megið öll tala á eftir og á meðan þið talið þá ætla ég að standa beint fyrir aftan ykkur á sviðinu þannig að ég verði örugglega í mynd. Ævisaga mína var nefnilega að koma út, þið skiljið. En fyrst tala ég náttúrulega. Þetta eru nú einusinni mín mótmæli þó þau séu í þágu allra kommúnista."

Leiklistarmenntunin kemur sér vel þegar hann gengur ábúðarmikill uppá pallinn og stillir sér upp fyrir framan míkrafóninn með allan heiminn á herðunum. Hann setur í brýrnar og horfir um stund þjáningarfullu heimsósómaaugnaráði yfir soltinn múginn sem þyrstir í lausnir og æðri visku. Loks hefur hann upp raust sína:   

 

hordur_torfa_thjonar_fyrir_altari.jpgHörður:  „Viljum við ríkisstjórnina BURRRT?!"

Hjörðin:  „JÁÁÁÁÁÁ!"

-  „Viljum við spillinguna BURRRT?!"  

-  „JÁÁÁÁÁ!"

-  „Viljum við kapítalismann BURRRT?!"

-  „JÁÁÁÁÁ!"

-  „Viljum við frjálshyggjuna BURRRT?!"

-  „JÁÁÁÁÁ!"

-  „Viljum við einkavæðinguna BURRRT?!"

-  „JÁÁÁÁÁ!"

-  „Viljum við frjálsa samkeppni BURRRT?!"

-  „JÁÁÁÁÁ!"

-  „Viljum við einstaklingsframtakið BURRRT?!"

-  „JÁÁÁÁÁ!"

-  „Viljum við frelsi einstaklingsins BURRRT?!"

-  „JÁÁÁÁÁ!"

-  „Viljum við mannlegt eðli BURRRT?!"

-  „JÁÁÁÁÁ!"

-  „Viljum við gamla spillta Ísland BURRRT?!"

-  „JÁÁÁÁÁ!"

-  „Viljum við gömlu ónýtu flokkana BURRRT?!"

-  „JÁÁÁÁÁ!"

-  „Viljum við nýtt og ómengað Ísland?!"

-  „JÁÁÁÁÁ!"

frelsarinn_769890.jpg-  „Viljum við Vinstri græna?!"

-  „JÁÁÁÁÁ!"

-  „Viljum við kommúnisma?!"

-  „JÁÁÁÁÁ!"

-  „Viljum við að Ísland verði Kúba norðursins?!"

-  „JÁÁÁÁÁ!"

-  „Viljum við forsjárhyggju og afturhald?!"

-  „JÁÁÁÁÁ!"

-  "Viljum við alla skynsemi BURRRT?!"

-  "JÁÁÁÁÁ!" 

-  "Viljum við fara að ferðast um í uxakerrum?!"

-  "JÁÁÁÁÁ!"

-  „Viljum við eftirlaunaforréttindi ráðamanna BURRRT?!"

-  „JÁÁÁÁÁ!"

-  „Viljum við Steingrím J. Sigfússon sem studdi eftirlaunafrumvarpið?!"

-  „JÁÁÁÁÁ!"

-  „Viljum við gjafakvótakerfið BURRRT?!"

-  "JÁÁÁÁÁ!"

-  „Viljum við Steingrím J. Sigfússon sem styður gjafakvótakerfið?!"

-  „JÁÁÁÁÁ!"

-  „Viljum við sérréttindi kvenna og kynjakvóta BURRRT?!"

-  „JÁÁÁÁÁ!"

-  „Viljum við ofurfemínistann Steingrím J. Sigfússon sem styður sérréttindi kvenna og kynjakvóta?!"

-  „JÁÁÁÁÁ!"

-  „Viljum við frelsi til að drekka bjór eins og aðrar þjóðir?!"

-  „JÁÁÁÁÁ!"

-  „Viljum við Steingrím J. Sigfússon sem studdi bjórbannið og vildi bjórinn BURRRT?!"

-  „JÁÁÁÁÁ!"

netlogregla.gif-  „Skál fyrir því! Viljum við Stóra Bróður BURRRT?!"

-  „JÁÁÁÁÁ!"

-  „Viljum við Steingrím J. Sigfússon sem heimtar netlögreglu!?"

-  „JÁÁÁÁÁ!"

-  "Viljum við allt klám BURRRT?!"

 -  "JÁÁÁÁÁ!"

-  "Viljum við eina lögreglu í hvert svefnherbergi?!"

-  "JÁÁÁÁÁ!"

-  „Viljum við boð og bönn og höft á öllum sviðum mannlegs lífs?!"

-  „JÁÁÁÁÁ!"

-  "Viljum við þindarlaus ríkisafskipti og óbærileg leiðindi? 

-  "JÁÁÁÁÁ!"

-  „Viljum við VINSTRI GRÆNA?!"

-  „JÁÁÁÁÁ!"

-  „Viljum við flokk sem hefur akkúrat ENGAR lausnir á vandanum?!"

-  „JÁÁÁÁÁ!"

-  „Viljum við sama skítinn, bara úr öðru rassgati?!"

-  „JÁÁÁÁÁ!"

steingrimur-mosdal.jpg-  „Viljum við Vinstri græna með þá Steingrím J. Sigfússon, Kolbrúnu Halldórsdóttur, Martein Mosdal og Georg Bjarnfreðarson í broddi fylkingar til að stjórna þessu landi?!"

-  "JÁÁÁÁÁ!"

-  „Vinstri grænir eru núna með 30% fylgi. Viljum við kosningar STRAX?!"

kosningar_strax.jpg-  „JÁÁÁÁÁ!"

-  „Ég spyr aftur: Viljum við kosningar STRAX?!"

-  „JÁÁÁÁÁ!"

-  „Viljum við fara BURRRT úr öskunni og BEINT í eldinn og það STRAX?!"

-  „JÁÁÁÁÁ!"

„Örvitar allra landa sameinist: HÚRRA! HÚRRA! HÚRRA! HÚRRAAAAA!!!!!!!!!"


mbl.is Hörður: Mótmælin rétt að byrja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðgerðir skila árangri, ekki skiltagerðir

geisp.jpgÞað er sárt að segja það en ég get lofað ykkur því kæru krepplingar og hef það frá fyrstu hendi að stjórnmálamenn taka akkúrat Ekkert mark á fundahöldum einsog þeim sem úlpurnar eru að halda niðrá Austurvelli. Þeim gæti ekki verið meira sama. Pulsujapl og geisp og dösuð ræðuhöld hrófla ekki við sálarró þeirra. Friðsamleg skiltamótmæli í þessum dúr bíta ekki á þá frekar en rök á fávita.

 

Ef fólk heldur að Gandhi og Martin Luther King og þeirra gengi hafi iðkað svona svefndrukkin mótmæli þá er það regin misskilningur. Það var borgaraleg óhlýðni sem skilaði árangri.

 

geieieisp_768452.pnghippo-yawn.jpgStjórnmálamenn voru ekki sáttir við að Kryddsíldinni þeirra skyldi hafa verið sturtað niður en þeir eru hinsvegar afar sáttir við sakleysisleg ræðuhöld og hangs niðrá Austurvelli. Við eigum ekki að láta þessa slímsetustjórnmálamenn og spillingarforkólfa í bönkum og skítafyrirtækjum vera sátta. Við erum ekki sátt við þá og á meðan þeir sýna engan vilja til úrbóta skulu þeir ekki vera sáttir við okkur. Við eigum að fara verulega í taugarnar á þeim. Við eigum að flæma þá út úr grenjum sínum með óhlýðni og taumlausum leiðindum.

Eitt er víst: Aðgerðir skila árangri, ekki skiltagerðir.

 

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

 

Bendi hér á gott erindi sem Eva Hauksdóttir flutti á Opnum borgarafundi í Iðnó í fyrradag.

Viðtal mitt við Evu Hauks og Sturlu Jónsson verður endurflutt á Útvarpi Sögu FM 99,4 á "besta tíma" í kvöld klukkan 20:00 til 22:00.


mbl.is Fjórtándi fundurinn á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsóknarflokkurinn er ekki í djúpum skít. Hann ER djúpur skítur

Meðan fólk flýr úr Framsóknarflokknum einsog rottur sökkvandi skip þá finna sumir hvöt hjá sér til að ganga í hann - ólíklegustu menn, og sumir meiraðsegja tiltölulega normal og skynsamir. Varla af hugsjónaástæðum og enn síður af mannúðarástæðum einsog þeim að þarna þurfi nauðsynlega að uppræta spillingu. Það labbar enginn inná almenningsklósett og hugsar:

raestum_framsokn.jpg"Jahá, þetta klósett er alveg bráðnauðsynlegt að þrífa. Verulega freistandi. Þetta er eitthvað fyrir mig að fást við. Það er ekki hægt að hafa þetta klósett svona drulluskítugt og illa þefjandi einsog ríkisstjórnina. Best að stinga sér á kaf ofaní viðbjóðinn og byrja að ræsta."

 

Svona skýringar virka ekki, jafnvel þótt móðir Theresa ætti í hlut. Fólk sem gengur í þetta pestarbæli sér sér einfaldlega leik á borði; að þarna hljóti nú að vera auðveldara að ná frama en í flokkum sem gera einhverjar örlitlar kröfur því þarna er jú allra lægsti samnefnarinn. Dvergur virkar stór í Putalandi.

Þetta er soldið einsog ef fiðluleikari sem hvergi hefur fengið séns er staddur um borð í togara árið 1912 og hann sér Titanic mara í hálfu kafi og strengjasveit spila á þilfarinu. Hann hugsar:

titanic-sinking.jpg"Ókey, þetta skip mætti vera í aðeins betra ásigkomulagi en ég ætla nú samt að ganga í hljómsveitina og slá í gegn. Þetta er mitt eina tækifæri. Ég ætla að stökkva um borð og láta ljós mitt skína. Svona tækifæri býðst sko ekki á hverjum degi."

Auðvitað mun gæinn sökkva ennþá dýpra stuttu síðar, en hann er ekki að hugsa um það í hita framapotsins heldur eingöngu það að ná "árangri" á sem skemmstum tíma. Þetta er bankastjórahugsunin sem Bjarni Ármanns lýsti ágætlega í aflátsgrein fyrir stuttu; að græða sem mest á sem skemmstum tíma án vangaveltna um afleiðingarnar í stóru samhengi. Þetta eru skósprænar sem snúa kíkinum öfugt.

Á sama tíma og Framsóknarflokkurinn gefur fögur loforð um breytta stjórnarhætti og nýjar áherslur og úthreinsun á spillingu þá taka einhverjir 70 framsóknardúddar flokkinn yfir einsog ekkert sé með Sif Friðleifs tístandi af ánægju á bak við gluggatjöld. Það þurfti ekki fleiri til. Þessi flokkur er álíka mikið ekta og bollurnar á Pamellu Anderson og spillingin er jafn samgróin flokknum og girnisígræðslan á hausnum á Elton John. 

Ef einhver hefur haldið að betri tímar væru í vændum fyrir Framsóknarflokkinn með innkomu klárs og fróms formannsefnis einsog Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar þá er það alger misskilningur. Framsókn er og verður Framsókn á sama hátt og krabbameinskýli er og verður krabbameinskýli þó það sé gullhúðað. Framsóknarflokkurinn er stinkandi miltisbrandslík sem á að grafa djúpt í jörðu en ekki að reyna að vekja upp. 

Meiraðsegja Jónínu Ben mun ekki takast að hreinsa skítinn úr Framsókn nú eða Framsókn úr skítnum (the same shit) þrátt fyrir góðan vilja og ennþá betri græjur.


mbl.is Fjandsamleg yfirtaka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rétt hjá Imbu Sollu: Árni Mathiesen er æði

Árni Mathiesen.jpgImba hældi Árna Mathiesen sem fjármálaráðherra í hástert í Kastljósi í gær. Skiljanlega. Maðurinn er búinn að standa sig alveg óaðfinnanlega. Flott t.d. þegar hann lét bróðir sinn fá eignirnar á varnarsvæðinu á spottprís. Spilling? Nei. Ekki frekar en í bönkunum.

 

Svo var glæsilegt hvernig hann tæklaði Icesave dæmið við Darling. Það hefði allt getað farið í klúður en hann reddaði málunum gjörsamlega.

 

bjorgvingsigurdsson.jpgÁrni og Björgvin G. Sigurðsson eru líklegast þeir sem fylgjast hvað best með því sem er að gerast í þjóffélaginu. Þeir eru alltaf með svör á reiðum höndum enda vel inní öllum málum. Aldrei undir nokkrum kringumstæðum myndu þeir segja:

"Ég veit það ekki."  "Ég hef ekki heyrt um þetta."  "Mér hefur ekki verið sagt frá þessu."  "Mér þykir þú segja fréttir."  "Ég held að málið sé í skoðun."  "Var þetta í blöðunum?"  "Ertu að segja mér að það sé eitthvað til sem heitir KPMG?"  "Hvað áttu við með ábyrgð?"  "Hvað sagðirðu að íslenski seðlabankastjórinn héti?"  "Ég kannast ekki við þetta."  "Bíddu, ertu að meina að þetta mál heyri undir mig?"  "Ég man ekki eftir að hafa fæðst í gær."  "Ef ég vissi hvað ég héti þá myndi ég segja þér það."  

 

dr_jekyll_and_mr_hyde.jpgÞað er ekkert skrítið að Imba Solla skuli vera ánægð með þessa kappa. Sjálf er hún gjörsamlega búin að brillera í stjórninni. Hún er virkilega fulltrúi fólksins í landinu þó að engin okkar hinna sé það.

 

 

 

 

 

 

                                                                                                                       Dr. Jekyll and Mr. Hyde


Björgólfur Thor er 29 ríkasti maður Bretlands en gasalega blankur á Íslandi

bjorulfur_thor.jpg

 

Djöfull ætla þessir auraapar að leika þjóðina grátt. Bjórúlfur Thor sagði í Kastljósviðtali fyrir stuttu að hann myndi svo sannarlega axla ábyrgð en myndi hinsvegar ekki koma með neina peninga í uppbyggingu landsins. Á nútímaíslensku þýðir þetta einfaldlega: "I don´t give a shit. Fuck you!"

 

Bretar settu Landsbankann á hryðjuverkalista þegar þeir komust að því að það væri verið að flytja hundruði milljarða úr Icesave í Bretlandi úr landi. Þetta var náttúrulega ekkert annað en efnahagslegt hryðjuverk. Líklega eitt stærsta bankarán heimssögunnar.

 

 Hvar eru þessir peningar? Hókus pókus - Horfnir. Og enginn spyr um þá. Þessir bankadelar eru slíkir galdrakarlar og seiðskrattar að við þurfum ekki að skammast okkar fyrir að nota orðið "nornaveiðar." Það þarf einmitt að persónugera vandann. Þeir sem segja annað eru annaðhvort fábjánar eða persónur og leikendur í spilinu. Allar þessar morðfúlgur fjár þurfa Íslendingar að borga næstu áratugina meðan ræningjarnir tróna á listum yfir ríkustu menn heims.

 

Hvað er þetta annað en alþjóðleg glæpastarfsemi? Ef ríkisstjórn Íslands væri ekki samansafn af glæpsamlega vönkuðum geðlurðum og hlandaulum þá væri hún fyrir löngu búin að setja Interpol í málið.

 

Það er ótækt að Bjórúlfur Thor og aðrir kennitöluflakkandi útrásargosar skulu fá að ganga um "blankir" á Íslandi en moldríkir í útlöndum á meðan þjóðinni blæðir út af þeirra völdum. Þeir eiga Hvergi að fá að ganga lausir meðan á "rannsókn" málsins stendur, - "rannsókn" sem því miður mun aldrei hefjast af neinni alvöru ef íslenskir gjörspilltir stjórnmálalúðar fá að ráða.


mbl.is Elín borin út úr bankanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Atvinnumistakamaðurinn Bjarni Ármanns

clouseau.jpgÖll gerum við mistök, en aðeins örfá okkar hafa atvinnu af því að gera mistök og græða á þeim fúlgur fjár. Bjarni Fjármanns er einn slíkur lukkunnar pamfíll. Hann hefur gert svo mörg stór og glæst mistök í fjármálum að hann þarf aldrei að vinna meir. Inspector Cloueau hefði ekki haft roð við honum enda var sá gæi bara í því að reyna að gæta laga og reglu og sleppti öllu peningaklúðri. (Hér á Íslandi er bara einn lögreglumaður sem veit hvað er að vera "múraður" í vissum skilningi og það er sá kinnbeinsbrotni).

 

 

bjarni_rmanns.pngBjarni birti merkilega grein í Fréttablaðinu á mánudaginn þar sem hann fer yfir stórkostlegan feril sinn í fjármálum sem er þakinn svo glæsilegum mistökum að hann varð milljarðamæringur fyrir vikið á aðeins örfáum árum. Kíkjum aðeins á nokkrar setningar Bjarna úr þessari grein, (orð hans eru skáletruð):

 

 

„Ég get verið sjálfum mér reiður fyrir að hafa tekið ákvarðanir í uppbyggingu kerfis sem ekki stóðst, en með þeim ákvörðunum verð ég að lifa."  (Auðvelt að lifa góðu lífi með mistökum sem voru milljarða virði, beint í lommen. Þjóðin verður hinsvegar að skrimta með þessum mistökum).

„Trú mín á krónuna."  (Þjóðleg mistök sem borguðu sig þá).

„Uppbygging launakerfis sem fór úr böndunum."  (Mjög gróðavænleg mistök)

_slenskur_bankastjori.gif„Hjarðhegðun sem leiddi til útlánaþenslu."  (Samtryggingarmistök).

„Í fjölmörgum atriðum hefur okkur því miður farist óhönduglega."  (Fagleg mistök).

„Í raun hlúðum við ekki að því hvernig við vildum að fjármálakerfið liti út í upphafi einkavæðingar."  (Heppileg mistök fyrir útrásarvíkinga).

„Þegar dreifðu eignarhaldi var kastað fyrir róða vorum við að búa til of sókndjarft kerfi." (Bráðnauðsynleg mistök fyrir útrásarbudduna).

„Samhliða þessu héldum við ekki úti nógu ströngu eftirlitskerfi."  (Afar heppileg mistök).

„Okkur tókst heldur ekki að skapa nauðsynlegar hefðir í fjármálageiranum, þrátt fyrir viðleitni þar að lútandi."  (Skiljanleg mistök).

_slensk_vi_skiptasnilld.jpg„Trú mín og margra annarra á að markaðurinn gæti smíðað sitt eigið regluverk og framfylgt því reyndist ekki byggð á nægjanlega traustum grunni."  (Heillavænleg mistök).

„Nú er ljóst að sú umgjörð sem smíðuð var um fjármálageirann dugði ekki."  (Arðvænleg mistök).

„Skorti þar bæði á skilning okkar sem störfuðum í fjármálageiranum á því að lesa samfélag okkar og gæta samhengis við það."  (Ég-um-mig-frá-mér-til-mín-mistök).

„Sömuleiðis skorti á skilning stjórnmálamanna á starfsemi alþjóðlegra fjármálafyrirtækja og þar með hvers konar ramma þau þurfa að búa við."  (Samhjálparleg mistök).

„Við sem leiddum mismunandi þætti íslenska fjármálakerfisins sköpuðum of veikan grunn til að standast (alþjóðlegu) sviptingarnar. Þar gerðum við mistök í því að byggja upp of stórt kerfi á of skömmum tíma, reiða okkur á lítinn gjaldmiðil og peningamálastefnu sem ekki gat gengið til lengdar í heimi alþjóðaviðskipta."  (Banka-mannleg græðgismistök).

„Við létum einnig glepjast af hraða og skammtímaárangri og misstum þar með sjónar á langtímahagsmunum og gildum samfélagsins."  (Sömu græðgismistök).

„Ég og aðrir þeir sem unnu að framgangi fjármálageirans hljótum að viðurkenna mistök okkar, læra af þeim og nýta lærdóminn til að byggja upp til framtíðar."  (Sigurjón Þ. Árnason sem vann líka að „framgangi fjármálageirans" er t.d. farinn að kenna fjáglæf...fjármál í Háskólanum. Það kallast víst að "nýta lærdóminn til að byggja upp til framtíðar").

„Mikilvægt er að við náum að vinna okkur hratt út úr vandanum og byggja upp traust í samfélaginu á nýjan leik."  (Svo að hægt sé að arðræna þjóðina aftur og kreista síðasta blóðdropann úr henni. Allavega fara útrásargreifarnir ekki að borga til baka milljarðana sem þeir fengu í laun fyrir öll „mistökin").

„Mistök fortíðar leiddu okkur á þann stað sem við erum á núna."  (Í þriggja hæða lúxusvillu í útlöndum).

„Eins mikilvægt og það er að rannsaka ítarlega hvað gerðist, skiptir ekki síður máli að hver og einn horfi í eigin barm og bregðist við því sem hann þar finnur."  (Þjóðin á semsagt að gera sér grein fyrir mistökum sínum sem fólust helst í því að treysta mistækum útrásarbankamönnum sem ætluðu að láta það verða sín næstu og stærstu „mistök" að ræna orkulindunum).  

Þjóðin má ekki við fleiri skipulögðum "mistökum" auðmanna og stjórnmálamanna.

Kannski voru það mistök hjá Bjarna Fjármanns vini vorum að skrifa þessa grein.

 

 

 

 


Nú árið er liðið, sem betur fer

aramotakvedja_til_gamla_islands.jpgNúna erum við að sprengja burt gamla árið en á þessu nýja munum við vonandi sprengja burt gamla hyskið. Sprengjugnýrinn hér fyrir utan lætur sem fuglasöngur í mínum eyrum.

Árið sem nú er að líða byrjaði illa með áramótaávarpi forsætisráðherra og forseta en endaði nokkuð vel með huggulegum mótmælum. Árið endaði semsagt nokkuð gleðilega og vonarstyrkjandi þrátt fyrir árámótaskaupið. Þótt árið sé liðið þá er fárið ekki liðið, en á nýju ári verður vonandi stjórnarliðið og spillingarliðið liðið.

Myndin sem ég læt hér fylgja er áramótakveðja mín til gamla Íslands. Megi gott og byggilegt Ísland upp rísa. Undir okkur sjálfum komið, ef við náum að parkera þýlyndinu.

"Gleðilegt" og "farsælt" komandi ár. Það má eitthvað mikið gerast ef að þessi ósk mín á eftir að rætast, - en vonandi gerist eitthvað Mikið.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband