22.5.2009 | 12:41
Tíu lygnir landráðamenn
Ég gerði þennan texta hér að neðan í desember í fyrra þegar Imba Solla og Geir Hordeli sátu við stjórnvölinn, eða lágu öllu heldur, sofandi svefni hinna réttlötu á sínu græna eyra. Lítið hefur breyst síðan þá, nema hvað nú sefur stjórnin svefni hinna réttlátnu á sínu Vinstri græna eyra.
"Skjaldborgin" sem ríkisstjórnin lofaði að slá um heimili landsins eftir pottlokabyltinguna reyndist því miður spilaborg rétt einsog bankarnir, sem stjórnin hinsvegar leggur allt kapp á að slá skjaldborg um. Sjálf lifir stjórnin í skýjaborg, fjarri raunveruleikanum og hótar því fólki öllu illu sem hvorki getur borgað af lánum sínum né kærir sig um að reyna að slökkva útrásareldana með blóði sínu. Stjórnin er jarðsambandslaus, alveg í skýjunum. Ground control to major Dumb!!!
Útrásargarparnir, sem voru svo örlátir á fé til stjórnmálamanna, ganga skiljanlega ennþá lausir, aldrei hamingjusamari. Reyndar eru þeir sumir farnir að flýja land á venjulegum Icelandair vélum (enda vanir öllum "vélum") á monkey class til að bæta ímyndina, en þeir og þeirra fjölskyldur hafa engu að síður ekki undan að spæna í sig rándýru loðfílakjöti og risaeðlueggjum og steypa í sig úrvals kampavíni og greifast villt og galið þegar út er komið.
Ég las einhverstaðar að bankahrunið íslenska væri stærsta gjaldþrot veraldarsögunnar frá upphafi - frá því að maðurinn steig fyrst niður úr trjánum. (Kannski að við Íslendingar ættum að flytja þangað aftur?). Íslensk viðskiptasnilld mun semsé fara í Heimsmetabók Guinnes og þá líklegast einnig það afrek að þeir sem eru "grunaðir" um stórglæpinn skulu ekki ennþá hafa verið teknir svo mikið sem í 25 kerta ljósaperu yfirheyrslu. Það hlýtur bókstaflega að vera heimsmet í blábjánahætti.
Hvað um það. Þetta lag, Tíu lygnir landráðamenn, ætlar Serðir Monster vinur minn að vera með á plötu sinni "Tekið stærst uppí sig" sem kemur út í haust. Lagið má finna í tónlistarspilaranum hér til vinstri á síðunni.
Tíu lygnir landráðamenn
létu þjóð fá klígju.
Einn þaut í einkaþotu burt
og þá voru eftir níu.
Níu sekir ráðherraræflar
reyndu að leita sátta.
Einn þeirra sprakk úr spillingu.
Hvenær springa hinir átta?
Átta sofandi eftirlitsbjánar
umluðu mö mö mö.
Einn þeirra sofnaði svefninum langa.
Þá sváfu eftir sjö.
Sjö bústnir bankaþjófar
brugðu sér inná Rex.
Einn var tekinn og barinn í buff,
bólgnir voru sex.
Sex rotnir kaupréttarkálfar
kunnu þjófstartstrimm.
Einn þeirra flúði til Öfganistan,
og eftir sátu fimm.
ætluðu að verða stórir.
Einn sökk í miðja milljarðahít,
því miður sluppu fjórir.
Fjórir gráðugir glæpamenn
grilluðu landsins kýr.
Einn þeirra át yfir sig
og eftir voru þrír.
Þrír óhæfir alþingisstrumpar
ákaft hylltu Geir.
Af lotningu leið yfir einn,
og eftir voru tveir.
Tveir geislaBaugsmenn í banka
brytjuðu gögn sem einn.
Annar tróð sér í tætara,
á tánum var þá einn.
Einn hryðjuverkavibbi
vildi komast heim.
En ekki hafa áhyggjur,
það er víst nóg af þeim.
Stormsker: Söngur, bakraddir, píanó, kassagítarar, trommur, bassi, orgel, synthi og rafmagnsgítarar.
Upptakari: Snorri Snorrason idolstjarna.
Mixarar: Snorri og Stormsker.
(Baggalúti þakka ég innspírasjónina).
Rannsakar Glitni nú en áður Saddam | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 20.6.2009 kl. 19:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
14.5.2009 | 14:31
Viðtal mitt við Júrótröllið Johnny Logan
Enginn hefur oftar unnið Eurovision en írski söngvarinn Johnny Logan. Alls þrisvar sinnum. Það met verður seint slegið. Ég tók fyrst almennilega eftir því hvað kallinn var helvíti góður söngvari þegar hann bauð okkur Júróförunum í lítið partý ´88 og tók þar nokkur lög. Brilleraði gjörsamlega.
Þann 23. maí í fyrra hitaði ég upp fyrir Johnny á Hótel Íslandi. Hann hafði óskað sérstaklega eftir því við tónleikahaldarann Daníel Birgisson. Ég átti stutt viðtal við Johnny niðrí búningsherbergi áður en ég fór á sviðið og eftir spjallið var smellt af okkur þessum ágætu hryllingsmyndum. Ég ætlaði að birta þetta viðtal í einhverju blaði í fyrra en það varð ekkert úr því. Læt það flakka núna þar sem Júróið er nú í algleymingi. Þó þetta hafi kannski verið soldið skrítið viðtal þá fór það mjög friðsamlega fram. Svona er viðtalið orðrétt:
Hefur þér aldrei dottið í hug að nútímavæða nafnið þitt á tölvuöld og kalla þig Johnny Login?
Nei en ég hef kallað sjálfan mig mörgum öðrum nöfnum."
En Johnny Low-Gang?
Nei, en ég hef kallað sjálfan mig Jenny Loganawitch."
Það myndi ég líka gera ef ég væri kynskiptingur. Ef þú þyrftir að breyta nafni hljómsveitarinnar hvort myndir þú þá velja nafnið Johnny and the Silver Beatles eða Johnny and the Golden Shower, nú eða Johnny and the Low-Gang?
Myndi ekki hvarfla að mér að breyta nafninu."
Ef þú sæir Heather Mills (fyrrum eiginkonu McCartney´s) á götu hvort myndir þú ganga að henni og hvísla í eyrað á henni: Hold me now," eða saga af henni heila fótinn og berja hana með honum?
Spyrja hana Why?"
Samdirðu lagið What´s Another Air" til uppblásinnar dúkku?
Það heitir reyndar "What´s Another Year" og Shay Healy samdi það."
Nú ert þú gagnkynhneigður held ég og mikið fyrir fallegar heilvita stelpur, en hvernig kanntu hinsvegar við femínista?
Ekkert vandamál."
Jú, þeir eru reyndar vandamál, en finnst þér Eurovisionkeppnin vera hommalegri núna en hún var þegar þú tókst þátt í henni síðast fyrir rúmum 20 árum?
Nei."
Finnst þér að hún mætti vera ennþá hommalegri en hún er núna?
Nei, ég sá hana aldrei í þessu ljósi."
Finnst þér að það eigi að gera það að skilyrði fyrir þátttöku í keppninni að allir karlkyns flytjendur séu saurþjöppur?
Nei, bara að þeir séu færir um að syngja."
Hvað heitir félagsmálaráðherra Albaníu?
Ekki minnstu hugmynd."
Hvort heldur þú að skipti meira máli í dag í Eurovision, gott lag eða flott show?
Gott lag."
Grætirðu af hrifningu þegar þú heyrir nýja íslenska lagið með Eurobandinu eða missirðu trúna á mannkynið?
Bara ánægður með að þau skyldu hafa komist upp úr forkeppninni."
Afhverju ertu viss um að íslenska lagið muni hafna á botninum? Er það vegna þess að söngvarinn vill vera í botnunum?
Hef ekki hugsað út í það."
Hvort myndir þú vilja að Osama bin Laden héldist á lífi í 4 ár í viðbót eða að George W. Bush sæti enn eitt kjörtímabilið?
Drepa þá báða og láta hyldýpið leysa málið."
Heldurðu að þjóðríki einsog Vestmannaeyjar gæti einhverntíma átt smugu á að vinna Eurovision?
Veit ekki alveg um hvað þú ert að tala."
Þú hefur greinilega fengið 10 í landafræði. Með kommu á milli. Hvað hefurðu lært í mörg ár á munnhörpu og túbu?
Ég spila í rauninni á hörpu, ekki á túbu."
Finnst þér að dvergar ættu að hafa sömu mannréttindi (human rights) og fullvaxta fólk?
Nei, meiri, og ekki bara rights heldur lefts."
Kemur það oft fyrir að kellingar hendi nærbrókunum sínum og hótellyklinum uppá svið þegar þú ert að skemmta?
Ekki nógu oft."
En þegar það gerist hvort þefar þú þá af nærbrókunum og kastar þeim með hryllingi út í sal aftur, eða stingur þeim innan á þig og þefar af þeim þegar þú kemur upp á hótelherbergi?
Hvorugt."
Hefur það komið fyrir að gamlir sveittir feitir og fúlskeggjaðir vörubílstjórar hafi fleygt nærbuxunum sínum upp á svið?
Ekki beinlínis."
En þegar það gerist hvort hefur þú þá þefað af bremsuförunum á sviðinu og stungið nærbrókunum inn á þig eða bara stungið þeim strax inná þig og þefað af þeim þegar þú hefur verið kominn uppá hótelherbergi?
Hvorugt svo ég muni."
Svo þú munir? Einmitt. Hvort semur þú lögin þín á sekkjapípu eða hermannalúður?
Á píanó."
Hefurðu einhverntíma fengið svo mörg egg og tómata í hausinn á tónleikum að þú hafir pælt alvarlega í því að opna matvöruverslun?
"Ég hef aldrei fengið neitt svona í hausinn."
En múrsteina?
"Nei, aldrei."
Hvað hefurðu þá fengið í hausinn?
"Ég hef aldrei fengið neitt svona í hausinn?"
Ertu alveg viss? Þú ert semsagt bara fæddur svona? En hver er frægasti homminn sem þú hefur hitt fyrir utan söngvarann Boner í U2?
Elton John."
Veistu hversu margir erlendir söngvarar hafa verið skotnir í vömbina með afsagaðri haglabyssu á Íslandi sem spila ekki réttu lögin fyrir fólkið?
Gomma."
Heldurðu að þú náir upp góðri stemningu á Hótel Íslandi eða áttu von á því að vera spreyaður með táragasi og fjarlægður með lögregluvaldi?
Ég held að hvorugt muni gerast. Get ég átt von á því?"
Já, ef ert eitthvað ósáttur við íslenskt verðlag. Passaðu þig bara á að vera ekki með neitt múður á milli laga.
Ókey, ég skal passa mig á því."
Hvar léstu sauma þessa hárkollu sem þú ert með?
"Þetta er ekta."
Ekta hárkolla?
"Nei, ekta hár."
Einmitt. Þú ert flottur brandarakarl. Hvort ætlarðu að syngja eða vera með stand up show í kvöld?
"Ég er söngvari."
Einmitt. Og ég er Spiderman. Þakka þér fyrir spjallið. Viltu ljúga einhverju meiru svona í lokin?
"Ég bara vona að allir skemmti sér vel í kvöld."
Þú vonar það já. Er þetta óraunsæi meðfætt eða þarf maður að hafa mokað í sig smjörsýru? Þú þarft ekki að svara þessu. Ég fer núna á sviðið og þú heldur bara áfram að lifa í voninni kúturinn minn. Þakka þér aftur fyrir spjallið. Ertu ekki bara annars happy?
"Jú jú, ég er mjög hamingjusamur."
Gott. Ég vildi að eg gæti sagt það sama um fólkið sem mun hlusta á þig á eftir. Vertu blessaður.
"Blessaður."
Vertu blessaður. Blessaður, blessaður, blessaður, blessaður.
"Blessaður."
Vertu alveg hreint margblessaður í bak og fyrir.
"Já, takk. Vertu sæll."
Ég veit það nú ekki. Ég er að fara að hlusta á þig á eftir.
Við semsagt kvöddumst svona vel og vandlega og hittumst svo aftur klukkutíma síðar og fengum okkur í glas.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
11.5.2009 | 17:43
Jóhanna Guðrún í gardínuafgöngum frá helvíti
Þegar maður skoðar sígaunalarfana sem Jóhanna Guðrún ætlar að pínast í á Júróvisjón sviðinu annað kvöld þá fer ekki á milli mála að það er kreppa á Íslandi. Algjört hrun, á öllum sviðum. Var virkilega ekki til neitt skárra í Kolaportinu en þessir fáránlegu samansaumuðu þvottapokar? Hvaða handrukkari þröngvaði henni eiginlega í þennan ófögnuð? Annþór? Magabeltið er svo vandlega hert að henni að það er einsog bjórvömbin sé á leiðinni uppúr brjóstahaldaranum.
Mér finnst að vel vaxin blaðra einsog Jóhanna eigi ekki að klæða af sér kynþokkann. Jóhanna, sem hefur þessar líka fínu bollur, (sjá mynd til vinstri), lætur ekki einusinni sjást í skoruna. Hvorki að framan né að aftan einsog sexý pípari. Ég er ekki að segja að það sé dauðasök en það er ekki alveg nógu hressandi. Þetta væri náttúrulega ókey ef hún væri í laginu einsog jólatré en nú vill svo til að þetta er rennileg skonsa og rennilegar skonsur eiga að nota það sem guð gaf þeim, og hvað er það besta sem guð gaf almennilegum konum? Jú, fegurð og kynþokka. That´s it. Ef þær væru ekki sætar og ísmeygilegar þá hefðum við karlaparnir ekkert við þær að tala og værum bara að drullupumpast hvor á öðrum villt og galið einsog fangar og mannkynið myndi þurrkast út.
Ruslana hefði aldrei náð fyrsta sætinu ef hún hefði verið í ruslatunnupoka á sviðinu á sínum tíma. (Sjá víbratormyndina af henni hér til hægri). Röddin eða breinið var ekki það besta sem guð gaf Ruslönu heldur líkaminn og það vissi Ruslana og þessvegna brúkaði hún hann að sjálfsögðu til hins ítrasta og fólkið keypti það sem hún hafði uppá að bjóða. Líkamann. Það er til lítils fyrir konur að vera gefinn flottur líkami ef þær vilja ekki eða kunna ekki að selja hann.
Klámmyndakroppur einsog Jóhanna á að sjálfsögðu að vera í blautbol og engu öðru. Jú og kannski nærbuxum. G-streng. Hún á að tæta af sér þessa viðurstyggilegu helbláu blúndugardínuafganga sem einhver afdankaður tískuplebbi hefur fundið í leikmunadeildinni í Valhöll, og skvera sér í blautbolinn og sýna hvað í henni býr, eða hvað á henni býr öllu heldur. Ef hún gerir það þá erum við í góðum málum og náum sextánda sætinu með stæl. Ef hún gerir það hinsvegar ekki þá erum við í tómu tjóni og höfnum í helvíti einsog landið sjálft. Og það þýðir mánaðar þjóðarfyllerí. Þá er of seint fyrir Jóhönnu að verða blaut.
Lokaæfing fyrir undanúrslitin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (82)
5.5.2009 | 13:13
Skítugustu og leiðinlegustu borgir heimsins
Hef aldrei orðið var við þennan gasalega óþrifnað sem á að vera í London nema hvað varðar tannhirðu Breta. Klósettið hjá mér er líklegast hreinna en skolturinn á hinni dæmigerðu bresku herfu. Kannski að þessi könnun hafi eingöngu náð til homma og þeir sjá náttúrulega skít í hverju horni og hverju gati. Veit það ekki. Þeir vilja náttúrulega vera í djúpum skít. Draumadjobbið.
Fjölmargar heimsborgir eru nú mun ógeðslegri en London og má þar nefna Aþenu, Reykjavík, Calcutta, Eskifjörð og Kulusuk, svo dæmi séu tekin.
Þeir sem telja að næturlífið í London sé það besta og skemmtilegasta í heimi hafa greinilega bara komið til London. Ef menn flokka það sem skemmtun að fara á næturklúbba og horfa á rappandi kafarabúninga með derhúfur og pulsuvarir þá er náttúrulega mjög lítil hætta á að þeir fái lekanda en "skemmtunin" er svona álíka mikil og að horfa á málningu þorna.
Og þeir sem halda að Brussel sé leiðinlegasta borg heimsins hafa augljóslega hvorki komið til Stokkhólms né Reykjavíkur. Hvað þá Osló. Það verða að teljast þrjár siðprúðustu, geldustu og alleiðinlegustu borgir alheimsins með fullri virðingu fyrir Frankfurt og Borðeyri við Hrútafjörð.
Skítugasta borgin en besta næturlífið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
4.5.2009 | 14:00
Þjóðlegur heiðarleiki Vinstri grænna
Steinríkur J. Sigfússon hefur margsagt að hann myndi frekar troða sér ofan í trjátætara en að samþykkja aðildarumsókn í ESB. Klippingin sem hann er með á hausnum virkar einsog hann hafi reynt það einhverntíma, þannig að ég trúi honum fullkomlega.
Enginn stjórnmálamaður hefur talað meira um heiðarleika undanfarna áratugi en Steinríkur, nema ef vera skyldi kollegi hans, Stalin. Ef hann samþykkir draum Jóhönnu um aðildarumsókn í ESB í skiptum fyrir ráðherrastóla þá er hann einfaldlega að svíkja kjósendur sína. Það er ekki flóknara en það. En auðvitað gerir Steinríkur það ekki. Hann er heiðarlegur stjórnmálamaður. Á íslenska vísu. Að vísu.
Draumur Steinríks er og hefur alltaf verið að einangra landið gjörsamlega fyrir umheiminum. Helst með gaddavír, hringinn í kringum landið. Við megum nefnilega ekki glata þjóðlegum einkennum okkar frekar en górilluaparnir í Amazon-frumskóginum. Við eigum að ríghalda í okkar þjóðlegu krónu og séríslenska hagkerfi og flytja aldrei inn í landið svo mikið sem eina erlenda radísu án þess að ofurtolla hana uppí hæstu hæðir, til að vernda alíslenska þjóðlega framleiðslu. Erlend samkeppni er frá djöflinum komin einsog allt sem viðkemur frelsi.
Allt sem gæti skapað atvinnu er stórhættulegt þjóðarhag. Það á allsekki að finna olíu og hvað þá að vinna hana. Kvótakerfið ber að styðja vegna þessa að auðlindir hafsins eiga að vera í sterkum séríslenskum sægreifakrumlum. Einstaklingsfrelsi er hreinn og tær viðbjóður sem ber að hefta eins mikið og kostur er.
Kjósendur hafa getað gengið að þessari draumsýn Steinríks vísri og þessvegna kusu þeir hann og VG.
Kvöldið fyrir kosningar talaði hann um heiðarleika sinn ca 10 sinnum og þá fór ég að skilja afhverju hann neitar að skila 15 millunum sem hann fékk útúr eftirlaunafrumvarpinu sem hann samþykkti skælbrosandi, og sýna þannig gott fordæmi. Það er jú vegna þess hvað hann er heiðarlegur. Þá fór ég líka að skilja afhverju hann styður kvótakerfið og hið vel heppnaða sjávarauðlindarán. Það er vegna þess hvað hann er heiðarlegur. Þá áttaði ég mig líka á afhverju hann dældi út bændastyrkjum í þau kjördæmi sem flokkur hans var valtur í, korteri fyrir kosningar. Það er jú vegna þess hvað hann er stálheiðarlegur. Þá rann líka upp fyrir mér afhverju hann lagði ekki öll spilin á borðið varðandi Evrópusambandið FYRIR kosningar og gerði kjósendum sínum það kristalskýrt að hann myndi aldrei svíkja stefnuskrá flokks síns og kjósendur sína með því að kvitta undir draum Jóhönnu og ekki kvika svo mikið sem hænufet frá einangrunarstefnu sinni. Það er náttúrulega vegna þess hvað hann er alveg hreint makalaust heiðarlegur alíslenskur þjóðlegur stjórnmálamaður.
Maður á alltaf að treysta fólki sem klifar á því hvað það sé heiðarlegt. Þessvegna eru bílasalar, lögfræðingar og stjórnmálamenn fólkið sem maður á að treysta fullkomlega. Helst í blindni. Þegar ég heyri einhvern segja: "Ég er heiðarlegri en Lalli Johns og Stalin, báðir til samans," þá kikna ég alltaf í hnjáliðunum og beygi mig í duftið og kýs manninn samstundis til forseta eða á þing eða til hvers sem vera skal.
Ísland mun aldrei svo mikið sem blikka ESB meðan Steinríkur situr á ráðherrastóli og hvað þá á þremur ráðherrastólum samtímis. Ef einhver maður svíkur ekki kjósendur sína þá er það Steinríkur því hann er maðurinn sem talar mest um séríslenskan þjóðlegan heiðarleika sinn, og við vitum jú öll hvernig íslenskur heiðarleiki er?
Ný ríkisstjórn um næstu helgi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 5.5.2009 kl. 02:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
23.4.2009 | 09:36
Vinstri grænir á leið í Heims(k)metabókina
Kolbrún Halldórsdóttir er þungavigtarmanneskja í Vinstri grænum, enda ráðherfa. Hún væri ekki ráðherfa ef hún væri ekki ein af hæfustu manneskjunum sem Vinstri grænir hefðu uppá að bjóða.
Hún sagði í fréttum í gærkvöld, líklega eftir samráð við aðra í forystu flokksins, að Vinstri-hreyfingin grænt framboð leggðist gegn olíuleit á Drekasvæðinu vegna þess að olíuvinnsla væri í andstöðu við stefnu flokksins.
Ef að fleiri tonn af gulli finndust í jörðu, jafnvel heilt gullfjall einhversstaðar í óbyggðum Íslands, þá væru Vinstri grænir að sjálfsögðu mótfallnir nýtingu þess, jafnvel þótt þjóðin væri að svelta í hel, vegna þess að jarðrask og náttúruspjöll væru í andstöðu við stefnu flokksins. Þetta er nákvæmlega það sem hún er að segja.
Að lifa af er í andstöðu við stefnu flokksins. Þetta er fólk sem myndi drepa þjóðina úr hungri ef að ekkert annað væri í boði nema áldósamatur og ólífrænt ræktað grænmeti, vegna þess að það væri í andstöðu við stefnu flokksins að leggja sér svoleiðislagað til munns.
VG er annar stærsti flokkurinn á Íslandi í dag. Þetta eru snillingarnir sem Íslendingar vilja fá yfir sig næstu 4 árin, jafnvel næstu 40 árin.
Og ég sem hélt að botninum væri náð og að leiðin gæti bara legið uppávið úr þessu. Ekki aldeilis. Förum endilega undir Vinstri græna torfu.VG gegn olíuleit á Drekasvæði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (61)
22.4.2009 | 19:08
Ástþór í stórfurðulegu viðtali
Eitt skrítnasta viðtal sem ég hef séð í langan tíma má sjá HÉR. Ef fólk sér ekkert athugavert við þetta viðtal þá er það líklegast orðið of vant íslenskri fréttamennsku. Til að gera fólki auðveldara fyrir að ná skringilegheitunum þá prentaði ég viðtalið upp svona að megninu til, stytti það og bætti við athugasemdum frá sjálfum mér. Þar eð það eru spurningarnar sem eru stórskrítnar en ekki svörin þá prenta ég þær upp en segi svona upp og ofan af svörum Ástþórs enda öll málefnaleg og sjálfgefin að megninu til. Spyrlar fyrir Mbl eru þær Agnes Bragadóttir, sem oft hefur gert stórgóða hluti, og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, sem sömuleiðis hefur oft gert fína hluti. En þarna var einsog þær hefðu verið neyddar óundirbúnar í þetta verkefni með byssu við gagnaugað og ekki alveg vitað tilhvers þær voru þarna:
Agnes: "Ég skil ekki alveg þessa hugmyndafræði þína um almannaþing, að það sé hægt að hafa það í eina og sama pottinum að skreppa í hraðbankann og taka ákvarðanir í þjóðþrifamálum í atkvæðagreiðslu í hraðbankanum. Hvernig ætlar þú að útfæra þetta í raun og veru?"
Ástþór sagði henni að hún væri að blanda saman tveimur hlutum og útskýrði síðan hvernig þetta væri hægt.
Sjálfum hefur mér alltaf þótt ótrúlega bjálfalegt að þurfa að labba útí einhvern skóla í almennum kosningum og merkja þar X á einhvern seðil sem mjög auðvelt er að gera óvart ógildan ef maður er skjálfhentur eða vanviti. Síðan er tekið til við að rýna í hvern miða og handtelja atkvæðin. Furðulega primítíft á tölvuöld. Hefðu rafrænar kosningar verið komnar til sögunnar fyrir 9 árum þá hefði heimurinn ekki fengið Bush yfir sig. (Sjá mynd úr Flórída-atkvæðatalningunni hér til vinstri).
Hvað um það. Þessi fyrsta spurning Agnesar var skiljanleg, en nú koma fréttakonurnar með fullyrðingar á færibandi og alveg hreint stórfurðulegar spurningar:
Agnes: "Þú hefur hafnað alfarið niðurskurði ríkisfjármála..."
Rangt. Ástþór útskýrði mál sitt.
Agnes (viðbrögð við athugasemd Ástþórs): "Ert þú ekki að berja höfðinu utan í stein?"
Rangt. Ástþór útskýrði mál sitt.
Agnes: "Afhverju kemurðu ekki heim með peningana þína sem þú átt erlendis?"
Ástþór útskýrði mál sitt. En ég spyr: Hvaða skylda ber honum til þess? Afhverju spurði hún ekki alveg eins: "Afhverju geturðu ekki tapað peningum einsog við hin?" Afhverju í ósköpunum ætti hann sem óbreyttur borgari endilega að koma heim með sinn ævisparnað erlendis frá og tapa honum hérna í arfavitlausum íslenskum fyrirtækjum? Ég hélt að hann réði því sjálfur hvað hann gerði við sína peninga. Þarna held ég að fréttakonan hafi gleymt því að hún var að tala við venjulegan athafnamann en ekki útrásarþjóf.
Agnes: "Ef þú ert með fullt af peningum í útlöndum ert þú þá ekki einn af þeim sem átt að koma með þá heim?"
Ástþór útskýrði fyrir henni að hann væri ekki með "fullt af peningum" í útlöndum heldur sparnað sinn. Einhverjar krónur. Hver segir að Ástþór EIGI að koma með sinn sparnað heim? Einu mennirnir sem EIGA að koma með peninga heim eru þeir sem rændu þeim frá íslenskum almenningi.
Agnes (með þjósti og fingurinn á lofti): "Hvar hefur þú fjárfest í íslensku atvinnulífi? Ég spyr? Hvar hefur þú fjárfest í íslensku atvinnulífi? Hvenær hefur þú lagt krónu í íslenskt atvinnulíf?"
Ástþór sagði henni að hann hefði rekið hér fyrirtæki í mörg ár sem héti Álfaborgir og það urðu greinilega veruleg vonbrigði fyrir fréttakonuna að heyra að hann hefði fjárfest í íslensku atvinnulífi.
Þóra: "Hvernig græddist þér fé?"
Þær stöllur héldu ennþá að þær væru að tala við útrásarþjóf. Held að Ástþór sé búinn að svara þessari spurningu ca 2000 sinnum á undanförnum árum því þetta er það eina sem fréttamenn hafa viljað fá svör við og hafa fengið.
Nú fór viðtalið í tómt rugl því Ástþór hafði ekki fengið að nota svipuð orð um Agnesi í Morgunblaðinu og Agnes hafði notað um hann. Ástþór sagði að hún væri "gagghæna útrásarvíkinganna."
Agnes: "Þú ert ótýndur dóni og ég mun aldrei fara ofanaf þeirri sannfæringu minni."
Þóra: "Geiri á Goldfinger er á framboðslistanum hjá þér. Er hann efni í stjórnmálamann að þínu mati?"
Ástþór taldi svo vera og sjálfur tel ég alveg útilokað að Geiri gullputti yrði verri en flestir þeir sem nú sitja á þingi.
Agnes: "Hvað með súlustaðina, er það þá ekki á stefnuskránni? Maðurinn er í þriðja sæti á lista hjá þér."
Röng fullyrðing. Ástþór fræddi þær á að listarnir væru í stafrósröð og þessvegna vildi svo til að Geiri væri í þriðja sæti á blaðinu. Mönnum væri frjálst að berjast fyrir því sem þeir kærðu sig um. Hún hefði ekki þurft að bera fram þessa spurningu ef hún hefði lesið stefnuskránna.
Agnes: "Ég fór yfir alla listana þína og það er frá því að vera engin kona í framboði og uppí það að vera 5 þar sem þær eru flestar. Samtals býður þú fram 23 konur í öllum kjördæmum. Hversvegna er það, er þetta þín eðlislæga kvenfyrirlitning?"
Þarna var fréttakonan komin í stellingar fórnarlambafemínistans og hefði ekki spurt þessarar undarlegu spurningar hefði hún kynnt sér málin. Ástþór skýrði út fyrir henni að þetta væri nokkuð sem hann hefði akkúrat ekkert haft um að segja. Þetta væri lýðræðishreyfing og öllum hefði verið frjálst að bjóða sig fram og þetta hefði verið útkoman. Einfalt mál. Það hefði verið auglýst eftir frambjóðendum og konur ákveðið að halda sig heima einsog svo oft áður. Konum hefði verið frjálst að bjóða sig fram sem og öllum...
Þóra (með fyrirlitningu): "Og Geira á Goldfinger?"
Henni virtist þykja stórskrítið að Geiri á Goldfinger fengi að njóta mannréttinda einsog aðrir borgarar og hefði kosningarétt og þar að auki rétt til að bjóða sig fram. Ægilegur skandall!
Þóra: "En er pólitíkin ekki þitt aðal starf Ástþór?"
Stuttu áður hafði hún spurt hvernig honum hefði græðst fé. Man einhver eftir því að hafa séð Ástþór áður í framboði til Alþingis? Ef hún flokkar forsetaembættið sem pólitískt embætti þá man ég ekki eftir að hafa séð Ástþór gegna því embætti heldur. Um hvað er hún þá að tala? Það veit enginn. Ástþór fræddi hana á að hún hefði ekki rétt fyrir sér með fullyrðingaspurningu sinni.
Þóra: "En hvað ertu að gera? Þú ert að segja að þú lumir á háum fjárhæðum á bankareikningum erlendis..."
Ástþór fræddi hana enn einu sinni á að þessi fullyrðing hennar væri röng. Hann hefði aldrei sagst luma á "háum fjárhæðum" á erlendum bankareikningum. Hann hefði sagst eiga smá sparnað erlendis.
Þóra: "En hvað ertu að fást við?"
Alveg ótrúlega mikilvægar og beinskeyttar spurningar í aðdraganda kosninga. Ástþór fræddi hana á því hvað hann væri að gera og þá tóku fréttakonurnar til við að hræra saman ólíkum málum og setja allt í einn graut þannig að Ástþóri varð greinilega svolítið flökurt. Alveg að missa þolinmæðina.
Ástþór: "Agnes mín, þú ert svolítið föst í kassanum. Þú þarft að standa upp og horfa yfir kassann og þá sérðu lengra."
Þóra: "Hvað kemur til að þú viljir vera að skipta þér af pólitík?"
Sæi hana í anda spyrja Bjarna Ben þessarar spurningar. Ástþór sagði henni að hann væri hugsjónamaður sem vildi koma hér á beinu og milliliðalausu lýðræði og laða hér að atvinnustarfsemi. Hann vildi taka til hendinni og ná fram hagræðingu og hreinsa hér rækilega til og áður hef ég heyrt hann segja að hann vilji koma útrásarvíkingum í gæsluvarðhald í snarhasti, frysta eignir þeirra og sækja þá fjármuni sem þeir hafa komið undan erlendis. Það yrði hans fyrsta verk.
Ekki veit ég hvort honum tækist það en það veit ég að enginn stenst Ástþóri snúning þegar kemur að því að koma hlutunum í verk með hraði og gera rækilega skurk í málunum. Af krafti. Ef kallinn á einhversstaðar heima þá er það á hinu svefndrukkna Alþingi. Hvað sem mönnum kann að þykja um Ástþór þá þurfum við illilega á jarðýtu einsog honum að halda einsog sakir standa. Stjórnmálamönnum sem hafa þegið "mútu"peninga frá útrásarvíkingum treysti ég allavega ekki til að gera nokkuð í þjófnaðarmálum útrásarvíkinganna frekar en öðrum málum. Við hljótum að vera farin að sjá hversvegna gömlu flokkarnir hafa setið með hendur í skauti og aðhafst ekkert.
Hvað um það. Svona er semsé fréttamennskan á Íslandi í dag. Það þarf ekki að taka það fram að Þóra Kristín Ásgeirsdóttir var kosin blaðamaður ársins fyrir stuttu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
21.4.2009 | 19:18
Helgi í Góu reynir að sansa Jóu
Við höfum heila(skerta) 63 froska á Alþingi en samt þarf undarleg oft einhvern góðan mann af götunni til að benda á augljóst ranglæti og þoka hlutunum í réttlætisátt. Helgi í Góu er einn af þessum ötulu hugsjónamönnum sem þreytist aldrei á því að reyna að opna augu ráðamanna fyrir óráðsíu og óréttlæti lífeyrissjóðanna. Hann vill að lífeyrissjóðirnir hætti að vinna einsog fjárhættuspilafíklar og hætti að vera bruðlstofnanir fyrir stjórnendurna og fari að sinna öldruðum og taka þátt í uppbyggingu samfélagsins. Þetta eru jú sjóðir í eigu landsmanna, sjóðir sem menn eru tilneyddir að borga í alla sína þrælsævi og þessvegna ber vitaskuld að nota þá í þágu fólksins, eigendanna.
Nú hafa félagshyggjuöflin verið við stjórnvölin í nokkurn tíma og þau hafa að sjálfsögðu ekki haft tíma í þetta réttlætismál þrátt fyrir að þetta eigi nú samt að heyra undir þeirra uppáhalds málaflokk. Þau hafa verið upptekin við að sinna mikilvægari málum einsog t.d. að framleiða lög um súlustaði og vændi og nekt og klám og allt sem viðkemur kynlífi með einhverjum hætti. Að mörgu þarf að hyggja í þeim mikilvæga málaflokki meðan landið sekkur. Netlögregla á næsta leiti og svo þarf að minnka extra large smokka og banna sölu á Viagra á föstudögum og banna mínípils því þau gætu fjölgað nauðgunum o.s.fr.
Jóhanna Sig. lofaði Helga í Góu fundi með lífeyrissjóðunum innan nokkurra mánaða þegar búið væri að afgreiða nokkur tonn af klámfrumvörpum. Hann varð að gera sér það að góu. Hvað ætli Helgi hafi heyrt svona loforð oft áður? Á meðan verða aldraðir að halda áfram að hírast samanpakkaðir í sardínudollum elliheimilanna, og á meðan getur Helgi víst ekkert annað gert en beðið og klórað sér í pungnum, á meðan það er enn leyfilegt.
Hugsjónamaðurinn Helgi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
20.4.2009 | 14:32
120 ár eru í dag liðin frá fæðingu frelsishetju Íslands, Adolfs Hitlers
Íslandsvinurinn og athafnaskáldið Adolf Hitler er 120 ára í dag. Þessa merkisdags er minnst með mismiklum fögnuði og húrrahrópum út um allan heim. Adolf var ákaflega hrifinn af Íslandi en hann var reyndar einnig hrifinn af hefðbundnum þrælabúðum, sem sýnir kannski hvað hann hafði fjölbreytilegan smekk.
Hrifning hans á Íslandi gekk svo langt að hann samdi ungur að árum söngleik um þessa útópíu sína, Klakann, og seinna þegar hann var kominn til valda þá sendu þeir vinirnir, hann og Himmler, ýmsa erindreka hingað til lands til að rannsaka þessa þrælmerkilegu sögueyju og hetjurnar sem hér áttu að ríða um héruð með sverð í annarri hönd og fjaðurpenna í hinni. Hetjurnar voru því miður flúnar land eða höfðu allar látist í fornsögunum, en því meira fundu þeir hér af útpískuðum vinnuþrælum, misindismönnum og örlagarónum. Um æðar þeirra rann að sjálfsögðu fullkomlega hreint arískt blóð, reyndar í bland við smá alkóhól. Þetta voru semsé útópískir útpískaðir vinnuþrælar.
Þetta var skömmu fyrir stríð þegar götur Reykjavíkur voru eitt drullusvað og menn einangruðu bárujárnshjalla sína með dagblöðum og þurrkuðum hundaskít. Við vorum víðs fjarri nútímanum. Við vorum í raun þriðja heims land einsog við erum að stefna í að verða aftur. (Sjá mynd hér til vinstri af Hverfisgötu fyrir og eftir stríð). Eftir þessar rannsóknir sínar var Adolf fljótur að sjá að þessi eyja var einkum merkileg fyrir einar sakir; fornsögurnar, en að öðru leiti var þetta afar frumstæð þrælaeyja og að því leiti kannski "þrælmerkileg." Seinna ásældist hann þennan klett vegna hernaðarlega mikilvægrar staðsetningar hans en það er önnur saga. Hernaðarsaga.
Þegar Adolf var hættur að geta haft frið fyrir friði þá fór hann í stríð einsog frægt er orðið. Þetta ágæta stríð hafði það í för með sér að Djöflaeyjan reis úr öskustónni og varð græn einsog þeir sem hana byggðu. Alltíeinu varð næga atvinnu að hafa á öllum sviðum; í fiski, tónlist, verslun og viðskiptum, vegavinnu, sjoppuránum, húsasmíðum og hrákasmíðum og eiginkonurnar létu ekki sitt eftir liggja í þjónustu við dátana, sem var víst alveg draumur að vera með, samkvæmt laginu góða. Menn flykktust úr moldarkofunum og fóru að vinna út um allt og stjórnmálatengdir stórgróðaspekúlantar settu á fót myndarleg svindilbraskkompaní og svo kom Marshall-aðstoðin sem var svo rífleg að það hefði mátt halda að við værum stríðshrjáð land á barmi glötunnar. Við erum það kannski núna en það var nú öðru nær í þann tíð.
Meðan styrjöldin geisaði útí heimi var hér á Íslandi talað um "blessað stríðið" sem gerði okkur rík og frjáls. Meðan aðrar þjóðir voru blóðugar uppfyrir haus þá smjöttuðum við á kavíar og tartalettum og þömbuðum kampavín inná Hótel Borg og reyktum sígarettur úr munnstykkjum einsog lávarðar og veltum okkur uppúr nýfengnum stríðsgróða einsog útrásarvíkingar, nema hvað við græddum á innrásum annarra þjóða. Ég kem aðeins inná þetta í ljóði sem ég orti fyrir rúmlega 10 árum sem heitir "Svefn er besta vörnin" og birtist í ljóðabók minni "Með ósk um bjarta framtíð." Það er svona:
Í seinna stríði var ófriðlegt um að litast,
þá áttust við þriðja flokks ræflar og göfugir aríar,
en uppi á Fróni var friðurinn aldrei meiri,
menn fóru í bingó, dæstu og smjöttuð´á kavíar.
Ró og spekt er enn yfir Íslendingum,
alltaf hefur ríkt hér friður nokkur.
Við erum ekki hluti af þessum heimi,
- heimurinn er bara hluti af okkur.
Einsog skáldið hrópaði hérna forðum:
"Hungursneið er fjarri Íslands ströndum
Horfðu á björtu hliðarnar minn kæri;
heimsstyrjaldir verða í öðrum löndum."
Þótt jörðin farist þá ferst ekki Skerið góða,
um framtíð alla mun þrífast hér mörlandaflokkur.
Við tilheyrum ekki þessum hörmungarheimi,
svo hann má fara til skrattans fyrir okkur.
Við vorum einangruð landfræðilega og í hugsun og stríðið snerti okkur ekki nema hvað við fundum að pyngjan þyngdist og það var það eina sem skipti okkur máli einsog fyrri daginn. Ömmur okkar blómstruðu sem aldrei fyrr á þessum skemmtilegu stríðs - og uppgangstímum og höfðu svo mikið að gera á bakinu og maganum að þær höfðu varla tíma til að fara í buxurnar svo árum skipti og peningarnir streymdu inn í réttu hlutfalli við dátasæðið. Stríðið var semsé ekki bara sprauta inní íslenskt efnahagslíf heldur einnig íslenskt móðurlíf. Kannski eitt og hið sama á þessum tíma.
Og hverjum var þetta stríð nú að þakka sem reif Ísland upp á rassgatinu og kom því inní nútímann? Jú, engum öðrum en afmælisbarni dagsins, Adolfi kallinum Hitler. Hvað sem segja má um önnur verk karlsins þá verður ekki undan þeirri staðreynd vikist að hann er hin eina sanna frelsishetja Íslendinga, hvort sem það var nú meining hans eða ekki. Hefði Dolli ekki komið til sögunnar þá værum við Íslendingar ennþá hímandi í moldarkofum og samantjösluðum bárujárnsdrulluhjöllum plokkandi lýsnar úr krullunum hvort á öðru og étandi rolluandlit og hrútspunga einsog frumstæðir villimenn.
Hvort sem okkur finnst það súrt í broti eða ekki þá hefur enginn einn maður gert eins mikið fyrir Ísland og Adolf Hitler. Hann er frelsishetja og þjóðhetja Íslendinga þó Íslendingar viti ekki af því. Við Íslendingar eigum að setja hann á þann stall sem honum ber og sá stallur er að sjálfsögðu á Austurvelli þar sem Jón Sigurðsson stendur nú.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
17.4.2009 | 10:02
500 manns munu farast og 10.000 slasast í þessari viku í Tælandi
Það fór einsog ég vissi að óeirðirnar hér í Bangkok myndu ekki vara lengi. Það er búið að settla málin. Gamanið er búið, í bili. Leiðindin tekin við. Maður verður víst bara að bíta í það súra epli og fara að horfa á hversdagslegt götulíf á nýjan leik; slöngutemjara, kynskiptinga, fíla á mótórhjólum og vændiskonur. En það kemur dagur eftir þennan dag. Varanlegur friður er ekki til, aðeins vopnahlé, svo það er ennþá von.
Þessa vikuna stendur yfir áramótahátíð Tæverja. Mesta hátíð ársins. Kallast Songkran. Fólk skemmtir sér svo vel að það farast að jafnaði um 500 manns á þessum örfáum dögum sem hátíðin stendur yfir og 10.000 slasast alvarlega. Hvernig skyldi nú standa á þessu? Eru menn skotnir með basúkum og skriðdrekabyssum? Nebb. Eru menn trampaðir í svaðið af fílahjörð? Nebb. Er mönnum kastað fyrir ísbirni og rostunga? Nebb. Ekki mikið af þeim hér á þessum slóðum. Er mönnum troðið ofaní trjátætara? Nebb. Eru mönnum sagðar sögur af íslensku stjórnmálalífi og viðskiptasiðferði? Nebb. Pyntingar eru bannaðar í Tælandi. Hvernig skyldi þá standa á þessu mikla mannfalli? Jú, menn farast og slasast vegna þess að það er skvett á þá vatni. Og nú spyrja sumir einsog álfar út úr hól: "Skvett á þá vatni?" Já, ég sagði SKVETT Á ÞÁ VATNI! Kunniði ekki að lesa helvítis asnarnir ykkar?!
Þetta gerist svona og ég skal byrja á upphafinu: Fyrir mörgum mörgum árum þegar risaeðlur réðu ríkjum á jörðinni....
Ég skal byrja aftur og fara aðeins framar í tímann: Fyrir mörgum mörgum árum höfðu Tæverjar þann sið á þessari áramótahátíð sinni að dýfa puttunum oní vatnsskál og skvetta pent með fingurgómunum á axlir vina og vandamanna, aðallega eldra fólks. Ýmsar serímoníur voru viðhafðar en þetta var semsé táknrænn gjörningur hreinsunnar og átti að færa blessun og lukku. Munkar notuðu hinsvegar kalkduft í þessum sama tilgangi.
Allt gekk þetta stórslysalaus fyrir sig þangað til bleiknefjar, einkum kexruglaðir Kanar, fóru að venja komur sínar til Tælands uppúr 1970 í lok Víetnamstríðsins. (Fyrir aðeins 40 árum var Pattaya fámennt fiskiþorp. Kanar breyttu því í stærstu Sódómu í heimi. Guði sé lof. Núna hafa þeir hinsvegar drekkhlaðið Pattaya af FBI-mönnum til að passa uppá að vændið fari nú örugglega siðsamlega fram. Þar sem tveir Kanar koma saman, þar er tvískinnungur).
Hvað um það. Eftir að bleiknefjar fóru að flykkjast hingað þá fór nú heldur betur að færast "fjör" í leikinn, eða öllu heldur fjörtjón. Þeir mættu á svæðið með hausinn fullan af rugli, belginn fullan af viskýi og lúkurnar fullar af kröftugum vatnsbyssum og vígalegum vatnsrörum og tóku að sprauta af fullum krafti á allt og alla, sérstaklega hjálmlaust fólk á reiðhjólum og mótórhjólum sem flaug uppí loftið í fallegum boga á vit feðra sinna. Þetta gerðu þeir náttúrulega til að færa þessu fólki lukku og hamingju.
Í dag eru menn (einkum á Pattaya) vopnaðir kröftugum vatnspumpubyssum, mannýgum brunaslöngum með háþrýstidælum eða 20 sentimetra breiðum skólprörum sem þeir sprauta úr af gríðarlegum krafti á akandi og gangandi og blessa þá þannig svo kröftuglega að menn hendast eftir götunum í gegnum rúður og veggi, alveg marg blessaðir í bak og fyrir.
Sumar hetjurnar eru svo kærleiksríkar að þær skvetta klakavatni úr stórum fötum beint framan í mótórhjólafólk á fullri ferð þannig að það kastast í götuna og þeytist tugi metra þangað til það hafnar jafnvel undir 10 hjóla vörutrukki sem straujar það vel og vandlega ofaní malbikið, með guðs blessun að sjálfsögðu.
Fatlafól í hjólastólum eru ekki síður lukkuleg því þau fá yfirleitt gusuna beint í bakið með ósk um velfarnað í framtíðinni og eru einfaldlega sprautuð fram af næstu bryggju þar sem þau eru tætt í sundur af mannætuhákörlum og piraniafiskum, hamingjusöm sem aldrei fyrr.
Allt svonalagað er flokkað sem "slys." Fólk sem er drittað niður af mótórhjólum í gegnum heilu húsveggina það deyr af "slysförum" vegna þess að meiningin var að færa því lukku og hamingju.
Misþroska Tælendingar tóku upp þessa skemmtilegu manndrápsblessun vesturlandabúa fyrir nokkrum árum og hefur hún notið gríðarlegra vinsælda allra þroskaheftra út um allt land allar blóðugar götur síðan. Flestir eru blessaðir til bana í þorpum landsins þar sem þeir eru mótórhjólandi á fullri fart vel í glasi og mega ekki við því að vera færð lukka með öflugri vatnsgusu beint í smettið.
En ég endurtek: Þennan forna fallega tælenska sið; að dýfa puttunum oní vatnsbolla og skvetta pent með fingurgómunum á axlir sinna nánustu með ósk um blessun, hreinsun og lukku þeim til handa, þennan sið "þróuðu" Kanar og aðrir vanþroska vatnshausar og hann hreinsar nú árlega 500 manns af yfirborði jarðar og blessar um 10.000 manns lukkulega inná spítala. Þetta er einsog ef það dræpust árlega 2000 Kanar og 40.000 slösuðust alvarlega um hver áramót í Bandaríkjunum út af einhverjum sið sem utanaðkomandi apakettir hefðu "þróað."
Heimspressan minnist aldrei á þetta svakalega manntjón í Songkran vikunni, kannski vegna þess að það er árlegur viðburður, en kannski ættu hún einmitt að minnast á það vegna þess að þetta er árlegur viðburður. (Öllu góðu fjöri fylgir tjón og þessvegna heitir þetta nú fjörtjón).
Það er samt svolítið skrítið að hugsa til þess að heimspressan skuli standa á öndinni yfir smá mótmælum í Bangkok þar sem nokkrar hræður duttu dauðar niður fyrir kurteisisakir, en skuli síðan yppta öxlum þegar 500 manns eru spreyaðir í gröfina og 10.000 á spítala á áramótafagnaði Tælendinga.
Mótmælum hætt í Bangkok | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
13.4.2009 | 15:25
One fight in Bangkok
Ég var svo "heppinn" að vera staddur í Bangkok í dag þegar óeirðirnar brutust út. Það er reyndar allt búið að vera í hers höndum í orðsins fyllstu merkingu svo dögum skiptir, en í dag sauð pínulítið uppúr. Ég sat inná tuskulegum veitingastað og var að panta mér kokteil, bangkokteil, þegar molotovkokteill kom allt í einu fljúgandi inn um gluggann. Ekki alveg það sem ég var að biðja um. Á samri stundu breyttist þessi annars lítt vinsæli veitingastaður í einn þann heitasta í bænum. Ég brann í skinninu að komast út á götu en þegar þangað kom tók ekki betra við: Vélbyssuskothríð og sprengingar. Ég hugsaði með mér: "Þetta er nú ekki alveg nógu hressandi. Hvað hef ég nú gert af mér?" Ég gat huggað mig við það að ástandið væri nú samt skárra en uppá Klaka."
Hermenn voru um allt með hríðskotabyssur og basúkur, japlandi á basúkutyggjói. Ég sá hvers kyns var þegar þeir fóru að skjóta á rauðskyrtur, en það eru menn sem vilja ólmir og uppvægir fá Thaksin fyrrv. forsætisráðherra aftur að kjötkötlunum. Sá gæi var fyrir nokkrum mánuðum uppvís að lítilsháttar spillingu og var vinsamlegast beðinn um að taka hatt sinn og staf og skella sér í útlegð. Þetta gerist stundum í skrítnum löndum þar sem litið er á spillingu sem eitthvað sem þurfi að gera veður út af.
Nýi forsætisráðherrann, Abhisit, eða Apashit einsog ég kalla hann stundum, var ekki kosinn heldur settur í embættið og það fannst mörgum Tælendingum ekkert gasalega sniðugt og vilja nú fá sinn gamla góða Thaksin aftur með kosningu. Tælendingar eru einar mestu friðsemdarverur þessa heims en þegar þeir vilja eitthvað sem fullnægir réttlætiskennd þeirra, í þessu tilviki kosningar, þá nenna þeir ekki að fara að tromma á potta og pönnur einsog hottintottar og halanegrar eða standa hnípnir einsog barðir rakkar á einhverjum austurvelli í grafarþögulum mótmælum. Nei, þá taka þeir til við að að búa til rótsterka molotovkokteila og almennilegan hasar.
Ég sá nokkrar rútur sprengdar í loft upp og nokkra bíla og byggingar standa í frekar björtu báli. Herinn segist nota "blank shots" eða púðurskot en það eru þá einu púðurskotinn sem gera gat á hausinn á fólki. Þetta eru svo kröftug púðurskot að fólk hendist fram af svölunum sem verður fyrir þeim. Annars er þetta ansi skemmtilegt og upplífgandi og ekkert ólíkt því sem gerist í miðbænum á Los Klakos um helgar. Kannski ekki beint upplífgandi fyrir þá sem detta dauðir niður en fyrir áhorfendur er þetta náttúrulega prýðis skemmtun.
Kóngurinn er líklegast ekki við hestaheilsu því hann er búinn að vera í öndunarvél í nokkra mánuði. Menn fara varla í öndunarvél nema að þeir séu frekar slappir. Nú þyrfti að taka kóngsa úr öndunarvélinni og stilla honum upp hangandi í girni úti á hallarsvölunum og láta einhvern búktala fyrir hann og segja fólki að hætta þessum hávaða. Kóngsi er gæinn sem getur stoppað þessi læti því það er litið á hann sem guð, ekki ósvipað og litið var á útrásarvíkingana á gróðæristímanum. Hann þarf ekki annað en að lyfta upp litla putta og segja:" Skamm" og þá fellur allt í ljúfa löð og allir fallast í faðma og segja "solly," en það þýðir "sorry" á nútímaíslensku. (Tæjarar geta nefnilega ekki sagt R).
Ég á ekki von á að þessi skemmtun standi lengi yfir því tælenskir karlar eru frekar latir og vilja helst bara dytta að mótórhjólunum sínum og fara í kynskiptiaðgerð og hafa það næs. Hef ekki nokkrar áhyggjur af þessu.
Óeirðir í Taílandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 14.4.2009 kl. 16:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
21.3.2009 | 13:57
Nú ríður á að banna allt "klám"
"Raddir fólksins" eru þagnaðar því nú hefur takmarkinu verið náð og vandamálin leyst: Vinstri græningjar eru komnir til valda og Dabbi farinn úr Seðlabankanum. Allt semsé komið í glimrandi gott stand. Verður ekki betra. Ég sagði í grein fyrir einhverjum mánuðum að það fyrsta sem Vinstri græningjar myndu gera þegar þeir kæmust til valda væri að einbeita sér að því sem mestu máli skipti til bjargar landinu og það væri náttúrulega að loka þessum örfáu stórhættulegu súlustöðum og banna allt "klám." Sem betur fer er það orðið að veruleika.
Það er alveg hryllilegt til þess að hugsa að fullorðnir sjálfráða karlar skulu leyfa sér að horfa á hálfberar fullorðnar sjálfráða stelpur og skulu meiraðsegja geta haft gaman af því. Þvílíkir djöfulsins drullusokkar. Þvílíkt óeðli. Þvílíkt helvítis fokking fokk! Auðvitað á að banna þessa viðbjóðslegu staði. Með því að banna þessa staði þá hverfur allt vændi einsog dögg fyrir sólu einn tveir og bingó og Klakinn rís úr sæ og allir geta tekið gleði sína á ný. Þarna þrífst alveg hreint gríðarlegt mansal og þrælahald í stórum stíl. Stelpurnar eru hlekkjaðar á höndum og fótum og barðar áfram með hnútasvipum og gaddakylfum og sendar í galeiðum milli landa. Þær koma frá þriðja heims löndum einsog Eystrasaltslöndunum og Bretlandi sem eru alræmd skítabæli einsog allir vita. Á súlustað einsog Goldfinger geta þær haft hátt í milljón á mánuði sem er náttúrulega alveg skelfileg tilhugsun. Mér persónulega myndi líða miklu betur vitandi af þeim á kassa í Bónus eða skeinandi gamalmennum á Grund fyrir 90 kall á mánuði. Svoleiðis draumadjobb myndu þær þiggja fegins hendi ef þær væru ekki í ánauð, marghlekkjaðar á höndum og fótum. Það á að stinga þrælahaldara og yfirdjöfli einsog Geira á Goldfinger beint í svartholið uppá vatn og bónusbrauð og pína hann til að lesa Kommúnistaávarpið og hlusta á allar þingræður Vinstri græningja kvölds og morgna, dag og nótt, árið um kring, ævina á enda
Ég þarf ekki að taka það fram að það ber að sjálfsögðu að banna klámmyndir einsog þær sem ég birti hér að ofan. Efsta myndin er náttúrulega sínu verst. Þeir sem góna of mikið á hana gætu leiðst út í drullupumpubisness.
Vinstri grænir, sem af einhverjum mjög góðum og gildum ástæðum eru með kynlíf á heilanum, vilja einnig láta leiða í lög að sá sem kaupir þjónustu af hóru fari beinustu leið í grjótið, en ekki hóran. Að bjóða vændi á semsagt að vera löglegt en að þiggja þjónustuna og borga fyrir hana einsog sannur séntilmaður er vitaskuld glæpur. Allir hljóta að sjá að þetta er náttúrulega alveg ofboðslega skynsamlegt einsog allt sem frá Svíum og Vinstri grænum kemur. Skrítið að einhverjum hugsuði einsog Valda koppasala skyldi ekki hafa dottið þetta í hug. "Raddir fólksins" hafa greinilega hvorki náð hans eyrum né mínum nógu vel. Glæsileg, kynþokkafull kona sem vill nota guðsgjafir sínar í ábataskyni er ALLTAF í ánauð einhvers ógeðslegs hórmangara. Segir sig sjálft. Það á að banna allt atvinnufrelsi. Það er frá djöflinum komið einsog allt annað frelsi.
Þú átt semsagt þinn líkama og mátt bjóða hann hverjum sem er til afnota en þú mátt hinsvegar allsekki þiggja eina krónu fyrir gamanið. Sá sem er kurteis og gefur þér 1000 kall í þakklætisskyni fer beint í dýflissu þar sem hann verður hlekkjaður á höndum og fótum einsog súludansmey. Örugglega auðvelt að rannsaka svona mál. Vinstri græningjar hljóta þá um leið að vilja leiða það í lög að dópsalinn sé saklaus sem lamb en kaupandinn sekur. Það gefur auga leið. Það verður að vera samræmi í hlutunum. Eitt skal yfir alla ganga
Boð og bönn hafa alltaf reynst heilladrýgst lausn hvers vandamáls, hvort sem um er að ræða vændi, súlustaði, áfengi eða annað. Með því að banna hlutina þá hverfa vandamálin. Maður skrifar undir lög og vandamálið er úr sögunni. Gott dæmi um það er áfengisbannið í Bandaríkjunum. Það hættu bókstaflega allir að drekka med det samme. Mafían brosti að vísu eitthvað en þetta svínvirkaði. Þorstinn hvarf einsog sparifé Breta í Icesave. Framsóknarflokkurinn gerði gott betur og setti í stefnuskrá sína fyrir um 10 árum síðan: "Vímuefnalaust Ísland árið 2000." Síðan þá hefur ekki nokkur kjaftur sést reykja svo mikið sem njóla og hvað þá gras á götum bæjarins. Sama gildir um vændið. Það er nefnilega kolrangt sem einhver orti hér um árið: "Þótt náttúran sé lamin með lurk / þá leitar hún út um síðir."
Mér sýnist að eina leiðin til að koma útrásarkrimmunum á bak við lás og slá sé að reyna að fá þá til að tíma að borga einhverri kellingu fyrir tottið. Annars borgar sig nú ekki að vera að pæla í smotteríi einsog hruni landsins. Það sem ríður á þarf að gera, nú þegar landið er að fara til helvítis, er að banna alla nekt og allt helvítis klám. Það er forgangsatriði og sem betur fer gerir ríkisstjórnin sér grein fyrir því og er að vinna í því baki brotnu einsog hóra á bakinu. Engir tveir einstaklingar skulu fá að fara í sturtu saman, hvorki í sundlaugunum né heima hjá sér. Sjáist berbrjósta kellingardrusla liggja í sólbaði skal hún umsvifalaust skotin á staðnum, beint á milli augnanna, nú eða brjóstanna, og sömuleiðis þeir perrar sem eru að góna á hana. Sérstaklega þeir. Beint á milli brjóstanna. Setjum heimsmet í forsjárhyggju og leiðindum rétt einsog glæpamennsku og spillingu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (63)
6.3.2009 | 20:23
Þann dag er Klakinn dó
Flestir sem komnir eru til vits og ára, eða skulum við segja ára, hafa heyrt lagið The night Chicago died með hljómsveitinni Paper Lace. Það fjallaði um þann skemmtilega tíma þegar öðlingurinn Al Capone réði ríkjum í Chicago á bannárunum. Við erum að upplifa ekki ósvipaða gósentíma á Islandi í dag nema hvað fólkið er ekki plaffað niður með vélbyssum heldur með fláttskap og vélum.
Eg tók mig til núna um miðjan janúarber og gerði nýjan texta við þetta ágæta lag og tók það upp. Lagið heitir Þann dag er Klakinn dó. Eg og Richard Scobie syngjum. (Síðast sungum við félagarnir saman lag mitt Allsstaðar er fólk fyrir sléttum 20 árum síðan). Þetta lag, sem kemur út á sólóplötu minni í haust, má finna í tónlistarspilaranum hér til vinstri á síðunni.
Dabbi hann var boss
hér á ísköldum klaka
í þá gömlu vondu daga.
Það er mikil sorgarsaga.
Það var kolsvartur september,
það var sárt fyrir frónska menn
þegar ískaldur Klakinn dó.
Það er talað um það enn.
Þá voru bjórúlfar í móð
við að ræna þessa þjóð
og þeir komu´upp bankaher
til að kyrkja þetta sker.
Ég heyrð´er mamma hló,
hún hló og grét þann dag er Klakinn dó.
Boring þessi djöfuls dagur var.
Borinn fyrir borð hvers hagur var.
Það er satt.
Ég heyrð´er mamma hló,
hún hló og grét þann dag er Klakinn dó.
Sérhver maður gekk af göflunum
vildi stúta fjármagnsöflunum.
Það er satt.
koma ránsfengnum á þurrt.
Þegar lögreglan loksins kom
þá var allt á bak og burt.
Hér voru bankaflón í móð
við að ræna þessa þjóð,
já þeir sló´ana í rot
og þeir settu hana í þrot.
Ég heyrð´er mamma hló,
hún hló og grét þann dag er Klakinn dó.
Þvílík hörmung þessi dagur var.
Borinn fyrir borð hvers hagur var.
Það er satt.
hún hló og grét þann dag er Klakinn dó.
Sérhver maður reyndist ráðþrota,
rúinn inn að skinni, gjaldþrota.
Þjóðin sprakk.
Og það sagði enginn orð
er þeir frömdu þjóðarmorð.
Allir misstu húsin sín,
fóru að lifa einsog svín,
allir misstu sitt í hýt,
allir fóru að éta skít.
Þann dag er Klakinn dó.
Bróðir þvílík eymd og þvílíkt basl,
Bróðir þvílíkt mess og þvílíkt drasl.
Það er satt.
Þann dag er Klakinn dó.
Þann dag er Klakinn dó.
Margir flúðu land, þeir æddu út.
Þjóðinni já henni blæddi út.
Það er satt.
Þann dag er Klakinn dó.
Þann dag er Klakinn dó.
Allt er týnt og gefið tröllunum.
Ráðamenn þeir kom´af fjöllunum.
Það er satt.
Þann dag er Klakinn dó.
Þann dag er Klakinn dó.
Þjóðin þurfti´að hlust´á rugl og bull.
Ráðamenn þeir lugu okkur full.
Það er satt.
Stormsker > Söngur, bakraddir og öll hljóðfæri.
Scobie > Söngur og bakraddir.
Snorri Snorrason idolstjarna > Upptakari.
Snorri og Stormsker > Mixarar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Svona er dæmigerð þingmannsræða um þessar mundir:
"Hæstvirtur forseti. Ég er aumingi og hálfviti og vinn við það að hafa vit fyrir þessari þjóð. Mér þykir ákaflega leitt ad hafa steinsofið á verðinum meðan bankahrunið átti sér stað. Sömuleiðis þykir mér miður að vera hálfviti. Ég geri mér ljóst að ég er ekki starfi mínu vaxinn en hver er það svosem í okkar frændaþjóffélagi þar sem klíka skiptir meira máli en geta, menntun og hæfileikar? Ég hefði mátt vera gagnrýninn í hugsun, en til þess að vera gagnrýninn i hugsun þá þarf maður að geta hugsað Eitthvað og það er ekki beint mín sterkasta hlið frekar en annarra þingmanna einsog frægt er orðið um gjörvalla heimsbyggðina. Þjóðin sjálf á við sama vanda að glíma og þessvegna kýs hún okkur aulana á þing. Aftur og aftur. Við alþingismenn erum þverskurður og spegilmynd þjóðarinnar. Við erum semsagt fífl. Við erum asnar og amatörar en við erum að reyna að gera okkar besta þó það komi náttúrulega ekkert útúr því nema rugl.
Bankahrunið kom mér og öðrum þingmönnum alveg gjörsamlega í opna skjöldu þrátt fyrir allar kolsvörtu skýrslurnar og spárnar sem við vorum bókstaflega að drukkna í. Við vorum sjálfumglöð og værukær og gjörsamlega útá túni og veltum okkur uppúr bittlingunum og ferðadagpeningunum og spillingunni einsog svín og reyktum of mikið af sterku stöffi, og ég ætla að vona að þessir yndislegu tímar séu ekki liðnir. En þess ber þó að geta að fólkið í mínum flokki reykti ekki nánda nærri eins mikið og hyskið í hinum flokkunum og við tókum lítið sem ekkert oní okkur. Svo skal böl bæta að benda á eitthvað annað. Við öxlum ábyrgð með því að sitja áfram sem fastast.
Ég á minn þátt í þessu andavaraleysi sem við höfum gerst sek um undanfarna klukkutíma og jafnvel undanfarna áratugi. Það er bara eitt orð sem getur strikað út allt mitt rugl og það er: Sorry.
Ég hefði mátt vera vakandi og ég hefði mátt sleppa því að eyða tíma mínum og annarra þingmanna í tittlingaskít og bullshit einsog hvort öryrkjar og gamalmenni ættu rétt á að lifa af í þessu landi og hvort það væri réttlætanlegt að fólk gæti lifað af laununum einum saman o.s.fr. o.s.fr. Við hefðum mátt hugsa um það sem skipti máli og vera ekki með hausinn á bólakafi uppí rassgatinu á okkur. Við hefðum t.d. átt að taka nokkur ár í að ræða það alveg oní kjölinn hvort kornabörn ættu að klæðast bleikum fötum eða bláum á fæðingardeildum og hvort ekki mætti finna smekklegt kvenkyns orð yfir ráðherra o.s.fr. En gert er gert. Við erum nú einusinni Íslendingar og elskum aukaatriði og þrætur um nonsens.
Mér þykir þykir þetta miður fyrir Sjálfan mig, ekki aðra, og ég hef beðist afsökunar á þessum fávitahætti mínum. Það getur enginn gert að því þótt hann sé hálfviti en það var fólkið í landinu sem kaus mig til að gegna þessu ábyrgðarlausa embætti. Sökin er þessvegna ekki bara mín heldur líka fólksins sem kaus mig, aumingjann. Það eru bara kálfar sem kjósa naut á þing.
En hvað um það. Ég segi einsog Saxi læknir þegar hann hafði óvart höggvið sjúkling sinn i herðar niður: "Afhverju horfa allir svona á mig? Manni getur nú mistekist."
Við þjóðina vil ég segja þetta: Ekki gleyma að kjósa mig og minn flokk aftur i næstu kosningum. Aftur og aftur og aftur og aftur. Það er engin hætta á að við getum klúðrað hlutunum meira en við höfum þegar gert. Við áttum okkar þátt í því að sökkva þjóðarskútunni til botns en nú getur leiðin bara legið uppá við. Við erum rétta fólkið í það björgunarverkefni. Hryðjuverkamaður sem sprengir byggingu í loft upp er akkúrat rétti maðurinn til að endurbyggja hana. Treystið okkur. Við kunnum þetta þó við séum víðáttuvitlausir hlandaular.
Við eigum ekki alltaf að vera að horfa í baksýnisspegilinn. Við eigum að horfa á allar fögru brunarústirnar sem eru framundan. Það eru mjög spennandi tímar framundan fyrir okkur þingmenn. Við eigum að kjósa flokka, ekki fólk, vegna þess að í skjóli flokkanna hljóta hálfvitar eins og ég brautargengi. Hugsið ykkur bara; ég væri að raða kerrum í Bónus ef ég hefði ekki gengið í minn flokk og sleikt rassgöt og sagt já og amen við öllu sem formaðurinn bullaði. Ég er nefnilega ekki snillingur heldur spillingur.
Jæja. Við játum mistök okkar og öxlum ábyrgð með því að biðjast afsökunar. Sorry og málið dautt. Kæru kjósendur, ég treysti á yfirgripsmikla heimsku ykkar og ósjálfstæði. Hún hefur aldrei brugðist. Sjáumst í kjötklefanum."
Sekt og sakleysi á þingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
19.2.2009 | 03:24
Hreinn og tær viðbjóður
Á ferðalagi mínu um Cambodiu fyrir rúmlega tveimur árum kom ég við á Blóðvöllum, eða Killing Fields einsog þetta kallast í dag eftir myndinni frægu. Á miðjum akrinum stóð einmanalegt tré án sýnilegs tilgangs einsog framsóknarmaður. En þetta tré notuðu Rauðu kmerarnir óspart. Þeir tóku um lappir ungabarna og slengdu hausnum á þeim við það og hentu þeim ofan í fjöldagröf við hliðina. Orðið timburmenn fékk nýja merkingu í mínum huga. Þetta voru börn menntamanna og þeirra sem kommúnistarnir héldu að gætu slysast til að hugsa sjálfstæða hugsun í framtíðinni. Slíkt er stórvarasamt í kommúnistaríki.
Ég kynntist ekki þeirri stúlku í Cambodiu sem ekki hafði misst náinn fjölskyldumeðlim. Yfirleitt voru þær föður - eda móðurlausar. Pabbi þeirra eða mamma hafði verið svo óheppin að kunna að lesa og skrifa og það er glæpur sem hardcore kommúnismi líður ekki. Trúin á kommúnismann sem framtíðarfyrirkomulag rústaði framtíð þessarar þjóðar.
Strax a flugvellinum i Phnom Penh, höfuðborginni, fann maður fyrir óhugnaðinum og ofbeldinu sem sveif yfir vötnum. Mér var kastað einsog ruslapoka aftast í röðina afþví ég hafði gleymt að merkja x í einhvern reit í inngönguplagginu. Komst seinna að því að fyrrum böðlar Pol Pots voru nú starfsmenn flugvallarins og í öllum helstu stofnunum borgarinnar, en auðvitað áttu þeir að vera á öllum helstu geðheilbrigðisstofnunum borgarinnar.
Ráðlagt að fara ekki út eftir klukkan 8 á kvöldin ef maður vildi halda lífi. Reglur sem ég braut reyndar á hverju kvöldi í fylgd tuc tuc gæa sem ég leigði mér til að sniglast um borgina á mínum vökutíma, sem er ekki beint kristilegur. 3 vestrænir túristar voru rændir og stungnir á hol viku áður en ég mætti á svæðið. Virðingin fyrir mannslífum í sama frostmarki og virðing íslenskra bankafursta fyrir almannafé.
Hef flakkad víða um miður kræsilega staði en ferlegasti staður sem ég hef nokkurntíma komið á er án vafa Tuol Sleng fangelsið i Cambodiu sem þessi Kaing Guek Eav api stjórnaði. Þetta var áður barnaskóli en var breytt í pyntingarbúðir á tímum Pol Pots. Auswitch var einsog tívolí við hliðina á þessu helvíti. Þá sem þeir nenntu ekki að drepa strax létu þeir dúsa í pínulitlum básum sem rúmudu vart skugga af mannveru. Blóðslettur upp um alla veggi. Hauskúpur í glerskápum. Karlar, konur, gamalmenni, börn; alltsaman pyntað og myrt á hinn hugvitsamlegasta og skelfilegasta hátt. Sér pyntingarklefar. Drekkingartunnur sem fótbundið fólkið var látið síga á hvolf niður í. Járnrúm sem fólkið var njörvað niður í og gefið raflost. Útlimir sargaðir af með bitlausum hnífum sem lágu með grotnuðum kjöttætlum við hliðina á járnrúmunum. Strekkt á líkamanum í vatnskari þangað til hann nær slitnaði í sundur. Augun rifin úr með glóandi töngum. Myndir af fallegum manneskjum, kornungum sem öldnum, sem höfðu hlotið þessi hroðalegu örlög. Ekki hægt annað en að gráta á þessum hörmungarstað. Blóðskammaðist mín fyrir að tilheyra dýrategundinni "homo sapiens." Mannleg grimmd á sér ENGIN takmörk frekar en heimskan. Guð skapaði jú manninn í sinni mynd. Tek undir með Þórbergi Þórðarsyni: "Heimskan er einsog eilifðin. Hún takmarkast hvorki af tíma né rúmi."
Þar sem enga olíu er að finna í Cambodiu þá héldu Bandaríkjamenn að mestu að sér höndum á þessum tímum og vildu ekki vera að gera veður út af þessum Pol Pot þó hann væri að dunda sér við að slátra þjóð sinni.
Það voru Víetnamar, ein harðgerðasta þjóð heims, þjóð sem Bandaríkjamönnum tókst ekki að slátra örfáum árum áður þrátt fyrir góðan vilja, sem frelsuðu Cambodiu undan sjálfri sér. Hefðu gjarnan mátt klára verkið alveg. Þeir steyptu stjórninni en slepptu böðlunum. Pol Pot, líklegast grimmasta og heimskasta trúfífl mannkynssögunnar, lést í hárri elli um aldamótin, fullur gleði og óbilandi trú á kommúnismann.
Hér í Asíu, þar sem ég er núna staddur, er talað um Íslendinga í fjölmiðlum sem einhverja spilltustu, óheiðarlegustu og heimskustu þjóð sem sögur fara af. Það er sennilega ekki svo fjarri sanni. Þjóðin orðin heimskunn sökum heimsku. Loksins varð Ísland frægt, á réttum forsendum.
Cambodia losaði sig við síðasta kommúnistann árið 2003. Fundu hann útí skógi og skutu hann. Satt. Íslendingar hinsvegar framleiða kommúnista á færibandi. Ekki blóðþyrsta morðingja heldur einfeldninga og hálfvita.
Fyrsta sem Íslendingum dettur í hug að skera niður þegar syrtir í álinn er menntakerfið. Og svo heilbrigðiskerfið. Einmitt þegar þeir þurfa mest á menntun og andlegu heilbrigði að halda.
Síðan kommúnisminn leið undir lok þá hefur hann hvergi haft eins mikið fylgi í nokkru lýðfrjálsu ríki og á Íslandi.
Síðasti kommúnisti heimsins mun án nokkurs vafa vera Íslendingur.
Líkt og þegar Víetnamar björguðu Cambodiu þá þurfum við illilega á einhverri góðri og hjálpsamri þjóð að halda til að bjarga okkur frá sjálfum okkur.
Böðullinn á Blóðvöllum fyrir rétt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 2.11.2023 kl. 09:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
14.2.2009 | 22:02
Mjög gott mál
Hef lítid getað fylgst með því sem er að gerast á Los Klakos undanfarnar vikur. Veit þó að tími Jóhönnu Sigurðardóttur er nú loksins kominn, sem er mjög gott mál, og svo er víst tími Steingríms Joð, Kolbrúnar Halldórs, Marteins Mosdals og Georgs Bjarnfreðarsonar kominn líka og það er líka mjög gott mál. Mjög gott vandamál. Við þurfum ekki að örvænta þegar við höfum svona einvala lið við stjórnvölinn. Við höfum ekki lengur hrossalækni sem fjármalaráðherra heldur jarðfræding og tá hljóta málin nú að fara að blessast. Fagmennskan í fyrirrúmi.
Svo skilst mér að Dabbi sé kominn á 400 hestafla Corvettu og sé á stöðugum æðisgengnum flótta um götur borgarinnar undan snarbrjáluðum blaðasnápum og þungvopnuðum almenningi og geti hvergi um frjálsar krullur strokið og að hann sé búinn að flytja skrifstofu sína í Seðlabankanum í rammgirta gullhvelfinguna. Til standi að hann láti múra sig inní bankanum. Það er líka mjög gott mál. Hann er skyldurækinn maður hann Dabbos.
Svo var mér sagt að Imba Solla væri með eitthvað í höfðinu. Æxli eða eitthvað svoleiðis dótarí. Því trúi ég nú ekki. Það getur enginn logið því að mér að hún sé með nokkurn skapaðan hlut í hausnum. Ég trúi nú ekki hverju sem er. Það er akkúrat Ekkert í hausnum á henni, enda er hún formaður Samfylkingarinnar.
En það er semsé allt komið í flott stand á Los Klakos og það er bara verulega gott mál. Allir farnir að taka þátt í kærleiksgöngum og kossaflensi og faðmlögum og ríðingum. Skilst að það verði eitthvað smokklaust hópsex milli almennings og stjórnmálamanna við tjörnina í dag með lúðrablæstri og söng. Það myndi ég segja ad væri mjög gott mál. Kynlegt mál.
Kærleiksganga á Austurvelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 4.3.2009 kl. 12:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
18.1.2009 | 17:56
Framsóknarmartröðin heldur áfram
Ekki byrjar siðbótin í Framsókn vel. Fyrst er Höskuldur lýstur formaður og svo Sigmundur nokkrum mínútum síðar. Hver verður það í kvöld? Guðni? Valdi koppasali? Ragnar Reykás? Hver sér um atkvæðatalninguna fyrir þessa dúdda? Inspector Clouseau? Hvernig er hægt að ruglast á nöfnum? Settu þeir Gísla Helgason flautuleikara í að yfirfara þetta? Hvað eru þessir svefngenglar að drekka sem við höfum ekki smakkað? Absolut Idiot?
Það er ekki að ástæðulausu að ég set þessa færslu undir "heilbrigðismál."
Ég veit ekki hvort ég eigi að samgleðjast Sigmundi eða samhryggjast. Jú reyndar, ég veit það. Hann er í skelfilegum málum. Þarna fór fín perla í svínskjaft. Ég sem hélt að það yrði eitthvað úr honum. Ég myndi eflaust kjósa Sigmund í persónulegri kosningu, en flokkinn og allt það fálkager sem honum fylgir mun ég að sjálfsögðu aldrei kjósa.
Í gær heiðraði þessi gjörspillti flokkur Guðna Ágústsson. Fyrir hvað? Að standa sem lambbúnaðarráðherra með bændamafíunni á móti neytendum? Fyrir ævisöguna þar sem var ekki minnst einu orði á gjafakvótakerfið sem flokkurinn kom á? Fyrir að segja af sér formennsku og þingmennsku? Fyrir góða veislustjórn í spillingarbælinu? Fyrir að flýja einsog fætur toguðu úr þættinum mínum? Hver á að skilja þennan flokk?
Jónína Ben vinkona mín heldur að það sé hægt að ræsta spillinguna úr flokknum. Í gær setti ég inná síðuna hennar þessa athugasemd:
"Að ætla sér að reyna að hreinsa spillinguna úr Framsóknarflokknum er einsog að ryksuga hús sem er gegnétið af veggjatítlum. Það verður að brenna kofann til grunna."
Þessi flokkur á álíka mikið erindi við þjóðina og minkur við hænsnabú.
Sigmundur kjörinn formaður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 14.2.2009 kl. 00:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (44)
18.1.2009 | 13:41
Geir um Grey frá Gay til Gauðs
Ég tek undir með Geir Hor: Það er svolítið gremjulegt að "ríkiskerfið" skyldi hafa klúðrað málunum pínulítið. Árið 2009 gæti orðið svona frekar óspennandi þó það séu reyndar "mjög spennandi tímar framundan hjá Sjálfstæðisflokknum," einsog Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir benti á fyrir stuttu í miðri kreppunni.
Einhverjir gætu hugsanlega misst aukavinnuna tímabundið og svo er ekki loku fyrir það skotið að einhverjir óaðsjálir lúðar í Breiðholti lendi í smá vandræðum með að borga af blokkarkompunum sínum og kannski að nokkrir þurfi að fara að borða nautasteikur í staðinn fyrir hreindýrafille. En þetta er ekkert sem þarf að hafa miklar áhyggjur af því við búum við styrka stjórn valinkunnra spesíalista.
Það er rétt sem Geir segir að menn voru algerlega "óviðbúnir þegar fjármálaóviðrið skall á okkur." Aðeins nokkrir tugir innlendra og erlendra sérfræðinga höfðu varað ríkisstjórnina við mánuðum saman en þeir áttu það reyndar allir sameiginlegt að vera ómarktækir fávitar sem þurftu "á endurmenntun að halda," einsog Þorgerður Katrín orðaði það svo skemmtilega rétt fyrir hina svokölluðu "kreppu." Á sama tíma sagði Imba Solla: "Hér er engin kreppa," og hitti þar naglann á höfuðið einsog endranær.
Davíð Oddsson sagði við Geir á síðasta ári að það væru 0% líkur á að bankarnir myndu lifa af og í kjölfar þeirra orða voru settir nokkur hundruð milljarðar í að reyna að bjarga Kaupþingi. Einmitt. Geir segir: "Við töldum að Kaupþing myndi lifa þetta af, alveg fram á síðustu stundu." Samt voru 0% líkur á því samkvæmt orðum Davíðs. Niðurstaðan: 100% rugl.
Þó að maður skilji þetta ekki alveg þá hlýtur að vera eitthvað mikið vit í þessu öllu hjá okkar framsýnu ráðamönnum. Varla höfum við verið að kjósa yfir okkur einhverja asna! Svo er líka svo þægilegt að vita af því að ekki taka síðri proffar við eftir kosningar, semsé Vinstri græningjar. Þá fyrst byrjar nú gleðin og fagmennskan fyrir alvöru. Jibbííí!!!! Guð blessi Ísland.
Geir: Árið verður mjög erfitt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
17.1.2009 | 19:57
Til fjandans með allar nýjar raddir
Hvaða helvítis froskar standa eiginlega að baki þessum "Nýju röddum?" Við eigum að halda áfram að láta Hörð Torfason einan velja fólk sem má tala á Austurvelli. Þannig hefur það verið í 15 vikur og þannig skal það verða áfram. Hörður heyrir raddir og við eigum að hlusta á hans raddir. Raddir hans eru raddir fólksins.
Mótmæli Harðar Torfa hafa skilað gríðarlegum árangri, t.d. kvefi og lungnabólgu fundargesta svo ekki sé nú minnst á hvað þetta er góð æfing í ræðumennsku og tilvalinn stökkpallur inná þing. Enda eru þeir Hörður og Einar Már og Njörður P. Njarðvík og fleiri rauðliðar að stofna stjórnmálaflokk upp úr þessum mótmælum.
Geta þessar Nýju raddir ekki drullað sér eitthvað annað? Viljum við virkilega óheft tjáningarfrelsi? Viljum við virkilega að hver sem er geti tjáð sig niðrá Austurvelli á laugardögum kl. 3? Á ég að trúa þessu?! Ég meina, viljum við almennilegt fasistaríki eða ekki? Sjá menn ekki hvílíkt glapræði það er að hafa opinn hljóðnema fyrir hvern sem er til að tjá sig?
Guði sé lof að lögreglan fór að beiðni Harðar Torfa og fjarlægði bíl og hljóðtækjabúnað Nýrra radda og kom þannig í veg fyrir að nýjar og óæskilegar raddir heyrðust. Ef við leyfum þessu pakki að vaða uppi þá eigum við á hættu að hér þróist eitthvað sem geti kallast lýðræðisleg vinnubrögð og viljum við það? Ég segi NEI! Ég spyr einsog Hörður Torfa gerði á Austurvelli í dag: "Viljum við svona fólk?" NEI! Þetta fólk er ekki þjóðin.
og: Nýjar raddir
Fjöldi manns á Austurvelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (41)
16.1.2009 | 14:41
Forsetinn bað um að stjórnarskráin yrði brotin
Þetta er mjög einfalt. Ég skal reyna að orða þetta kurteislega: Annaðhvort er maðurinn fábjáni eða trúður. Ég hallast að því síðarnefnda. Ólafur er stjórnmálafræðingur og ætti því að þekkja stjórnarskránna jafnvel betur en útrásarvíkingana.
Kannski að fjármálaráðherrann geti aðstoðað hann við launalækkunina, en ef Ólafur er svona gasalega sólginn í að lækka laun sín og bæta þannig fyrir afglöp sín í starfi sem útrásarmella og lírukassaapi fyrir Baugsveldið þá á hann bara að gera það þegjandi og hljóðalaust og skrumlaust og hræsnislaust og slaka hinum og þessum góðgerðarfélögum millu á mánuði og svo gæti kannski hans betri helmingur bætt einhverju við. Hún hlýtur að mega missa einn lítinn demant úr námunni. Þetta er ekkert flókið
Það er svakalega lásí og idjótískt af honum að biðja Kjararáð að lækka laun sín þegar hann veit nákvæmlega hver niðurstaðan verður. Nema náttúrulega að hann hafi ekki vitað það og þá hefur hann þá einu afsökun að hann sé fábjáni og því kannski alveg tilvalinn sem samnefnari og sameiningartákn þjóðarinnar.
Forsetaembættið kostar þjóðarbúið nokkur hundruð milljónir á ári og þessari fúlgu væri án nokkurs vafa betur varið í styrkingu mennta - og heilbrigðiskerfisins og í aðstoð við þá sem hafa ekki til hnífs og skeiðar. Ef Ólafur vill raunverulega koma að gagni og spara þá færi vitaskuld best á því að hann segði af sér og leggði til í leiðinni að þetta tilgangslausa fokdýra snobbembætti yrði lagt niður í snarhasti.
Þessar endalausu leiksýningar forsetans fara að verða álíka þreyttar og hallærislegar og hárgreiðslan. Hann er búinn að koma embættinu niður í forarpytt sýndarmennsku, auðmannadekurs og ótrúverðugleika og í þeim skít situr hann sem fastast.
Ólafur er sannkallaður "for-seti."
Kjararáð getur ekki lækkað laun forsetans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 22.3.2009 kl. 02:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)